Færsluflokkur: Heilbrigðismál
24.8.2012 | 22:09
Hjá góðu fólki - og vondu
Ég var að leita að gistingu í miðborg Parísar. Úr vöndu var að velja. Gestir gefa þeim mörgum svo góða einkunn og láta vel af starfsfólki. Að lokum leist mér best á hótel sem heitir því hrífandi nafni Smart Place Paris. Starfsfólk þess fær meðaleinkunnina 95,2%. Ummæli eru á einn veg. Svo ég taki aðeins þau 10 nýjustu:
"Starfsfólk var virkilega indælt."
"Einstaklega vinalegt og hjálplegt starfsfólk."
"Starfsfólkið er vinsamlegt og aðstoðar þig þegar um er beðið."
"Starfsfólkið var vingjarnlegt, þrátt fyrir að ábendingar þess um matsölustaði og fleira væru ómarkvissar."
"Mjög hjálplegt starfsfólk."
"Starfsfólkið er vinsamlegt."
"Afskaplega indælt fólk."
"Starfsfólkið virtist kunna sitt fag."
"Notalegt starfsfólk."
"Frábærlega hjálplegt starfsfólk."
Það þarf ekki að velja úr umsögnum til að fá þessar lýsingar. Þær eru allar samhljóða. Þetta er töluvert frábrugðið umsögnum gesta á Travel-Inn í Reykjavík. Starfsfólkið þar fær meðaleinkunnina 4,8 á booking.com. Mestu skiptir hvort gestir eiga samskipti við eigandann eða ekki. Honum er lýst sem dónalegum og ósvífnum skapofsamanni. Um hann má lesa með því að smella á þennan hlekk:
http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1253295/
http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1253128/
Á booking.com má lesa eftirfarandi lýsingar fyrrverandi gesta Travel-Inn:
Heilbrigðismál | Breytt 25.8.2012 kl. 22:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
23.8.2012 | 00:28
Gróft einelti í auglýsingu
Mér er hlýtt til ritfangaverslunarinnar Griffils. Þegar ég vann í Síðumúla verslaði ég oft í Griffli sem var þá einnig í Síðumúla. Það var alltaf gaman að koma í Griffil. Eigandinn skemmtilegur (við spjölluðum oft um Bítlana) og starfsfólkið þægilegt. Vöruúrval fínt og ágæt verð. Svo urðu eigendaskipti og verslunin flutt niður í Skeifu. Ég held - en er ekki viss - að eigendaskipti hafi orðið fleiri.
Núna auglýsir Griffill að ég kaupi skólavörur í Griffli. Auglýsingarnar hefjast á orðunum "Þú kaupir skólavörurnar í Griffli." Þetta er ekki rétt. Ég kaupi engar skólavörur. Hvorki í Griffli né annars staðar. Mér er svo sem alveg sama um þessa röngu fullyrðingu. Verra þykir mér að í næstu setningu er fullyrt að sonur Egils versli ekki í Griffli heldur borgi meira fyrir skólavörur annars staðar. Svo er spurt: "Hvað er að syni Egils?"
Sonur Egils kaupir skólavörur í ritfangaverslunum í sínu hverfi. Bensín er dýrt og væri fljótt að éta upp sparnað af því að fara langt yfir skammt til að kaupa ódýrari skólavörur. Þar fyrir utan er því ranglega haldið fram í auglýsingum að Griffill sé alltaf ódýrastur.
Samkvæmt nýjustu verðlagskönnun ASÍ eru tvær ritfangaverslanir ódýrari en Griffill. Sonur Egils hefur sjálfur sagt mér að 12 trélitir í pakka sem hann keypti í Europrice kosti 499 kr. en 699 kr. í Griffli. Á sama stað keypti hann stílabækur á 180 kr. sem eru ódýrastar á 285 kr. í Griffli.
Það er ekkert að syni Egils. Þetta er skýr drengur og klár. Hann má þola það að daglega dynja á honum og skólasystkinum hans auglýsingar frá Griffli um að það sé eitthvað að honum. Þetta er einelti.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 00:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
14.8.2012 | 20:59
Ruddaleg ógestrisni og grófur dónaskapur
Nýverið átti kanadískur tónlistarmaður leið um Ísland. Það er engin frétt út af fyrir sig. Þessi maður hefur í hálfan annan áratug ferðast þvers og kruss um heiminn. Hann hefur ekki tölu á gististöðunum sem hafa hýst hann. Þeir nema fjögurra stafa tölu.
Þessi kanadíski er afskaplega þægilegur og kurteis. Einstaklega þægilegur og kurteis. Hann gerir ekki kröfur til gististaða. Aðbúnaður skiptir hann litlu sem engu máli. Hann er hvort sem er sofandi þegar hann sefur og á meðan ómeðvitaður um umhverfið.
Hingað kom hann að nóttu til og fór snemma að morgni þar næsta dags. Fyrir utan svefntíma var hann aðeins í nokkra klukkutíma á gistiheimili í Reykjavík fyrri hluta dags. Gistiheimilið, Travel-Inn, varð fyrir valinu vegna góðrar staðsetningar. Það er alveg við Umferðarmiðstöðina. Aðeins örfáa metra til og frá flugrútunni.
Maðurinn átti tvívegis erindi við eiganda Travel-Inn. Í annað skipti leitaði hann eftir því hvort möguleiki væri á að komast í síma. Aðeins til að láta sækja sig á staðinn. Í hitt skiptið spurði hann um lykilnúmer fyrir þráðlausa netið. Viðbrögð eigandans voru óvænt. Sá, eldri maður, hellti sér yfir þann kanadíska. Ávarpaði hann "Kanaskrattinn þinn" (you bloody American). Sagði honum að snáfa til sendiráðs síns til að komast í síma. Bölv og ragn fylgdu með. Erindinu um þráðlausa netið var svarað á svipaðan hátt. Og aftur ávarpaði eigandinn þann kanadíska með orðunum "Kanaskrattinn þinn".
Tónlistarmanninum var verulega brugðið við ruddalega og ofsafengna framkomu eigandans. Hann var miður sín. Hann hefur aldrei á sínu flakki um heiminn kynnst öðrum eins dónaskap.
Þarna er eitthvað stórt vandamál á ferðinni. Ekki aðeins á eigandi Travel-Inn við stórt vandamál að stríða. Vandamál hans er einnig stórt vandamál fyrir íslenska ferðamannaþjónustu. Framkoma hans er skaðleg fyrir ímynd Íslands. Hann er Íslendingum til skammar.
![]() |
Greiða engan virðisaukaskatt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt 15.8.2012 kl. 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (51)
22.7.2012 | 22:30
Mögnuð banana listaverk
Bananar eru góðir og hollir. Bragðbetri skyndibiti er vandfundinn. Hann er skemmtilega hannaður: Pakkaður innan í þykkar umbúðir sem auðvelt er að fjarlægja. Til að byrja með þarf aðeins að fletta þeim niður hálfan bananann á meðan efri hluta hans er neytt. Þetta er snilld.
Hitt vita færri að banani er upplagt hráefni til að móta myndlistaverk í. Þeir eru aðeins mýkri en tré og töluvert mýkri og meðfærilegri en steinn. Það er jafnframt hægt að nota lögun bananans til að túlka hár eða húfur.
Bananar hafa orðið mörgum yrkisefni. Til eru margir söngvar um banana. Þekktast er Banana Boat. Margir hafa sungið Banana Boat. Einn er Harry Belafonte.
Bananar eru notaðir heilsusnyrtivörur. Þaðan dregur sólarvörulínan Banana Boat heiti.
Heilbrigðismál | Breytt 23.7.2012 kl. 00:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.7.2012 | 21:56
Einfalt ráð til að komast hjá fótameini
Ég þekki konu sem hefur tvívegis þurft að fara í aðgerð á spítala vegna þrálátrar fíknar í að ganga á skóm á háum hælum. Hún lætur sér ekki segjast. Hún kann ekki við sig utan heimilis öðru vísi en í skóm á háum hælum. Getur ekki hugsað sér tilveruna öðru vísi hvað það varðar.
Þessi kona er ekki ein um þetta vandamál. Fjöldi kvenna gengur daglega á háhæla skóm. Konur halda að körlum þyki það flott. Málið er að karlar taka ekkert eftir skófatnaði neinna. Hvorki kvenna né annarra. Einn kunningi minni þurfti að skreppa til Asíu. Strax í upphafi ferðar fann hann fyrir svo mikilli og sársaukafullri fótaóeirð að hann varð að vera á sokkunum það sem eftir var flugferðar. Á meðan á nokkurra daga vinnuferð í Asíu stóð varð hann að nota hvert tækifæri til að fara úr skónum. Fætur voru bólgnir og aumir.
Kominn aftur heim til Íslands var hann nánast ógöngufær. Fæturnir voru svo aumir að hann varð að styðja sig við alla nálæga hluti og skrönglast áfram með miklum erfiðismunum eins og farlama gamalmenni.
Er hann loks náði að svo gott sem skríða inn um dyrnar á heimili sínu var konan hans fljót að benda honum á vandamálið. Þau höfðu verið með næturgest utan af landi er maðurinn hélt af landi brott. Maðurinn fór í ógáti í skó gestsins. Þeir skór voru 2 númerum of litlir fyrir manninn. Að auki voru skórnir brúnir. Maðurinn átti enga brúna skó. Hann hafði aftur á móti aldrei velt fyrir sér lit á skónum sínum fremur en á skóm annarra. Þetta var fyrir daga farsímans svo konan gat ekki komið skilaboðum til mannsins um þetta á meðan hann var í Asíu.
Næstum allir karlar lenda í því fyrr eða síðar að ruglast á sínum skóm og skóm annarra.
Bítlarnir innleiddu háhæla skótísku fyrir karla á sjöunda áratugnum. Háhæla karlaskór náðu hæstum hæðum á glamrokk tímabili áttunda áratugarins. Þetta myndband með Slade varðveitir minninguna:
Munurinn á háhælaskóm karla og kvenna var sá að fyrra tilfellið var nær stultum í hönnum. Sólinn var jafn hár hælum. Vandamálið með háhæla kvenskó er að konan stendur á tám. Allur líkamsþunginn hvílir á tánum. Það veldur skemmdum á fótunum. Við þessu er til einföld lausn. Hún er sú að konur kaupi sér sléttbotna en uppháa hvíta strigaskó og máli snyrtilega á þá teikningu af háhæla skó. Ef vel er að verki staðið tekur enginn eftir öðru en að konan sé á flottum háhæla skóm.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
9.7.2012 | 21:31
Ódýrustu heyrnartæki á markaðnum
Eins og öllum er bærilega kunnugt um þá fer heyrn okkar að hraka er við nálgumst miðjan aldur. Um og upp úr miðjum aldri hrakar heyrn hratt og mikið. Flestir sem komast á áttræðis aldurinn eru verulega heyrnarskertir. Svo ekki sé talað um þá sem eru komnir yfir 100 ára múrinn.
Heyrnartæki eru dýr. Að auki þarf sífellt að kaupa ný batterí í þau.
Þetta þarf ekki að vera svona. Ódýrustu heyrnartæki á markaðnum býrð þú til sjálf/ur. Það eina sem þarf að gera er að taka gúmmíið af drullusokkum heimilisins. Gúmmíið er þrætt upp á eyrun. Þetta skerpir á heyrninni alveg um 10%. Gúmmíið er viðhaldsfrítt. Það þarf ekkert batterí eða neitt í það.
Ef vaskur eða klósett stíflast er minnsta mál í heimi að rífa gúmmíið af eyrunum og smella því á gamla tréskaftið, rétt á meðan losað er um stífluna. Síðan er gúmmíið aftur þrætt upp á eyrun.
Ég fann enga mynd af neinum með drullusokkagúmmí á eyrunum. Þessi mynd af manni með blómapotta komst næst því.
Heilbrigðismál | Breytt 10.7.2012 kl. 00:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
4.7.2012 | 22:33
Ofbeldisfullur kópur skotinn
Selurinn hefur mannsaugu. Góðleg augu og hrekklaus. Samskipti sels og manns eru yfirleitt ljúf og eins og best verður á kosið. Selurinn forðast manninn, kemur sér í burtu þegar maðurinn nálgast hann. Maðurinn skýtur selinn. Selkjöt er gott. Selspik er sælgæti. Úr feldi selsins er hægt að búa til skjólgóðar og fallegar flíkur.
Í síðustu viku urðu breytingar á samskiptum sels og manns. Stálpaður kópur í Hróarskeldufirði mátti ekki koma auga á manneskju öðru vísi en tryllast. Hann reyndi af öllum mætti að ráðast á fólk með grófu ofbeldi. Til allrar hamingju náði hann til fæstra sem árás hans beindist að. Fólki til happs varð að hann hafði ekki almennilega útlimi til að klifra um borð í báta. Ekkert vantaði samt upp á að hann reyndi. Hann reyndi og reyndi. Honum tókst að glefsa að mörgum og náði að bíta í hönd á konu.
Það var ekki um annað að ræða en leita ráða hjá Háskólanum í Hróarskeldu. Þar á bæ komust menn að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt væri að drepa kópinn. Það væri aðeins tímaspursmál hvenær hann næði að slasa einhvern alvarlega. Börn að leik niðri í fjöru voru í sérlega mikilli hættu. Núna stendur jafnframt yfir í Hróarskeldu mikil tónlistarhátíð. Ofur ölvi eða dópaðir Íslendingar gætu ráfað um fjöruna og meira að segja lagst til sunds.
Kópurinn var drepinn með einu skoti í hausinn.
Fræðimenn hafa sett fram ýmsar kenningar um þessa afbrigðilegu hegðun kópsins. Kópar eiga ekki að haga sér svona eins og ruddalegt fólk. Ein kenningin er sú að kópurinn hafi verið geðveikur. Önnur kenning er sú að kópurinn hafi átt harma að hefna. Hann hafi lent í slæmum samskiptum við fólk. Samskiptum sem kallaði fram hjá honum hatur í garð fólks. Selir eru ekki mannglöggir. Fyrir þeim er maðurinn bara maður. Sami rassinn undir þeim öllum.
Ef seinni kenningin er rétt þykir líklegt að manneskja hafi náð kópnum mjög ungum og haldið hann sem gæludýr. En verið vondur við hann. Það eru til manneskjur sem eru vondar við dýr og vondar við manneskjur.
Heilbrigðismál | Breytt 5.7.2012 kl. 00:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.6.2012 | 21:13
Margir eru með orm í auga
Það er algengt að fólk ali orm í auga sér. Miklu algengara en flestir halda. Fæstir eru þó að hafa orð á því. Síst af öllu hýsill ormsins. Ástæðan fyrir þögguninni er margþætt. Ein er sú að menn skammast sín afskaplega mikið fyrir að vera með orm í auga. Þeir reyna að leyna aðra því. Hafa þetta út af fyrir sig sem vandræðalegt leyndarmál.
Önnur ástæða er sú að margur maðurinn með orm í auga veit ekki af því. Það fer svo lítið fyrir orminum. Þessi kvikyndi hafa rebbavit. Þau vita hvænær brýn ástæða er til að hafa hægt um sig og láta lítið á sér bera.
Grennstu og rauðleitustu ormarnir fela sig innan um blóðfylltar æðar í auganu. Eigandi augans virðist þá vera aðeins rauðeygari en áður. En ekki sem neinu nemur.
Aðrir ormar eru eiginlega litlausir. Nánast glærir. Það er erfitt að koma auga á þá.
Í enn öðrum tilfellum kemur ormurinn sér fyrir neðan við augað. Hýsillinn virðist þá vera með smá baug undir auganu. Það er ekkert óvenjulegt við það. Flestir eru með bauga undir augum í kjölfar langs fyllerís. Ef baugur undir öðru auga er örlítið stærri en baugur undir hinu auga er næsta víst að í þeim stærri leynist ormur.
Hvaðan koma ormarnir? Hvert fara þeir? Hvað heita þeir? Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör. Einn möguleikinn - kannski - er að ormarnir berist úr dýrum. Augu í dýrum eru sum hver löðrandi í ormum. Þetta þurfa dýraeigendur að vita. Á myndunum af kattaraugunum má greina orm í auganu neðst til vinstri.
![]() |
Var með 13 cm orm í auganu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.6.2012 | 00:35
Ávextir eru ruslfæði
í samanburði við súkkulaði. Þetta hef ég eftir hjartalækni á sjúkrahúsinu Lonex Hill í Manhattan í Nýju Jórvík. Hann - eða öllu heldur hún vegna þess að þetta er kona, Susan Steinbaum - segir að súkkulaði innihaldi miklu meira af andoxunarefnum en ávextir. Og jafnframt efni sem heitir polyfenól. Þessi efni koma í veg fyrir hjartasjúkdóma, háan blóðþrýsting, hægja á öldrun og sitthvað fleira. Susan ráðleggur fólki að fá sér frekar nokkra súkkulaðimola heldur en ávexti til að maula á. Kannski er ágætt að blanda þessu saman? Mér dettur það í hug. Svona ef það er einhver ágreiningur um þetta. Skella til að mynda einu kirsuberi ofan á súkkulaðið.
Heilbrigðismál | Breytt 28.6.2012 kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
22.6.2012 | 15:26
Brenndu 800 hitaeiningum á hálftíma!
Svona getur þú auðveldlega brennt 800 hitaeiningum - án þess að leggja á þig óþægilega mikla hreyfingu - á aðeins 30 mínútum. Það eina sem til þarf er gott pizzudeig (fæst úti í næstu matvöruverslun eða bakaríi) sem þú fletur út í um það bil 41 centimetra hringlaga skífu. Ofan á þessa skífu makar þú vænum skammti af pizzasósu. Þar ofan á er raðað pepperoni, beikonbitum og allskonar. Efst er hrúgað niðurrifnum osti yfir allt.
Þetta er sett í snarpheitan ofn (lágmark 200 gráðu heitan) og látið bakast í 30 mínútur. Þá ættu hitaeiningarnar í og á pizzunni að hafa skaðbrunnið.
![]() |
Gengur hræðilega illa að léttast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)