Færsluflokkur: Heilbrigðismál

Viðbjóður í Ohio

Steubenville-nauðgari 

  Nauðgunarmálið í Ohio er ljótara en virðist vera af léttvægum fréttum af því.  Forsagan er sú að fórnarlambið, 16 ára stelpan,  átti í ástarsambandi við vinsælan boltaleikmann í Steubenville í Ohio.  Svo sagði hún honum upp.  Hann trylltist.  Dældi smáskilaboðum (sms) á vini sína um að hann sætti sig ekki við umsögnina.  Orðrétt sagði hann:  "Það segir mér engin upp".  Hann sór þess eið að rústa stelpunni. 

  Hún var leidd í gildru.  Sameiginlegur vinur stelpunnar og stráksins fullvissaði stelpuna um að hótanir boltabullunnar væru marklausar.  Hann fékk hana til að mæta í gleðskap.  Hún var sótt í bíl og þar boðið upp á drykk.  Sá drykkur var göróttur og stelpan missti þegar í stað ráð og rænu.  Eftir það var henni nauðgað af fjölda drengja.  Henni var rænulausri dröslað á milli partýa þar sem henni var ítrekað nauðgað.  Gerendur skemmtu sér vel við að taka upp myndbönd af því og deila myndum af því á fésbók.  Rosalega fyndið að því er þeim þótti.  Til eru myndbönd af gerendum segja flissandi frá þessu skemmtiefni.

  Vondu fréttirnar ofan í vondu fréttirnar er að samfélagið í Steubenville stendur að hluta með nauðgurunum.  Boltabullurnar þar eru í hávegum.  Þær standa undir tekjum sveitafélagsins.  

www.stigamot.is

www.aflidak.is  

 


mbl.is „Hún sagði aldrei skýrt nei“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég berst á fáki fráum...

hrossalasagna

  Það er svo sem alveg hægt að hanga hér eins og asni í stað þess að hanga í frystikistum stórmarkaða í lasagnaréttum. 

asni hangir

  Víða um heim er orðinn tilfinnanlegur skortur á hestum.  Vegna þess hafa knapar orðið að grípa til ýmissa ráða þar sem kappreiðar njóta vinsælda.

kappreiðar á kúmkappreiðará fuglsbakiköttur á hundsbaki


Ekki fyrir lofthrædda!

  Flestir eru lofthræddir.  Það er nauðsynlegur hluti af varnarviðbrögðum manneskjunnar.  Í genum okkar er mörg þúsund ára reynslubanki með upplýsingum um að vont sé að falla úr mikilli hæð.  Sumir nýta sér lofthræðslu til að láta líkamann framleiða adrenalín.  Það er einskonar dóp sem gefur fólki adrenalínkikk.  Þessi mynd er frá Reyðrók í Færeyjum:

ekki fyrir lofthrædda-1-Reyðarók í Færeyjum

  Þarna lætur fólk sig síga niður í rúm sem það sefur í.  Þannig upplifir það sterkt að vera úti í náttúrunni:

ekki fyrir lofthrædda129

  Hér glanna menn á snjóhengju í Frakklandi:

ekki fyrir lofthrædda - Frakkland

  Þessi vegur er í Dýrafirði.  Sumir kjósa fremur að labba þessa leið heldur en sitja í bíl:

ekki fyrir lofthrædda-í Dýrafirði

  Hér er ró og hér er friður.  Hér er gott að tjalda og hvíla sig.

ekki fyrir lofthrædda - áningastaður


Heilsudrykkir, bætiefna- og meðalahirsla í eldhúsinu

  Heilsudrykki,  bætiefni og meðöl er heppilegast að neyta með máltíðum.  Þess vegna er hagkvæmt að koma sér upp í eldhúsinu snyrtilegri og fyrirferðarlítilli hirslu undir þær vörur.  Til að sem minnst fari fyrir því er best að nýta eldhúsgólfið.

meðalaskápurA

  Grafa örlítið niður og koma hringstiga þar fyrir ásamt hillum sem raðast snyrtilega umhverfis stigann.

meðalaskápurB

  Þetta gengur yfirleitt best þegar eldhús er á jarðhæð.  En er einnig upplagt í kjallaraíbúð.  Á efri hæð í sambýlishúsi þarf að ná samkomulagi við íbúa á neðri hæð.  Flestir fallast á að góð heilsa skipti meira máli en margt annað.  Flestir vilja sömuleiðis leggja sig fram um að hafa góða stemmningu í sambýlinu.

MeðalaskápurCMeðalaskápurD

Vandamál
Meðal
Daglegur skammtur
Unglingabólur
Médoc, Cabernet Franc
1 glas
Blóðleysi
Barbera, Dolcetto
2 glös
Ofnæmi
Pinot Noir
1 glas
Lungnabólga
Brunello, Cabernet Sauvignon
2 glös
Hægðatregða
Chardonnay
2-4 glös
Kólesteról
Dry Champagne
2-4 glös
Sykursýki
Beaujolais Nouveau
1-2 glös
Niðurgangur
Champagne sec
1 flaska
Sýruútfall
Burgundy , Santenay Rouge
1-3 glös
Þvagsýrugigt
Sancerre , Pouilly Fume
2 glös
Hár blóðþrýstingur
Alsace , Sancerre
4 glös
Breytingarskeið (tíðahvörf)
Grenache, Syrah
4 glös
Þunglyndi
Médoc, Tempranillo
1-3 glös
Þvagrásarvandamál
Sangiovese
1-3 glös
Offita
Syrah
1 flaska
Gigt
Malbec eða Merlot
1-2 glös
Svefnleysi
Port
1 glas
Minnisleysi
Hvert sem er af ofantöldum
Frjálst eftir hendinni


mbl.is Súperhollur súkkulaðimorgunmatur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Logið með myndum

  Í auglýsingum er auglýsendum gjarnt að sýna sparisvipinn.  Kostir þess sem verið er að auglýsa eru dregnir fram.  Jafnframt eru myndir látnar laða fram bestu hlið vörunnar.  Það er alveg eðlilegt.  Auglýsingum er ætlað að selja.  Þetta er hluti af sölutækni.  Hinsvegar má ekki ljúga í auglýsingum.  Auglýsendur verða að geta staðið við allt það sem haldið er fram í auglýsingum.

  Það er spurning hvort að þetta á við um myndskreytingar.  Ég held að aldrei hafi reynt á það.  Kannski vegna þess að fágætt er að auglýsendur ljúgi gróflega með myndum.  Veitingastaðurinn KFC er þar undantekning á.  Í fyrra varð hávær umræða um hróplegan mun á kjúklingaskammti í fötu annarsvegar eins og hann var sýndur á mynd og hinsvegar eins og hann var í raun. 

  Á Okursíðunni hans Dr. Gunna er annað dæmi í sama dúr.  Í því tilfelli er fjallað um kjúklingaborgara sem er auglýstur í heilsíðuauglýsingum í dagblöðum um þessar mundir.  Það er ástæða til að vekja athygli á þeim óheiðarlegum vinnubrögðum sem viðhöfð eru hjá KFC.

kfc 


Ekki missa af!

 

  Takið fimmtudaginn 28.  febrúar frá.  Eða í það minnsta fimmtudagskvöldið.  Þá fer nefnilega fram virkilega spennandi,  fjölbreytt og mikil tónlistarhátíð.  Tilgangurinn er brýnn og göfugur.  Tónlistarhátíðin fer fram í Norðurljósum í Hörpu.  Herlegheitin byrja klukkan 20.00.  Meðal þeirra sem koma fram eru  KK,  Fræbbblarnir,  Óp-hópurinn,  Nóra,  Hrafnar,  Q4U,  Dimma,  Bodies,  Hörður Torfason og Ari Eldjárn.

  Tilgangur tónlistarhátíðarinnar er að afla fjár til styrktar ljósmyndaranum Ingólfi Júlíussyni.  Síðasta haust greindist hann með hvítblæði.  Síðan hefur hann verið í einangrun á Landspítalanum og stöðugri meðferð,  sem ekki hefur skilað tilætluðum árangri. 

  Ingó starfaði sem "free lance" ljósmyndari,  ásamt því að spila á gítar í hljómsveitinni Q4U.  Við það að vera kippt án fyrirvara af vinnumarkaði fóru fjármálin í klessu.  Ingó hefur fyrir fjögurra manna fjölskyldu að sjá.  Að auki situr hann tekjulaus uppi með fastan kostnað við vinnustofu (húsaleiga,  afborganir af tækjabúnaði o.s.frv.).   

  Með því að mæta á tónlistarhátíðina slærð þú tvær flugur í einu höggi:  Styrkir góðan málstað og upplifir frábæra tónlistarveislu.  Takið með ykkur gesti.


Eiturslanga ræðst á dreng og ljósmyndarar taka myndir

eiturslanga ræðst á stelpu

  Þessi ljósmynd hefur farið eins og eldur um sinu á Fésbókinni.  Eiturslanga ræðst á ungan dreng og ljósmyndarar fylgjast spenntir með í stað þess að grípa inn í og koma emjandi drengnum til hjálpar.  Drengnum viti sínu fjær af skelfingu og hræðslu,  þekkjandi að einungis nokkrar sekúndur í þessum aðstæðum skilja á milli lífs og dauða.  Ljósmyndararnir eru fordæmdir fyrir.  Ég vatt mér í að rannsaka málið.  Niðurstaðan er sú að þetta er ekki drengur heldur 13 ára stúlka. 

  Eftir að ljósmyndararnir höfðu náð mörgum góðum myndum af viðureign eiturslöngunnar og stelpunnar óhlýðnaðist innfæddur aðstoðar- og leiðsögumaður myndatökuliðs tímaritsins National Geographic fyrirmælum um að trufla ekki atburðarásina.  Hann réðist á slönguna og snéri hana af stelpunni.  Slangan gerði sér þá lítið fyrir og át manninn.  Það náðust góðar myndir af því. 

  Talsmenn National Geographic segja að þær myndir verði ekki birtar fyrr en lögfræðileg atriði hafi verið afgreidd.  Þau snúa að fjölskyldu mannsins sem eiturlyfjaslangan át.  "Við þurfum að ganga frá smávægilegum tæknilegum atriðum áður en myndirnar verða birtar," segir talsmaður tímaritsins.  


Skammaður eins og hundur af þriggja ára krakka

  Ég bý í Reykjavík.  Systir mín og hennar fjölskylda búa á Norðurlandi.  Um helgina hringdi systir mín í mig.  Yngstu börn hennar voru heima við og ömmustelpan hennar var í heimsókn.  Sú er á fjórða ári.  Eftir að hafa rætt við systir mína í dágóðan tíma heyri ég ömmustelpuna kalla og spyrja við hvern hún sé að tala.  Amman svaraði:  "Jens, bróðir minn."

  Stelpan hrópaði ákveðin:  "'Eg þarf tala við Jens!".  Ég varð dálítið undrandi að heyra þetta því að hún þekkir mig ekki.  Komin með síma ömmunnar í hendur sagði hún ábúðafull og skipandi við mig:  "Jens,  þú verður að bursta tennurnar!  Ekki hlusta á Karíus og Baktus!  Hlustaðu á mömmu þína!"    

  Stelpan sá nýverið leikritið um Karíus og Baktus.  Í hennar huga er greinilega bara einn Jens til.  


Langveikt barn skammað fyrir tölvunotkun

  Langveik stúlka flutti ásamt fjölskyldu sinni til Akureyrar fyrir tveimur árum.  Hún verður 12 ára eftir mánuð.  Hún fór í Brekkuskóla.  Þar hefur hún sætt einelti.  Það var mjög erfitt fyrir hana að koma úr fámennum sveitaskóla - þar sem kennarar og nemendur eru eins og ein stór fjölskylda - og fara í fjölmennan skóla,  þekkja enga þar og mæta verulega neikvæðu viðmóti.  Ofan á veikindin. 

   Þrátt fyrir veikindin er stúlkan einstaklega jákvæð, glaðlynd og margt til lista lagt.  Í síðustu viku var hún enn og aftur veik heima.  Gat ekki mætt í skólann.  Skólasystkini hennar var á fésbók,  sá að stelpan var þar líka og klagaði í kennarann.  Þegar hún mætti í skólann skammaði kennarinn hana fyrir að hafa verið á fésbók.  Sagði að veikt barn eigi að hafa hljótt um sig og ekki vera á fésbók.

  Stelpan var miður sín yfir þessu.  Og líka fyrir að vera skömmuð fyrir framan óvinveitt skólasystkini sem leita að öllum veikum blettum á langveiku barninu.  Þetta hafði þegar í stað neikvæðar félagslegar afleiðingar.  Kennarinn var þannig þátttakandi í einelti.

  Skólastjórinn segist ekki vilja tjá sig um einstök mál.  Atvikið verði rannsakað.  Hugsanlega snúist málið um aldursmörk notenda fésbókar.  Vonir standa til að niðurstaða rannsóknarinnar liggi fyrir ekki síðar en í apríl.  Það er rosalega flókið að rannsaka svona mál.  Aðallega vegna þess að það þarf að spyrja kennarann um atvikið. 

  Þetta vekur upp margar spurningar.  Veik börn mega tala í síma.  Þau mega fá heimsóknir.  Þau mega teikna.  Þau mega spila á hljóðfæri.  En þau mega ekki vera á fésbók.

  Skólasystkinið sem klagaði,  jafnaldri,  mátti vera á fésbók - að því er virðist átölulaust.  Enda ekki langveikt barn.  

  Er það hlutverk skólasystkina og kennara að ráða því hvernig veikt barn styttir sér stundir heima?  Ef skólasystkini og kennari finna sig knúin til að ráðskast með það er þá ekki eðlilegra að tala við foreldrana fremur en ráðast að barni - sem á erfitt uppdráttar í skólanum - með niðurlægjandi hætti?

  Meira má lesa hér um málið:  http://www.akureyrivikublad.is/akvbl/frettir/2012/12/01/skommud-fyrir-tolvunotkun/ 


Jón góði biður Bubba griðar

jón góði

  Jóni góða og Bubba greinir á um það hvort kráka (cover song) þess síðarnefnda af sönglagi Johns Lennons,  "Across The Univers",  sé martröð.  Einhver meiri núningur hefur verið á milli þeirra vegna þessa.  Gott ef ekki út af klúðri varðandi höfundarrétt.  Bubbi hefur að eigin sögn aldrei áður á sínum 33ja ára ferli flutt lag eftir annan en sjálfan sig og kann þess vegna ekkert á höfundarrétt.  Aðrir hafa verið duglegir að flytja lög eftir Bubba alveg frá því snemma á síðustu öld.  Það er annað mál.

  Jón góði gjörþekkir lög Lennons og Bítlanna betur en flestir aðrir íslenskir tónlistarmenn.  Hann hefur stýrt ófáum hljómsveitauppsetningum á hljómleikum undir þeirra nafni.  Ég veit samt ekki hvort að rétt sé að túlkun Bubba á Lennon-laginu sé martröð.  Ég hef ekki heyrt hana og skilst að henni hafi verið kippt úr spilun á Bylgjunni.

  Hitt veit ég að Jón góði og glaðlegi er ekki kenndur við góðmennsku að ástæðulausu.  Á fésbókarsíðu sinni hefur hann nú hvatt til þess að Bubba sé ekki strítt á skrifblindu.  Orðrétt segir þar:

  "Þeir sem hafa gert gys að skrifblindu hans og annarra á opinberum vettvangi ættu að skammast sín."

  Það er ástæða til að láta áskorun Jóns berast víðar.  Og bæta við að það sé kannski sömuleiðis að mestu óþarfi að gera gys að öllu hinu. 

bubbi     


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband