Nú er tækifæri að ganga í ameríska herinn

greenlandic

  Nú er lag.  Láttu drauminn rætast!  Alvöru byssur og allt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hannes

Jens. Ég mæli með að þú gangir í herinn og það STRAX.

Hannes, 10.4.2010 kl. 00:21

2 Smámynd: Jens Guð

  Hannes,  ég hef aldrei fundið fyrir löngun til að verða hermaður,  drepa fólk og þann pakka.  Ég vann hinsvegar við slátrun kinda og hesta sem unglingur.  Það var gaman.  Enda svið góður matur og hrossakjöt ennþá betri.  Og hollara.

Jens Guð, 10.4.2010 kl. 00:42

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Nota þeir ekki eingöngu skutla í grænlenska hernum? 

Annars er ég á sama máli og þú um hernaðarbrölt. Ég hef alltaf sagt að menn eigi ekki að drepa annað en það sem þeir geta étið og ekki meira en þeir geta étið. Ef sú þumalfingursregla væri algild, þá væri nú betra á bláum hnetti in the middle of fucking nowhere.

Jón Steinar Ragnarsson, 10.4.2010 kl. 00:55

4 Smámynd: Sigurður Heiðar Elíasson

Það er nú bara gott og blessað hvað við erum alveg hreint rosalega fær í að drepa hvort annað hérna, allavega met ég ekki mannslíf ofar öðrum dýrategundum, þó ég éti afurðir þeirra.

Sigurður Heiðar Elíasson, 10.4.2010 kl. 01:21

5 Smámynd: Jens Guð

  Jón Steinar,  ég veit ekki alveg hvernig þetta er í grænlenska hernum.  Mér var bent á þessa auglýsingu án frekari skýringa.  Mér er kunnugt um íslenska drengi sem hafa sótt um inngöngu í bandaríska herinn.  Yfirleitt án árangurs.  Með einni eða tveimur undantekningum.  En þessa drengi langar til Íraks og Afganistan að drepa fólk.  Grænland er í Ameríku og þegar markmið er að komast í amerískan her er þetta kannski lausn.  Þó henni fylgi kannski ekki sú skemmtun að drepa fólk.

  Annars,  eins og þú veist,  eru byssur og skotfæri seld í grænlenskum verslunum innan um morgunkorn og sælgæti.

Jens Guð, 10.4.2010 kl. 01:28

6 Smámynd: Jens Guð

  Sigurður Heiðar,  er ekki eðlilegt framhald á drápum á fólki að snæða bráðina?  Þá er ég að vísa til þess að mannslíf/mannakjöt sé ekki ofar öðrum dýrum.

Jens Guð, 10.4.2010 kl. 01:31

7 Smámynd: Jens Guð

  Kjöt er matur.

Jens Guð, 10.4.2010 kl. 01:32

8 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

úff, þvílík mandrápsumræða hér! innganga í her með manndráp í huga í aðra röndina og snæðingur á kjöti helst hrossakjöti í hina!! þetta fer vel saman hjá ykkur félögunum.

Guðmundur Júlíusson, 10.4.2010 kl. 01:54

9 Smámynd: Hannes

Mannakjöt er víst mjög sætt segja þeir sem hafa prufað. Er tiltulega líkt nautakjöti.

Persónulega er ég fylgjandi veiðum á hvaða dýrategund sem er svo lengi sem að hún er ekki í útrýmingarhættu og maðurinn er það ekki heldur meindýr sem er að eyðileggja jörðina þannig að sennilega mætti fækka aðeins í stofninum.

Ps hef ekki prufað mannakjöt og er ekki fylgjandi skipulegum útrýmingu á fólki.

Hannes, 10.4.2010 kl. 02:13

10 identicon

Mér finnst að allir eigi að vera góðir við dýrin.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 10.4.2010 kl. 02:33

11 Smámynd: Jens Guð

  Guðmundur,  hrossakjöt er gott og hollt umfram flest annað kjöt.

Jens Guð, 10.4.2010 kl. 03:45

12 Smámynd: Jens Guð

  Hannes,  fyrir mörgum árum var vandamál við hraðbraut í S-Afríku.  Lík fórnarlamba umferðarslysa hurfu.  Í ljós kom að maður nokkur át líkin.  Honum þótti bölvað að þetta fína kjöt færi til spillist.  Mannætunni var stungið í fangelsi.  Ég las blaðaviðtal við kauða.  Hann sagði kjötið svipa til svínakjöts. 

Jens Guð, 10.4.2010 kl. 03:48

13 Smámynd: Jens Guð

...spillis...

Jens Guð, 10.4.2010 kl. 03:49

14 Smámynd: Jens Guð

  Grefill,  fólk - og aðrar skepnur - eiga að vera góð við dýr.  Það gengur þó illa að koma þeim boðskap til skila.  Einkum til hinna dýranna.

Jens Guð, 10.4.2010 kl. 03:50

15 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Já ,222 kalibea skotpakkarnir eru í söluborðinu við hliðina á heitu vínabrauðunum í bakaríinu í Tasilaq.  Rifflar og haglabyssur eru þarna hjá hveitinu, bomsunum og skóflunum í kaupfélaginu í Kulusuk.  Hveitið er jú útrunnið fyrir 5 árum eins og allt annað matarkyns, en vopnin standa lengi fyrir sínu.

Jón Steinar Ragnarsson, 10.4.2010 kl. 09:22

16 Smámynd: Hannes

Jens. Skemmtilegt vandamál við þessa S-Afrísku hraðbraut.  Maðurinn er ekkert meira virði en hvert annað dýr þó svo að margir trúi því.

Hannes, 10.4.2010 kl. 14:19

17 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 10.4.2010 kl. 15:11

18 Smámynd: Jens Guð

  Jón Steinar,  láttu mig þekkja þetta.  Í Kulusuk rakst ég á einfættan mann.  Það skaut annar undan honum fótinn.  Að mig minnir í smá þrefi.  Hlutaðeigendum og öðrum þótti þetta ósköp eðlileg framvinda rifrildisins. 

Jens Guð, 10.4.2010 kl. 16:17

19 Smámynd: Jens Guð

  Hannes,  er ekki verið að setja inn í ökuskírteini eða önnur persónuskilríki hvort fólk leyfir líffæragjafir að sér gengnu?  Það mætti bæta við hvort fólk leyfir líka að kjötið af sér verði snætt.  Eða notað í dýrafóður.

Jens Guð, 10.4.2010 kl. 19:39

20 Smámynd: Jens Guð

  Ómar Ingi,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 10.4.2010 kl. 19:39

21 Smámynd: Hannes

Jens. Ég væri alveg til í að prufa mannakjöt en er ekki viss um að það væri nokkurn tíma leyft. Í einum menningarheimi éta ættingjarnir þann látna.

Hannes, 10.4.2010 kl. 19:44

22 Smámynd: Jens Guð

  Hannes,  ég væri líka til í að smakka mannakjöt.  Til að mynda grillaða lærisneið eða hafa kálfann niðurbútaðan í kjötsúpu.  Maður verður bara svangur við tilhugsunina.   

Jens Guð, 10.4.2010 kl. 22:40

23 identicon

Thad er mikid kjöt á vaxtarraektarfólki.  Veit thó ekki hvort um vistvaenlegt kjöt er ad raeda...

http://www.youtube.com/watch?v=BZq-k55kQEo

Gjagg (IP-tala skráð) 10.4.2010 kl. 23:20

24 Smámynd: Jens Guð

  Gjagg,  takk fyrir hlekkinn.  Þetta fær mig til að sakna heilastöppunnar sem mér þótti svo góð í gamla daga.  Síðan eru liðin mörg ár og heilinn fylgir ekki lengur með sviðakjömmum.    Ég held að það hafi eitthvað að gera með fordóma gagnvart riðuveiki sauðfjár. 

Jens Guð, 10.4.2010 kl. 23:54

25 Smámynd: Hannes

Jens. Við getum farið til Indlands og fengið mannakjöt þar ef við viljum. Ég væri til í lund, innanlæri eða soðinn heila.

Hannes, 11.4.2010 kl. 02:18

26 identicon

Já Gud...ég kannast vid heilastöppuna.  Lambsheili er á matsedli flestra veitingastada í Tyrklandi. 

Gjagg (IP-tala skráð) 11.4.2010 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband