Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
18.10.2011 | 04:16
Bankasýslu ríkisins lokað og öllum sagt upp!
Ég átti erindi um Borgartún síðdegis. Eins og svo oft áður. Nema hvað. Í þetta skipti var eitthvað undarlegt í gangi við húsnæði Bankasýslu ríkisins í Borgartúni 3. Það var búið að girða húsið af með gulum borða eða límbandi, svona eins og lögreglan gerir þegar hún afmarkar svæði vegna rannsóknar mála. Á borðanum sem Bankasýsla ríkisins var afgirt með stóð "Lokað vegna spillingar!", "Öll þátttaka í spillingu er óheimil!" og eitthvað svoleiðis.
Það var eitthvað fólk þarna fyrir utan. Svo kom kona út úr byggingunni og tilkynnti að húsinu verði lokað og læsti útidyrunum. Maður einn á vettvangi sagði mér að starfsfólk Bankasýslu ríkisins væri búið að fá uppsagnarbréf. Því væri sagt upp vegna spillingar.
Þetta var allt mjög áberandi, akandi jafnt sem gangandi og hjólandi vegfarendum. Lögreglan hringsólaði umhverfis húsið án þess að aðhafast annað en gefa þessu gætur. Mig undrar að sjá hvorki né heyra neitt um þetta í fréttum helstu fjölmiðla.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
11.10.2011 | 00:04
Jón Þorleifs II
Fyrir nokkrum dögum skrifaði ég bloggfærslu um Jón Þorleifsson, verkamann og rithöfund. Ég sagðist ætla að skrifa þær fleiri um þann merka mann. Ekki síst til að halda minningu hans á lofti. Hann á það skilið. Og hefði ekki verið því mótfallinn. Svo mikið er víst. Hann kvartaði undan því að vera beittur þöggun. Sniðgenginn af fjölmiðlum og bækur hans faldar í bókaverslunum. Engu að síður náði hann að selja alveg 500 - 600 eintök af hverri bók. En vissulega fór ekki mikið fyrir þeim bókum í fjölmiðlum eða í bókabúðum.
Nokkrum dögum eftir að ég kynntist Jóni í afmælishófi Dagsbrúnar 1974 hitti ég Jón á gangi í Bankastræti. Við tókum tal saman. Skyndilega stökk Jón fram á gangstéttarbrún, rak út úr sér tunguna og setti upp "langt nef". Það er að segja spennti í sundur fingur beggja handa út frá nefinu á sér.
Mér varð litið út á götu þangað sem Jón beindi "langa nefinu". Þar ók hjá ráðherrabíll með Ólaf Jóhannesson í aftursæti. Ólafur var þá forsætisráðherra. Hann var með hliðarrúðu skrúfaða niður, veifaði Jóni og kallaði til hans: "Sæll vertu, Jón!"
Þetta gerðist frekar hratt og bíllinn var horfinn með það sama. Ég spurði: "Hvað er í gangi?"
Jón svaraði rólega, eins og um hversdagslegan atburð væri að ræða: "Ég átti fund með honum um daginn. Það er ekki hægt að kasta á hann kveðju öðru vísi en svona. Hann er fífl!"
Svo fór Jón að tala um eitthvað allt annað.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.1.2012 kl. 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
4.10.2011 | 23:50
Íslendingar gleðja
Útlendingar um allan heim hafa til nokkurra ára hlegið sig máttlausa yfir fíflagangi kolgeggjaðra Íslendinga, sem héldu að þeir væru mestir og bestir í heimi, snjallastir allra í fjármálabraski. Þeir hældu sér og hver öðrum við hvert tækifæri fyrir einstaka snilli. Þeir hömpuðu "íslensku leiðinni"; að láta kylfu ráða kasti í stað þess að hanga yfir smáatriðum. Forsetinn, seðlabankastjóri og aðrar toppfígúrur sáu um uppklapp og húrrahróp fyrir "íslensku útrásarvíkingana". Það þarf svo sem ekkert að halda áfram með upptalninguna á "tærri snilldinni". Mestu skiptir að sögur af brjáluðum kóksniffandi gullétandi íslensku vitleysingunum er útlendingum óendanleg uppspretta hláturs.
Það er öllum hollt að hlæja. Gamansögurnar af Íslendingum gleðja. Einu útlendingarnir sem hlæja ekki þegar tal berst að íslensku kóngunum eru þeir sem töpuðu peningum á kókflippi þeirra.
Sjálf/ir getum við Íslendingar brosað yfir lýsingum útlendinga á Íslendingum. Kíkið á fréttina hér fyrir neðan. Þaðan er hægt að smella á sjónvarpsviðtalið sem um ræðir. Spjallið um Ísland hefst á mínútu 31.30.
![]() |
Hlegið að Íslendingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.10.2011 kl. 13:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
1.10.2011 | 18:18
Af hverju er svona erfitt að telja fólk?
Það er skrítið hvað sjónarvottar á sama stað telja sig vera stadda í mis fjölmennum hópi. Þannig munar töluverðu á tölum sem gefnar hafa verið upp á fjölmenni á Austurvelli í morgun. Það hafa sést og heyrst tölur frá 1700 manns og upp í 12 þúsund. Þar á milli hafa verið nefndar tölurnar 2000, 3000 og 8000.
Af hverju er svona erfitt kasta tölu á hópinn? Það er mikill munur á 2000 og 8000 manns. Ein skýringin á misháum tölum getur verið sú að margir í hópnum hreyfa sig á meðan verið er að telja. Það er auðveldara að telja fólk ef fólk væri til í að standa kyrrt á meðan verið er að telja. Önnur skýring getur verið sú að sumir sjá huldufólk án þess að greina það frá mannfólki. Þriðja skýringin getur verið sú að sumir eru litblindir; sjá ekki suma liti. Það fólk sér kannski ekki fólk í gráum eða svörtum fötum. Og hlustar ekki á Í svörtum fötum.
![]() |
Eggjum kastað í þingmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
11.9.2011 | 21:53
Er Hussein Anti-Kristur?
Ég hlustaði á spjall Egils Helgasonar við Noam Chomsky í Silfri Egils í sjónvarpinu í dag. Það var áhugavert. Þeir komu lítillega inn á þá merku staðreynd að fjórðungur bandarískra lýðveldissinna (republicana) telur fullvíst að forseti Bandaríkja Norður-Ameríku, Barack Hussein Obama II, sé Anti-Kristur. Með öðrum orðum að hann sé fulltrúi djöfulsins, þess illgjarna og vonda skratta sem frá greinir skilmerkilega í mörg þúsund ára gömlum þjóðsögum gyðinga í Mið-Austurlöndum. Anti-Kristur hefur eitthvað meiriháttar hlutverk í því að ferli að uppvakningurinn Jesú Kristur mæti enn einu sinni til jarðar og nú á okkar dögum heilögum.
Lýðveldissinnar eru um það bil helmingur Bandaríkjamanna. Þannig að 25% þeirra er fjölmennur hópur. Kannski hátt í 40 milljónir. Getur verið að allur þessi fjöldi hafi rangt fyrir sér? Það væri saga til næsta bæjar. Þetta skiptir okkur jarðarbúa máli. Bandaríkin eru í forystu í heiminum um þessar mundir.
Til gamans má geta að systir kallsins með húfuna, Petes Seegers, var kona Ewans McColls. Dóttir hans sló í gegn á sínum tíma með lagi eftir Billy Bragg, A New England:
Svo var henni drekkt - líkast til óviljandi - af auðmanni á spíttbáti úti fyrir Mexikó. Áður sló breska leikkonan Tracy Ulaman í geng með lagi hennar They Don´t Know.
![]() |
Turnarnir féllu þægilega niður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.9.2011 kl. 17:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (82)
23.7.2011 | 21:20
Getur svona harmleikur gerst hér?
Eins og flestum var mér illilega brugðið við tíðindin af hryðjuverkunum í Noregi. Ekki aðeins vegna fréttanna af þessum hörmungaratburði heldur einnig vegna viðbragða íslenskra bloggara og fésbókarritara. Hver á fætur öðrum geystust þeir fram á ritvöllinn með stóryrtar yfirlýsingar um að nærri "fullvíst" væri að þarna væri greinilega um verk múslima að ræða. Yfitlýsingum fylgdi jafnan formælingar um fjölmenningarsamfélag og einkum sýndi þetta mannvonsku múslima.
Þeir sem þarna fengu útrás fyrir rasisma sinn fóru á flug þegar þeim var - af betur meðvituðum - bent á að slátrun á ungliðum jafnaðarmanna benti til þess að fullyrðingar rasistanna stæðust ekki skoðun.
Nú liggur fyrir að fjöldamorðinginn er kristinn hægri maður, hávaxinn, ljóshærður frímúrari, hernaðarsinni og byssudýrkandi. Það veltir upp spurningu um hvort að svona gæti gerst á Íslandi. Málflutningur norska rasistans er algjörlega samhljóða málflutningi íslenskra rasista. Algjörlega. Málflutningurinn rifjar upp nýleg ákall fyrrverandi frambjóðanda til formanns í Sjálfstæðisflokknum um að íslenskur ráðherra verði drepinn með skordýraeitri og að forsætisráðherrann verði líflátinn á sama hátt og Mússolíni; hengdur á haus. Bara svo þekkt dæmi séu nefnd.
Út af fyrir sig er fátt að því að vera ljóshærður og kristinn, hægri sinnaður, hávaxinn frímúrari og jafnvel hernaðarsinnaður byssudýrkandi. Öllu verra er þegar inn í dæmið blandast útlendingahatur og mannvonska. Og þetta síðast nefnda er ekkert skárra þó viðkomandi sé eitthvað annað en kristinn eða hægri sinnaður og ljóshærður frímúrari. Hinsvegar er ljóst að Anders Behring Breivik á skoðanasystkini á Íslandi. En vonandi ekki neitt sem gengur jafn langt í að fylgja eftir sínum skoðunum.
Valdimar H. Jónannesson er einn þeirra sem hefur fjarlægt bloggfærslu sína um þennan atburð og viðbrögð hans við fyrstu fréttum. Þrátt fyrir hans fyrstu afleitu viðbrögð ber að virða að hann hefur séð að sér og brugðist rétt við framhaldinu. Hann er maður að meiri og hefur beðist afsökunar. Það er til fyrirmyndar. Hugsanlega hefur hann líka lært eitthvað á mistökum sínum. Það væri gott.
![]() |
Hann skaut og skaut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.7.2011 kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (60)
11.7.2011 | 22:42
Útvarp Saga á fljúgandi siglingu
Tvær hlustendakannanir, framkvæmdar af sitt hvoru fyrirtækinu, hafa staðfest að Útvarp Saga er ein þriggja vinsælustu útvarpsstöðva landsins. Hinar eru rás 2 og Bylgjan. Hlustendakannanirnar voru framkvæmdar með stuttu millibili eftir að Eiður Guðnason hætti að hlusta á Útvarp Sögu. Þannig að hann er ekki skekkjumörk í þessum könnunum.
Þetta er glæsilegur árangur hjá lítilli einkastöð sem hefur hvorki ríkissjóð á bak við sig né fjölmiðlaveldi í eigu auðmanna. Hins vegar kemur þetta ekki á óvart. Hvar sem tvær manneskjur eru saman komnar þar er farið að vitna í Útvarp Sögu áður en langt um líður.
Útvarp Saga er alþýðuútvarp. Það er að segja lýðræðislegt útvarp þar sem almenningur fær að segja skoðun sína. Fyrir bragðið eru símatímar stöðvarinnar sérlega vinsælir. Þar hitnar stundum í kolunum og margvísleg sjónarmið fá að takast á.
Fastir pistlahöfundar Útvarps Sögu eru hver öðrum skemmtilegri. Að öllum ólöstuðum er Eiríkur Stefánsson þar fremstur meðal jafningja. Hann talar kjarnyrta íslensku og segir pólitískum samherjum til syndanna ekki síður en öðrum þegar honum mislíkar vinnubrögð þeirra. En Eiríkur er líka óspar á hrósið til þeirra sem eiga það skilið.
Þáttastjórnendur Útvarps Sögu eru sömuleiðis einvalalið. Þeir liggja sjaldnast á skoðun sinni. Og þær eru ekki einsleitar. Val á viðmælendum er fjölbreytt og jafnan áhugavert. Til að mynda fóru þeir Ólafur Helgi Kjartansson og Höskuldur Höskuldsson á kostum í þáttasyrpu um hljómsveitina The Rolling Stones á dögunum. Bara svo dæmi sé nefnt. Það kæmi mér ekki á óvart þó ég verði í viðtali á Útvarpi Sögu á morgun (þriðjudag) klukkan 8.
Útvarp Saga er fyrst og fremst talmálsútvarp. Engu að síður er dagskráin skreytt með einu og einu lagi inn á milli. Blessunarlega verða oft fyrir valinu lög sem ekki heyrast í öðrum útvarpsstöðvum. Þar á meðal fjörleg færeysk músík, sænsk, dönsk og þessi gamla góða íslenska með Óðni Valdimars, Ragga Bjarna, Skafta Ólafs, Þorvaldi Halldórs og þeim öllum. Þetta er til fyrirmyndar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.7.2011 kl. 07:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
3.7.2011 | 20:12
Hefði John Lennon stutt og kosið Ronald Reagan?
Í splunkunýrri heimildamynd, Beatles Stories, er breska hljómsveitin Bítlarnir (The Beatles) viðfangsefnið. Það tók leikstjórann, Seth Swirsky, 5 ár að vinna þessa mynd. Það sem gerir myndina sérlega áhugaverða er að hún geymir að uppistöðu til upplýsingar sem ekki hafa áður komið fram. Upplýsingar sem jafnvel hörðustu Bítlaunnendur hafa ekki heyrt um.
Þegar er risin upp deila um myndina. Hún snýst um fullyrðingu Freds Seamans þess efnis að John Lennon hefði stutt forsetaframboð Ronalds Reagans 1981 ef Lennon hefði ekki verið myrtur í New York 1980. Fred þessi var starfsmaður Lennons. Fred segir John Lennon áranna 1979 - 1980 hafa verið allt annan mann en þann herskáa og kjaftfora Lennon sem Richard Nixon taldi vera sinn hættulegasta óvin næstum áratug áður. Að sögn Freds hafði Lennon horn í síðu Jimmys Carters.
Bandaríski söguprófessorinn og Lennon-fræðingurinn, John Wiener, bloggar á síðu The Nationals. Hann efast um áreiðanleika Freds og bendir á að Fred sé fyrst og fremst þekktur fyrir að vera þjófur og lygari. Meðal annars varð hann uppvís af því að stela fjölda hluta af heimili Lennons og selja.
Viðtal sem Lennon veitti tímaritinu Rolling Stone skömmu áður en hann var myrtur styðja ekki kenningu Freds. Þar fyrir utan kaus Lennon aðeins einu sinni á ævinni. Það var þegar hann var nýkominn með kosningarétt.
Hinsvegar er skemmtilegur samkvæmisleikur að spá fyrir um hvaða afstöðu löngu látið fólk hefði haft til hinna ýmsu mála hefði þeim elst aldur til. Á 200 ára afmælisdegi Jóns Sívertsen var hann sakaður um að hafa stutt aðild Íslands að ESB væri hann sprelllifandi, hress og kátur, 200 ára í dag.
Á unglingsárum leigði ég herbergi hjá gömlum húmorslausum manni. Sá fullyrti í fullri alvöru að Jesú hefði alltaf kosið Alþýðuflokkinn. Sá gamli bar nafngreindan prest fyrir því.
Þar fyrir utan er eðlilegt að fólk skipti um skoðanir á hinu og þessu fram eftir öllum aldri. Hver hefðu verið næstu skref Jimis Hendrix, Jims Morrisons og Janis Joplin í músík ef þau hefðu orðið eldri en 27 ára? Kurt Cobain hafði uppi áform um að verða nútíma Leadbelly áður en hann (Cobain) skaut sig. Það gæti hafa orðið spennandi dæmi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.7.2011 kl. 01:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2011 | 00:03
Keflvíkingar eignast málverk af hershöfðingja
Síðustu daga hefur ríkt þjóðhátíðarstemmning í Keflavík. Um miðjan maí áskotnaðist Keflvíkingum nefnilega mynd af hershöfðingja. Alvöru málverk af alvöru hershöfðingja. Málverkið útvegaði bandaríska sendiráðið á Íslandi leikhúsinu á Ásbrú í Keflavík. Maðurinn á málverkinu var til í alvörunni. Hann var yfirhershöfðingi í bandaríska hernum. 1943 flaug hann á Fagradalsfjall og lést ásamt 13 undirmönnum sínum.
Þetta er í fyrsta sinn sem Keflvíkingar eignast mynd af alvöru hershöfðingja. Því er mikið um dýrðir, íslenska fánanum er flaggað í flestum görðum, hús skreytt að utan með uppblásnum blöðrum og karlmenn ganga með hálsbindi. Stöðugur straumur hefur verið í húsakynni Ásbrúar þar sem fólk lætur ljósmynda sig við hlið málverksins.
Fyrir mörgum árum stóðu Keflvíkingar í þeirri trú að einn innfæddur, Elli skrýtni, hefði komist yfir ljósmynd af alvöru hershöfðingja. Um nokkurra ára skeið hafði Elli tekjur af því að leyfa sveitungum sínum að skoða myndina og láta ljósmynda sig við hlið hennar. Það ævintýri fékk snöggan endi þegar trúverðugur bandarískur hermaður sá eina slíka ljósmynd. Hann sór og sárt við lagði í vitna viðurvist að myndin væri ekki af alvöru hershöfðingja. Eftir það voru Keflvíkingar skömmustulegir. En hafa nú fengið uppreista æru. Enda er meiri reisn yfir málverkinu í Ásbrú en ljósmyndinni hans Ella skrýtna.
.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
19.5.2011 | 21:30
Í þá gömlu góðu daga
Sú var tíðin að austurríska vaxtaræktartröllið Arnold Schwarzenegger lifði á hassi, sterum og marijúana. Afleiðingarnar urðu þær að hann sigraði í allskonar keppnum. Var krýndur fergurðardrottning (eða eitthvað svoleiðis); heimsmeistari í vaxtarækt; var um tíma ólöglegur innflytjandi í Bandaríkjum Norður-Ameríku; varð blaðamaður hjá söluhæsta vaxtarræktartímariti heims; mig rámar í að hann hafi skrifað bók eða bækur; hann varð heimsfrægur kvikmyndaleikari; giftist inn í Kennedy-fjölskylduna; varð ríkisstjóri Kaliforníu; barnaði barnfóstru þeirra hjóna...
Hann hefur beðið konu sína og börn fyrirgefningar á framhjáhaldinu og 10 ára gömlu barni sem hann eignaðist með barnfóstrunni.
Með því að smella á þennan hlekk http://www.dailymotion.com/video/x132cm_arnold-schwarzenegger-smoking-pot_fun má sjá hreyfimynd af kappanum reykja sitt daglega gras. Í Kaliforníu eru þjóðaratkvæðagreiðslur tíðar um allskonar. Í þjóðaratkvæðagreiðslu höfnuðu Kaliforníubúar lögleiðingu kannabisefna ekki alls fyrir löngu. Mig minnir þó að heilsulitlir megi reykja marijúana í Kaliforníu ef þeir biðja fallega.
.
![]() |
Gamlar myndir af Schwarzenegger og ástkonunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)