Færsluflokkur: Menning og listir

Þegar Paul McCartney yfirtók frægustu hljómsveit heims

  9. október 1956 fagnaði ungur drengur í Liverpool í Englandi 16 ára afmæli.  Hann hét John Lennon.  Nokkrum dögum síðar stofnaði hann hljómsveit,  The Quarrymen.  Hún spilaði svokallaða skiffle tónlist.  John söng og spilaði á gítar.  Hljómsveitin fékk nóg að gera.

  Um sumarið gekk 15 ára piltur,  Paul McCartney, til fundar við John.  Hann langaði í hljómsveitina.  John dáðist að tónlistarhæfileikum hans og bauð hann velkominn um borð.

  Skólabróðir Pauls,  George Harrison,  var lipur gítarleikari.  Hann var aðeins 14 ára.  Á þessum aldri munar miklu um hvert ár.  John hugnaðist ekki að verða barnapía.  Paul suðaði og fékk að leyfa George að djamma með hljómsveitinni.  Hann náði að heilla John seint og síðarmeir.

  Eftir nokkrar mannabreytingar endurnefndi John hljómsveitina The Beatles,  kölluð Bítlarnir á Íslandi.  1962 tók Ringo Starr við trommukjuðunum.  Þar með var hljómsveitin komin í sitt endanlega horf.  Hún var alla tíð hljómsveit Johns.  Hann réði ferðinni,  samdi og söng flest lögin.  Hann lagði þó ríka áherslu á að Bítlarnir væru hljómsveit jafningja.  Hún lagði undir sig heimsmarkaðinn svo rækilega að aldrei verður saman jafnað.

  Adam var ekki lengi í Paradís.  Vinsældirnar og frægðin fóru að þjaka John.  Hann var varð óhamingjusamur.  Hann varð faðir án áhuga á því hlutverki.  Hann var í ástlausu hjónabandi.  Honum þótti Bítlarnir vera sirkusatriði.  Hvorki öskrandi áheyrendur né Bítlarnir sjálfir heyrðu hvað fór fram á sviðinu.  Að auki hafði hann ekki unnið úr ótal áföllum æskuáranna.  Foreldrarnir stungu drenginn af og hann hitti þau ekki fyrr en á fullorðinsárum.  Ströng og snobbuð frænka hans ól hann upp.  Hún var ekkert fyrir að faðma eða knúsa barn.  Maður hennar var hressari.  Hann dó er John var 12 ára.  Þegar hann á unglingsárum hitti mömmu sína var hún drepin af ölvuðum bílstjóra.  Áfram mætti lengi telja.

  1966 féllst umboðsmaður Bítlanna,  Brian Epstein,  á að hljómsveitin hætti hljómleikahaldi.  Ári síðar dó hann.  Það var enn eitt áfallið.  Hann hafði leitt hljómsveitina frá fyrstu skrefum og í gegnum ofurvinsældirnar.  Viðbrögð Johns voru að hella sér út í harða eiturlyfjaneyslu.  Upp frá því var hann hálfur út úr heimi,  áhugalítill og latur.  

  Viðbrögð Pauls voru ólík.  Hann var og er mjög ofvirkur en líka stjórnsamur.  Hann tók eiginlega við af Brian Epstein.  Bókaði hljómsveitina í hin ýmsu verkefni með misjöfnum árangri.  Verra var að ofríki hans pirraði George og Ringo.  Báðir hættu í hljómsveitinni um tíma.  Hinsvegar var Paul diplómatískari í samskiptum við John,  vitandi að hann léti ekki að stjórn.  Á síðustu Bítlaplötunum semur Paul, syngur og útsetur flest lög.

  Án ofvirkni Pauls og eftirrekstrar hefðu plötur Bítlanna orðið tveimur færri eða rúmlega það.


Furðulegur hundur

  Einu sinni sem oftar spilaði færeyski píanóleikarinn Kristian Blak fyrir dansi í Þórshöfn í Færeyjum.  Úti var grenjandi rigning og kalsaveður.  Fyrir dansleikinn þurfti að bera hljóðfæri og hljómkerfi í hús.  Stór skoskur hundur stillti sér upp við útidyrnar.

  Kristian spurði hundinn hvort hann langaði að koma inn úr rigningunni.  Sá var snöggur að þiggja boðið.  Hann lagði sig á sviðið og fylgdist síðan með fólkinu dansa.  Einn af hljóðfæraleikurunum átti erindi út á gólf.  Hundurinn spratt á fætur og reisti sig upp framan á hann.  Maðurinn steig dansspor með honum.  Er maðurinn ætlaði aftur upp á svið mótmælti hann með frekjulegu gelti og lagðist þétt framan á hann.  Þetta vakti kátínu.  Þeir dönsuðu í smástund uns maðurinn sagði voffa að hann verði að spila með hljómsveitinni.  Það var eins og blessuð skepnan skildi;  stökk upp á svið og lagði sig á ný.

  Er dansleik lauk elti hvutti Kristian heim.  Veður var ennþá svo leiðinlegt að Kristian bauð honum inn.  Útskýrði jafnframt fyrir honum að hann yrði að fara um morguninn áður en húsfrúin vaknaði.  Hún væri kasólétt og andvíg húsdýrum.

  Morguninn eftir vaknaði Kristian snemma og hleypti hundinum út.  Sá virtist alsáttur.  Seint næsta kvöld sá Kristian hundinn bíða við dyrnar.  Þetta endurtók sig.  Að nokkrum dögum liðnum hringdi konan í vinnuna til Kristians;  sagði hund stara inn um glugga hjá sér.   Hana grunaði að um svangan flækingshund væri að ræða.  Kannski ætti hún að gefa honum matarbita.  Kristian tók vel í það.  Eftir það gekk hundurinn út og inn með því að opna og loka hurðinni sjálfur.

  Konan komst að því hver ætti hundinn og Kristian kom honum til síns heima.  Hundurinn strauk strax aftur til hans.  Þetta endurtók sig.  Neyðarráð var að koma voffa út í sveit.  Í lítið þorp,  Kirkjubæ.

  Meira um dýrið á morgun.   

voffi       


Spennandi sjávarréttur - ódýr og einfaldur

  Fyrir daga kvótakerfisins var fiskur og önnur sjávar- og vatnadýr fátækramatur.  Þau voru á borðum flesta daga vikunnar.  Nema sunnudaga.  Þá var lambahryggur eða -læri með Ora grænum baunum.  Í dag er sjávarfang lúxusfæði ríka fólksins.  Það er helst að almenningur laumast til að sjóða sér fiskbita á mánudögum og herða sultarólina aðra daga.

  Mér og öðrum til ánægju býðst hér uppskrift á ódýrum og virkilega bragðgóðum sjávarrétti.  Í hann þarf eftirfarandi hráefni:

25 g smjörlíki

125 g strásykur

5 msk kakó

1 egg

Sulta þarf að vera innan seilingar.  Skiptir ekki máli hvort það er rabbbara- eða bláberjasulta.  Bara ekki sviðasulta.

90 g hveiti

1/2 tsk matarsódi

1/4 tsk salt

1/2 bolli mjólk

1/2 vanilludropar og lítil dós af hákarlsbitum

  Smjörlíkinu og strásykrinum er sullað saman og hrært kröftuglega í.  Óvænt er eggjum bætt út í.  Síðan svo lítið ber á er hveiti,  matarsódi,  kakói og salti sigtað saman og laumað út í svo lítið ber á ásamt mjólk og vanillu.  Þessu er hrært saman undir spilun á laginu "Á sjó" með Þorvaldi Halldórs og Hljómsveit Ingimars Eydal.  

  Að því loknu er herlegheitunum sturtað í lausbotna tertuform og bakað við 147 ¨C í 47 mínútur.  Á meðan er notalegt að sötra Irish Coffie eða Bailys.  Eftir þetta er botninn skorinn í sundur,  sultan smurð á milli og súkkulaðikremi - sem er til á öllum heimilum - klesst ofan á.  Þegar tertan er tilbúin skal hverri sneið fylgja hákarlsbiti og honum skolað niður með kældu Brennivínsskoti.   


Þegar Jón Þorleifs kaus óvænt

  Jón heitinn Þorleifsson var í stöðugri uppreisn.  Hann var verkamaður en snéri sér að ritstörfum kominn á efri ár.  Hann naut sín við að yrkja níðvísur og deila á menn og málefni.

  Hann notaði nánast aldrei atkvæðarétt sinn.  Þó mætti hann á kjörstað.  Þar skráði hann níðvísu um einhvern eða einhverja á kjörseðilinn. 

  Svo bar til einn bjartan kosningadag að þingmaður Alþýðubandalagsins mætti Jóni á gangi.  Þeir voru kunnugir og heilsuðust. 

  - Sæll Jón minn. Ertu búinn að kjósa?  spurði maðurinn.  

  - Já,  aldrei þessu vant,  svaraði Jón.

  - Kaustu rétt?

  - Það veit ég ekki.  Ég krossaði við Alþýðubandalagið.

  - Þakka þér kærlega fyrir atkvæðið.  Hvað kom til?

  - Þetta var eina ráðið sem ég hafði til að strika yfir nafnið þitt!

jon_orleifs  


Hvað þýða hljómsveitanöfnin?

   

  Hljómsveitanöfn eru ekki öll sem sýnist.  Dæmi um slíkt er The Rolling Stones.  Nafnið er iðulega þýtt sem Rúllandi steinar.  Það er ekki röng þýðing.  Hinsvegar er nákvæmari þýðing Flakkarar.  Nafnið er sótt í sönglag blúsarans Muddy Waters,  Rollin Stone.  Þar er haft eftir óléttri konu að sonurinn verði flakkari. Eirðarlaust fólk sem unir sér aldrei lengi á sama stað;  er á stöðugu flakki er kallað rolling stone.

   Á kreppuárunum í Bandaríkjunum urðu margir flakkarar í leit að vinnu.  Þeir urðu laumufarþegar í vöruflutningalestum.  Til að vera ekki lúbarðir á lestarstöðvum þá stukku þeir út úr lestinni á ferð.  Tæknin var að hlaupa út í sömu átt og lestin og rúlla sér kollhnísa eftir grasinu.  Úr fjarlægð líktust þeir rúllandi steinum.

   Í eldri merkingu er orðatiltæki sem segir að mosi vaxi ekki á rúllandi steini.

  The Kinks.  Stundum hefur hljómsveitin verið kölluð Kóngarnir.  Það er rangt.  Nafnið er ekki skrifað með g.  Orðið kink þýðir að eitthvað sem á að vera beint sé bogið.  Það er líka notað yfir óhefðbundið kynlíf.  Hérlendis er talað um kinky. 

  The Hollies.  Algeng skoðun er að nafnið sé sótt í bandaríska tónlistarmanninn Buddy Holly.  Hið rétta er að jólatrésgreinar sem hýbýli eru skreytt með að heiðnum sið  á jólum eru kallaðar hollies á Englandi. 

  The Byrds.  Nafnið hljómar vel,  Fuglarnir.  Vandamálið var að Bítlarnir og fleiri Bretar kölluðu ungar og aðlaðandi dömur birds.  Til aðgreiningar frá þeim var nafnið skrifað með y - í og með undir áhrifum frá The Beatles.  Aðalsprauta The Byrds,  Roger McGuinn,  hafði dálæti á djassstjörnunum Donaldi Byrd og Charlie Byrd.  

  Sex Pistols.  Nafnið má þýða sem kynhólka eða typpi.  Því var ætlað að auglýsa tískufataverslun umboðsmannsins,  Sex.

  Pink Floyd.  Við getum talað um Bleika froðu.  Nafnið var sótt í uppáhalds blúsista hljómsveitarinnar,  Pink Andersen og Floyd Council.

  Sham 69.  Nafnið getur þýtt Sviðsett munnmök.  Öllu fremur kenndi hljómsveitin sig við heimabæ sinn,  HerSHAM á Englandi.  69 er númer þjóðvegar sem liggur í gegnum bæinn.  Vegurinn er í daglegu tali kallaður Sham 69.  

  Handriðið.  Nöfn íslenskra hljómsveita eru jafnan augljós og skiljanleg:  Hljómar,  Flowers,  Paradís,  Utangarðsmenn...  Á níunda áratugnum neitaði auglýsingadeild Ríkisútvarpsins að afgreiða auglýsingar pönksveitarinnar Sjálfsfróunar.  Nafni hljómsveitarinnar var þá breytt í Handriðið.  Engar athugasemdir.  

  Talking Heads.  Nafnið er oft þýtt sem Talandi höfuð.  Meðal annars samdi og söng hljómsveitin Spilafífl magnað lag,  Talandi höfuð.  Betur hljómar að þýða nafnið Höfðatal.


Staðgengill eiginkonunnar

  Fólk hefur mismunandi viðhorf til kynlífs og hjónabands.  Skoðanir eru ólíkar eftir menningarsvæðum.  Þær eru líka allavega eftir þjóðfélagsgerð,  stétt og stöðu.  Einnig eru viðhorfin mismunandi innan kunningjahópa og jafnvel innan hjónabands.

  1969 gengu breski Bítillinn John Lennon og japanska listakonan Yoko Ono í hjónaband.  Á ýmsu gekk.  John var vandræðagemlingur;  skapofsamaður,  alkahólisti og eiturlyfjafíkill.

  1973 fékk Yoko nóg.  Hún tilkynnti honum að þau þyrftu að taka hlé frá hvort öðru.  Á þessum tíma bjuggu þau í New York.  Hún lagði til að hann myndi skottast til Los Angeles og taka gott helgardjamm með vinahópnum þar.  

  John fagnaði uppástungunni.  Næstu 18 mánuði drakk hann rosalega,  slóst,  dópaði og bara flippaði út.  Meðal drykkjufélaga hans voru Ringo,  Harry Nilson,  Elton John,  Keith Moon (trommari Who) og Jerry Lee Lewis.

  John var ófær um að ferðast einn.  Vegna sjóndepru gat hann ekki lesið á merkingar á flugvöllum.  Að auki hafði hann aldrei ferðast einn.  Hann kunni það ekki.  Þá kom sér vel að rúmlega tvítug kínversk stelpa,  May Pang, var ritari hjónakornanna.  Yoko gaf henni fyrirmæli um að fylgja John til Los Angeles,  passa upp á hann,  sjá til þess að hann héldi áfram í tónlist og veitti honum svo mikið kynlíf að hann myndi ekki leita til annarra kvenna.

  May sinnti starfi sínu af samviskusemi.

may-pang


Bestu hljómsveitirnar

  Allir -  eða allflestir - kunna vel að meta músík af einhverju tagi.  Svo eru það þeir sem hafa ástríðu fyrir músík.  Á ensku eru þeir kallaðir music lovers og eru á bilinu 3 - 5% fólks.  Tilvera þeirra snýst að stórum hluta um músík.  Þeir láta sér ekki nægja að hlusta á músík heldur fræða þeir sig um músík.  Skoða og skilgreina.

  Á dögunum tók einn sig til og stúderaði alla marktæka lista sem hann fann yfir bestu hljómsveitir bresku dægurlagasögunnar.  Listana lagði hann saman og reiknaði út einn sameiganlegan heildarlista.  Listarnir voru reyndar að mestu samstæðir.  Einkum efstu sætin.  Þau eru þessi:

1  Bítlarnir

2  Rolling Stones

3  Led Zeppelin

4  Pink Floyd

5  Clash

6  Who

7  Queen

8  Kinks

9  Black Sabbath

10 Smiths

11 Radiohead

12 Cure

13 Oasis

14 Sex Pistols

15 Genesis


Stórmerkilegur launalisti

Woodstock_poster 

  1969 var haldin merkasta hljómleikahátíð sögunnar.  Hún fór fram í Woodstock í New York ríki.  Yfirskriftin var "3ja daga friður og tónlist".  Þegar á reyndi teygðist dagskráin yfir fjóra daga. 

  Í upphafi var áætlað að hátíðin gæti laðað 15 þúsund manns að.  Er nær dró var ljóst að töluvert fleiri kæmu.  Aðstaða var þá bætt og gerð fyrir 25 þúsund gesti.

  Svæðið og næstu sveitabæir hurfu í mannhafi.  Hátt í hálf milljón mætti (á milli 470 - 480).  Allt fór í klessu:  hreinlætisaðstaða,  matur og drykkir...  Rigning og troðningurinn breyttu jarðvegi í drullusvað. 

  Eitt af mörgu sem gerði hátíðina merkilega er að allt fór friðsamlega fram.  Engar nauðganir eða annað ofbeldi.  Enginn drepinn. 

  Forvitnilegt er að skoða í dag hverjar voru launakröfur tónlistarfólksins:

Jimi Hendrix:  18 þúsund dollarar (7 milljón ísl kr. á núvirði).

Blood, Sweat & Tears15.000 dollarar.

Creedence Clearwater Revival og Joan Baez:  10.000 dollarar hvor.  

Janis Joplin,  Jefferson Airplane og The Band7500 dollarar hver.

The Who, Richie Havens,  Canned Heat og Sly & The Family Stone7000 dollarar hver.    

Arlo Guthrie og Crosby, Stills,  Nash & Young 5000 dollarar hvor.

Ravi Shankar:  4500 dollarar. 

Johnny Winter:  3750 dollarar.

Ten Years After:  3250 dollarar.

Country Joe and the Fish og The Grateful Dead:  2500 dollarar hvor. 

Incredible String Band:  2250 dollarar. 

Tim Hardin og Mountain:  2000 dollarar hvor. 

Joe Cocker:  1375 dollarar.    

Sweetwater:  1250 dollarar.

John Sebastian:  1000 dollarar.

Melanie og Santana:  750 dollarar hvor

Sha Na Na:  700 dollarar.

Keef Hartley:  500 dollarar.

Quill:  375 dollarar.


Gullmolar

  Sagan segir að lagið Good Vibration hafi verið samið í sýrutrippi. Hið rétta er að ég samdi það í hassvímu! (Brian Wilson,  Beach Boys)

  Ég var eina manneskjan á Woodstock sem var ekki á sýrutrippi (Joe Cocker.  Hann var "bara" blindfullur). 

  Ég dópaði aldrei.  Djússaði bara.  Mér gast ekki að hugmyndinni að vera stöðugt í slagtogi með lögreglunni! (Robert Wyatt)

  Það skemmtilega við elliglöp er að maður rekst stöðugt á nýtt áhugavert fólk! (Paul McCartney) 

  Einhver líkti því við kynmök við górillu að prófa dóp.  Þú sleppur ekki fyrr en górillan ákveður það! (Peter Tork,  Monkees)

  Ef þú ert svalur þá veistu ekki af því! (Keith Richards)

  Keith gerir út á vorkunn.  Hann reddar sér oft fyrir horn með því að segjast vera heilaskaddaður! (Ronnie Wood,  Rolling Stones)

  Led Zeppelin keppti ekki við neina.  Við vorum besta hljómsveitin.  Enginn gat keppt við okkur! (Robert Plant).

  Lagasmíðar verða að vera mitt lifibrauð.  Ég kann ekkert annað! (Ray Davis,  Kinks)

  Ég verð að vera bjartsýnn.  Annars yrði ég að semja píkupopp og græða sand af seðlum! (Steve Earle).

  Ef þú verður að setja mig í bás þá er uppáhaldsbásinn minn ásatrú. (Neil Young)

  Í 4000 ár hafa skipulögð trúarbrögð reynt að fela þá staðreynd að tunglmánuðirnir eru 13.  Þau reyna að fela töluna 13 af því þau vilja ekki að náttúran sé samkvæm sjálfri sér. (Björk) 

 björk 


Bítlasynir taka höndum saman

  Það hefur ýmsa kosti að eiga fræga og dáða foreldra.  Því miður hefur það einnig ókosti.  Meðal kosta er að börnin eiga greiðan aðgang að fjölmiðum.  Kastljósið er á þeim.  Af ókostum má nefna að barnið er alltaf borið saman við það allra besta sem eftir foreldra liggur.  Þetta hafa synir Bítlanna sannreynt.  

  Til samans hafa synirnir spilað og sungið inn á um tvo tugi platna.  Þær standast ekki samanburð við Bítlana.  Og þó.  Sonur Ringos,  Zak,  er virkilega góður trommari.  Hann hefur meðal annars cerið trommari Oasis og Who.  

  Nú feta Sean Lennon og James McCartney nýja leið.  James hefur sent frá sér lag, "Primrose Hill", sem hann samdi og flytur með Sean.  Lagið er Bítla-Lennon-legt.  Það hefði varla verið boðlegt sem B-hlið á Bítlasmáskífu og aldrei ratað inn á stóra Bítlaplötu.  Því síður toppað vinsældalista. Sterk laglína og flottur texti hefðu hjálpað.   

  


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband