Fćrsluflokkur: Tónlist

Diskó og pönk

  Ég kíkti á skemmtilega sýningu í Árbćjarsafni.  Hún heitir Diskó og pönk.  Ţar hitti ég tónlistarmann frá Akureyri sem stundar íshokkí.  Ég nefndi viđ hann ađ mér ţćtti gaman ađ sjá á sýningunni sitthvađ sem ég kom ađ á sínum tíma.  Međal annars auglýsingu pönkplötubúđinni minni Stuđ.

  Mađurinn sagđist ţá hafa keypt plötur í póstkröfu frá búđinni.  Ţađ sem honum ţótti sérkennilegt var ađ ásamt plötunum innihélt pakkinn límbandsrúllu,  reglustriku,  tússpenna og samanbrotin auglýsingaplaköt fyrir pönkplötur. 

  Hann mundi eftir ţví ađ hafa beđiđ um hrađafgreiđslu á plötunum vegna ţess ađ ţćr átti ađ nota á diskóteki um helgina.

  Ţarna hafđi greinilega einhver veriđ ađ flýta sér um of viđ ađ ganga frá póstkröfunni. 

  Eftir smá spjall rifjađi ég upp ađ eitt sinn hafđi Sćvar frćndi minn Sverrisson,  međeigandi búđarinnar,  söngvari og frábćr náungi,  veriđ ađ flýta sér svakalega viđ ađ senda póstkröfu til Akureyrar.  Hann hafđi ţann hátt á ađ nota reglustriku viđ ađ skrifa utan á póstkröfur.  Í umrćddu tilfelli týndi hann reglustrikunni í miđju kafi og gleymdi ađ bćta krók undir y í Akureyri. 

  Tveimur dögum síđar var hringt frá Akureyri.  Viđmćlandinn hellti sér yfir Sćvar fyrir ađ skrifa einfalt i í Akureyri.  Hótađi ađ hćtta frekari viđskiptum viđ Stuđ-búđina ef menn gćtu ekki lćrt ađ skrifa y í Akureyri.  Sćvar reyndi ađ slá ţessu upp í létt grín.  Ţá spurđi viđkomandi ţessarar áleitnu spurningar:

  "Hvernig myndi ţér líđa ef ţú fengir póstkröfu ţar sem ekkert y vćri í Reykjavík?"

  Mađurinn sem ég hitti í Árbćjarsafni taldi sig ráma í ađ vera sá sem gerđi ţessa athugasemd.  Sem er merkilegt ţar sem viđ afgreiddum daglega 3 - 5 póstkröfur.  


Skondiđ atvik rifjađ upp

Europe_Band_Screenshot 

  Vegna frétta um ađ söngkonan Kim Wilde hafi gist á Egilsstöđum fyrir helgi ţegar hún var á leiđ til Fćreyja ţá rifjađist upp skemmtilegt atvik.  Ţađ átti sér stađ á G!Festivali í Götu í Fćreyjum fyrir 2 árum.  Međal ţeirra sem ţar komu fram voru gömlu jálkarnir í sćnsku ţungarokkshljómsveitinni Europe.  Síđhćrđir miđaldra liđsmenn hljómsveitarinnar skáru sig dálítiđ úr í samanburđi viđ stuttklippta ungliđa annarra hljómsveita. 

  Ţarna var einnig stelpnahljómsveit frá Vestmannaeyjum,  VaGínas.  Í augum stelpnanna í VaGínas litu karlarnir í Europe allir eins út:  Gamlingjar međ sítt hár sem ţeir allir skiptu í miđju.  Stelpurnar fengu ţó stjörnur í augun ţegar ţćr gengu fram á einn Europe-liđann daginn eftir.  Ţćr drógu í hvelli upp penna og blöđ til ađ herja út eiginhandaráritanir.  Jafnframt ljósmynduđu ţćr sig í bak og fyrir međ heimsfrćgu poppstjörnunni.  Ţeim ţótti spaugilegt ađ ţessi heimsvana súperstjarna fór hjá sér viđ ákafa og hrifningu stelpnanna.  Hann var hreinlega feiminn viđ ţćr.

  Á heimleiđ til Íslands sýndu stelpurnar samferđarfólkinu afrakstur ferđarinnar:  Myndir af karlinum úr Europe og eiginhandaráritanir hans.  Ţeir sem betur ţekktu til Europe sáu strax ađ myndirnar voru ekki af neinum úr Europe.  Nafniđ á eiginhandaráritunum,  Jógvan á Heygum,  passađi heldur ekki viđ neinn í Europe.  En hljómar mjög fćreyskt. 

 

 


mbl.is Fćreysk tónlistarhátíđ fauk út í veđur og vind
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Annađ lag međ Gyllinćđ

  Ég var ađ bćta viđ í tónspilarann öđru lagi međ hljómsveitinni Gyllinćđ,  Gamall mađur í hjólastól.  Eins og hitt lagiđ međ Gyllinćđ,  Djöflakallinn,  var ţađ hljóđritađ viđ frumstćđar ađstćđur á segulbandstćki á ćfingu hjá hljómsveitinni ţegar hún var nokkurra daga gömul.  Strákarnir voru bara 14 - 15 ára gamlir.  Ţetta er ţess vegna skemmtilega ferskt.  Einungis gítar,  trommur og söngur.  Textinn er sóttur í frétt af ţví ţegar Hljómabítillinn Engilbert Jensen varđ fyrir barđinu á handrukkurum.  Textinn er kannski dálítiđ yfirkeyrđur.  En lagiđ er flott og hressandi.

Fariđ yfir úrslit í skođanakönnun um bestu íslensku lagahöfundana

  Fyrir nokkrum dögum lauk skođanakönnun um bestu íslensku lagahöfunda rokkgeirans.  Međ orđinu rokkgeiri á ég viđ lagahöfunda sem hafa starfađ í rokkhljómsveitum og eiga heima í sögu rokksins. 

  Upphaflega miđađi ég viđ ađ könnunni lyki viđ 500 greidd atkvćđi.  Ţar međ vćri niđurstađan marktćk.  Frá fyrstu 50 greiddum atkvćđum lá endanleg röđ fyrir.  Hún breyttist ekkert.  Nema hvađ ađ Megas og Bubbi skiptust á 1. og 2. sćti alveg upp ađ 584 greiddum atkvćđum.  Munurinn var svo lítill og ţeir skiptust svo reglulega á sćtum ađ ég tók til ráđs ađ láta kjósa sérstaklega á milli ţeirra tveggja.

  Í ţví tilfelli miđađi ég líka viđ ađ könnunni lyki viđ 500 greidd atkvćđi.  Ţau hlóđust hinsvegar svo hratt inn ađ fyrr en varđi voru ţau orđin 900 og úrslit orđin afgerandi. 

  Niđurstađan er ţessi:

1.  Megas (63,3%)

  Mörgum hćttir til ađ líta framhjá snilli Megasar sem lagahöfundar.  Fólk einblínir í hans mörgu frábćru texta hans og gleymir ađ hlusta eftir og meta magnađar laglínur hans.  Ţetta sama henti Bob Dylan framan af.  Söngstíllinn er ekki fagurfrćđilega góđur,  truflar marga,  en textarnir eru slíkt konfekt ađ ţeir skyggđu á flottar laglínur.  Ţađ var ekki fyrr en ađrir fóru ađ flytja lög Dylans sem menn áttuđu sig á ţví ađ lögin eru ekki síđri textunum. 

  Enn í dag átta ýmsir sig ekki á ţví hvađ Megas er góđur lagahöfundur.  Ţađ hefur ţó veriđ ađ opinberast ć betur ţegar lögin eru flutt af öđrum.  Ţrjár plötur hafa komiđ út međ einungis söngvum Megasar í flutningi annarra.  Ţar af tvćr í fyrra.  Í fljótu bragđi held ég ađ annar íslenskur lagahöfundur hafi ekki veriđ heiđrađir jafn oft á ţennan hátt.

  Sem lagahöfundur rćđur Megas viđ marga stíla.  Mörg lög hans eru gullfalleg og seyđandi.  Dćmi um ţađ eru Tvćr stjörnur og Fílahirđirinn.  Önnur eru grípandi slagarar.  Dćmi:  Spáđu í mig og Fatlafól.  Rútubílasöngvar og vinsćl dansiballalög.  Fyrrnefnda lagiđ hefur veriđ "coverađ" af Kolrössu krókríđandi og Bjögga Halldórs.

  Megas er vel ađ titlinum besti íslenski lagahöfundurinn kominn.     

2.  Bubbi (36,3%)

  Sennilega liggja fleiri lög eftir Bubba á plötum en ađra Íslendinga.  Ađ minnsta kosti síđustu 27 ár. Kannski er Gunni Ţórđar á svipuđu róli ef viđ teljum frá 1964.  Bubbi á afar létt međ ađ hrista fram úr erminni slagara međ grípandi krćkjum.  Mér er minnisstćtt ţegar hann skilađi af sér ónefndri plötu.  Útgefandinn nefndi viđ hann ađ ţađ vantađi "smelli" á plötuna.  Ţeir ţyrftu helst ađ vera tveir.  Bubbi fór heim og samdi tvo slíka um kvöldiđ.  Daginn eftir voru ţeir hljóđritađir međ hrađi og slógu rćkilega í gegn.

  Ađ óreyndu reiknađi ég međ ađ Bubbi myndi sigra í ţessari skođanakönnun.  Gífurlegar og stöđugar vinsćldir hans vísuđu í ţá átt.  Ég ćtla ekki ađ gera lítiđ úr hans hćfileikum sem góđs lagahöfundar ţó ađ ég lýsi yfir ánćgju međ ađ ţćr hafi ekki ráđiđ úrslitum í ţessum leik.  Enda er ţađ ekki lítill titill ađ vera annar tveggja bestu íslensku lagahöfunda.

  Til gamans má geta ađ lög Bubba njóta mikilla vinsćlda í Fćreyjum.  Ţau eru spiluđ á ţarlendum böllum og hljómleikum.  Ég á sömuleiđis tvćr fćreyskar plötur ţar sem lag hans Talađ viđ glugganner "coverađ".  

3.  Magnús Eiríksson (11,7%)

  Ég kaus Magga Eiríks í ţessari könnun.  Ég tel hann vera jafnbesta lagahöfund landsins.  Hann sendir aldrei frá sér slöpp lög (en ţađ hafa bćđi Bubbi og Megas gert).  Hann semur gríđarlega mörg lög og er allra lagahöfunda mest gagnrýninn á sjálfan sig.  Sonur minn hefur heyrt kassettur međ lögum eftir Magga sem hefur veriđ hent í rusliđ.  Fín lög en ekki nógu öflug ađ mati höfundar.

4.  Gunnar Ţórđarson (11,3%)

  Ţađ munar ađeins % broti á Magga og Gunna.  Eins og Ásthildur Cesil benti á hér á öđrum stađ á blogginu ţá hefur Gunni ekki veriđ áberandi ađ undanförnu.  Ég tel ţessa fjóra bestu lagahöfunda landsins vera í sérflokki:  Gunna,  Magga,  Bubba og Megas.  Ţeir eru toppurinn burt séđ frá ţví í hvađa sćti ţeir lentu nákvćmlega.   

5.  Magnús Ţór Sigmundsson (4,7%)

  Ađ óreyndu hélt ég ađ Jóhann yrđi í 5. sćti en Magnús Ţór í ţví 6.  En Magnús Ţór leynir á sér.  Ísland er land ţitt er klassík.  Ţađ er líka ansi magnađ lagiđ eftir hann sem Ragnheiđur Gröndal söng.  Man í augnablikinu ekki hvađ ţađ heitir.  Lög Magnúsar Ţórs eru ekki beinlínis slagarar heldur ţćgileg lög sem lifa án ţess ađ fólk fái leiđa á ţeim.

6.  Jóhann Helgason (4,0%)

  Jói Helga er lunkinn lagahöfundur.  Sum lög hans eru ţannig ađ mađur hugsar um ţau sem eitthvađ sem getur sómt sér vel á alţjóđamarkađi.  Ţađ háir kannski lagasmíđum Jóa ađ ţau "renna" öll ljúflega en rífa ekki verulega í.  Ţessi annmarki kemur best fram á sólóplötum hans.  Hvert og eitt lag er fínt út af fyrir sig en ekkert brýtur upp stemmninguna og gargar á mann. 

7.  Jóhann G. Jóhannsson (3,0%)

  Jói G.  samdi mörg góđ lög međ Óđmönnum og á sólóplötum.  Síđan fór hann ađ semja misgóđ lög fyrir ađra.  Eđa öllu heldur mismetnađarfull lög fyrir ađra.  Eftir stendur ađ lag hans Don´t Try to Fool Me er tvímćlalaust eitt allra besta íslenska lag poppsögunnar.


Úrslit í könnun um besta íslenska lagahöfundinn

 megas

   Núna liggja fyrir úrslit í könnun um ţađ hverjir eru bestu íslensku lagahöfundarnir.  Ég einskorđađi valiđ viđ ţá sem eru innan marka rokkgeirans.  Ţar međ útilokađi ég góđa vísnasöngvahöfunda og ýmsa sem falla utan rokksögunnar:  Atla Heimi,  Jón Múla,  Jón Ásgeirsson,  Hörđ Torfa,  Bergţóru Árnadóttur o.s.frv.  Ađrir bloggarar verđa ađ gera könnun um heildardćmiđ ef áhugi er fyrir hendi.

  Könnunin fór fram í fjórum stigum.  Fyrst fékk ég sérstaka 30 manna dómnefnd til ađ tilnefna ţá lagahöfunda sem helst komu til greina.  Sá listi var langur og viđ tók grimmur niđurskurđur.  Mörgum til skapraunar og ósćttis.  Líka mér.  En beygđi mig samt undir rök.  Ţegar á reyndi voru Megas og Bubbi hnífjafnir upp fyrir 500 atkvćđi.  Eftir samráđ viđ dómnefnd og bloggara lét ég kjósa sérstaklega á milli ţeirra 2ja.  Ég ćtlađi ađ láta marktćk 500 atkvćđi ráđa.  En áđur en ég vissi af voru atkvćđin orđin 900 og raunhćf úrslit lágu í höfn.  Niđurstađan breyttist ekkert frá 500 atkvćđum til 9oo. 

  Ţannig lýtur listinn út:

1.  Megas (63,3%)

2.  Bubbi (36,3%)

3.  Magnús Eiríksson (11,7%)

4.  Gunnar Ţórđarson (11,3%)

5.  Magnús Ţór Sigmundsson (4,7%)

6.  Jóhann Helgason (4,0%)

7.  Jóhann G. Jóhannsson (3,0%)

  Samkvćmt öllum forsendum marktćkrar könnunar telst Megas vera besti íslenski lagahöfundur rokkgeirans.   


Hverjir hafa "coverađ" flest lög eftir Bob Dylan?

 Joan Baez og Bob Dylan

  Ţessi listi er í nýjasta hefti breska tónlistarblađsins Uncut.  Hann tekur ţess vegna fyrst og fremst miđ af engilsaxneska plötumarkađinn.  Ég hef séđ í skandinavískum plötubúđum heilu plöturnar ţar sem skandinavískir söngvarar syngja lög Dylans.  Eflaust eru líka til minna ţekktir engilsaxneskir söngvarar sem hljóđritađ hafa lög eftir Dylan.  En ţannig er listinn í Uncut:

1.  Joan Baez (29 lög)

2.  Judy Collins (23 lög)

3.  The Byrds (21 lag)

4.  Greatful Dead (19 lög)

5.  Fairport Convention (17 lög)

6.  Bryan Ferry (14 lög)

7.  Joe Cocker (10 lög)

8.  Rod Stewart (9 lög)

9.  Johnny Cash (6 lög)

  Hvert lag er taliđ bara einu sinni ţó ađ viđkomandi flytjandi hafi sungiđ ţađ inn á plötur í fleiri en einni útsetningu.     


Frábćr hljómsveit

I Adapt

  Aldrei ţessu vant átti ég í kvöld leiđ í bílastćđi fyrir framan skemmtistađinn Classic Rock sportbar í Ármúla 5.  Ég hafđi ekki fyrr skrúfađ niđur bílrúđurnar en yndisleg músík barst mér til eyrna.  Krafturinn var meiri en hjá Geirmundi Valtýs.  Ţarf kannski ekki mikiđ til (nei,  ég segi svona í hálfkćringi.  Geirmundur er sveitungi minn úr Skagafirđinum og góđur fyrir sinn hatt.  Bara ekki afgerandi í harđkjarnanum.  Hann er meira í skagfirsku sveiflunni).   Söngurinn var sömuleiđis ţróttmeiri.  Rokkiđ var heldur harđara en hjá hefđbundnum laugardagsballhljómsveitum. 

  Ég gekk á heillandi hljóđiđ.  Á sviđinu blasti viđ hljómsveitin I Adapt.  Og komin međ tvo gítarleikara,  sem gerirsándiđ ţéttara.  Mér var vorkunn fyrir ađ kveikja ekki strax á perunni ţví ađ ţessi frábćra hljómsveit var ađ spila ný lög sem koma út á plötu eftir hálfan mánuđ.  Aldeilis meiriháttar flott lög.  Ég einhenti mér í ţađ auđleysta verkefni ađ tryggja mér eintak af plötunni á útgáfudegi. 

  Ef platan hljómar eins og hljómleikarnir er mér óhćtt ađ hlakka til.  Ég ţarf svo sem ekki ađ hafa áhyggjur af ađ tilhlökkunin sé ástćđulaus.  Ég á fyrri plötur ţessara snillinga.

  Svo skemmtilega vildi til í fyrra ađ ég álpađist óbeđinn og stjórnlaus inn í pönkplötubúđ í Berlín.  Á međan ég tók út stöđuna á plötulager búđarinnar hljómađi úr hátölurum kunnuglegt lag.  Ég áttađi mig samt ekki á ţví hver var flytjandinn.  Ég spurđi afgreiđslufólkiđ út í ţađ.  Mér til ánćgjulegrar undrunar lyfti afgreiđslumađur upp umbúđum af plötu međ I Adapt.  Hann lét ţess jafnframt getiđ ađ ţetta vćri flott hljómsveit frá Íslandi. 

  Ég átti flest lögin á plötunni á annarri plötu međ öđruvísi umslagi.  En var snöggur ađ kaupa ţessa.  Afgreiđslumađurinn dró upp ţýskt tímarit og benti mér ţar á jákvćđa dóma um plötur međ I Adapt.  Ég herjađi út úr honum blađiđ og heimkominn arfleiddi ég Birki Fjalar,  söngvara I Adapt,  ađ blađinu.  Enda hefđi hann ekki trúađ sögu minni án ţessa mikilvćga sönnunargagns.     


10 mest óţolandi dćgurlögin

  Hér er listi yfir ţau 10 dćgurlög sem pirra fólk mest.  Listinn er unninn af blađamönnum bandaríska tímaritsins Rolling Stone,  međ ađstođ 400 lesenda.  Blessunarlega hefur ţetta fólk ekki heyrt lag Eyjólfs Kristjánssonar um Nínu - fyrst ađ ţađ er ekki á listanum.  Gaman vćri heyra hvađa íslensk lög ţiđ eigiđ erfiđast međ ađ ţola.

 1.  Black Eyed Peas, “My Humps”
2.   Los Del Rio,         “Macarena”
3.   Baha Men,           “Who Let The Dogs Out”
4.   Celine Dion,        “My Heart Will Go On”
5.   Nickelback,          “Photograph”
6.   Lou Bega,           “Mambo No. 5″
7.   James Blunt,       “You’re Beautiful”
8.   Spice Girls,          “Wannabe”
9.   Sisqo,                 “The Thong Song”
10. Cher,                  “Believe”


Hremmingar Billa Start

  Tónlistarmađurinn Billy Start varđ fyrir sérkennilegri reynslu á dögunum.  Heimilissíminn hans ţagnađi.  Hann kippti sér ekki upp viđ ţađ.  Reiknađi međ ađ viđgerđ stćđi yfir hjá Símanum eđa eitthvađ álíka.  Slíkt hendir. 

  Ţađ nćsta sem gerđist var ađ vinir Billa sögđu honum ađ mađur úti í bć vćri farinn ađ svara í símann fyrir hann.  Viđ eftirgrennslan kom í ljós ađ Síminn hafđi tekiđ símanúmeriđ hans Billa og afhent ókunnugum. 

  Billy hefur haft ţetta sama símanúmer til fjölda ára.  Hann hefur alltaf borgađ símreikninginn á gjalddaga. 

  Ţegar Billy hafđi samband viđ Símann mćtti hann bara dónaskap.  Viđurkennt var ađ um mistök vćri ađ rćđa.  En lítill vilji reyndist vera fyrir ţví ađ leiđrétta ţau.  Var helst á mönnum ađ heyra ađ svona vćri ţetta og Billy yrđi ađ sćtta sig viđ ţađ.  

  Ţađ var ekki fyrr en í fimmta símtali viđ Símann sem loksins var fallist á ađ Billy fengi númeriđ sitt aftur.  Ţá var fariđ ađ ţyngjast í Billa og hann farinn ađ byrsta sig.  Daginn eftir var kominn sónn í símann hjá honum.

  Í engu af ţeim 5 símtölum sem Billy átti viđ Símann var beđist afsökunar á mistökunum.  

  Nú bíđur Billy spenntur eftir nćsta símreikningi.  Ţađ verđur forvitnilegt ađ vita hver verđur rukkađur fyrir símtölin sem ókunnugi mađurinn hringdi úr símanúmeri Billa.   


Ósvífni í plötusölu

  Vegna umrćđu sem spannst út frá fćrslu hér fyrir neđan um Sambandsleysi rifjađist upp fyrir mér 30 ára gömul bernskubrek.  Ţau eru fyrnd.  Ţess vegna er mér óhćtt ađ leysa frá skjóđunni. 

  Ég var fátćkur námsmađur.  En sótti ţá sem nú í plötubúđir.  Ég stal slatta af plötum í flestum ţessara plötubúđa.  Var laginn viđ ţađ.  Sem kom sér vel ţegar ég setti upp Stuđ-pönkbúđina.  Ţá sá ég strax ef einhver var í ţjófnađarpćlingum. 

  Ein af ţeim búđum sem ég heimsótti hét Plötuportiđ.  Hún var til húsa í portinu gegnt Máli og Menningu á Laugarvegi (ţar sem Gramm var síđar).   Ég hafđi aldrei stoliđ plötu ţar.  En stal mörgum eftir ţann atburđ sem nú greinir frá.

  Í Plötuportinu rakst ég plötusamloku međ Yoko Ono.  Ţessi tvöfalda plata fékkst ekki í öđrum plötubúđum í Reykjavík.   Ég keypti hana.

  Ţegar ég spilađi plöturnar heima kom í ljós ađ pressun á ţeim var gölluđ.  Litlar bólur hér og ţar komu í veg fyrir ađ hćgt vćri ađ spila sum lögin óbrengluđ (nálin hoppađi ţegar hún mćtti bólunum).  Útgefandinn var Apple,  plötufyrirtćki Bítlanna.  Ţar á bć höfđu menn tekiđ upp á ţví ađ í stađ ţess ađ henda lítillega gölluđum plötum međ öđrum en Bítlunum var skellt á ţćr brúnum myndum af epli (í stađ grćns) og plöturnar seldar á smotterí til ađ gefa fólki kost á ţví ađ kynnast músík artista fyrirtćkisins. 

  Plötuportiđ hafđi keypt plötur á "slikk" en seldi á fullu verđi.  Ţegar ég ćtlađi ađ skila gallađri plötunni í Plötuportinu var ekki viđ ţađ komandi..  Ég gekk í Neytendasamtökin og fékk ţau í liđ međ mér.  Eftir mikiđ ţref, mikil lćti og hótanir tókst ađ skila plötunni og fá inneignarnótu. 

  Ég var ósáttur yfir ósvífninni hjá Plötuportinu.  Ég tók óáteknar kassettur út á inneignina og stal nokkrum plötum í leiđinni.  Hélt síđan áfram nćstu vikur ađ stela plötum ţar.  Rispađi líka slatta af plötum í plöturekkunum og víxlađi hellingi af plötum á milli plötuumslaga. 

  Á ţessum árum fengu allir útborgađ á föstudögum.  90% af allri plötusölu fór fram á föstudögum.  Ég eyđilagđi nćstu föstudaga hjá Plötuportinu.  Mćtti viđ inngang Plötuportsins fyrir opnun og braut tannstöngla í skráargati útihurđarinnar.  Sprautađi stundum lími (tonnataki) í skráargatiđ og í öđrum tilfellum sílikoni í hurđarfalsinn. 

  Oft var vel liđiđ á dag áđur en tókst ađ opna búđina viđ illan leik međ tilheyrandi kostnađi. 

  Í símaskránni fann ég nöfn fólks úti á landi.  Ég hringdi í ţeirra nafni ítrekađ í Plötuportiđ og bađ um vćna pakka af hinum ýmsu vinsćlu plötum í póstkröfu. 

  Ţađ var gaman ađ fylgjast međ starfsfólki Plötuportsins ţramma međ fangiđ fullt af póstkröfupökkum á Pósthúsiđ.  Jafn gaman var ađ fylgjast međ ţví ţramma međ sömu pakka aftur í verslunina af Pósthúsinu.  Viđtakendur höfđu ekki leyst út póstkröfurnar.  Plötuportiđ sat uppi međ póstkostnađ.

  Ég sendi út um allan heim rándýr símskeyti međ löngum textum á símanúmer Plötuportsins.  Las upp heilu greinarnar úr poppblöđum í ţessi skeyti.  Ágreiningur vegna reikninga fyrir ţessi skeyti leiddi til ţess ađ Síminn lokađi síma Plötuportsins.  Ţađ var ekki gott fyrir plötubúđ ađ vera međ lokađan síma.  Kaupendur hringdu iđulega í plötubúđir til ađ vita hvort ađ ţessi eđa hin platan fengist,  létu símleiđis taka frá fyrir sig plötur og pöntuđu plötur í kröfu út um allt land.   

  Áđur en símanum var lokađ hélt ég símalínu Plötuportsins heilu og hálfu dagana.  Fór í símklefana á Lćkjartorgi.  Hringdi í Plötuportiđ og fyllti peningarennuna af tíköllum. 

  Ţegar mest var ađ gera í Plötuportinu síđdegis á föstudögum pantađi ég tertur og fleira,  međal annars frá Hressingarskálanum og víđar,  í Plötuportiđ.  Ţađ var skondiđ ađ fylgjast međ starfsfólki Plötuportsins eiga í erfiđleikum međ ađ afgreiđa viđskiptavini vegna leigubílstjóra međ fangiđ fullt af rjómatertum reyna ađ fá greitt fyrir pöntunina.

  Sitthvađ fleira dundađi ég mér viđ til ađ hefna mín á ófyrirleitni Plötuportsins.  Ég er áreiđanlega búinn ađ gleyma mörgum hrekkjunum.  Ţađ liđu ekki margir mánuđir ţangađ til Plötuportiđ lokađi.  Reksturinn var í klessu.  Ég hugsađi međ mér ađ ţar međ vćri lokiđ ósvífnum verslunarháttum ţar á bć.

  Fyrir örfáum árum komst eigandi Plötuportsins í fréttir.  Ţá rak hann gistiheimili.  Hann fékk ţann frćgan handrukkara til ađ lemja í klessu einn leigjanda sinn.  Sá var fárveikur og međ hendur í gipsi eftir handleggsbrot.  Handrukkarinn fékk dóm fyrir barsmíđarnar.  Mig minnir ađ eigandinn heiti Ragnar.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband