Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Af hverju er Geir svona hræddur við Davíð?

  Fæddur og uppalinn í sveit kannast ég við svipinn á lúbörðum hundum.  Þeir bera höfuð lágt og gjóa augum hræðslulega upp á við.  Þessi svipbrigði birtast á Geir Haaarde þegar minnst er á Davíð Oddsson.  Þetta vekur spurningu:  Hvers vegna er Geir svona hræddur við Davíð?  Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis kemur ítrekað fram hvað Geir var hræddur við Davíð.  Meðal annars er haft eftir Davíð sjálfum að Geir hafi skolfið eins og lauf í vindi og ekkert vitað hvað hann átti eða mátti gera.

  Þetta er ekki eðlilegt.  Geir var formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra.  Geir var sá sem valdið hafði í raun.  Af hverju var hann þá eins og lúbarinn hundur í samskiptum við óhæfan bankastjóra Seðlabankans? 

  Ég er ekki nógu vel að mér í sálfræðinni sem snýr að heimilisofbeldi.  DOddsson hefur sagt frá því að hann notaði sérstaka aðferð til að tukta nemendur í,  ja,  var það ekki Verslunarskólanum?  DOddsson sló þá eldsnöggt í höfuðið með priki eða reglustriku.  Þá limpuðust ódælir nemendur niður.  Einhvernvegin á ég erfitt með að trúa því að DOddsson hafi lamið Geir með priki.  Ég held að hann hafi ekki einu sinni þurft að sparka í Geir til að framkalla þessa hræðslu og ráðaleysi.  Ráðaleysið er Geir sennilega í blóð borið.  Það er spurning með þessa ofurhræðslu við DOddsson.  

  Ekki voru kúlúlánadrottningin,  Þorgerður Katrín,  varaformaður Sjálfstæðisflokksins,  og Tryggvi Þór Herbertsson,  sérlegur efnahagsráðgjafi Geirs,  hrædd við DOddsson.  Þrátt fyrir tryllingskastið sem DOddsson tók á Tryggva.  Ég veit að gamla pönkarnum,  Tryggvi Þór,  hefur fremur þótt kast DOddssonar fyndið og súrrealískt.  Dáldið pönk.

   Verra er að í skýrslunni er haft eftir DOddssyni að Geir sé "idót".  Það er virkilega osmekklegt.  DOddsson hefur gott vald á íslensku máli þegar hann vill svo við hafa.  Það fer honum ekki að nota svona útlendar slettur.  Íslenskan býður upp á mörg rammíslensk orð "sem gera sama gagn".

  traust efnahagsstjórn Geirs


mbl.is „Skynjuðu að dansinum var að ljúka“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er tækifæri að ganga í ameríska herinn

greenlandic

  Nú er lag.  Láttu drauminn rætast!  Alvöru byssur og allt.


Skemmtileg úttekt á landsþingi Frjálsynda flokksins

  Sú ágæta,  frábæra og góða kona,  fyrrum rokkstjarna,  Ásthildur Cesil Þórðardóttir,  birti á bloggsíðu sinni ljósmyndir og texta um landsþing Frjálslynda flokksins.  Það var haldið á Hótel Cabin um síðustu helgi.  Ásthildur er hugsjónamanneskja fram í fingurgóma og blogg hennar eru gullmolar á gullmola ofan.  Ljósmyndir frá Ísafirði í hæsta gæðaflokki og hugleiðingar sem vekja til umhugsunar.  Hér er ljósmyndir hennar og frásögn af landsþingi Frjálslynda flokksins um helgina:   

http://asthildurcesil.blog.is/blog/asthildurcesil/entry/1033802/


Ónákvæm fréttamennska

  Mér barst ábending um vafasama frétt um mig á netsíðu sem heitir sannleikur.com.  Þar er ég sagður vera forsprakki hryðjuverkahóps Moggabloggara.  Ég hef grun um að þarna sé farið rangt með.  Einhver hafi misskilið eitthvað eða sögusagnir farið úr böndunum.  Þetta er hið dularfyllsta.  Sjá:  http://sannleikurinn.com/heim/node/614 

Vel heppnað landsþing Frjálslynda flokksins

sigurjonástagretar_mar

  Um hundrað manns sóttu vel heppnað landsþing Frjálslynda flokksins um helgina.  Guðjón Arnar Kristjánsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs.  Í hans stað var Sigurjón Þórðarson,  fyrrverandi alþingismaður,  kjörinn formaður.  Sigurjón er Hegranesgoði,  formaður Ungmennasambands Skagafjarðar,  sundmeistari Skagafjarðar,  landsmótskóngur í sjósundi,  framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands,  líffræðingur,  nemi í stjórnsýslufræðum og þannig mætti lengi áfram telja.

  Þetta eru tíðindi.  Þetta er í fyrsta skipti í heiminum sem formaður stjórnmálaflokks í heiminum er goði og sundmeistari Skagafjarðar.

  Spenna ríkti um kosningu varaformanns.  Sitjandi varaformaður,  Kolbrún Stefánsdóttir,  gaf kost á sér til endurkjörs.  Ásta Hafberg gaf einnig kost á sér.  Leikar fóru þannig að Ásta var kosin nýr varaformaður Frjálslyndra. 

  Grétar Mar Jónsson,  fyrrverandi alþingismaður,  var kjörinn ritari. 

  Guðjón Arnar Kristjánsson var kjörinn formaður fjármálaráðs.  Aðrir í fjármálaráð voru kjörnir Benedikt Heiðdal,  Björgvin Vídalín,  Grétar Pétur Geirsson og Pétur Guðmundsson (kallaður Sela-Pétur).

  Þessi voru kosin í miðstjórn

  Georg Eiður Arnarson

  Grétar Pétur Geirsson

  Guðmundur Hagalínsson

  Hafsteinn Þór Hafsteinsson

  Helga Þórðardóttir

  Jóhann Berg

  Jóhanna Ólafsdóttir

  Pétur Guðmundsson

  Ragnheiður Ólafsdóttir

  Rannveig Bjarnadóttir

  Valdís Steinarsdóttir

  Þorsteinn Bjarnason

  Varamenn í miðstjórn eru:  Rannveig Höskuldsdóttir,  Magnús Reynir Guðmundsson og Björgvin Vídalín.

  Afskaplega léttur og skemmtilegur andi ríkti á landsþinginu.  Gaman var að sjá þarna mætt fólk sem hafði hrökklast úr flokknum vegna ofríkis Kristins H.  Gunnarssonar og aðra sem yfirgáfu flokkinn með Jóni Magnússyni.  Tíðindi bárust af fleirum úr þessum hópum sem eru á leið í flokkinn á ný.  Það er bjartsýni og mikill baráttuhugur í fólki.  Og ástæða til.  Meðal annars sýndi könnun á vísir.is í vikunni að 30% landsmanna telja Frjálslynda flokkinn eiga bráðnauðsynlegt erindi í íslensk stjórnmál í dag.  Öll helstu baráttumál flokksins njóta að auki stuðnings meirihluta landsmanna.   

    


Gríðarmikill áhugi á landsþingi

  Landsþing Frjálslynda flokksins verður haldið um helgina á Hótel Cabin í Reykjavík.  Það er spenna í loftinu.  Formaður síðustu 7 ára og þingmaður síðan 1999,  Guðjón Arnar Kristjánsson,  gefur ekki kost á til áframhaldandi formennsku en sækist eftir áframhaldandi setu í miðstjórn.  Sigurjón Þórðarson,  fyrrverandi alþingismaður.  hefur látið undan gífurlegum þrýstingi um að gefa kost á sér til formanns.  Svo virðist sem einhugur ríki um framboð Sigurjóns.

  Ásta Hafberg gefur kost á sér til varaformanns.  Grétar Mar,  fyrrverandi alþingismaður,  gefur einnig kost á sér til varaformanns.  Það er spurning hvað sitjandi varaformaður,  Kolbrún Stefánsdóttir,  gerir.

  Formaður fjármálaráðs,  Helgi Helgason,  gefur ekki kost á sér til endurkjörs. 

  Það er mikil stemmning fyrir landsþinginu.  Samkvæmt skoðanakönnun á www.visir.is telja um 30% Frjálslynda flokkinn eiga brýnt erindi í íslenskri pólitík í dag.  Helstu stefnumál flokksins njóta stuðnings meirihluta landsmanna.  Sjá: www.xf.is.   

  Á annað hundrað manns (101) sóttu landsþing Frjálslynda flokksins á Stykkishólmi fyrir ári.  Mér segir svo hugur að ennþá fleiri sæki landsþingið á Hótel Cabin.


Sigurjón Þórðarson gefur kost á sér til formennsku í Frjálslynda flokknum

  sigurjon

  Frá því að Guðjón Arnar Kristjánsson,  núverandi formaður Frjálslynda flokksins,  upplýsti að hann ætli ekki að gefa kost á sér til endurkjörs hefur verið gríðarlegur þrýstingur á Sigurjón Þórðarson,  fyrrum alþingismann,  að bjóða sig fram til formennsku.  Hann hefur nú hlýtt kallinu.  Hér má sjá viðtal í Feyki í tilefni þessa:  http://www.feykir.is/archives/21001

  Sigurjón er vinsæll og virtur utan sem innan Frjálslynda flokksins.  Flokkinn vantaði aðeins herslumun á að halda sjó í síðustu alþingiskosningum,  eftir að tveir þingmenn höfðu yfirgefið hann,  Kristinn H.  Gunnarsson,  sem gekk í Framsóknarflokkinn,  og Jón Magnússon,  sem fór í Sjálfstæðisflokkinn.

  Frjálslyndi flokkurinn á fulltrúa í sveitastjórnum og er til alls líklegur í sveitastjórnarkosningunum í vor. 


mbl.is Sigurjón í formannskjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spilling og barátta gegn spillingu

  Ólafur F.  Magnússon,  fyrrverandi borgarstjóri,  hefur farið fremstur í flokki gegn spillingu í íslenskum stjórnmálum.  Fyrir þá sem misstu af verulega áhugaverðri umræðum í borgarstjórn í dag birti ég hér fundargerð dagsins (örlítið stytta.  Hlaupið yfir óþörf formlegheit): 

 Ár 2010, þriðjudaginn 2. febrúar, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Hermann Valsson, Þorleifur Gunnlaugsson, Dofri Hermannsson, Björk Vilhelmsdóttir, Oddný Sturludóttir, Dagur B. Eggertsson, Ólafur F. Magnússon, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon, Sif Sigfúsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Óskar Bergsson og Marta Guðjónsdóttir.
Fundarritari var Ólafur Kr. Hjörleifsson.

1. Í upphafi fundar kveður Ólafur F. Magnússon sér hljóðs og ræðir fundarsköp.

2. Lögð fram tillaga að hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavík.  

        Borgarfulltrúar Framsóknarflokks, Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna óska bókað:

Með samþykkt fyrstu hjólreiðaáætlunar Reykjavíkurborgar, Hjólaborgin Reykjavík, eru stigin stór græn skref í átt að umhverfisvænni borg. Markmiðið er að gera fólki kleift að ferðast um borgina á þann hátt sem það kýs. Góð aðstaða til hjólreiða á að hvetja borgarbúa til að njóta útivistar jafnframt því að sinna erindum sínum á reiðhjólum. Þúsundir Reykvíkinga hjóla nú þegar á hverjum degi enda er Reykjavík að mörgu leyti mjög hentug hjólaborg. Reykjavíkurborg hefur það nú að leiðarljósi að huga að hjólreiðum við gerð allra umferðarmannvirkja. Það er eitt af Grænu skrefunum í Reykjavík að stórauka hlutdeild hjólreiða með því að leggja fleiri og betri hjólastíga og bæta aðstöðu fyrir hjólreiðafólk. Áætlunin Hjólaborgin Reykjavík leggur drög að framkvæmdum fyrir næstu ár. Borgarstjórn samþykkti í september 2007 tillögu Árna Þórs Sigurðssonar fyrrverandi borgarfulltrúa um að vinna ætti sérstaka hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavík til að gera hjólreiðar að fullgildum og viðurkenndum samgöngumáta fyrir Reykvíkinga. Hjólaborgin Reykjavík er afrakstur vinnu starfshóps meiri- og minnihluta, sem vann að áætluninni í samráði við hagsmunaaðila og fagfólk.

        Ólafur F. Magnússon óskar bókað:

Tillaga um hjólreiðaáætlun í Reykjavík er í sjálfu sér hið besta mál. Um árabil hef ég barist einn á vettvangi Borgarstjórnar Reykjavíkur fyrir breyttri forgangsröðum, þar sem velferðar- og sérstaklega öryggismál eru höfð í öndvegi. Forgangsröðun fjórflokksins hefur ætíð verið önnur. Ég sit því hjá.

3. Fram fer umræða um fjárhagslega hagsmuni borgarfulltrúa.

        Ólafur F. Magnússon óskar bókað:

Að minni ósk fer hér fram umræða um fjárhagslega hagsmuni borgarfulltrúa, þar með talið eignastöðu þeirra og fjárhagsleg tengsl. Eins og segir í auglýsingu borgarmálafélags F-listans í Fréttablaðinu í dag þá mun ég gera ýtarlega grein fyrir eignastöðu minni á borgarstjórnarfundi í dag og krefjast þess að aðrir borgarfulltrúar geri slíkt hið sama. Mikill fjáraustur sumra sigursælla frambjóðenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins rennir stoðum undir vísbendingar um að fjárhagsleg tengsl og eignastaða þeirra gerir þá vanhæfa til að gegna trúnaðarstörfum sem kjörnir fulltrúar Reykvíkinga. Um sl. áramót var eignastaða mín með eftirfarandi hætti:
1. Fasteignin Vogaland 5 í Reykjavík, helmingseignarhluti. Fasteignamat eignarinnar skv. mati sem tók gildi 31. desember sl. var kr. 71.250.000 og er helmingshluti þess 35.625.000. Á eigninni hvíla tvö lán, frá Lífeyrissjóði lækna annars vegar og frá Spron, síðar Kaupþing og Arionbanki hins vegar. Upphafleg staða lánanna við kaup á húsinu var kr. 3.800.000 en er nú um kr. 1.000.000 og verða lánin fullgreidd á þessu ári.
2. Bifreiðin KEK 56 sem er af gerðinni Toyota Rav 4, árgerð 2007. Kaupverð í nóvember 2007 var um kr. 3.300.000.
3. Launareikningur minn hjá Arionbanka nr. 554482 vegna borgarfulltrúastarfsins. inneign um sl áramót var kr. 583.000.
4. Viðskipta- og launareikningurinn hjá Arionbanka nr. 004482 vegna læknisstarfsins. Staða reikningsins um sl. áramót var kr. 277.000 að teknu tilliti til yfirdráttarheimildar, sem er kr. 1.500.000, þannig að raunstaða reikningsins var neikvæð um rösklega kr. 1.200.000.

        Ólafur F. Magnússon leggur fram svohljóðandi tillögu:

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að frambjóðendum til borgarstjórnar í vor ásamt sitjandi borgarfulltrúum sé gert skylt að gera grein fyrir eignastöðu sinni, bæði fasteignum, bifreiðaeign og bankainnistæðum.

        Samþykkt með samhljóða atkvæðum að taka tillöguna á dagskrá.
Tillögu Ólafs F. Magnússonar er vísað til forsætisnefndar með 15 samhljóða atkvæðum.

Að beiðni Ólafs F. Magnússonar ákveður forseti að fresta umræðu skv. 3. lið útsendrar dagskrár þar til í lok fundar og umræðu skv. 4. lið til næsta fundir.

4. Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 22. og 28. janúar. 

5. Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 29. janúar, framkvæmda- og eignaráðs frá 25. janúar.

6. Fram fer umræða um ráðstöfun styrkja til stjórnmálasamtaka og upplýsingaskyldu þar um.

        Ólafur F. Magnússon óskar bókað:

Árið 2007 lét fjórflokkurinn í Borgarstjórn Reykjavíkur hækka framlög til sín frá borginni úr kr. 13.900.000 í kr. 32.750.000 eða um 130% eða 2,3 földun. Á tímabilinu 2006-2010 ætlar fjórflokkurinn sér 90% af áætluðum framlögum borgarinnar til stjórnmálasamtaka, sem eru 90% af kr. 143.000.00 eða kr. 129.000.000. F-listinn í borgarstjórn hefur þegar lagt fram reikninga sína í borgarráði vegna einu greiðslunnar sem hann hefur fengið á kjörtímabilinu um kr. 3.400.000. Farið er fram á að önnur framboð taki borgarstjórnarflokk F-listans til fyrirmyndar á þessu sviði sem öðrum. F-listinn vill að framlög sem honum voru ætluð vegna árann 2009 og 2010 renni til líknar- og velferðarmála og skorar á hin framboðin að gera slíkt hið sama.

        Ólafur F. Magnússon leggur fram svohljóðandi tillögu:

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að öllum borgarstjórnarframboðum sé gert skylt að gera grein fyrir því hvernig framlögum borgarinnar til þeirra hefur verið varið á þessu kjörtímabili, nánar tiltekið framlög borgarinnar árin 2006-2009.

        Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að taka tillöguna á dagskrá.

        Borgarfulltrúar Vinstri grænna óska bókað:

Borgarfulltrúar VG lögðu það til við gerð fjárhagsáætlunar í desember að styrkir Reykjavíkurborgar til stjórnmálaflokka yrði lækkaðir um helming en þeir nema nú tæplega 30 milljónum. Tillagan er til afgreiðslu í forsætisnefnd. Fram hefur komið að greiðsla Reykjavíkurborgar til stjórnmálasamtaka hækkaði úr 13,9 milljónum króna árið 2006 í 32,75 milljónir árið 2007. Undanfari þessarar hækkunar var að árið 2006 var ákveðið að ýmis kostnaður sem áður féll á sveitarfélög við alþingis- og forsetakosningar skyldi framvegis greiddur af ríkissjóði en vafasamt er að réttlæta það að þessar breytingar leiddu af sér færslu fjármuna til stjórnmálaflokka í Reykjavík. Það hefur einnig komið fram að framlög Reykjavíkurborgar til stjórnmálasamtaka eru meira en helmingi hærri en framlög annarra sveitarfélaga, svo sem Kópavogs, Akureyrar og Garðabæjar ef miðað er við höfðatölu. Það er hinsvegar ljóst að Reykjavíkurborg er skylt skv. lögum að veita þeim stjórnmálasamtökum, sem uppfylla skilyrði ákvæðisins, fjárframlög til starfsemi sinnar, og skal heildarfjárhæðinni skipti milli þeirra í hlutfalli við atkvæðamagn í næstliðnum borgarstjórnarkosningum en í lögum er ekki getið um upphæð framlagsins. Færa má rök fyrir því að borgarstjórnaflokkar, sérstaklega þeir sem eru í minnihluta, þurfi á fjárframlögum að halda til þess að sækja sérfræðiaðstoð en sú mikla hækkun sem orðið hefur á framlögum undanfarin ár er langt umfram þá þörf. Lækkun framlaga til stjórnmálaflokka svarar kalli tímans þegar mikill niðurskurður kallar á forgangsröðun í þágu velferðarmála. Skerðing á fjármagni til stjórnmálaflokka, hvort sem það er frá einkafyrirtækjum eða opinberum aðilum, færir þá nær þeim tíma þegar starfsemin var fyrst og fremst byggð á félögunum í flokkunum sjálfum.


Tillögu Ólafs F. Magnússonar er vísað til forsætisnefndar með 15 samhljóða atkvæðum.

ólafurfmagnússon



mbl.is Vísar ásökunum um lygar á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samanburður við prófkjörið 2006

  Sem fyrr er gaman að skoða úrslit prófkjörs,  bera þau saman við framboðslistann 2006 og rúlla upp vangaveltum um niðurstöðuna.  Hér hef ég sett innan sviga í hvaða sæti frambjóðendur Samfylkingarinnar voru í framboðinu til borgarstjórnar 2006. 

1  ( 1 )  Dagur B. Eggertsson
2  ( 5 )  Oddný Sturludóttir
3  ( 4 )  Björk Vilhelmsdóttir
4  ( - )  Hjálmar Sveinsson
5  ( - )  Bjarni Karlsson
6  ( 7 )  Dofri Hermannsson
7  ( 6 )  Sigrún Elsa Smáradóttir
8  ( - )  Margrét K. Sverrisdóttir

  Dagur B.  Eggertsson,  fyrrverandi borgarstjóri og ævisöguritari Steingríms Hermannssonar,  bauð sig einn fram í 1.  sæti.  Þess vegna kemur ekki verulega á óvart að hann skuli nú hreppa það sæti.  Allir aðrir í efstu sætum eru ýmist nýliðar eða hækka sig á listanum.  Nema Sigrún Elsa.  Hún fellur um sæti.  Hugsanlegt er að ferðagleði hennar til útlanda á kostnað borgarbúa eigi þar hlut að máli. 

  Samfylkingin er með 4 borgarfulltrúa.  Að óbreyttu verður Hjálmar Sveinsson nýr borgarfulltrúi.  Hann er hástökkvari prófkjörsins ásamt Oddnýju.   Varaborgarfulltrúarnir fá vel launuð nefndarstörf.  Það er huggun harmi gegn.  Þeir stefndu í efri sæti. 

  Sjá einnig samanburð á úrslitum prófrkjörs Sjálfstæðisflokksins:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1009679/

Dagur

 

.


mbl.is Átta atkvæði milli Bjarna og Dofra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samanburður á prófkjörsúrslitum frá 2006

  Það er alltaf gaman að skoða úrslit í prófkjöri hvaða flokks sem er.  Einhver skilaboð hljóta að felast í því hverjir færast upp og hverjir færast niður listann.  Ég hef sett hér innan sviga í hvaða sæti frambjóðendurnir voru í síðustu kosningum:

1.   ( 2 )  Hanna Birna Kristjánsdóttir       
2.   ( 5 )  Júlíus Vífill Ingvarsson
3.   ( 4 )  Kjartan Magnússon
4.   ( 6 )  Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
5.   ( 3 )  Gísli Marteinn Baldursson
6.   ( - )  Geir Sveinsson
7.   (14) Áslaug María Friðriksdóttir
8.   ( 7 ) Jórunn Frímannsdóttir
9.   ( - )  Hildur Sverrisdóttir
10. (10) Marta Guðjónsdóttir

  Til að auðvelda samanburðinn hef ég rauðlitað nöfn þeirra frambjóðenda sem eru heitir (á uppleið) en blálitað þá sem færast niður eftir listanum. 

  Hanna Birna og Júlíus Vífill hljóta að teljast sigurvegarar prófkjörsins í ár.  Sigur Hönnu Birnu var kannski fyrirsjáanlegur.  Sá sem var í 1.  sæti 2006,  gamli góði Villi,  gaf ekki kost á sér í ár.  Hanna Birna ein bauð sig fram í 1.  sætið.  Það væri skrýtið ef hún hefði ekki verið svo gott sem sjálfkjörin í það sæti;  sitjandi borgarstjóri að auki.

  Hástökkvarar prófkjörsins eru tengdasonur gamla góða Villa,  Geir Sveinsson;  Áslaug María og Hildur Sverrisdóttir.  Áslaug hefur verið áberandi á kjörtímabilinu.  Hefur látið til sín taka í nefndum borgarinnar og verið dugleg að tjá sig í blaðagreinum og bloggheimi.  Á þeim fundum sem ég hef setið með henni er hún vel inni í málum,  áhugasöm og samviskusöm.  Ég spái henni frekar frama á sviði stjórnmála.

  Framan af kjörtímabilinu litu margir á Gísla Martein sem keppinaut Hönnu Birnu sem framtíðarleiðtoga borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins.  Heldur hefur dregið í sundur með þeim.  Einhvernveginn skynjaði maður á síðustu misserum að svona gæti farið.  Þó var ég nokkuð viss um að Gísli Marteinn myndi ekki falla neðar en í 4.  sæti.  Það kemur mér á óvart að Þorbjörg Helga færist upp fyrir hann.     

  Sjálfstæðisflokkurinn hefur 7 borgarfulltrúa eins og undanfarin kjörtímabil.  Samkvæmt því er Jórunn dottin út úr borgarstjórn.  Nema flokkurinn bæti við sig borgarfulltrúa.  Jórunn óskaði eftir stuðningi í 3ja sæti.  

Hanna Birna...

Hvað er í gangi?  Af hverju er Hanna Birna á djamminu með Ömma?


mbl.is Hanna Birna fékk 84% atkvæða í 1. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.