Lögin sem breyttu heiminum

  Hér eru í réttri tímaröð popplögin sem breyttu heiminum.  Ja,  kannski fullsterkt til orða tekið.  Og þó.  Þau breyttu dægurlagasögunni og músíkiðnaðurinn er hluti af heiminum.  Listinn er tekinn saman af blaðamönnum bandaríska tímaritsins Rolling Stone,  í samráði við almenning í Bandaríkjunum.  Það má því setja þann fyrirvara að listinn taki mið af bandaríska músíkiðnaðinum.  Á móti vegur að heimsmarkaðurinn tekur sömuleiðis mið af bandaríska músíkiðnaðinum:

elvispresley

1954 - Elvis Presley: ”That´s Alright”
1955 - Ray Charles: ”I Got A Woman” 
1955 - Chuck Berry: ”Maybelline”
1963 - Bob Dylan: ”A Hard Rain´s Gonna fall”
1964 - The Kingsmen: ”Louie, Louie”
1964 - The Ronettes: ”Be My Baby”
1964 - The Beatles: ”I Want to Hold Your Hand”  (kom reyndar út 1963 en Kanarnir föttuðu það ekki strax)
1964 - Martha & the Vandellas: ”Dancing in the Streets”
1965 - Rolling Stones: ”Satisfaction”
1965 - Bob Dylan: ”Like A Rolling Stone”
1967 - The Beatles: ”Strawberry Fields Forever”
1967 - The Velvet Underground: ”Heroin”
1967 - Jimi Hendrix: ”Purple Haze”
1967 - Aretha Franklin: ”Respect”
1969 - Led Zeppelin: ”Whole Lotta Love”
1970 - James Brown: ”Sex Machine”
1971 -  Marvin Gaye: ”What´s Going On”
1971 - John Lennon: ”Imagine”
1972 - David Bowie: ”Ziggy Stardust”
1974 - Bob Marley: ”I Shot The Sheriff”
1974 - Joni Mitchell: ”Help Me”
1975 - Bruce Springsteen: ”Born To Run”
1975 - Queen: ”Bohemian Rhapsody”
1976 - The Ramones: ”Blitzgrieg Bop”
1977 - Donna Summer: ”I Feel Love”
1977 - The Sex Pistols: ”Anarchy in the UK”
1979 - Sugarhill Gang: ”Rapper´s Delight”
1981 - Black Flag: ”TV Party”
1983 - Michael Jackson: ”Billie Jean”
1984 - Prince: ”When Doves Cry”
1984 - U2: ”Pride (In the Name of Love)
1984 - Madonna: ”Like a Virgin”
1986 - Run DMC/Aerosmith: ”Walk This Way”
1987 - The Cure: ”Just Like Heaven”
1987 - GNR: ”Sweet Child Of Mine”
1987 - Public Enemy: ”Bring The Noice”
1991 - Nirvana: ”Smells Like Teen Spirit”
1992 - Dre: ”Nothing But a ”G” Thing”
 

  Síðan hefur ekkert borið til tíðinda sem orð er á gerandi.  Nema ef vera skyldi Leoncie.  Hún á samt kannski betur heima á eitthverjum öðrum lista. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

Child in Time með Deep Purple kom ekki út sem stakt lag (smáskífa) heldur var það hluti af heildarpakkanum Deep Purple in Rock.  Í Bandaríkjunum er gerður skarpari munur á smáskífulögum og lögum af stórri plötu en í Evrópu.  Lengst af var regla í bandarísku útvarpi að spila einungis lög af smáskífum.  Það breyttist þegar AOR útvarpskeðjan fór í gang.  En breytti þó ekki skilunum.  Þar fyrir utan náði DPIR ekki vinsældum í Bandaríkjunum þrátt fyrir að Deep Purple væri vinsæl vestan hafs.

Samkvæmt listanum hjá Rolling Stone þá afgreiða þeir þungarokksdæmið með Led Zeppelin.

Það er spurning hvort Sultans of Swing breytti eða hafði afgerandi áhrif á þróun poppsins.  Ég merki ekki að upp hafi risið bylgja Dire Straits "wannabe" hljómsveita í kjölfar vinsælda þess lags. 

Jens Guð, 22.5.2007 kl. 12:04

2 identicon

Ekkert GOTH?

Manson, HIM.. etc.

og ekki Radiohed , það var nú skrítinn listi :)

Ari (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 15:41

3 Smámynd: Jens Guð

  Það er spurning hvort eitthvert tiltekið goth-lag lét dægurlagaheiminn taka vinkilbeygju.  Ég man ekki eftir neinu slíku.  HIM er kannski ekki heldur nægilega stórt nafn til að hægt sé að merkja fingraför þeirrar ágætu hljómsveitar á þróun poppsögunnar sem slíkrar.  Þessum lista er greinilega ætlað að spegla sögu poppsins fremur en sögu þungarokksins.

  Radiohead á heima á svona lista.  Áhrif þeirra eru töluverð.  Ekki síst hér á landi,  eins og heyra má hjá hljómsveitum allt frá Sigur Rós til Shadow Parade. 

Jens Guð, 22.5.2007 kl. 15:54

4 identicon

Dire Straits á vissulega heima á svona lista og einnig má ekki gleyma Pink Floyd og mörgum öðrum eðal grúppum sem vantar á þennan lista

DoctorE (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 13:26

5 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Smoke on the water... og Iron Maiden, Black Sabbath, Kiss, Pearl Jam - og alls ekki má gleyma Van Halen. Öll þessi bönd voru/eru óheyrilega vinsæl um lengri eða skemmri tíma og hafa haft gríðarleg áhrif. Þau áhrif eru síst einskorðuð við metalgeirann.

Pink Floyd á ekki heima á þessum lista - þeir eiga að hafa sinn eigin lista.

Ingvar Valgeirsson, 23.5.2007 kl. 17:21

6 Smámynd: Jens Guð

  Það væri klárlega hægt að hafa svona lista miklu lengri og ítarlegri.  Þarna er bara stikklað á stóru og haldið sig við smáskífulög yfir áhrifamestu upphafslög helstu poppmúsíkstíla.  Þannig eru "Strawberry Fields Forever" með Bítlunum og "Heroin" með Velvet Underground dregin fram sem frumkvöðlalög framsækna sýru-poppsins fremur en einhver tiltekin lög með Pink Floyd. 

  Það er ekkert skrýtið miðað við að Pink Floyd slógu ekki í gegn í Bandaríkjunum fyrr en með "Dark Side of the Moon" 1973.  Nokkuð mörgum árum eftir að áðurnefnd lög höfðu breytt þróun poppsögunnar. 

  Black Sabbath höfðu gífurleg áhrif á þróun þungarokksins.  Salan á þeirra músík var þó fremur bundin við stórar plötur en smáskífur.  Þeirra fyrsta og vinsælasta smáskífulag,  "Paranoid",  er ekki gott dæmi um innlegg Black Sabbath til þróunar þungarokksins.  Lagið er hratt og léttpoppað.  Sérstaða Black Sabbath var aftur á móti þessi hægi drungalegi myrki hljómur.  

  Iron Maiden eru langt í frá sömu risarnir í Bandaríkjunum og þeir eru í Evrópu.  Nýbylgja breska þungarokksins náði aldrei almennilega til Bandaríkjanna - þrátt fyrir viðleitni Lars Ulrichs til að kynna hana þar.  Ég undrast kannski pínulítið að Metallica sé ekki þarna á lista.  Og þó.  Þetta er meira popplisti. 

Jens Guð, 23.5.2007 kl. 23:27

7 identicon

Af seinni tíma verkum myndi maður ætla að lög eins og Beautiful People með Marilyn Manson hefðu haft stór áhrif, hratt af stað gothinu. Ég veit ekki hvort Got the life eða Freak on a leash með KoRn telst það lag sem kom ný-metalinu í almannaeigu, eða hvort það yrði frekar miðað við Blind sem var miklu fyrr á ferð en náði ekki inn í meginstrauminn, þótt frumverk KoRn hefði getið af sér óteljandi afsprengi. Svo var það Nookie með Limp Bizkit sem olli sprengju í einni grein ný-metalsins, rapprokki (og sér ekki fyrir endan á, Linkin Park seldi hálfa millu fyrstu vikuna af nýju plötunni sem kom út fyrir, já viku). Árið '95 tókst mönnum loks að selja pönk í ameríku, þegar Green day og Offspring í fáheyrðum upplögum. Ég geri mér bara ekki grein fyrir hvaða lag var 'break-through' lagið. Eflaust telst fyrsta smáskífa Stokes til tímamóta enda hratt það af stað endalausir bylgju 'The' banda - bílskúrsrokkara.
Það væri nú líka gaman að sjá hvaða lag telst tímamótalag fyrir Emo-rokkið, sem tröllríður öllum listum í Ameríku þessa dagana, hvort það var Bleed American. Eins ömurleg og Creed var, þá mótuðu þeir Post-grunge/Corporation rock (og því miður er þetta að seljast enn í bílförmum í USA)
Svo má ekki gleyma Coolio eða hvað hann hét nú með Gangsta paradise, lagið sem kom hip-hop inn á almennar útvarpsstöðvar og eflaust mætti telja What's my name með Eminem til tímamóta.

Guðmundur (IP-tala skráð) 24.5.2007 kl. 21:11

8 Smámynd: Jens Guð

  Mér þykir mjög gaman að pæla í svona listum.  Ekki síst þegar í hlut á tímarit eins og Rolling Stone sem selst í 2 milljónum eintaka og aðrir fjölmiðlar vitna í sem marktækt innlegg í umræðuna.

  Ég er að uppistöðu til sammála listanum.  Hann er klárlega ekki tekinn saman í fljóheitum heldur að yfirveguðu máli af mönnum sem vita um hvað þeir eru að tala.  Og vita að listinn verður gagnrýndur. 

  Ég þekki ekki rökin fyrir því að listinn nær ekki til síðustu ára.  Hugsanlega meta þeir sem að listanum stóðu stöðuna þannig að reynsla sögunnar eigi eftir að vinna meira úr síðari ára tískustraumum.  Þar fyrir utan eru helstu blaðamenn Rolling Stone menn á miðjum aldri og þar yfir.

  Gruggið er afgreitt með Nirvana.  Rappið er afgreitt með Sugarhill Gang og Run DMC.  Það er greinilega miðað við þau lög sem brutu fyrst ísinn.   

Jens Guð, 25.5.2007 kl. 01:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband