Fćrsluflokkur: Ljóđ
30.4.2010 | 14:58
Stćrsti viđburđur apríl-loka!
Sterkar vísbendingar eru um ađ rokk muni heyrast á skemmtistađnum Sódómu Reykjavík á Tryggvagötu 22 í kvöld og fram eftir nóttu. Ţarna munu nefnilega stíga á stokk tvćr af ţeim hljómsveitum sem báru fána pönkrokksins hćst á árunum um og upp úr 1980: Frćbbblarnir og Q4U. Báđar hljómsveitirnar áttu á sínum tíma fjöldann allan af vinsćlum lögum sem í dag teljast vera klassísk. Nćgir ađ nefna Bjór međ Frćbbblunum og Böring međ Q4U.
Hljómleikarnir hefjast klukkan 12.45 og fjöriđ stendur nćstu ţrjá klukkutímana.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
28.4.2010 | 23:26
Stórfurđulegt myndband viđ verulega kjánalegt lag
Í tilefni ţess ađ Erna Kettler hefur veriđ ráđin dagskrárstjóri sjónvarpsins er upplagt ađ rifja upp ţetta myndband. Pabbi hennar vann ţađ 1997. Samt er ţađ ekki honum ađ kenna hvađ myndbandiđ er klikkađ. Alls ekki. Ernst vann myndbandiđ af mikilli snilld og vandvirkni samkvćmt nákvćmu handriti. Kengrugluđu. Lagiđ er svo kjánalegt ađ annađ kom ekki til greina.
Til gamans má geta ađ ţađ var óvćnt ótrúlega auđvelt ađ fá svanina til ađ dansa í takt viđ lagiđ. Ţeir eru reyndar ekkert flinkir eđa taktvísir. En viljinn var einbeittur.
Ljóđ | Breytt 29.4.2010 kl. 00:51 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (13)
26.4.2010 | 00:32
Spennandi plata á leiđinni
Ţađ er ekki ađeins gjóskuryk og öskufall sem setur svip á mannlíf í Vestmannaeyjum. Eyjatrölliđ Árni Johnsen "í kartöflugörđunum heima" hefur lagt sitt af mörkum viđ ađ bjarga ţví sem bjargađ verđur undir Eyjafjöllum. Í Vestmannaeyjum hefur hljómsveitin Momentun einnig fariđ mikinn. Hljóđritađ sína 3ju plötu í Ísland Studios í Vestmannaeyjum. Ţetta er jafnframt fyrsta alvöru plata Momentum.
![]() |
Einn kom međ veghefil |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 11:00 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
24.4.2010 | 18:29
Endurkoma Gildrunnar
Hljómsveitir hćtta aldrei. Ţessu heldur Óli Palli stundum fram á rás 2. Og víst er ađ í sumum tilfellum er meiri ástćđa til ađ halda hljómsveitum á lífi en setja punkt fyrir aftan feril ţeirra. Ţó ekki sé nema til ađ húrra hljómsveitinni saman einu sinni enn í tilefni einhvers viđburđar. Ţađ ţarf svo sem ekki endilega tilefniđ. Bara upp á fjöriđ ađ gera.
Gildran í Mosfellsbć á ţrítugs afmćli í ár. Ţeim tímamótum er fagnađ međ endurkomu Gildrunnar. Hljómsveitin heldur stórhljómleika í Hlégarđi 1. maí. Forsala ađgöngumiđa er ţegar hafin. Nú kćtast margir.
Gildran var til fjölda ára ein helsta rokkhljómsveit landsins. Framan af var rokkiđ ţokkalega hart. Međ árunum mýktist ţađ. Lögin urđu ljúfari og rafmagnsreikningurinn lćkkađi. En samt alltaf stutt í rokkgírinn.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 19:23 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (13)
20.4.2010 | 23:06
Eivör á norskri metsöluplötu
Fćreyska álfadrottningin Eivör mun syngja á nćstu plötu norsku hljómsveitarinnar Vamp. Ţetta er rosaleg kynning fyrir Eivöru. Vamp nýtur gífurlegra vinsćlda og virđingar í Noregi. Síđasta plata hljómsveitarinnar seldist í 150.000 eintökum. Hljómsveitin fagnar 20 ára afmćli á nćsta ári. Eftir hana liggja 11 plötur og einhverjir DVD.
Ég er ekki vel heima í norskri músíksenu - ef frá er talinn svartmálmurinn. Ţó ég hafi oft rekist á nafniđ Vamp í skandínavískum músíkblöđum ţekki ég ekki plötur hljómsveitarinnar. Ţađ sem ég finn međ Vamp á Ţútúpunni hljómar vel. Ţetta er ţjóđlegt vísnapopp međ smá rokkívafi.
Hljómsveitarstjóri Vamp segist hafa orđiđ gjörsamlega bergnuminn (eđa tröllabundinn, eins og Fćreyingar myndu orđa ţađ) ţegar hann heyrđi Eivör syngja á norskri tónlistarhátíđ í fyrra. Nema hvađ. Viđ Íslendingar ţekkjum ţađ.
http://vamp.no/english/index.php
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (19)
12.4.2010 | 22:36
Skúbb! Bók um Eivöru
Ţađ er fastur liđur á ţessu bloggi ađ ég "skúbbi" af og til (skúbb = fyrstur međ fréttirnar). Nú er enn einu sinni komiđ ađ ţví. Ađ ţessu sinni slć ég hér upp frétt af ţví ađ Bókaútgáfan Ćskan mun í haust gefa út bók um fćreysku álfadísina Eivöru. Bókin er ţegar langt komin í vinnslu. Hún verđur meira UM Eivöru en eitt langt viđtal viđ hana. Svo skemmtilega vill til ađ ég hef veriđ ráđinn til ađ skrifa bókina. Hugsanlega er ţađ ţess vegna sem ég veit allt um ţessa bók. Ţó ţarf ţađ ekki ađ vera. Ég mun samt geta skýrt frekar frá bókinni ţegar nćr útgáfu dregur. Ţađ er rosalega gaman ađ skrifa hana. Mér segir svo hugur ađ hún verđi skemmtileg. Ađ minnsta kosti er viđfangsefniđ rosalega skemmtilegt. Eivör er frábćr.
Ljóđ | Breytt 13.4.2010 kl. 00:56 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
10.4.2010 | 23:38
Magnađur texti sigurvegarans
Ég fylgdist međ seinni hluta Söngkeppni framhaldsskólanna í sjónvarpinu áđan. Ég minnist ekki ađ hafa gert ţađ áđur. Hvorki fylgst međ fyrri eđa seinni hluta Söngkeppni framhaldsskólanna. Á árum áđur hef ég stundum dottiđ inn í útsendingu frá keppninni. En veriđ fljótur ađ skipta yfir á ađra stöđ. Ég veit ekki alveg hvers vegna ég skipti ekki um stöđ núna er ég datt inn í útsendinguna. Kannski var ţađ af ţví ađ kynnarnir voru í góđum gír og skemmtilegir ţegar ég byrjađi ađ horfa. Kannski voru lögin hlustendavćnni fyrir mín eyru en á fyrri árum. Kannski er ég ađ eldast illa. Kannski var ţetta allt í bland.
Nema hvađ. Sigurlagiđ, flutt af nemendum í Borgarholtsskóla, vakti ađdáun mína. Ekki lagiđ samt heldur magnađur texti annars söngvarans. Textinn var ávarp höfundarins til föđur síns, eiturlyfjafíkils. Ţađ var hrífandi ađ heyra hvađ textahöfundurinn er opinskár međ tilfinningar sínar, einlćgur og beinskeyttur. Framsetningin var einföld og hnitmiđuđ. Og túlkun söngvarans sem rappara einnig. Ég heyrđi ekki lögin í fyrri hluta keppninnar. En sigur Borgarholtsskóla var verđskuldađur. Ţađ er alveg klárt. Ţađ hefur enginn toppađ framlag ţessara drengja.
![]() |
Borgarholtsskóli sigrađi í söngkeppninni |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 23:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (73)
8.4.2010 | 23:18
Ljúf rokkveisla annađ kvöld
Lengi lifir í gömlum glćđum!
Hljómsveitirnar Sororicide og Sólstafir blása til heljarinnar ţungarokksveislu á Sódómu Reykjavík föstudagskvöldiđ 9. apríl ásamt In Memoriam og Bastard. Ţetta eru tíđindi. Langafar íslenzks dauđarokks eru risnir uppúr óvígđum gröfum sínum!
Sororicide og In Memoriam snéru til baka frá dauđum til dauđarokks á seinasta ári og hafa aldrei veriđ sterkari.
Bastard er ungt band sem hefur risiđ hratt í íslensku neđanjarđarsenunni og gaf út plötu seint á seinasta ári á merki Cave Music útgáfunnar.
Vor- og sumarvertíđ Sólstafa byrjar međ ţessum hljómleikum á Sódómu. Viku síđar spilar bandiđ í London á tónleikum skipulögđum af JA JA JA Music og Metal Hammer, sem er stćrsta ţungarokkstímarit í heimi. Sólstafir voru sérvaldir af ritstjóra blađsins til ađ koma ţar fram. Í apríl og maí er förinni haldiđ til Ţýskalands til ađ spila á einni tónlistarhátíđ og einum sértónleikum. Í júní, júlí og ágúst spilar bandiđ svo víđsvegar um Evrópu á ýmsum tónlistarhátíđum á borđ viđ Hróarskeldu og Wacken Open Air.
Á Sódómu fer fyrsta band á sviđ á slaginu 22:30. Öll fjögur böndin frumflytja nýtt efni í bland viđ gamalt, sumt sem hefur ekki heyrst á sviđi í meira en 15 ár.
Afsakiđ hvađ endirinn er brattur. Svona endir er í tísku á Ţútúpunni.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 23:30 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
7.4.2010 | 23:49
Ég er kominn heim í heiđardalinn
Ég er búinn ađ stunda á fullu Götu í Fćreyjum undanfarna daga. Hef fariđ ţangađ á hverjum degi og heilsađ upp á Fćreyinga. Svo skemmtilega vildi til ađ ég átti brýnt erindi viđ ţetta fólk. Međ í för var ljósmyndarinn knái Ingólfur Júlíusson, gítarleikari Q4U. Í dag er Ingólfur ţekktastur fyrir ljósmyndir í nýútkominni bók Evu "nornar" Hauksdóttur, Ekki lita út fyrir - sjálfshjálparbók handa sjálfri mér og öđrum ýlandi drćsum. Dúndur bók. Ég mćli međ henni fyrir ađra en teprur.
Fćreyingarnir sem ég heimsótti í Götu eru allir gamlir kunningjar og vinir mínir. Ţess vegna var gaman ađ eiga erindi viđ ţá vegna bókar sem ég hef veriđ ráđinn til ađ skrifa. Meira um bókina síđar. Hún er skemmtilegt verkefni.
Međal ţeirra sem ég heilsađi upp á var styttan af Ţrándi í Götu. Vegna ţess hvađ Ţrándur var ţver fyrir og stóđ fast á sínu er styttan af honum lárétt.
Ţessi túlkun á Ţrándi er snilld. Hverjum öđrum en Fćreyingum dytti í hug ađ heiđra frumkvöđul í menntun og baráttu gegn skattgreiđslum til Noregs og kristnitöku á ţennan hátt?
Ţađ var frekar rólegt í Götu og nágrannabyggđum á Austurey undanfarna daga. Verslanir meira og minna lokađar. Einnig veitingastađir, pöbbar og svo framvegis. Kannski hafđi ţetta eitthvađ međ frjósemishátíđina Páska ađ gera. Eđa extra langa föstudaginn, skyrdaginn og hvađ ţeir heita ţessir skrítnu dagar. Hitt veit ég ađ Fćreyingar fjölmenntu í kirkju dag eftir dag. Ekki veit ég hvađ ţeir voru ađ gera ţar. Ég hafđi öđrum hnöppum ađ hneppa en fylgjast međ ţví.
Ađ venju var rosalega gaman í Fćreyjum. Ţađ ţarf ekki ađ nefna ţađ. Ţó ég geri ţađ. Gestrisni slík ađ í heimsókn á sitthvort heimiliđ vorum viđ Ingólfur nestađir er viđ kvöddum. Verra var ađ í flugvélinni á leiđinni heim lentum viđ í einelti af hálfu flugfreyjanna. Sem annars voru frábćrar.
Ţannig var ađ viđ sátum aftast í trođfullri vél. Drykkir, samlokur og sćlgćti var boriđ í farţega. Ţađ var byrjađ ađ dekstra viđ ţá sem fremstir sátu. Síđan ţeir sem nćst fremst sátu. Og ţannig koll af kolli. Ţegar röđin var komin ađ okkur Ingólfi var bakkađ aftur fremst í vélina og fyllt á glös hjá ţeim sem fremstir sátu. Ţannig gekk ţađ um hríđ. Loks ţegar kom ađ okkur í annarri atrennu lentu flugfreyjurnar á kjaftatörn viđ ţá sem sátu í nćstu sćtaröđ fyrir framan okkur. Liđiđ er svo skemmtilega afslappađ og ljúft. Áđur en yfir lauk var samt ekki hjá ţví komist ađ eineltinu linnti. Allir voru glađir ţegar upp var stađiđ.
Viđ hliđ mér í flugvélinni sat "nćstum" 10 ára strákur (eins og hann orđađi ţađ). Hann var hjá fćreyskum föđur sínum yfir páskana og á íslenska mömmu á Akureyri. Í klifri upp í heiđloftiđ blátt var ókyrrđ. Nokkuđ hressileg. Stráksi varđ verulega hrćddur. Fullyrti ađ flugvélin myndi hrapa. Hann bar fćreyska ömmu sína fyrir ţví. Hún hafđi kvatt hann sérlega hlýlega vegna ţess ađ illa veđrađi og flugvél hrapađi í Danmörku nokkrum dögum áđur. Rifjađist ţá upp vögguvísa eftir Halldór Laxness:
Sofnađu svíniđ ţitt
svartur í augum.
Farđu í fúlan pytt
fullan af draugum.
Ljóđ | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (17)
28.3.2010 | 17:22
Aldeilis frábćr pönkhátíđ
Pönkhátíđin á Amsterdam í gćr heppnađist frábćrlega vel í alla stađi. Lagaval var ekki alveg ţađ sama og á pönkhátíđinni í fyrra og hitteđfyrra. Nokkur lög voru hvíld í ár og mörgum lögum bćtt viđ í stađinn. Sú nýbreyttni var tekin upp ađ íslensk lög fengu ađ fljóta međ. Ţau komu úr smiđju Frćbbblanna og Snillinganna. Báđar hljómsveitirnar spiluđu ásamt fjölda hljóđfćraleikara og söngvara úr Taugadeildinni, Vonbrigđum, Svart-hvítum draumi, Tappa tíkarrassi, Silfurtónum og fleiri hljómsveitum sem ég man ekki eftir í augnablikinu.
Lögin međ Frćbbblunum og Snillingunum styrktu dagskrána. Gáfu henni meira vćgi. Ţó fyrri pönkhátíđir hafi veriđ frábćrar ţá var gaman ađ heyra íslensk pönklög í bland viđ ţau útlendu.
Ólíkt fyrri pönkhátíđunum hófst ţessi ekki á helstu dćmigerđu pönklögunum. Fyrsta lagiđ var frá Television (sjá eftsta myndbandiđ. Ég biđst velvirđingar á hvađ lagiđ endar bratt. Ţađ er ţó ekki mér ađ kenna). Nćstu lög voru frá The Stranglers, Blondie (ath. hljóđiđ dettur ekki inn fyrr en 20 sek. eru liđnar af myndbandinu) og The Jam.
Ţađ kom vel út ađ byrja hljómleikana međ ţessum ekki-dćmigerđu pönklögum. The Jam voru reyndar eins pönkađir og mörg eđal pönksveitin ţó músíkstíll Djammaranna félli undir hatt mod-rokks. Stemmning pönkára áttunda áratugarins var ţannig ađ pönkiđ var ekki rígbundiđ viđ dćmigerđa pönkiđ. Nýbylgjan var samheiti yfir ţá músík sem stóđ nćst pjúra pönkinu og ţetta var meira og minna sami hópurinn.
Fimmta lagiđ á hljómleikunum var ţjóđsöngur pönksins, White Riot međ The Clash (afsakiđ vond hljómgćđi í myndbandinu. Stemmningin er bara svo góđ ađ ţetta er skemmtilegra en myndbönd međ betra hljóđi). Ţví var fylgt eftir međ Bodies frá Sex Pistols. Skrítiđ ef ég man lagaröđina svona vel. Gott ef sjöunda lagiđ var ekki frá Stiff Little Fingers. Heildarlista yfir upprunaflytjendur laganna má sjá á: www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1035319/
Ţađ er ástćđulaust ađ tíunda frammistöđu hvers flytjanda á pönkhátíđinni. Ţeir stóđu sig allir eins og best var á kosiđ. Ég hef einstaklega gaman af ađ heyra hinn dagfarsprúđa sagnfrćđing Árna Daníel (Q4U, Snillingarnir) öskra af öllum lífs og sálar kröftum. Valli er sömuleiđis bráđskemmtilegur og kröftugur söngvari. Ţá var mikill fengur af innleggi bassaleikarans Jakobs Smára Magnússonar (Tappi tíkarrass, Das Kapital) og trommusnillingsins Birgis Baldurssonar (Svar-hvítur draumur). Ţeir voru nýir í hópi flytjanda, eins og fleiri.
Hafi allir sem fram komu á pönkhátíđinni hinar bestu ţakkir fyrir frábćra skemmtun. Ég er strax farinn ađ hlakka til pönkhátíđarinnar 2011.
Ljóđ | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)