Fćrsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
13.1.2011 | 00:11
New York, New York
Ég hef lagt í vana minn ađ heimsćkja New York af og til. Síđasta föstudag gerđi ég mér erindi ţangađ. Sem var eiginlega dálítiđ kćruleysi. Ég var nýkominn frá Danmörku og er ađ fara til Fćreyja um mánađarmótin. Ég ţarf einhvernvegin ađ reyna ađ venja mig af ţessu flakki. Ţađ kemur niđur á vinnunni og seđlaveskinu. Ţar fyrir utan eru ekki nema 34 ár frá ţví ég kastađi síđast kveđju á NY búa. Í millitíđinni er ég reyndar búinn ađ fara nokkrum sinnum til Suđurríkja BNA, sem eru eins og önnur heimsálfa miđađ viđ Norđurríkin. Ađ vísu laumađist ég til Boston fyrir 2 árum. Boston er örlítiđ fyrir norđan NY og um margt lík NY. Bara mun smćrri í sniđum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.1.2011 kl. 01:14 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (20)
14.12.2010 | 00:33
1001 gamansaga - IV. hluti
Ég hef veriđ ađ birta á ţessum vettvangi útdrátt úr heldur betur skemmtilegri nýútkominni bók Helga Seljan, 1001 gamansaga. Ţćr 15 sögur sem ég hef ţegar birt má finna međ ţví ađ "skrolla" niđur ţessa bloggsíđu. Ţađ má einnig smella á fyrirsagnir á listanum hér til vinstri á síđunni. Í leiđinni vćri gaman ef ţiđ takiđ ţátt í skođanakönnun um bestu plötur Megasar. Sú skođanakönnun er einnig hér til vinstri á síđunni. Ég ćtla ađ loka ţeirri könnun fljótlega og birta niđurstöđuna.
Hér koma fleiri sýnishorn úr bókinni góđu, 1001 gamansaga:
.Karl Jónatansson hringdi eitt sinn í mig og sagđi ţá m.a. Ég hefi lengi veriđ ađ hugsa til ţín, en ég hefi veriđ svo ómögulegur ađ ţađ hefur engin heilbrigđ hugsun komist ađ hjá mér.
.Einhverju sinni var sagt ađ ég hefđi veriđ ađ halda rćđu gegn áfengum bjór og sagt ţá: Ég er algjörlega á móti bjór og hefi aldrei bragđađ hann og svo finnst mér hann vondur.Árni frćndi minn Helgason kenndur viđ Stykkishólm var afar lágvaxinn, en orđheppinn međ afbrigđum. Hann kom einu sinni í skóla einn á Akranesi ţar sem Ólafur Haukur vinur hans var viđ skólastjórn. Ólafur Haukur dreif Árna međ sér inn í einn bekkinn ţar sem voru ansi hávaxnir unglingar og ţegar ţeir koma inn í skólastofuna standa allir nemendurnir upp. Árna blöskrađi hćđ ţeirra og segir viđ Ólaf Hauk: Heyrđu, ekki vorum viđ svona stórir ţegar viđ vorum ungir?
Á fundaferđum mínum um kjördćmiđ gisti ég oft hjá góđu fólki. Einu sinni gisti ég hjá Önnu Maríu og Hrafni á Stöđvarfirđi. Um morguninn lagđi ég leiđ mína í salthúsiđ, en Anna María vann ţar. Ţegar ég er ađ koma inn úr dyrunum ţá heyri ég ađ ein konan segir: Jćja, Anna Maja, kemur nú Helgi Seljan, ţinn mađur. Ţá svarar Anna María hátt og snjallt: Eins og ég viti ţađ ekki, hann svaf hjá mér í nótt. Björn Grétar frćndi minn og fóstbróđir er afar rólegur í tíđinni. Hann var í mat hjá okkur Hönnu eins og svo oft og ég bauđ honum kaffi og međ ţví áđur en hann fćri á einhvern kristilegan fund, en segi svo viđ hann: Ţađ á nú auđvitađ ekki ađ vera ađ gefa ţér kaffibrauđ sem ert ađ fara beint í kaffi og krćsingar hjá kristilegum. Björn svarar međ stakri ró: Ţađ er ekki lengur neitt kaffi eđa krćsingar ţar. Nú, og hvađ kemur til? spyr ég. Ja, hann dó sá sem hellti upp á. Hvađ segirđu, en ţú svona mikill kaffimađur, af hverju hellir ţú ekki upp á? Björn međ sömu róseminni: Ég er ekki í stjórninni..Málfríđur mágkona mín bjó um tíma í Vogum á Vatnsleysuströnd. Keflavíkurvagninn gekk ţá á milli og međ honum fór hún oft. Einu sinni varđ hún heldur sein fyrir og sagđi sporléttum syni sínum ađ hlaupa upp á veg og biđja vagnstjórann ađ doka viđ eftir sér. Stráksi bađ vagnstjórann ađ bíđa ţví ţađ vćri gömul kona á leiđinni og vagnstjórinn beiđ og beiđ og beiđ. Seinast kallađi hann til stráksa og sagđist ekki bíđa lengur, hann sći ekkert til ţessarar gömlu konu. Ţá svarađi sonurinn: Mamma, hún er löngu komin. Gamla konan var ekki orđin fertug ţegar ţetta var.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.12.2010 kl. 23:58 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
16.11.2010 | 01:05
Vekur upp spurningar...
Lćknir í ţýska smábćnum Paderborn var ađ hefja skurđađgerđ á 36 ára gömlum sjúklingi. Ţá rak lćknirinn augun í húđflúr á handlegg sjúklingsins. Húđflúriđ var mynd af sitjandi erni og hakakrossi. Vel ţekktum táknum nasista. Viđbrögđ lćknisins voru ţau ađ tilkynna eiginkonu sjúklingsins ađ hann hefđi ekki geđ í sér né samvisku til ađ lappa upp á nasista.
Ţađ varđ ađ kalla út annan skurđlćkni til ađ framkvćma ađgerđina á nasistanum. Lćknirinn sem neitađi ađ afgreiđa nasistann gćti veriđ í vondum málum. Hann er - eins og ađrir lćknar - bundinn af svokölluđum lćkniseiđi sem kenndur er viđ Hippokrates. Ţar segir eitthvađ á ţá leiđ ađ lćknirinn leggi viđ drengskap sinn ađ beita allri sinni kunnáttu af fullri alúđ og samviskusemi og láta sér ávallt annt um sjúklinga sína ÁN MANNGREINARÁLITS.
Ţađ getur hinsvegar veriđ varasamt fyrir nasistann ađ draga lćkninn fyrir dómstóla. Samkvćmt ţýskum lögum liggur 3ja ára fangelsi viđ ţví ađ bera nasistatákn á borđ viđ örn og hakakross.
5.11.2010 | 21:30
Borgarstjóri hrekkir nćstum sjötugan mann
Á síđasta kjörtímabili kom upp sérkennilegt mál í borgarstjórn. Ţannig er ađ Reykjavíkurborg leggur borgarstjórnarflokkunum til fjárstyrki. Borgarstjórnarflokkur Frjálslynda flokksins, F-listi, klauf sig frá Frjálslynda flokknum í tvígang á kjörtímabilinu. Einhversstađar í ţví ferli kom upp ágreiningur um ţađ hvort fjárstyrkur borgarinnar ćtti ađ fylgja Frjálslynda flokknum eđa borgarstjórnarflokki F-listans.
Löglćrđir menn lögđust yfir máliđ. Niđurstađan var sú ađ Frjálslynda flokknum bćri fjárstyrkurinn. Einhverra hluta vegna hefur styrkurinn ekki skilađ sér til Frjálslynda flokksins. Á dögunum bođađi borgarstjórinn Guđjón Arnar Kristjánsson, fyrrverandi formann Frjálslynda flokksins, á sinn fund til ađ ganga frá ţessu máli. Ţegar Guđjón Arnar mćtti á tilsettum tíma var borgarstjórinn fjarri góđu gamni. Til hans spurđist ekki. Ruku menn ţá upp á milli handa og fóta. Ţeir leituđu af sér allan grun. Međal annars hvort veriđ gćti ađ um 1. apríl vćri ađ rćđa. Svo reyndist ekki vera. Ţarna virđist sem annarskonar hrekkur hafi veriđ í gangi. Hrekkur borgarstjóra viđ nćstum sjötugan mann (66 ára). Ţađ er illa gert og ljótt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:23 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (16)
5.11.2010 | 00:30
Klúđur - má ekki endurtaka sig
Í Fréttablađinu í dag er birtur útdráttur úr grein eftir Guđmund Gunnarsson, formann Rafiđnađarsambandsins, á Eyjunni. Fyrirsögn greinarinnar er "Glundrođinn viđ völd". Tilvitnunin hefst á ţessum orđum: "Afstađa stjórnarandstöđunnar međ órólegu deildinni er orđin mjög stór ţrándur í götu gagnvart upprisu íslensks atvinnulífs."
Ţarna er rangt eftir Guđmundi haft. Hann stafsetur nafn Ţrándar réttilega međ stóru Ţ. Hinsvegar stafsetur hann ranglega nafn ţorpsins Götu međ litlu g.
Ţrándur í Götu var höfđingi á Austurey í Fćreyjum fyrir ţúsund árum. Hann átti hálfa Austurey og var merkilegur mađur um margt. Ţessi forfađir fćreysku álfadísarinnar Eivarar var fyrsti menntamálaráđherra Fćreyja. Barđist fyrir menntun Fćreyinga. Hann barđist gegn skattgreiđslum Fćreyinga til norska kóngsins. Hann var ásatrúarmađur og barđist gegn kristnitöku í Fćreyjum.
Hérna erum viđ vinirnir, ég og Ţrándur í Götu. Ţrándur var svo ţver og fastur fyrir ađ ţađ er túlkađ á snilldar hátt međ styttunni af honum í Götu.
Ţađ er flott ađ vísa til Ţrándar í Götu í ţví samhengi sem Guđmundur gerir. En gćtum ađ ţví ađ nota stórt Ţ og stórt G ţegar vísađ er til Ţrándar í Götu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:33 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (15)
2.11.2010 | 22:36
Gefiđ embćttismönnunum nafn og andlit
Umfjöllun um ţá sem eru ađ fara illa út úr samskiptum viđ banka, fjármögnunarfyrirtćki, ríki og borg einkennist af ţvi ađ talađ er um ţessi fyrirbćri eins og andlitslaus embćtti. Fólk kvartar undan bönkum, fjármögnunarfyrirtćkjum, Íbúđalánasjóđi, ríkisvaldi og embćttum sveitarfélaga. Ţađ er eins og ţessi fyrirbćri séu sjálfstćđar andlitslausar stofnanir. Sú er hinsvegar ekki raunin. Ţarna eru einstaklingar ađ verki. Jú, vissulega fulltrúar sinna embćtta.
Gefum ţessum fulltrúum nafn. Látum ţá standa fyrir sínum embćttisverkum undir nafni. Rétt eins og fórnarlömb embćttisfćrslna ţeirra. Ekki leyfa ţeim ađ fela sig á bak viđ stofnunina sem ţeir vinna hjá. Ţetta eru einstaklingar sem eiga ađ standa skil á sínum embćttisfćrslum. Undir nafni.
![]() |
Ćtla ađ stöđva útburđ |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:23 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (14)
12.10.2010 | 23:57
Draumalandiđ
Ekkert útvarp. Ekkert sjónvarp. Enginn plötuspilari. Engin málverk á veggjum. Engar bćkur. Engar styttur eđa skúlptúrar Engin listiđnađarhönnuđ húsgögn. Engir sinfóníuhljómleikar. Engar leiksýningar. Engar kvikmyndir. Engin tugmilljarđa króna velta lista og menningar. Engin Björk. Engin Sigur Rós. Enginn Erro. Enginn Laxness. Enginn Arnaldur Indriđason. Engar nokkur hundruđ íslenskir bókatitlar á markađ erlendis. Enginn ferđaiđnađur. Ekkert Iceland Airwaves. Ekkert Vesturport. Engir ţúsundir fjölmiđlamanna. Engin friđarsúla í Viđey.
Bara fólk sem situr á Alţingi. Bara Ásbjörn Ólafsson. Bara fólk sem vinnur venjulega vinnu: Kvótagreifar sem borga sér tugmilljónkróna arđgreiđslur út úr félagi í taprekstri. Ţađ er olöglegt. Draumalandiđ.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.10.2010 kl. 12:20 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (28)
11.10.2010 | 01:05
Splundrađi Yoko Bítlunum?
![]() |
Give Peace a Chance" |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.10.2010 kl. 21:41 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (49)
9.10.2010 | 22:27
Skagfirskir tannstönglar
Ţađ er margt í gangi úti á landi sem almenningur hefur ekki hugmynd um. Nema hann lesi hérađsfréttablöđin. Ţau eru skemmtileg og fróđleg. Fólki úti á landi dettur svo margt í hug. Eftirfarandi frétt er úr skagfirska fréttablađinu Feyki (töluvert stytt):
Erlingur Veturliđason bóndi í Skagafirđi hefur ákveđiđ ađ hefja framleiđslu á tannstönglum. Erlingur og fjölskylda brugđu nýlega búi og viđ ţađ safnađist saman ýmislegt eins og girđingastaurar og innréttingar úr fjárhúsum og fjósi. Frekar en ađ láta ţessi verđmćti fara fyrir lítiđ, ákvađ fjölskyldan ađ koma ţessu í verđ. Já ţetta kom nú ţannig til ađ viđ vorum ađ safna ţessu í haug ţegar viđ vorum ađ taka til á bćnum og okkur fannst ţetta vera ansi mikill viđur sem ţarna fćri fyrir lítiđ, segir Erlingur. Viđ rćddum ţađ fyrst ađ gefa ţetta inn á Hvammstanga í áramótabrennuna, en okkur fannst ţađ einhvern veginn ekki hćfa ţessu, ţar sem viđ vorum ađ kveđja ţarna okkar ástkćra bú eftir áratuga veru ţar.
Erlingur leitađi til kunnáttumanna í markađsmálum og voru ţeir sammála um ađ hugmynd Erlings um ađ setja á markađ mismunandi stćrđir og gerđir af tannstönglum gćti slegiđ í gegn. Já ţeir voru jákvćđir á ţetta markađsmennirnir. Viđ erum ekki ađ tala um venjulega fjöldaframleidda tannstöngla, heldur ćtlum viđ ađ tálga hvern og einn út úr timbrinu, ţannig ađ ţađ verđur enginn eins. Viđ ćtlum ađ merkja ţá sérstaklega, t.d. getur fólk lent á pakka sem inniheldur tannstöngla úr fjósinu, eđa fjárhúsunum og svo verđa ţarna girđingastauratannstönglar. Erlingur segir ađ fjölskyldan ćtli ađ vinna ţetta saman, sitja saman úti í skemmu og tálga. Viđ erum fjögur á bćnum og ćtlum ađ gera ţetta ađ fjölskyldubisness og treysta ţannig böndin á milli okkar líka, segir Erlingur.
En hvenćr er von á framleiđslunni á markađ? Ef vel gengur ćttu fyrstu pakkningarnar ađ koma á markađ áriđ 2012 líklega síđla ţađ ár. Ţađ tekur náttúrlega tíma ađ tálga ţetta til, en viđ teljum ađ eftirspurnin sé nćg og á ţessum tíma ćtlum viđ ađ ná upp mikilli eftirspurn. Fara kannski í stórmarkađi og leyfa fólki ađ prófa og ţannig. Vegna ţess ađ enginn tannstöngull verđur eins kemur ţetta jafnvel til međ ađ hafa söfnunargildi auk ţess ađ passa upp í hvern einasta kjaft, ţađ eiga allir eftir ađ finna stöngul viđ sitt hćfi.
5.10.2010 | 00:21
Hverju er veriđ ađ mótmćla?
Ég mćtti kátur og hress í mótmćlastöđu á Austurvöll í kvöld. Ég vissi ekki alveg hverju var veriđ ađ mótmćla. Ţađ var góđ stemmning. Međ mér í för var Vestur-Íslendingur frá Kanada. Hann vissi ekki fremur en ég hverju viđ vorum ađ mótmćla. Ţađ skipti ţó litlu máli. Viđ mótmćltum einhverju. Og Vestur-Íslendingurinn hefur tekiđ ţátt i mótmćlum í Bretlandi, Kanada og víđar. Ţar var augljósara hverju var veriđ ađ mótmćla.
En ţetta var gaman. Viđ mótmćltum öllu sem var í bođi til ađ mótmćla: Burt međ spillingu, burt međ ríkisstjórn, burt međ stjórnmálastéttina, burt međ Alţingi, burt međ ađgerđarleysi, burt međ Geir Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu, burt međ skjaldborg auđmanna, burt međ samspillingu, burt međ Sjálfstćđisflokkinn, Framsóknarflokkinn, Samfylkinguna, Vinstri Grćna og burt međ allskonar. Burt međ fjórflokkinn, burt međ AGS, burt međ spillta verkalýđsforingja, burt međ verđtrygginguna, burt međ ESB...
Bylting lá í loftinu 2009 og enn er hrópađ á byltingu. Heimilum blćđir . Glćpamenn fá milljarđa afskrifađa. Kúlulánakóngar og kúlulánadrottningar drottna á Alţingi. Sérlegir efnahagsráđgjafar hrunsins blása sig út sem ţá sem vita og geta. Öllum öđrum betur.
Og hvađ svo? Kosningar strax? Kosningar fyrsta laugardag hvers mánađar? Ţjóđstjórn? Utanţingsstjórn (undir forystu Gylfa Magnússonar og Rögnu)? Einrćđi? Stjórnleysi (anarkisma)? Besta flokkinn og Frjálslynda flokkinn á ţing?
Af hverju var lögreglan grýtt međ steinum og allskonar drasli? Af hverju tók Óli Björn Kárason brjálćđiskast í stađ ţess ađ fara heim og láta renna af sér? Ţó ekki sé nema örlítiđ.
Svona er Ísland í dag. Mikiđ fjör. "Föss" gítarsándiđ hjá Lennon er skemmtllegt ţó George hafi hatađ ţađ.
![]() |
Réttlćti og heiđarlegt uppgjör |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.10.2010 kl. 18:22 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (24)