Fćrsluflokkur: Ljóđ

15 ára systir Eivarar fetar í fótspor stóru systur

 

  Einn af fallegustu söngvum fćreysku álfadísarinnar Eivarar er um yngri systur hennar tvćr,  Elínborgu og Elísabetu.  Nú er Elínborg orđin 15 ára og farin ađ hasla sér völl sem tónlistarkona;  söngkona,  gítarleikari og söngvahöfundur.  Hér er sýnishorn af ţví sem hún hefur fram ađ fćra: 

 http://www.roddin.fo/?p=2842

  Stelpan fer vel af stađ.  Hún segist ekki finna fyrir neinum ţrýstingi varđandi samanburđ viđ farsćlan feril stóru systur.  Ţvert á móti sé velgengni Eivarar sér hvatning.  Elínborg segir:  "Ég hef minn eigin stíl og reyni ekki ađ eltast viđ ţađ sem ađrir ćtlast til af mér." 

  Sama viđhorf er einmitt eđall Eivarar og ađ mörgu leyti lykillinn ađ velgengni hennar.

 


Bestu plötur ársins 2010 - III hluti

  Ég hef birt hér lista bandarísku poppmúsíkblađanna Rolling Stone og Spin (sjá örlítiđ fyrir neđar á bloggsíđunni) yfir bestu plötur ársins 2010.  Nú er röđin komin ađ áramótauppgjöri bandarísku netsíđunnar amazon.com.  Ţannig lítur ţađ út (innan fremri sviga er stađa sömu plötu hjá Spin og rauđi sviginn sýnir stöđuna á lista Rolling Stone):

1.  The Gaslight AnthemAmerican Slang  (36) (-)

  Ţetta eru léttpoppađir pönkarar frá New York.

 
2.  The Black Keys
 
Brothers  (30) (2)
 
3.  Beach House: Teen Dream  (17) (17)
Ljúft bandarískt indie popp
.
4.  Arcade FireThe Suburbs 
 (3) (4)
.
5.  Kanye WestMy Beautiful Dark Twisted Fantasy 
(1) (1)
.
6.  LCD SoundsystemThis Is Happening  (4) (10)
.
7.  Free EnergyStuck On Nothing 
(-) (-)
.
8.  The NationalHigh Violet 
(26) (15)
.
9.  Band of Horses Infinite Arms  (-) (-)
.
10. Vampire WeekendContra  (11) (6)
.
11.  Bruce SpringsteenThe Promise  (-) (-)
.
12.  Jamey JohnsonThe Guitar Song 
(5) (5)
.
 
13.  Girl Talk:  Feed the Animals 
(-) (-)
.
14.  Horse Feathers:  Thistled Spring
 (-) (-)
.
 
15.  DeerhunterHalcyon Digest  (2) (-)
 
 
 
 
 
.
  Ég veit ekki af hverju ţetta skilar sér svona brenglađ í Firefox forritinu.  Ţađ er betra á Internet Explorer.

Bestu plötur ársins 2010 - 2. hluti

  Í gćr birti ég áramótauppgjör blađamanna og gagnrýnenda bandaríska poppblađsins Rolling Stone yfir bestu plötur ársins 2010.  Međ fylgdi hver stađa sömu platna er í áramótauppgjöri bandaríska poppblađsins Spin og bandaríska vefmiđilsins amazon.com.  Jafnframt fylgdi međ sýnishorn (lag/myndband) af ţví sem er ađ finna á ţeim plötum sem skora hćst. 

  Međalaldur blađamanna Spin er lćgri en blađamanna Rolling Stone.  Hugsanlega er ţađ ađ hluta ástćđa fyrir ţví ađ Spin gefur jađarmúsík og minna poppađri músík meiri gaum.  Sumar plötur á listanum hjá Spin er ekki ađ finna á listanum hjá Rolling Stone.  Ţess vegna er upplagt ađ birta hér lista yfir plöturnar í 10 efstu sćtunum hjá Spin.  Í nćstu sćtum ţar á eftir eru margar plötur sem viđ ţekkjum lítiđ til hér á Íslandi og ég er ekkert ađ flćkja málin međ ţví hafa ţćr međ.  Hinsvegar má sjá í síđustu fćrslu hvar á listanum hjá Spin ţćr helstu lentu.  Ţar má einnig heyra sýnishorn af ţeim plötum sem ekki fylgja međ sýnishorn hér. 

  Ţannig er listinn hjá Spin (í fremri sviganum (rauđa) er stađa sömu plötu á lista Rolling Stone og í seinni sviganum stađan á lista amazon.com):

  

1

KANYE WEST

MY BEAUTIFUL DARK TWISTED FANTASY  (1)  (5)
.

DEERHUNTER

HALCYON DIGEST  (-)  (15)
.

ARCADE FIRE

THE SUBURBS  (4) (4)

LCD SOUNDSYSTEM

THIS IS HAPPENING  (10)  (6)

JAMEY JOHNSON

THE GUITAR SONG  (5) (12)
.

JANELLE MONAE

THE ARCHANDROID  (-)  (-)
Djöfull er hún leiđinleg,  ţessi Janelle.  En Grinderman er dúndur.

GRINDERMAN

GRINDERMAN 2  (-)  (22)
.

M.I.A.

MAYA  (19)  (-)
Ţetta lag er reyndar ekki á plötunni  Maya.  Ţađ er úr myndinni Slumdog Millionaire.  Byggt á frábćru lagi The Clash,  Straight to Hell.  Í fćrslunni fyrir neđan er lagiđ  Born Free af plötunni  Maya.  Ţađ lag ber ţess merki ađ M.I.A.  hafi heyrt lag Bjarkar  Declare Independance.  M.I.A. er Tamili frá Sri Lanka.  Ţađ er eins og ég hafi óljósan grun eđa finnist ég hafa heyrt í fréttum ađ Tamilar séu áhugasamir um sjálfstćđi,  ja,  ég veit ekki sjálfstćđi frá hverju.  Ef minn grunur er réttur ţá rennir ţađ enn fremur stođum undir ađ M.I.A. hafi hlustađ á umrćtt lag Bjarkar.  Ţar fyrir utan man ég ekki betur en M.I.A. hafi túrađ međ Björk bćđi um Bandaríkin og Evrópu. 
  Lagiđ  Planet Plane  í myndbandinu hér fyrir ofan hefur rakađ ađ sér verđlaunum,  svo sem Grammy og öđrum sem ég kann ekki ađ nefna. 
  Hér er lagiđ međ The Clash:  

KID CUDI

MAN ON THE MOON II: THE LEGEND OF MR. RAGER  (-)  (18)
.
10 

ROBYN

BODY TALK PT. 1   (14)  (-)

Bestu plötur ársins 2010

  Bandaríska poppmúsíkblađiđ Rolling Stone hefur birt lista yfir bestu plötur ársins 2010.  Rolling Stone er söluhćsta músíkblađ heims.  Ţađ selst í nćstum tveimur milljónum eintaka.  Eđlilega ber listinn ţess nokkur merki ađ blađamenn og plötugagnrýnendur Rolling Stone eru bandarískir.  Blađiđ er jafnframt dálítiđ íhaldssamt og sinnir ađallega ţekktum poppstjörnum fremur en jađarmúsík og  ţungarokki.  Gaman vćri ađ hlera viđhorf ykkar til listans.  Ég er svona rétt la, la sáttur.  Ţannig lagađ.  Ég er meira fyrir pönk. 

  Svona lítur listinn út (í bláum sviga er stađa sömu plötu í áramótauppgjöri helsta keppinautar Rolling Stone,  bandaríska poppmúsíkblađsins Spin.  Í svörtum sviga ţar fyrir aftan er stađa plötunnar í uppgjöri bandaríska vefmiđilsins amazon.com): 

1.    Kanye West
My Beautiful Dark Twisted Fantasy  (1) (5)

2.    The Black Keys
Brothers  (30) (2)

3.    Elton John and Leon Russell
The Union  (-) (-)

4.    Arcade Fire
The Suburbs  (3) (4)

5.    Jamey Johnson
The Guitar Song  (5) (12)

6.    Vampire Weekend
Contra  (11) (10)

7.    Drake
Thank Me Later  (16) (-)

8.    Robert Plant
Band of Joy  (35) (-)

9.    Eminem
Recovery  (38) (-)

10.    LCD Soundsystem
This Is Happening  (4) (6)

11. The Dead Weather, Sea of Cowards  (-) (-)

12. John Mellencamp, No Better Than This  (-) (-)
13. Taylor Swift, Speak Now  (-) (-)
14. Robyn, Body Talk  (10) (19)

15. The National, High Violet  (26) (8)
16. Kid Rock, Born Free  (-) (-)
17. Beach House, Teen Dream  (17) (3)
18. Kings of Leon, Come Around Sundown  (-) (-)

19. M.I.A., Maya  (8) (-)
20. Neil Young, Le Noise  (28) (-)


Skúbb! Stórfrétt!

  Í íslensku pönkbyltingunni um og upp úr 1980 spruttu upp í öđrum hverjum bílskúr á landinu splunkunýjar ferskar og ötular pönksveitir.  Ţćr voru ađ springa úr sköpun og spilagleđi.  Ţađ var allt ađ gerast allsstađar.  Menn höfđu ekki undan ađ sćkja spennandi viđburđi.  Ţađ var hefđ ađ margar hljómsveitir kćmu fram á hverjum hljómleikum.  Ţegar mest var um ađ vera var ekki hjá ţví komist ađ sćkja allt upp í ţrenna eđa ferna hljómleika í viku. 

  Ein allra skemmtilegasta og sprćkasta pönkhljómsveit ţessa tímabils var Sjálfsfróun.  Hún var skipuđ yngstu liđsmönnum senunnar.   Blessunarlega náđi kvikmyndin  Rokk í Reykjavík  ađ fanga stemmninguna ađ hluta og varđveita.  Sjálfsfróun var starfrćkt í áratug eđa svo.  Á seinni hluta ferilsins kom hún sjaldan fram.  En ţađ voru ţeim mun meiri tíđindi ţegar ţađ gerđist.  

  Ástćđan fyrir ţví ađ hljómleikar međ Sjálfsfróun urđu fágćtari međ árunum var sú ađ liđsmenn hennar voru duglegir ađ stofna nýjar hljómsveitir á borđ viđ Biafra Restaurant,  Ósóma og Beatnecks svo örfáar séu nefndar.  Jafnframt voru ţeir í allskonar blađaútgáfu,  greinarskrifum,  ljóđagerđ og svo framvegis.

  Saga Sjálfsfróunar einkennist ekki af eintómum dansi á rósum.  Ţađ var óregla á drengjunum.  Dáldiđ um lím"sniff" og ţess háttar.  Ţađ kom niđur á heilsu ţeirra.  Bassaleikarinn Pési "Pönkari" féll frá 1982.  Söngvarinn,  Bjarni "Móhíkani",  lést í bílslysi fyrir nokkrum árum.  Bjarni tók á sínum tíma viđ bassanum ţegar Pési féll frá.  Bjarni spilađi einnig á bassa međ Gyllinćđ,  Alsćlu (heyr í tónspilara hér til vinstri.  Bjarni er ađ vísu ekki kominn til leiks ţar) og Haugi & Heilsubresti fyrir áratug,  jafnframt ţví ađ "trúbadúrast".  

  Nú eru ţau undur og stórmerki ađ gerast ađ veriđ er ađ endurreisa Sjálfsfróun.  Ţađ eru gítarleikarinn Siggi "Pönkari" og trommarinn Jómbi sem standa ađ ţví.  Ţeir voru báđir stofnendur Sjálfsfróunar í upphafi og voru í hljómsveitinni allan tímann ásamt Bjarna "Móhíkana". 

  Á seinni hluta ferils Sjálfsfróunar spilađi Frikki "Pönk" á bassagítarinn.  Hann verđur međ í endurreisn hljómsveitarinnar.  Á ţessum tímapunkti er óljóst hvernig söngur verđur afgreiddur.  Bjarni sá ađ mestu um sönginn ţó Siggi hafi sungiđ vinsćlasta lag hljómsveitarinnar,  Lollipop.  Ţađ er eins og mig rámi í ađ Frikki hafi einnig sungiđ eitthvađ.  Hvorugur ţeirra vill sjá um sönginn núna.  Ţeir eru ađ leita ađ söngvara.  

  Hvađ sem verđur ţá eru ţetta stćrsta frétt í íslensku rokksögunni til langs tíma:  Ađ veriđ sé ađ endurreisa Sjálfsfróun.  Ég hlakka meira til ađ heyra í ţessari gođsagnakenndu hljómsveit á ný en til jólanna. 

--------------------

  Til gamans:

  -  Kunningi minn var viđ nám í Bandaríkjunum ţegar kvikmyndin  Rokk í Reykjavík  var tekin ţar til sýningar.  Hann lét sig ekki vanta í kvikmyndahúsiđ.  Ţađ var ađ öđru leyti trođfullt af bandarískum pönkurum.  Ţeir virtust láta sér vel líka.  Svo vel ađ ţeir gátu ekki stillt sig um ađ fagna framlagi Sjálfsfróunar međ dúndrandi lófaklappi.

  -  Mig minnir ađ ţađ hafi veriđ Bítlavinafélagiđ,  fremur en einhver önnur hljómsveit Jóns "Góđa",  sem á tímabili hóf hljómleika og / eđa dansleiki sína á ţví ađ kráka  Lollipop  Sjálfsfróunar.   Svo nákvćmlega ađ gítarsóló Sigga "Pönkara" var afgreitt nótu fyrir nótu.  Enda eitt eftirminnilegasta gítarsóló íslensku pönkbyltingarinnar.

  -  Eitt sinn var ég staddur á Ísafirđi ţegar ţar var haldin rokkhátíđ sem mig minnir ađ hafi heitiđ  Rokkstokk.  Eđa hvort hún hét Menntstokk og var undankeppni söngvarakeppni framhaldsskólanna.  Ţetta rennur saman hjá mér vegna ţess ađ ég hef mćtt á nokkrar svona músíkhátíđir á Ísafirđi.  Nema ţađ ađ ein hljómsveitin krákađi blöndu af  Lollipop  Sjálfsfróunar og samnefndu útlendu lagi.  Ţađ tókst vel og var gaman. 

  -  Varast ber ađ rugla saman Sigga "Pönkara",  gítarleikara Sjálfsfróunar,  og Sigga "Pönk",  söngvara Forgarđs Helvítis og DYS.  


Ţađ sem ţú vissir ekki um Bítlana

  Ţessir fróđleiksmolar um Bítlana hér fyrir neđan eru flestir sóttir í samantekt breska poppblađsins New Musical Express,  www.nme.com.  Ţetta er söluhćsta breska poppblađiđ.  Á undanförnum árum búiđ ađ hrista af sér önnur vikublöđ á borđ viđ Melody Makers,  Sound og Record Mirror.  Ţađ er nokkuđ merkilegt ađ breskt músíkblađ skuli hafa haldiđ sjó sem vikulegt músíkblađ á međan helsti keppinauturinn,  bandaríska Rolling Stone,  er hálfsmánađarblađ. 

  Hér eru molarnir:

 - Paul og John djömmuđu síđast saman í svakalegu kókaínpartýi 1974.  Ţetta var eftir ađ John og Paul höfđu skipst á eitruđum sendingum á plötum.  John međ níđsöngnum "How Do You Sleep?" og Paul í laginu "Let Me Roll It".  Í millitíđinni sagđi John ađ níđiđ í framangreindu lagi sínu hafi í raun veriđ um sig sjálfan.  Ţeir hittust nokkrum sinnum eftir kókaínpartýiđ og spjölluđu stundum saman í síma.  En ekki alltaf í vinsemd.  Samt stundum.
.
.
 - 1967 keyptu allir Bítlarnir sitthverja eyjuna viđ Grikkland.  Ţeir seldu ţćr nokkrum mánuđum síđar. 
 -  Bítlarnir sömdu fyrsta smell The Rolling Stone,  "I Wanna Be Your Man". 
 - George Harrison kom The Rolling Stones á plötusamning hjá Decca í upphafi ferils The Rolling Stones.
 - Bob Dylan hélt ađ Bítlarnir vćru dópistar.  Ţeir voru ţađ reyndar.  En Dylan kynnti ţeim fyrir hassi.  Hann hélt ađ viđlagiđ "I Can´t Hide" vćri "I Get High".
.
  - John ţoldi aldrei "strípađa" söngrödd sína.  Hann vildi alltaf láta breyta henni međ söng"effectum".
  - Ţegar Brian Wilson,  forsprakki The Beach Boys,  heyrđi Bítlalagiđ "A Day In A Life" taldi hann daga The Beach Boys vera liđna og hljómsveitin ćtti ađ hćtta.
  - 2009 fyrirgáfu formlega páfinn og Vatikaniđ Bítlunum yfirlýsingu Lennons um ađ Bítlarnir vćru vinsćlli en Jesú.
 - Vinnutitill plötunnar "Abbey Road" var "Everest".
  - Bítlarnir ţrćttu á sínum tíma fyrir ađ lagiđ "Lucy In The Sky With Diamonds" vćri LSD dópsöngur.  John ţrćtti alla tíđ fyrir ţađ.  Paul hefur hinsvegar viđurkennt ađ svo hafi veriđ.
  - John, Paul og George voru allir yfir međalhćđ.  Ringo var lítillega undir međalhćđ.
 -  Helmingur Bítlanna var örvhentur:  Ringo og Paul.
.
  -  Little Richard hélt framan af Bítlarnir vćru svertingjar.  Honum ţótti músík ţeirra vera blökkumannamúsík.
  -  Plötufyrirtćki Decca hafnađi Bítlunum á sínum tíma međ ţeim rökum ađ tími gítarhljómsveita vćri liđinn.  Bókun ráđamanna Decca um ţetta hefur alla tíđ síđan veriđ Decca til háđungar.
  - Áđur en Bítlarnir slógu í gegn undir nafninu The Beatles hét hljómsveitin The Quarrymen, The Beatals,   Johnny & The Moondogs,  Long John & The Beetles,  The Silver Beats,  The Silver Beatles og The Beat Brothers.
.
  -  Lennon og McCartney bundust á sínum tíma í fóstbrćđralag um ađ öll ţeirra lög yrđu skráđ á ţá báđa.  Óháđ ţví hver vćri höfundur lags.  Höfundarnafn vćri skráđ Lennon-McCartney.  Fyrir nokkrum árum fór Paul fram á ađ fá ađ breyta höfundarskráningu á laginu "Yesterday" í McCartney-Lennon.  Yoko,  ekkja Lennons,  hafnađi ţví á ţeirri forsendu ađ einungis John gćti samiđ um endurskođun á ţessum fóstbrćđrasamningi.  John var dáinn (myrtur) og ekki í ásigkomulagi til ađ breyta ţessu.  Paul var og er ósáttur viđ Yoko.
  -  Eina Bítlalagiđ sem John gerđi án annarra Bítla var "Julia".  Ţar syngur hann til mömmu sinnar viđ undirleik frábćrs gítarpikks.  Gítarpikks sem Paul einsetti sér síđar ađ ná tökum á og tókst - ađ eigin sögn.  Og eflaust međ réttu.  Ţannig var stemmningin á milli Pauls og Johns.  Ef annar gerđi eitthvađ flott hćtti hinn ekki fyrr en honum tókst ađ gera eitthvađ álíka flott.  
  Paul og John hittust fyrst 6.  júlí 1957 ţegar John var blindfullur ađ spila međ The Quarrymens.  Paul sagđi ađ allir í Liverpool hafi vitađ af John.  Hann var "the rebel" svćđisins.  Kjaftfori slagsmálahundurinn.  Síđar viđurkenndi John ađ hafa ekki veriđ sá "töffari" sem hann gaf sig út fyrir ađ vera.  Hann hafi alltaf veriđ skíthrćddur ţegar hann var ađ efna til slagsmála.  Var hálf sjónlaus en uppfullur af reiđi út í allt og alla.  Einkum vegna ţess ađ fullur lögreglumađur ók yfir og drap mömmu hans.  Hann vissi ekkert hvernig hann átti ađ vinna úr ţeirri reiđi.  Hún braust út í ađ efna til slagsmála.
  Í upphafi ferils Bítlanna í Hamborg í Ţýskalandi ánetjuđust ţeir eiturlyfjum.  Álagiđ var gríđarlegt.  Lítiđ um svefn.  Mikil vinna.  Lítiđ um mat.  En ţeim mun meira frambođ á pillum til ađ standa langar vaktir í spilamennsku.
  Síđasta skipti sem Bítlarnir unnu saman sem hljómsveit var 20.  ágúst 1969.  Ţá hljóđrituđu ţeir lagiđ frábćr "I Want You (She´s So Heavy".  Ţađ fjallar um ást Johns á Yoko.
  -  John hélt ţví fram ađ lagiđ "Ticket To Ride" vćri eitt af fyrstu heavy metal lögum rokksögunnar.  Rangt. 
  Allir liđsmenn Bítlanna voru flughrćddir. 
  -  Ringo var međ annan fót á sjúkrahúsi alla sína barnćsku.
 Enginn Bítlanna var framhaldsskólagenginn.  Lennon var ađ vísu í myndlistanámi en lauk ţar engri gráđu.
  -  John var alinn upp af móđursystur sinni,  Aunt Mimi.  Ţegar hann fór ađ spila rokkmúsík sagđi hún:  "Gítarspil er tomstundagaman.  En ţađ aflar ţér ekki tekna."
  -  Ţegar Bítlarnir spiluđu í Bandaríkjum Norđur-Ameríku 1964 gáfu ţeir út yfirlýsingu um ađ áheyrendum yrđi ekki mismunađ vegna kynţáttar.  Ţetta var byltingarkennd yfirlýsing á ţeim tíma.
  -  Bítlarnir voru fyrstu alvöru stóru poppstjörnur til ađ gagnrýna hernađ Bandaríkjanna í Vietnam.  Ţvert á fyrirmćli umbođsmanns Bítlanna,  Brians Epsteins.  Ţađ var George Harrison sem braut fyrstur gegn ţessum fyrirmćlum Brians.  Ekki John eins og margir halda í dag.
.

The Byrds

  Ţessi bloggfćrsla er skrifuđ í framhaldi af ţví ađ Heiđar Sigurđsson skrifađi í athugasemd hjá mér eftirfarandi:  "Persónulega hef ég aldrei skiliđ vinsćldir The Byrds. Mér fannst tónlist ţeirra og framkoma vera svo yfirgengilega vćmin og lögin svo yfirborđsleg og illa samin ađ ég gat aldrei hlustađ lengi ţar til ég fékk meira en nóg."

  Heiđar mćlir fyrir munn fleiri sem ţekkja The Byrds ađeins af lögum á borđ viđ  Mr.  Tambourine Man  og  Turn,  Turn,  Turn!.  Ađ vísu geri ég athugasemd viđ ađ ţessi lög séu illa samin.  Ţau eru ţađ ekki.  Ţarna er um ađ rćđa lög sem náđu í flutningi The Byrds toppsćtum á vinsćlalistum og hafa veriđ krákuđ af fjölda annarra en The Byrds.  Til ađ mynda fyrrnefnda lagiđ af Rúnari Júl og síđarnefnda lagiđ af Judy Collins,  Diesel Park West og Nina Simone.  Ţessi lög eru ekki samin af liđsmönnum The Byrds heldur Bob Dylan og Pete Seeger.  Báđir óumdeilanlega í hópi bestu lagahöfunda rokksögunnar.  Um Bob Dylan ţarf ekki ađ hafa mörg orđ.  Hann var í helstu fjölmiđlum heims keppinautur bítilsins Johns Lennons um titilinn tónlistarmađur síđustu aldar. 

  Svo skemmtilega vill til ađ John Lennon var mikill ađdáandi bćđi Bobs Dylans (sérstaklega) og Petes Seegers.  Annar bítill,  George Harrison,  var ekki síđri ađdáandi ţeirra og taldi Pete vera besta söngvahöfund síđustu aldar.  Ţriđji bítillinn,  Paul McCartney,  valdi lagiđ Turn,  Turn,  Turn!  sem smáskífulag fyrir söngkonu er hann tók ađ sér,  Mary Hopkins. 

  En förum yfir feril The Byrds.   

  Ţessi hljómsveit kom fram á sjónarsviđ sem fyrsta bandaríska bítlahljómsveitin 1965 međ laginu  Mr.  Tambourine Man  eftir Bob Dylan.

    Lagiđ toppađi vinsćldalista um allan heim.  Leikurinn var endurtekinn međ  Turn,  Turn,  Turn!

   Söngvarinn Gene Clark var höfundur allra frumsömdu laganna á fyrstu 2 plötum The Byrds, Mr.  Tambourine Man  og  Turn,  Turn,  Turn!.  Ţćr kynntu til sögunnar nýjan músíkstíl,  folk-rokk.  Ţađ brúađi bil bítlarokksins og vísnasöngva (ţjóđlagatónlistar).  Stíll The Byrds einkenndist af klingjandi gítar (12 strengja Rickenbacker) og rödduđum söng.  Ţessi stíll hafđi mikil áhrif á Bítlana,  Bob Dylan og fleiri

  The Byrds var ţannig skipuđ 1965 og nćstu ár:

  Roger McGuinn  (kallađi sig Jim á ţessum árum):  Gítar,  söngur
  Gene Clark  (dáinn 1991):  Tambórína,  söngur
  David Crosby:  Gítar,  söngur
  Chris Hillman:  Bassi,  söngur
  Michael Clarke:  (dáinn 1993):  Trommur
.
  3ja platan,  Fifth Dimension  (útg. 1966),  er gjörólík.  Ţar eru nýir og ferskir músíkstílar á borđ viđ sýru,  geim-rokk,  raga-popp, djazz-popp,  alt-kántrý og ţađ sem síđar var kallađ hippa-rokk. 
  McGuinn er höfundur flestra laga (5),  Crosby er međhöfundur 3ja ţeirra og einn höfundur enn eins lagsins.  Clark er ađeins međhöfundur eins lags,  Eight Miles High.  Enda hćtti hann ţarna í hljómsveitinni.  Tók ţátt í flutningi bara 2ja laga á plötunni.  5 stjörnu plata.  Margir telja  Eight Miles High  vera eitt af merkustu lögum rokksögunnar.  Jafnvel ţađ besta.
.
.
  Á 4đu plötunni,  Younger Than Yesterday,  er nýr höfundur,  bassaleikarinn Chris Hillman, höfundur 5 laga.  Crosby og McGuinn leggja einnig til lög.  Ţarna er haldiđ áfram međ ţá músíkstíla sem dúkkuđu upp á Fifth Dimension  og flower-power bćtist viđ.  Lögin Fifht Dimension (fimmta víddin) og  Eight Miles High voru bönnuđ vegna meintra tilvísana í dópneyslu.  Međ réttu eđa kannski síđur röngu. Dópiđ var ráđandi,  hvort sem í textum var vísađ til ţess eđa ekki.
.
 
  Upphafslag  Younger Than YesterdaySo You Want To Be A Rock N´ Roll Star,  hefur veriđ krákađ af mörgum.  Ţar á međal Patti Smith.  Lagiđ er eftir Hillman og McGuinn. 
  Í nćst nýjasta hefti breska poppblađsins Uncut viđurkenna liđsmenn Blue Oyster Cult ađ ţeirra vinsćlasti smellur;  (Don´t Fear) The Reaper,  sé í raun endurgerđ á  So You Want To Be A Rock N´ Roll Star.  En ekki viljandi.  Máliđ var ađ ţegar BOC var stofnuđ ţá spilađi hljómsveitin sig saman međ ţví ađ kráka The Byrds lög.  Svo skemmtilega vill til ađ Patti Smith var í slagtogi međ BOC,  samdi fjölda texta fyrir ţá og söng einmitt á sömu plötu og inniheldur  (Dont Fear) The Reaper.  The Byrds áhrifin leyna sér heldur ekki í flutningnum á laginu:
.
.
  Á 5. plötunni,  The Notorious Byrd Brothers  (útg. 1968),   eru lögin meira og minna samin í sameiningu af Hillman,  Crosby og McGuinn.  Til viđbótar eru tvö lög eftir Carole King og Gerry Goffin.  David Crosby lagđist alfariđ gegn ţeim lögum.  Hann vildi ađ hljómsveitin héldi sig eingöngu viđ frumsamin lög.  Ţessi ágreiningur leiddi til ţess ađ Crosby tók poka sinn og stofnađi Crosby, Stills & Nash (síđar & Young). 
  Á ţessari plötu heyrist í fyrsta skipti í stálgítar á The Byrds plötu.  Ţar var tónn gefinn fyrir nćstu plötu,  Sweetheart of the Rodeo  (útg. 1968).  Hún er "pjúra" kántrý-plata.
 
  Sweetheart of the Rodeo  kom eins og ţruma úr heiđskýru lofti.  The Byrds hafđi veriđ leiđandi í nýskapandi músíkstílum og öđru tilraunakenndu hippa-rokki.  Ţeir höfđu dađrađ viđ kántrý í einu og einu lagi á fyrri plötum.  Ţađ kom vel út innan um hipparokkiđ.  Létti stemmninguna og gerđi plöturnar auđmeltari viđ fyrstu hlustun.
  Á Sweetheart of the Rodeo  er annađ upp á teningnum.  Platan inniheldur ekkert tilraunakennt og ţungmelt hipparokk.  Ađeins kántrý.  Hreint og tćrt kántrý.  Ađ vísu rokkađra en kántrý-unnendur áttu ađ venjast.  Kántrý-unnendur ţoldu ekki ţessa plötu.  Ţví síđur hipparnir.  Platan seldist ekki neitt.  Hún passađi hvergi.  
  Einungis tvö lög voru frumsamin.  Bćđi eftir nýjasta liđsmanninn,  hljómborđsleikarann og gítarleikarann Gram Parsons.  Önnur voru eftir Bob Dylan,  Woody Guthrie,  Merle Haggard eđa gömul ţjóđlög.
  Ţađ liđu mörg ár áđur en  Sweetheart of the Rodeo  hlaut uppreisn ćru.  Í dag er hún talin vera ein af merkustu plötum rokksögunnar.  Hún lagđi grunn ađ ţví sem kallast alt-kántrý (alternative country) og ól af sér hljómsveitir eins og Wilco,  Green on Red,  Long Ryders.
...
  The Byrds á Sweetheart Of The Rodeo:  
  Roger McGuinn:  Gítar,  söngur
  Chris Hillman:  Bassi,  söngur
  Gram Parsons (dáinn 1973):  Hljómborđ,  gítar,  söngur
  Kevin Kelley:  Trommur   
.
.
  Kántrý-platan Sweetheart Of The Rodeo er ađ sumu leyti ranglega skilgreind sem hliđarspor VEGNA tilkomu Grams Parsons.  Jú,  vissulega setti Gram Parsons sterkan svip á ţá plötu.  En í raun hafđi Roger McGuinn einbeittan vilja til ađ gera blúgrass og kántrý-kennda plötu.  Ţess vegna var Gram Parsons fenginn til leiks.  Án hans hefđi platan ekki orđiđ eins "honky-tonk" leg og hún varđ. 
.
  Sjöunda plata The Byrds,  Dr.  Byrds & Mr. Hyde,  er fyrsta plata The Byrds sem er hvorki 5 stjörnu plata né hálf fimmta stjörnu plata.  Gram Parsons er hćttur og kominn í slagtog međ The Rolling Stones.  Hann á ţó tvö lög á plötunni,  Drug Store Truck Driving Man  (krákađ af Joan Baez á Woodstock),  ásamt Roger McGuinn, og Nashville West,  einnig ásamt Roger McGuinn og líka trommuleikaranum Gene Parsons.  Gítarsnillingurinn Clarence White er orđinn fullgildur liđsmađur eftir ađ hafa ađstođađ á fyrri plötum.  Hljómsveitin var eins og hálf áttavillt eftir "flopp"  Sweetheart Of The Rodeo.  Plötunnar sem í dag fćr allsstađar 5 stjörnur en var á ţeim tíma ennţá í skammarkróknum.
.
  The Byrds á Dr. Byrds & Mr. Hyde:
  Roger McGuinn:  Gítar,  söngur
  Clarence White (dáinn 1973):  Gítar,  söngur
  John York:  Bassi,  söngur
  Gene Parsons:  trommur,  söngur
.
.
  Áttunda plata The Byrds er Ballad Of Easy Rider.  Titillagiđ er samiđ af Roger McGuinn og Bob Dylan.  Ţađ var jafnframt einkennislag kvikmyndarinnar Easy Rider  međ ţeim Peter Fonda og Dennis Hopper.  Ţetta er fjögurra stjörnu plata sem inniheldur m.a. rokklagiđ  Fido  eftir Gene Parsons og Deportee  eftir Woody Guthrie.  Síđarnefnda lagiđ er sömuleiđis ađ finna á dúettplötu Gene(s) Clark(s) og Cörlu Olsen.  Frábćrt lag sem Bubbi söng viđ frumsaminn texta um Synettu,  skip sem fórst á Austfjörđum.
  Á plötunni er líka lagiđ  Jesus Is Just Allright  sem síđar varđ frćgt međ Doobie Brothers.  Ţegar hér var komiđ sögu - og reyndar nokkru áđur - var Roger McGuinn og fleiri Byrdsarar orđnir áhugasamir um Jesú. 
. 
.
  Níunda The Byrds platan kallast Untitled.  Ţetta var vel heppnuđ tvöföld plata međ hljómleikaupptökum af eldri lögum og ný hljóđverslög.  Góđ plata.  Hún inniheldur m.a. 3 lög eftir nýjan bassaleikara,  Skip Battin.  Ţarna er líka flott lag eftir Leadbelly,  Take A Whiff On Me.  Og annađ til eftir Leadbelly á endurútgáfu. 
.
  The Byrds á  Untitled:
  Roger McGuinn:  Gítar,  söngur
  Clarence White:  Gítar,  söngur
  Skip Battin (dáinn 2003):  Bassi,  söngur
  Gene Parsons:  Trommur,  söngur
.
  Tíunda plata The Byrds,  Byrdsmaniax,  er ţeirra slappasta.  Ekki beinlínis alvond en síđasta The Byrds plata sem fólk á ađ kaupa.  Upphafslagiđ er gospel-lagiđ  Glory,  Glory.  Allt í lagi.  Eins og önnur lög á plötunni.  En ekki ţessi snilld sem fyrri The Byrds plötur geyma.  Tunnel Of Love  heitir ágćtur blús eftir Skip Battin.  En ţetta er varla 3ja stjörnu plata.  En Roger McGuinn er kátur međ Jesú.
.
.
  Ellefta platan,  Farther Along,  er örlítiđ betri en  Byrdsmaniax.  En ekki mikiđ.  
  Tólfta og síđast hljóđversplata The Byrds var hálf misheppnuđ endurreisn gömlu The Byrds.  Samnefnd hljómsveitinni.
.
  The Byrds á ţeirri plötu:
  Roger McGuinn:  Gítar,  söngur
  Gene Clark:  Gítar,  söngur
  David Crosby:  Gítar,  söngur
  Chris Hillman:  Bassi,  söngur
  Michael Clarke:  Trommur
.
  Eins og sést á ţessari samantekt hýsti The Byrds 11 liđsmenn á ţeim 12 hljóđversplötum sem eftir hljómsveitina liggur,  útgefnum á árunum 1965 til 1973.  Ţessar plötur höfđu mikil áhrif á framvinduna í rokksögunni á ţessum árum og einstaklingarnir í The Byrds ekki síđur í ţví sem ţeir gerđu á öđrum vettvangi.  Eitt lítiđ dćmi:  Á meistarastykki Rogers McGuinns,  plötunni Cardif Rose,  er fyrsta The Clash lagiđ,  Rock And Roll Time. Lag sem kom út 1976,  ári á undan fyrstu plötu The Clash.  Hljómsveitir eins og R.E.M., Wilco og Long Ryders eru á fullu í ađ vinna úr arfleifđ The Byrds ásamt 10.000 öđrum hljómsveitum.  Lagiđ Gamli grafreiturinn  međ Klassart er einnig dćmi um ţađ.       
  Flestir liđsmenn The Byrds áttu og / eđa hafa átt farsćlan feril á sólóferli eđa međ öđrum hljómsveitum.  Gott dćmi um ţađ er Crosby,  Stills,  Nash & Young og The Flying Burrito Brothers.  Sú umfjöllun bíđur betri tíma á ţessum vettvangi. 
 

Bestu frumburđir rokksögunnar ađ mati ritstjórnar NME

  Í síđustu fćrslu birti ég lista yfir 20 bestu fyrstu plötur hljómsveita (og sólóskemmtikrafta) ađ mati lesenda breska rokkblađsins New Musical Express.  Í nýjasta hefti ţessa vinsćla vikublađs (6. nóv) er birtur listi ritstjórnar blađsins yfir 50 bestu frumburđina.  Ţađ er gaman ađ bera ţessa lista saman.  Listi ritstjórnarinnar er betri.  Svona lítur listi hann út (ónúmerađur.  Innan sviga er hvar plöturnar eru á lista lesenda NME):

Joan Baez:  Joan Baez  Ţessi bandaríska söngkona opnađi dyrnar fyrir ţví sem var kallađ "folk movement",  bandaríska ţjóđlagabylgjan.  Í kjölfar komu Bob Dylan,  Peter, Paul & Mary,  Kingstone Tríó,  Savanna tríó og ótal ađrir. Hún varđ fyrst dćgurlagapoppara til ađ prýđa forsíđu bandaríska fréttablađsins Time.  Ţađ ţótti gríđarmikil upphefđ fyrir dćgurlagamúsík.  Löngu síđar átti hún mörg vinsćl lög á vinsćldalistum alveg fram á áttundar áratuginn.  Hennar ţekktasta lag er kannski  Diamonds & Rust  sem hefur orđiđ klassík í ţungarokkinu í flutningi Judas Priest,  Nazareth,  Ritcie Blackmore (Deep Purple) og fleiri.
.
.
The Shadows:  The Shadows
Bob Dylan:  Bob Dylan
.
The Beatles:  Please Please Me (18)
Dusty Springfield:  A Girls Called Dusty
The Velvet Underground:  The Velvet Undrground & Nico (15)
The Who:  My Generation (20)
The Mothers Of Invention:  Freak Out! The Mothers Of Invention
The Band:  Music From Big Pink
The Stooges:  The Stooges
Black Sabbath:  Black Sabbath
Thin Lizzy:  Thin Lizzy
Neu!:  Neu!
New York Dolls:  New York Dolls
Brian Eno:  Here Come The Warm Jets
Patti Smith:  Horses
Ramones:  Ramones
Sex Pistols:  Never Mind The Bollocks (11)
Devo:  Q:  Are We Not Men?  A: We Are Devo!
Joy Division: Unknown Pleasure (5)
Killing Joke:  Killing Joke
Depeche Mode:  Speak And Spell
ABC:  Lexicon Of Love
R.E.M.:  Murmur
The Smiths:  The Smiths (7)
The Jesus And Mary Chain:  Psycocandy
Beastie Boys:  Licensed To Ill
Guns N´Roses:  Appetire For Destruction.  Snilldar gítarstef (riff) hjá Slash).  Eitt ţađ flottasta í rokksögunni.
My Bloody Valentine:  Isn´t Anything
The Stone Roses:  The Stone Roses (6)
The La´s:  The La´s
Massive Attack:  Blue Lines
Manic Street Preachers:  Generation Terrorists
Suede:  Suede (1)
Oasis:  Definetely Maybe (2)
Elastica:  Elastica
Super Furry Animals:  Fuzzy Logic
Roni Size & Reprazent:  New Forms
Lauryn Hill:  Miseducation Of Lauryn Hill
Eninem:  The Slim Shady LP
Coldplay:  Parachutes
The Strokes:  Is This It (3)
The Libertines:  Up The Bracket (9)
Dizzee Rascal:  Boy In Da Corner
Kanye West:  The College Dropout
Arcade Fire:  Funeral (12)
Arctic Monkeys:  Whatever People Say I Am (4)
Klaxons:  Myths Of The Near Future
Crystal Castels:  Chrystal Castles
The Xx: Xx

Skúbb! Gođsagnakennd hljómsveit endurreist međ nýjum trommara

  Viđ erum ađ tala um hljómsveit sem var í hópi mest áberandi og umtöluđustu hljómsveita pönkbyltingarinnar á Íslandi á fyrri hluta níunda áratugarins.  Ţví var gert skil í heimildarmyndinni sívinsćlu  Rokki í Reykjavík.  Ári eftir frumsýningu myndarinnar sló hljómsveitin rćkilega í gegn međ sprćka tölvupönklaginu  Böring  og hélt frćga hljómleika í Stuđ-búđinni.   

  Ég veit ekki hvenćr eđa hvort hćgt er ađ stađsetja ađ Q4U hafi einhverntíma hćtt.  Kannski má frekar segja ađ hljómsveitin hafi af og til tekiđ sér allt upp í 12 ára hlé - á milli ţess sem hún hefur komiđ fram á einum og einum hljómleikum. 
.
  Nú er hinsvegar veriđ ađ endurvekja Q4U til lengri tíma og međ stórum áformum.  Til ađ ţađ gangi eftir hefur nýr trommuleikari veriđ ráđinn til starfa.  Sá er heldur betur góđur fengur:  Halldór Lárusson,  sem á árum áđur gerđi garđinn frćgan međ Bubba og MX-21.  Ţar áđur var hann í hljómsveitunum Bodies,  Međ nöktum og Spilafíflum.  Dúndur skemmtilegur trommari,  eins og heyrist í myndbandinu hér fyrir neđan.  Ţađ er eyrnakonfekt ađ hlera trommuleika Halldórs. Hann er svo laus viđ sýndarmennsku og stćla en ţeim mun uppteknari af ađ styđja viđ framvindu tónlistarinnar.
.
  Liđsmenn Q4U stefna á hart og ţétt hljómleikahald,  bćđi hérlendis og erlendis,  plötuupptöku og sitthvađ fleira.  Ţađ verđur hvergi gefiđ eftir.  
.
  Auk Halldórs er Q4U skipuđ söngkonunni Ellý,  hljómborđsleikaranum Árna Daníel,  bassaleikaranum Gunnţóri og gítarleikaranum Ingólfi Júlíussyni.  
  Ţađ verđur kátt í höllinni.  
.

Eivör og Björk

 Ţegar Eivör sendi frá sér á dögunum plötuna  Larva  varđ ég var viđ ađ sumir töldu hana vera ađ feta sig í átt tónlist Bjarkar. Larva  er besta plata ársins (enn sem komiđ er).  Ţađ er önnur saga. 
  Eftir tvenna frábćra hljómleika Eivarar á Fćreyskum fjölskyldudögum á Stokkseyri heyrđi ég fólk viđra sömu skođun:  Ađ Eivör vćri ađ stćla tónlist Bjarkar.
  Ţessi skođun er ađ sumu leyti skiljanleg.  Lengst af ţekkja Íslendingar Eivöru syngja sín fallegu lög viđ eigin kassagítarundirleik.  Inn í ţá mynd vantar ađ sem barn og unglingur var Eivör í rokkhljómsveitunum Reverb og súpergrúppunni Clickhaze.
.
  Í heimaţorpi Eivarar,  Götu í Fćreyjum,  hefur starfađ stórkostleg hljómsveit sem heitir Orka.  Ţađ er nýskapandi og rafmögnuđ hljómsveit sem spilar eitthvađ er hljómar eins og tölvupopp en hljóđfćrin eru ekki hefđbundin heldur allskonar verkfćri sem sótt eru í nálćgan sveitabć.
  Söngvari Orku var Kári Sverrisson,  vinsćll söngvari og tónlistarmađur í Fćreyjum.  Hann hefur međal annars skipst á viđ Eivöru ađ syngja í ţjóđlagakenndri djasshljómsveit Kristians Blak,  Yggdrasil.
  Ađrir liđsmenn Orku hafa flestir spilađ međ Eivöru í gegnum tíđina.  Međal annars í Clickhaze.  Ţađ var eđlilegt framhald ađ Eivör leysti Kára af viđ hljóđnemann í Orku.  Ennţá eđlilegra framhald var ađ Eivör nyti liđsinnis hljóđfćraleikara Orku til ađ vinna međ sér plötuna Larva.  Platan ber ţví samstarfi glöggt vitni og er rökrétt framhald á ţví sem Eivör var ađ gera međ Orku.
.
  Eivör er ađdáandi Bjarkar og ber mikla virđingu fyrir Björk.  En Eivör hefur ALDREI  veriđ í ţví hlutverki ađ herma eftir Björk.  Né öđrum.  Ef undan er skiliđ hlutverk Eivarar sem Marilyn Monroe í óperu í Kanada á dögunum.
 
  Eivör er metnađarfullur listamađur.  Hún semur músík á eigin forsendum.  Og er aldrei fyrirsjáanleg í nćstu skrefum.  Oft plötuútgefendum til undrunar.  Einnig áheyrendum á hljómleikum.  Til ađ mynda var gríđarlega flott ađ upplifa hljómleika hennar á Fćreyskum fjölskyldudögum á Stokkseyri.  Ţar fór hún á flug í hávađasömum og pönkuđum metalrokksköflum međ rífandi gítarrokki.  Unun var á ađ hlýđa og sumir hrukku viđ sem reiknuđu međ ţjóđlagakenndu kassagítarprógrammi
.
  Hér er Orka međ Kára Sverrissyni:
.
  Hér er Eivör međ Orku:
  Og svo Eivör sóló:

Ť Fyrri síđa | Nćsta síđa ť

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband