Blautklútar fjarlægðir úr verslunum vegna skaðsemi

  Fyrir mánuði síðan - eða því sem næst - skýrði ég samviskusamlega frá því á þessum vettvangi hversu hættulegir blautklútar geta verið.  Í því sambandi vísaði ég til skelfilegrar reynslu Evu Tausen af þeim.  Hún situr uppi með skaddaða sjón.  Svo skaddaða að hún er ófær um að aka bíl.

  Eva er ein þekktasta söngkona Færeyja.  Hún hefur jafnframt náð frama á heimsmarkaði í kántrý-deildinni.  Náð toppsæti kántrý-vinsældalista víða um heim og hlotið alþjóðleg verðlaun.  Um þetta má lesa með því að smella snöfurlega á þennan hlekk:  hér

  Færeyskir fjölmiðlar fjölluðu eðlilega vel og rækilega um sjónskaða Evu.  Þá spruttu upp hinar ólíklegustu konur og vitnuðu um hliðstæða reynslu af blautklútunum.  Kornið sem fyllti mælinn var þegar Oda Kjartansdóttir Ström steig fram í vikunni og lýsti í færeyska útvarpinu sjónskaða sem klútarnir ollu henni.  Nú hafa blautklútarnir verið fjarlægðir úr færeyskum verslunum.  Þeir heita First Price.  Eru til sölu í íslenskum búðum.  Fólki er ráðlagt að nota í andlitið einungis blautklúta með svansmerkinu.      

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband