Færsluflokkur: Heilbrigðismál
3.2.2010 | 18:40
Gátlisti til að finna siðblinda
Þau eru hræðileg tíðindin sem Nanna Briem geðlæknir bar á borð í dag í fyrirlestri um siðblindu í Háskólanum í Reykjavík. Fyrirlesturinn fjallaði ekki um siðblindu í Háskólanum í Reykjavík sérstaklega heldur var fyrirlesturinn í Háskólanum. Tíðindin hræðilegu eru þau að siðblindir einstaklingar eru ekki alfarið einskorðaðir við banka og fjármálafyrirtæki. Samtals er um 1500 - 3000 Íslendinga að ræða.
Til að verjast samskiptum við siðblinda er brýnt að prenta út eftirfarandi gátlista. Síðan er listinn settur í ljósritunarvél og fjölfaldaður í 5 - 500 eintökum (ræðst af því hvað samskipti eru við marga einstaklinga). Þegar einhver samskipti eiga sér stað við aðra persónu er upplagt að bregða sér afsíðis í kjölfarið svo lítið beri á og merkja við hvort einhver einkenni um siðblindingja eigi við um viðkomandi.
Tekið skal fram að ekki er hægt að brúka gátlistann á sjálfan sig. Siðblindingi er svo siðblindur að hann blekkir sjálfan sig svo rækilega að hann hefur ekki hugmynd um siðblindu sína. Þvert á móti telur siðblindinginn sig vera með gott og heilbrigt siðferði.
Persónueinkenni siðblindingja (sækópata / border line):
_ Á auðvelt með að koma vel fyrir og gefa af sér góðan þokka
_ Er sjálfmiðaður og telur sig vera mikilvægan
_ Sækir í hvatningu og örvun. Annars leiðist honum.
_ Beitir blekkingum og lygum eins og ekkert sé eðlilegra
_ Svíkur og svindlar eins og það sé sjálfsagðasti hlutur í heimi
_ Iðrast varla eða einskis og finnur vart til samviskubits þegar gerðir hans bitna á öðrum
_ Sýnir lítil sem engin tilfinningaviðbrögð við óförum annarra
_ Er harðbrjósta og á erfitt með að finna til samúðar
_ Laginn við að notfæra sér annað fólk hvort sem er fjárhagslega eða á annan hátt
_ Hömlulaus á mörgum sviðum
_ Lauslátur og óábyrgur í kynferðismálum
_ Á einhver hegðunarvandamál að baki
_ Hefur ekki þolinmæði né skilning á langtímamarkmiðum. Hlutirnir verða að gerast strax.
_ Hvatvís lífstíll
_ Kennir öðrum um
_ Ástarsambönd endast ekki til lengri tíma
_ Lenti í vandræði á unglingsárum
_ Brýtur boð og bönn og skilorð þegar um slíkt er að ræða
_ Brot hans eru ekki bundin við eitthvað tiltekið svið. Þau spanna ýmis svið.
Við hvert atriði skal merkja tölustaf: 2 (algjörlega) eða 1 (að hluta) eða 0 (alls ekki). Síðan eru stigin talin saman.
0 - 10 stig = Það er allt í fínu með siðferðisvitund þína.
11 - 17 stig = Þú hefur persónuleikagalla en ert ekki siðblind/ur.
18 - 29 stig = Þú ert siðblind/ur og þarft að leita þér hjálpar.
30 - 36 stig = Þú ert fárveik/ur. Bullandi siðblind/ur og hættuleg/ur samfélaginu.
.
![]() |
Siðblinda finnst allsstaðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt 14.2.2010 kl. 14:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.2.2010 | 12:07
Sprengja!
Væntanleg er á markað bókin Ekki lita út fyrir. Þetta er sjálfshjálparbók eftir Evu "norn" og Ingólf Júlíusson, ljósmyndara. Bókin er sú opinskáasta / klúrasta sem komið hefur út á Íslandi. Það er næsta víst að ýmsir muni hrökkva við. Hér eru sýnishorn úr bókinni. Þau eru valin þannig að ekki þurfi að banna þessa bloggsíðu lesendum undir 18 ára aldri.
![]() |
Kynlífsbindindisfræðsla virkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.1.2010 | 23:11
Kvikmyndarumsögn
- Titill: Mamma Gógó
- Handrit og leikstjórn: Friðrik Þór Friðriksson
- Helstu leikendur: Kristbjörg Kjeld, Hilmir Snær Guðnason, Margrét Vilhjálmsdóttir, Gunnar Eyjólfsson...
- Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson
- Einkunn: **** (af 5)
Kynningarmyndbandið (treiler) fyrir Mamma Gógó lofar ekki góðu (sjá hér fyrir neðan). Ekki söguþráðurinn heldur. Hann fjallar í stuttu máli um ungan kvikmyndaframleiðanda sem á í fjárkröggum. Á sama tíma er móðir hans greind með Alzheimer, heilahrörnunarsjúkdóm sem rænir sjúklinginn minninu. Myndin snýst um þessi vandamál: Blankheit sonarins og minnistap móðurinnar.
Ég hefði ekki nennt á þessa kvikmynd nema vegna fyrri verka Friðriks Þórs og Hilmars Arnar Hilmarssonar. Hæst hefur samstarf þeirra risið í meistaraverkinu marg verðlaunaða Börn náttúrunnar.
Mamma Gógó hefst einmitt á því að verið er að frumsýna Börn náttúrunnar. Þar með er tónninn sleginn. Áhorfandinn er hrifinn inn í hið heillandi hugljúfa andrúmsloft þeirrar kvikmyndar. Jafnframt er augljóst að Mamma Gógó er ævisöguleg mynd höfundar. Eins og margar fyrri myndir hans.
Hilmir Snær leikur Friðrik Þór. Blessunarlega reynir hann ekki að herma eftir Friðriki. Hvorki í útliti né töktum. Engu að síður er hann afar sannfærandi sem Friðrik Þór - eða hvaða kvikmyndaframleiðandi sem væri í þessari sömu stöðu: Blankheitum og tilheyrandi vandamálum. Ásamt því dapurlega ferli þegar móðir hans tapar minninu jafnt og þétt.
Kristbjörg leikur mömmuna af stakri snilld. Þetta er hjartnæm dramamynd. En jafnframt blönduð hárfínni gamansemi sem heldur myndinni út í gegn á þeim dampi að áhorfandinn er að fá kökk í hálsinn en missir sig á næsta andartaki í hláturköstum. Hver bráðfyndna senan rekur aðra.
Faðir Friðriks Þórs er fallinn frá en er samt í stóru hlutverki (Gunnar Eyjólfsson). Þar á meðal er fléttað inn í myndina svart-hvítum klippum úr gamalli kvikmynd, 79 af stöðinni, með Kristbjörgu og Gunnari. Fyrst var ég á því að gömlu svart-hvítu klippunum væri ofaukið. Þegar á leið fóru þær hinsvegar að gefa myndinni dýpt og skerpa á fegurð sögunnar.
Mamma Gógó er mögnuð mynd. Það var djarft uppátæki hjá Friðriki Þór að gera mynd sem einskonar óbeint framhald eða hliðarmynd við Börn náttúrunnar. Það er varla hægt að fylgja þeirri mynd eftir. Þetta er svolítið eins og ef Paul McCartney tæki upp á því að gera plötu sem gerði út á Sgt. Peppers... plötu Bítlanna. Það er óhugsandi að svoleiðis dæmi yrði vel heppnað. En Friðriki Þór tekst hið illmögulega með glæsibrag.
Tónlist Hilmars Arnar er rjómi rjómans.
Mamma Gógó eykur skilning á Alzheimer. Sjálfur þekki ég þennan sjúkdóm því faðir minn varð fórnarlamb hans. Áður en pabbi veiktist vissi ég ekkert um Alzheimer. Það er óvíst að þeir sem ekki þekkja til sjúkdómsins átti sig á því hvers vegna Gógó á til að verða ofur ókurteis. Sjúkdómurinn eyðir hömlum á því hvað er við hæfi að segja "í hreinskilni", samanber þegar Gógó lýsir tengdadóttur sinni sem ljótri fyrir framan hana.
Ég hvet fólk til að skreppa í kvikmyndahús og eiga góða kvöldstund.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
8.12.2009 | 03:37
Ástæðan fyrir því að bjórinn virkar betur í Þýskalandi
Flestir sem hafa farið til Þýskalands og líta augum úrvalið af bjór í hillum verslana haga sér eins og krakki í dótabúð. Það er svo mikið af framandi og spennandi bjórflöskum og -dósum sem aldrei hafa sést á Íslandi og enginn heyrt minnst á. Menn hamstra þetta eins og enginn verði morgundagurinn.
Svo er byrjað að þamba heilsudrykkinn. Þá vill ósjaldan svífa á fólk mun brattar en venja er. Ég var að uppgötva ástæðuna. Hún er sú að margir þýskir bjórar eru miklu sterkari en þetta piss sem selt er í íslenskum vínbúðum. Bjórinn á myndinni hér fyrir ofan er til að mynda 32%. Einn slíkur jafngildir heilli kippu af venjulegum íslenskum jólabjór. Og í raun meir vegna þess að lifrin á erfiðar með að brjóta niður alkahól þegar hlutfall þess í drykk er þetta hátt. En góður er hann og hressandi.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 03:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
5.12.2009 | 23:49
Hvað varð um allar sætu hippastelpurnar?
Hefur þú einhvertímann velt því fyrir þér hvað varð um allar sætu og flottu hassreykjandi hippastelpur ´68 kynslóðarinnar sem skiptust á að droppa sýru og fá sér húðflúr? Hér er sýnishorn af einni þeirra. Hún hefur næstum ekkert breyst - ef undan er skilið að hún hefur stytt hárið og fengið sér gleraugu. Hvorutveggja fer henni vel.
Heilbrigðismál | Breytt 6.12.2009 kl. 00:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
3.12.2009 | 10:49
Splunkuný mynd af Tiger Woods
Fyrir nokkrum dögum vissi ég ekki hver Tiger Woods var. Jú, nafnið hljómaði kunnuglegt og ég held að ég hafi getað sett það í samhengi við golf frekar en körfubolta - ef ég hefði virkilega farið að velta fyrir mér hvers vegna nafnið var kunnuglegt. En ég var bara ekkert að pæla í því. Eg fékk um daginn "add" frá Tiger Woods á Fésbók. Mér hefur verið kennt að sýna varkárni þegar "add" berst frá útlendu nafni. Það ku vera algengt að um vírus sé að ræða. Ég sendi skilaboð til baka þar sem ég óskaði eftir nýjustu mynd af manninum. Ég þekkti hann ekki á myndinni sem fylgdi "addinu". Hún var greinilega gömul.
Nú er ég búinn að fá splunkunýja mynd af manninum. Þetta virðist vera sami maður og er í fréttum þessa dagana fyrir klaufalegt aksturslag, framhjáhald og annað slíkt sem fylgir gjarnan velgengni í íþróttum.
![]() |
Tiger segist hafa brugðist fjölskyldu sinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 11:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
1.12.2009 | 21:29
Þess vegna drekka sumir foreldrar
29.11.2009 | 17:44
Hvað heldur þú?
Ég fékk mér að borða á veitingastað. Sat úti í horni í góðu yfirlæti og las Uncut. Á næsta borði sat fullorðinn maður. Mikill bolti sem tók hraustlega til matar síns. Ég var ekkert að fylgjast með honum en sá þó út undan mér að sósa og fleira meðlæti setti fljótlega svip á andlit kauða. Í mestu átökunum sýndist mér sem tanngómur væri komin hálfa leið út úr manninum.
Að nokkrum tíma liðnum hringdi maðurinn örstutt símtal. Ég tók ekki eftir því um hvað var rætt. Nokkrum mínútum síðar kom ung, nett og fínleg kona inn og settist gengt manninum. Hún var af asísku bergi brotin. Maðurinn ýtti til hennar disknum sínum. Konan tók þegar að borða leifarnar eftir manninn. Nagaði hvert bein snyrtilega og af samviskusemi.
Ég veit ekki hvað var í gangi. Þetta er eitthvað skrýtið. Án þess að ég hafi hugmynd um þá læðist að mér grunur um að stutta símtal mannsins hafi verið við konuna. Mér dettur í hug að konan hafi þá beðið fyrir utan. Kannski í bíl. Eða ég veit bara ekkert hvað ég á að halda. Kannski þekkir þetta fólk manneskjuna sem sér um uppvaskið og vildu spara uppvask á diski og hnífapörum. Hvað heldur þú?
Myndin hér að ofan er ekki af manninum á veitingastaðnum. Sá var dálítið eldri og þykkari.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 17:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
8.11.2009 | 21:36
Einföld og skjótvirk leið til að losna við tóbaks- og áfengisfíkn
Er það ekki dæmalaust með fólk; það eyðir mörgum mörgum þúsund köllum og löngum tíma á námskeiðum til að reyna venja sig af því að reykja og drekka. Öðrum eins upphæðum er eytt í nikotínplástra, nikotíntyggjó, antibus og hvað þetta drasl heitir.
Þetta er heimska. Það eina sem þarf til að losna við tóbaks- og áfengisfíkn er örstutt öndunaræfing. Hún er sýnd hér á myndbandinu fyrir neðan. Mestu máli skiptir að láta tunguna lafa afslappaða, ranghvolfa augunum og láta hendur ekki snerta neitt. Æfingin tekur innan við mínútu og öll tóbaks- og áfengisfíkn hverfur eins og dögg fyrir sólu.
Ef þetta virkar ekki í fyrstu atrennu er minnsta mál í heimi að endurtaka æfinguna daginn eftir. Eða svo lengi sem þarf til að hún virkir. Nokkrir dagar til eða frá skipta engu máli. Án þess að ég sé viss hef ég grun um að þessi létta æfing virki einnig kröftuglega á dópfíkn og vondan bókmenntasmekk.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 22:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
26.10.2009 | 22:42
Bjargið heilsu ykkar og lífi með einfaldri aðferð
Fram til þessa hefur sígarettureykingum verið kennt um ýmsa lungnasjúkdóma. Nú hefur komið í ljós að sturtuhausar eru ábyrgir fyrir þessum sjúkdómum. Sturtuhausinn er fullur af bakteríum og viðbjóði sem fólk andar ofan í lungu á meðan það er undir sturtunni.
Sígarettureykingar eru hinsvegar frekar hollar. Held ég. Þær framkalla smá kitl eða áreiti á lungun. Þau fá létta leikfimiæfingu og verða sterkari á eftir. Það er verra með viðbjóðinn úr sturtuhausnum. Bakteríurnar koma sér fyrir í lungunum og valda skaða.
Með einfaldri aðferð má koma 100% í veg fyrir að bakteríurnar berist ofan í lungu á meðan fólk sturtar sig. Það eina sem þarf að gera er að kaupa höfuðbúnað fyrir kafara og nettan súrefniskút. Þannig eru öndunarfærin fullkomlega einangruð frá ógeðinu úr sturtuhausnum. Illgjörnu bakteríunum til háðungar og niðurlægingar.
Til að skerpa á stemmningunni er gaman að setja á sig sundfit í leiðinni.
Eftir að komið er úr sturtu er upplagt að skrúfa framan af krananum í eldhúsvaskinum. Sá hluti er með sigti. Sigtið skal setja í pott, fylla hann með vatni og sjóða á hæsta styrk í 40 mínútur. Eftir það er vatninu gusað út á hlað en sigtið skolað í 5 mínútur upp úr 96% spíra (það er gaman að fá sér nokkra sopa af spíranum í leiðinni). Svo er þetta fest aftur framan á kranann. Því næst er hárið og höfuðið sjampóþvegið rækilega upp úr kranavatni. Mælt er með Aloe Vera sjampói sem fæst í Heilsubúðinni á Reykjavíkurvegi 62 í Hafnarfirði. Til öryggis er heppilegt að taka tvær - þrjár umferðir á þetta.
Að lokum er andlitið þvegið vandlega með þvottapoka. Ef ekki er vel að gætt vilja eyrun gleymast. Þá kemur sér vel að vera með stóran miða festan í ramma fyrir ofan vaskinn þar sem minnt er á að þvo eyrun líka. Til að draga athygli að miðanum er upplagt að skreyta hann með skærum blikkljósum og háværri sírenu.
Í fljótu bragði getur þetta virst dálítið mál. En þegar þetta er framkvæmt daglega verður það á örfáum árum ósjálfráð athöfn sem jafnvel er framkvæmd áður en maður vaknar. Skiptir þá engu hvort það er fyrir eða eftir hádegi eða kvöldmat.
Heilbrigðismál | Breytt 27.10.2009 kl. 16:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)