Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
31.8.2010 | 19:11
Vondandi verður Álfheiður Ingadóttir sett út
Á sama tíma og heilbrigðisyfirvöld í útlöndum eru að hvetja fólk til að stunda regluleg sólböð þótti Álfheiði Ingadóttur brýnasta verkefni snemmsumars að banna 18 ára Íslendingum og yngri að fara í sólbað. Vonandi verður hún sett úr ráðherrastóli við þær breytingar sem nú er verið að ræða á stjórnarfundi. Það eru kannski ekki miklar líkur á að snöfurlegur og frjálslyndur ráðherra taki við af henni. En þangað til annað kemur í ljós má vona að sá eða sú taki af skarið og aflétti ólögunum áður en beinþynning, þunglyndi, húðsjúkdómar, tannleysi, krabbamein, bakverkir og aðrir slíkir fylgifiskar sólarleysis verða verulegt vandamál.
Svo skemmtilega vill til að um leið og Álfheiður bannaði sólböð þá gáfu stjórnvöld í Íran út tilkynningu um að sólböð væru bönnuð. Konur í Íran sem eru staðnar að því að hafa laumast í sólbað eru kærðar og þeim refsað, samkvæmt lögum um sómasamlegt útlit. Írönsk kona með sólbrúna húð telst vera fleðuleg. Í lögum Álfheiðar Ingadóttur sem banna sólbað er tekið fram að bannið varði sólbað í fegrunarskini.
Ég held að það sé vont að Ragna sé sett út. Gylfi varð að fara. Sennilega hefur verið einhver pæling um að það kæmi illa út að setja hann einan af. Það kæmi öðru vísi út ef Rögnu væri líka fórnað.
Þessi íranska kona braut lög um sómasamlegt útlit. Hún hafði laumst í sólbað. Þvert á lög Álfheiðar Ingadóttur og íranskra stjórnvalda. Löggan lamdi konuna til blóðs.
![]() |
Gylfi og Ragna hætta í stjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
17.8.2010 | 00:18
Pilla sem kemur í veg fyrir að stúlkur verði samkynheigðar
Þeim dettur margt í hug í útlöndum. Stundum er eins og þeir hafi ekki annað að gera en láta sér detta eitthvað í hug. Nú hafa einhverjir í útlöndum fundið út að ef þungaðar konur ganga með kvenfóstur þá geta þær, með því að taka inn pillu, komið í veg fyrir að það verði samkynhneigt.
Pillan er upphaflega á markaði til að takast á við erfðasjúkdóm sem ég veit ekki hvað heitir á íslensku. Enska heitið er "Congenital Adrenal Hyperplasia".
Talið er að vitneskjan um þessa pillu muni í framtíðinni draga verulega úr fæðingu samkynhneigðra stúlkna í Bandaríkjunum og kannski víðar. Þá má spyrja: Til hvers?
Hvað segja Madonna og Britney Spears um þetta?
![]() |
Lyfjasala dregst saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (40)
3.8.2010 | 10:51
Ríkisstjórnin sprungin!
Í síðustu viku birti sunnlenska fréttablaðið Dagskráin viðtal við frægasta sjáanda landsins, Láru Ólafsdóttur á Selfossi. Viðtalið er gríðarlega merkilegt. Enda er Lára gríðarlega merkileg. Þó viðtalið sé stutt er það hlaðið stórum bombum. Sú stærsta er fullyrðing Láru um að ríkisstjórnin springi í þessari viku vegna Magma málsins. Á morgun er miðvikudagur. Þannig að ríkisstjórnin er sprungin varla síðar en á föstudag. Hvað tekur þá við? Nú reynir á næstu sýn eða skynjun Láru.
Til viðbótar er Lára búin að finna olíu á hafsbotni á Vestfjörðum, við Grímsey og í Vestmannaeyjum á sömu slóð og Guðlaugur Friðþjófsson synti á sínum tíma. Sérstakt fagnaðarefni er að olían skuli vera á hafsbotni á Vestfjörðum. Ef hún væri ofar hafsbotni eru fiskimiðin fyrir vestan ónýt.
Ekki nóg með það. Til fjölda ára hefur Lára verið á fullu í að finna Madeleine McCann, litlu stelpuna sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal vorið 2007. Lára hefur fundið út að Madeleine sé á lífi. Lára á bara eftir að staðsetja hvar stelpan er stödd. Hugsanlega er stelpan á meiri hreyfingu en svo að hægt sé að staðsetja hana.
Lára varð heimsfræg um allt Ísland þegar hún spáði fyrir um rosalegan Krísavíkurskjálfta sem átti að skella á klukkan korter yfir ellefu 27. júlí sama ár. Spáin var pínulítið ónákvæm. Það eina sem gerðist var að heimskasta fólkið á Suðurlandi skalf úr hræðslu og flúði til annarra landshluta. Aðrir á meintu skjálftasvæði skulfu líka af áhyggjum og keyptu skjálftaheld hús. Svo heppilega vildi til að fyrir tilviljun átti Lára nokkur slík á lager.
Spádómsgáfa Láru er ekki alveg á hreinu. Stundum er Lára skráð sjáandi. Í öðrum tilfellum segist hún ekki sjá sýnir heldur skynji hún ýmsa hluti. Þá bregður hún við skjótt og skráir skynjanirnar samviskusamlega í stílabók sem hún hefur merkt "Draumar mínir og skynjanir".
Einhverra hluta vegna hefur Lára ekki tekið boði James Randi sem var staddur hérlendis á dögunum. Hann býðst til að greiða Láru 12 og hálfa milljón krónur ef hæfileikar hennar verða sannreyndir með einföldu prófi.
Hér er létt og hressandi útvarpsspjall við sjáandann spræka um hinn rosalega öfluga meinta Krísavíkurskjálfta: http://blogg.visir.is/frostiloga/2009/07/29/loddari-afhjupa%C3%B0ur-i-beinni/
![]() |
Björk: Magma vinnur með AGS |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
24.7.2010 | 17:06
Gleðifrétt um samtakamátt fólks og skuldlausan Ómar
Fréttin um skuldlausan Ómar er gleðileg um margt. Í fyrsta lagi vegna þess að Ómar er orðinn skuldlaus. Í öðru lagi sýnir hún að Íslendingar kunna að þakka fyrir sig; hvort sem er fyrir framlag Ómars sem skemmtikrafts í hálfa öld eða sem hugsjónarmanns er stendur með náttúrunni; náttúru landsins. Þetta geta Íslendingar þegar á reynir. Magnað.
![]() |
Ómar orðinn skuldlaus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
23.7.2010 | 23:41
Var ég Baugspenni?
Síðustu daga hef ég ítrekað verið spurður að því hvort ég hafi verið Baugspenni. Til að byrja með vissi ég ekki hvaðan á mig stóð veðrið í veðurblíðunni. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að á vef sem kallast amx.is er eins og látið að því liggja að ég hafi yfirgefið klapplið Baugsfeðga.
Þar segir (http://www.amx.is/fuglahvisl/15316/) í inngangi:
"Bloggarar snúa nú hver á fætur öðrum baki við Baugsfjölskyldunni og eru skrif eins þeirra til marks um breytinguna. Jens Kristján Guðmundsson sem lengi vel var mest lesni bloggari vefsins blog.is skrifar nú um Jón Ásgeir:"
Inngangnum fylgir létt og skemmtileg bloggfærsla sem ég skrifaði á dögunum: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1078288/
Við bloggfærsluna hnýta smáfuglarnir á amx.is eftirfarandi:
"Smáfuglarnir taka ekki undir allt það sem Jens segir í færslu sinni. En þeir velta þó fyrir sér hvort skrifin séu til marks um að nú styðji engir gamla Baugsveldið nema Ólafur Arnarsson, Þorvaldur Gylfason og Ólafur Stephensen?"
Af þessum orðum á amx.is má ráða að ég hafi verið Baugspenni. Ég kannast ekki við neitt í þá áttina. En það er ekkert að marka. Ég kannast ekki við allt. Minnið er stopult.
Í bloggfærslu minni lagði ég út af frétt RÚV um að Jón Ásgeir og systir hans deildu um undirskrift. Við það er því að bæta að JÁJ sendi frá sér yfirlýsingu á Pressunni þar sem hann vísar frétt RÚV á bug sem staðlausum stöfum. Segir að þau systkini greini ekki á um neitt nema eignarrétt á nafninu Bónus.
Fréttastofa RÚV hefur ekki dregið frétt sína til baka og vitnar í greinargerð lögmanns JÁJ þar sem þessu með undirskriftina er víst haldið fram. jÁJ verður klárlega að kæra lögmann sinn og fréttastofu RÚV til að hreinsa sig og systur sína af ásökunum um alvarlega glæpi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.7.2010 kl. 00:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
12.7.2010 | 11:20
Kvótakóngur eyðilagði sjóvarnargarð
Siglingastofnun og bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi hafa skikkað Guðmund Kristjánsson, aðaleiganda Brims hf., til að endurreisa sjóvarnargarð sem Guðmundur lét fjarlægja úr fjörunni við Nesveg. Garðurinn var reistur á sínum tíma til að afstýra hættu af flóðum. Flóðavarnagildi garðsins skipti kvótakónginn engu máli. "Mér fannst hann ljótur," útskýrir kóngurinn uppátæki sitt.
Það eru fleiri en sá er stendur gegn því að blind kona fái hjálparhund sem hugsa bara um naflann á sjálfum sér.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
28.6.2010 | 23:02
Íslendingar eru að rúlla upp Evrópumóti
Ég veit ekkert um brids. Ég veit ekkert hvernig spilin eiga að snúa eða út á hvað þessi spilaleikur gengur. Ég fatta ekkert hvað fréttir af brids snúast um. Eftir því sem ég best veit er íslenska landsliðið í brids búið að rúlla upp Evrópumóti í brids. Það er búið að sigra 15 lönd af 18. Eitt tap var nánast jafntefli. Það eru stig sem telja. Íslenska liðið er öruggt með forystu inn í heimsmeistarakeppni í brids. Ekki í fyrsta sinn. Margir muna eftir því þegar Doddsson mætti út á Keflavíkurflugvöll og skálaði í Bermudaskál. Nú stefnir í að heilög Jóhanna muni endurtaka leikinn. Mæti ofurölvi út á Keflavíkurflugvöll, nýgift og spræk.
![]() |
Þrír sigrar á EM í brids |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.6.2010 kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.6.2010 | 13:17
Skúbb! Pétur Blöndal fram til formanns
Pétur H. Blöndal, alþingismaður, liggur undir feldi og íhugar hvort hann eigi að bjóða sig fram í formannssæti Sjálfstæðisflokksins á morgun eða svo. Rosa mikill áhugi og stemmning er fyrir því meðal flokksmanna. Vinsældir Péturs ná einnig langt út fyrir raðir flokksbundinna. Í skoðanakönnun á Útvarpi Sögu sögðust yfir 8 af hverjum 10 styðja framboð Péturs. Þátttakendur í skoðanakönnunni voru hátt á 3ja þúsund. Þetta viðhorf hefur sömuleiðis speglast í símatímum útvarpsstöðvanna.
Svo virðist sem áhugi fyrir framboði Guðlaugs Þórs til formanns Sjálfstæðisflokksins hafi koðnað niður. Það fór vel af stað. 129 manns skráðu sig á fésbókarsíðu til stuðnings Guðlaugi. En svo var eins og tjald væri dregið fyrir sólu. Ekkert hefur gerst síðan og Gulli læðist með veggjum þessa dagana: http://www.facebook.com/#!/pages/Skorum-a-Gudlaug-por-ad-bjoda-sig-fram-til-formanns-Sjalfstaedisflokksins/120442957997480
![]() |
Enginn rekinn úr Sjálfstæðisflokknum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.7.2010 kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (33)
23.6.2010 | 15:32
Málunum reddað af snerpu og skilvísi
Þegar útrásarvillingarnir voru að ræna bankana innan frá sameinuðust helstu ráðamenn þjóðarinnar í húrrahrópum fyrir snilli ræningjanna og kaffibollaburðarmönnum þeirra. Hérlendis, og ekki síður erlendis, kepptust menn við að hlaða lofi og fálkaorðum á kvikindin. Gagnrýnisraddir greiningardeilda erlendra seðlabanka og aðrir fjármálafræðingar voru kvaddar í kútinn með þeim rökum að viðkomandi þyrftu á endurmenntun að halda. Þeir væru annað hvort heimskir eða fáfróðir. Íslenska snilldin væri þess eðlis að ekki væri farið eftir reglum. Kylfa væri látin ráða kasti. Þannig tækist mönnum að græða á daginn og grilla á kvöldin. "Hugsið ykkur hvað væri gaman ef við gæfum í!," hrópaði ríkisrekinn ritþjófur í fögnuði yfir því að velta íslensku bankanna var orðin margföld velta íslenska ríkisins.
Þegar aðvörunarorð gagnrýnenda reyndust sannspá brást forsætisráðherrann, Geir Haaarde, og ríkisstjórn hans við með yfirlýsingum um að best væri að gera ekki neitt. Ósýnileg hönd myndi kippa öllu í lag ef ekkert væri gert. Svo bað hann guð að blessa Ísland. Arftakar Geirs tóku vinnubrögðin í arf - þó í orði kveðnu sé stöðugt verið að bjarga öllu. Alveg eins og hjá BP:
![]() |
Innheimtuaðgerðum frestað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2010 | 17:37
Íslendingar skikkaðir til að skipta um fána
Ef svo klaufalega tekst til að Ísland endi inn í miðjum kæfubelg Evrópusambandsins mun það hafa ýmsar og meiri breytingar í för með sér en ætla má í fljótu bragði. Þetta hefur farið lágt. Meira að segja Heimssýn hefur ekki nefnt það. Eitt það einkennilegasta er að íslenski fáninn brýtur mannréttindalög ESB. Mannréttindadómsstóll ESB hefur þegar fellt dóm með þeirri niðurstöðu að kross sé trúartákn. Skiptir þar engu máli hvort krossinn sé hugsaður sem heiðið tákn eða kristinn virðingarvottur við aftökubúnað. Trúartáknum má einfaldlega ekki hampa á opinberum stöðum, svo sem skólum, almenningsvögnum og svo framvegis.
Mér er til efa að Íslendingar hugsi um íslenska fánann sem trúartákn. En ef Ísland verður hluti af ESB þarf ekki nema eina manneskju til að kæra fánann til Mannréttindadómsstóls ESB. Niðurstaðan liggur fyrir. Íslendingar þyrftu að skipta honum út fyrir gamlan fána með mynd af saltfisksflaki.
Að auki þyrfti að breyta upphafsatriði þessa myndbands. Og ýmsu öðru.
![]() |
Úr umsóknarferli í viðræðuferli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (60)