Færsluflokkur: Tónlist

Upprisa hljómsveitar

   Það er skammt stórra högga á milli í upprisumálum stórhljómsveita.  Fyrst voru það tröllin í Led Zeppelin sem endurreistu þessa bestu hljómsveit rokksögunnar með aðstoð Jasons Bonhams,  sonar trommusnillingsins Johns heitins Bonhams.  Flokkur íslenskra þursa lét sitt ekki eftir liggja og endurvakti Þursaflokkurinn.  Og núna á 27 ára afmæli hljómsveitarinnar Lexíu frá Laugabakka í Húnavatnssýslu - og aldarfjórðungi eftir að hljómsveitin lagði upp laupana - er komið að lagþráðri upprisu.  Lexía var vinsælasta ballhljómsveitin á Íslandi sumrin 1981 og 1982.  Kíkið á heimasíðuna www.lexia.blog.is og fylgist með upprisunni,  ásamt því að fræðast betur um hljómsveitina.

  Sendið þangað inn ljósmyndir af Lexíu og af húðflúruðu nafni hennar á hinum ýmsu líkamspörtum aðdáendaskarans.   


Glæsilega vel heppnuð pönkveisla

  IdunnValliHelgi

  Ég var að koma af Pönkhátíðinni á Grand Rock og er virkilega sæll og glaður.  Hljómleikarnir stóðust allar væntingar.  Þeir tókust glæsilega vel í flesta staði.  Lagavalið var eins og best verður á kosið;  Öllum helstu þjóðsöngvum pönksins var gerð góð skil.  Ég saknaði ekki neins lags sérstaklega. 

  Mér telst til að 7 lög hafi verið flutt af fyrstu þremur plötum The Clash.  4 - 5 (eða 6?  Ég var ekki að telja en er að reyna að rifja upp) lög voru flutt úr smiðju eftirtalinna hljómsveita,  hverri fyrir sig:  Sex PistolsThe JamStiff Little Fingers og The Ramones.  Tvö lög eftir The Stranglers og lög frá The DamnedThe BuzzcocksUndertones...

  Samsetningin á lagavalinu náði að fanga og koma bærilega til skila fjölbreytileika pönksins.  Sumir sem upplifðu ekki pönkbylgjuna beint í æð halda ranglega að pönkið hafi verið einhæft músíkform er hafi verið rígbundið við uppskrift laganna Anarchy in UKWhite Riot  og New Rose.  Það vill gleymast að reggí og ska vógu þungt í pönk-senunni.  Sömuleiðis var nýbylgjan stórt fylgitungl pönksins.  Þverskurður af þessu var afgreiddur eins og best var á kosið.

  Fjölbreytninni var jafnframt gerð skil með tíðum innáskiptingum flytjenda.  Valli í Fræbbblunum og Ingunn Magnúsdóttir,  Árni Daníel úr Q4U,  Óskar Þórisson úr Taugadeildinni og Heiða,  kennd við Unun,  skiptu á milli sín forsöng.  Ég ætla ekki að reyna að telja upp hljóðfæraleikarana eða bakraddasöngvara.  Læt nægja að telja upp trommarana:  Stebba í Fræbbblunum,  Komma úr Q4U og Gumma Gunnars úr Tappanum og Das Kapital.  Hver um sig hefur sinn ágæta trommustíl.

  Svo skemmtilega vill til að ég á öll 40 lögin sem flutt voru nema lagið með Blondie.  Ég á enga plötu með Blondie og er ekki aðdáandi þeirrar hljómsveitar.  Samt þótti mér ekkert nema vel við hæfi að hafa það lag með.  Blondie var,  jú,  vinsælasti hlutinn af bandarísku pönksenunni.  

  Smá kurr var í salnum þegar reggí-lag frá Elvis Costello var flutt.  Einhverjir gerðu athugasemd við að Elvis væri ekki pönk.  Lagið smellpassaði samt inn í dagskrána og vissulega var STIFF-gengið - sem Elvis tilheyrði - áberandi hluti af pönksenunni.    

  Hljómleikarnir enduðu á frábæru lagi Sham 69If the Kids Are United.  Betra lokalag á næstum því 3ja klukkutíma langri pönkdagskrá er vandfundið.  Magnað samsöngslag þar sem salurinn tók undir í söng og klappi. 

  Einu hnökrar hljómleikanna voru að söngur var oft of lágt stilltur.  Árni Daníel,  góðvinur minn úr Svarfaðardal og bekkjarbróðir Steina Briem,  kom mér á óvart sem kröftugur öskursöngvari.  Ég vissi að hann er fínn bassaleikari og hljómborðsleikari en vissi ekki af þróttmiklum sönghæfileikum hans.  Söngvararnir - sem og reyndar allir aðrir flytjendur - voru virkilega flottir.  Framan af ferli Fræbbblanna þótti mér Valli vera mistækur söngvari.  Sem svo sem passaði við pönkstemmningu þeirra ára.  Síðan hefur hann vaxið sem söngvari jafnt og þétt.  Og er ágætur gítarleikari líka.  Í kvöld var hann fantagóður söngvari og algjörlega á heimavelli.

  Einn af mörgum kostum flutningsins í kvöld var að ekki var reynt að rígbinda sig við að hljóma alveg eins og frumflytjendur.  Persónulegur stíll flytjenda fékk að njóta sín þó að tryggð væri haldið við frumflutning laganna.  Til að mynda þótti mér gaman að heyra The Clash slagarann "White Man in Hammersmith Palias" hraðað lítillega úr reggítakti yfir í ska takt.  Það kom virkilega vel út.

   Hljómleikarnir voru kvikmyndaðir af tveimur kvikmyndavélum.  Vonandi verða þeir sýndir í sjónvarpinu (og endursýndir þrisvar sinnum) og jafnvel sýndir í erlendum sjónvarpsstöðvum.

  Ég var ekki aldursforsetinn í salnum.  Hrafn Gunnlaugsson og Magnús Pálsson (bróðir Sæma Rokk) voru líka í salnum.  Uppistaðan af áheyrendum voru þó ungt fólk.  Efasemdir um að Grand Rock henti undir svona hljómleika stóðust ekki.  Að vísu var troðið út úr dyrum.  En það var bara hluti af stemmningunni.    

  Smá lókal:  Gaman var að hitta Ágúst sem áður rak tölvufyrirtækið Micro.  Hann er mágur Gumma frá Sölvanesi.  Ég sá um auglýsingar fyrir Micro í gamla daga en hafði ekki hugmynd um að Gústi væri pönkari.  Einnig hitti ég Hreiðar,  sem spilaði á tímabili á bassa með Gyllinæð,  og Einar Loka sem spilaði blús á opnunarhátíð Good Fellas í haust.  Marga fleiri kannaðist ég við.  Svo sem Frikka pönk sem spilaði með Sjálfsfróun á tímabili. 


Pönkveisla á Grand Rock

  johnny rottenclashbandheadjam

  Færeyingar tala um átfund þegar þeir eiga við veislu.  Átfundur er gott orð sem lýsir fyrirbærinu betur en orðið veisla,  sem þó er dregið af orðinu veitingar.  Betur fer þó á því að kalla pönkhátíðina á Grand Rock í kvöld pönkveislu.  Þar mun rjóminn af pönkrokkurum níunda áratugarins matreiða 40 helstu einkennislög pönkbyltingarinnar á seinni hluta áttunda áratugarins. 

  Eitt af aðalsmerkjum pönksins á þessum árum voru sterkar og grípandi laglínur.  Fyrir bragðið hefur fjöldi þeirra orðið klassískur.  Ég ætla að flestir rokkunnendur kannist við lögin sem verða flutt í kvöld þó að þeir séu undir þrítugsaldri.  Og eitt er víst:  Það verður mikið fjör og mikið gaman.


Spurningakeppnin á Organ

  Ég ætlaði í kvöld að taka þátt í popp-spurnginarkeppninni á Organ.  Ég skutlaði Danna í Gyllinæð þangað korter yfir sex og leitaði að gjaldfrjálsu bílastæði.  Fyrir viku síðan fékk ég nefnilega 1500 krónu sekt fyrir að leggja í gjaldskylt bílastæði.  Það jafngildir næstum 3 bjórum. Þegar ég loks mætti í hús var spyrjandinn að bera upp spurningu númer 17.

  Við Danni kunnum svörin við næstum því öllum spurningum sem við heyrðum.  En það var of langt á keppnina liðið til að við hefðum möguleika.  Sigurvegari kvöldsins var Helga Þórey,  plötugagnrýnandi Morgunblaðsins.  Hún og félagi hennar (sem ég náði ekki nafni á) voru með 23 rétt svör af 30. 

  Helga Þórey er ekki aðeins alfræðiorðabók um poppmúsík og plötugagnrýnandi sem ég er ALLTAF sammála.  Hún er líka einlægur Færeyingavinur,  bráðgáfuð,  gullfalleg og skemmtileg. 

  Svo broslega vill til að Helga Þórey er spurningahöfundur næsta föstudags.  Þá verð ég fjarri góðu gamni.  Verð í Færeyjum og get ekki svarað rétt spurningum Helgu Þóreyjar um það hvað Eivör hefur sent frá sér margar sólóplötur (5) eða verið liðsmaður hvaða hljómsveita sem hafa sent frá sér plötur (Clickhaze og Yggdrasil).    


Fréttablaðið "skúbbar" með frétt af blogginu mínu

  Til að allt sé á hreinu og enginn misskilji neitt þá þykir mér þetta gaman.  Bara gaman og ekkert nema mjög gaman.  Glaður í bragði og með bros á vör vek ég athygli á þessu:  Ein aðalfréttin á visir.is í dag er "skúbb" um útkomu í skoðanakönnun hér á blogginu mínu um besta íslenska hljómsveitarnafnið.  Ég hef ekki séð Fréttablaðið í dag en svo virðist sem fréttin sé þar líka.  Fréttin er merkt Fréttablaðinu.

  Strangt til tekið er "skúbbið" með fyrri skipunum.  Könnuninni er ekki lokið.  Ég geng þó út frá því sem vísu að endanleg niðurstaða sé komin varðandi efstu sætin núna þegar 439 atkvæði hafa verið greidd.  Röðin á efstu sætunum hefur ekkert breyst frá því að innan við 100 atkvæði höfðu skilað sér í hús.  Þannig að þetta skemmtilega "skúbb" Fréttablaðsins stendur.

------------------------------------------------------------------------------------------------

 

„Spilverk þjóðanna“ besta hljómsveitarnafnið

spilverk þjóðanna 
Á æfingu fyrir rúmlega 30 árum „Spilverk þjóðanna“ þykir besta nafnið.

Jens Kr. Guðmundsson hefur undanfarið staðið fyrir ýmsum lesendakönnunum á bloggsíðu sinni. Í nýjustu könnuninni er spurt „Hvert er besta íslenska hljómsveitarnafnið?". Könnun Jens er hávísindaleg og hann byrjaði á því að óska eftir tillögum frá lesendum. Viðbrögð voru góð og Jens tók saman lista yfir þau fimmtán nöfn sem fengu flestar tilnefningar. Nú hafa rúmlega 400 manns kosið. „Spilverk þjóðanna" hefur tekið afgerandi forystu með 18,4 prósent atkvæða. „Kamarorghestarnir" eru í öðru sæti með tólf prósent, svo kemur „Unun" með 9,6 prósent og Purrkur Pillnikk með 8,3 prósent atkvæða.
„Þessi staða kemur mér ekkert á óvart, enda er þetta óviðjafnanlega stórt nafn fyrir litla hljómsveit og lágværa," segir Valgeir Guðjónsson, einn Spilverksmanna. Bandið varð til í MH og kom fyrst fram undir þessu nafni árið 1972. Áður höfðu nöfn eins og „Hassanssmjör", „Egils appelsín" og „Hljómsveit Árna Vilhjálmssonar" verið mátuð við tríóið.
„Við vorum þrír að velta nafni sveitarinnar á milli okkar," segir Valgeir. „Spilverk kom fyrst. Bjólan fór í orðabók og komst að því að Spilverk getur þýtt grindverk á milli bása í fjósi. Okkur fannst það ekkert verra. Þjóðanna bættist svo við. Okkur fannst það fyndið og lýsa geigvænlegum skorti á minnimáttarkennd. Það var lókal húmor hjá okkur að bæta þriðja n-inu við ákveðinn greini fleirtölu nafnorða svo nafnið var alltaf skrifað Spilverk þjóðannna í byrjun." - glh


Hlustið á nýtt og óútgefið snilldar lag með Jóhönnu Seljan í tónspilaranum

  Ég var að setja lagið Ætlarðu að hringja á morgun?  með söngkonunni Jóhönnu Seljan í tónspilarann hér á síðunni.  Það hefur ekki verið gefið út ennþá.  En fulltrúar plötufyrirtækjanna eiga eftir að togast á um að fá þetta lag á safnplötu í kjölfar þess að hlusta á það hér.  Einnig munu dagskrárgerðarmenn útvarpsstöðva einhenda sér í að verða fyrstir til að kynna lagið í sínum þáttum.

  Lagið er út af fyrir sig ekki nýtt.  Það er hátt í hálfrar aldar gamalt.  Tröllreið fyrst vinsældalistum í flutningi stúlknasönghópsins The Shirelles og hefur síðan verið endurunnið af ótöldum fjölda stórstjarna.  Oft með góðum árangri.  Í fljótu bragði man ég eftir laginu í flutningi Bryans FerrysRobertu Flack,  MelanieAmy Winehouse,  Joe WalshLindu Ronstadt,  Smokey Robinson og Joni Michelle.

  Höfundar lagsins eru Gerry Goffin og Carole King.  Þegar ég skellti laginu í flutningi Jóhönnu Seljan undir geislann varð mér á að hugsa:  "Nei,  sko.  Stelpan að heiðra Phil Spector."  Það er svo sterkur Phil Spector keimur af laginu.  En mér tókst að átta mig á höfundum þess áður en ég skrifaði þessa færslu.

  Jóhönnu Seljan þekki ég ekki.  En ég þekki Þórodd Seljan föður hennar,  skólastjóra á Reyðarfirði síðast þegar ég vissi.  Sömuleiðis þekki ég afa hennar og ömmu.  Ömmunni kenndi ég skrautskrift fyrir mörgum árum.  Afinn,  Helgi Seljan,  er formaður bindindisfélagsins IOGT.  Hann var alþingismaður til margra ára og síðar framkvæmdarstjóri Öryrkjabandalagsins.  Sjónvarpsmaðurinn Helgi Seljan,  sem tók við mig Kastljóssviðtalið umtalaða,  og Jóhanna eru bræðrabörn.

  Allt saman svo mikið úrvalsfólk að það er mér heiður að fá að frumflytja og kynna til leiks þetta lag með Jóhönnu Seljan hér í tónspilaranum mínum.  Ég veit fátt meira um þetta lag og þennan flutning annað en að trommari 200.000 naglbíta slær taktinn. 

  Gaman væri að heyra viðbrögð/skoðun ykkar á flutningi Jóhönnu á þessu lagi.

  Athugið að það þarf að "skrolla" niður tónspilarann til að finna lagið.


Besta íslenska hljómsveitarnafnið?

  Ég hef sett í gang skoðanakönnun um besta íslenska hljómsveitarnafnið.  Aldrei þessu vant ákvað ég að gæta hlutleysis við að fá fram raunhæfa niðurstöðu um mat á því.  Þess vegna byrjaði ég á því að óska eftir tillögum frá ykkur.  Viðbrögð voru góð og ég tók saman lista yfir þau nöfn sem fengu flestar tilnefningar. 

  Næsta skref var að birta þann lista og óska eftir vangaveltum um hann,  frekari stuðning við nöfnin á honum og bauð upp á fleiri tillögur.  Út úr því ferli kom sá listi sem ég hef sett hér saman í formlega skoðanakönnun með atkvæðagreiðslu.  Formlega skoðanakönnunin er þess vegna 3ja skref í leit að besta íslenska hljómsveitarnafninu.

  Skoðanakannanakerfið hérna á blog.is býður einungis upp á val á milli 15 nafna.  Þar eru þau 15 nöfn sem fengu flest atkvæði í forkönnunum tveimur.  Ég hefði viljað setja á listann nokkur nöfn sem ég kann vel við:  Gyllinæð,  Frostmark,  Jarlar,  Bisund og svo framvegis.  En vegna þess að ég vil fá marktæka niðurstöðu þá held ég mig alfarið við þau nöfn sem mestan stuðning fengu í forkönnunum.  

  Gaman væri að fá hjá ykkur rök fyrir stuðningi við það nafn sem þið teljið vera besta íslenska hljómsveitarnafnið.  Sömuleiðis væri gaman að fá rök fyrir nöfnum sem þið teljið að eigi ekki heima á þessum lista.     


Hörkuspennandi tónlistargetraun

  valgeirg

  Siggi Lee Lewis dró mig á Organ í gærkvöld til að taka þátt í Pop-Quiz tónlistargetraun.  Ég hef aldrei áður tekið þátt í svona tónlistargetraunum á Organ eða Grand Rock og vissi lítið út á hvað dæmið gekk.  Hinsvegar hef ég lagt það í vana minn að koma vel út í öðrum tónlistargetraunum og sá enga ástæðu til að gera breytingu á.

  Þátttaka var góð.  Setið við hvert borð.  Valgeir Guðjónsson,  bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi,   var höfundur spurninga og spyrill.  Hann fór á kostum.  Honum tókst að yfirfæra einfaldar spurningar í góða brandara og sumum spurningum stillti hann þannig fram að svör gátu ekki orðið annað en brandarar líka.  Sömuleiðis fór hann létt með að snúa athugasemdum utan úr sal upp í létta brandara.  Varð af þessu hin besta skemmtun og óhætt að segja að Valgeir kitlaði hláturtaugar þannig að endanleg úrslit urðu aukaatriði í frábæru skemmtikvöldi.

  Þegar farið var yfir svör voru tvær spurningar felldar niður.  Önnur vegna þess að hún stóðst ekki og hin vegna þess að svarmöguleikar reyndust vera fleiri en einn.  Þar var spurt um það fyrir hvað Jethro Tull hafi getið sér frægð.

  Ég svaraði að hann hafi skrifað fræga bók um jarðrækt.  Sá sem hæst skoraði á móti mér svaraði að Jethro Tull hafi orðið frægur fyrir plóginn.  Svarið sem spurningahöfundur leitaði eftir var að Jethro Tull fann upp sáðvélina.  

  Ég vil meina að mitt svar sé réttast og vísa til upplýsinga um Jethro Tull á til að mynda Wikipedia.  Engu að síður er svona spurningakeppni fyrst og fremst léttur leikur,  góð skemmtun og engin ástæða til að umgangast hana öðruvísi.  Það var mér algjörlega að meinalausu þó að þessi spurning væri felld niður.  Og þó að Jethro Tull hafi ekki fundið upp plóginn þá betrumbætti hann plóginn.

  Hin spurningin sem var felld niður snéri að því að þegar Pink Floyd hljóðritaði meistaraverkið Dark Side of the Moon  þá hafi önnur ennþá frægari hljómsveit hljóðritað í sama hljóðveri ennþá frægari plötu.  Valgeir vildi meina að það hafi verið Bítlarnir að hljóðrita Abbey Road.  Ég benti á að Abbey Road  var hljóðrituð 1969 en Dark Side of the Moon  1973.  Án þess að ég viti hvar Pink Floyd hljóðrituðu sínar plötur þá hljóðrituðu Pink Floyd plöturnar More  og Umma Gumma  1969.  Sama ár hljóðrituðu Bítlarnir Abbey Road.

  Þessi spurning var því felld niður af dómnefnd spurningakeppninnar. 

  Leikar fóru þannig að niðurstaða kvöldsins var fengin með bráðabana.  Ég svaraði fyrstu 4 spurningum hans rétt en klikkaði á spurningunni um nafn köngulóarinnar í fyrsta laginu sem John Entwistle samdi.  Keppinauturinn vissi að hún hét Boris.  Þar með voru úrslit ráðin.  Smáklúður hjá mér að muna ekki eftir nafni lagsins Boris the Spider.  Ég endaði í 2.  sæti.  Sem er ekkert nema gaman. 

  Ég endurtek og ítreka að ég er ekki á nokkurn hátt ósáttur við úrslitin.  Það er ekkert nema gaman að taka þátt í svona leik.  Það er jafnframt bara gaman að uppgötva óvænt að ég sé ekki fróðastur allra um rokksöguna.  Sú staðreynd kallar á endurmat á styrkleika mínum á því sviði.  Ég er blessunarlega laus við keppnisskap og hafði einungis gaman að leiknum.  

  Ekki síður þótti mér gaman að hitta gamlan kunningja,  Kristinn Pálsson,  og uppgötva að hann sér um þáttaröðina fróðlegu og skemmtilegu á rás 2 Uppruni tegundanna.  Eins vel og ég reyni að fylgjast með þessari þáttaröð þá var ég ekki búinn að kveikja á því hver er umsjónarmaður hennar.  Einhvernvegin fannst mér það vera Páll Kristinn Pálsson rithöfundur,  án þess að hugsa frekar út í það.

  Einnig þótti mér gaman að hitta Helgu Þóreyju,  plötugagnrýnanda Morgunblaðsins.  Við höfum vitað af hvor öðru til fjölda ára án þess að þekkjast eiginlega.  Skrifuðum til dæmis bæði fyrir poppblaðið Sánd á sínum tíma.  En það skemmtilega er að við eigum sameiginlegan stóran kunningja- og vinahóp,  bæði hérlendis og í Færeyjum.  Þannig að við höfðum um margt að spjalla.

  Ekki nóg með það heldur hitti ég líka yngri bróðir Kidda rokk.  Sá er í hljómsveitinni Singapore Sling.  Fleira fólk hitti ég sem gaman var að ræða við.

  Þannig að kvöldið varð hin mesta skemmtun sem náði langt útfyrir spurningakeppnina.  Áður en ég hélt heim fór ég í eftirlitsferð upp í Ármúla.  Það var allt undir "kontról" bæði á Classic Rock og Good Fellas svo ég gat farið að sofa áhyggjulaus.

 


Lag með Ylfu Lind komið í tónspilarann

  Pálmi Gunnarsson hvatti mig til að setja sýnishorn af hinni ágætu plötu Ylfu Lindar,  Petite Cadeau,  í tónspilarann hjá mér.  Ég brá við skjótt og hef nú sett eitt lag af plötunni í spilarann.  Það er gamli Rolling Stones slagarinn As Tears Go By.  Það þarf að "skrolla" niður spilarann til að finna lagið.  Y er svo aftarlega í stafrófinu að lagið lenti neðst í spilaranum.

  Gaman væri að heyra hvernig ykkur þykir Ylfu Lind takast upp með þetta ljúfa lag.  Um leið hvet ég Ylfu Lind til að virkja tónspilarann á sinni síðu,  www.ylfalind.blog.is,  og hlaða fleiri lögum af plötunni í hann. 


Bestu pólitísku söngvarnir

  Á dögunum efndi útbreiddasta músíkblað heims,  hið bandaríska Rolling Stone,  til skoðunar meðal lesenda sinna á besta sönglaginu með pólitískan boðskap.  Yfirskriftin hjá Rolling Stone var reyndar leitun að besta mótmælasöngnum (protest song) en á listanum eru alveg eins lög sem flokkast frekar undir að vera baráttusöngvar.  En þetta varð niðurstaðan:

ccr

1.    Creedence Clearwater RevivalFortunate Son

2.    Bob DylanMasters of War

3.    Rage Against the MachineKilling in the Name

4.    Country Joe & The FishI-Feel-Like-I'm-Fixin'-To-Die Rag

5.    U2Sunday Bloody Sunday

6.    Bob Dylan:  Blowin´ in the Wind

7.    Marvin Gaye:  What´s Goin´ On?

sex-pistols

8.    Sex Pistols:  Anarchy in UK

9.    Bruce Springsteen Born in the USA

10.  Edwin Starr:  War

who

11.  The Who:  Won't Get Fooled Again

12.  John LennonGimme Some Truth

13.  Buffalo SpringfieldFor What It's Worth

14.  Public EnemyFight the Power

15.  Neil YoungLet's Impeach the President

guns

16.  Guns ´N´ Roses:  Civil War

17.  Bob Marley:  Redemption Song

18.  John Lennon:  Working Clash Hero

19.  Bítlarnir:  Revolution

crosby stills nash & young

20.  Crosby,  Stills,  Nash & Young Ohio

21.  The Rolling Stones:  Street Fighting Man

22.  Bright Eyes:  When the President Talks to God

23.  Bob Marley:  Get Up Stand Up

24.  Sam Cooke:  A Change is Gonna Come

REM

25.  REM Ignoreland 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband