Dýpkið skilning ykkar á tilveru blindra

  Blindur maður sagði frá því aðspurður að uppáhalds tómstundariðja hans sé fallhlífastökk.  Þetta vekur undrun og hann er spurður hvernig það gangi fyrir sig vegna blindunnar. 

  "Mér er stillt upp í dyrum flugvélarinnar ásamt blindrahundinum mínum.  Hringurinn á bandinu sem ég kippi í til að fallhlífin opnist er þræddur upp á fingur á mér.  Svo er mér bara tilkynnt hvenær ég á að stökkva,"  útskýrir sá blindi.

  "En hvernig veistu hvenær þú lendir?"  er spurt.

  "Við sem erum blind höfum næmt þefskyn.  Ég byrja að finna lykt af grasinu í 300 feta hæð."

  "En hvernig veistu nákvæmlega hvenær þú átt að lyfta hnjánum um leið og þú lendir?" er spurt áfram.  

  "Já,  þú átt við það.  Það er þegar slaknar á hundaólinni."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

góður 

Björg F (IP-tala skráð) 7.5.2007 kl. 01:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.