Færsluflokkur: Tónlist
Það er alltaf gaman að velta fyrir sér niðurstöðum svona skoðanakönnunar og bera hana saman við eigin viðhorf. Sumt var fyrirséð. Annað kemur á óvart. Jafnvel svo að það kallar fram spurningamerki. Að sumu leyti er þetta ófyrirséða áhugaverðara. En förum yfir listann:
1. Spilverk Þjóðanna
Það lá fljótlega fyrir að Spilverk þjóðanna yrði valið besta íslenska hljómsveitanafnið. Yfirburðir þess komu strax í ljós. Næstum fimmta hvert atkvæði var greitt Spilverki þjóðanna. Ég er afskaplega sáttur við þessa niðurstöðu. Nafnið er frumlegt en þjóðlegt. Það er reisn yfir því. Jafnframt hæfir það vel framúrskarandi góðri þjóðlagakenndri kassagítarhljómsveit sem sótti jafnt í nýskapandi strauma sem gamla hefð.
2. Unun
Nöfn Ununar og Kamarorhesta skiptust á 2. og 3ja sæti nánast frá fyrstu atkvæðum. Oft var dagamunur á því hvort nafnið hefði yfirhönd. Ennþá algengara var að þau væru með jafn mörg atkvæði á bak við sig. Eftir að 500 atkvæði voru í húsi seig Unun lítillega framúr og hélt naumu forskoti til lokaniðurstöðu. Kannski munaði einhverju að yngra fólk þekkir ekki Kamarorghesta á meðan Dr. Gunni og Heiða í Unun eru í sviðsljósinu.
Þessi orð mín má ekki túlka sem óánægju með að Unun sé næst besta íslenska hljómsveitanafnið. Alls ekki. Þetta er flott og jákvætt nafn, stutt og laggott. Í mörgum leturgerðum má einnig lesa nafnið á hvolfi. Ekki síst er þetta heppilegt nafn á pönkaðri rokksveit.
3. Kamarorghestar
Að óreyndu hélt ég að nafn Kamargorghesta yrði númer 2. Mér þykir þetta vera magnað nafn og ef ég man rétt þá gaf ég því mitt atkvæði. Vel á minnst, Kamarorghestar eiga líka mörg flott lög sem oftar mættu heyrast í útvarpi.
4. Hljómsveit Ingimars Eydal
Ég átta mig ekki á sterkri stöðu þessa hljómsveitanafns. Lengst af hélt ég að einkum væru grínarar að kjósa þetta nafn. Og held það reyndar enn. Samt hitti ég fullorðna konu sem sagðist hafa kosið þetta nafn. Hún er enginn grínari og henni var full alvara. Ég spurði hana hvort að Hljómsveit Hauks Morthens eða Sextett Ólafs Gauks væru ekki jafn góð. Hún hélt nú ekki. Hljómfegurð þessa nafns væri svo miklu meiri en hinna nafnanna.
Ég óska eftir rökum þeirra vel á annað hundruð manns sem kusu þetta nafn.
5. Purrkur Pillnikk
Sumir settu spurningarmerki við það hvort að Purrkur Pillnikk væri íslenskt nafn. Nafnið er á gráu svæði sem slíkt. Það er skýrt í höfuðið á stjúpföður Einars Arnar, söngvara Purrksins. Sá var og er aðdáandi skákmeistara sem heitir Pillnikk. Á unglingsárum var stjúpfaðirinn svefnpurka og bróðir hans uppnefndi hann Purrk Pillnikk. Nafnið festist við manninn og Einar Örn henti það á lofti þegar hann stofnaði þessa flottu pönksveit.
6. Sauðfé á mjög undir högg að sækja í landi Reykjavíkur
Fyndið nafn. Alltof langt. En það er hluti af brandaranum.
7. Tennurnar hans afa
Annað fyndið nafn.
8. Brimkló
Höfundur þessa nafns er Árni Johnsen. Að vísu er nafnið ekki alveg í samræmi við hljómsveit sem gerði út á bandaríska kántrý-slagara. Nafnið hefði hentað betur framsækinni "prog" hljómsveit eða Áhöfninni á Halastjörnunni. Samt gott nafn.
9. Sigur Rós
Gott nafn á frumlegri rammíslenskri hljómsveit sem spilar yfirnáttúrulega fallega músík.
10. Hljómar
Ja, nafnið er ekki eins merkilegt og hljómsveitin. Nafnið er tilbrigði við The Beatles og þau hljómsveitanöfn sem tóku mið af tískubylgju bítlaáranna (Tónar, Mánar, Geislar o.s.frv.).
11. Búdrýgindi
Ljómandi gott nafn fyrir pönkaða hljómsveit er sigraði í Músíktilraunum.
12. Bara-flokkurinn
Bara-flokkurinn var upphitunarhljómsveit Þursaflokksins framan af ferli. Í hógværð sinni og lotningu gagnvart Þursaflokknum var hljómsveitin bara kölluð Bara-flokkurinn. Reynið að komast yfir lagið "Catcher Coming" með Bara-flokknum. Frábært lag.
13. Morðingjarnir
Töff nafn á töff pönksveit.
14. Mínus
Ég hefði viljað sjá þetta nafn ofar á listanum. Gott nafn á harðri rokksveit. Hljómar líka vel erlendis þar sem hljómsveitin nýtur vinsælda.
15. Dátar
Nafn Dáta fellur undir sama flokk og nafn Hljóma. Nafnið er að sumu leyti út í hött vegna þess að hljómsveitin tengdist á engan hátt hernaði. En þetta var svo merkileg hljómsveit að viðskiptavild nafns hennar er stór.
Gaman væri að heyra viðhorf ykkar til niðurstöðu þessarar skoðanakönnunar.
Tónlist | Breytt 7.4.2008 kl. 00:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
5.4.2008 | 22:26
Spennandi úrslit í skoðanakönnun um bestu íslensku hljómsveitanöfnin
Nú liggja fyrir úrslit í skoðanakönnun um bestu íslensku hljómsveitanöfnin. Fagmannlega var að skoðanakönnuninni staðið og forval haldið í nokkrum þrepum. Fyrst var óskað eftir tillögum. Síðan var óskað eftir stuðningi við þau nöfn sem þar komu fram. Að lokum var listi settur upp með þeim nöfnum sem mestan stuðning fengu. Ákveðið var að láta 1000 atkvæði ráða niðurstöðu - þrátt fyrir að úrslit lægju fljótlega fyrir í grófum dráttum. Núna hafa 1027 atkvæði verið greidd og bestu íslensku hljómsveitanöfnin eru:
1. Spilverk þjóðanna 17,2%
2. Unun 10,4%
3. Kamarorghestar 10,1%
4. Hljómsveit Ingimars Eydal 9,2%
5. Purrkur Pillnikk 8,1%
6. Sauðfé á mjög undir högg að sækja í landi Reykjavíkur 7,8%
7. Tennurnar hans afa 6,5%
8. Brimkló 6,2%
9. Sigur Rós 5,9%
10. Hljómar 5,1%
11. Búdrýgindi 4,7%
12. Bara-flokkurinn 2,8%
13. Morðingjarnir 2,7%
14. Mínus 1,7%
15. Dátar 1,6%
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.4.2008 | 15:17
Skúbb!
Á sunnudögum, á milli klukkan 16.00 og 18:30, er á dagskrá Bylgjunnar þátturinn "Enn á tali með Hemma Gunn". Þar fer hinn síkáti gleðigjafi á kostum og laðar fram allar jákvæðustu hliðar á viðmælendum sínum. Á sunnudaginn kemur spilar Hemmi út trompi. Gestir hans verða söngkonan unga frá Mývatni, Jóhanna Seljan, og hljómsveit. Þau munu væntanlega flytja 4 eða 5 lög í þættinum.
Hemmi kolféll fyrir laginu "Ætlarðu að hringja á morgun?" með Jóhönnu Seljan í tónspilaranum mínum. Hann brá við skjótt og verður fyrstur til að kynna lagið og Jóhönnu í ljósvakamiðli. Missið ekki af þessu. Hemmi hefur nef. Ég endurtek: Hemmi hefur nef fyrir því sem virkar. Áður hefur hann kynnt fyrir hlustendum Bylgjunnar unga og efnilega nýliða í poppinu á borð við Lay Low og Geir Haarde. Þau eru stórstjörnur í dag.
Bylgjan er á fm 98,9.
Takið forskot á sæluna og tékkið á "Ætlarðu að hringja á morgun?" með Jóhönnu Seljan í tónspilaranum (það þarf að "skrolla" niður hann til að finna lagið). Lagið hljómar betur eftir því sem það er spilað á meiri hljómstyrk.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
30.3.2008 | 23:22
Bestu "cover" flutningar á lögum Bítlanna
Blaðamenn bandaríska rokkblaðsins Rolling Stone og fleiri bandarískir rokkáhugamenn hafa undanfarnar vikur rifið hár sitt og skegg yfir misþyrmingum Idol-þátttakeneda á lögum eftir Bítlana. Til að benda Idol-liðinu á frambærilegri "cover" flutning á lögum Bítlanna efndi Rolling Stone til könnunar meðal lesenda sinna á bestu "coverinum". Þeir bundu kosninguna við lög eftir Lennon og McCartney.
Mig vantar íslenskt orð yfir "cover". Ábreiða, motta og tökulag eru ekki nógu góð orð.
En svona varð niðurstaðan hjá lesendum Rolling Stone:
- U2 Helter Skelter
- Oasis I Am the Walrus
- Joe Cocker With a Little Help From My Friends
- Fiona Apple Across the Universe
- Aerosmith Come Together
- Eddie Vedder Youve Got To Hide Your Love Away
- Earth, Wind & Fire Got To Get You Into My Life
- The Breeders Happiness is a Warm Gun
- Wilson Pickett Hey Jude
- Johnny Cash In My Life
- Sonic Youth Within You Without You
- Elton John Lucy in the Sky with Diamonds
- Sarah McLachlan Blackbird
- Elliott Smith Because
- Harry Nilsson You Cant Do That
Gaman væri að heyra viðhorf ykkar til útkomunnar.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (49)
26.3.2008 | 23:30
Plötur sem þú verður að heyra
Ég rakst á afskaplega áhugaverða bók sem heitir "1001 plata sem þú verður að heyra áður en þú deyrð". Hver einasta plata sem þar er nefnd til sögunnar er tekin til rækilegrar umfjöllunar og kynningar. Það er einkar gaman fyrir okkur Íslendinga að í bókinni eru 5 íslenskar plötur í upptalningunni. Þær eru:
"Debut", "Medúlla" og"Vespertine" með Björk; "Life´s Too Good" með Sykurmolunum; og "Ágætis byrjun" með Sigur Rós.
Bókin er norsk, vel unnin í alla staði og ég sakna engrar plötu sérstaklega á listanum. Ég fletti upp á mörgum plötum sem ég tel að eigi heima á svona lista. Þær eru þarna allar. Aftur á móti eru í bókinni örfáar norskar plötur sem ég þekki ekki.
Plöturnar eru taldar upp eftir aldri. Eftirtaldir flytjendur eiga flestar plötur á listanum, 7 hver: Bítlarnir, Bob Dylan, David Bowie og Neil Young.
Næst flestar plötur eiga eftirtaldir, 6 plötur hvor: The Rolling Stones og Elvis Costello.
5 plötur eiga: The Byrds, Radiohead, Bruce Springsteen, Sonic Youth, The Who og Tom Waits.
Takið eftir því að í bókartitli er mælt með því að fólk hlusti á þessar plötur frekar en að það kaupi allan pakkann. Þó að listinn spanni í aðra röndina bestu plötur rokksögunnar þá er einnig tekið með í dæmið plötur sem höfðu djúpstæð áhrif á þessa sömu rokksögu - án þess að vera endilega 5 stjörnu plötur.
Tónlist | Breytt 27.3.2008 kl. 04:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
22.3.2008 | 21:02
Deila Bubba og Bigga í Maus
Deila Bigga í Maus og Bubba geisaði hérlendis í fjarveru minni í Fjáreyjum. Ég náði upphafi deilunnar en veit ekki hvernig hún þróaðist. Rétt áður en ég fór út las blaðakona frá DV inn á talhólf mitt skilaboð um að hana langaði til að hlera viðhorf mitt til deilunnar. Þegar ég hringdi í hana alltof seint og síðar meir var umfjöllun hennar um málið komin í prentun og málið afgreitt í DV.
Fyrst að skoðun mín á málinu birtist ekki á síðum DV þá gerir hún það hér. Upphaf málsins er það að Biggi skrifaði í tímaritið Monitor:
"Bubbi hefur alltaf fylgt eftir því sem er í gangi í samfélaginu, en hefur aldrei verið leiðandi afl. Hann er eins og svampur sem sýgur umhverfi sitt inn og mótar sig og skoðanir sínar eftir því hvað er í gangi hverju sinni. Hann er símtalið sem þú færð eftir að þú ert búinn að meika það á þínum eigin forsendum."
Eftir að Bubbi hafnaði þessari söguskoðun þá skrifaði Biggi:
"Það má samt alveg vera mín skoðun að aðrir hafi staðið betur fyrir það sem pönkið gerði í fæðingu sinni í London á sínum tíma. Nefni bönd á borð við Sjálfsfróun, Vonbrigði, Fræbbblanna og Þeyr sem augljós dæmi."
Ég var um tvítugt þegar breska pönkbylgjan skall á og fór eins og stormsveipur um heiminn. En hún náði ekki almennilega upp á strendur Íslands. Hér réði skallapoppið ríkjum, auðn og tóm, metnaðar- og sköpunarleysi. Tímabilið 1977 til vorsins 1980 var geldasta tímabil íslensku rokksögunnar. Gamlir þreyttir útlendir kántrýslagarar með íslenskum bulltextum einkenndu markaðinn.
Hljómleikar í Laugardalshöll með The Stranglers 1978 kveiktu áhuga fyrir útlendum pönkplötum. Í kjölfarið varð eitthvað vart við neðanjarðarpönksenu. Þar fóru Fræbbblarnir fremstir í flokki. Pönksenan náði ekki upp á yfirborðið fyrr en vorið 1980 þegar Utangarðsmenn stukku með látum inn um dyrnar sem Fræbbblarnir höfðu opnað og snéru íslensku tónlistarsenunni á hvolf.
Bubbi og Utangarðsmenn sprengdu markaðinn upp á þann hátt að hann varð ekki samur á eftir. Þeir settu ný viðmið, komu með nýjan hljóm, öðruvísi texta, ofurkraftmikla stemmningu, orku og spennu sem smitaði inn í hvern krók og kima.
Það er erfitt að útskýra þetta fyrir þeim sem upplifðu ekki beint í æð hvernig Bubbi og Utangarðsmenn umbyltu íslenskri poppmúsík. Þegar menn heyrðu í og sáu Utangarðsmenn fyrst þá uppljómaðist tilfinning fyrir því að nú væri allt að gerast. Og allt gerðist.
Utangarðsmenn spiluðu á hátt í 300 hljómleikum á einu ári, sendu jafnframt frá sér 2 Ep-plötur, eina stóra plötu og Bubbi sendi frá sér 2 sólóplötur. Bubba-byltingin hreif með sér fjöldann. Upp spruttu ótal pönksveitir. Eldri popparar skiptu jafnframt um gír. Ragga Gísla stökk úr Brimkló og stofnaði Grílurnar, Pálmi Gunnars skipti úr Brunaliðinu yfir í Friðryk og þannig mætti áfram telja.
Það er kolröng greining hjá Bigga í Maus að Bubbi hafi aldrei verið leiðandi afl. Bubbi var ótvíræður leiðtogi nýju bylgjunnar. Hann var kóngurinn. Ekki aðeins með Utangarðsmönnum heldur fylgdi hann dæminu eftir með Egói - sem varð ennþá stærra dæmi - og Das Kapital.
Hin fullyrðing Bigga, um að Sjálfsfróun, Vonbrigði, Fræbbblarnir og Þeyr hafi staðið betur fyrir það sem pönkið gerði í fæðingu í London, er líka ónákvæm túlkun á staðreyndum. Vissulega hljómuðu þessar hljómsveitir - að Þeysurum undanskildum - líkar ensku pönksveitunum. Utangarðsmenn voru með bandarískri og blúsaðri hljóm (enda 2 bandarískir gítarleikarar í leiðandi hlutverki). En það var jafnframt styrkur Utangarðsmanna að hljómsveitin hafði í bland kunnuglegan en samt sjálfstæðan stíl.
Á þessum tíma umgekkst ég mikið Sigga Pönkara, Bjarna Móhíkana og Pésa Pönk sem síðar stofnuðu Sjálfsfróun. Siggi elti uppi alla pönkhljómleika og var byrjaður að pönka með hljómsveitinni LSD. Hann var á fyrstu hljómleikum Utangarðsmanna og sagði mér spenntur frá því að nú væri eitthvað stórt að gerast.
Utangarðsmenn urðu þessum strákum sú vítamínssprauta sem þurfti til að þeir kæmu út úr bílskúrnum og kýldu á hlutina. Sjálfsfróun og Vonbrigði hefðu tæplega orðið til án Utangarðsmanna. Að minnsta kosti hefðu þær hljómsveitir ekki orðið neitt það sem þær urðu.
Þeysarar tóku U-beygju með tilkomu Utangarðsmanna. Fram að þeim tíma voru Þeysarar létt-poppsveit með "prog" ívafi. Þeyr urðu þó aldrei pönk heldur nýrokkarar í anda Killing Joke.
Bubbi hefur sakað Bigga í Maus um að vera falskasta söngvara landsins. Það þarf ekki að hljóma eins illa og virðist í fyrstu. Nick Cave, Kris Kristoferson og margir aðrir dáðir söngvarar eru falskir. Megas, Dylan og fleiri eru fagurfræðilega ömurlegir söngvarar. En frábærlega skemmtilegir söngvarar jafnframt. Bubbi hefði sjálfur ekki komist langt í Idol - þrátt fyrir að vera dúndurgóður söngvari. Biggi í Maus hefur sinn söngstíl, sem gerði Maus að þeirri heillandi hljómsveit sem hún var.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 21:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (33)
22.3.2008 | 14:42
Hólmganga Árna Johnsen og Bubba
Á leið minni til Fjáreyja í síðustu viku las ég Fréttablaðið. Þar var frétt um að Árni Johnsen væri ósáttur við að Bubbi kalli hann ítrekað versta gítarleikara ársins. Steininn tók út þegar Bubbi bætti því við í Kastljósi á dögunum að Biggi í Maus væri svo laglaus að hann toppaði Árna Johnsen.
Árni brást illa við og hafði umsvifalaust samband við Kastljós og skoraði Bubba á hólm í gítarleik, söng og boxi. Árni segir þá Bubba kunna jafn mörg gítargrip, 15. Bubbi sé samt örlítið flinkari á gítar en á móti komi að Bubbi ráði ekki við fjöldasöng. Þar er Árni hinsvegar á heimavelli.
Með það í huga metur Árni líkurnar á úrslitum í einvíginu sér í hag. Sömuleiðis býðst Árni til að greiða rokkkóngnum 3 milljónir króna ef hann finnur einn falskan tón á nýjustu plötu eyjapeyjans.
Vegna fjarveru frá fjölmiðlum landsins veit ég ekki hvert framhald varð á umræðunni. Aftur á móti þykir mér broslegt að Árni tiltaki fjölda gítargripa sem vitnisburð um hæfni þeirra Bubba í gítarleik.
Ég hef heyrt krakka metast á um það við jafnaldra sína hvað þeir kunna mörg gítargrip. En þegar þeir ná tökum á gítarleik skiptir flest annað við gítarleik meira máli en fjöldi hljómanna sem menn kunna. Enda mörg þekkt dægurlög best afgreidd með 2 - 4 hljómum.
Ef rétt er hjá Árna að þeir Bubbi kunni aðeins 15 grip þá er komin skýring á því hvers vegna þeir spila ekki lög úr smiðju Ozzy Osbourne. Hljómagangur þeirra samanstendur iðulega af 16 - 21 gripi. Árni og Bubbi gætu þó afgreitt War Pigs. Það er aðeins 14 gripa lag.
Varðandi áskorun Árna um leit að fölskum tóni á nýjustu plötunni: Það eru meira en þrír áratugir síðan flest alvöru hljóðver eignuðust búnað sem lagfærir falskan söng. Síðan hefur enginn söngvari þurft að óttast falskan tón á sínum plötum. Meira að segja þokkalegar karíókí-græjur eru búnar sama leiðréttingabúnaði fyrir falska söngvara. Áskorun Árna er þess vegna í raun ekki alvöru áskorun. Það er að segja varðandi falskan söng á plötum hans. En gaman yrði ef Bubbi tæki áskorun Árna um boxeinvígi.
Árni er í þokkalegri æfingu: Hefur kýlt Hreim í Hlandi og sonum, Pál Óskar, Össur Skarphéðinsson, aldraðan sjómann sem fann upp sjálfsleppibúnað björgunarbáta, sett öxl í kvikmyndatökumann hjá sjónvarpinu, veist að Rottweilerhundum og ótal öðrum.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
20.3.2008 | 15:20
Leiðrétting
Á forsíðu mbl.is segir frá því að breska fyrirsætan Kate Moss og núverandi kærasti hennar hafi dansað á gröf bandaríska söngvarans Jims Morrisons í París og sungið lagið Alabama Song. Þar segir að lagið hafi komið út 1967. Þegar smellt er á "Lesa meira" kemur fram að Jim Morrison hafi sungið þetta lag (inn á plötu) 1967. Það er rétt. Hinsvegar kom lagið fyrst út 1927. Þremur árum síðar kom það aftur út og þá sem hluti af óperettunni Upprisa og fall Mahagonny borgar eftir Kurt Weill og Bertholt Brecht.
Fyrir áratug eða svo aðstoðaði ég Bogomil Font lítillega við gerð plötunnar Út og suður sem innihélt lög eftir Kurt Weill. Þá uppgötvaði ég að samkvæmt ákvæði í höfundarrétti Alabama Song þá má ekki syngja þetta sönglag á öðru tungumáli en ensku. Aftur á móti er heimilt að snúa út úr textanum. Það nýtti Jim Morrison sér.
Í texta Bertholts Brechts segir: "Show us the way to the next pretty boy." Á plötu The Doors syngur Jim þessa línu þannig: "Show me the way to the next little girl."
Franska söngkonan Dalida syngur þetta svona: "Show us the way to the next little dollar." Svissneska tríóið Young Gods syngur útgáfu Dalidu.
David Bowie breytti línunni "Show me the way to the next whiskey bar" í "Show US the way to the next whiskey bar."
Útgáfa Bowies er ekki góð. En ég mæli eindregið með útgáfum Young Gods, Bogomils Fonts og The Doors.
![]() |
Dönsuðu á gröf Jim Morrison |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 16:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
19.3.2008 | 23:04
Ferð til fjár
Það er sama hvað ég bið Fjáreyinga um að hafa ekki um of fyrir mér. Þeir eiga erfitt með að hlíða. Það er bara einn flugvöllur í Fjáreyjum. Hann er í Vogum. Þaðan aka flugrútur til Þórshafnar og annarra helstu þéttbýlisstaða eyjanna. Rútuferðin til Þórshafnar tekur um klukkutíma eftir að undirsjávargöng voru lögð frá Vogum til Straumeyjar fyrir örfáum árum. Áður þurfti að taka ferju á milli.
Ég bið Fjáreyinga alltaf um að "slappa af" og leyfa mér að taka flugrútuna í stað þess að þeir séu að keyra eftir mér. Sá fyrsti sem ég sá þegar ég kom út úr tollinum í Vogum var þó tónlistarmaðurinn og plötuútgefandinn Kristian Blak. Það var hann sem bauð mér til eyjanna núna. Á leiðinni til Þórshafnar upplýsti hann mig um að fyrirhuguðum hljómleikum um helgina með hljómsveitinni Orcu hefði verið aflýst.
Orca er afskaplega áhugaverð hljómsveit. Ég á eftir að blogga betur um hana. Sú hljómsveit sniðgengur hefðbundin hljóðfæri. Þess í stað brúkar hún fiðluboga á sög, loftþrýstidælu á glerflöskur og annað eftir því.
Kristian tjáði mér að þjóðlaga-djasssveitin Yggdrasill myndi þess í stað spila fyrir mig. Yggdrasill er ekki síður merk hljómsveit. Eivör hefur verið að syngja með henni en var stödd á Íslandi um helgina. Í hennar stað sá hinn afburðargóði söngvari Kári Sverrissonum sönginn. Hann hefur einmitt skipst á við Eivöru að syngja með hljómsveitinni þegar hún er fjarri góðu gamni. Og tæplega er það á færi annars að hlaupa í skarðið fyrir álfadrottninguna.
Kristian tjáði mér að hljómsveitin þyrfti að æfa frá klukkan 7 - 9 til að geta boðið upp á almennilega hljómleika. Trommuleikarinn var upptekinn í öðru verkefni. Þess vegna þurfti að endurútsetja hluta af prógramminu til að það kæmi ekki að sök. Ég átti síðan að mæta í hátíðarsal (fjöl)Miðlunarhússins klukkan rúmlega 9. Þar hélt Yggdrasil einkahljómleika fyrir mig til klukkan 10. Það var opið út á götu þannig að gangandi máttu líka verða gestir. Áður en yfir lauk höfðu 3 áheyrendur bæst við. Ég varð feginn því. Mér þótti ofrausn að þessi fræga hljómsveit væri að halda hljómleika fyrir mig einan. Yggdrasill hefur túrað víða um heim við góða aðsókn og góðar undirtektir. Plötur Yggdrasils seljast sömuleiðis vel út um allan heim. Meðal annars hér á Íslandi.
Þetta var fjarri því í fyrsta skiptið sem Fjáreyingar hafa sett upp einkahljómleika fyrir mig. Ég lendi ítrekað í ofdekri af þessu tagi af hálfu þessa yndislega fólks.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
9.3.2008 | 22:44
Vinsælustu lögin í pyntingabúðum Bandaríkjahers
Brúskur forseti Bandaríkjanna beitti neitunarvaldi í liðinni viku gegn frumvarpi um að dregið verði úr pyntingum á föngum. Honum þykir næstum því jafn gaman af að láta lesa fyrir sig skýrslur um pyntingar eins og að horfa á jólunum á myndbönd af aftökum í Texas. Pyntingar og aftökur eru hornsteinn vestræns lýðræðis og mannréttinda samkvæmt hugarórum Brúsks. Það er kannski ekki ástæða til að setja spurningamerki við þá. Frekar kannski við vinsældalista þeirra sem breiða út boðskapinn með því að spila á hæsta styrk bandaríska músík - og þungarokk með áströlsku AC/DC og hommapopp með áströlsku Bee Gees - fyrir fanga Bandaríkjahers í Írak og Guantanamo. Bæði til að halda fyrir þeim vöku og ergja þá og til að yfirgnæfa í þeim sársaukaöskrin. Þannig lítur vinsældalistinn út:
1. "Fuck Your God" með Deicide
2. "Die MF Die" með Dope
3. "Take Your Best Shock" með Dope
4. "White America" með Eminem
5. "Kim" með Eminem
6. "Barney Them Song" með Barney
7. "Bodies" með Drowing Pool
8. "Enter Sandmen" með Metallica
9. "TV commercials" með Meow Mix
10. "TV Themes" með Sesar A
11. "Babylon" með David Gray
12. "Born in the USA" með Bruce Springsteen
13. "Shoot to Thrill" með AC/DC
14. "Hells Bells" með AC/DC
15. "Stayin Alive" með Bee Gees
16. "All Eyes on Me" með Tupac
17. "Dirty" með Kristínu Aguilera
18. "America" með Neil Diamond
19. "Bulls on Parade" með Rage Against the Machine
20. "American Pie" með Don McLean
Ég á nokkur lög á þessum lista. Og kann vel við þau. Til að mynda lögin með Brúsa Sprengjusteini, Metallicu, AC/DC, Deicide, Dope og Rage Against the Machine. Hinsvegar átta ég mig á því að það sé kvöl og pína að sitja undir viðbjóðnum með Bee Gees og Kristínu Aguilera. Jafnframt tel ég klaufalegt hjá pyntingastjórunum að spila ekki frekar "American Pie" í hörmulegum flutningi Madonnu en þægilegan flutning Dons McLeans.
Fyrir þá sem þekkja ekki Deicide þá er þar á ferð ágæt dauðarokksveit frá Florida. Í textum og viðtölum er hljómsveitin mjög upptekin af kristni, sem litast af andúð á samstæðu trúarbrögðunum frá Arabíu: Gyðingdómi, kristni og islam. Samt aðallega kristni.
Hljómsveitin Dope er þokkaleg speed-metal sveit sem einnig á rætur að rekja til Florida, þar sem bróðir Brúsks er ríkisstjóri. Nafnið er dregið af því að liðsmenn voru - og eru kannski enn - dópsalar.
Ég hef ekki hlustað mikið á Drowing Pool. Sú hljómsveit kemur frá Dallas í Texas, þar sem Brúskur var ríkisstjóri og toppaði önnur ríki Bandaríkjanna í aftökugleði á föngum. Af því litla sem ég hef heyrt með Drowing Pool þá skilgreini ég hana undir nu-metal (þungarokk með rapp-ívafi). Samt held ég að hljómsveitin sé fremur skilgreind sem almenn þungarokkssveit. En hvað veit ég? Þekki hljómsveitina ekki nógu vel.
Þegar Bandaríkjamenn spila "Born in the USA" með Brúsa Sprengjusteini bregða þeir jafnan bandaríska fánanum á loft. Sá kengruglaði forseti, Ronald Reagan, notaði þetta lag í kosningabaráttu sinni. Brúsi gaf sitt leyfi fyrir því gegn því að Ronald myndi hlusta á plötu Brúsa "Nebraska". Á "Nebraska" er sungið um fátæka fólkið í Bandaríkjunum. Í "Born in the USA" dregur Brúsi upp gagnrýna mynd af hernaði Bandaríkjanna í Vietnam. En í hugum Bandaríkjamanna er það viðlagið sem telur. Það framkallar þjóðarrembu.
Ég er sannfærður um að liðsmenn Rage Against the Machine eru ekki ánægðir með að músík þeirra sé notuð til pyntinga á föngum. Ég tók viðtal við gítarleikara RATM þegar hljómsveitin spilaði í Hafnarfirði 1992 eða ´93. Í nokkur ár á eftir héldum við sambandi. Eða réttara sagt þá sendi hann mér reglulega þá óútgefið efni með hljómsveitinni, skyrtuboli merktum hljómsveitinni og gott ef ekki húfu ásamt áróðursefni um mannréttindi í sunnanverðri Ameríku. Fyrir klaufaskap var ég latur við að þakka fyrir sendingarnar og samskiptin rofnuðu.
Tónlist | Breytt 10.3.2008 kl. 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)