Fćrsluflokkur: Tónlist

Diskó og pönk

frćbbblarnir 

mordingjarnir

Rass

ćla

I Adapt

 Ţessa dagana er veriđ ađ sýna í Ţjóđleikhúsinu leikverkiđ Ástin er diskó,  lífiđ er pönk eftir Hallgrím Helgason.  Ţađ hefur veriđ uppselt á allar sýningar til ţessa.  Einnig er uppselt á nćstu sýningar.  Ţessi sýning hefur gefiđ mörgum ástćđu til ađ rifja upp árin um og upp úr 1980.

  Í Fréttablađinu tjáđi Unnur Steinsson (móđir Unnar Birnu sem var kynnir í sjónvarpsţćttinum Bandiđ hans Bubba) sig um máliđ.  Hún var tískusýningadama á ţessum tíma. 

  Unnur segist ekki hafa byrjađ ađ hlusta á pönk fyrr en Egó kom til sögunnar.  Jafnframt fullyrđir hún ađ pönkiđ hafi dáiđ en diskóiđ lifi.

  Ađ ţví gefnu ađ Unnur eigi viđ hljómsveitina Egó - en ekki bensísstöđvar Egó - ţá var sú hljómsveit ekki pönksveit.  Egó byrjađi sem ţungarokkssveit en breytti fljótlega yfir í fjölbreytta popprokkssveit af ţví tagi sem heyrđi undir samheitiđ nýbylgju. 

  En fyrst Unnur skilgreinir Egó sem pönk og telur ađ pönkiđ hafi dáiđ ţá er sérkennilegt ađ Egóiđ virđist vera ódrepandi.  Sú hljómsveit er enn ađ og vinsćldir hennar fćrast í aukana í áranna rás fremur en hitt.  Fyrir ţremur árum dró hún 110.000 manns á hljómleika í miđbć Reykjavíkur og sló ţar međ Íslandsmet.

  Burt séđ frá Egói ţá hefur pönkiđ fram á ţennan dag lifađ góđu lífi,  hérlendis sem og erlendis.  Ţađ er stöđugt veriđ ađ setja hér upp vel sótta pönkhljómleika.  Fyrir örfáum vikum var haldin stórkostleg pönkhátíđ á Grand Rokk ţar sem liđsmenn FrćbbblannaQ4UDas KapitalTaugadeildarinnar og Tappa tíkarrass afgreiddu pönk-klassíkina.  Hljómsveitir eins og MorđingjarnirRassĆla DYSHölt hóraInnvortis,  Dr.  Spock og margar fleiri hafa veriđ og eru áberandi í rokksenunni.  Svo ekki sé minnst á Frćbbblana sem aldrei hafa veriđ betri og sprćkari en nú.  Og hver átti bestu íslensku plötuna í fyrra?  Ójú,  harđkjarnapönksveitin I Adapt.

  Hvađ getum viđ taliđ upp margar starfandi diskóhljómsveitir?  Bíđum nú viđ.  Ja... er einhver diskóhljómsveit starfandi á Íslandi?


Mestu töffarar rokksögunnar

  Fyrir nokkru efndi breska poppblađiđ New Musical Express til skođanakönnunar međal lesenda sinna um ţađ hver sé svalasti töffari rokksögunnar (The Cool List).  Ađ venju kemur sumt í niđurstöđunni á óvart á međan önnur nöfn eru sjálfgefin í efstu sćtum.  Ţessir röđuđust í efstu sćtin:

hendrix

1.   Jimi Hendrix

johndec

2.   John Lennon

3.   Kurt Cobain (Nirvana)

4.   David Bowie

5.   Bob Dylan

6.   Keith Moon (Who)

7.   George Harrison

8.   Elvis Presley

9.   Debbie Harry (Blondie)

10. Joe Strummer (Clash)

11. Jim Morrison (Doors)

12. Mick Jagger (Rolling Stones)

13. Keith Richards (Rolling Stones)

14. Jimmy Page (Led Zeppelin)

15. Dave Grohl (Nirvana/Foo Fighters)

16. Frank Sinatra

17. Freddy Mercury (Queen)

18. Ian Curties (Joy Division)

19. Iggy Pop

20. Dee Dee Ramone (Ramones)

  Ţađ vćri gaman ađ fá skođun ykkar á ţessum lista.


Versta íslenska hljómsveitarnafniđ

  glas međ fingragripi

  Í síđustu viku óskađi ég eftir tillögum um versta íslenska hljómsveitarnafniđ.  Margar góđar tillögur bárust.  Nú ţarf ég ađ biđja ykkur um ađ styđja tillögur um ţau nöfn sem voru nefnd af tveimur eđa fćrri,  ţađ er ađ segja ef ţiđ teljiđ vera ástćđu til ađ viđkomandi nöfnum verđi stillt upp í endanlegri og formlegri skođanakönnun.  Í ţessu tilfelli má bara styđja tillögur um nöfn sem einhver annar gerđi tillögum um. 

  Valiđ stendur einungis um íslensk nöfn.  Útlend nöfn koma ekki til greina ţó íslensk hljómsveit beri ţađ.  Sömuleiđis koma einungis til greina nöfn ţekktra hljómsveita.  Ţá á ég viđ hljómsveitir sem hafa sent frá sér lag eđa plötu eđa kynnt sig ţokkalega ađ öđru leyti.

  Ţađ skal tekiđ fram ađ ćtlunin međ ţessari skođanakönnun er ekki ađ svekkja neinn né sćra.  Vonandi geta allir tekiđ ţessu sem léttum samkvćmisleik.  Ţetta hefur sömuleiđis lítiđ međ minn smekk ađ gera - ef undan er skiliđ ađ ég nefndi til sögunnar nöfnin Lummurnar og Skítamóral.  Ég ćtla ekki ađ berjast fyrir ţví ađ ţessi nöfn verđi í endanlegu skođanakönnuninni.  Ţess vegna svara ég ekki ađ sinni spurningu Saxa um ţađ hvers vegna Skítamórall sé verra nafn en Sykurmolarnir.  Ég útskýri ţađ seinna.

  3 nöfn fengu 3 eđa fleiri tilnefningar.  Ţau verđa inni í keppninni og ţiđ ţurfiđ ekki ađ styđja tillögur um ţau.  Ţetta eru:

Morđingjarnir

Síđan skein sól / SSSól

Eurobandiđ

 

Eftirfarandi voru tilnefnd af tveimur en ţađ er lágmark ađ nafn sé stutt af ţremur til ađ vera inni:

Lummurnar

Stuđmenn

Sú Ellen

Hölt hóra

Bruni BB

Aggi Slć & Tamlasveitin

 

Síđan eru ţađ nöfnin sem hafa fengiđ eina tilnefningu:

Skítamórall

200.000 naglbítar 

Hunang
Sođin fiđla
Paradís
Model
Breiđbandiđ
Klakabandiđ
Klamedía X
Sólstrandagćjarnir
Benni Hemm Hemm
Ţrumuvagninn
HLH flokkurinn
Stuđkompaníiđ
Áhöfnin á Halastjörnunni
Stuđlatríóiđ
Hafrót
Pláhnetan
Bara-flokkurinn
Egó
GCD
Spilafífl
Póker
Start
Dúndur
Tívolí
Kaktus
Karma
Grýlurnar
Sniglabandiđ
Ríó tríó
Bless
Unun
Ham
Lođin rotta
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
Hljómsveit Ingimars Eydal
Forhúđ
Völundur
Austurland ađ Glettingi
Frostaveturinn mikli 1918  
Hnakkarnir
Kolrassa krókríđandi
Ţokkabót
Deildarbungubrćđur
Haukar
Logar
Mánar
Stormar
Galdrakarlar
Snillingarnir
Sjálfsfróun
Svart-hvítur draumur
Sauđfé á mjög undir högg ađ sćkja í landi Reykjavíkur
8-villt
Tríó Ţorvaldar
Á móti sól
Icy-flokkurinn
5ta herdeildin
Rokklingarnir
Ómar
Ultra-mega-teknó-bandiđ Stefán
Tappi tíkarrass
Grýlurnar
Andrá
Aukaatriđi
Axlabandiđ
Andhéri
Hunagstungliđ

Tillögur óskast

  Á dögunum efndi ég til skođanakönnunar um besta íslenska hljómsveitarnafniđ.  Síđan hef ég ítrekađ veriđ hvattur til ađ efna til hliđstćđrar könnunar um versta íslenska hljómsveitarnafniđ.  Ţess vegna óska ég eftir tillögum frá ykkur ţannig ađ könnunin verđi sem marktćkust.  Leggiđ hausinn í bleyti og hjálpiđ mér ađ finna vond íslensk hljómsveitanöfn.

  Í fljótu bragđi tel ég nöfnin Skítamóral og Lummurnar koma til greina.  Ţađ er spurning međ nafniđ Ljótu hálfvitarnir.  Ţađ er dálítiđ töff líka. 

  Hér má sjá niđurstöđuna í skođanakönnuninni um bestu nöfnin:  http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/497371


Nýja myndbandiđ frá Rottweiler

  rottweiler

  1969 sagđi John Lennon ađ poppmúsík ćtti ađ vera fréttaspegill líđandi stundar.  Fjalla um og túlka atburđi dagsins.  Orđum sínum til áréttingar fór hann ađ senda frá sér lög á borđ viđ The Ballad of John and Yoko og Give Peace a Chance.  Ţetta rifjađist upp fyrir mér ţegar fólk fór ađ benda mér á nýtt lag og myndband međ XXX Rottweiler hundumReykjavík Belfast,  og hvetja mig til ađ "kommenta" um ţađ. 

  Ég hef svo sem ekki margt um ţetta ađ segja.  Lag,  texti og myndband eru flott,  eins og von og vísa er frá snillingunum í Rottweiler.  Ţeir drengir hafa haft heldur betur snör handtök og gott ađ myndskeiđ séu varđveitt frá atlögu lögreglunnar ađ vörubílstjórum og almenningi sem mótmćlti háum gjöldum ríkisins á eldsneytisverđ (er nemur nćstum helmingi af eldsneytisverđinu).

  Kíkiđ sjálf á myndbandiđ:  www.youtube.com/watch?v=2arIei1ycK8


Plötuumsögn

rokkland2007ólipalli 

Titill:  Rokkland 2007

Flytjendur:  Ýmsir

Lagaval:  Ólafur Páll Gunnarsson

Einkunn: ****1/2

  Rokklandskóngurinn Ólafur Páll er kominn međ góđa uppskrift ađ safnplötu sem er afskaplega girnileg fyrir rokkáhugafólk.  Uppskriftin felst í tvöfaldri plötu ţar sem önnur platan inniheldur sýnishorn af áhugaverđustu lögum liđins ár.  Hin platan inniheldur sígildar perlur úr sögu rokksins.  Elstu lögin eru frá 1956 og ţau yngstu frá ţessari öld.  Hér fyrir neđan er listi yfir lögin á plötunum.

  Á fyrri plötunni eru áhugaverđ lög sem voru kynnt í útvarpsţćttinum Rokklandiá rás 2 í bland viđ lög sem nutu vinsćlda í almennri dagskrá á rás 2.  Ţar kennir ýmissa grasa.  Upphafslagiđ er "instrumental" djass-fönk flutningur Marks Ronsons á ţekktu Coldplay-lagi.  Nćsta lag er sungiđ á dönsku af einni vinsćlustu hljómsveit Dana,  tölvupoppsveitinni Nephew.  Sćnska söngkonan Nina Person (úr The Cardigans) syngur lag međ welsku hljómsveitinni Manic Street Preachers.  Ástralski Íslandsvinurinn Nick Cave fer á kostum í ćđislega flottu lagi međ Grindermen (sem er skipuđ sömu mönnum og The Bad Seedsen áherslurnar eru ađrar.  Til ađ mynda spilar Nick Cave á gítar međ Grindermen).  Ţannig mćtti áfram telja til ađ sýna ađ fjölbreytni er töluverđ á plötunni.

  Ég var búinn ađ ákveđa ađ fá mér plötuna međ Grindermen,  eins og plötur sem innihalda nokkur önnur lög á ţessari plötu,  svo sem međ Radiohead og Michael Franti & Spearhead.  Ég ţarf einnig klárlega ađ kynna mér New York-sveitina The National betur.  Ţađ er svo ljómandi gott lagiđ međ ţeim.

  Fjögur lög á ţessari plötu eru flutt af Íslendingum.  Margir munu fagna ţví ađ fá nú loks á plötu Freight Train í flutningi Lay LowÓlöfu Arnalds og Péturs Ben.  Lögin međ Jónasi SigurđssyniMugison og The Viking Giant Showeru meira spennandi.  The Viking Giant Show er nýja hljómsveitin hans Heiđars úr Botnleđju.

  Seinni platan er í einu orđi sagt frábćr.  Ég á 13 af 14 fyrstu lögunum á henni á plötum međ flytjendunum.  Nema Apache á ég í flutningi Links Wrays í stađ The Shadows.  Lagiđ ágćta međ sćnsku pönksveitinni Randy hafđi ég aldrei heyrt.

  Ţrjú lög til viđbótar á ţessari plötu á ég á plötum međ flytjendunum:  Chuck BerryEddie Cochran og Ram Jam.  Ţađ segir töluvert um ţessa safnplötu ađ ég skuli eiga rösklega 3/4 af lögunum á henni.  Er ţó á henni gamalt rokk og ról,  pönk,  mod,  ţungarokk og "bítlarokk".

  Íslensku lögin međ Utangarđsmönnum ogThor´s Hammer (Hljómum) standa útlendu perlunum í engu ađ baki.  Snilldarlög.

  Í samanburđi viđ ađrar safnplötur er áberandi hvađ Óli Palli hefur nćma tilfinningu fyrir heppilegri uppröđun laga.  Nćsta lag á undan skilur eftir stemmningu sem lađar fram helstu kosti nćsta lags á eftir.

  Ţađ sem gerir ţessa plötutvennu líka verulega eigulega er ađ henni fylgir 36 blađsíđna bćklingur.  Í honum er slíkt safn af fróđleik um lögin og flytjendur ađ hann einn og sér er rík ástćđa fyrir rokkáhugafólk til ađ eignast Rokkland 2007

   Plata 1

1. Mark Ronson And Daptone Horns – God Put A Smile Upon Your Face
2. Nephew – Igen & igen &
3. The Fratellis – Chelsea Dagger
4. The Klaxons – Golden Skans
5. Manic Street Preachers – Your Love Alone Is Not Enough
6. Interpol –The Heinrich Maneuver
7. Spoon –The Underdog
8. Radiohead – Reckoner
9. The National – Fake Empire
10. Lay Low, Ólöf Arnalds og Pétur Ben – Freight Train
11. Rufus Wainwright – Going To A Town
12. Amy Winehouse – Love Is A Losing Game
13. Michael Franti And Spearhead – Yell Fire!
14. Jónas Sigurđsson – Baráttusöngur uppreisnarklansins á skítadreifurunum
15. Rapture – Get Myself Into It
16. Modest Mouse – Dashboard
17. Blonde Redhead – 23
18. The Viking Giant Show – The Cure
19. Grinderman – No Pussy Blues
20. Mugison – Sweetest Melody

Plata 2

1. The Ramones – I Wanna Be Sedated
2. The Jam – Going Underground
3. Buzzcocks – Ever Fallen In Love? (With Someone You Shouldn't Have)
4. Utangarđsmenn – Fuglinn er floginn
5. The Skids – The Saints Are Coming
6. Randy – Win Or Lose
7. MC5 – Kick Out The Jams
8. The Clash – Janie Jones
9. The Fall – Victoria
10. The Runaways – Cherry Bomb
11. Little Richard – Long Tall Sally
12. Thor´s Hammer – I Don´t Care
13. Iggy And The Stooges – Search And Destroy
14. The Shadows – Apache
15. The Tornados – Telstar
16. Chuck Berry – Johnny B. Goode
17. Eddie Cochran – C'mon Everybody
18. Stray Cats – Rock This Town
19. Ram Jam – Black Betty
20. The Hives – Walk Idiot Walk
21. Johnny Kidd And The Pirates – Shakin' All Over
 


Ekki missa af ţessu!

  byrdslogothebyrds

  Einn af áhugaverđustu ţáttum í útvarpi er Geymt en ekki gleymt  međ Frey Eyjólfssyni á rás 2.  Freyr er afskaplega skemmtilegur útvarpsmađur og víđfróđur um músík.  Sömuleiđis er hann naskur á ađ tína til gamlar áhugaverđar plötur og fá flytjendur í heimsókn til ađ upplýsa eitt og annađ varđandi upptökur ţeirra.

  Síđasta laugardag tók Freyr hliđarspor frá hefđinni og bauđ upp á sinn besta og skemmtilegasta ţátt til ţessa.  Ţá fékk hann Gunna "Byrds" til ađ fara međ sér yfir meistarastykkiđ The Notorious Byrd Brothers međ bandarísku hljómsveitinni The Byrds.   

  Margir kannast viđ Gunnar sem plötusölumann hjá Hljóđfćraverslun Reykjavíkur,  Faco,  Japis,  Geisla og fleiri plötuverslana.  Gunnar hefur frábćra frásagnargáfu,  talar skýrt og skilmerkilega af yfirgripsmikilli ţekkingu um músík og gćđir frásögnina lífi međ skemmtilegum sögum og stađsetur hlutina í sögulegt samhengi.

  Gunnar var líka blađamađur í gamla daga.  Skrifađi um músík fyrir dagblađ sem hét Tíminn og Dagskrá vikunnar.  Góđur blađamađur sem hafđi mikil áhrif á minn músíkţroska á unglingsárum.

  Ţeir félagar,  Freyr og Gunni,  fóru á svo gott flug í ţćttinum ađ ég hef nokkrum sinnum endurspilađ á netinu mér til mikillar skemmtunar ţáttinn frá laugardeginum.  Ţátturinn er endurfluttur í kvöld eftir 10 fréttir í kvöld.

  Ţar fyrir utan er músíkin í ţćttinum eđal.  Platan The Nororious Byrd Brothers međ The Byrds er eitt af meistaraverkum rokksögunnar.  Plata sem áhugafólk um rokk og rokksöguna verđur ađ eiga og ţekkja til ađ vera viđrćđuhćft um ţađ sem hćst bar á ţessu tímabili í sögunni. 

  Missiđ ekki af Geymt en ekki gleymt í kvöld.  Ađ öđrum kosti;  finniđ ţáttinn á www.ruv.is og spiliđ hann aftur og aftur.

  Ég hvet ţá Frey og Gunnar eindregiđ til ađ láta ekki stađar numiđ viđ ţennan eina ţátt heldur taka fyrir fleiri plötur međ The Byrds á sama hátt.  Ég er byrjađur ađ hlakka til.  


Eiga Íslendingar ađ syngja á íslensku, ensku eđa kínversku?

  Eftirfarandi hugleiđingu setti ég inn sem athugasemd í umrćđu viđ fćrsluna "Smá klúđur međ Freight Train" hér fyrir neđan.  Meistari Magnús Geir benti mér á ađ setja ţetta inn sem sérstaka fćrslu.  Ég tek alltaf fullt mark á meistara Magnúsi.  Hér er hugleiđingin:

  Íslendingum er tamt ađ tjá sig hver viđ annan á íslensku.  Íslensk leikhús láta ţýđa erlend leikverk yfir á íslensku svo ţau séu bođleg til sýningar.  Íslensk kvikmyndahús og DVD framleiđendur láta ţýđa útlendar bíómyndir yfir á íslensku af sömu ástćđu.  Íslenskar fréttastofur birta okkur erlendar fréttir á íslensku.  Íslenskir rithöfundar ţýđa erlendar bćkur og ljóđ yfir á íslensku. 

  Á sama tíma vćla Íslendingar eins og stunginn grís ef afgreiđslumanneskja í matvöruverslun talar ekki kjarnyrta íslensku án hreims. 

  Íslenskum tónlistarmönnum er engin vorkunn ađ syngja á íslensku fyrir Íslendinga.  Ekki síđur ţegar ţeir kráka erlend lög.  Ţađ er metnađarleysi ađ afgreiđa erlend lög eins og hvern annan karíókí-slagara.  Síđustu ár - ekki síst í kjölfar Idol - hefur veriđ offrambođ á slíkum karíókí-plötum.  Góđu fréttirnar eru ađ ţćr hafa hver um ađra ţvera "floppađ" í sölu og eru flestum gleymdar í dag.

  Aftur á móti hefur tíminn unniđ međ metnađarfullum tónlistarmönnum sem tekiđ hafa erlend lög og gert ađ sínum.  Í ţeim tilfellum breytir engu ţó ađ frumgerđ lagsins sé vel ţekkt.

  Gott dćmi um ţetta er flutningur Flowers á einu ţekktasta lagi Arethu FranklinThink.  Flutningur Flowers á ţessu lagi međ íslenska textanum Slappađu af er svo magnađur ađ ótalinn fjöldi yngri flytjenda - til dćmis KK og PS & Co - hefur síđar einnig spreytt sig á laginu og víkja í fáu frá útgáfu Flowers.

  Hljómsveit Ingimars Eydals gerđi mörg lög ađ sínum međ góđum árangri.  Međal annars hiđ sívinsćla Sloop John B, sem í ţeirra flutningi er Ég er sjóari

  Ţannig mćtti áfram telja og fara yfir alla írsku slagarana sem Jónas Árnason orti íslenska texta viđ og Ţrjú á palli gerđu ađ sínum (og Papar síđar endurtekiđ leikinn).

  Vissulega má finna klaufalega íslenska texta viđ útlend lög,  rétt eins og viđ rekumst á lélegar ţýđingar á bíómyndum,  bćklingum og öđrum texta.  Ţćr mega ekki vera ástćđa til ađ íslenska sé afskrifuđ á ţessum vettvangi.  Ţvert á móti eiga ţćr ađ vera hvatning til ađ gera betur.  Sýna reisn og metnađ.


Klippt og skoriđ í Boston

  Miđbćr Boston er gjörólíkur úthverfinu sem ég dvaldi í.  Í úthverfinu eru hús lágreist svo langt sem auga eygir.  Í miđbćnum er mađur aftur á móti umkringdur skýjakljúfum og öđrum háhýsum,  líkt og í New York.  Eitt hverfiđ kallast Kínahverfiđ.  Ţađ ćtti frekar ađ kallast Asíuhverfiđ.  Ţarna eru japönsk veitingahús, verslanir og önnur fyrirtćki,  tćlensk,  víetnömsk,  indversk og svo framvegis.  Í ţessu hverfi eru líka veitingahúsakeđjur á borđ viđ McDonalds.  Munurinn er bara sá ađ ţarna eru merkingar á kínversku.  Og veitir ekki af.  Enskukunnáttu fólks í hverfinu er ábótavant.  Ţađ var gaman ađ smakka ýmsa framandi rétti.

  Ég lét klippa mig á kínverskri hárgreiđslustofu.  Ţar talađi enginn stakt orđ í ensku.  Auglýst verđ klippingarinnar var 10 dollarar, eđa 720 íslenskar krónur.  Ţađ er reyndar ekki alveg ađ marka bandaríska verđmiđa.  Ţeir eru án virđisaukaskatts.  Sama hvort um er ađ rćđa bjór eđa bíl.  Virđisaukaskatturinn bćtist ofan á uppgefiđ verđ.  Í Boston er hann ađeins 5%. 

  Til viđbótar er ćtlast til ađ viđskiptavinurinn greiđi fólki í ţjónustustörfum ţjórfé.  Einhverra hluta vegna stóđ ég í ţeirri trú ađ hćfilegt ţjórfé vćri 10% ofan á uppgefiđ verđ.  Í flugrútunni á leiđinni frá Keflavík var ég upplýstur um ađ hćfilegt ţjórfé í Bandaríkjunum miđist viđ 15%. 

  Ţetta ţýđir ađ ofan á uppgefiđ verđ bćtast 20% (5% vsk + 15% tips).

  Stundum heyri ég Íslendinga hćla sér af ţví ađ ţeir borgi ekki ţjórfé á ferđalögum erlendis.  Ţađ er ljótt.  Skamm,  skamm.  Ţjórfé er hluti af launum fólks í láglaunastarfi.  Ţegar svikist er um ađ borga ţjórfé er í raun veriđ ađ stela af launum ţess. 

  Ég hafđi ekki áhuga á öđrum verslunum en plötubúđum.  Ég fann 3 slíkar.  Ţar af var ein bara međ notađar plötur.  Úrvaliđ í ţeim öllum var afskaplega slakt.  Samt voru ţćr allar stórar.  Ein meira ađ segja á 5 hćđum.  Gallinn var sá ađ fátt var ađ finna međ öđrum flytjendum en ţeim sem njóta almennra vinsćlda.  Ţarna voru allar plötur međ Bítlunum,  Stóns,  Dylan,  Björk og Sigur Rós.  En engar plötur međ ţeim sem ég leitađi sérstaklega eftir. 

  Ég hef aldrei keypt jafn fáar plötur í utanlandsferđ.  Venjulega kaupi ég 30 - 40 plötur.  Núna voru ţađ bara ţessar:

JF

 - Revival  međ John Fogerty (nýjasta sólóplata forsprakka Creedence Clearwater Revival)

 - Elgin Avenue Breakdown Revisted  međ The 101ers (gamla hljómsveit Joes Strummers,  síđar söngvara The Clash)

 - Singles Going Steady međ The Buzzcocks (safnplata međ smáskífulögum bresku pönksveitarinnar The Buzzcocks frá ´77 - ´79)

Ministry

 - Cover Up međ Ministry (splunkuný krákuplata frá ţessum meisturum bandaríska "industrial" metalsins.  Ţarna eru lög eins og Under My Thumbs frá Stóns Supernaut eftir Black SabbathSpace Truckin´ eftir Deep Purple,  Roadhouse Blues eftir The DoorsBlack Betty eftir Leadbelly o.fl. spennandi).  Ţađ er hörkuliđ á ţessari plötu međ Al Joergensen og félögum.  Međal annars hljóđfćraleikarar úr Fear FactoryProngRevCo og Killing Joke.

 - Dread Kennedys - In Dub We Trust međ ýmsum reggíflytjendum sem spreyta sig á lögum eftir bandarísku pönksveitina Dead Kennedys.  Vel á minnst.  Kennedy-slektiđ er frá Boston.

 - Natural međ bresku cow-pönk sveitinni Mekons,  ţeirra nýjasta plata.  Mekons byrjuđu sem hreinrćktuđ pönkhljómsveit á áttunda áratugnum en músík ţeirra ţróađist hćgt og bítandi í kántrý-átt ţó oft eigi hljómsveitin góđa rokkspretti í bland.

bryan ferry

 - Frantic međ Bryan Ferry.  Ég reikna ekki međ ađ ţetta sé merkileg plata.  En ţarna krákar Ferry lög eftir DylanLeadbelly og fleiri.  Ţađ er gaman ađ tékka á ţeim.

comicopera

 - Comicopera međ Robert Wyatt.  Ţessi plata var á mörgum listum yfir bestu plötur síđasta árs.  Ţarna spila međ ţessum fyrrum trommuleikara og söngvara Soft Machine menn eins Brian Eno á hljómborđ,  Paul Weller (úr The Jam) og Phil Manzanera (úr Roxy Music) á gítara.  

  Robert Wyatt syngur á Medúllu-plötu Bjarkar.  Og talandi um Björk:  Í plötubúđum í Boston er plata sem heitir Ice.  Ţar spilar strengjasveit einungis lög eftir Björk.

  Plöturnar sem ég keypti kostuđu frá 760 til 1440 ísl. kr.

 


Bestu rokk og ról hljómsveitir sögunnar

  Undanfarnar vikur hefur stađiđ yfir skođanakönnun á heimasíđu enska poppblađsins New Musical Express.  Ţar er leitađ ađ bestu rokk og ról hljómsveitum sögunnar.  Skođanakönnunin gengur ţannig fyrir sig ađ gefnar eru upp helstu rokk og ról hljómsveitir heims og lesendur fá ţađ hlutverk ađ gefa ţeim einkunn frá 1 og upp í 10.

  Röđin á sigurvegurunum hefur ekkert breyst í háa herrans tíđ.  Ţađ má ţví ćtla ađ hún sé orđin endanleg.  Ţannig er stađan:

1.   Oasis  8,86

2.   Bítlarnir  7,79

3.   Jimi Hendrix Experience 7,55

4.   The Rolling Stones 6,74

5.   The Clash 6,67

6.   Led Zeppelin 6,60

7.   The Who  6,57

8.   Nirvana  6,33

9.   Manic Street Preachers  6,17

10. The Smiths 6,13

11. Radiohead 5,99

12  Pink Floyd 5,99

13. Sex Pistols 5,97

14. The Stone Roses 5,84

15. Joy Division 5,72

16. The Doors 5,68

17. The Ramones 5,68

18. The Libertines 5,66

19. Blur 5,62

20. The Kinks 5,61  

  Gaman vćri ađ heyra hversu sammála eđa ósammála ţiđ eruđ útkomunni.  Sjálfur tel ég Oasis vera ofmetna hljómsveit og alls ekki nógu öfluga til ađ vera í 1. sćtinu.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband