Færsluflokkur: Heilbrigðismál
15.10.2012 | 00:31
Falleg minningarathöfn um Rasmus í Fríkirkjunni
Útför Rasmusar Rasmussen fór fram í Færeyjum í gærdag (laugardag). Á annað þúsund manns mætti til að kveðja þennan merka gítarleikara og tónlistarmann. Um kvöldið var minningarsamkoma um hann á veitingastaðnum Sirkusi í Þórshöfn. Færri komust að en vildu. Þarna spilaði gamla hljómsveitin hans, Makrel. Einnig hljómsveitin Deja Vu og fleira tónlistarfólk.
Rasmus var svo sannarlega vinamargur. Allir sem honum kynntust hittu fyrir ljúfan, hæglátan, glaðværan og brosmildan dreng. Allir sem honum kynntust urðu umsvifalaust góðir vinir hans. Hann var traustur, einlægur og góður vinur.
Ljúfmennska Rasmusar stangaðist skemmtilega á við harða, þunga og háværa rokkið sem hann sótti í. Hann naut sín best á sviði þegar lætin voru sem mest, hávaðinn mestur og rokkið þyngst. Þegar hann kíkti í heimsókn til mín vildi hann heyra þær íslensku plötur sem buðu upp á mest "brútal" harðkjarnarokk. Hljómsveitin Mínus var í sérstöku uppáhaldi.
Kolbrún Edda Sigurhansdóttir stóð fyrir minningarathöfn um Rasmus við Reykjavíkurtjörn og í Fríkirkjunni í gærkvöldi. Athöfnin hófst með kertafleytingu á tjörninni við Iðnó. Síðan var samverustund í Fríkirkjunni. Það má sjá upphaf athafnarinnar á http:/www.ruv.is/sarpurinn/sjonvarpsfrettir . Fletta upp á 14. okt og mínútu 11:16.
Í Fríkirkjunni og við kertafleytingu stýrði Hörður Torfason dagskránni. Hann flutti nokkur lög og spjallaði við gesti. Færeyska söngkonan Guðríð (nafnið er framborið Gúrí) Hansdóttir flutti lag eftir Rasmus. Ég flutti ávarp og lagði áherslu á að ekki megi heimfæra yfir á Færeyinga í heild ofbeldið og ofsóknir sem Rasmus sætti af hálfu örfárra. Alls ekki. Færeyingar almennt eru gott fólk. Eins og Rasmus.
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur Fríkirkjunnar, ávarpaði einnig kirkjugesti og bauð okkur að kveikja á kertum til minningar um Rasmus. Þetta var falleg stund.
Ég færi Kolbrúnu Eddu sérstakar þakkir fyrir framtakið. Einnig Herði Torfa, Guðríði, Hirti Magna, Fríkirkjunni og þeim fjöldamörgu sem mættu í samverustundina.
Sömuleiðis færi ég íslenskum fjölmiðlum bestu þakkir fyrir góða umfjöllun í kjölfar fráfalls Rasmusar og öllu sem því tengist. Það var sómi að og nærgætni.
Rasmus hafði dálæti á Íslandi, íslenskri rokkmúsík og það var yndislegt að fá að taka þátt í þessari minningarathöfn. Eftir að ráðist var á Rasmus í Þórshöfn margsagði hann mér að stuðningsbylgjan sem hann fékk frá Íslendingum hafi skipt hann öllu máli.
2008 spilaði og söng Rasmus á 30 ára afmæli Samtakanna 78. Ég heilsaði að sjálfsögðu upp á hann, ásamt Ingólfi Júlíussyni, gítarleikara Q4U. Ingó var búinn að vinna í Færeyjum myndbönd fyrir færeysku hljómsveitina Tý og hafði kynnst Rasmusi. Nokkrum dögum síðar skrifaði Rasmus mér tölvupóst og sagði eitthvað á þessa leið: "Ég geri mér grein fyrir því að það var ekkert mikið mál fyrir ykkur Ingó að heilsa upp á mig. En þið getið aldrei ímyndað ykkur hvað það gaf mér mikinn styrk að finna þennan stuðning frá ykkur í verki." Hann bað mig um að skila þessu til Ingós. Ingó varð jafn hissa og ég á að þetta skipti Rasmus svona miklu máli. Rasmus var vinur okkar og auðvitað heilsuðum við upp á hann þegar hann var á Íslandi.
Rasmus upplifði sig eftir árásina 2006 sem byrði á fjölskyldu sinni og vinum. Hann hætti í hljómsveitinni Makrel til að hinir í hljómsveitinni þyrftu ekki að svara fyrir það að vera með homma í hljómsveitinni. Rasmus átti það til að eyða símanúmeri sínu og neita að taka á móti heimsóknum á geðdeildinni og neita að taka við símtölum. Ég lenti í því oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að hann var búinn að biðja mig um að heilsa upp á sig þegar ég kæmi til Færeyja (ég fer þangað 2 - 3 árlega). Þegar á reyndi var hann í sjálfskipaðri einangrun. En ekki alltaf. Við vorum í samskiptum fram á síðasta dag. Stundum spjölluðum við á fésbók klukkustundum saman. Stundum var Rasmus hamingjusamur og með ýmis áform varðandi músík. Stundum var hann langt niðri og fannst hann vera byrði á öllum.
Hann stofnaði plötuúgáfufyrirtæki sem bar hið dimma nafn Myrkar Records (Myrkurs plötur). Hann gaf út plötu undir hljómsveitarnafninu Hatursvart. Upphafslag plötunnar heitir Í skugganum hjá djöflinum. Hann sendi frá sér plötu undir listamannsnafninu Mjörkeborg (í merkingunni eiturskýjaborg eða eiturþokuborg). Það leyndi sér ekki að þungt var yfir bænum.
Rasmus sendi mér alltaf sýnishorn af öllu sem hann var að gera í músík. Hann sendi mér einnig plöturnar með áletruninni "Jens Guð, takk! Rasmus". Í tölvupóstum var hann yfirleitt jákvæðurog glaður. Á morgun ætla ég birta póst sem hann sendi mér mánuði eftir að hann var vistaður á geðdeild. Ég las þann póst á minningarathöfninni og sumir klökknuðu við. Ég líka.
.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 03:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
13.10.2012 | 20:58
Minningarathöfn um Rasmus
Á morgun (sunnudag 14. október) verður haldin minningarathöfn um færeyska gítarleikarann Rasmus Rasmussen sem kvaddi þennan heim 32ja ára gamall 10. október. Athöfnin hefst með kertafleytingu á Tjörninni við Iðnó klukkan 19.00. Að henni lokinni tekur við samkomustund í Fríkirkjunni. Þar koma fram m.a. Hörður Torfason og færeyska söngkonan Guðríð Hansdóttir, ásamt því sem ég flyt ávarp.
Með því að smella á þessa slóð má sjá minningargrein um Rasmus: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1261938/
Hér er nánar um minningarathöfina: http://samtokin78.is/frettir/tilkynningar/5607-minningarathoefn-um-rasmus-rasmussen
Útför Rasmusar fór fram í Færeyjum í dag. Í kvöld var haldin minningarathöfn um hann á veitingastaðnum Sirkusi í Þórshöfn.
Vinsamlegast deilið.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 22:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
11.10.2012 | 01:55
Fátækleg minningarorð um góðan dreng
Hörmuleg tíðindi bárust frá Færeyjum í gærmorgun. Gítarleikarinn Rasmus Rasmussen hefur kvatt þennan heim. Hann skilur eftir sig djúp og varanleg spor í færeyskri tónlist og færeysku samfélagi.
Ég kynntist Rasmusi þegar færeyskur tómstundaskóli fékk mig til að kenna skrautskrift í Þórshöfn á tíunda áratugnum. Rasmus og félagar hans í þungarokkshljómsveitinni Diatribes bönkuðu upp á hjá mér og buðu á óformlega einkahljómleika í æfingarhúsnæði. Það hafði spurst út að Íslendingurinn væri þungarokksunnandi. Ég man ekki hvort Rasmus var þá byrjaður með eina þungarokksþáttinn í færeyska útvarpinu, Rokkstovuna. Kannski var það aðeins síðar. Rasmus langaði til að spila íslenskt þungarokk í þættinum og bað mig um að vera sér innan handar við það. Sem var auðsótt mál. Jafnframt kynnti hann mig fyrir færeysku þungarokkssenunni. Það leiddi til þess að ég tók saman vest-norræna þungarokksplötu, Rock from the Cold Seas. Hún innihélt færeysk, grænlensk, samísk og íslensk lög.
2002 hafði ég milligöngu um að nýrokkshljómsveit Rasmusar, Makrel, tæki þátt í Músíktilraunum Tónabæjar. Hljómsveitin sigraði á sínu undanúrslitskvöldi og hlaut bronssætið á lokakvöldinu. Rasmus var kosinn besti gítarleikarinn. Hann var einnig kosinn besti gítarleikarinn í færeysku tónlistarverðlaununum AME.
Með Makrel spilaði Rasmus oftar á Íslandi og nokkur lög hljómsveitarinnar nutu vinsælda í íslensku útvarpi. Makrel var stórt nafn í færeysku rokki.
Með útvarpsþættinum Rokkstovunni hafði Rasmus mótandi áhrif á tónlistarsmekk Færeyinga. Einnig sem nýskapandi gítarleikari með flottan og sjálfstæðan stíl. Hann hafði spilað með flestum helstu þungarokkshljómsveitum Færeyja. Velgengnin steig Rasmusi ekki til höfuðs. Hann var rólegur, prúður og hógvær; brosmildur, glaðsinna og jákvæður. Lífið brosti við honum.
Þá dundi ógæfan yfir. 2006 varð Rasmus fyrir fólskulegri árás á skemmtistað. Nokkrir menn gerðu hróp að honum og lömdu hann illa. Næstu daga var Rasmusi hótað öllu illu í síma. Lögreglan upplýsti að ekkert væri hægt að gera í málinu vegna þess að ofsóknirnar væru vegna samkynhneigðar Rasmusar. Það var "tabú" í Færeyjum. Samkynhneigðir Færeyingar fóru leynt með kynhneigð sína og flúðu til útlanda. Það átti ekki við Rasmus. Honum þótti það út í hött. Í Færeyjum var fjölskylda hans og vinahópur. Þar vildi hann vera.
Barsmíðarnar, hótanirnar og viðbrögð lögreglunnar ollu því að Rasmus fékk taugaáfall. Hann gerði tilraun til sjálfsvígs og var í kjölfar vistaður á geðdeild. Hann náði aldrei fullri heilsu eftir það.
Rannveig Guðmundsdóttir, þáverandi þingkona, tók málið upp á vettvangi Norðurlandaráðs. Færeyska lögþinginu var stillt upp við vegg: Að breyta lögum eða tapa aðild að Norðurlandaráði annars. Málið vakti mikla athygli um öll Norðurlönd og víðar í Vestur-Evrópu. Í Færeyjum var tekist harkalega á um frumvarp til breyttra laga. Andstæðingar breytinga létu mjög að sér kveða í kirkjum eyjanna. Þar voru haldnar vikulegar bænastundir með ákalli til guðs um að áfram yrði refsilaust að ofsækja samkynhneigða. Þegar ný lög voru samþykkt eftir mikið þref var flaggað í hálfa stöng við kirkjurnar. Prestar lýstu deginum sem þeim svartasta í sögu Færeyja.
Færeyskt tónlistarfólk og ungt fólk almennt stóð þétt við bakið á Rasmusi og sýndi stuðning í verki á margvíslegan hátt. Fjöldi Íslendinga gerði það einnig. Rasmus var þessu fólki eðlilega afskaplega þakklátur. Það skipti hann öllu máli að finna þennan stuðning. Ekki síst frá Íslendingum.
Hægt og bítandi náði Rasmus heilsu upp að því marki að hann fór að semja tónlist á nýjan leik. Fyrst með því að senda frá sér sólóplötur. Þar spilaði hann á öll hljóðfæri og söng. Hann var einnig byrjaður að vinna með hljómsveitum. En það vofði svart ský yfir - þó honum tækist stundum að leiða það hjá sér. Síðustu sólóplötuna sendi hann frá sér undir listamannsnafninu Mjörkaborg (mjörka = mengunarský eða -þoka). Síðustu hljómsveit sína kallaði hann Hatursvart. Útgáfu sína gaf Rasmus nafnið Myrkar Records.
Rasmus var ekki aðeins frábær gítarleikari og tónlistarmaður heldur einnig listmálari, ljósmyndari og gerði sín eigin myndbönd. Hann var afskaplega vinsæll hjá þeim sem kynntust honum; elskulegur og ljúfur drengur. Í sumar sendi hann frá sér myndband þar sem hann lýsir andlegri vanlíðan á sinn opinskáa og einlæga máta. Líkamlegu sárin voru gróin en ekki sárin á sálinni:
Rasmus skilur eftir sig hlýjar minningar. Þær sem og listaverkin hans lifa.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 22:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
9.10.2012 | 02:49
Hættulegir jeppabílstjórar
Það er eitthvað sem gerist í hausnum á sumum bílstjórum um leið og þeir setjast undir stýri á jeppa. Ekki öllum. Alls ekki. Bara sumum. Það er eins og einhverskonar frekjukast hellist yfir þá, ásamt streitukasti á háu stigi. Það er eins og þeir upplifi sig sem kónga er eigi að njóta sérstaks forgangs í umferðinni. Aðrir í umferðinni séu aðeins að þvælast fyrir þeim. Jeppakarlarnir eru snöggir að leggjast á flautuna, steyta hnefa og senda öðrum ökumönnum fingurinn. Það má einnig sjá að jeppagaurarnir eru að hrópa eitthvað. Enginn veit hvað þeir hrópa en svipurinn lýsir ofsabræði.
Það eru þessir sömu jeppabílstjórar sem leggja í merkt stæði fyrir fatlaða. Ekki vegna þess að þeir hafi merki sem heimilar slíkt heldur vegna þess að það eru bestu stæðin. Reyndar er það fötlun út af fyrir sig að vera jeppabílstjóri með þetta hegðunarmynstur. En hún er ekki þess eðlis að jeppabílstjórar fái skírteini út á það.
Þegar þröngt er á þingi vegna einhvers viðburðar; fótboltaleiks, hljómleika og þess háttar þá bregst ekki að jeppum er lagt upp á gangstéttir, umferðareyjar og út um allt nema í almenn bílastæði.
Þegar jeppakallar sleppa út fyrir höfuðborgina eru þeir friðlausir þangað til þeir hafa ekið utanvegar og spænt upp viðkvæman jarðveg.
![]() |
Mátti engu muna að það yrði stórslys |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
4.10.2012 | 01:55
Fáheyrður atburður - kollvarpar rótgróinni og viðurkenndri kenningu
Á föstudegi í síðustu viku sigldu skipverjar á færeyska varðskipinu Brimli - samkvæmt ábendingu - fram á konu eina frammi í firði. Hún var alein á lítilli jullu, rænulítil og utangátta. Allt vakti þetta mikla undrun. Og samt einkum það að konan var klæðalaus og engin föt í jullunni.
Skipsverjar hífðu nöktu konuna um borð og sigldu með hana til höfuðborgarinnar, Þórshafnar. Þangað komnir fóru þeir með konuna rakleiðis til frægrar prjónakonu. Prjónakonan dró þegar fram spunarokk og setti fyrir framan nöktu konuna. Þá brá svo við að þrátt fyrir neyð konunnar þá tókst henni með engu móti að læra að spinna. Neyðin kenndi ekki naktri konu að spinna.
Heilbrigðismál | Breytt 8.10.2012 kl. 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
1.10.2012 | 22:31
Farsímar eru varasamir
Því hefur löngum verið haldið fram að farsímar séu skaðlausir með öllu. Vísað er í rannsóknir sem sanna þetta. Gallinn er sá að það eru hagsmunaaðilar sem standa að rannsóknunum: Farsímaframleiðendur og aðrir sem tengjast farsímaþjónustu. Þegar á það er bent koma mótrök: Farsímaframleiðendur þurfa fyrstir allra að fá vitneskju ef eitthvað er skaðlegt við farsímanotkun. Þannig geta þeir brugðist við og afstýrt skaðabótamálum.
Jú, þetta er rétt. En kapphlaupið um að selja sem flesta farsíma sem fyrst vegur þyngra. Þess vegna er áherslan á að búið sé að rannsaka farsímanotkun með þeirri niðurstöðu að hún sé skaðlaus.
Samt er það svo að ekki er talið æskilegt að ung börn séu mikið að blaðra í farsíma. Einhverjar mælingar hafa sýnt að handfrjáls búnaður áreiti farsímanotanda meira en þegar símanum er haldið við eyrað. Margir kannast við að hafa fengið hausverk af mikilli farsímanotkun. Það er vísbending um að það sé að minnsta kosti ekki hollt að tala í farsíma.
Eigendur þessara eyrna áttu það sameiginlegt að tala mikið og lengi í farsíma.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
29.9.2012 | 01:06
Sparið fjórðung!
Það eru ekki allir ríkir. Þrátt fyrir að erfitt sé að finna laust bílastæði vegna allra 10 og 12 milljón króna jeppanna og fólk togist á um hvert eintak af nýjustu árgerð af símum sem kosta 140 þúsund kall (minn sími kostaði innan við 5 þúsund kall). Það eru miðnæturbiðraðir út um alla Kringlu þegar ný árgerð af tölvuleik fyrir krakka er sett í sölu. Biðraðirnar og hamagangurinn eru ennþá meiri þegar ný búð með útlendum vörum er opnuð. Ekki síst ef útrásarvillingar og bankaræningjar tengjast þeim. Sólarlandaferðum, borgarferðum, skíðaferðum, golfferðum, íþróttaleikjaferðum og ferðum á allskonar viðburði í útlöndum fjölgar dag frá degi. Íslensku flugfélögin eru orðin 3 til að anna eftirspurn og eru stöðugt að bæta við nýjum áfangastöðum. Dýrustu veitingastaðirnir á höfuðborgarsvæðinu eru þétt setnir. Einkum þar sem máltíðin kostar yfir 10 þúsund kall. Fólk er byrjað að hamstra pantanir á jólahlaðborðin. Og það er september.
Það sitja ekki allir í slitastjórn né hafa fengið skuldir upp á hundruð milljóna króna afskrifaðar. Sumir hafa fengið skuldir upp á milljarða afskrifaðar. Aðrir hafa náð samkomulagi við bræður sína um kaup og sölu og milligöngu um kaup og sölu á fjárhags- og starfsmannakerfi til hins opinbera.
En það er til fólk sem þarf að spara. Og jafnvel þó að það þurfi ekki að spara þá er óþarfa bruðl óþarfi. Það eiga allir að hjálpast að við að gefa sparnaðarráð. Ég læt ekki mitt eftir liggja.
Gleraugu kosta marga peninga. Samhent hjón eða pör eða vinir geta sparað fjórðung með því að nota sameiginleg gleraugu. Það er hægt að gera með því að nota aðeins 3 sjóngler í stað fjögurra.
Það er smá kúnst að nota svona gleraugu til að byrja með. Aðallega út af því að annar aðilinn þarf að ganga aftur á bak. En þetta venst glettilega fljótt og fólk verður samstígara og nánara er á líður.
![]() |
Svaraði Jóhönnu um kerfið 2004 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 10:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.9.2012 | 17:42
Ódýr og hraðvirk detox aðferð
Detox nýtur gríðarlega mikilla vinsælda hérlendis og í Póllandi. Detox nær yfir sérstakt mataræði og fleiri aðferðir til að hreinsa líkamann að innan. Hápunkturinn er svokölluð stólpípa. Það er eitthvað klósetttæki sem tekur til í skottinu á fólki. Sumir verða háðir stólpípunni. Verða stólpípufíklar og fara aftur og aftur í detox.
Það er dýrt og umdeilt. Í Asíu er hægt að komast í hræódýra detox meðferð. Þar er fíll staðgengill stólpípunnar. Það þarf ekkert að leggjast inn á stofu eða neitt. Fólk leggst bara á teppi á jörðinni og fílarnir afgreiða dæmið úti í guðs grænni náttúrunni. Til öryggis þarf hraustan mann og annan fíl til að vera viðbúnir að halda viðskiptavininum í skefjum ef fíllinn hnerrar.
![]() |
Samkvæmt BMI-stuðlinum er ég offitusjúklingur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
10.9.2012 | 02:37
Gátan leyst!
Margir hafa velt því fyrir sér hvernig heppilegast sé að ná handalausri manneskju upp úr sundlaug. Flestir gera sér grein fyrir því að slíkt er vandkvæðum bundið. Einkum ef handalausa manneskjan vill ekki fara upp úr lauginni. Ef hún hinsvegar fellst á að fara upp úr með góðu þá er þetta rétta handbragðið:
![]() |
Magnað sjónarspil í London |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 02:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
7.9.2012 | 17:24
Bráðfyndið samtal í Hagkaup
Ég gerði mér ferð í Hagkaup í Skeifunni. Ég var þyrstur og langaði í Malt. Þegar gengið er inn í verslunina blasir við horn sem er blanda af upplýsingaborði og sjoppu. Ég bar upp erindið. Afgreiðsludaman var í þann mund að sinna því þegar háöldruð kona ruddist upp að hlið mér og kallaði á dömuna: "Getur þú hringt á leigubíl fyrir mig?"
"Alveg sjálfsagt," svaraði afgreiðsludaman glaðlega. Hún gerði þegar í stað hlé á samskiptum við mig og tók upp símtól. Sú gamla snérist á hæl og þrammaði í átt að útidyrunum. Hún fór hægt yfir. Afgreiðsludaman kallaði á eftir henni: "Hvert er nafnið?"
Sú gamla hægði á ferðinni og kallaði um öxl: "Ertu að tala við mig?"
Afgreiðsludaman kannaðist við það og ítrekaði spurninguna: "Já, ég er að spyrja um nafnið."
"Hreyfill," hrópaði sú gamla um leið og hún hvarf út um dyrnar.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)