Færsluflokkur: Heilbrigðismál

Ekki er alltaf allt sem sýnist

skyr.is-með-vanillu

  Fólk er ringlað og hefur varann á sér þessa dagana.  Það er hvekkt eftir stöðugar afhjúpanir á því að götusalt hafi árum saman verið notað af helstu matvælafyrirtækjum landsins í matvæli til mannafóðurs.  Og það með blessun Matvælaeftirlitsins,  sem að telur í dag að blessunin hafi verið óheppileg fyrst að upp um hana komst.

  Þetta gerist á sama tíma og virðulegur læknir hefur verið að planta stórhættulegu iðnaðarsílikoni í brjóst á hundruð kvenna.  Jafnvel vændiskvenna.

  Svo er eitrað tannkrem selt í íslenskum matvöruverslunum.  Þar eru enn ein vörusvikin.

  Þá má ekki gleyma baneitruðum útlendum áburði sem borinn hefur verið á íslensk tún.  Eitrið berst síðan með grasi í búfénað og skilar sér loks í formi lærisneiða ofan í íslenska maga.

  Nú var fullyrt við mig,  af fyrrverandi starfsmanni í mjólkuriðnaði,  að sumar vörur sem seldar eru undir nafninu Skyr.is innihaldi ekkert skyr.  Það fylgdi sögunni að þetta væri í góðu lagi.  Þetta megi.  Skyr.is sé nefnilega vörumerki og netsíða sem haldi utan um tilteknar vörulínur en ekki lýsing á vörunni. 

 Ég skoðaði innihaldslýsingu á skyr.is-vörunni sem myndin er af.

 INNIHALD:
Undanrenna, bragðefni, vanillukorn, sætuefni (aspartam, acesulfam-k), lifandi gerlar.

 


Veitingahússumsögn: Skötuveisla

skata-a

-  Staður:  Studio 29

-  Staðsetning:  Snorrabraut 29

-  Réttur:  Skötuveisla

-  Verð:  1500 kr.

-  Einkunn:  **1/2  (af 5)

  Studio 29 er á horni Laugavegs og Snorrabrautar.  Þetta er millifínn veitingastaður.  Þar er nú boðið upp á skötuveislu alla daga fram til klukkan 9 á kvöldin.  Gestir skammta sér sjálfir af hlaðborði á diska.  Í boði er kæst beinhreinsuð skata,  saltfiskur,  rófur,  kartöflur,  hamsaflot,  hangiflot og rúgbrauð með smjöri.  Fyrir þetta eru greiddar 1500 krónur.  Það er gott verð.  Maturinn er einnig góður.  Nema skatan.  Hún er ansi bragðdauf.  Eiginlega bragðlaus.  Ég fæ mér ekki aftur skötu þarna.  Hinsvegar er alveg upplagt að fá sér saltfisk og meðlæti. 

  Fyrir þá sem hræðast kæsta skötu er ágætt að prófa hana í Studio 29.  Hún bítur ekki. 

  Hér má sjá umsögn um skötuveislu á Sjávarbarnum:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1211935/


Einföld, fljótlöguð og frábær heilsusúpa

  Gúrkusúpa nýtur gríðarlega mikilla vinsælda í Kóreu.  Áður en hendi er veifað brestur af og til á algjört gúrkusúpuæði í Kóreu.  Einkum á heitum sumardögum.  Þá er löguð gúrkusúpa á öllum bæjum dögum saman án sérstaks tilefnis.  Svona hrinur kallast gúrkutíð.
  Vinsældir gúrkusúpunnar eru raktar til þess að hráefnið er mjög ódýrt,  matreiðslan afar einföld,  auðveld og fljótleg,  bragðið ljúffengt og hollusta í hverri skeið.  Þetta er heilsusúpa sem fólk fær aldrei nóg af. 
  Þannig er uppskriftin:
.
2 agúrkur
1 hvítlauksrif,  pressað í klessu
1 teskeið salt
1/2 teskeið chili pipar
1 og 1/2 teskeið sesam olía
2 teskeið edik
5 bollar vatn
.
  Agúrkurnar eru skornar í smátt.  Það er ágætt að skera þær niður í venjulegar sneiðar og saxa síðan með stuttu millibili þvert á sneiðarnar.  Galdurinn er að hver gúrkubiti sé lítill, eins og kartöflustrá eða svo.  
  Öllum þurrefnum er hellt í skál og hrært saman.  Yfir það er olíunni og edikinu hellt.  Þessu er leyft að marínera í 6 mínútur.  Því næst er þessu sturtað í pott,  vatninu hellt yfir og suðan látin koma upp.  
  Súpan er borðuð köld.  Hún er svalandi og hressandi.
.
  Þegar um veglegar veislur er að ræða,  eins og í brúðkaupum eða stórafmælum,  er gott að bæta við örfáum bitum af hundakjöti.  Það er soðið sér í smátt skornum bitum og síðan bætt útí.  Það er alveg nóg að hafa 150 grömm af hundakjötsbitum í súpunni.
.
  Í norður-kóresku útfærslunni er 1 agúrka notuð og vatnsmagnið tvöfaldað ásamt því sem handfylli af stuttklipptu grasi er bætt við.
gúrkusúpagúrkur

mbl.is Hugðist elda eiginmann sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afstýrðu á einfaldan hátt illvígum sjúkdómum af völdum tannbursta

tannburstartannfar

  Eins og allir vita þá má rekja fjölda meltingarfærasjúkdóma,  öndunarfærasjúkdóma,  hjartasjúkdóma,  nýrnasjúkdóma,  æðasjúkdóma og blóðeitrana til tannbursta.  Tannburstar eru einhverjar mestu og verstu gróðrarstíur fyrir óþverra bakteríur sem um getur.  Tannburstarnir eru iðulega alveg löðrandi í bakteríum af ýmsu tagi.  Það geta verið allt upp í 700 tegundir af bakteríum á einum tannbursta.  Látið ekki sakleysislegt útlit tannbursta blekkja ykkur.  Þetta eru stórhættuleg kvikindi.

  Það sem gerist er að við notkun berast þessar bakteríur í hár burstans.  Þær geta lifað þar og orðið illvígari í allt upp í heila viku.  Verst er ástandið þegar margir geyma sína bursta í sama glasi.  Þá verður krossmengun.  Þetta er viðbjóður.  Svo ekki sé minnst á tungusköfuna.  Hún er bakteríusprengja.

  Góðu fréttirnar eru að það er vandalaust að forðast veikindi af völdum tannbursta og tungusköfu.  Það eina sem þarf að gera er að kaupa 16 eða 24 tannbursta (fer eftir því hvað fólk burstar tennur oft á dag) og annað eins af tungusköfum.  Hvert stykki skal geyma á þurrum stað og hafa góða fjarlægð á milli þeirra allra.  Það getur verið ágætt að dreifa þeim á milli 2ja - 3ja herberga.  Málið er að nota hvern bursta og hverja sköfu með í það minnsta 8 daga millibili. 

  Til öryggis er full ástæða til að stinga tólunum í vodka og láta þau liggja þar í nokkrar mínútur fyrir notkun.  Fá sér síðan nokkur skot sjálf/ur.  Ef löngun kviknar í meiri vodka að loknum munnþrifum er hægt að sötra vökvann í gegnum gosrör (það er, jú, búið að bursta tennurnar).  Eða sprauta honum í æð.      


Spennandi heilsudagar í Krónunni

kók

  Í Fréttablaðinu í dag auglýsir matvöruverslanakeðjan Krónan HEILSUDAGA.  Undir textanum "HEILSUDAGAR í Krónunni" er skemmtileg teikning af málbandi sem rúllast utan um hjarta.  Þar fyrir ofan er ljósmynd af fjórum 2ja lítra Coca-Cola flöskum og útlendum jóladagatölum.  Undir myndunum stendur:  "Með kaupum á 4x2L af Coke kippu fylgir jóladagatal að eigin vali á meðan birgðir endast."

  Það er nýlunda á þessari öld að Coca-Cola sé á þennan hátt tengt heilsudögum.  Þegar betur er að gáð er líkast til lagt út frá því að jóladagatölin innihaldi ekki sykrað sælgæti,  eins og oft vill verða. 

  Í auglýsingunni er einnig vakin athygli á ágætu verði á Mackintosh.  Mér skilst að það sé sér íslenskt uppátæki að sælgætið Quality Street sé kallað Mackintosh.  Alveg eins og það var sér íslenskt uppátæki að kalla kaffibæti Export.  Í tilfelli kaffibætisins er sagan víst á þá leið að SÍS hóf innflutning á kaffibæti.  Þegar fyrsta sending skilaði sér í hús voru vörubrettin merkt í bak og fyrir merkingunni "EXPORT",  sem þýðir "Til útflutnings".  Á þeim árum kunnu fáir Íslendingar ensku og héldu að kaffibætirinn héti Export. 

kók fyrir börnin


Notaðu eggjaskerann

eggjaskeri A

  Á öllum heimilum er til skemmtilegt verkfæri sem heitir eggjaskeri.  Hann kemur sér iðulega vel þegar skera á niður egg.  Aðallega soðin egg,  vel að merkja.  Það sem færri vita er að eggjaskerann er hægt að nota til fleiri hluta.  Þar ber hæst að sneiða niður soðnar kartöflur.  Það ættu allir að gera í hvert sinn sem kartöflur eru í matinn.  
  Ávinningurinn er þríþættur:
.
  -  Í fyrsta lagi sparar þetta notkun á hnífum alveg gríðarlega.  Fyrir bragðið endast hnífarnir miklu lengur.
  -  Í öðru lagi dregur þetta verulega úr slysahættu.  Fólk er alltaf að skera í puttana sína í ógáti og hugsunarleysi með hnífum.  Enginn slasar sig á eggjaskera ef fyllstu varúðar er gætt í hvívetna.
  -  Í þriðja lagi verður þykkt kartöflusneiðanna jöfn.  Það auðveldar fólki ótrúlega vel að átta sig á hvað heppilegt er að stinga upp í sig miklu magni af kartöflu í einu.  Aldrei meira en hálfri sneið.  Aldrei minna en hálfri sneið.  Það er skelfilegt að horfa upp á fólk sem stingur upp í sig hálfri stórri kartöflu í einum bita,  liggur við köfnun og þarf að rífa út úr sér gervigómana til að rýma fyrir kartöflunni.  Næst fær það sér svo örlítinn kartöflubita og tekur eiginlega ekki eftir því að hann sé kominn upp í munninn.  Þá heldur viðkomandi að bitinn hafi dottið á gólfið og verður miður sín af skömm.  Missir matarlyst og fer svangur í háttinn.
.
kartöflur A

Rokk og ról maraþonið heldur innreið sína

rnr maraþon

  Lifandi rokkmúsík á sviði hreyfir við mörgum.  Jafnvel rólyndasta fólk getur lent í vandræðum með að hemja sig í þannig kringumstæðum.  Áður en það veit af er það farið að hoppa og skoppa,  kasta sér utan í ókunnugt fólk,  klifra upp á stóla og borð eða upp á svið og henda sér aftur á bak út í mannhafið.  Þess á milli snýr fólk höfðinu í hringi svo hratt og ákaft að flasan litar nærstadda hvíta eins og snjór.

  Fyrir 13 árum datt nokkrum bandarískum rokkunnendum og hlaupatíkum í hug að virkja hreyfikraft lifandi rokkmúsíkur.  Þeir skipulögðu 32 km hlaupaleið þar sem frægar rokkhljómsveitir spiluðu á útisviði með 1609 metra millibili.  Uppátækið sló í gegn.  Síðustu ár hefur yfir hálf milljón manna hlaupið rokkmaraþon í 26 bandarískum borgum.

  Nú er rokkmaraþonið að halda innreið sína í Evrópu.  22. apríl næsta vor verður rokkmaraþon í Madrid á Spáni.  Þar verður 42 km leið hlaupin.  Mánuði síðar verður 21. km leið hlaupin í Edenborg í Skotlandi og um haustið verður jafn löng leið hlaupin í Lissabon í Portúgal. 

  Þess verður ekki langt að bíða að rokkmaraþon verði hlaupið á Íslandi.  Þá væri gaman að Skálmöld,  Sólstafir,  Mínus,  Celestine,  Q4U,  Fræbbblarnir,  Ham,  Mugison og... já,  auðvitað Leoncie myndu sjá um fjörið.

    


Kraftmiklar ólukkukökur

súkkulaðibitakökur

  Hver kannast ekki við ofursterka löngun til þess að láta allt ganga á afturfótum hjá einhverjum?  Það er svo auðvelt að láta þá ósk rætast.  Það eina sem til þarf er þetta: 
.
5 og hálft egg
912 gr smjörlíki
17,6 dl hveiti
2 og hálf teskeið matarsódi
2 og hálf teskeið vanilludropar
2 og hálf teskeið salt
31 matskeið púðursykur
29 matskeiðar strásykur
10 dl súkkulaðispænir
.
  Þetta er hrært rangsælis saman í einu og sömu skál.  Það má nota sömu teskeiðina til að mæla matarsódann,  vanilludropana og saltið.  Sömu teskeið má nota til að setja smá klessur af deiginu með góðu millibili á bökunarplötu.  Platan er sett efst í ofn í 9 mínútur og 33 sek.  Gott er að hafa kveikt á ofninum.  Svo gott.  Best er að hafa hann 180° heitan.
  Kökurnar þurfa að kólna á plötunni í 6 mín og 12 sek áður en þær eru fjarlægðar þaðan með silfurlitum kökuspaða.   
  Um leið og hvert og eitt hráefni er mælt skal nefna höstuglega og ákveðið nafn tilvonandi ólukkukráku og flétta saman formælingum ásamt áhrínisorðum.  Til að mynda:  "Svei þér,  Jói Jóns!  Megir þú gleyma að skola sjampó úr hárinu á þér!  Þú skalt detta í öllum tröppum og rúlla niður þær,  aumingi!  Farðu í krummafót og úthverfa úlpu og dottaðu á rauðum ljósum,  ræfill!"
  Halda verður áfram að þylja upp í þessum dúr alveg þangað til kökunum hefur verið komið fyrir í kökuboxi.  Þá skal heimsækja viðkomandi með boxið.  Rétt áður en rennt er í hlað hjá honum er upplagt að opna boxið rétt sem snöggvast og hnykkja á formælingunum yfir kökurnar.
  Þegar viðkomandi opnar útidyrnar hjá sér kemur best út að brosa sínu blíðasta og segja:  "Hérna,  elskan mín.  Ég var að baka kökur.  Mér varð svo sterkt hugsað til þín á meðan að ég bara varð að færa þér þessar.  Njóttu vel á meðan þær eru svona nýbakaðar."
  Svo er að forða sér á hlaupum áður en viðkomandi fær sér kökur,  missir kaffibollann sinn og dettur á sjónvarpið.
.
  Hugsanlega er hægt að afgreiða svona kökur með öfugum formerkjum.  Það er að segja fara ástúðlegum og hlýjum orðum um einhvern ásamt því að þylja upp uppbyggileg fyrirmæli.  En það gerir náttúrulega enginn.

Ekki missa af! Færeyskt góðgæti í boði í örfáa daga

færeyskur matardiskurfæreyskar brauðsneiðarkjötsúpa  

  Núna eru færeyskir dagar í Smurbrauðsstofu Sylvíu,  Laugavegi 170 (við gatnamótin fyrir ofan Nóatún í Nóatúni).  Þeir vara til klukkan fjögur á laugardaginn.  Þar er boðið upp á ræstkjötssúpu (rast kjöt).  Einnig bakka með fjórum girnilegum smurbrauðssneiðum.  Á einni er skerpukjöt (skerpikjöt).  Á annarri er færeysk rúllupylsa.  Á þeirri þriðju eru niðursneiddir knettir.  Á þeirri fjórðu eru niðursneiddar fríkadellur.

  Ræst kjöt og skerpukjöt eru hvorutveggja þurrkað lambakjöt.  Ræstkjötið er hryggur og frampartur og hangir skemur uppi.  Það er á stigi svipuðu því sem við köllum siginn fisk.  Skerpukjötið er læri og hangir lengur uppi en er ekki jafn þurrt og harðfiskur.  Það bragðast eitthvað í humátt að parmaskinku.  Bæði skerpukjötið og ræstkjötið eru bragðsterk og gefa endingargott eftirbragð.  

  Það er algengt að Íslendingum þyki þetta ekki góður matur þegar það er smakkað í fyrsta skipti.  Eftir að hafa smakkað það oftar vex sterk löngun í að komast sem allra fyrst í svona kjöt oftar.  Þetta er svipað og löngunin í kæstan hákarl,  kæsta skötu og hangikjöt.  Eitthvað sem maður verður að fá sér í það minnsta árlega.  Helst miklu oftar.

  Ræstkjötssúpunni svipar mjög til íslensku kjötsúpunnar.  Þetta er matmikil grænmetissúpa með rófum,  gulrótum,  lauk,  hrísgrjónum og þess háttar.  Hlutfall ræstkjötsins er heldur minna en kjötið í íslensku kjötsúpunni.  Enda gefur ræstkjötið mun skarpara bragð.  Í Færeyjum er algengt að ræstkjötið sé fjarlægt úr súpunni og borðað sér með soðnum kartöflum.  Í Smurbrauðsstofu Sylvíu er kjötið í súpunni.  500 krónur fyrir súpuna á Smurbrauðsstofu Sylvíu er gott verð og auðveldar óvönum að smakka.  Innifalið í verðinu er ábót ef einhver er rosalega svangur.  Ég hef aldrei þurft á því að halda.  Súpan er saðsöm og ein besta ræstkjötssúpa sem ég hef fengið.  Alveg súper.  5 stjörnu súpa.

  Smurðu heimilisbrauði er ekki ætlað að vera eiginlegur veislumatur sem keppir við alvöru "danskt smurbrauð".  Brauðbakkinn gefur góða hugmynd um hefðbundið smurt brauð á færeyskum heimilum.  Þó er skerpukjöt meira til spari í Færeyjum en snætt hvunndags. 

  Færeyska rúllupylsan er keimlík þeirri íslensku.  Sú færeyska er mildari og hlutfall kjöts meira á móti fitu.  Það er töluvert af lauk í henni og smávegis af púðursykri. 

  Knettir eru soðnar fiskbollur.  Uppistöðu hráefnið í knöttum er þorskur og kindamör.  Saman við það er blandað lauki, salti og pipar.  Sumir hafa örlítið af sykri með.  Færeysku knettirnir eru blessunarlega lausir við hveitibragð íslensku fiskbollanna.  Fyrir bragðið (í bókstaflegri merkingu) eru knettirnir eins og ferskari.  Að öðru leyti er bragðið líkt.

  Fríkadellur eru steiktar fiskbollur.  Að öðru leyti eru þær alveg eins og knettir.

  Þannig er frá brauðbökkunum í Smurbrauðsstofu Sylvíu gengið að hægt er að grípa þá með sér heim.  Það er upplagt að gera.  Meðal annars til að gefa öðrum að smakka með sér.  Og þess vegna að grípa með sér nokkra bakka til að eiga daginn eftir.  Jafnvel marga bakka til að eiga í marga daga.  Bakkinn kostar aðeins 1000 kall.

  Það er bráðskemmtilegt og bragðgott ævintýri að gera sér og sínum dagamun með því að smakka þessar færeysku kræsingar.   

færeyskt sjálftökuborð


Beikon sem syngur

crispy_bacon

  Það er alveg merkilegt hvað Íslendingum gengur illa að læra að matreiða almennilegt beikon,  eða steikja svínaflesk eins og það er kallað.  Samt er það svo einfalt og þægilegt.  Það eina sem til þarf er sýróp.  Já,  og beikon reyndar líka.  Það hjálpar.  Sýrópinu er penslað snyrtilega á sitt hvora hlið beikonsneiðarinnar.  Ef steikja á meira en eina beikonsneið er upplagt að pensla þær allar með sýrópi.  Þá syngja þær.

  Með beikoninu er gott að hafa spæld egg.  Hrásalat passar einnig vel.  En mestu skiptir tvær rauðvínsflöskur á mann. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband