21.12.2007 | 21:48
Bestu íslensku plöturnar 2007
Í Fréttablaðinu í dag er birtur listi yfir bestu íslensku plöturnar 2007. Það kemur ekki á óvart að Mugiboogie með Mugisonsé þar í 1. sæti. Dúndurgóð plata sem selst vel og hefur breiða skírskotun. Ég var einn af álitsgjöfum blaðsins og setti þá plötu í 3ja sæti - vitandi samt að hún yrði í toppsætinu þegar atvkvæði annarra væru lögð saman.
Sjálfur setti ég þó plötuna Chainlike Burden með I Adapt í 1. sætið. Sú plata stendur nær mínum músíksmekk og er einstaklega vel heppnuð. Hana vantaði aðeins 1 stig upp á að komast inn á lista Fréttablaðsins yfir 10 bestu íslensku plötur ársins 2007.
Í 2. sætið setti ég The Great Northern Whalekill með Mínusi. Fyrri plötur Mínusar eru ennþá sterkari. Engu að síður er þetta fín plata og Mínus hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér frá upphafi. Ég gaf meira að segja út fyrsta lag Mínusar á v-norrænu safnplötunni Rock from the Cold Seas. Ég minnist þess að þegar ég sótti í fyrsta sinn hljómleika hjá Mínusi að ég trúði varla að íslensk hljómsveit væri svona brjálæðislega flott.
Í 4. sætið setti ég Hvarf/Heim með Sigur Rós.
Í 5. sæti setti ég Frágang Megasar. Og hefði viljað hafa Hold er mold með honum sömuleiðis á listanum. En varð að velja á milli 2ja meistaraverka.
Einnig langaði mig til að hafa á listanum The First Crusade með Jakobínurínu, Volta með Björk, Bat out of Hellvar með Hellvar, Ghosts of the Bollocks to Come með Skátum, Ferðasót með Hjálmum, An Ode to the Umbrella með Soundspell, titillausa plötu Benny Crespo´s Gang og nokkrar fleiri.
Listi Fréttablaðsins yfir 10 bestu íslensku plötur ársins 2007 er þannig:
1. Mugison: Mugiboogie
2. Sprengjuhöllin: Tímarnir okkar
3. Hjaltalín: Sleepdrunk Season
4. Megas: Frágangur
5. Benny Crespo´s Gang
6. Megas: Hold er mold
7. Gus Gus: Forever
8. Páll Óskar: Allt fyrir ástina
9. Jakobínarína: The First Crusade
10. Hjálmar: Ferðasót
Gaman væri að hlera viðhorf ykkar til bestu íslensku platna 2007.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tónlistarspilari
Spurt er
Nýjustu færslur
- Af hverju hagar fólk sér svona?
- Passar hún?
- Þegar Paul McCartney yfirtók frægustu hljómsveit heims
- Framhald á frásögn af undarlegum hundi
- Furðulegur hundur
- Undarleg gáta leyst
- Lífseig jólagjöf
- Spennandi sjávarréttur - ódýr og einfaldur
- Til minningar um gleðigjafa
- Þegar Jón Þorleifs kaus óvænt
- Heilsu- og megrunarkúr sem slær í gegn
- Leifur óheppni
- Anna frænka á Hesteyri hringdi á lögguna
- Erfiður starfsmaður
- 4 vísbendingar um að daman þín sé að halda framhjá
Nýjustu athugasemdir
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Þau hõguðu sér allstaðar vel nema heima hjá sér. Viss um hávær ... L 31.1.2025
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Sigurður I B, snilld! jensgud 29.1.2025
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Þetta minnir mig á.... Hjónin eyddu um efni fram og maðurinn sa... sigurdurig 29.1.2025
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Jóhann, ég veit ekki hvar þau kynntust. Þín ágiskun er alveg ... jensgud 29.1.2025
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Stefán, góður! jensgud 29.1.2025
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Getur verið að þetta unga par hafi kynnst í "KLÚBBNUM" og skem... johanneliasson 29.1.2025
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Þetta minnir mig á átök innan stjórnmálaflokka þar sem hatur og... Stefán 29.1.2025
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Ingólfur, takk fyrir þínar ágætu og áhugaverðu vangaveltur. jensgud 29.1.2025
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Þetta er ágæt saga um mannlegan breyzkleika, svona hagar fólk s... ingolfursigurdsson 29.1.2025
- Passar hún?: Stefán, Steinn Steinarr klikkar ekki! jensgud 24.1.2025
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 11
- Sl. sólarhring: 407
- Sl. viku: 1395
- Frá upphafi: 4123292
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 1134
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- sigurjonth
- asthildurcesil
- siggith
- hallarut
- reykur
- rannveigh
- skulablogg
- fiski
- gudruntora
- asgerdurjona
- zeriaph
- jevbmaack
- lehamzdr
- ffreykjavik
- fuf
- stormsker
- xfakureyri
- jonmagnusson
- palmig
- jonaa
- jakobsmagg
- ktomm
- th
- jenfo
- gurrihar
- kiddirokk
- hlynurh
- skessa
- prakkarinn
- maggadora
- skinkuorgel
- agustolafur
- einherji
- heidathord
- atlifannar
- konukind
- gudnim
- 730
- blekpenni
- heida
- annabjo
- vglilja
- sleggjan007
- markusth
- bergruniris
- aevark
- rannthor
- katrinsnaeholm
- birgitta
- jullibrjans
- fararstjorinn
- agny
- ippa
- hugrunj
- aring
- ikjarval
- gujo
- bjorgvinbjorgvinsson
- drhook
- runarsv
- sjos
- doriborg
- haukurn
- gammon
- millarnir
- robbitomm
- korntop
- killjoker
- vantru
- evathor
- partners
- heiddal
- meistarinn
- skrifa
- heidistrand
- iaprag
- semaspeaks
- svei
- jonthorolafsson
- sverrir
- bonham
- bjarnihardar
- sigurgeirorri
- ladyelin
- birnamjoll
- veraknuts
- fia
- plotubudin
- ringarinn
- nonninn
- larahanna
- juliusvalsson
- skari60
- ingvarvalgeirs
- lubbiklettaskald
- kolgrimur
- olinathorv
- hreinsi
- baddinn
- hrolfur
- jenni-1001
- handsprengja
- ahi
- perlaheim
- gudrunmagnea
- ommi
- hemba
- grumpa
- bergthora
- grafarholt
- mummigud
- athena
- sigaxel
- bjolli
- gummiarnar
- kerchner
- rustikus
- hordurj
- thegirl
- birna-dis
- siggivalur
- krizziuz
- fridaeyland
- evabenz
- quackmore
- andres08
- bleikaeldingin
- bardurorn
- snorris
- ver-mordingjar
- nexa
- thorasig
- lindalinnet
- gudni-is
- mordingjautvarpid
- arh
- sinfonian
- raggipalli
- mongoqueen
- lovelikeblood
- holi
- jakobk
- rannveigbj
- stebbifr
- credo
- ylfalind
- herdis
- steinnhaf
- halo
- gullilitli
- 810
- motta
- leifurl
- janus
- ljonid
- kerla
- solir
- nilli
- guru
- steinnbach
- skagstrendingur
- hemmi
- gunnar
- hannamar
- mosi
- geislinn
- hlekkur
- luther
- zumann
- jara
- hector
- malacai
- polly82
- hughrif
- einarlee
- loopman
- sign
- destiny
- gilsneggerz
- thuridurbjorg
- liljabolla
- saethorhelgi
- svatli
- siggiholmar
- folkerfifl
- sigurjonsigurdsson
- eythora
- kiddijoi
- kjartanis
- rosagreta
- gurkan
- killerjoe
- gthg
- gebbo
- laugatun
- tru
- presley
- siggileelewis
- helgamagg
- doddilitli
- kjarrip
- steinibriem
- huldumenn
- jobbisig
- id
- mp3
- blomid
- ketilas08
- lilly
- hjolaferd
- lostintime
- skordalsbrynja
- birtabeib
- karitryggva
- marzibil
- zunzilla
- fjola
- storibjor
- rannug
- glamor
- venus
- eurovision
- skjolid
- einarsigvalda
- minna
- austurlandaegill
- coke
- eyja-vala
- harpao
- ljosmyndarinn
- doriegils
- lordbastard
- neddi
- holmarinn
- vga
- bus
- dolli-dropi
- vefritid
- eirikurgudmundsson
- hallibjarna
- svetlana
- blues
- huxa
- judas
- asdisran
- omarpet
- skattborgari
- himmalingur
- neytendatalsmadur
- salkaforlag
- kje
- laufabraud
- vestskafttenor
- gunnarggg
- esb
- ingvarari
- gunnarpalsson
- hreinn23
- saltogpipar
- hergeirsson
- jea
- arniarna
- psychosurfer
- metal
- hreinsamviska
- godinn
- krissa1
- robertb
- perlaoghvolparnir
- brandurj
- madddy
- tibet
- minkurinn
- hallidori
- liso
- graceperla
- mrsblues
- gummiogragga
- sisvet
- vild
- holar
- presleifur
- helgadora
- xjonsig
- helgananna
- meyjan
- tungirtankar
- visindavaka
- borgarfjardarskotta
- mal214
- vilberg
- brandarar
- einarhardarson
- steffy
- adhdblogg
- litliper
- audunnh
- gotusmidjan
- saemi7
- dorje
- sterlends
- jgfreemaninternational
- aloevera
- lucas
- olibjossi
- bestfyrir
- helgigunnars
- gleymmerei
- leifur
- ace
- diesel
- methusalem
- astroblog
- lynx013
- brell
- kikka
- doddyjones
- sigurjon
- birnast
- gunnarbjorn
- disdis
- valdinn
- ragnar73
- helgatho
- cigar
- parker
- manisvans
- kerubi
- mis
- bmexpress
- drum
- gisgis
- finni
- tbs
- topplistinn
- rognvaldurthor
- pjeturstefans
- gullfoss
- lotta
- thjodarsalin
- freyrholm
- olii
- gattin
- bjornj
- olafiaherborg
- rallysport
- sur
- sigrunzanz
- rafng
- hrannsa
- draumur
- aslaugas
- aeon
- gumson
- glamur
- skinogskurir
- launafolk
- bjarnimax
- westurfari
- bookiceland
- braskarinn
- elfarlogi
- komediuleikhusid
- elismar
- emilhannes
- fingurbjorg
- frida-litlah
- gudjul
- gp
- gusg
- gubo
- vgblogg
- hafthorb
- morgunblogg
- sveinnelh
- rattati
- diva73
- itlajh
- minos
- kliddi
- daliaa
- axelma
- ingolfursigurdsson
- thjodfylking
- fun
- jaisland
- jeremia
- johanneliasson
- eyfeld
- johannesthor
- stjornun
- josefsmari
- x-d
- kristjan9
- larusg
- lifsrettur
- lifsyn
- loftslag
- ludvikludviksson
- margretsverris
- mofi
- sumri
- skari
- raffi
- rso
- roslin
- runarf
- jardytan
- sigridursig
- joklamus
- siggifannar
- sigurdurig
- stjornlagathing
- stefanjul
- stommason
- steinki
- svanurg
- spurs
- sveinneh
- tryggvigunnarhansen
- myworld
- valdimarjohannesson
- valmundur
- vest1
- totibald
Athugasemdir
Þetta er ágætis listi hjá Fréttablaðinu en að sjálfsögðu er ekki hægt að berja saman svona lista, þannig að allir verði sammála um hann. Soundspell gefur líklega út plötu á næsta ári og þá verða strákarnir allir orðnir átján ára, "fullorðnir" og búnir að læra eitthvað af reynslunni.
Steini Briem (IP-tala skráð) 21.12.2007 kl. 22:25
Þetta eru allt meira eða minna svo góðar plötur að erfitt er að gera upp á milli satt best að segja.
Hugsa þó að ég persónulega myndi strika út Sigur Rós og Hjálma en það er bara tónlistarsmekkurinn, ekki endilega gæðin.
Ragga (IP-tala skráð) 21.12.2007 kl. 22:30
Góður listi.
Ása Ninna Katrínardóttir (IP-tala skráð) 21.12.2007 kl. 22:51
Erlingur, ég er þér sammála með að það vanti margar plötur á listann. Þegar Fréttablaðið bað mig um að vera álitsgjafa komu upp í huga mér um 15 titlar. Það var meiriháttar vandamál hjá mér að skera þær niður í 5 tilnefningar. Góði punkutinn er sá að valið var erfitt. Mér þótti sárt að þurfa að fjarlægja margar góðar plötur.
Steini, svo ég sé mjög hreinskilinn - burt séð frá okkar vinskap - þá set ég plötu Soundspell inn á Topp 15. Ótrúlega þroskað byrjendaverk. Ekki síst miðað við ungan aldur liðsmanna Soundspell. Ég er sannfærður um að þeirra næsta plata verður "tromp".
Agga, ég virði alveg smekk þinn fyrir því að strika út Sigur Rós og Hjálma. Sigur Rós er dáldið erfitt dæmi. Maður þarf að stilla sig inn á sérstaka stemmningu sem sú hljómsveit nær að magna upp. Það sama á við um Hjálma. Maður þarf að "fíla" reggí til að heillast af þeim.
Ása, takk fyrir að samþykkja listann. Ég er sáttur við hann þó að mitt val á bestu plötum hafi ekki haft afgerandi áhrif á endanlega niðurstöðu.
Jens Guð, 21.12.2007 kl. 23:16
Hvern andsk er Sprengihöllin að gera þarna grrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr(geta varla spilað live)............eina sem ég er sáttur við þarna eru Hjálmar sem eru snillingar...get skilið Megas og Mugison( en hef ekki gaman af honum)....Annars finnst mér platan með Einari Á vera sú persónulegasta..........hvar eru Jagúar og Sammi..........Eivör....tja ok hún er ekki Íslensk............Ellen er með flotta plötu.......Bermúda var að gefa út flotta plötu....Björk.....þetta hefur verið samansafn úlpupoppara sem setti þennann lista saman.
Einar Bragi Bragason., 22.12.2007 kl. 00:43
Einar Bragi, ég er ekki ennþá alveg búinn að átta mig á því hvað úlpupoppari er. Álitsgjafar Fréttablaðsins auk mín voru:
Ragnhildur Magnúsdóttir - Bylgjan, Brynjar Már Valdimarsson - FM957, Óli Palli - rás 2, Árni Þór Jónsson - Sýrður rjómi, Birgir Örn Steinarsson - Mónitor, Matthías Magnússon - X-ið, Dr. Gunni, Sveinn Birkir Björnsson - Grapevine, Björn Þór Björnsson "Boby Breiðholt", Eldar Ástþórsson - Iceland Airwaves, Egill Harðarson - egillhardar.com, Freyr Bjarnason - Fréttablaðið, Höskuldur Daði Magnússon - Fréttablaðið, Trausti Júlíusson - Fréttablaðið, Steinþór Helgi Aðalsteinnson - Fréttablaðið.
Mér virðist sem þessi hópur sé þokkalegur þverskurður af tónlistarpælurum landsins. Niðurstaðan sýnir jafnframt töluverða músíklega breidd. Allt frá hörðu nýrokki Jakobínurinu til diskópopps Páls Óskars.
Sprengjuhöllin heillar mig ekki. Engu að síður átta ég mig á því hvers vegna hún hefur svona víðtæka skýrskotun. Einhversstaðar heyrði ég hana kallaða Stuðmenn unga fólksins. Það þykir mér vera ágæt lýsing. Hljómsveitin tekur sig ekki hátíðlega. Er galsafengin. Músíkin er poppuð án þess að vera mjög velluleg. Sveiflast allt frá rappi til einskonar þjóðlagapopps. Það hefði komið mér á óvart ef plata Sprengjuhallarinnar hefði verið mikið neðar á listanum.
Volta með Björk var á nokkrum listum. En það neðarlega að stigin mældu hana ekki inn á Topp 10. Þegar ég setti saman minn lista kom Volta strax upp í hugann. En þegar ég þurfti að þjappa listanum niður í aðeins 5 plötur þá var sú plata ein þeirra sem mér þótti erfitt að skilja undan.
Ég sé ekki plötu Einars Á á neinum lista. Sjálfur hef ég ekki heyrt neitt af henni. Og hef ekki áhuga á að heyra neitt af henni. Þá er ég að miða við það að ekkert sem ég hef áður heyrt frá Einari Á hefur hrifið mig. Þvert á móti. Það hefur pirrað mig.
Hvergi sé ég heldur Jagúar og Samma á lista. Ég fylgist ekki með þeim. Fönk er ekki mín bjórdós. Pirrar mig ekki en höfðar heldur ekki til mín.
Ellen brá fyrir á lista. Í mínum huga er plata hennar yfirlitsplata. Uppsafn gamalla smella. Að vísu endurhljóðritaðir - til að samræma "sándið". Fín plata engu að síður. En yfirlitsplötur eru yfirleitt ekki gjaldgengar í uppgjöri yfir það besta sem kom út á árinu. Efniviður yfirlitsplatna er afrakstur fyrri ára.
Ég veit ekki hvort plata Eivarar, Mannabarn, nær inn á Topp 10 bestu erlendu plötur ársins. Ég setti hana á minn lista - þrátt fyrir að þetta sé slappasta platan á ferli færeysku álfdrottningarinnar.
Jens Guð, 22.12.2007 kl. 11:17
úlpupopparar eru meðal annars..mjög gamaldags í tónlist......ekki má heyrast mikið í öðrum hljóðfærum en gítar.....kannski orgel.... öll sándin eru sem sagt meðal annars frekar gamaldags.
Það má greinlilega ekki vera mikil rómantík eða gleði..........FUNK er bannvara hjá þeim...he he he
Einar Bragi Bragason., 22.12.2007 kl. 15:56
Þannig að Einar Á er fulltrúi frumlegustu nýskapandi og framsækinnar músíkur með fersku "sándi" og framandi hljóðfærum. Alltaf lærir maður eitthvað nýtt á hverjum degi.
Jens Guð, 22.12.2007 kl. 16:07
Hugsa að jaðarpésar eins og I Adapt munu seint eiga upp á pallborðið í svona listamálum þrátt fyrir metnað og eljusemi.
Takk samt fyrir að koma okkur á blað.
Birkir (IP-tala skráð) 22.12.2007 kl. 16:51
Sagði aldrei að Einar Á væri að gera eitthvað frumlegt eða framsækið....en sándar vel...þú mátt reyna að snúa út úr þessu eins og þú vilt....hann er aftur á móti með einlæga plötu sem kemur á óvart.....
Annars botna ég nú ekkert í því afhverju þú vogar þér að reyna dæma plötur........það væri eins og að ég færi að diskutera skrautskrift......eða reyna dæma bíla....he he he
Einar Bragi Bragason., 22.12.2007 kl. 17:00
Birkir, það munaði nú ekki nema einu stigi á Chainlike Burden með I Adapt og Ferðasót með Hjálmum. Þannig að segja má að einungis hafi munað hársbreidd á því hvor platan náði inn á Topp 10.
Einar, vissulega var ég að snúa út úr þegar ég túlkaði lýsingu þína á úlpupoppurum sem svo að Einar Á væri andstæða þess sem þeir sækjast eftir. Miðað við það sem ég hef áður heyrt frá Einari Á þá geng ég út frá því sem vísu að nýja platan hans sé mjög gamaldags í tónlist og sé að mestu spiluð á hefðbundin popphljóðfæri (gítar, bassi, trommur og kannski orgel).
Hvers vegna botnar þú ekkert í því hvernig ég voga mér að reyna að dæma plötur? Ég ólst upp við hljóðfæraleik, söng og mikla umræðu um músík. Ungur fór ég í hljómsveitastúss og í áratugi snérist tilvera mín að uppistöðu til um músík. Ég setti upp og rak plötuverslun, flutti inn plötur og hljómsveitir, setti upp hljómleika, gaf út plötur, markaðssetti músíkvörur (allt frá nótnabókum og plötum til hljóðfæra og tónlistarmanna), lærði söng í fjögur ár, vann í nokkur ár við að syngja einsöngslög við píanóundirleik og þannig mætti áfram telja. Jafnframt hef ég afgreitt ýmis ráðgjafaverkefni fyrir útlend plötufyrirtæki, umboðsfyrirtæki og tónlistarmenn.
Ég hef skrifaði plötugagnrýni fyrir fjölda blaða og tímarita í áratugi. Að öllu jöfnu var það að þrábeiðni ritstjóra viðkomandi miðla. Mörgum slíkum verkbeiðnum hef ég að auki hafnað (vegna tímaskorts). Einnig hef ég, bæði hérlendis og erlendis, haldið marga fyrirlestra og tekið þátt í pallborðsumræðum um músík.
Til viðbótar samanstendur vinahópur minn að verulegu leyti af starfandi tónlistarfólki. Uppistaðan af umræðuefni vinahópsins snýst um músík. Ég hef ekki verið upptökustjóri neinnar plötu. Hinsvegar hef ég margoft verið kallaður í hljóðver eða fengið heimsókn frá tónlistarfólki sem er í miðjum upptökum og vill bera útkomuna undir mig. Bogomil Font hringdi meira að segja eitt sinn í mig úr hljóðveri í Bandaríkjunum og spilaði upptökur í gegnum símann. Eftir að auðvelt varð að brenna diska eða senda músík í tölvupósti hefur aukist að upptökur séu sendar til mín áður en endanlega er gengið frá þeim til útgáfu.
Í hvert einasta sinn sem ég hef gert athugasemd við eitthvað undir svona kringumstæðum þá hefur fullt mark verið tekið á því og viðkomandi talið ráðgjöf mína hafa verið til bóta. Ég held að mig misminni ekki um það. Nafn mitt er á þakkarlista þó nokkuð margra platna.
Ég held að eitthvað af ofansögðu sé ástæðan fyrir því að ritstjórar blaða hafa beðið mig um að gagnrýna plötur. Eftir því sem ég best veit hafa þeir verið sáttir við plötugagnrýni mína. Að minnsta kosti hafa þeir aldrei kvartað heldur frekar klappað á bakið á mér.
Þar fyrir utan þarf plötugagnrýnandi ekki að hafa margt annað að bera en kunna að skilgreina músíkstíla og koma því frá sér á auðlæsu málu hvernig þessi eða hin platan hljómar í hans eyrum. Almenn plötugagnrýni er spjall músíkáhugamanns við annað músíkáhugafólk.
Það er mikill misskilningur þegar sumt fólk heldur að plötugagnrýni eigi að vera nákvæm fræðileg úttekt á plötum. Þannig plötugagnrýni er einskorðuð við fagtímarit um músík, skrifuðum af fræðimönnum fyrir aðra fræðimenn. Þau tímarit eru gjarnan bundin við eitt hljóðfæri eða tiltekinn músíkstíl.
Jens Guð, 22.12.2007 kl. 21:05
Erlingur, ég sá ekki þáttinn í sjónvarpinu. En framboð á áhugaverðu tónlistarfólki eykst með hverju árinu. Ekki síst hérlendis. Á mínum uppvaxtarárum var yfirleitt ekki boðið upp á tónlistarkennslu nema í fjölmennustu bæjarfélögum. Núna held ég að víðast sé boðið upp á tónlistarkennslu.
Jafnframt er orðið mun minna mál að koma sér upp græjum. Framboðið á hljóðfærum er miklu betra og verðið hefur lækkað að mun. Þegar 13 - 14 ára bróðir minn fékk trommur í sveitinni í gamla daga var trommuleikari í Bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal fenginn til að hringja í hljóðfæraverslun á Akureyri og panta trommur í póstkröfu, óséðar og óprófaðar. Það var óhugsandi mikið mál að gera sér ferð úr Hjaltadal alla leið til Akureyrar til að kaupa trommusett. Og líkast til var bara eitt eða tvö sett til sölu í búðinni.
Sum erlend poppblöð velja bestu almennu popp/rokkplöturnar á einn aðal lista. En velja síðan á sérlista bestu reggí-plöturnar, bestu þungarokksplöturnar, bestu djassplöturnar o.s.frv. Mér þykir fengur að þannig afgreiðslu. Þau tölublöð eru líka undirlögð þessum árslistum. Það er mikið lesefni.
Einar, ég gleymdi að koma inn á skrautskriftina. Ætla að gera það að gamni fyrst þú komst inn á hana. Ég hef hitt atvinnuskrautritara og skrautskriftarkennara sem hafa litla almenna þekkingu á skrautskrift. Þeir hafa kannski sérhæft sig í einni eða tveimur leturgerðum og tilteknum skreytiaðferðum (gyllingu og þess háttar). En þeir þekkja fáar aðrar leturgerðir og geta ekki aðgreint þær með nafni, hvað þá mismunandi stílbrigði innan þeirra leturgerða.
Ég hef líka hitt atvinnuskrautskrifara sem eru ekki sérlega góðir skrifarar (það er að segja teikna ekki sérlega fallega stafi) en kunna að fela það með allskonar "effektum" (lituðum útlínum, skuggalínum, "slaufum" út frá stöfum sem fara niður fyrir skrift (til dæmis j) eða uppfyrir (til dæmis h) og annað í þeim dúr). Aðrir teikna svo fallegt letur að "effektar" draga úr fegurð letursins.
Af þeim hátt í 30.000 manns sem ég hef kennt skrautskrift hafa stundum rekið á mínar fjörur fólk sem hefur góða þekkingu á skrautskrift án þess að kunna sjálft að skrifa skrautskrift. Þetta fólk er einfaldlega áhugasamt um skrautskrift. Hefur viðað að sér bókum um skrautskrift, "gúglað" upp á netinu allt sem þar finnst um skrautskrift og jafnvel safnað skrautskrifuðum kortum og fleiru.
Þetta fólk getur rætt eins og fræðimenn um leturgerðir og afbrigði af þeim. Á auðvelt með að skilgreina leturgerðir með nöfnum. Sumir koma með stafla af skrautskriftarbókum á námskeið til mín af löngun til að ræða um sitthvað sem þar kemur fram.
Sumt af þessu fólki á líka góðan lager af skrautskriftarverkfærum. Sem það hefur ekki notað vegna þess að það kann ekki skrautskrift.
Svo er undir hælinn lagt hversu góðir skrautritarar þetta fróða fólk verður. Reyndar verða allir góðir sem læra hjá mér. En sumir betri en aðrir.
Það er margt líkt með skrautskrift og músík. Nema að músíkin er manninum eðlislæg og allt um lykjandi. Hún er allsstaðar. Umfjöllun um hana er fyrirferðarmikil.
Jens Guð, 22.12.2007 kl. 21:53
Já, og ég gleymdi að senda ykkur jólakveðjur, elskurnar mínar. Það er svo gaman að umræðunni. Ég gleymdi mér. Bestu jólakveðjur!
Jens Guð, 22.12.2007 kl. 21:56
Gaman að þú minntist á Soundspell þarna. Án nokkurs efa óvæntasta dæmi ársins. Kornungir strákar sem ekki einu sinni hafa sést í músíktilraunum eða neinu stökkva nánast fullskapaðir fram. Platan þeirra er þrusugóð og ég varð enn meira hissa þegar ég heyrði í þeim á tónleikum. Frumkraftur og falleg tónlist. Sé að þeir fá rosalega margar heimsóknir á myspace og góð viðbrögð frá fólki erlendis frá. Ekkert auglýstir (enda ekki hjá Senu) sjálfsagt margir sem vita ekki um þá ennþá
Guðjón (IP-tala skráð) 22.12.2007 kl. 22:29
Ég fór á útgáfuhljómleika Soundspell í Austurbæ og skrifaði umsögn um plötu þeirra hér á bloggið. Skemmti mér konunglega á hljómleikunum og gaf plötunni einkunnina 4 stjörnur af 5 (ég nenni ekki að fletta slóðinni á dómnum upp).
Strákarnir voru einstaklega skemmtilegir á sviði. Með húmor fyrir sjálfum sér og spilagleðin gaf músíkinni meiri kraft en á annars ágætri plötunni. Músíkstíllinn (a la Coldplay, Keane...) er ekki það sem ég sæki ákafast í, sem er graðhestarokk í sem mestum hamagangi. En ég hef alveg skilning á því sem Coldplay og Soundspell eru að gera og get metið það á þeirra forsendum. Það kom mér einmitt á óvart hvað strákarnir í Soundspell ráða við faglega afgreiðslu á músík sem að öllu jöfnu kallar á mun reyndari/eldri tónlistarmenn. Það var/er aðdáunarvert að sjá og heyra þessa 16 - 17 ára stráka fara á kostum. Ég mæli með plötu þeirra og ennþá fremur með hljómleikum þessara meira en svo efnilegu tónlistarmanna.
Jens Guð, 22.12.2007 kl. 23:04
Gott að ég náði þér á flug......en andsk hefurðu þá lært lítið af þessu öllu he he he........
En ég hef heyrt fínar sögur um þig í skrautskriftinni.........ok að öllu gamni sleppt......þessi stórskrítni smekkur poppskríbenta hér er alveg rannsóknarefni út af fyrir sig.......hef dundað mér síðastliðin 2 ár ap skoða svona lista í aftonbladet.....og norskum og dönskum netblöðum og þið minn kæri ....hundsið allt sem er fyrir utan gítar veggs deildina og úlpupopp......td var það fyrir 2 áraum að ég kmst að því að Stevie Wonder hefði gefið út flotta plötu(sem var valin ein af bestu erl. plötunum í Svíþjóð eða Noregi að mig minnir) ..........það var aldrei minnst á hana hér á landi........Jagúar... Todmobile.....Mezzoforte....ofl eru hundsaðir af öllum listum bara út af einhæfum smekk poppskríbentaelítunar.....á Mbl eru menn sem vinna á Mbl að fá fína dóma hjá samstarfsfólki........
Einar Bragi Bragason., 22.12.2007 kl. 23:35
Hahahahaha,alltaf eykst hin mikla og djúpa ást á millum herranna Jens og Einars Braga, já það má nú segja svo neistar af!
Fyrir nokkrum árum, veit ekki með hann núna, starfaði á DB/DV Hilmar Karlsson nokkur og þá sáust listamenn er Saxi kvartar nú undan að sjáist ekki, mikið sem og alls kyns blásturstónlist. Sömuleiðis er Pétur Grétars var að skrifa og fleiri, Jens, þú hlýtur að eiga vini og kunningja eða muna eftir mönnum sem skrifuðu mikið um rokk jafnt sem aðra tónlist.
Þetta með Stevie Wonder held ég að eigi sér mjög einfalda skýringu, hann er bara ekki lengur vinsæll á Íslandi og sannleikurinn er nú sá að þeir sem flytja hann inn hafa heldur örugglega ekki lagt mikið í kynningu á þessari plötu, um það er ég handviss um!
Hef áður skylmast í orðum á við Saxa um gagnrýni og þá er hana rita, en treysti mér nú ekki til að fullyrða neitt nú um hversu einhæf slík skrif eru eða smekkur þeirra er hana rita nú, þekki það bara ekki, en eins og Jens jálkur segir, þá er nú flóran nokkuð breið á þessum Fréttablaðslista tónlistarlega séð! (Saxi veit hins vegar sínu viti um hversu mikill eða lítill blástursskortur eða annar hljóðfæraskortur er þar í gangi, en í slíkt spái ég nú aldrei og hef aldrei gert!)
Nú varðandi niðurstöðuna í valinu aðeins, þá skrifaði ég um mugison fyrir allnokkru og var þá búin Jens minn að fullyrða nánast að Mugiboogie yrði valin af einhverjum sú besta! (eða kannski er betra að segja, "plata ársins", hitt svo gervilegt eitthvað!)
Einar Bragi sjálfur gaf út fína plötu á árinu, svei mér ef hún verður ekki ofarlega ef ég set saman lista og birti!?
En Jens, einn mikilvægur punktur varðandi það sem þú komst inn á um að fyrst hafi komið þér í hug margar plötur sem þú svo sást að höfðu komið út 2006!
Í lok nokkura ára brá ég svona sjálfur á leik og fékk fólk til að velja plötur fyrir árið. Undantekningarlaust var þetta málið hjá einhverjum, þeir ætluðu að velja plötur frá fyrra ári! Og hvers vegna? Jú, einmitt þetta sem tíðkast hérna með útgáfuna svo mjög og gerði það eiginlega að verkum að ég hætti sjálfur að taka þátt í svona vali fyrir aðra, að svo mikið kemur út á svo stuttum tíma fyrir jólin, að það er einfaldlega ekki heiglum hent fyrir einn mann að ná utan um allt og oftar en ekki heyrir maður ekki margar mjög góðar plötur að neinu viti fyrr en á nýju ári!Og fyrir minn góða Einar Braga varðandi eina plötuna til dæmis sem hann nefnir, þá hef ég sérstakan hug á að kynna mér Bermuda t.d. en hef ekki komist í tæri við skífuna enn!átta dagar eftir af árinu, get engan vegin myndað mér skoðun á þessari plötu hygg ég þótt ég fengi hana núna í hendur og ætti kannski að skila af mér áliti á plötum ársins eftir viku, ómögulegt samkvæmt þeim venjum sem ég hef skapað mér varðandi hlustun.
Einar Bragi verður bara að leggjast í áróðursherferð meðal fönk og djassáhugamanna til dæmis svo þeir sæki meir í gagnrýnendaskriftir, þá færu plöturnar sem hann saknar og músíkin sem hann telur eiga að vera meir áberandi, kannski að sjást meir í svona uppgjörum við árslok!?
Tek undir allt sem sagt hefur verið um Soundspell og vil nú minna á að norðlenskir þræðir liggja enda víða í þessum strákum! (smá "Hrepparembingur" í gangi haha!)
Magnús Geir Guðmundsson, 23.12.2007 kl. 00:37
Hehehe! Já, þú hefur náð mér á gott flug . Enda þykir mér miklu skemmtilegra að eiga orðastað við þá sem hafa annað viðhorf til hlutanna en ég heldur en þá sem eru nákvæmlega á sömu línu og ég. Þó að það sé gaman líka.
Já, ég er með skrautskriftardellu á háu stigi. Þegar ég fór að læra skrautskrift 1976 og næstu ár í Myndlista- og handíðaskóla Íslands datt ég inn í nýja veröld sem ég hef verið upptekinn af síðan. Ég fékk svo mikla dellu fyrir skrautskrift að skólinn vildi styrkja mig til sérhæfingar á því sviði í erlendum skólum. Ég var hinsvegar kominn með fjölskyldu og ekki áhugasamur um að lengja skólanám mitt umfram MHÍ. Hinsvegar beindi skólinn til mín umsóknum um skrautskriftarnámskeið eftir að ég útskrifaðist þaðan með hæstu einkunn í skrautskrift (A+). Þá uppgötvaði ég óvænt hæfileika til að kenna skrautskrift með hraðvirkari aðferð en áður þekktist. Aðferðina sótti ég einmitt í tónlistarkennslu, að mig minnir kenndri við Susuki (kannski misminnir mig nafnið). Það er að segja að láta nemandann snemma á námskeiðinu halda að hann kunni meira en hann kann. Það tók mig reyndar nokkur ár að þróa þessa kennslutækni með tilheyrandi tilraunum. Ég hef sótt ráðstefnur skrautskriftarkennara erlendis og aðrir kennarar eiga erfitt með að átta sig á uppskrift minni. Enda kem ég henni ekki almennilega til skila nema í sjálfri kennslunni. En árangurinn lætur ekki á sér standa og ég er ekki í því hlutverki að kenna öðrum kennurum "trixin".
Nóg um það. Ég fylgist vel með tónlistarumfjöllun á Norðurlöndunum. Ég hafna því allir plötugagnrýnendur séu settir undir einn hatt. Hver plötugagnrýnandi hefur sinn smekk, sín viðhorf til músíkur og það allt. Ég á til að mynda fátt sameiginlegt með mörgum plötugagnrýnendum. Á Morgunblaðinu skrifa til að mynda plötudóma svo ólíkt fólk sem vinir mínir á borð við Svein Guðjónsson (var hljómborðsleikari Roof Tops og síðar í mörgum ballhljómsveitum á borð við Gömlu brýnin. Hann er sérlega jákvæður gagnvart léttpoppurum); Arnar Eggert (snillingur og þungarokkari sem hefur jafnframt einkar - og mér óskiljanlegt - jákvætt viðhorf gagnvart ballhljómsveitum Einars Bárðar), Heiða í Unun (frábær pönkari og opin fyrir júrivision og bara öllu), Árni Matt (afskaplega opinn fyrir nýskapandi rokki) ásamt mörgum fleirum sem ég nenni ekki að telja upp.
Ég er ekki á heimavelli varðandi Stevie Wonder. Hann er ekki mín bjórdós fremur en Jagúar og Mezzoforte. Ég sæki fyrst og fremst í ágengt þungt hávaðarokk. Þeir sem lesa mín skrif um músík læra fljótt í hvaða stellingum ég er þegar ég tjái mig um músík. Það sama á við um aðra sem skrifa um músík.
Ég var annars að muna eftir því að ég hef gaman af fönki þegar það er spilað af Skátum, Gang of 4 og Rage Against the Machine. En ekki Jagúar. Ef ég færi að pæla í Jagúar kæmist ég klárlega að því að þar á bæ er verið að gera fína hluti. En vegna þess að músíksmekkur minn liggur ekki á þeirra línu þá er ég ekkert að eltast við þeirra plötur.
Aftur á móti hef ég haft skemmtun af mörgu með Todmobile. Ekki síðustu plötunni að vísu. En ýmsu af fyrstu plötunum.
Jens Guð, 23.12.2007 kl. 00:43
Maggi, eins og þú kemur inn á þá hef ég bara gaman af að skiptast á skoðunum við Einar Braga. Fátt þykir mér skemmtilegra en að þrefa um músík. Einkum þegar skoðanir liggja ekki saman. Heilu kvöldin hjá mér á pöbbunum hafa verið undirlögð svona þrefi. Mér til mikillar skemmtunar og jafnvel fróðleiks. Á árum áður tókum við Jói Hjörleifs (trommari Sálarinnar) margar slíkar skemmtilegar syrpur. Þar er maður sem veit hvað hann er að segja og er rökfastur - eins og Einar Bragi.
Við Óskar, trommari Lokbrár, tökum jafnan líka svona syrpur þegar við hittumst. Ásamt Geira Jóns (BARA-flokki), Hebba Guðmunds (við erum bara svo alltof mikið sammála) og Gústa trommara (Start).
Ég kannast alltof of vel við að plötur sem koma seint út á ári lenda í huga fólks yfir á næsta ár á eftir. Eins og þú kannski mannst þá var ég árum saman með árlegt uppgjör í barna- og unglingablaðinu Æskunni. Þar var þetta með ártalið viðvarandi vandamál.
Jens Guð, 23.12.2007 kl. 01:05
Jájá, þetta þekkja sjálfsagt flestir og ástæðuna má finna í þessu sem ég nefndi varðandi íslensku útgáfuna m.a. svo margar plötur koma út á svo skömmum tíma og svo stuttu fyrir áramótin. Svo hættir fólki stundum, er þar sjálfur til dæmis engin undantekning, að gleyma óvart fínum útgáfum frá til dæmis miðju sumri!
Haha, get til dæmis ímyndað mér hérna, að Geiri væri ekki alveg ánægður með að þú gæfir ekki Jagúar gaum, þar trommar nú dáðadrengurinn fúsi Óttars löngum, seinni trommari BARA-flokksins á eftir hinum fjalltrausta og góða dreng Arne Henriks, sem trommaði á fyrstu EP plötunni frægu!(af mikilli trommarafjölskyldu og auk þess föðurbróðir Karls Henry, sem gaf út fína plötu í fyrra!)
Magnús Geir Guðmundsson, 23.12.2007 kl. 01:24
Já ég get tekið undir það ......það er nokkuð gaman að takast á vð menn með ólíkar skoðanir.......En Svenni Guðjóns er hættur(og veit allt um þann heiðursmann hann hefur bæði leikið með mér og Pabba)
Geira þekki ég vel og Hebba líka þar sem ég hef spilað inn á helling af hans dóti....og Jói Hjöll er vinur minn.En þegar að þú horfir á þennann hóp gagnr. sem þú telur upp þá er þetta ekki breið tónlist sem þeir hlusta á ....(þer hafa nú ekki verið að skrifa mikið um sumt sem þú telur þeim til ágætis)
Magnús þakka þér, þú hefur greinilega svipaða skoðun og Finnbogi M um diskinn minn........
Annars er þetta búinn að vera sorgardagur fyrir Íslenska Tónlist í dag........þar sem að einn besti tónlistarmaður Íslands kvaddi okkur í dag(22.Des)....Árni Scheving,,maður sem ég leit upp til og ól mig svolítið upp í þessum bransa(og spilar á disknum mínum)
Einar Bragi Bragason., 23.12.2007 kl. 01:49
Maggi, ekki vissi ég að trommari BARA-flokksins væri að tromma með Jagúar. man að hann var kallaður þruman eða eitthvað álíka. Þótti/þykir nokkuð taktfastur.
Einar, ég vissi ekki að Svenni væri hættur að dæma plötur fyrir Moggann. Ég held að ég hafi bara verið 15 - 16 ára þegar ég teiknaði fyrir hann vikulega myndir af íslenskum poppurum er hann hélt úti poppsíðu á Mogganum sem kallaðist Slagsíðan. Teikningarnar vöktu mikla athygli, Svenni tók við mig viðtal um þær (gerði mig að stjörnu í skólanum á Laugarvatni þegar ég var þar í hljómsveitinni Frostmarki) og ég held að mig misminni ekki að ég hafi skrifað fyrir hann eitthvað um ELP og Yes. Eða hvort það var Pink Floyd. Ég man að minnsta kosti eftir því að viðtalið opnaði mér fyrstu dyr að "grúpíum".
Gaman að þú skulir vera í vinskap við mína góðu vini, Geira, Hebba. og Jóa Hjöll. Fyrir þeim öllum ber ég mikla virðingu, bæði sem tónlistarmönnum og persónum. Oftast erum við Geiri og Hebbi nokkuð sammála um tónlistarleg viðhorf. Enda þeir báðir eðaldrengir. Aftur á móti eigum við Jói Hjöll til að þrefa í ágreiningi. Það snýr þó meira að djassi en poppi. Engu að síður erum við góðir vinir og þref okkar allt á jákvæðum nótum. Jói er frábær náungi og við erum báðir djassgeggjarar.
Það er áfall að Árni Scheving sé fallinn frá. Ég tók þátt í að aðstoða hann með dagskrá djasshátíðar á Egilsstöðum á árum áður, Nú er mér brugðið. Segi ekki meir þó að mig gruni að þessi meistari hafi dottið í það.
Jens Guð, 23.12.2007 kl. 02:34
Nú ertu að rugla þeim Árnum saman ísleifs og Scheving......Árni Scheving var í KK í den....og hefur verið einn besti vibra´fonleikari landsins en einnig spila á bassa ...ofl...gat í raun spilað á allt...pabni Einar Vals Scheving sem er trommari í Jagúar.
Árni Ísleifs er sprelllifandi...þess má geta að sá Árni hefur spilað með Ömmu minni Nínu Sveinsd(revíusöngkona í den og Amma mús) Pabba..Braga Einarssyni klarinettu og sax leikara og mér.......höfum stundum grínast með það að hann þurfi að spila amk 1 lag með afkvæmum mínum þá er hann kominn með 4 ættliði.
Einar Bragi Bragason., 23.12.2007 kl. 02:51
Reyndar fíla ég reggíð takmarkað en Sigur Rós finnst mér alveg góðir, er bara þreytt á þeim í augnablikinu. Hinsvegar myndi Páll Óskar eins og hann er frábær aldrei komast á lista hjá mér heldur þar sem tónlistin hans höfðar engan vegin til mín. Fór eitthvað framhjá mér síðast.
Ragga (IP-tala skráð) 23.12.2007 kl. 14:58
Heyrðu nú ig Jens ég er eiginlega mjög hissa ef þú veist ekki meira um þessa foringja eins og Árna Scheving og Árna Ísleifs..........Þá veistu nú lítið um Íslenska Tónlist.
Einar Bragi Bragason., 24.12.2007 kl. 11:49
Ragga, er hægt að þreytast á Sigur Rós? Ég deili með þér skoðun á Páli Óskari.
Einar Bragi, það var klaufalegt af mér að rugla saman nöfnunum Árna Ísleifssyni og Árna Scheving. Það var fljótfærni. Ég veit alveg hvor er hvað. Það breytir því þó ekki að ég hef takmarkaða þekkingu á þeim hluta íslenskrar tónlistarsögu sem gerðist fyrir daga bítlarokksins.
Ég var 9 ára þegar fyrsta íslenska bítlaplatan kom út, Fyrsti kossinn með Hljómum. Það var 1965. Fram að þeim tíma hlustaði ég bara á barnaplötur. Eftir þetta fór ég loks að fylgjast með íslenskri tónlist. Það er að segja því tónlistarfólki sem kom fyrst fram á sjónarsviðið á bítlaárunum.
Ég hef lítið fylgst með eða kynnt mér feril þeirra sem hófu hann á fyrstu árum sjöunda áratugarins, sjötta áratugnum eða fyrr. Ég á engar íslenskar plötur eldri en 1965. Ég veit lítið um það hver spilaði með hverjum fyrir þann tíma. Það skal ég fúslega játa.
Jens Guð, 24.12.2007 kl. 17:50
Tekið til greina en Árni Scheving hefur spilað inn á fullt af p. eftir 1965
Einar Bragi Bragason., 25.12.2007 kl. 14:17
Jú, jú, maður hefur séð nafn hans út undan sér í umfjöllun um Ragga Bjarna, Geir Ólafs, Mjöll Hólm, Sumargleðina o.s.frv. Sú deild er hinsvegar fyrir utan minn rokkheim og ég leiði hana hjá mér vegna áhugaleysis. Ég held þó að Árni hafi verið í Útlendingaherdeildinni þegar ég sá hana eitt sinn spila.
Jens Guð, 25.12.2007 kl. 16:44
þetta er bara brot og eiginlega ekki það besta.....þetta var einn besti spilari landsins.....og ekki heyrist orð frá ...popp eða tónlistarskríbentum???????????
Einar Bragi Bragason., 25.12.2007 kl. 18:40
Ég er ekki málsvari popp- eða tónlistarskríbenta. Ég skipti mér ekki mikið af músík utan harða rokkgeirans (með örfáum undantekningum). Þar er minn vinahópur staðsettur og þar hef ég lifað og hrærst.
Ég get skilgreint mig sem djassgeggjara. Upp að því marki að ég hlusta mikið á djass (fyrst og fremst án söngs) og sæki marga djasshljómleika. En einhverra hluta vegna les ég aldrei neitt um djass. Kaupi mér hvorki djassblöð né djassbækur. Þegar ég kaupi eða spila djassplötur pæli ég ekkert í því hverjir eru meðspilarar þess sem er skrifaður fyrir disknum. Ég umgengst íslenska djassista lítið og þekki fáa þeirra. Sennilega bara Óla Stef og Gvend Steingríms.
Ég veit ekki hvers vegna ég er svona áhugalítill um að kynna mér eða þekkja mikið um annað en það sem snýr að hörðu rokki. Ég kaupi mikið af rokkblöðum og les mikið af rokkbókum. Núna er ég til að mynda með á náttborðinu bók um black metal, Lords of Chaos, og bók um Kurt Cobain (Nirvana).
Mín þekking á músík og þeim sem fást við músík er sem sagt takmörkuð við harða rokkið. Eitthvað örlítið fleira slæðist með, svo sem Bítlarnir, Stóns, Dylan og önnur slík nöfn sem ég ólst upp við. En fátt umfram það. Ég reyni ekkert að gera meira úr minni takmörkuðu þekkingu en innistæða er fyrir. Hinsvegar get ég alveg gert mig breiðan gagnvart þeim geira sem ég tel vera minn heimavöll. En ekkert umfram það.
Jens Guð, 26.12.2007 kl. 00:12
ok ok en þarna fór einn besti HLJÓÐFÆRALEIKARI landsins ekki bara Jazzisti og mér finnst eins og skríbentaheimurinn sé sofandi ,nóg er skrifað um tónlistarvonabís bæði á þessari síðu og í fjölmiðlum...bæði í bréf fjölmiðlum og útvarpsbylgjufjölmiðlum.......og hana nú .....Mér finnst vera komin þarna fín sönnun á hvað tónlistarvonabís íslands sem margir hverjir vinna í fjölmiðlum vita lítið í sinn haus........þetta er ekki allt skot á þig Jens þar sem að þú svaraðir hér fyrir ofan....
Einar Bragi Bragason., 26.12.2007 kl. 21:58
Ég geri mér fulla grein fyrir því að Árni Scheving var afskaplega góður tónlistarmaður. Það sama á við um marga aðra af hans kynslóð, eða réttara sagt þeim sem komu fram á sjónarsvið fyrir daga bítalarokksins. Gítarleikarsnillingarnir Eyþór Þorláksson, Óli Gaukur og Jón Páll eru önnur dæmi um það. Svo ekki sé minnst á Gvend Steingríms. Og marga aðra sem ég man í fljótu bragði ekki nöfn á. Eftir sem áður liggur hljóðfæraleikur þeirra flestra á plötum fyrir utan harðkjarnarokkið sem ég er að hlust á.
Pétur heitinn Kristjáns gaf mér eitt sinn tvöfalda plötu með KK. Þar fara margir þessir snillingar á kostum. Sömuleiðis á ég góða plötu með Jóni Páli. Ég kynntist Hauki Morthens á sínum tíma en á enga plötu með honum. En það sem hann spilaði fyrir mig af sínum plötum var virkilega flott. Að vísu ekki í músíkstíl þess sem ég legg mig eftir. En alveg topp flutningur.
Ég kynntist líka ágætlega Svavari Gests á sínum tíma og við ræddum mikið um músík. Hann spilaði allskonar músík fyrir mig en hann lærði fljótt að áhugi minn var afmarkaður við rokkið. Svavar hafði afskaplega gaman af að tengja músík við samhengi sögunnar. Án þess að ég ætli mér að gorta þá held ég að Svavar hafi haft áhuga á að hlera mitt viðhorf - þá ungs rokkáhugamanns - til heildarsögunnar. Hann hnippti til að mynda í mig þegar Bjöggi Gísla vann sína fyrstu sólóplötu. Hann spilaði fyrir mig plötuna áður en hún kom út, bað mig um að gera umslag fyrir plötuna (en Bjöggi vildi ekki nota umslagið sem ég gerði. Honum þótti það ekki nógu listrænt miðað við hans pælingar. Eftir á að hyggja rétt ákvörðun) og hafði mikinn áhuga á vita hvar ég myndi staðsetja plötuna í sögulegu samhengi rokksins. Einnig spilaði Svavar fyrir mig eitthvað af Ísbjarnarblús Bubba áður en sú plata kom út. Svavar hafði ekki mikla trú á þeirri plötu en var fyrstur manna til að játa rangt mat og endurmeta sína afstöðu þegar platan "sló í gegn". Hann skrifaði grein í Nýtt líf um þetta endurmat sitt þar sem bergmálaði margt úr okkar samtölum.
Ég kynntist Gvendi Steingríms fyrir nokkrum árum. Ég held að ég fari ekki með rangt mál þegar ég segi að ítrekað spjall okkar hafi verið gagnkvæmur fróðleikur á viðhorfum til íslenskrar tónlistar og til frekari skilnings á umræðuefninu. Að minnsta kosti förum við jafnan báðir á flug þegar við spjöllum saman og ég minnist þess ekki að við höfum orðið ósammála.
En varðandi fráfall Árna Schevings þá varð ég var við á bloggi að hans var minnst. Ég sá til að mynda að Ómar Ragnarsson minntist hans á sínu bloggi og fleiri sem ég gleymdi strax.
Jens Guð, 26.12.2007 kl. 23:03
Sæll Jens, ég er auðvitað alltof seinn með mitt væl, en það er skelfileg háðung fyrir íslenska tónlist að Hjálmar skuli hafa komist með sinn disk í 10. sæti. Varð fyrir því óláni að fá þennan disk þeirra í jólagjöf. Var að enda við að hlusta á hann og þetta er eitthvað það versta sem dunið hefur yfir íslenska tónlistarhlustendur í áraraðir. Algjör flatneskja. Hvaðan kemur þessum drengjum "tónlistarhæfileikarnir". Ekki vottar fyrir hæfileikum hvað varðar flutning eða sköpun, flatneskjan er algjör, engar hæðir eða lægðir, fjöll eða dalir, hatur eða ást, reiði eða þunglyndi, bara mónótónísk flatneskja tilfinningadauðra zombía í tekjusköpun, ekki listsköpun. Hvarflaði aldrei að þessum drengjum að koma með eitthvað frá eigin brjósti, eitthvað sem hafði tilfinningu sem gæti smitað til hlustenda? Greinilega ekki. Þetta er eins og skólahljómsveit geldinga sem ekki einu sinni hafa kynhvöt, hvað þá aðrar tilfinningar. Hljóðfæraleikararnir eins og byrjendur í skólahljómsveit og söngvarinn álíka tilfinningaríkur og upplýsingafulltrúi hjá tryggingastofnun.
Sjálfsagt er ég of dómharður, en það var bara hreint kvalræði að hlusta á þennan viðbjóð.
Bjarni (IP-tala skráð) 30.12.2007 kl. 04:23
Þó að ég sé þér ósammála þá veit ég að þú ert ekki einn um þessa skoðun. Í fyrsta plötudómnum sem ég las um þessa plötu (man ekki í hvaða blaði) þá var sett fram svipað viðhorf og kemur fram hjá þér.
Eftir að hafa lesið þann dóm hélt ég að platan væri ónýt. Þegar ég hlustaði á hana fannst mér hún fín - kannski af því að ég reiknaði með öllu vondu.
Jens Guð, 30.12.2007 kl. 21:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.