Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
18.8.2016 | 21:30
Paul McCartney blandar sér í kosningabaráttuna í Bandaríkjunum
Einhverra hluta vegna er stuðningsmannahópur ljúfmennisins Dóna Trumps - forsetaframbjóðanda í Bandaríkjum Norður-Ameríku - fátækur af rokktónlistarmönnum. Þeir voru - og eru kannski ennþá - mest áberandi í stuðningsmannaliði sósíalistans Bernie Sanders. Svo margir að undrun sætir. Allt frá heilu hljómsveitunum á borð við Red Hot Chili Peppers til Njáls Unga. Töluverða athygli hefur vakið að margir - svo gott sem allir - rokkarar í vinahópi Trumps þverskallast við að styðja forsetaframboð hans. Þetta hefur ítrekað valdið vandræðagangi varðandi einkennislag á kosningafundum. Hann hefur þurft að skipta um baráttulög jafn oft og nærbuxur af þessum sökum.
Breski bítillinn Paul McCartney hefur alltaf verið hinn mesti diplómat varðandi flest annað en músík. Að vísu með undantekningu er hann sendi frá sér sönglag gagnrýnið á yfirráð Breta á Norður-Írlandi.
Nú hefur Páll á sinn diplómatíska hátt blandað sér í baráttuna um forseta Bandaríkja Norður-Ameríku. Þær fara fram í nóvember. Hann hefur birt af sér ljósmynd með forsetaframbjóðandanum Hillary Clinton. Við myndina skrifar hann "Hún er með mér". Kosningaslagorð Hillary er "Ég er með henni".
![]() |
Hvaða skoðanakannanir? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.8.2016 kl. 09:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.8.2016 | 06:45
Útvarp Saga - vinsælasta útvarpsstöðin!
Að undanförnu hefur lesendum boðist að taka þátt í skoðanakönnun. Þar er spurt: "Hver er uppáhalds útvarpsstöðin þín?" Takið eftir því að ekki er spurt um það á hvaða útvarpsstöð viðkomandi hlusti mest eða oftast. Þetta þýðir til dæmis að taka að einhverjir geta haft mest dálæti á Rás 1 vegna tiltekinna dagskrárliða þar - en hlustað utan þeirra oftast á aðrar stöðvar.
Núna hafa á þriðja þúsund atkvæða skilað sér í hús. Niðurstaða lá reyndar fyrir strax eftir þátttöku 100 - 200 manns. Það er að segja að röðin á útvarpsstöðvum hélst óbreytt þaðan í frá og fram á síðasta dag.
Rétt og skylt er að taka fram að þátttakendurnir eru gestir bloggsíðunnar (en ekki þverskurður af þjóðfélaginu). Ætla má að þeir séu að uppistöðu til komnir til vits og ára. 30+ í það minnsta. Sennilega flestir um eða vel yfir miðjan aldur. Músíkstöðvar sem gera út á barnaskap og gelgju komast vart á blað þar af leiðandi.
Niðurstaðan er þessi (og sjá má einnig hér til vinstri á síðunni):
1 Útvarp Saga 27,4%
2 Rás 2 20,9%
3 X-ið 18,9%
4 Rás 1 17,3%
5 Bylgjan 6%
6 Vinyl 3,8%
7 Fm957 3,2%
8 Gullbylgjan 0,8%
9 Xtra 0,4%
10-11 Léttbylgjan 0,3%
10-11 Lindin 0,3%
12-13 Flashback 0,2%
12-13 K100 0,2%
14-15 Kiss 0,1%
14-15 Retro 0,1%
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.8.2016 kl. 09:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
14.8.2016 | 13:09
Gargandi snilld! Allt á sama stað.
Í stærri bæjarfélögum og borgum eru götur og hverfi skipulögð af yfirvöldum. Sum hverfi eru skilgreind íbúðarhverfi. Önnur iðnaðarhverfi. Enn önnur verslunarhverfi. og svo framvegis. Í einhverjum tilfellum er þess gætt að atvinnusvæði séu blönduð. Fjöldi veitingahúsa er takmarkaður ásamt fjölda hótela, skemmtistaða, verslana og íbúðarhúsa.
Eðlilega leitar starfsemi á heppilegustu staðsetningu. Einkar vel hefur tekist með það í Flatahrauni 5 í Hafnarfirði. Í sama húsi eru hlið við hlið bjórkráin Ölstofa Hafnarfjarðar og Útfararstofa Hafnarfjarðar. Hagkvæmara getur það ekki verið. Í sama húsi er matsölustaðurinn Burger-inn. Ekki nóg með það. Þessi snilldar samsetning leiddi rökrétt til þess að Félag aldraðra í Hafnarfirði er flutt í næsta hús við hliðina, Flatahraun 3.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
8.8.2016 | 11:35
Trump vitnar í fróðan Færeying
Kosningabaráttan um embætti forseta Bandaríkja Norður-Ameríku er í hæstu hæðum um þessar mundir. Kjördagurinn er í nóvember. Baráttan stendur á milli Hillary Clinton og Dóna Trumps. Eitt framboðsefnið til viðbótar er þó að sækja í sig veðrið. Sá heitir Gary Johnson. Hann er frjálshyggjumaður og nýtur góðs af andúð margra á hinum frambjóðendunum.
Nánustu ættingjar og venslafólk tekur virkan þátt í kosningabaráttunni. Það þarf ekki að koma á óvart. 34ra ára dóttir Dóna, Ivanka Trump, er ekki eftirbátur annarra á því sviði. Hún styður pabba sinn. Á heimasíðu hennar á netinu slær hún upp mynd af heillaráði Færeyingsins Hans Fróða Hansen. Það er á ensku og hljómar svo:
"People inspire you or they drain you. Pick them wisely."
Á íslensku getur það útlagst: "Fólk veitir þér innblástur eða tærir þig. Vandaðu valið."
Vísdómsorðin merkir Trump með Tweet myllumerkinu #WiseWords from Hans F. Hansen. Surround yourself with inspiring people.
Hversu þungt gullkornið frá Hans Fróða kemur til með að vega í kosningabaráttunni er óvíst. Hugsanlega gerir það útslagið.
Margir Íslendingar kannast við Hans Fróða. Hann spilaði fótbolta hérlendis til margra ára í upphafi þessarar aldar. Þar á meðal spilaði hann með Fram, Breiðabliki og Víkingi.
![]() |
Mögulega lögsóttur vegna FL-viðskipta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.8.2016 | 16:44
Rándýr athyglisþörf
Ljúflingnum Dónaldi Trump, frambjóðanda til embættis forseta Bandaríkja Norður-Ameríku, er margt til lista lagt. Hann er laginn við að vekja á sér athygli. Það er kostur fyrir manneskju sem þráir athygli meira en allt annað. Hitt er verra; að hann skortir viðskiptavit. Eftir hann liggur löng slóð gjaldþrota fyrirtækja. Fjöldamargir sem hafa unnið fyrir hann sitja eftir með sárt enni. Jafnvel svo að þeir hafa sjálfir orðið gjaldþrota.
Hann hefur þar fyrir utan svínað sem mest hann má á allflestum verktökum og öðrum sem hann á viðskipti við. Það er honum skemmtilegur leikur að trampa sem rækilegast á þeim.
Dónald erfði ógrynni fjár eftir föður sinn. Sá var óvandaður pappír en hafði það umfram forsetaframbjóðandann að kunna að ávaxta sitt pund. Þegar hann féll frá var hann auðmaður á heimsvísu. Framreiknað á núvirði hefur forsetaframbjóðandanum tekist að tapa um það bil helmingnum af föðurarfinum. Það er lofsvert afrek. Sér þar hvergi fyrir enda á.
Athyglissjúki forsetaframbjóðandinn hefur í kosningabaráttunni stórskaðað fyrirtæki sín fjárhagslega. Með glannalegum yfirlýsingum, ruddaskap og allskonar hefur hann fælt frá sér viðskiptavini í svo ríkum mæli að telur. Tekjutapið er að meðaltali 1/7 á degi hverjum.
Fyrrum innanbúðarfólk Dónalds segir þetta vera þvert á áform hans. Uppskriftin var sú að framboðið yrði Trumps-veldinu ódýr auglýsing. Kallinn situr uppi með ranghugmyndir um markaðslögmálin. Góðu fréttirnar eru þó þær að hann fær eitthvað af athyglinni sem hann þráir meir en allt annað. Háar fjárupphæðir mega tapast í skiptum fyrir hana.
Framan af var frjálshyggju- og tepokalið - ásamt Ku Klux Klan, Putin og Kim Jong-Un - hliðhollt framboði Trumps. Munaði þar nokkru um að hin knáa Sara Pálína lýsti yfir eindregnum stuðningi við kauða og áform hans um að einangra Bandaríkin; múra þau inni með tollamúrum og steinsteyptum vegg. Nú er öldin önnur. Þekktir frjálshyggjufulltrúar snúa við honum baki. Hérlendis hafa Hannes Hólmsteinn og Áslaug Arna fordæmt kallinn. Meiri athygli vekur að bandaríski frjálshyggjupönkarinn Mojo Nixon sendir kaldar kveðjur. Meint kynferðisbrot Trumps hafa einhver áhrif á viðhorf til hans. Um þau má lesa H É R
![]() |
Baráttan bitnar á eignunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.8.2016 kl. 11:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.8.2016 | 19:25
Mjólkurþamb
Fyrsta verk splunkunýrra, farsælla og ástsælla forsetahjóna, Guðna Th. Jóhannessonar og Elizu Reid, var að heimsækja Sólheima. Þar er rekið vistheimili fyrir skemmtilegt fólk með allskonar þroskafrávik. Að óreyndu mátti ætla að með þessu væru forsetahjónin að votta vistmönnum virðingu sína. Sem áreiðanlega var meiningin.
Þá bregður svo við að tvær þekktar fatlaðar konur fordæma heimsóknina. Lýsa henni sem svo að vistmenn á Sólheimum séu gerðir að sýningargripum og blessun lögð yfir aðskilnað fatlaðra frá "heilbrigðum". Sjónarmið út af fyrir sig.
Í fréttum Stöðvar 2 var sagt frá heimsókninni. Vistmaður var inntur eftir því hvernig honum lítist á nýju forsetahjónin. Svarið var þetta vel rímaða gullkorn: "Gott fólk sem drekkur mikla mjólk!"
![]() |
Breytingar á Bessastöðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.7.2016 | 15:09
Frægðarljómi hryðjuverkamanna
Þegar fólk er myrt í hryðjuverkaárás, fjöldamorðum eða af raðmorðingja og borin eru kennsl á gerandann þá verður hann frægur. Ljósmyndir af honum eru birtar í öllum fréttablöðum, dag eftir dag. Nafn hans er á allra vörum. Í flestum tilfellum sýna ljósmyndirnar myndarlega manneskju. Þetta sveipar óþokkann ævintýraljóma. Hann er upphafinn á stall með ríka, fína og fræga fólkinu: Poppstjörnum, kvikmyndaleikurum, konungsfjölskyldum, forsetum og bankaræningjum. Augljósast var þetta þegar söluhæsta músíkblað heims, bandaríska Rolling Stone, birti forsíðumynd af morðingjanum sem hlaut gælunafnið Boston-bombarinn. Að öllu jöfnu prýða frægustu rokkstjörnurnar forsíðuna.
Upphefð af þessu tagi sendir veiklunduðum vesalingum vond skilaboð.
Norski fjöldamorðinginn í Útey heillaðist af af væntanlegri frægð. Hún kitlaði. Áður en hann myrti tugi ungmenna þá reyndi hann að laða fram sitt allra besta útlit og ljósmyndaði sig í ýmsum stellingum. Þessar ljósmyndir hafði hann tilbúnar handa fjölmiðlum. Alveg eins og hann vissi þá voru þetta myndirnar af honum sem fjölmiðlar heims slógu upp.
Þessu þarf að breyta. Ef fjölmiðlar birta ljósmynd af vondu fólki þá eiga þeir að leita með hraði uppi ljótar myndir af því. Helst myndir sem túlka illa innrætið. Til dæmis má laða það fram með teiknimynd.
Fjölmiðlar ættu jafnframt að forðast sem mest að hampa nafni óþokka. Þess í stað væri heppilegt að uppnefna kvikindið umsvifalaust; tala um Úteyjar-illmennið og eitthvað svoleiðis.
![]() |
Neita að jarða árásarmanninn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.7.2016 | 13:23
Allt samfélagið hagnast á rokkhátíðinni G!Festivali
Þriggja daga útirokkshátíðin G!Festival er gríðarleg innspýting í hagkerfi Götu í Færeyjum. Eða eiginlega fjögurra daga. Hún hefst á fimmtudegi og stendur yfir fram til klukkan fjögur að morgni sunnudags. Þessa daga breytist litla 1000 manna Götuþorpið í glaðværan 4500-7500 manna kaupstað. Iðandi mannlíf hvert sem litið er. Hópurinn þarf að nærast. Allan tímann er stappað af viðskiptavinum í litlu bensínsjoppunni, matvörubúðinni og í fjölda sölutjalda sem setja sterkan svip á hátíðarsvæðið. Í þeim eru seldar hljómplötur, bækur, fatnaður, minjagripir og ýmislegt matarkyns.
Ætla má að hver gestur versli mat og drykk fyrir að minnsta kosti 30-40 þúsund kall. Við það bætist miðaverð, gisting og sitthvað fleira. Til að mynda bensín, hljómplötur og leiga á sundfötum og handklæðum. Þegar allt er saman talið eru heildarútgjöld gests farin að slaga í 100 þúsund kallinn.
Hátt hlutfall þorpsbúa fær launaða vinnu festivalsdagana og margir dögum og vikum saman fyrir og eftir. Það þarf að smíða og taka niður svið, sölutjöld, heitapotta og allrahanda aðstöðu.
Hluti af heildarveltunni fer til sveitarfélagsins í formi útsvars og til ríkissjóðs í formi skatta.
Stærsti ávinningurinn eru ruðningsáhrifin. Reynslan hefur sýnt að erlendu skemmtikraftarnir eru öflug auglýsing fyrir Götu og Færeyjar. Milljónir aðdáenda út um allan heim fylgjast með póstum þeirra á samfélagsmiðlum á borð heimasíður, blogg, Fésbók, Twitter, Instigram og hvað þetta allt heitir. Í næstu fjölmiðlaviðtölum segja poppstjörnurnar frá ánægjulegri upplifun á G!Festivali.
Fjölþjóða festival á borð við þetta laðar að tugi ef ekki hundruð fjölmiðlafólks og útsendara annarra tónlistarhátíða. Athyglin beinist að færeysku flytjendunum. Þetta er stóra tækifæri þess. Tónlist þeirra er lýst í erlendum tónlistarblöðum og stórum dagblöðum. Útvarps- og sjónvarpstöðvar taka viðtöl og spila músíkina. Í kjölfar tekur sala á tónlist þess kipp svo og spilun á henni á þútúpunni. Þetta skilar sér í fjölgun ferðamanna til Færeyja og bókunum á færeyskum tónlistarmönnum á tónlistarhátíðir ðí útlöndum.
Bara svo eitt dæmi sé nefnt: Útsendari Airwaves uppgötvaði þarna færeysku tónlistarkonuna Konni Kass og réði hana þegar í stað til að spila á Airwaves í haust. Í dag þekkja Íslendingar ekki Konni Kass. Í haust munu margir Íslendingar kynna sér músík hennar - og kunna vel að meta.
Ég þurfti ekki að hafa neitt fyrir því að finna umfjöllun um G!Festival 2016 utan Færeyja. Sjá: H É R og H É R og H É R og H É R og H É R
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.7.2016 kl. 12:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.7.2016 | 19:28
Hvatt til sniðgöngu
Þegar fólki mislíkar við skoðanir, framkomu eða aðgerðir annarra er sniðganga algeng viðbrögð. Viðskiptabann af einhverju tagi. Útfærslan fer eftir því hvort að óánægjan beinist gegn einstaklingum, fyrirtækjum, félagasamtökum, þjóðum eða öðrum.
Reynslan hefur sýnt að í flestum tilfellum skilar viðskiptabann engum árangri. Oft þvert á móti. Til að mynda kemur viðskiptabann Íslands á Rússa ekki niður á Rússum. Þess í stað kemur það aðeins niður á Íslendingum sjálfum. Við töpum tugmilljörðum króna á þessu kjánalega viðskiptabanni. Þökk sé Gunnari Braga Sveinssyni.
Íslendingar eru sérlega klaufskir í þessum efnum. Fyrir nokkrum árum var skipulagt sniðugt viðskiptabann á íslensk olíufélög vegna verðsamráðs þeirra. Sniðganga átti eitt tiltekið olíufélag í viku, annað vikuna þar á eftir og þannig koll af kolli. Sömuleiðis átti að sniðganga algjörlega kaup á öðrum vörum en bensíni á bensínstöðvum. Þetta misheppnaðist gjörsamlega. Engin breyting varð á verslun við olíufélögin - þrátt fyrir hávært stríðsöskur og stórkallalegar yfirlýsingar á Fésbók og í bloggheimum.
Rétt er að halda til haga að viðskiptabann á S-Afríku virkaði og braut á bak aftur aðskilnaðarstefnu þáverandi stjórnvalda. Sömuleiðis eru viðskiptaþvinganir á Ísrael að bíta.
Víkur þá sögu að hvalveiðum Færeyinga. Þeir náðu 48 marsvínum í Hvannasundi í dag. Það er fyrsta uppskera sumarsins í ár. Í fyrrasumar voru 500 liðsmenn hryðjuverkasamtakanna Sea Shepherd staðsettir í Færeyjum. Þeir reyndu með ráðum og dáðum að hindra hvalveiðar Færeyinga. Framganga þeirra varð háðungarför. Allt klúðraðist sem gat klúðrast. Færeyska lögreglan tók SS-liðana föstum tökum. Járnaði, fjarlægði af vettvangi og gerði dýran búnað þeirra upptækan. Allt frá bátum til rándýrra kvikmyndatökuvéla. Að auki voru SS-liðarnir dregnir fyrir dómara og sektaðir persónulega hver og einn um hundruð þúsunda króna + greiðslu á málskostnaði sem nam ennþá hærri upphæð. Síðan var þeim sparkað úr landi með skít og skömm og fá ekki að koma til Færeyja aftur næstu ár.
Í stuttu máli þá rassskelltu Færeyingar SS-liða svo rækilega að þeir hafa ekki látið sjá sig í Færeyjum í ár. Hinsvegar hafa þeir farið hamförum á Fésbók og Tísti í dag. Þar fer fremstur í flokki forsprakkinn, Páll Watson. Nú hvetur hann heimsbyggðina til sniðgöngu á færeyskum laxi. Hann segir laxinn vera alinn við vond skilyrði í kvíum í færeyskum fjörðum. Hann fái hvergi um frjálst höfuð strokið. Um sé að ræða gróft dýraníð af verstu tegund. Páll skorar á heimsbyggðina við kaup á sushi að spyrja hátt og snjallt í matvöruverslunum og á veitingastöðum hvort að laxinn sé Færeyskur. Ef svarið sé "já" þá skuli samstundis lýsa yfir vanþóknun, góla um dýraníð og yfirgefa staðinn með formælingar á vör.
![]() |
Veiddu 50 grindhvali í Færeyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
2.7.2016 | 10:34
Hvar er dýrast að búa?
Hvar er dýrast að dvelja þegar allur helsti kostnaður við það er tekinn saman? Við erum að tala um húsaleigukostnað, verðlag á veitingastöðum, verð í stórmörkuðum, kaupmátt innfæddra og eitthvað svoleiðis. Netmiðillinn Numbeo þykir vera sá marktækasti í heiminum þegar kemur að samanburði á þessu. Á hálfs árs fresti tekur hann saman lista yfir þetta. Nú hefur birt lista yfir dvalarkostnað í borgum heimsins.
Hann spannar 372 borgir í hinum ýmsu löndum. Eðlilega hrúga sig saman á listann borgir í sama landinu. Hér hef ég aðeins dýrustu borg hvers lands:
1. Hamilton, Bermuda
2. Zurich, Sviss
3. Luanda, Angóla
4. Tromsö, Noregi
5. Tokyo, Japan
6. Reykjavík, Íslandi
7. New York, Bandaríkjunum
8. Kaupmannahöfn, Danmörku
9. Singapore, Singapore
10. Perth, Ástralíu
11. Kuweit, Kuweit
12. Hamilton, Nýja-Sjálandi
13. Stokkhólm, Svíþjóð
14. London, Englandi
15. París, Frakklandi
16. Dublin, Írlandi
17. Turku, Finnlandi
18. Busan, Suður-Kóreu
19. Linz, Austurríki
20. Tel Aviv, Ísrael
Kostnaður á Bermúda er um það bil 36% hærri en á Íslandi. Þó að kostnaður í Reykjavík og New York sé nánast sá sami þá er kaupmáttur launa Reykvíkinga aðeins 86% af kaupmætti New York búa.
Lægstur er kostnaður á Indlandi. Þar er kaupmáttur launa lítill. Sama á við um Úkraínu þar sem kostnaður er næst lægstur og Moldova sem vermir 3ja neðsta sætið.
Með því að smella á kortið má betur sjá hvar ódýrast er að hreiðra um sig í sumarfríinu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.7.2016 kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)