Fćrsluflokkur: Útvarp

Bestu plötur Megasar

 

  Fyrir nokkru síđan ýtti ég úr vör skođanakönnun um bestu plötur Megasar.  Fyrsta skrefiđ var ađ leita á náđir lesenda.  Ég bađ ţá um ađ tiltaka ţćr plötur Megasar sem ţeim ţykir bestar.  Öllum plötum sem nefndar voru til sögunnar stillti ég upp í formlega skođanakönnun.  Ég ákvađ ađ láta könnunina standa ţangađ til 2000 atkvćđi hefđu skilađ sér í hús.  Nú hefur ţađ mark náđst.  Niđurstađan er sú sama og ţegar 100 atkvćđi höfđu veriđ greidd.  Af ţví dreg ég ţá ályktun ađ útkoman sé nokkurn veginn til samrćmis viđ almennan smekk fyrir plötum Megasar.  Ađ minnsta kosti hvađ varđar plöturnar í efstu sćtunum.  Ţar er útkoman afgerandi.  Ég ćtla ađ flestir ađdáendur Megasar hefđu ađ óreyndu giskađ rétt á hvađa plötur myndu hreiđra um sig í efstu sćtunum. 

  Ţar fyrir utan er ţetta fyrst og fremst léttur samkvćmisleikur. 

  Ţannig er listinn: 

1.  Á bleikum náttkjólum 25,5%

2.  Megas (fyrsta platan) 17,7%

3.  Loftmynd 12,5%

4.  Til hamingju međ falliđ 8,1%

5.  Í góđri trú 7,7%

6.  Drög ađ sjálfsmorđi 7,3%

7.  Millilending 6,4%

8.  Fram og aftur blindgötuna 5,2%

9.  Nú er ég klćddur og kominn á ról 4,5%

10.  Ţrír blóđdropar 2,7%

11.  Höfuđlausnir 2,3%

Íslenskar plötur skora hátt á lista yfir bestu plötur ársins 2012

  Einn af áhugaverđustu tónlistarnetmiđlum heims heitir All Scandinavian (www.allscandinavian.com).  Nafniđ gefur freklega til sterkra kynna ađ tímaritiđ fjalli ađ uppistöđu til um skandinavíska tónlist.  Svo sannarlega stendur ţađ undir nafni.  Ţađ gerir skandinavískri dćgurlagamúsík mjög góđ skil.

  All Scandinavian er gert út frá Danmörku.  Samt er tímaritiđ skrifađ á ensku.  Skrítiđ.  Í síđustu viku birti ţađ lista yfir bestu skandinavískar plötur ársins 2012.  Niđurstađan varđ ţessi:

1.  200 (fćreysk) - Vendetta

  Ţađ er ástćđulaust ađ vitna í rök All Scandinavian fyrir valinu á Vendettu sem bestu skandinavísku plötu 2012.  200 er flottasta pönksveit heims!  Ţađ vitum viđ Íslendingar.  200 hefur margoft spilađ á hljómleikum á Íslandi,  plötur tríósins hafa selst ágćtlega hérlendis og svo framvegis.  Góđ og sanngjörn niđurstađa hjá All Scandinavian.

2.  The Savage Rose (dönsk) - Love and Freedom

  "Annisette og hljómsveit hennar sýna öllum retro-rokkandi hljómsveitum ţarna úti hvernig á ađ gera ţetta međ sínu seyđandi sálarríka rokk meistaraverki sem 21. plata The Savege Rose er á 44. ára ferli."

3.  Kontinuum (íslensk) - Earth Blood Magic

   "Fyrsta plata íslenska kvartettsins Kontinuum,  Earth Blood Magic,  er einfaldlega besta framsćkna sýru-krát-ţungarokksplatan sem gat ađ heyra á liđnu ári."

4.  Simian Ghost (sćnsk) - Youth

5.  The Megaphonic Thrift (norsk) - The Megaphonic Thrift 

6.  Murmansk (finnsk) - Ruutli

7.  Efterclang (dönsk) - Piramida

8.  Goat (sćnsk) - World Music

9.  Dunderbeist (norsk) -Black Arts & Crooked Tails & Songs of the Buried

10.  Pétur Ben (íslenskur) - God´s Lonely Man

  "Sex árum eftir frumburđ Pétur Ben verđlaunar hann okkur fyrir ţolinmćđina međ annarri framúrskarandi plötu."

11.  Susanne Sundför (norsk) - The Silicon Vail

12.  Kúra (íslensk) - Halfway to the Moon


Alvöru júró-rokk í kvöld (laugardaginn 26. janúar)

 

  Sólstafa hefur veriđ sárt saknađ í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöđva,  Júrivisjón.  Einkum af Finnum.  Ţar njóta Sólstafir meiri vinsćlda en allir íslenskir ţátttakendur í sögu Júrivisjón frá upphafi.  Stök plata međ Sólstöfum lćtur sig ekki muna um ađ fara í 12. sćti á finnska vinsćldalistanum ţegar vel liggur á mannskapnum. 

  Nú er júrivisjón-fáriđ skolliđ á í ár.  Ţá er fátt heppilegra í stöđunni en flýja í fađm Sólstafa.  Hlusta á alvöru rokktónlist í hćsta gćđaflokki.  Og ekki bregđast Sólstafir sem aldrei fyrr.  Ţeir bjóđa upp á spennandi hljómleika í kvöld,  26. janúar (laugardag) á Gauki á Stöng.  Ţetta eru fyrstu sjálfstćđu hljómleikar Sólstafa í meira en ár.  Vinna viđ nćstu plötu er jafnframt hafin.   Hljómsveitin Kontinuum hitar upp.  Fjöriđ hefst klukkan 22.00. 

  “Viđ erum á flakki um Evrópu mest allt áriđ. Svona hefur ţetta veriđ síđastliđin ár en ţó aukist međ ári hverju”, segir Sćţór Maríus, gítarleikari Sólstafa. “Á vorin og haustin eru ţađ túrarnir og svo tónleikahátíđir yfir sumartímann”, bćtir hann viđ.

  Síđust tónleikar Sólstafa erlendis voru á skemmtiferđaskipi sem sigldi frá Miami til Bahamaeyja. “Ţađ var mikiđ ćvintýri og ólíkt ţví sem viđ erum vanir. Viđ spiluđum á sundlaugadekkinu í glampandi sól. Fólk var ţarna ađ headbanga í heitapottinum og fá sér sundsprett”.

Sćţór segir ţá félaga í fantagóđu spilaformi enda nýta ţeir vetrartímann vel til ađ ćfa. “Viđ erum orđnir skipulagđir, ćfingaplaniđ er komiđ í Excel-skjal. Viđ höfum líka veriđ duglegir ađ semja nýtt efni undanfariđ. Ţađ er alltaf gaman”, segir Sćţór kíminn.


mbl.is Ţrjú lög komust áfram
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bubbi gefur "World Music from the Cold Seas" jákvćđa umsögn

wmftcs 

 "Ţađ hefur vel tekist til hér ađ flestu leyti ţó ég geti kannski ekki metiđ fyllilega hversu sanna mynd ţetta gefur af ţjóđlegri tónlist ţessara landa ţar sem hún er mér frekar framandi. En platan stendur sem góđ plata og henni er ef til vill frekar ćtlađ ađ sameina nútíđ og fortíđ ţví sumt af tónlistinni er kannski frekar samiđ í ţjóđlegum anda, byggt á gömlum stemmum og ljóđum."

  Svo segir Bubbi um vest-norrćnu plötuna World Music from the Cold Seas.  Hann skrifar reglulega yfirvegađa og vandađa plötugagnrýni af góđri ţekkingu og sanngirni.  Hann greinir lögin á plötunni međal annars međ ţessum orđum:

  "Ţađ er vel viđ hćfi ađ Grćnlenskur trommudans opni plötuna, en ţeir sem kannast viđ dönsk/grćnlensku myndina "Lysets hjerte" ćttu ađ ţekkja ţađ. Síđan er mćttur Fćreyingurinn Kristian Blak sem er dálitiđ allt í öllu í tónlistarlífi landa sinna og tengist 3/4 hlutum fćreyska efnisins hér og gott ef hann á ekki plötuútgáfuna Tutl sem gefur plötuna út. Hiđ fallega instrumental lag hans um öndina međ langa stéliđ er byggt á tónlist frá Austur Grćnlandi, en ég vissi fyrst ekki hvađan á mig stóđ veđriđ er trommudansarinn Anda hóf upp raust sína í hlutverki andarinnar undir lok lagsins. Viđ Anda Kuitse erum nú orđnir vinir. 

  Kristian Blak mćtir síđan aftur međ Yggdrasil og Eivöru Páls í The Eagle, hvar jassfílingurinn kitlar hlustirnar. Enn kemur Blak viđ sögu  í Trana Trýta sem er úr instrumental svítu hans, Shalder Geo og byggt á fćreyskum sálmi. Hér svífur nettur Ţursaandi yfir vötnum... einhver órćđ jassrokk/progg stemmning. Innlegg Kristian Blak er međ ţví besta á plötunni, en víkingarokk sveitin  Týr lokar hinum Fćreyska kafla... og plötunni međ Orminum langa, hinum aldna Fćreyska hringdansi sem margir hlustendur rásar 2 ćttu ađ kannast viđ...ţökk sé Guđna Má Henningssyni.

  Tónlist Samanna er mjög flott hér og ţađ lag sem greip mig fyrst á plötunni  var heillandi samruni Samíska yóksins (yoik) hjá Ingu Juuso og kontrabassa Steinars Raknes í Taxi driver og flott hvernig hin forna samíska sönghefđ blandast jassinum. Elin Kaven er dulúđug í Aibbas jaska og ţar blandast nútíma poppmúsík viđ heimstónlist, jass og Samíska músík. Hún minnir dálítiđ á Samísku söngkonuna Mari Boine sem er sú eina af samísku tónlistarfólki sem ég ţekki eitthvađ til og hefur sent frá sér frábćra tónlist og gott ef hún hefur ekki sungiđ međ Peter Gabriel. Hana er ţó ekki ađ finna hér, en Johan Andesr Bćr og Sámi Luondu, Collerisku eru hér og skila sínu óađfinnanlega.
 
  Grćnlendingarnir heilluđu mig minnst en eru ţó ágćtir. Hin draumkennda ballađa Qinnut međ Samma Samma Jaffa Jaffa er full löng fyrir minn smekk en hún slagar í 9 mínútur. Hljómsveitin Sume eru frumkvöđlar í Grćnlensku rokki og sendu frá sér fyrstu rokkplötu ţarlendra 1973. Ég reikna međ ađ lag ţeirra Upernaaq sé frá 8. áratugnum en mér finnst ţađ galli ađ ártöl eru ekki viđ lögin. Lagiđ dregur dám af Bandarísku 70´s kántrí rokki og skemmtileg munnharpa gegnumgangandi, en ekki er ţetta sérlega Grćnlenskt. Óhćtt er ađ segja ađ framlag Grćnlendinganna brjóti upp stemninguna hér og ekki síđur The Drum međ Nanu Disco, ţar sem heyra má hrađa danstónlist hvar ađal takturinn er byggđur á gömlum trommudansi. Lagiđ byrjar á ađvörun á ensku en síđan heyri ég ekki betur en sungiđ sé á frönsku... nema Grćnlenska og Franska séu farin ađ hljóma svona líkt.
 
  Fjöllistamađurinn Tryggvi Hansen er hér međ góđa útgáfu af Ólafi Liljurós/Riddararós, sem ég veit aldrei hvort er Fćreyskt eđa Íslenskt ţjóđlag. Ađ vísu á ég frekar erfitt međ ađ skilja textann er líđur á lagiđ, en ţađ eru kannski bara eyrun á mér. Auk ţess er galli í disknum í ţessu eina lagi sem lýsir sér ţannig ađ lagiđ hoppar til á tveimur stöđum, og ţađ er bagalegt. Lagiđ Vélsög, eđa á mađur frekar ađ segja stef Margrétar Örnólfsdóttur úr kvikmynd Ţráins Bertelssonar Einkalíf passar alveg inn í stemmninguna, en gaman vćri ađ vita hver hin klassísk lćrđa söngkona er sem a-ar í laginu.
 
 
  Hinn Dansk/Íslenski Klakki međ Nínu Björk Elíasson í fararbroddi á svo Fćđing máfsins viđ texta eftir Sjón og hef ég hug á ađ kynna mér frekar ţá sveit eins og margt annađ hér. Ţá er tilgangi svona útgáfu sannarlega náđ... vekja forvitni."
 

   Heildar umsögn Bubba má lesa á:  http://bubbij.123.is/blog/2013/01/05/645100/

  World Music from the Cold Seas fćst í verslun Smekkleysu á Laugarvegi og eflaust víđar.

 


Torg á Spáni nefnt í höfuđiđ á söngvara The Clash

 

  Nú er áratugur frá ţví ađ forsprakki ensku pönksveitarinnar The Clash,  Joe Strummer,  féll frá,  50 ára.  Í tilefni af ţeim tímamótum er minning Jóa heiđruđ í spćnsku borginni Granada.  Í vikunni fékk helsta torg borgarinnar formlega nafniđ Plaza Joe Strummer. Óháđ Jóa er bassaintró London Calling eitt ţađ flottasta í rokksögunni.  Ég ţarf ađ kreista út úr Jakobi Smára og Pálma Gunnars stađfestingu á ţví glćsilega dćmi.  

  Í fljótu bragđi er ekki augljóst samhengi á milli Jóa Strummers,  The Clash,  Granada og Spánar.  The Clash var önnur tveggja forystusveita bresku pönkbyltingarinnar á síđari hluta áttunda árum (hin var Sex Pistols).  Tónlist The Clash ţróađist frekar hratt frá frumpönkinu yfir í reggí,  fönk,  djass og ýmislegt fleira. 

  Hljómsveitin varđ risaveldi á heimsvísu.  Ţar munađi einhverju um ađ The Clash sló rćkilega í gegn í Ameríku,  ţar á međal í Bandaríkjunum.  Breska pönkdeildin átti ađ öđru leyti erfitt uppdráttar á ţeim slóđum. 

  The Clash hafđi djúpstćđ áhrif á íslenska rokkmúsík.  Hljómsveitir á borđ viđ Frćbbblana og Utangarđsmenn spiluđu lög úr smiđju The Clash,  ásamt ţví sem frumsamin lög ţeirra hljómsveita og fleiri bergmálađi áhrif frá The Clash.  1980 héldu Jói Strummer og The Clash magnađa hljómleika fyrir trođfullu húsi í Laugardalshöll. 

  Kćrasta Jóa Strummers var spćnsk en búsett í Englandi.  Hún var söngkona nýbylgjuhljómsveitarinnar The Slits.  Í samtölum kćrustuparsins bar Spán stundum á góma.  Á ţriđju plötu The Clash,  London Calling,  er ađ finna lagiđ  Spanish Bombs.  Í ţví er minnst á borgina Granada.  Platan kom út 1979.  Fjórum árum síđar settist Jói tímabundiđ ađ í Granada.  Ţar var starfandi hljómsveitin 091.  Kćrasta Jóa hafđi nokkrum árum áđur kynnt liđsmenn 091 fyrir Jóa.  Um tíma bjuggu ţeir heima hjá kćrustuparinu í London.

  Á međan Jói Strummer bjó í Granada 1983 ţá stýrđi hann upptökum á plötu 091.  Hljómsveitin var staurblönk.  Ţađ var ekkert mál.  Jói borgađi úr eigin vasa allan kostnađ viđ hljóđversvinnuna og útgáfu plötunnar.  Ekkert mál.  Bara gjöf frá góđum vini.  Til viđbótar tróđ Jói upp međ 091 á ţessu tímabili.  Platan seldist ekki neitt og 091 er fáum kunn.  Öđrum en íbúum Granada.  Ţeir minnast međ hlýju og ţakklćti dvalar Jóa Strummers í Granada 1983 og vinskapar hans viđ 091.     

 

  Fleiri en Spánverjar heiđra minningu Jóa Strummers.  Í Englandi er haldin árlega popphátíđin Strummer of Love.  Á síđustu hátiđ komu fram stjörnur á borđ viđ The Pogues,  Seasick Steve,  Frank Turner,  Emmy The Great og fleiri.   

  Til viđbótar hafa veriđ framleiddar tvćr kvikmyndir um Joe Strummer.  Önnur ţeirra,  Joe Strummer:  The Future is Unwritten,  er virkilega flott.  Hćgt er ađ leigja hana á vod-inu hjá Skjábíó.  Hin heitir Strummerville.   

  Í vinnslu er kvikmynd,  söngleikur,  um Jóa Strummer.  Ég man ekki hvađ hún heitir.   Hinsvegar var Jói Reiđufé (Johnny Cash)  mikill ađdáandi Jóa Strummers og The Clash.  Ţeir deildu međal annars ađdáun á jamaíska rastafarian trúbođanum Bob Marley.

  The Clash innleiddi reggí í pönkiđ.  Frćbbblarnir hentu ţađ á lofti:

 


Plötuumsögn

Monterey time passing time

Titill:  Time Passing Time
 
Flytjandi:  Hljómsveitin Monterey
.
Einkunn:  ****
.
  Ţađ er nettur Pink Floyd keimur af tveimur fyrstu lögunumMoving On  og  Time Passing Time.  Ađ minnsta kosti viđ fyrstu hlustun.  Eftir ítrekađa spilun er hann ekki áberandi.  Gítar og orgel mynda ţó hljóđheim álíkan ţeim sem einkennir tónlist Pink Floyd frá fyrri hluta áttunda áratugarins. 
  Steindór Ingi Snorrason er höfundur laga og texta.  Hann syngur og spilar á orgel, gítar og bassa.  Hann er ađal númeriđ í Monterey.  Ég ţekki ekki vel til en Monterey virđist vera hliđardćmi út frá hljómsveitinni Ég. 
  Andri Geir Árnason trommar.  Baldur Sívertsen Bjarnason leikur á gítar.  Arnar Ingi Hreiđarsson plokkar bassa. 
  Fyrstu tvö lögin eru mjög róleg og tregafull.  Ţađ er mun léttara yfir ţriđja laginu, ballöđunni Song from the Minor.  Og ekkert sem minnir á Pink Floyd en kannski eitthvađ sem kallar nafn hljómsveitarinnar Wilco fram í hugann.  Ţetta er fjörlegasta lag plötunnar.  Í allra víđasta skilningi má greina eitthvađ í humátt ađ kántrý.   
  Óskar Guđjónsson lyftir vel undir fjórđa lagiđ,  Jesus (like me),  međ saxófónblćstri.  Ţar örlar á fönk-stemmningu í niđurlagskafla.  Óskar fer á kostum. Aldeils frábćrt innlegg.
  Pink Floyd keimurinn skýtur aftur varfćrnislega upp kolli í laginu  Don´t Shoot.  Ţar ber ţó meira á snyrtilegum básúnublćstri Ţrastar Sigurđssonar.
  Í  With Your Open Eyes  syngur Ástrós Elíasdóttir međ Steindóri.  Ţetta er poppađasta lag plötunnar.  Tvísöngur ţeirra á ţátt í ţví. 
  When I Go Away  leynir á sér.  Lćtur ekki mikiđ yfir sér en sćkir á viđ frekari spilun.  Rólegt og lágstemmt. 
  Mr. Smith  framkallar enn og aftur fram óm frá Pink Floyd.  Engan veginn má ţó skilgreina plötuna sem einhverskonar Pink Floyd eftirhermu.  Alls ekki.  Ekkert fremur en ađ plötur Hljóma og The Rolling Stones voru ekki eftirhermur af Bítlaplötum.  Bara lík stemmning á köflum.  Tónlist Monterey hefur veriđ líkt viđ Bítlapopp seinni hluta sjöunda áratugarins.  Ég kvitta ekki alveg undir ţađ.  Međ einbeittum vilja má greina hippalega stemmningu.  En platan er ekki gamaldags. Hún hljómar vel og er notaleg og hógvćr.  Samt engin lyftumúsík.  Hún getur ţó notiđ sín sem hlutlaus bakgrunnsmúsík.  En ţađ er meira gaman ađ hlusta á hana af athygli.  Lagasmíđar eru fínar og flutningur allur án rembings.  Platan rennur ljúflega í gegn. 
  Lokalagiđ,  Feeling Sorry,  sver sig í ćtt viđ plötuna ađ öllu leyti.  Hćggengt, látlaust og ţćgilegt.
.

Ég leitađi of langt yfir skammt

  Fyrir jól hellti ég mér af fullum krafti í leit ađ strokufanganum Matthíasi.  Eftir á ađ hyggja fćrđi ég leitarsvćđiđ út kannski ađeins um of.  Vinir og vandamenn Matthíasar höfđu lýst honum í fjölmiđlum sem einstöku ljúfmenni,  góđum dreng,  seinţreyttum til reiđi og hinum vćnsta manni í alla stađi.  En hann vćri dálítiđ týndur. Vissulega var hann töluvert týndur.  Mér datt ţá í hug ađ hann gćti sómt sér vel í Stokkhólmi í Svíţjóđ.  Ţar er ein lćgsta glćpatíđni af höfuđborgum heims.  Lýsingin á Matthíasi smellpassar viđ ljúfmennin í Stokkhólmi.
  Ég skrapp ţess vegna til Stokkhólms og leitađi ţar vel og lengi ađ Matthíasi.  Ţađ var smá klúđur hjá mér ađ hafa ekki međferđis síma og tölvu.  Ţess vegna fór alveg framhjá mér ţegar Matthías fannst,  ađ sögn lögreglunnar klyfjađur sömu verkfćrum og Rambó:  Sporjárni, hamri, eldhúsahnífum og öđrum ágćtum smíđa- og tréútskurđartólum.
  Í stađ ţess ađ finna Matthías í Stokkhólmi ţá fann ég bar sem selur hálfslítra bjórglas á 590 kall (ísl. kr.).  Ađrar góđar fréttir eru ađ Matthías er búinn ađ fá húfuna sína aftur.   
.
.
  Ţetta er vinsćlt lag í sćnskum dansklúbbum.  Ég kann ennţá betur viđ lagiđ í upphaflegu útgáfunni: 
.
.
  Höfundurinn,  Íris Kjćrnested,  er Íslendingur.  Hún er tónskáld,  búsett í Svíţjóđ og hefur samiđ vinsćl auglýsingastef.  Ţekktast er "Veldu gćđi.  Veldu Kjarnafćđi.".  http://iriskjaernested.com/  Á heimasíđu hennar vantar sitthvađ,  svo sem ađ hún hafđi eitthvađ ađ gera međ hljóđupptöku fyrir kvikmyndina Óróa. 

Splunkunýtt lag međ yngri systur Eivarar

  Elinborg Pálsdóttir er yngri systir Eivarar.  Hún hefur veriđ ađ semja músík og spila og syngja međ hljómsveit en einnig sóló.  Hér er splunkunýtt lag međ Elinborgu.

  Eivör hefur nú selt yfir 120.000 eintök í Noregi af nýjustu plötu hljómsveitar sinnar, Vamp.  Ţar syngur hún um systur sínar:


Plötuumsögn

himinbrim 

 - Titill:  Himinbrim

 - Flytjandi:  Nóra

  - Einkunn: *****

  Ţađ var nokkuđ merkilegt hvernig íslenska hljómsveitin Nóra fjármagnađi sína ađra plötu,  Himinbrim.  Hljómsveitin leitađi til ađdáenda sinna úti í heimi.  Og viti menn:  Frá gjörvallri heimsbyggđ bárust fjárframlög sem gerđu hljómsveitinni kleift ađ hljóđrita og gefa út plötuna.  Ţađ skemmtilega er ađ Nóra semur og syngur sín ljúfu lög á íslensku.  Rétt eins og Sigur Rós.

  Samlíkingin viđ Sigur Rós nćr lengra.  Tónlist Nóru svipar ađ hluta til seiđmögnuđu fegurđarinnar sem einkennir músík Sigur Rósar.  Ţó fer ţví fjarri ađ um stćlingu á Sigur Rós sé ađ rćđa.  Nóra er alveg međ sinn persónulega og sjálfstćđa hljóđheim.  Til ađ vísa í fleira kunnuglegt má alveg eins nefna hljómsveitina Maus til sögunnar.  En samt ekki beinlínis. Söngstíll Egils Viđarssonar minnir á söngstíl Bigga í Maus.  Ekki síst ţegar gítar og rokk krauma undir. 
  Fallegur og stígandi hljómagangur einkennir lagasmíđar Nóru.  Fegurđ, hátíđleiki og rísandi framvinda umlykja tónlistina.  Hugsanlega má stađsetja hljómaganginn í humátt ađ fegurstu lögum Coldplay.  Nóra er bara miklu skemmtilegri hljómsveit.  
  Platan í heild er pínulítiđ seintekin.  Lögin hljóma samt vel viđ fyrstu hlustun.  Ţau hljóma ennţá betur viđ ítrekađa spilun.  Hćgt og bítandi opnast blómiđ og springur ađ lokum út í allri sinni dýrđ.
  Ţetta er tölvupopp og píanóspil skreytt međ strokhljóđfćrum (fiđlum og sellói).  Söngrödd Auđar Viđarsdóttur er mjúk og ljúf.  Textaframburđur hennar er skýr og góđur.  Músíkin flakkar á milli ţess ađ vera notalega ţćgileg annars vegar og fast ađ harđneskju og hávađa hins vegar.  Trommuleikurinn er aftarlega í hljóđblöndun. Hann er snilld ţegar best lćtur.  Virkilega flottur. 
  Allt er fagmannlega afgreitt en jafnframt á "lifandi" hátt.
 Umslagiđ er krúttlegt.  Nóra tilheyrir,  jú,  krúttkynslóđinni.  Allur texti á umslagi er handskrifađur međ auđlćsilegri rithönd.  Ţađ hefur tekiđ tímana tvo eđa rúmlega ţađ.  Sem leturfrćđingur hef ég gaman af ađ rýna í nostursamlega handskrifađan textann.  Brúnleitt litaval (út í gult og "orange") er gott. 
  Himinbrim  er glćsileg plata og tvímćlalaust ein af ţeim bestu 2012. 

Hin jólalögin

  Sumir hafa horn í síđu jólalaga.  Segjast ekki ţola jólalög.  Ţetta er hálf kjánaleg afstađa.  Jólalög eru ekki afmarkađur músíkstíll.  Ţađ má finna jólalög í flestum músíkstílum.  (Eitt ţađ) flottasta er í írskum ţjóđlagarokksstíl,  Fairytale of New York,  međ Kirsty McColl og The Pogues.  Ég á fína jólaplötu međ ýmsum bandarískum blúsurum.  Önnur jólalög má finna í músíkstílum á borđ viđ reggí, kántrý, ţungarokki, djassi, sálmasöng, pönk og hvađ sem er.  Heims um ból fagnar fólk sólrisuhátíđinni jólum međ söng og hljóđfćraleik.  Hátíđ ljóss og friđar.  Jólin eru góđ skemmtun í skammdeginu.  Vottar Jehova,  Amish-fólkiđ og fleiri sniđganga ţó jólin fyrir ţađ eitt ađ ţau séu upphaflega heiđin hátíđ.  Ţađ er miđur.  Jólin eru svo skemmtileg međ jólasveinum,  jólaálfum, jólatré, jólagjöfum, veislumat, gott í skóinn og ţađ allt. 

  Vissulega er til eitthvađ sem fellur undir víđa skilgreiningu á dćmigerđu jólalagi:  Létt popplag međ bjöllum, klingjandi gítarspili og einhverju svoleiđis.  Ţau eru fyrirferđarmest í útvarpi.  Hér eru nokkur sem sjaldnar er spiluđ í útvarpi:

 

  Ţetta eru kátir piltar frá Atlanta í Bandaríkjunum.

  Bresku anarkistarnir í Crass eru jólabörn.  Á dögunum fékk borgarstjóri Reykjavíkur sér húđflúr međ lógói Crass.  Crass héldu hljómleika á Íslandi á níunda áratugnum og gáfu út plötur međ íslensku hljómsveitinni Kukli.

  Íslandsvinirnir í bresku hljómsveitinni The Fall gáfu út jólalag til minningar um John Quays sem lést af völdum of stórs skammts af heróíni.

  Bandaríski rapparinn Snoop Doggy Dog stendur í ţeirri trú nú ađ hann sé endurborinn Bob Marley.  En hann er sama jólabarniđ fyrir ţví.

  Smá jólarokk.

  Íslenskt jólarokk međ hljómsveitinni F.

  Og Frćbbblarnir.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband