Fróðleiksmoli

  Langtímarannsókn hefur sýnt fram á að barnshafandi kona getur auðveldlega fyrirbyggt að barnið fái asma.  Hún þarf einfaldlega á meðgöngunni að borða daglega eitt epli. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Held að þú hafir eitt hvað misskilið fréttina, ég heyrði hana þannig í útvarpinu í gær að ef þungaðar konur borði 4 epli á viku geti þær minnkað líkurnar á að börn þeirra fái astma, heyrði aldrei að þær geti tryggt það 100%...
Finn þessa rannsókn ekki á netinu en ef þú hefur slóð á hana með þessum fullyrðingum væri nú gaman ef þú settir hana hér á síðuna þína.

.. (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 12:29

2 Smámynd: Jens Guð

  Ég las þessa frétt í skoska dagblaðinu Daily Records. 

Jens Guð, 13.4.2007 kl. 12:44

3 Smámynd: Sigurður Axel Hannesson

Hér er greinin. Þar er hvorki minnst á fjölda epla né hverjar líkurnar eru í prósentum. En verði þeim eplin að góðu! Sjálfum finnast mér heitar eplabökur með rjóma eða ís munaður. :)

Sigurður Axel Hannesson, 13.4.2007 kl. 13:10

4 Smámynd: Sigurður Axel Hannesson

Afsakið. Víst er minnst á fjölda epla. Eitt epli á dag kemur asmanum í lag!

Sigurður Axel Hannesson, 13.4.2007 kl. 13:13

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

An apple a day keeps the doctor away, var sagt í amaríki í mínu ungdæmi.  Epli ku vera allra meina bót og eru þau mikið rómuð í hinni margútgefnu bók "læknisdómar alþýðunnar." Þar er einnig ráðlagt staup af eplaediki á dag.  Merkileg bók, sem enn á erindi til okkar.  Hún fjallar í stórum dráttum um það að undirstaða heilbrigðis, sé að halda sýrustigi líkamans í jafnvægi. Það fann höfundurinn út eftir áratuga athuganir á fæðuhegðum húsdýra í haganaum.

Jón Steinar Ragnarsson, 13.4.2007 kl. 13:21

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það var einu sinni kona sem gaf manni sínum epli, og var hent út úr paradís. Og svo eru menn ennþá að skammast út í þessa ágætu konu fyrir vikið.  Ja laun heimsins eru vanþakklæti það segi ég. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.4.2007 kl. 14:52

7 identicon

Svo eru menn enn að skammast yfir Evu að hafa fengið Adam til að bíta í eplið fræga, eflaust var hún bara með heilsu hans í huga.

Guðmundur (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 10:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.