Færsluflokkur: Umhverfismál

Einföld aðferð til að verjast árásum bjarna

 

  Fólki gengur illa að læra hversu auðvelt er að verjast árásum bangsa.  Bangsar eru naut að afli.  Það er vonlaust að slást við þá.  Bangsar eru sömuleiðis mörgum sinnum spretthraðari en manneskja.  Það er vonlaust að forða sér á hlaupum frá bangsa.

  Aðferðin til að verjast árás bangsa er að lyfta höndum eins hátt upp fyrir höfuð og hægt er.  Bangsi þekkir af sínum átökum við aðra bangsa að stærð ræður því hver er sterkari.  Hitt ráðið er að syngja hátt og snjallt rólega slagara.  Til að mynda "Undir bláhimni" og "Skín við sólu Skagafjörður".  

  Bangsi ruglar sönglinu saman við grát bjarndýrshúna.  Það hvarflar ekki að honum að vera með leiðindi við húna.  Þvert á móti.  Hann vill allt fyrir húna gera.

  Þetta þekkja menn og kunna í Húnavatnssýslu.  Þess vegna heitir hún Húnavatnssýsla og félagsheimilið Húnaver. Þar voru löngum haldnar vinsælar Húnavökur.  

  Annað ráð til að sleppa við árásir bjarna er að vera á öðrum stað en þeir. 

 

 


mbl.is Björn gróf konu lifandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fárveikur sólbrúnkufíkill

sólbrúnka  Hin næstum þrítuga Tawny Willoughby er geggjuð.  Hún er fædd og uppalin í sólríku ríki, Alabama í Bandaríkjum Norður-Ameríku,  við hlið Florida.  Samt sem áður varði hún unglingsárum og fram á þrítugsaldur í ljósabekk.  Ekki á sólbaðsstofu heldur í foreldrahúsum. Flesta daga vikunnar steikti hún sig heilu og hálfu tímana í ljósabekknum ár eftir ár eftir ár.  Hún var fársjúkur fíkill með tanorexíu.  

  Rónar koma óorði á áfengi.  Tawny kemur óorði á sólböð.  

  Sólböð eru holl.  Mjög holl.  Ljósageislarnir framkalla D-vítamín á húðinni.  Það er lykill að upptöku á kalki.  Sólböð styrkja bein, tennur, húð og hár.  Vinna gegn beinþynningu.  Sólböð hafa öflugan lækningamátt varðandi húðvandamál á borð við exem, sporiasis og unglingabólur.  Sólböð sporna gegn allskonar krabbameinum (nema sortu).  Þau vinna gegn þunglyndi og depurð. Þannig mætti áfram telja.  

  Án sólarljóss væri lítið líf á jörðinni.  Þetta sést vel þegar sól hækkar á lofti á íslensku vori.  Ljósið kveikir líf.  Allt lifnar við.  Tré laufgast,  blóm springa út,  skordýr vakna úr dvala,  fuglar syngja og hefja hreiðurgerð,  kýrnar leika við hvurn sinn fingur og glaðværð færist yfir mannlífið.  Ljósið gleður.  Dægurlög léttast og kætast.  

  Í dýraríkinu hafa D-vítamínrík dýr mest aðdráttarafl.  Í mannheimum hafa sólbrúnir einstaklingar aðdráttarafl langt umfram föla og grámyglulega.  Náttúran leitar í heilsuhrausta sem sólin hefur kysst.

      


mbl.is „Svona lítur meðferð við húðkrabbameini út“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju má ekki vera skemmtilegt?

súpa

 Súpuvagnar hafa sett skemmtilegan svip á bæjarlífið á síðustu árum.  Ekki síst kjötsúpuvagnarnir á Skólavörðuholti og í Lækjargötu.  Einnig humarsúpuvagninn í Hafnarstræti.

  Styttan af Leifi Eiríkssyni á Skólavörðuholti hefur gríðarlega sterkt aðdráttarafl á erlenda ferðamenn.  Einkum Bandaríkjamenn.  Það var Kaninn sem gaf Íslendingum styttuna í þakklætisskini fyrir að Lucky Luke fann Ameríku og týndi henni aftur.

  Margir skemmta sér konunglega við að góna á furðubygginguna Hallgrímskirkju.  Á nöprum sumardegi þykir túristum á Skólavörðuholti fátt notalegra en að bragða á heitri íslenskri kjötsúpu úr Warm Farmers Soup.  

  Súpubílnum hefur ekki fylgt neinn ókostur.  Enginn.  Aðeins kostir.  En nú skal bílnum bolað út.  Breytingar hafa verið gerðar á samþykkt Reykjavíkurborgar þar um.  Súpuvagn sem á einhverjum tímapunkti hefur verið með mótor má ekki lengur standa í stæði.  Það er leiðinlegt.  Það þykir kostur.  Það má ekki vera skemmtilegt og þægilegt.

kjotsupudiskur 


mbl.is Missir stæðið og selur vagninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blautklútar fjarlægðir úr verslunum vegna skaðsemi

  Fyrir mánuði síðan - eða því sem næst - skýrði ég samviskusamlega frá því á þessum vettvangi hversu hættulegir blautklútar geta verið.  Í því sambandi vísaði ég til skelfilegrar reynslu Evu Tausen af þeim.  Hún situr uppi með skaddaða sjón.  Svo skaddaða að hún er ófær um að aka bíl.

  Eva er ein þekktasta söngkona Færeyja.  Hún hefur jafnframt náð frama á heimsmarkaði í kántrý-deildinni.  Náð toppsæti kántrý-vinsældalista víða um heim og hlotið alþjóðleg verðlaun.  Um þetta má lesa með því að smella snöfurlega á þennan hlekk:  hér

  Færeyskir fjölmiðlar fjölluðu eðlilega vel og rækilega um sjónskaða Evu.  Þá spruttu upp hinar ólíklegustu konur og vitnuðu um hliðstæða reynslu af blautklútunum.  Kornið sem fyllti mælinn var þegar Oda Kjartansdóttir Ström steig fram í vikunni og lýsti í færeyska útvarpinu sjónskaða sem klútarnir ollu henni.  Nú hafa blautklútarnir verið fjarlægðir úr færeyskum verslunum.  Þeir heita First Price.  Eru til sölu í íslenskum búðum.  Fólki er ráðlagt að nota í andlitið einungis blautklúta með svansmerkinu.      

  


Útilokað að olía finnist í íslenskri lögsögu

Ég fylgist reglulega með leit Færeyinga að olíu í færeyskri lögsögu.  Líkur á að olía finnist í færeyskri lögsögu eru komnar niður í 10%.  Sem er svo sem ekkert lágt hlutfall.  Enn er von. Sumir Færeyinqar eru andvígir þessu olíubrölti vegna margvíslegra neikvæðra hliðarverkana.   

  Forstjóri færeyska olíkuleitarfélagsins Faroe Petrolum,  Nils Sörensen,  hefur kveðið upp úr með það að fullreynt sé að olía finnist á íslenskum grunni.  Líkur á olíufundi í íslenskri lögsögu séu 0%.

  Niðurstaðan er ekki verri en svo að á síðustu tveimur árum er  ferðamannatraffíl til Íslands að skila íslensku samfélagi meiri gjaldeyri en sjávarútvegur (kvótakónganna).  Íslendingar eru um 300.ooo. Túristar eru 1,100 milljón.  Og hvergi sér fyrir enda á.  Við höfum ekkert með olíu að gera.

 


Byggingaklúður

  Arkítektar og húsasmiðir eru ekki alltaf samstíga í úfærslu á húsnæði.  Stundum misskilja þeir hvern annan.  Stundum hunsa þeir teikningar hvers annars.  Stundum eru þeir fullir og allt fer í rugl.  Hér eru dæmi um útkomuna:

byggingaklúður abyggingaklúður cbyggingaklúður dbyggingaklúður ebyggingaklúður b


Endurreisum minnisvarðann um Helga Hóseasson

  Skömm sé þeim er eyðilögðu minnisvarðann sem settur var upp til heiðurs Helga Hóseassyni.  Helgi setti litríkan svip á gráa tilveruna á sínum tíma.  Árum saman stóð hann daglega við Langholtsveg.  Þar hélt hann á mótmælaspjaldi.  Það var ekki auðvelt að skilja allt sem á spjaldinu stóð.  Helgi notaði eigið tungutak og stafsetti orð á sinn máta.  Þegar RÍÓ stóð á spjaldinu var hann hvorki að vísa til Ríó tríós né Ríó-borgar í Brasilíu.  RÍÓ var skammstöfun Helga á Ríkisstjórn íslenskra óþokka.

  Það væri reisn yfir því að Reykjavíkurborg myndi þegar í stað koma minnisvarðanum í upprunalegt horf.  Á sínum tíma var hann reistur af nokkrum einstaklingum.  Ég veit ekki hverjir þeir eru.  Það er leiðinlegt ef kostnaður við lagfæringar lendir á þeim.  Sjái Reykjavíkurborg ekki sóma sinn í að hafa frumkvæði að viðgerðinni er þörf á að hefja söfnun.

  Best væri að skemmdarvargarnir fyndust.  Þá væri hægt að skikka þá til að borga fyrir viðgerð.  Og borga væna sekt að auki.  Það er líklegt að einhverjir hafi séð til þeirra.  Bílaumferð um Langholtsveginn er töluverð en fáir á rölti.  

helgi hóseasson   


mbl.is Skemmdu minnisvarða um Helga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grænfriðungar eyðilögðu 2000 ára gamlan friðlýstan dýrgrip

perú

 Tveir tugir grænfriðunga (Greenpeace) eiga yfir höfði sér átta ára fangelsi í Perú.  Þeir eru sakaðir um að hafa eyðilagt 2000 ára gamlan friðlýstan dýrgrip.  Það er svokölluð Nazca teikning á jörð.  Hún er afgirt.  Aðgangur er bannaður.  Enda nýtur teikningin sín aðeins úr lofti séð. 

  Grænfriðungarnir brutu sér leið inn á svæðið í skjóli nætur.  Þar máluðu þeir á jörðina textann  "Time for Change!  The Future is Renewable.  Greenpeace".       

  Embættismenn í Perú segja að grænfriðungar hafi valdið ómetanlegum skaða.  Verksummerki eftir skemmdarvargana verði sýnileg næstu mörg hundruð árin.  Jafnvel 1000 ár.

  Ástæða skemmdarverksins var að koma skilaboðum til alþjóðlegrar loftlagsráðstefnu í Perú.   


Lennon og Marley eru pöddur

  Í Brasilíu er að finna allskonar skordýr.  Þar á meðal ýmsar skemmtilegar köngulær.  Ein tegundin heitir Bumba Lennoni.  Jú,  rétt.  Hún er nefnd í höfuðið á forsprakka bresku Bítlanna,  Jóni Lennon.

  

  Önnur köngulóartegund heitir Aptostichus Bonoi.  Hún gengur undir gælunafninu Joshua Tree Trapdoor köngulóin.  Heitið hefur eitthvað með írska söngvarann Bono (U2) að gera. 

  Enn ein köngulóartegundin heitir Loureedia Annulipes.  Hún er kennd við söngvaskáldið bandaríska Lou Reed.

  Það er líka til sjávarlúsartegund sem heitir Gnathia Marleyi.  Nafn hennar er sótt í höfuðið á jamaíska reggí-goðinu Bob Marley.

  Skelfiskstegund sem dó út fyrir 300 milljónum ára kallast Amaurotoma Zappa.  Bæði hún og fílapenslabakterían Vallaris Zappia eru nefnd eftir bandaríska háðfuglinum og tónlistarmanninum Frank Zappa.

  Egypskt vatnasvín þykir bera munnsvip líkan breska blúsrokksöngvaranum Mick Jagger.  Þess vegna heitir tegundin Jaggermeryx Naida.   

 


Er forsprakki Sleep Shepherd geðveikur?

p watson

 

  Færeyskir fjölmiðlar hafa verið að rifja upp gömul viðtöl við Paul Watson stofnanda og forsprakka Sea Shepherd - eða Sleep Shepherd eins og fyrirbærið er kallað eftir að liðsmenn samtakann sváfu af sér hvalveiðar í Færeyjum á dögunum. Sitthvað bendir til þess að maðurinn gangi ekki heill til skógar.

  Á sínum tíma var Paul Watson rekinn úr Greenpeace.  Hann fór ekki eftir reglum Greenpeace.  Hann fór ekki eftir neinum reglum.  Hann var skilgreindur af Greenpeace sem of geggjaður og skaðlegur málstað Grænfriðunga.

   SS-liðar staddir i Færeyjum hafa verið frekar kurteisir á spjallsíðum.  Þeir hafa eins og stillt sig inn á stemmninguna sem yfirvegaðir Færeyingar leiða í umræðunni.  En Paul Watson er kjaftfor og ögrandi.  1986 sökkti Paul eða menn á hans vegum tveimur íslenskum hvalveiðiskipum.

  Paul Watson segist hafa verið sem barn ættleiddur af amerískum indíánum.  Hann náði sambandi við "Andann mikla".  Hann fór að sjá sýnir,  tákn,  um að honum væri ætlað það hlutverk í lífinu að bjarga villtum dýrum frá því að vera veidd og drepin.  Fyrsta sýnin sem honum birtist ítrekað var af sléttuúlfum.  Það voru auðskilin fyrirmæli um beita sér gegn hvalveiðum.

  1985 skýrði Paul Watson frá því að hann hefði náð andlegu sambandi við hval.  Sá sagði honum ævisögu sína og frumsamda smásögu í leiðinni.  Þetta skráði Paul Watson samviskusamlega niður og sagðist ætla að gefa út í bók.  Vandamálið var að hvalur hugsar ekki né tjáir sig alveg á sama hátt og manneskja.  Þess vegna hefur Paul ekki tekist að reka smiðshöggið á bókina.

     


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband