Færsluflokkur: Heilbrigðismál
5.2.2017 | 14:14
Brýnt að vita um stórhættulegan hversdagsmat
Í Biblíunni má finna ýmsan hagnýtan fróðleiksmolann. Til að mynda varðandi mataræði. Í þriðju Mósebók er haft orðrétt eftir Drottni eftirfarandi um það hvaða ferfætt dýr megi borða:
"Öll ferfætt dýr sem hafa klaufir og þær alklofnar og jórtra megið þér eta." Í upptalningu á ferfættum dýrum sem forboðið er að eta segir hann um svínið: "Það hefur að sönnu klaufir og þær alklofnar en jórtrar ekki. Það sé yður óhreint."
Seinni tíma þekking á svínakjöti hefur leitt í ljós að svínakjöt er varhugavert. Það eru allskonar sníkjudýr og eiturefni í því. Allir sem eta það farast.
Nú hafa rannsóknir leitt í ljós að beikonát veldur öndunarfærasjúkdómum á borð við astma. Sá sem snæðir beikon fjórum sinnum í viku eða oftar er í 76% meiri hættu á að fá astma en aðrir.
Heilbrigðismál | Breytt 23.10.2017 kl. 17:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
4.2.2017 | 10:11
Svoooo einfalt og ódýrt að komast hjá áfengisböli
Gríðarmikil hræðsla er við breytingar á smásölu áfengra drykkja - sem og að aflétt verði bláu banni við auglýsingum um þessa sömu vöru. Hræddastir allra eru þeir sem neyta ekki áfengra drykkja. Þeir eru á móti því að aðrir drekki þessa drykki. Mjög svo. Rök þeirra gegn frjálsræði í sölu áfengis eru þau helst að þá muni verð á bjór og léttvíni snarhækka. Jafnframt muni úrval minnka. Svo svakalega að drykkjuboltar geti einungis valið um bragðvonda Bónus-bjóra og Krónu-bjóra.
Til eru þeir sem óttast að vegna þessa - hærra verðs og minna úrvals - muni vesalingar missa stjórn á sér í matvöruverslunum. Þeir flækist ringlaðir inn í búð til að kaupa sígarettur, neftóbak og sykur. Skyndilega komi þeir auga á bjór og geggjast. Gleyma stund og stað og eyða öllum sínum aurum í fulla innkaupakerru af bjór. Hann þambi þeir af áfergju uns heimilið er í rúst. Þá snúi þeir sér að heróíni og metamfetamíni. Þaðan liggi leið rakleiðis í rándýra afvötnun á Vogi. Eða á geðdeild.
Raunveruleikinn er sá að allt afvötnunardæmið er aðeins pólitík og bisness. Með einfaldri og ódýrri aðferð má eyða allri löngun í vímuefni á örfáum mínútum - hafi einhver - einhverra hluta vegna - áhuga á því. Þetta er gert með dáleiðslu. Minnsta mál í heimi. Ég hef heyrt viðtöl við fólk sem kann dáleiðslu.
![]() |
Í guðanna bænum gerið það ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt 4.11.2017 kl. 14:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
30.1.2017 | 12:15
Gáfaðasti forsetinn
Heimsbyggðin hefur á undanförnum mánuðum kynnst mæta vel ljúfmenninu Dóna Trump. Hann er eins og vinalegur og velkominn heimilisvinur. Mætir daglega í heimsókn í öllum fréttatímum, hvort heldur sem er í útvarpsfréttum eða á sjónvarpsskjá inni í stofu eða á forsíðum dagblaða sem og á samfélagsmiðlum, til að mynda á Fésbók, Twitter og bloggi.
Það er gaman að fylgjast með þessum litríka náunga. Litríka í bókstaflegri merkingu. Nú er hann orðinn fyrsti appelsínuguli forseti Bandaríkja Norður-Ameríku. Jafnframt sá gáfaðasti í því embætti. Hann er bráðgáfaður. Yfirburðargáfaður. Hann hefur sjálfur sagt það. Margoft.
![]() |
Íslendingar gætu verið í vanda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt 31.1.2017 kl. 16:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
24.1.2017 | 10:20
Þannig kemst þú hjá því að kvefast
Um þessar mundir herja allskonar kvefpestir og flensur á landsmenn. Það er eðlilegt á þessum árstíma. Langt er síðan sól hefur verið hátt á lofti. Sólarljósið er hollt, styrkir varnarkerfi líkamans og bætir andlega líðan.
Ásamt sólarleysi herja kuldakaflar á okkur. Rok, snjór og kuldi eru vinir kvefveirunnar.
Til eru einfaldar aðferðir sem draga mjög úr líkum á að kvefast. Ein er sú að skottast í byggingavöruverslun og kaupa svokallaðar rykgrímur. Þær eru ódýrar og þægilegar. Bara smella þeim yfir vitin. Kvefveiran kemst þá ekki að þeim.
Önnur aðferð er að vera með gúmmíhanska á höndum utan heimilis. Kvefveiran bíður á bak við hurð, sem og á hurðarhúnum og stigahandriðum. Hún hefur hæfileika til að koma sér fyrir á húðinni og sæta lagi við að berast þaðan í munn eða nef.
Með þessum aðgerðum má draga úr líkum á að kvefast upp að 95%.
Hitt er annað mál að flestir hafa gott af því að kvefast af og til. Kvefið ertir varnarkerfi líkamans. Það fær góða leikfimi og stendur sterkar á eftir. Kvefið losar líkamann einnig við streitu. Í kjölfar góðrar kvefpestar er lundin létt í langan tíma á eftir.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2017 | 16:37
Glæsilegt upphaf Trumps í embætti
Eins og sumir vita þá urðu forsetaskipti í Bandaríkjum Norður-Ameríku á fyrsta degi í Þorra. Hussein hrökklaðist úr embætti. Hans verður helst minnst fyrir að hafa - með dyggum stuðningi Hildiríðar Clinton - náð að hleypa öllu í loft upp í Austurlöndum nær. Þau eru blóðug upp að öxlum. Nutu til þess eindregins stuðnings íslenskra stjórnvalda.
Nýr og appelsínugulur forseti, Dóni Trump, hyggst draga úr sprengjuregni Kanans í útlöndum. Um óþarfa bruðl á skotfærum sé að ræða. Hernaður í útlöndum eigi fyrst og síðast að snúa að því að ræna olíulindum.
Það gustar af Trump. Það gustar allt í kringum hann. Á fyrsta degi í embætti, á bóndadag, náði hann að koma fleiri Bandaríkjamönnum út að ganga en Hussein á átta árum. Hreyfing er lykill að heilbrigði. Göngutúrar eru besta líkamsrækt sem völ er á.
![]() |
Segir að Trump eigi að skammast sín |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 17:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
19.1.2017 | 04:06
Snautleg innsetningarhátíð
Rík hefð er fyrir stórkostlegri rokkhátíð þegar nýr karlmaður er formlega settur í embætti forseta Bandaríkja Norður-Ameríku. Stærstu nöfn rokksins sameinast í að afgreiða glæsilega dagskrá. Ekki aðeins bandarísk nöfn. Líka bresk. Forseti Bandaríkjanna er jafnframt forseti heimsins.
Á innsetningarhátíðinni sameinast þjóðin. Hún fagnar lýðræði og frelsi. Hún fagnar því að forsetakosningar eru haldnar á 4ra ára fresti. Þjóðin hefur valið sinn merkasta og hæfasta karlmann. Að þessu sinni ljúfmennið Dóna Trump.
Strax og sigur hans lá fyrir bárust fréttir af því að hann og hans menn væru farnir að ræða við stærstu rokkstjörnurnar. Þeim var sagt að á meðal þeirra sem kæmu fram yrðu the Beach Boys, Elton John, aularnir í Kiss, Garth Brooks og Céline Dion. Þessir aðilar brugðu við skjótt og þvertóku fyrir sína þátttöku - þrátt fyrir að þeim hafi verið lofað hárri fjárupphæð.
Engu að síður mátti ætla að rokkhátíðin gæti skartað stjörnum á borð við Nick Cave, Lady Gaga, Paul McCartney, Green Day, Tom Waits, Foo Fighters, U2, Patti Smith, Metallica, the Rolling Stones, Madonnu, Pearl Jam, Bob Dylan og Leoncie. Ekki endilega nákvæmlega þessi nöfn. Alveg eins einhver önnur af sömu stærðargráðu.
Nú, degi fyrir hátíðarhöldin, liggur fyrir að ekki tókst að landa neinni þekktri rokkstjörnu. Þetta verður snautlegasta rokkhátíð í manna minnum.
Jú, reyndar er eitt nafnið pínulítið þekkt innan sveitasöngvasenunnar. Þar er um að ræða Toby Keith. Hann hefur alla tíð verið yfirlýstur demókrati. Segist hinsvegar vera svekktur yfir því að þrátt fyrir tryggðina hafi honum aldrei verið umbunað af flokknum. Þar fyrir utan veiti honum ekkert af fjárfúlgunni sem er í boði. Hann hefur aldrei náð jafn stjarnfræðilega háu tímakaupi við að syngja kántrý-slagara.
Aðrir sem koma fram eru til dæmis að taka Dj Ravi Drums (spilar lög af plötum og trommar undir. Sjá myndband hér fyrir neðan.), Jacki Evanco (keppti í raunveruleikaþættinum America´s Got Talent) og The Piano Guys. Þeir kráka þekkt lög á píanó.
![]() |
Kærir Trump fyrir ærumeiðingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt 20.1.2017 kl. 10:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
17.1.2017 | 17:35
Í þá gömlu góðu daga
Bílarnir breytast og mennirnir með, eins og segir í orðatiltækinu. Fleira breytist. Til að mynda afstaða til heilsu og næringar. Framan af var litað sykurvatn á borð við Coca-cola selt sem heilsudrykkur. Um svipað leyti voru sígarettur einnig skilgreindar sem hollustuvara. Í dag er deilt um það hvort rafsígarettan sé hollari.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 17:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.1.2017 | 13:42
Humarfrelsarinn
Ég veit ekki margt um grænmetisætur (vegan/vegaterian). Þó veit ég að sumar þeirra borða dýraafurðir eins og egg og mjólkurvörur. Aðrar borða fisk. Vita fátt betra en harðfisk með smjöri. Svo eru það þær sem sniðganga vandlega allt sem tengist dýrum. Í þeirra tilveru er ekkert leður, ekkert silki, engin ull.
Ástæðan fyrir þessu getur verið margvísleg. Ein er takmarkalaus samúð með öllum lifandi verum. Öll dýr eigi rétt á að vera frjáls og ótrufluð af manna völdum. Það er falleg og göfug hugsjón.
Ung færeysk kona, Sigrið Guðjónsson, er í þessum hópi. Eins og nafnið gefur til kynna þá á hún ættir að rekja til Íslands. Að vísu dálítið langt aftur í ættir. Mig minnir að langamma hennar hafi verið íslensk.
Á dögunum átti Sigrið erindi í færeysku Kringluna, SMS, í Þórshöfn. Í versluninni Miklagarði sá hún lifandi humra í fiskborðinu. Hún fékk sting í hjartað, vitandi að humar er matreiddur þannig að honum er stungið lifandi ofan í pott. Hún gat ekki hugsað sér þessi kvalarfullu örlög humranna. Þeir mændu á hana í örvæntingu.
Það var ekki um annað að ræða en draga upp seðlaveskið. Hún keypti alla humrana, á þriðja tug. Þar með fauk sparipeningurinn. Það skipti minna máli en örlög humranna. Hún fékk aðstoð við að drösla þeim niður að höfn. Það er töluverður spotti þangað frá SMS. Þar sleppti hún þeim í sjóinn. Horfði hamingjusöm á eftir þeim fagna frelsinu.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 20:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
30.11.2016 | 10:17
Eggjahræra
Uppskriftin er fyrir fjóra. Hún miðast við að eggjahræran sé ein í boði. Það er að segja ekki hluti af hefðbundnum enskum eða skoskum morgunverði ásamt pylsum, beikonstrimlum, bökuðum baunum, grilluðum tómatsneiðum, steiktum sveppum, ristuðu brauði og einhverju svoleiðis.
Heppilegast er að vera með fjórar pönnur.
12 brúnegg
160 gr beikonkurl
160 ml rjómi
Rammíslenskt smjör
salt og pipar
4 flöskur af kældu hvítvíni
Beikonkurlið er léttsteikt á einni pönnu. Á meðan eru eggin skrúbbuð hátt og lágt (til að ná af þeim músaeitrinu). Að því loknu er skurnin brotin og innihaldið látið gusast ofan í djúpa glerskál. Rjómanum er hellt út í. Beikonkurlinu er sturtað með.
Áður en þessu er hrært vandlega saman skal vænni smjörklípu skellt með látum á hverja pönnu. Nægilega stórri til að hún komi til með að fljóta yfir allan pönnubotninn. Pönnurnar eru látnar volgna. Þegar smjörið hefur bráðnað er hrærunni hellt yfir pönnurnar. Örlítið er skerpt á hitanum. Samt ekki mikið. Salti og pipar er stráð yfir. Bara smá. Fylgist spennt með hrærunni steikjast. Áður en hún nær að steikjast í gegn er slökkt undir pönnunum. Síðan er tekið til við að þamba hvítvínið á meðan hræran fullsteikist. Að því loknu er hún tilbúin. Þá verður kátt í kotinu.
![]() |
Hanga á Facebook-síðum almennings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 10:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
28.11.2016 | 19:11
Gróft dýraníð
Mikið lifandi skelfingar ósköp sem var óhugnanlegt að fylgjast með aðförum Sea Shepherd-liða í Færeyjum í fyrrasumar og sumarið þar áður. Steininn tók úr þegar þeir reyndu að kenna marsvínum að kafa undir báta Færeyinga er þeim var smalað upp í fjöru. Til að koma dýrunum í skilning um að þau ættu að kafa þá sigldu SS-liðar ofan á þau. Við það ristu bátskrúfurnar djúpa skurði í hold hvalanna. Þeir öskruðu af gríðarmiklum sársauka. Ekki tók betra við þegar saltaður sjórinn nuddaði salti í sárin. Þeir skildu hvorki upp né niður í þessu sadíska dýraníði. Ekki ég heldur.
![]() |
Sea Shepherd-liði dæmdur fyrir dýraníð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |