Geggjuð andlitshúðflúr

  Húðflúr segja mikið um þann sem ber húðflúrið.  Einkum húðflúr á andliti.  Í fyrsta lagi þarf töluverða dirfsku til að fá sér húðflúr á jafn áberandi stað.  Oft er það fífldirfska. 

  Flest húðflúr í andliti eru sakleysislegar augnlínur og ennþá saklausari augnabrúnir.  Það er ekkert nema í góðu lagi ef húðflúrið fylgir stæði raunverulegu augnabrúnna.  Mörgum konum þykir það þægilegt.  Það sparar tíma og peninga við að lita stöðugt á sér augnabrúnir.  Verra er þegar húðflúrið fylgir ekki augnabrúnastæðunum.  Það er sama hversu vel augnabrúnahárin eru rökuð burt;  það sést alltaf móta fyrir stæðunum.  Útkoman verður kjánaleg.

húðflúr a augabrúnir 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sumir nota augnabrúnirnar til að skreyta ennið enn frekar með húðflúri.  Það takmarkar mjög mikið möguleika fólks á vinnumarkaðnum.  Ekki einungis vegna þess að þetta er langt frá því að vera flott heldur vegna þess að þetta sýnir glöggt að einstaklingurinn er ekki í lagi.  Manneskja sem sýnir augljósan dómgreindarskort er ólíklegur til að standa sig vel í vinnu.  Að auki einkennir þannig fólk iðulega sauðalegur svipur.     

húðflúr b ennisskraut

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Enn aðrir merkja yfirlýsingu á ennið á sér.  Þeir taka af allan vafa um  hversu hættulega brenglaðir þeir eru.

húðflúr dhúðflúr e 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ein vinsæl aðferð er að láta húðflúra "augu" á augnlokin.  Þá sér enginn þegar viðkomandi blikkar augunum.  Eða,  jú.  Allir sjá að viðkomandi verður fíflalegur og sturlaðir á svip.

húðflúr c augnlok

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í glæpagengjum leyfa höfuðpaurar sér gjarnan að fá húðflúr yfir allt andlitið.  Þeir vita að þeir muni aldrei fara út á almennan vinnumarkað. Húðflúrað andlitið háir þeim þess vegna ekki.  Þvert á móti.  Það er stöðutákn innan glæpagengisins. 

  Svo eru þeir til sem fá sér húðflúr yfir allt andlitið til að tjá þjóðernisrembing.  Kannski takmarkar það ekki verulega atvinnumöguleika.  Hinsvegar er meiri reisn yfir því að láta húðflúra á sig fána lágréttum fremur en lafandi lóðréttum.

húðflúr usa 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Til að fyrirbyggja misskilning þá hef ég ekkert á móti húðflúrum.  Fjarri því.  Ég er með fjölda húðflúra.  En ekki á andlitinu.

hu_flur_faereyjar (1)    


mbl.is Ljóska sér eftir að hafa tattúverað augnabrúnirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Már Elíson

Nei, þeir fengju varla vinnu hjá hinu opinbera þessir...Jafnvel með bréf upp á vasann !

Már Elíson, 15.2.2015 kl. 20:52

2 Smámynd: Jens Guð

Mar,  að minnsta kosti verður maður ekki var við að embættismenn hins opinbera séu með andlitið húðflúrað.

Jens Guð, 15.2.2015 kl. 22:34

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei ég heyrði sögu af karli sem var á elliheimili, einn daginn sagði ein eldri hjúkka við aðra yngri,

Hefurðu tekið eftir því að Jón er með tattú á sprellanum?

Nei sagði sú yngri og hvað stendur þar?

Það stendur ópel, sagði sú gamla.

Þetta verð ég að sjá sagði hin.  Og næsta baðdag kom hún því þannig fyrir að hún baðaði gamla manninn.

Svo kom hún hneyksluð til þeirrar eldri og sagði: 

Sko það stendur ekkert Opel á sprellanum. 

Nú sagði sú gamla ég sá það sjálf með eigin augum. 

Nei sagði hin.  Það stendur nefnilega Konstantínópel. cool

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.2.2015 kl. 09:06

4 Smámynd: Jens Guð

Ásthildur Cesil,  þessi var góður! tongue-out

Jens Guð, 16.2.2015 kl. 20:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.