Færsluflokkur: Heilbrigðismál
18.3.2015 | 08:06
Ósvífinn áróður
Frá unglingsárum hef ég heyrt því haldið fram að ýsan sé hrææta. Fyrir bragðið fúlsa margir við henni. Það fer hrollur um fólk við að heyra orðið hrææta. Samt eru nánast allir Íslendingar hræætur. Við lifum á hræjum. Kjöt og fiskur sem við borðum er af dýrum sem fyrir löngu síðan voru drepin og eru hræ.
Ýsan er ekki hrææta.
Misskilningurinn liggur í því að ýsan étur sand til að hreinsa meltingarveginn. Í innyflum hennar er þess vegna svört leðja. En hún étur ekki hræ. Hún lifir á sprelllifandi botndýrum (rækjum, krabba, slöngustjörnum, skrápdýrum...). Það munar öllu. Þess vegna er hold ýsunnar skjannahvítt, þétt og bragðmikið hér á Norðurhöfum. Einhver besti matur sem til er. Ýsa var það heillin.
Heilbrigðismál | Breytt 18.3.2016 kl. 19:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
14.3.2015 | 17:59
Ekki sjóða fisk í vatni
Í gamla daga var á allflestum íslenskum heimilum vinsæll hversdagsréttur sem kallaðist soðning. Um var að ræða þverskorna ýsu eða þorsk með roði og beinum. Með þessu voru snæddar soðnar kartöflur. Til hátíðisbrigða var brætt smjör út á. Krakkar fengu að auki tómatsósuslettu.
Bitarnir voru soðnir í vatni vel og lengi. Í það minnsta tuttugu mínútur. Á yfirborði vatnsins myndaðist hvít froða. Á þessum árum vissi fólk ekki að í froðunni voru næringarefnin úr fiskinum. Þau voru soðin úr honum. Mörg bráðholl prótein, vítamín og önnur næringarefni eru í fiski.
Engu að síður var og er soðningin góður matur sem aldrei er hægt að fá leiða á.
Síðar lærði fólk að heppilegra er að snöggsjóða fisk. Til að mynda með því að taka pottinn af eldavélahellunni í um leið og vatnið nær suðu.
Besta aðferðin er að hita fisk í ólívuolíu. Ekki aðeins til að næringarefnin haldist í fiskflakinu heldur skilar þetta bragðbesta og þéttasta holdinu.
Fyrst skal salta roðlaus og beinlaus fiskiflökin þokkalega. Leyfa þeim síðan að hvíla í algjörum friði í 5 mínútur og 12 sek.
Á meðan er um það bil 3 dl af besta fáanlega hvítvíni hitaðir í potti (undir loki til að lágmarka uppgufun). Um leið og beðið er eftir að hvítvínið í pottinum nálgist suðu skulu 5 dl af köldu og fersku hvítvíni sötraðir af áfergju.
Væntanlega gerist það um svipað leyti að fiskiflökin hafa hvílt í nægilegan tíma og næstum því er farið að sjóða á hvítvíninu. 3 dl af ólívuolíu er hellt út í og fiskflökin lögð ofan í blönduna. Þar fá þau að svamla í 6 mínútur og 52 sek. Að þeim tíma liðnum er flökunum pakkað inn í álpappír til að olían og vínið fái að vinna í friði í 5 mínútur. Eftir það bragðast fiskurinn betur en nokkurntíma áður.
Upplagt er - ef einhver nennir - að laga sósujafning úr hvítvíns- og olíublöndunni. Einnig má skvetta kæruleysislega smá af blöndunni yfir fisk og meðlæti eftir að það er komið á disk.
Soðnar kartöflur henta vel sem meðlæti, ásamt smjörsteiktum lauk, rúgbrauði og smjöri. Mestu munar um að hafa nóg af kældu hvítvíni með til að skola kræsingunum niður. Og ekki síður að hafa nóg af kældu hvítvíni það sem eftir lifir dags til að halda rækilega upp á góða veislumáltíð.
Heilbrigðismál | Breytt 15.3.2016 kl. 19:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
7.3.2015 | 17:44
Ljótir glæpamenn eru handteknir aftur og aftur
Eitt einkennir glæpamenn umfram annað: Þeir eru ljótir. Svo ljótir að iðulega kemst upp um þá vegna þess. Þeir nást vegna þess hvað þeir eru áberandi ljótir. Það þarf ekki að fletta upp á mörgum síbrotamönnum til að sjá hvað þeir eru áberandi ljótir.
Þetta hefur verið rannsakað til margra ára í Bandaríkjunum. Niðurstaðan er öll á einn veg: Glæpamenn eru ljótir. Um það má lesa hér
Til þessa er einungis vitað af tveimur þokkalega vel útlítandi síbrotamönnum. Annar er ungur drengur. Hinn ung stúlka. Ef þau láta sér ekki segjast er næsta víst að þau verði ljótunni að bráð.
Hér eru myndir - valdar af handahófi - af nokkrum þekktum síbrotamönnum:
Þessi er í Flórida. Gengur undir gælunafninu Dracula.
Daman er góðkunningi lögreglunnar í Flórída.
Glæpagutti í Kaliforníu.
Það vantar neðri hlutann á höfuð glæpadrengsins í Phoenix.
Framan á þennan krimma vantar nef og varir.
Breskir glæpamenn eru lítið skárri en þeir bandarísku.
![]() |
Sæta glæpastúlkan handtekin aftur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt 27.2.2016 kl. 10:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2015 | 11:49
Gríðarlegt úrval af töfralausnum
Það hefur aldrei skort framboð af töfralausnum við öllum kvillum. Það eru góðu fréttirnar. Sumar lausnir eru meira að segja nánast ókeypis. Í lok síðustu aldar læknaði svokallaður Kákasussveppur nánast öll mein. Fólk gaf hvert öðru afleggjara af sveppnum. Hann framleiddi drykk með þessum töfraeiginleikum. Þegar best lét var sveppurinn ræktaður á öðru hverju heimili á landinu.
Svo, eins og hendi væri veifað, hvarf sveppurinn úr öllum hýbýlum. Þess í stað fékk fólk sér töfraarmband. Það læknaði flesta kvilla. Armbandið hafði það fram yfir sveppinn að vera fallegt. Það var skart um leið og það kvað niður hausverk, mígreni, vöðvagigt og hvað sem fólki datt í hug.
Slípaðir steinar fylla fólk orku. Þess vegna eru þeir kallaðir orkusteinar. Steinarnir eru geymdir í buxnavasanum. Þeir hafa það umfram armbandið að vernda fólk að auki gegn illum öflum. Jafnvel gluggapósti. Upplagt er að hafa lukkustein í fleiri vösum. Það fimmfaldar líkur á að vinna í bingói.
Löngum gafst vel að verjast kvefi með því að fara í ískalt bað að morgni. Eftir bað var líkaminn þurrkaður vel og rækilega með tyrknesku handklæði. Vitað er um eitt dæmi þess að einstaklingur kvefaðist þrátt fyrir þetta. Síðar kom í ljós að hann hafði fyrir misskilning þurrkað sér með handklæði frá þeim hluta Kýpur sem heyrir ekki undir Tyrkland.
Um hríð fór Sálarrannsóknarfélagið með hundruð veikra Íslendinga til Filippseyja. Þar skáru töfralæknar þá upp með berum höndum og fjarlægðu krabbamein, veik líffæri og allskonar. Draslið sem fjarlægt var reyndist við nánari skoðun eiga uppruna í svínum og kálfum. Það er varasamt að vera með líffæri úr þessum skepnum.
Ekki má gleyma pendúlum og andaglasi við sjúkdómsgreiningu.
Hér má sjá árangursríka lausn við höfuðverk:
![]() |
Kastljós þvældi veiku fólki um bæinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt 22.2.2016 kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
3.3.2015 | 04:22
Ringo segir Paul hafa látist í bílslysi 1966
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 08:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
1.3.2015 | 21:24
Viðhald festist við gifta konu
Í sveitinni í Hjaltadal fóru tíkur stundum á flakk á milli bæja. Þá voru þær á lóðaríi. þegar hundar sinntu þeim festi tíkin þá í dágóða stund. Þetta getur hent í samskiptum fólks líka. Til að mynda í S-Afríku. Þar kom harðgift hálf fertug kona sér upp viðhaldi, tvítugum dreng. Eiginmanninn á fimmtugsaldri grunaði þetta. Til að komast að hinu sanna þá leitaði hann til töfralæknis. Sá framkvæmdi þegar í stað svartagaldur og lagði á konuna. Það var eins og við manninn mælt. Viðhaldið festist við hana í ástarleik.
Þegar konan og friðillinn uppgötvuðu vandamálið hrópuðu þau á hjálp. Sem betur fer voru allar dyr í húsinu ólæstar. Verra var að fólkið sem kom fyrst að gat enga hjálp veitt. Þess í stað hringdi það í vini og kunningja í nágrenninu og sagði tíðinda. Á örskammri stundu var 2000 manna hópur mættur á svæðið til að fylgjast með vandræðum elskendanna.
Fólk flissaði, tók bakföll og ljósmyndir. Þetta þótti góður farsi. Lögreglu bar að. Fólkið vildi halda áfram að fylgjast með. Lögreglunni tókst seint og síðar meir með hjálp piparúða að fæla fólkið á brott. Að lokum voru turtildúfurnar fluttar á sjúkrahús. Þar var konunni gefið vöðvaslakandi lyf til að losa um vöðvakrampann.
Myndin sýnir mannfjöldann streyma að áður en lögreglan skarst í leikinn.
Heilbrigðismál | Breytt 21.2.2016 kl. 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.2.2015 | 20:46
Jón Þorleifs og símahleranir
Einn góðan veðurdag fékk Jón Þorleifsson, verkamaður og rithöfundur, þá flugu í höfuðið að bandaríska leyniþjónustan, CIA, fylgdist með sér. Ég geri mér ekki grein fyrir því hvenær honum datt þetta í hug. Mig grunar að það hafi verið í kjölfar þess að systir mín og hennar fjölskylda flutti til útlanda fyrir aldarfjórðungi eða svo. Fyrstu símtölin að utan voru úr lélegum símasjálfsölum. Á sama tíma varð Jón þess var að pakkar að utan voru greinilega opnaðir á Tollpóststofunni.
Grunur og vissa Jóns um þessar njósnir urðu þráhyggja. Hann velti sér upp úr þessu. Það var í aðra röndina eins og honum þætti upphefð af því að vera undir eftirliti CIA.
Sumir urðu til að fullyrða við Jón að þetta væri hugarburður hjá honum. "Hvers vegna ætti leyniþjónusta vestur í Ameríku svo mikið sem vita af íslenskum eftirlaunþega þó að hann gefi út fjölritaðar bækur í örfáum eintökum?" var spurt.
Jón svaraði: "Það er merkilegt að leyniþjónustan hafi svona miklar áhyggjur af bókunum mínum. Orð geta verið beittari en sverð."
Jón gerði sér nokkrar ferðir til Símans í Ármúla. Þar krafðist hann þess að Síminn hætti umsvifalaust að leyfa CIA að hlera síma sinn. Kunningi minn sem vann hjá Símanum sagði að heimsóknir Jóns vektu kátínu þar á bæ.
Jón taldi sig merkja af viðbrögðum starfsmanna Símans að þeir vissu upp á sig skömmina. Þeir urðu lúpulegir og missaga.
Svo fór að starfsmaður Símans heimsótti Jón. Sagðist vera að rannsaka þessar hleranir. Jón sagðist hafa verið fljótur að sjá í gegnum það leikrit. "Maðurinn var ósköp vinalegur. Hann ræddi við mig um flest annað en símhleranirnar. Vildi vita hvernig heilsa mín væri og hvaðan ég væri af landinu. Hann tók aðeins upp símtólið til að heyra sóninn. Hann hafði ekki einu sinni rænu á að þykjast leita að hlerunarbúnaði. Enda vissi hann jafn vel og ég að hlerunarbúnaðurinn er staðsettur í húsakynnum Símans eða Sendiráði Bandaríkjanna."
Fleiri sögur af Jóni: hér
Heilbrigðismál | Breytt 22.2.2015 kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.2.2015 | 21:40
Tískubylgjan er kústur
Norður-Kórea er eitt af undrum veraldrar. Þetta er lokaðasta og einangraðasta ríki heims. Mannréttindabrot eru stórfelld og mikil fátækt. Forseti landsins er Kim Il Sung. Hann dó fyrir tveimur áratugum. En er samt ennþá forseti landsins. Stjórnar því af öryggi. Fyrst með aðstoð sonar síns, Kim Jong Il. Sá lagði sig svo fram um að hlaupa undir bagga með pabbanum að hann dó úr vinnuálagi. Dugði þar hvergi til að hann var árum saman búinn að safna orku og kröftum við að sitja öll kvöld allsnakinn við að þamba koníak.
Þegar Kim Jong Il dó úr vinnuálagi varð fuglum himins svo um að þeir þögnuðu. Harmur þeirra var svo yfirþyrmandi við að heyra fréttina.
Kim Jong Il fann upp hina heimsþekktu kjötsamloku sem kallast hamborgari. Þessa fróðleiksmola hef ég eftir n-kóreskum fjölmiðlum.
Við fráfall koníaksþambarans tók sonur hans, Kim Jong Un, við því hlutverki að hjálpa afa sínum við að stýra ríkinu. Eldri bróðir hans hafði klúðrað arftökunni með því að laumast til Japans á fölsuðum skilríkjum. Hann var staðinn að verki í tívolí í Japan. Fyrir bragðið varð hann aðhlátursefni um allan heim. Sem var út af fyrir sig í stíl við það aðhlátursefni sem pabbi hans og afi hans voru og eru. En í Norður-Kóreu var gerður munur á þessu.
Kim Jong Un kom brattur inn á sviðið. Hann lét þegar í stað taka af lífi háttsetta í fjölskyldunni. N-Kóreskir fjölmiðlar slógu upp á forsíðu að Kim Jong Un væri af heimsbyggðinni talinn kynþokkafyllsti maður heims.
Vissulega er Kim Jong Un kynþokkafullur. Held ég. Reyndar er ég ekki flinkur við að átta mig á því hvaða karlar eru kynþokkafullir eða ekki. Ég legg það í hendur n-kóreskra fjölmiðla. Og ykkar.
Kim Jong Un hefur aðgang að bestu stílistum N-Kóreu. Hann hefur lagt línu fyrir heimsbyggðina með stíl sem kallast kústur. Nafnið er dregið af hárgreiðslu og vel snyrtum stuttum augnabrúnum. Þetta er til fyrirmyndar. Kústur er málið.
.
Heilbrigðismál | Breytt 12.2.2016 kl. 14:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.2.2015 | 22:22
Óþolandi umburðarlyndi gagnvart ofbeldi
Það er einkennilegt hvað íslenskir dómsstólar eru léttúðugir gagnvart heimilisofbeldi. Ítrekað hafna þeir ósk barnaverndaryfirvalda og lögreglu um nálgunarbann. Það virðist þurfa að ganga mjög mikið á áður en dómstólar fallast á nálgunarbann. Lögreglan þarf að veifa framan í dómara hnausþykkum skýrslubunka sem sannar langvarandi ofbeldi til að fallist sé á það.
Barn á aldrei að upplifa það að vera áhorfandi að ofbeldi á heimilinu. Eitt atvik er of mikið. Manneskja sem beitir barn ofbeldi er illmenni.
Það er glæpur að beita barn ofbeldi. Óþverralegur glæpur. Hvort heldur sem er andlegu eða líkamlegu ofbeldi. Það á að taka á þeim glæp af fullri festu til samræmis við alvarleika hans.
Barn á að upplifa heimili sem hreiður og skjól. Líka fullorðið fólk. Heimilisofbeldi má ekki líða. Það á að taka snöfurlega á slíku og beita öllum mögulegum meðölum til að stöðva og fyrirbyggja framhald á því. Það þarf að skilgreina heimilisofbeldi sem grófan og MJÖG alvarlegan glæp.
Helst þyrfti að loka ofbeldismann umsvifalaust í 2ja vikna gæsluvarðhald við fyrsta brot. Jafnframt að beita hann háum fjársektum, skikka í samfélagsþjónustu og setja nálgunarbann. Aðeins þannig fær illmennið rétt skilaboð.
Umburðarlyndi dómsstóla gagnvart heimilaofbeldi er óþolandi.
![]() |
Barði börn sín og hótaði þeim |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt 17.2.2015 kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.2.2015 | 20:25
Geggjuð andlitshúðflúr
Húðflúr segja mikið um þann sem ber húðflúrið. Einkum húðflúr á andliti. Í fyrsta lagi þarf töluverða dirfsku til að fá sér húðflúr á jafn áberandi stað. Oft er það fífldirfska.
Flest húðflúr í andliti eru sakleysislegar augnlínur og ennþá saklausari augnabrúnir. Það er ekkert nema í góðu lagi ef húðflúrið fylgir stæði raunverulegu augnabrúnna. Mörgum konum þykir það þægilegt. Það sparar tíma og peninga við að lita stöðugt á sér augnabrúnir. Verra er þegar húðflúrið fylgir ekki augnabrúnastæðunum. Það er sama hversu vel augnabrúnahárin eru rökuð burt; það sést alltaf móta fyrir stæðunum. Útkoman verður kjánaleg.
Sumir nota augnabrúnirnar til að skreyta ennið enn frekar með húðflúri. Það takmarkar mjög mikið möguleika fólks á vinnumarkaðnum. Ekki einungis vegna þess að þetta er langt frá því að vera flott heldur vegna þess að þetta sýnir glöggt að einstaklingurinn er ekki í lagi. Manneskja sem sýnir augljósan dómgreindarskort er ólíklegur til að standa sig vel í vinnu. Að auki einkennir þannig fólk iðulega sauðalegur svipur.
Enn aðrir merkja yfirlýsingu á ennið á sér. Þeir taka af allan vafa um hversu hættulega brenglaðir þeir eru.
Ein vinsæl aðferð er að láta húðflúra "augu" á augnlokin. Þá sér enginn þegar viðkomandi blikkar augunum. Eða, jú. Allir sjá að viðkomandi verður fíflalegur og sturlaðir á svip.
Í glæpagengjum leyfa höfuðpaurar sér gjarnan að fá húðflúr yfir allt andlitið. Þeir vita að þeir muni aldrei fara út á almennan vinnumarkað. Húðflúrað andlitið háir þeim þess vegna ekki. Þvert á móti. Það er stöðutákn innan glæpagengisins.
Svo eru þeir til sem fá sér húðflúr yfir allt andlitið til að tjá þjóðernisrembing. Kannski takmarkar það ekki verulega atvinnumöguleika. Hinsvegar er meiri reisn yfir því að láta húðflúra á sig fána lágréttum fremur en lafandi lóðréttum.
Til að fyrirbyggja misskilning þá hef ég ekkert á móti húðflúrum. Fjarri því. Ég er með fjölda húðflúra. En ekki á andlitinu.
![]() |
Ljóska sér eftir að hafa tattúverað augnabrúnirnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt 6.2.2016 kl. 16:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)