Fćrsluflokkur: Ljóđ
25.6.2010 | 20:57
...Ţá var hringt í Hólakirkju öllum jólabjöllunum
Hólar í Hjaltadal eru (einn) fallegasti stađur landsins. Fátt er ánćgjulegra en keyra heim til Hóla eftir löngum beinum vegi og beygja síđan upp međ skógarrjóđrinu, kirkjunni og turninum og hringspóla á hlađinu viđ skólann. Nei, annars. Ţađ á ađ aka varlega ţarna í svona fögru umhverfi. Um Hóla í Hjaltadal hafa veriđ ort mörg góđ kvćđi. Ţar á međal ţetta bráđskemmtilega eftir Kristján Runólfsson.
Ţegar lít ég heim til Hóla,
horfi ég á marga póla,
biskupinn og bćndaskóla,
ber viđ sjónir nútímans.
Flćđir saga um minni manns.
Garđur fylltur grćnum njóla,
Guđbrands stađinn skreytir, (ţar sem prentsmiđjan stóđ)
Ţetta eru ţankar sundurleitir.
Ţarna bjuggu bćndur góđir,
betri en gerđust hér um slóđir,
margir voru menntafróđir,
mörg eru áhrif búskólans.
Flćđir saga um minni manns.
Vaxa af ţví viskuglóđir,
víđa hér um sveitir.
Ţetta eru ţankar sundurleitir.
Stöndug kirkja stađinn prýđir,
stóđu ađ henni bćndalýđir.
Sóknarprestar sungu tíđir,
sinntu bođi frelsarans.
Flćđir saga um minni manns.
Mađur sá er messu hlýđir,
meira um lífiđ skeytir.
Ţetta eru ţankar sundurleitir.
Tíminn líđur, flest á Fróni,
fyrnist ţó ađ nýtt viđ prjóni,
ţađ sannađist á séra Jóni,
og seinni tíma nafna hans. (Jóni Bjarnasyni)
Flćđir saga um minni manns.
Varla ţetta telst međ tjóni,
og tćpast nokkru breytir.
Ţetta eru ţankar sundurleitir.
Fylla loftiđ fornar sögur,
fram í dali og ystu gjögur,
löngum voru ljóđin fögur,
lofuđ á vörum almúgans.
Flćđir saga um minni manns.
Hér var Óđins hornalögur,
handa ţeim sem neytir.
Ţetta eru ţankar sundurleitir.
Sér í hylling Guđmund góđa,
ganga um međ hökulslóđa,
Galdra-Loft hinn galna og óđa,
Guđbrand prenta bókafans.
Flćđir saga um minni manns.
Yfir sumu er algjör móđa,
á ţví minniđ steytir.
Ţetta eru ţankar sundurleitir.
Taumlaus áfram tíminn rennur,
tifar hratt sem eldur brennur,
víst hann gerir mörgum glennur,
gefur aldrei nokkurn sjans.
Flćđir saga um minni manns.
Birtist hann međ beittar tennur,
brögđin mögnuđ ţreytir.
ţetta eru ţankar sundurleitir.
Heilladísir Hólastađar,
höndum tóku saman glađar,
ađ setja allt sem sálu lađar,
saman ţar sem gullinn krans.
Flćđir saga um minni manns.
Gleđisólin geislum bađar,
grćnka hugans reitir.
Ţetta eru ţankar sundurleitir.
Sé ég Biskup Gottskálk grimma,
og Guđmund upp í skálar trimma,
ţeir fara á stjá er fer ađ dimma,
og förlar sjónum horfandans.
Flćđir saga um minni manns.
Löng var forđum Rauđskinns rimma,
rifust andar heitir.
Ţetta eru ţankar sundurleitir.
Líkaböng er löngu brotin,
lenti í Köben sundur rotin,
öll voru kathólsk áhrif ţrotin,
endanlega um sveitir lands.
Flćđir saga um minni manns.
Herra Jón var herđalotinn,
og hálsvöđvarnir feitir.
Ţetta eru ţankar sundurleitir.
Allir vita ađ Auđunn Rauđi,
einnig sat í ţessu brauđi,
reisti múr af rýrum auđi,
ríkt var eđli mannsandans.
Flćđir saga um minni manns.
Hann var ansi klár sá kauđi,
klókur sverđabeitir.
Ţetta eru ţankar sundurleitir.
Lít ég yfir sögusviđiđ,
sumt er nýtt og annađ liđiđ,
hér hafa ýmsar skepnur skriđiđ,
og skrefađ tímans villta dans.
Flćđir saga um minni manns.
Hafa oft um hérađ riđiđ,
höfđingjarnir feitir.
Ţetta eru ţankar sundurleitir.
Núna mun ég ljúka ljóđi,
og linna ţessu kvćđaflóđi,
klára ţađ međ köldu blóđi,
kveđ nú sagnir frónbúans.
Flćđir saga um minni manns.
Er ég talinn orđasóđi,
sem órum frá sér hreytir.
Ţetta eru ţankar sundurleitir
Ljóđ | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
22.6.2010 | 21:05
Ný og spennandi plata frá Hebba
Herbert Guđmundsson er í hljóđveri ţessa dagana ađ taka upp nýja plötu. Plötuna vinnur hann međ Svani syni sínum. Sá var nýveriđ kosinn besti söngvarinn í Músíktilraunum. Ţeir feđgar semja lögin ţannig ađ Svanur leggur til hljómagang, kaflaskipti og ţess háttar og Hebbi bregđur laglínum ofan á. Í bland semur Hebbi einnig upp á gamla mátann á kassagítarinn sinn.
Ţegar hafa 5 af 10 lögum plötunnar veriđ hljóđrituđ. Gulli Briem sér um trommuleikinn; Tryggvi Hübbner og Stefán Magnússon (Eiríkssonar) spila á gítara; Haraldur Ţorsteinsson plokkar bassann; Og Magnús og Jóhann syngja bakraddir.
Dr. Gunni heyrđi upptökurnar á dögunum og skrifar á bloggsíđu sína: "Ég heyrđi ekki betur en ţetta vćru allt meira og minna súperhittarar."
Doktorinn hefur gott nef fyrir "hitturum". Ég held ég fari rétt međ ađ hann eigi vinsćlasta lagiđ á rás 2 um ţessar mundir, Vinsćll međ Hvanndalsbrćđrum.
Hebbi hefur sent frá ótal öfluga smelli í áranna rás. Sumir eru orđnir sívinsćlir, svo sem Can´t Walk Away, Hollywood og Svarađu kallinu. Síđasta plata hans, Spegill sálarinnar, kom út 2008 og var hans besta. Um hana má lesa hér: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/737633/
Fyrir helgi var viđtal viđ Hebba á visir.is. Ţar getur ađ heyra upphaf lagsins Time. Sjá: http://www.visir.is/atti-erfitt-med-ad-vidurkenna-fraegdina---myndband/article/201045375416
Time verđur fyrsta lagiđ af plötunni sem fer í útvarpsspilun. Ég ćtla ađ hlusta á ţađ í vikunni og lćt ykkur vita hvernig ţađ hljómar. Ţangađ til er gaman ađ rifja upp:
Ljóđ | Breytt 23.6.2010 kl. 22:14 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
21.6.2010 | 23:03
Bestu plötur síđasta aldarfjórđungs
Poppblađiđ Spin hóf göngu sína fyrir aldarfjórđungi. Ţađ hefur náđ ţeirri stöđu ađ vera nćst söluhćsta bandaríska poppblađiđ á eftir Rolling Stone. Rolling Stone er söluhćsta poppblađ heims. Í tilefni af tímamótunum tók ritstjórn Spin sig til og setti saman lista yfir bestu plötur síđasta aldarfjórđungs.
Ţessar plötur skoruđu hćst (innan sviga er útgáfuár plötunnar):
1 U2: Achtung Baby (1991)
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 23:22 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
15.6.2010 | 23:01
Pönkbyltingin
Á hippárunum á seinni hluta sjöunda áratugarins talađi ungt fólk stundum međ tilhlökkun um ţađ ţegar "68-kynslóđin", hipparnir, myndu taka viđ stjórn landsins. Fólkiđ sem mótmćlti stríđi, sagđist kúka á kerfiđ, bođađi frjálsar ástir og dópađi. Ţađ yrđi fjör. Ţađ var heldur ekkert langt í ađ Davíđ Oddsson yrđi borgarstjóri, forsćtisráđherra, Seđlabankastjóri, ritstjóri Moggans; Ásta Ragnheiđur Jóhannesdóttir, DJ-drottning, yrđi alţingiskona og allskonar; rokkstjarnan Óttar Felix Hauksson - sem rokkađi međ nakinni kvenmannsgínu - yrđi formađur Sjálfstćđisfélags Kópavogs; Már Guđmundsson yrđi Seđlabankastjóri... Og svo framvegis. Og svo framvegis. Tony Blair varđ forsćtisráđherra Bretlands. Bill Clinton varđ forseti Bandaríkjanna.
Vissulega urđu miklar breytingar á vestrćnum samfélögum. Frjálsrćđi jókst og gömul gildi úreltust. En samt. Ţetta varđ ekki eins og vonir stóđu til. "Eitt sinn hippi, ávalt hippi" varđ meira ţannig ađ "nú er hann orđinn kótelettukarl".
1976/77 bylti pönkiđ hipparokkinu og ný kynslóđ, pönkkynslóđin, varđ ráđandi afl međ nýjum viđhorfum. Gerđu-ţađ-sjálf/ur (Do-it-yourself) var hugmyndafrćđin; ađ kýla á hlutina. Frćbbblarnir og Sex Pistols hraunuđu yfir hippana. Anarkismi var máliđ.
Nú hefur ţađ gerst sem fáa órađi fyrir: Pönkbyltingin er orđin stađreynd í borgarstjórn Reykjavíkur. Jón Gnarr var áberandi í pönksenunni. Myndin hér efst er af pönksveit hans, Nefrennsli. Óttar Proppe, forsprakki hinnar frábćru pönksveitar Rass, er kominn í borgarstjórn:
Líka Einar Örn. Hann er orđinn formađur Sorpu bs.
Og Dr. Gunni er ţarna einnig. Hann er orđinn formađur Strćtó bs.
![]() |
Jón Gnarr međ lyklavöldin |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Ljóđ | Breytt 16.6.2010 kl. 11:46 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (16)
8.6.2010 | 23:36
Meirihlutinn í Skagafirđi klofnar vegna herbergis í Miđgarđi
Úrslitin í sveitastjórnarkosningunum í Skagafirđi á dögunum voru söguleg. Međal annars vegna ţess ađ ţar náđi fulltrúi Frjálslynda flokksins glćsilegri kosningu. Formađur Frjálslynda flokksins, formađur flokksins, Sigurjón Ţórđarson, náđi kjöri sem sveitastjórnarmađur. Í kosningunum fyrir fjórum árum vantađi Frjálslynda flokkinn ađeins örfáum átkvćđum upp á ađ ná kjöri. Ég man ekki hvort ţađ voru 4 eđa 5 atvkćđi. Eđa eitthvađ svoleiđis.
Nú hafa Framsóknarflokkurinn og VG náđ meirihluta í Skagafirđi. Ég er dálítiđ áhugasamur um sveitastjórnarmál í Skagafirđi. Ég er fćddur og uppalinn í útjarđri Hóla í Hjaltadal, á bć sem heitir Hrafnhóll. Ţar var pabbi minn oddviti og formađur Sjálfstćđisflokks Skagafjarđar.
Á síđasta sveitastjórnarfundi í Skagafirđi bar til tíđinda ađ nýr meirihluti klofnađi í afgreisđlu á umsókn karlakórsins Heimis um ađ fá afnot af herbergi í Miđgarđi í Varmahlíđ. Ágreiningurinn setti umsóknina í klessu. Karlakórinn fćr ekki afnot af ţessu herbergi. Einhverra hluta vegna.
Ljóđ | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
6.6.2010 | 00:28
Eivör #1 á Íslandi og í Fćreyjum ađra vikuna í röđ
Ađra vikuna í röđ situr upphafslag plötunnar stórkostlegu, Larva, međ Eivöru í 1. sćti vinsćldalista rásar 2. Lagiđ, Undo Your Mind, er ađ sögn Eivarar samiđ og útsett undir áhrifum frá James Bond kvikmyndum. Pabbi hennar, Páll Jacobsen, er mikill ađdáandi James Bond-myndanna.
Ađra vikuna í röđ á Eivör einnig topplagiđ í Fćreyjum, Vöka. Ţessa dagana er Eivör í Kanada ađ ćfa fyrir hlutverk sem Marilyn Monroe í óperu eđa söngleik Gavins Bryars Everybody Can See I Love You (sjá síđustu fćrslu).
Ljóđ | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
4.6.2010 | 19:19
Eivör í hlutverki Marilyn Monroe á sviđi í Kanada
Marilyn Monroe var ţekkt bandarísk leik- og söngkona. Ţekktust er hún fyrir ađ hafa sungiđ afmćlissöng fyrir John F. Kennedy, ţáverandi forseta Bandaríkja Norđur-Ameríku. Marilyn hélt viđ Kennedy-brćđur. Ţar á međal John. Hugsanlega átti ţađ ţátt í ţví ađ hún var myrt langt fyrir aldur fram (hvenćr svo sem einhver aldur er passlegur til ţess).
Myndlistamađurinn Andy Warhol gerđi andlit Marilynar ódauđlegt á skemmtilegu og frćgu grafíklistaverki.
Nú hefur breska tónskáldiđ Gavin Bryars samiđ einskonar óperu eđa söngleik um Marilyn Monroe. Verkiđ byggir hann á bókinni Everybody Can See I Love You eftir marg verđlaunađa kanadíska rithöfundinn Marilyn Bowering. Verkiđ verđur frumsýnt í Kanada 12. júní. Međ hlutverk Marilynar Monroe fer fćreyska álfadísin Eivör. Hún fór síđasta ţriđjudag héđan frá Íslandi beint til Kanada vegna ţessa.
Gavin Bryars er stórt nafn í tónlistarheiminum. Hann er bassaleikari á sjötugsaldri sem hefur m.a. spilađ međ John Cage. Gavin er í Sinfóníuhljómsveit Portsmouth í Englandi. Eftir hann liggur fjöldi verka. Ţar af ţrjár óperur og ţrír sellókvartettar. Ţekktustu verkin eru The Sinking of the Titanic (frumflutt í Queen Elizabeth Hall í London 1969) og Jesus´ Blood never failed me Yet. Ýmsir frćgir tónlistarmenn hafa flutt inn á plötur einstök lög eftir Gavin Bryars. Ţar á međal Tom Waits, Brian Eno og Apax Twin.
Eivör er ţokkalega vel kynnt í Kanada. Hljómleikar hennar ţar eru jafnan vel sóttir og plötur hennar hafa einnig selst ágćtlega. Hlutverk hennar sem Marilyn Monroe í Everybody Can See I Love You mun kynna Eivöru ennţá betur í Kanada og opna henni margar dyr víđa um heim.
Efsta myndbandiđ sýnir hin ýmsu andlitsbrigđi Marilynar. Nćsta myndband geymir gullfallegan sellókonsert eftir Gavin Bryars.
Hér fyrir neđan eru myndbönd međ Tom Waits og Eivöru. Tom Waits flytur ljúft lag eftir Gavin Bryars. Tom Waits er stórkostlegur. Eins og Eivör og Gavin Bryars. Ţetta er "mega".
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 22:53 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (12)
31.5.2010 | 12:22
Eivör í 1. sćti i tveimur löndum međ sitthvort lagiđ
Nýja platan međ Eivöru, Larva, er töluvert ţungmeltari en fyrri plötur hennar. Jafnframt er músíkstíllinn verulega frábrugđinn ţjóđlagakenndri vísnatónlistinni sem Eivör er ţekktust fyrir. Á Larva er ţađ rafmagnađ tölvuhljómborđ sem rćđur för. Engu ađ síđur kunna margir vel ađ meta ţessa frábćru plötu, Larva. Og ennţá fleiri eiga eftir ađ lćra ađ meta hana ţegar fram líđa stundir.
Upphafslag Larva, Undo your Mind, flaug um helgina upp í 1. sćti vinsćldalistans á rás 2. Svo skemmtilega vill til ađ á sama tíma flaug annađ lag af Larva, Vöka, upp í 1. sćti fćreyska vinsćldalistans. Ţađ er óvenjulegt ađ sami flytjandi sitji í toppsćti vinsćldalista tveggja landa međ sitthvort lagiđ. En Eivör er ekki venjuleg og ekki Larva heldur. Larva er ţessa vikuna í 7. sćti yfir söluhćstu plöturnar á Íslandi.
Sjá plötuumsögn: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1057725
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 12:34 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
20.5.2010 | 23:05
Flřgu ummćli
Ljóđ | Breytt 6.6.2010 kl. 22:46 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
11.5.2010 | 01:13
Íslenska er máliđ
Ţađ er vel til fundiđ hjá Samtökum móđurmálskennara ađ veita Samfési og Söngkeppni framhaldsskólanna viđurkenningu fyrir ađ keppendur í Söngkeppni Samfés og Söngkeppni framhaldsskólanna syngja á íslensku. Nćst mega Samtök móđurmálskennara gjarnan veita "ţorskastríđi" plötufyrirtćkisins Cod Music viđurkenningu. Jú, vissulega er nafn plötufyrirtćkisins dálítiđ útlenskulegt. Enda starfar ţađ á alţjóđamarkađi. En ţađ er reisn yfir ţeim skilyrđum sem fyrirtćkiđ setti í árlegri hljómsveitakeppni í ár. Ţau gengu út á ađ ţátttakendur myndu syngja á íslensku.
Ađ öllu jöfnu er virkilega hallćrislegt ađ heyra íslenska söngvara syngja á útlensku. Nema brýn ástćđa sé til. Jú, jú, einhverjir hafa rök fyrir ţví ađ ţeir séu ađ gera út á engilsaxneskan markađ. Ţađ er ekki fráleitt. Ađrir tala um alţjóđamarkađ. Ţá er nćrtćkara ađ syngja á kínversku. Hlutfallslega flestir jarđarbúa skilja kínversku.
Sigur Rós hefur sannađ ađ ţađ virkar fyrir íslenska poppara ađ syngja á íslensku. Sigur Rós selur fleiri plötur á alţjóđamarkađi en nánast allar ţćr íslenskar hljómsveitir sem bögglast međ lélega ensku.
Í lang flestum tilfellum er aulalegt ađ heyra íslenskar hljómsveitir syngja á ensku fyrir Íslendinga.
![]() |
Fengu viđurkenningu fyrir ađ syngja á íslensku |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 01:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)