Ókeypis bjór

  abddfgjiklmnopqrstuú

  Þrír ókunnugir menn tóku tal saman á barnum Good Fellas í Ármúla.  Einn var frá Reyðarfirði.  Annar frá Keflavík.  Sá þriðji frá Akureyri.  Þegar ölið fór að svífa á þá blossaði upp átthagametingur.  Þeir fóru að stæra sig.  Reyðfirðingurinn sagði:  "Þegar ég drekk á pöbbnum heima fæ ég fimmta hvern bjór frítt allt kvöldið."

Keflvíkingurinn sagði:  "Láttu mig kannast við þetta.  Á barnum heima fæ ég líka fimmta hvern bjór frían.  Að auki er mér boðið upp á ókeypis skot með þriðja hverjum bjór allt kvöldið."
Akureyringurinn sagði:  "Ég er reyndar aldrei á neinu pöbbarölti fyrir norðan.  Ég veit samt um bar á Akureyri þar sem maður fær frían bjór um leið og maður kemur inn.  Síðan fær maður frían bjór allt kvöldið.  Inn á milli fær maður allskonar svakalega góða kokteila alveg ókeypis.  Svo fer maður upp á aðra hæð og fær þar frían drátt í trekanti með tveimur flottum."
  Þessu trúðu hinir ekki.  Þeir kölluðu Akureyringinn ómerkilegan lygara og rugludall.  En Akureyringurinn stóð fastur á sínu,  sór og sárt við lagði að fyrr skyldi hann dauður liggja en fara með ósannindi.  Honum sárnaði virkilega að orð sín og heilindi væru dregin í efa.  
  Reyðfirðingurinn sá að Akureyringurinn virtist vera einlægur maður.  En var samt efins og spurði:  "Getur þú svarið að þú sjálfur hafir farið inn á þennan stað og fengið svona móttökur."
  Akureyringurinn svaraði af hreinskilni:  "Nei,  að vísu ekki ég sjálfur.  En litla systir mín,  sem er nýkomin með aldur til að komast inn á skemmtistaði,  er búin að fara þangað tvisvar og lenti í þessu í bæði skiptin."   

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Þessi er góður.

Jens Sigurjónsson, 4.9.2008 kl. 14:09

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ég vissi ekki að hann Magnús Geir ætti systur.

Þorsteinn Briem, 4.9.2008 kl. 16:12

3 Smámynd: Leifur Ellert Guðmundsson

HAHAHAHAHA verð nú að hrósa þér fyrir einstaklega góðan brandara

Leifur Ellert Guðmundsson, 4.9.2008 kl. 16:27

4 Smámynd: Leifur Ellert Guðmundsson

Þetta er fyndið því þetta er satt;)

Leifur Ellert Guðmundsson, 4.9.2008 kl. 16:27

5 Smámynd: Ómar Ingi

Stolinn en góður engu að síður

Ómar Ingi, 4.9.2008 kl. 16:28

6 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Betsastur.

Jón Halldór Guðmundsson, 4.9.2008 kl. 16:48

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ussuss, vissi það ekki heldur. Aftur á móti rek ég þennan stað!

Magnús Geir Guðmundsson, 4.9.2008 kl. 18:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband