4.9.2007 | 02:24
Plötudómur
Flytjandi: I Adapt
Titill: Chainlike Burden
Einkunn: ****1/2 (af 5)
Nýjasta plata I Adapt er gullmoli. 10 flott lög. Ţetta er sennilega 6 ára gömul hljómsveit. Stofnuđ upp úr ýmsum harđkjarna hljómsveitum (Bisund, Snafu, Molesting Mr. Bobo.fl.). Harđkjarni er á ensku kallađur hardcore og nćr yfir pönkhljómsveitir í ţyngri og harđari kantinum. Mikil öskur. Mikil lćti.
Framan af var "pjúra" pönk áberandi. Á nýju plötunni er músíkin orđin ţyngri, yfirvegađri og ađ hluta "rólegri" eđa hćggengnari. Án ţess ađ ţađ eigi ađ hljóma eins og eitthvađ neikvćtt gagnvart eldri frábćrum plötum I Adapt ţá er nýja platan eins og meira "alvöru". Hljómsveitin er eins og ţroskađri.
Ţađ vantar ekkert upp á kraft eđa hrađa. Ţó ađ inn á milli sé keyrslan ekki eins yfirkeyrđ. Trommuleikurinn er einstaklega skemmtilegur. Kröftugar áherslurnar í trommuleiknum gera mikiđ fyrir lögin. Söngvarinn, Birkir Fjalar Viđarsson, var lengi í framlínu bestu trommara landsins. Spilađi međ Bisund, Döđlunum og Stjörnukisa. Var réttilega kosinn besti trommuleikarinn í Músíktilraunum ţegar Bisund lenti ţar í 2. sćti (man ekki hvort ađ ţađ var á eftir Sođinni fiđlu eđa Steiner). Birkir myndi ekki sćtta sig viđ neitt minna en ţann snilldar trommuleik sem heyrist á plötunni.
Birkir rćđur viđ ađ öskra út í eitt. Smá hnökri viđ plötuna er ađ söngurinn hefđi fyrir minn smekk mátt vera hljóđblandađur pínu pons framar. Samt ekki neitt sem kemur ađ sök. Platan hljómar flott eins og hún er. Á köflum tel ég mig heyra samhljóm međ einni af mínum uppáhalds hljómsveitum, hinni bandarísku Minsitry. Kröftugur öskursöngur yfir rólyndislega en ţunga undiröldu.
Annar lítillegur hnökri er ađ ég heyri ekki orđaskil og textarnir sem prentađir eru í flott umslag eru illlćsilegir fyrir mann á sextugsaldri. Ţetta atriđi skrifast ţó frekar á sjóndepurđ gamals manns en plötuumbúđir.
Ţriđja atriđiđ er ađ I Adapt er ein allra skemmtilegasta hljómleikahljómsveit landsins. Stemmningin sem hljómsveitin nćr ađ magna upp á hljómleikum skilar sér eđlilega ekki ađ fullu á plötu.
Fjórđa atriđiđ er ađ platan er frekar seintekin. Ég er búinn ađ hlusta á hana um ţađ biđ 30 sinnum. Ţađ tók mig nokkrar hlustanir ađ fá góđar lagasmíđarnar til ađ laumast inn.
Eftir stendur ađ ţetta er frábćr plata međ frábćrri hljómsveit. Platan fćst í 12 Tónum, Smekkleysu og fleiri búđum öđrum en Skífunni.
Flokkur: Tónlist | Breytt s.d. kl. 04:01 | Facebook
« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »
Efni
Tónlistarspilari
Spurt er
Nýjustu fćrslur
- Ţessi vitneskja getur bjargađ lífi
- Sparnađarráđ sem munar um!
- Smásaga um hlýjan mann
- Sparnađarráđ
- Smásaga um týnda sćng
- Ótrúlega ósvífiđ vanţakklćti
- Anna frćnka á Hesteyri - Framhald
- Anna frćnka á Hesteyri í fasteignabraski
- Sérkennilegur vinsćldalisti
- Sparnađarráđ
- Niđurlćgđur
- Safaríkt 1. apríl gabb
- Svangur frćndi
- 4 lög međ Bítlunum sem ţú hefur aldrei heyrt
- Stórhćttulegar Fćreyjar
Nýjustu athugasemdir
- Þessi vitneskja getur bjargað lífi: Ţađ lítur ţá út fyrir ađ Björgólfur Thor skuldi njósnurunum sei... Stefán 6.6.2025
- Þessi vitneskja getur bjargað lífi: Stefán (# 16), munurinn er sá ađ Björgúlfur kannast ekki viđ n... jensgud 6.6.2025
- Þessi vitneskja getur bjargað lífi: Sigurđur I B, blessunarlega hwfur ekki reynt á ţađ - svo vitađ... jensgud 6.6.2025
- Þessi vitneskja getur bjargað lífi: Hver er munurinn á Björgólfi Thor vs Robert Wessman og Donald T... Stefán 6.6.2025
- Þessi vitneskja getur bjargað lífi: Ha, ha, ha satt segir ţú Sigurđur IB, en sá Björn gćti nú örugg... Stefán 6.6.2025
- Þessi vitneskja getur bjargað lífi: Veit ekki alveg hvort ţetta ráđ dugi á Björn Bjarnason! sigurdurig 6.6.2025
- Þessi vitneskja getur bjargað lífi: Já Stefán, Lalli heitinn var klókur međ afbrigđum en eins og sa... johanneliasson 6.6.2025
- Þessi vitneskja getur bjargað lífi: Já og mín síđustu afskipti af honum blessuđum voru ţegar hann f... Stefán 5.6.2025
- Þessi vitneskja getur bjargað lífi: Stefán (# 10), grunur beinist ađ nafninu Lalli. jensgud 5.6.2025
- Þessi vitneskja getur bjargað lífi: Vegna ţess ađ viđ Jóhann Elíasson vorum sjómenn ( stýrimenn ) á... Stefán 5.6.2025
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 6
- Sl. sólarhring: 314
- Sl. viku: 832
- Frá upphafi: 4143153
Annađ
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 613
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
sigurjonth
-
asthildurcesil
-
siggith
-
hallarut
-
reykur
-
rannveigh
-
skulablogg
-
fiski
-
gudruntora
-
asgerdurjona
-
zeriaph
-
jevbmaack
-
lehamzdr
-
ffreykjavik
-
fuf
-
stormsker
-
xfakureyri
-
jonmagnusson
-
palmig
-
jonaa
-
jakobsmagg
-
ktomm
-
th
-
jenfo
-
gurrihar
-
kiddirokk
-
hlynurh
-
skessa
-
prakkarinn
-
maggadora
-
skinkuorgel
-
agustolafur
-
einherji
-
heidathord
-
atlifannar
-
konukind
-
gudnim
-
730
-
blekpenni
-
heida
-
annabjo
-
vglilja
-
sleggjan007
-
markusth
-
bergruniris
-
aevark
-
rannthor
-
katrinsnaeholm
-
birgitta
-
jullibrjans
-
fararstjorinn
-
agny
-
ippa
-
hugrunj
-
aring
-
ikjarval
-
gujo
-
bjorgvinbjorgvinsson
-
drhook
-
runarsv
-
sjos
-
doriborg
-
haukurn
-
gammon
-
millarnir
-
robbitomm
-
korntop
-
killjoker
-
vantru
-
evathor
-
partners
-
heiddal
-
meistarinn
-
skrifa
-
heidistrand
-
iaprag
-
semaspeaks
-
svei
-
jonthorolafsson
-
sverrir
-
bonham
-
bjarnihardar
-
sigurgeirorri
-
ladyelin
-
birnamjoll
-
veraknuts
-
fia
-
plotubudin
-
ringarinn
-
nonninn
-
larahanna
-
juliusvalsson
-
skari60
-
ingvarvalgeirs
-
lubbiklettaskald
-
kolgrimur
-
olinathorv
-
hreinsi
-
baddinn
-
hrolfur
-
jenni-1001
-
handsprengja
-
ahi
-
perlaheim
-
gudrunmagnea
-
ommi
-
hemba
-
grumpa
-
bergthora
-
grafarholt
-
mummigud
-
athena
-
sigaxel
-
bjolli
-
gummiarnar
-
kerchner
-
rustikus
-
hordurj
-
thegirl
-
birna-dis
-
siggivalur
-
krizziuz
-
fridaeyland
-
evabenz
-
quackmore
-
andres08
-
bleikaeldingin
-
bardurorn
-
snorris
-
ver-mordingjar
-
nexa
-
thorasig
-
lindalinnet
-
gudni-is
-
mordingjautvarpid
-
arh
-
sinfonian
-
raggipalli
-
mongoqueen
-
lovelikeblood
-
holi
-
jakobk
-
rannveigbj
-
stebbifr
-
credo
-
ylfalind
-
herdis
-
steinnhaf
-
halo
-
gullilitli
-
810
-
motta
-
leifurl
-
janus
-
ljonid
-
kerla
-
solir
-
nilli
-
guru
-
steinnbach
-
skagstrendingur
-
hemmi
-
gunnar
-
hannamar
-
mosi
-
geislinn
-
hlekkur
-
luther
-
zumann
-
jara
-
hector
-
malacai
-
polly82
-
hughrif
-
einarlee
-
loopman
-
sign
-
destiny
-
gilsneggerz
-
thuridurbjorg
-
liljabolla
-
saethorhelgi
-
svatli
-
siggiholmar
-
folkerfifl
-
sigurjonsigurdsson
-
eythora
-
kiddijoi
-
kjartanis
-
rosagreta
-
gurkan
-
killerjoe
-
gthg
-
gebbo
-
laugatun
-
tru
-
presley
-
siggileelewis
-
helgamagg
-
doddilitli
-
kjarrip
-
steinibriem
-
huldumenn
-
jobbisig
-
id
-
mp3
-
blomid
-
ketilas08
-
lilly
-
hjolaferd
-
lostintime
-
skordalsbrynja
-
birtabeib
-
karitryggva
-
marzibil
-
zunzilla
-
fjola
-
storibjor
-
rannug
-
glamor
-
venus
-
eurovision
-
skjolid
-
einarsigvalda
-
minna
-
austurlandaegill
-
coke
-
eyja-vala
-
harpao
-
ljosmyndarinn
-
doriegils
-
lordbastard
-
neddi
-
holmarinn
-
vga
-
bus
-
dolli-dropi
-
vefritid
-
eirikurgudmundsson
-
hallibjarna
-
svetlana
-
blues
-
huxa
-
judas
-
asdisran
-
omarpet
-
skattborgari
-
himmalingur
-
neytendatalsmadur
-
salkaforlag
-
kje
-
laufabraud
-
vestskafttenor
-
gunnarggg
-
esb
-
ingvarari
-
gunnarpalsson
-
hreinn23
-
saltogpipar
-
hergeirsson
-
jea
-
arniarna
-
psychosurfer
-
metal
-
hreinsamviska
-
godinn
-
krissa1
-
robertb
-
perlaoghvolparnir
-
brandurj
-
madddy
-
tibet
-
minkurinn
-
hallidori
-
liso
-
graceperla
-
mrsblues
-
gummiogragga
-
sisvet
-
vild
-
holar
-
presleifur
-
helgadora
-
xjonsig
-
helgananna
-
meyjan
-
tungirtankar
-
visindavaka
-
borgarfjardarskotta
-
mal214
-
vilberg
-
brandarar
-
einarhardarson
-
steffy
-
adhdblogg
-
litliper
-
audunnh
-
gotusmidjan
-
saemi7
-
dorje
-
sterlends
-
jgfreemaninternational
-
aloevera
-
lucas
-
olibjossi
-
bestfyrir
-
helgigunnars
-
gleymmerei
-
leifur
-
ace
-
diesel
-
methusalem
-
astroblog
-
lynx013
-
brell
-
kikka
-
doddyjones
-
sigurjon
-
birnast
-
gunnarbjorn
-
disdis
-
valdinn
-
ragnar73
-
helgatho
-
cigar
-
parker
-
manisvans
-
kerubi
-
mis
-
bmexpress
-
drum
-
gisgis
-
finni
-
tbs
-
topplistinn
-
rognvaldurthor
-
pjeturstefans
-
gullfoss
-
lotta
-
thjodarsalin
-
freyrholm
-
olii
-
gattin
-
bjornj
-
olafiaherborg
-
rallysport
-
sur
-
sigrunzanz
-
rafng
-
hrannsa
-
draumur
-
aslaugas
-
aeon
-
gumson
-
glamur
-
skinogskurir
-
launafolk
-
bjarnimax
-
westurfari
-
bookiceland
-
braskarinn
-
komediuleikhusid
-
elfarlogi
-
elismar
-
emilhannes
-
fingurbjorg
-
frida-litlah
-
gudjul
-
gp
-
gusg
-
gubo
-
vgblogg
-
hafthorb
-
morgunblogg
-
sveinnelh
-
rattati
-
diva73
-
itlajh
-
minos
-
kliddi
-
daliaa
-
axelma
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
fun
-
jaisland
-
jeremia
-
johanneliasson
-
eyfeld
-
johannesthor
-
stjornun
-
josefsmari
-
x-d
-
kristjan9
-
larusg
-
lifsrettur
-
lifsyn
-
loftslag
-
ludvikludviksson
-
margretsverris
-
mofi
-
sumri
-
skari
-
raffi
-
rso
-
roslin
-
runarf
-
jardytan
-
sigridursig
-
joklamus
-
siggifannar
-
sigurdurig
-
stjornlagathing
-
stefanjul
-
stommason
-
steinki
-
svanurg
-
spurs
-
sveinneh
-
tryggvigunnarhansen
-
myworld
-
valdimarjohannesson
-
valmundur
-
vest1
-
totibald
Athugasemdir
Spennandi, ţarf ađ fara ađ drífa mig í hlustun á ţessa. Ţessi dómur er auđvitađ bara hvetjandi líka ;)
Ragga (IP-tala skráđ) 4.9.2007 kl. 06:51
Erlingur, rétt til getiđ. Ţetta eru I Adapt í góđum gír.
Jens Guđ, 4.9.2007 kl. 13:31
Ég verđ nú bara ađ segja alveg eins og er ađ ég skil ekki svona músik. Ég skil alveg ađ unglingar fíli kraftinn og hávađann en mér nćgir alveg ađ hlusta á ţetta lag á utube einu sinni til ađ fá nóg. Fjórir tónar endurteknir í sífellu í tvćr mínútur og svo öskrađir enn fćrri tónar í ţrjár. Geta menn öskrađ svona í heila tónleika án ţess ađ missa röddina?
Gunnar Th. Gunnarsson, 4.9.2007 kl. 14:00
Ţađ er fćstum gefiđ ađ öskra samfellt út heila hljómleika án ţess ađ missa röddina. Ţeir fáu sem ráđa viđ ţađ missa samt röddina af og til. Ţetta er svo gífurleg áreynsla fyrir raddböndin. Ţegar ţeir missa röddina tekur allt upp í nokkrar vikur ađ fá hana aftur.
Hugsanlega međtekur fólk ţessa músík öđruvísi ef ađ ţađ hefur vanist henni á hljómleikum. Ţađ er svo gífurlega sterk upplifun. Jafnframt ţarf mađur ađ hafa gaman af ţungu og hörđu rokki yfir höfuđ til ađ láta stemmninguna hrífa sig.
Jens Guđ, 4.9.2007 kl. 14:27
Takk fyrir ađ upplýsa mig, fáfróđa konuna, um ţessa hljómsveit. Vissi bara ekkert um tilvist hennar.
En af ţví ađ ţú veist allt um tónlist og ţá sérstaklega rokk ţá heyrđi ég í gamalli hljómsveit í laugardagsţćttinum hjá henni Erlu Ragnars. Erla var međ Guđlaug Kristin Óttarsson í viđtali hjá sér. Hann kom međ tónlist međ Killing Joke međ sér í ţáttinn. Fyrsta lagiđ sem var spilađ var Love like blood. Ţađ fannst mér MJÖG flott lag!! Annars var ţetta alveg frábćrt viđtal (milli 10 og 12 síđasta laugardag í vefupptökunum á RÚV ef ţú misstir af ţví).
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráđ) 4.9.2007 kl. 14:44
Já ţetta á auđvitađ viđ um alla músik, ađ vera á stađnum, ekki síst klassík og kóramúsik sem ég hef hallađ mér ć meira ađ í seinni tíđ
Gunnar Th. Gunnarsson, 4.9.2007 kl. 15:01
Út á ţessa grein ţína, selja piltarnir örugglega 50 - 100 eintök aukalega, varlega áćtlađ!
Magnús Geir Guđmundsson, 4.9.2007 kl. 16:53
Ţetta er eđalplata. Ég er ekki búinn ađ hlusta nógu mikiđ á hana til ađ dćma hana endanlega en hún hefur samt ţegar stimplađ sig inn sem ein af plötum ársins. Ég skil ţađ mjög vel ađ sumir geti ekki hlustađ á ţessa tónlist. Sumir geta ekki hlustađ á Sigur Rós ađrir ekki á Celine Dion og enn ađrir ekki á klassík. I Adapt standa mjög vel í ţeim geira sem ţeir eru í, svokölluđum harđkjarna. Ţeir hafa kraft, frumleika, góđar lagasmiđar og eru ţar ađ auki hörku hljóđfćraleikarar. Á tónleikum eru ţeir frábćrir og ţađ er mjög gott fyrir sveitir ađ hafa spilađ mikiđ áđur en ţeir ráđast í plötugerđ. Ţađ sanna ţeir međ ţessari skífu.
Magnús Geir: Ég vona ţeir selji meira en 50-100 eintök aukalega út á ţessa grein :-)
Kristján Kristjánsson, 4.9.2007 kl. 19:21
Jamm Kiddi, enda sagđi ég líka varlega áćtlađ. Ţú mćlir svo auđvitađ viturlega og veist sem er ađ til dćmis eru í klúbbnum góđa menn sem nánast hlusta á allt nema til dćmis einmitt Sigurrós!
Magnús Geir Guđmundsson, 4.9.2007 kl. 20:28
Anna, ég veit ekki allt um tónlist. Ţví fer fjarri. En takk fyrir ađ benda mér á ţennan ţátt um Gulla Óttars. Ég ţekki ţann merka snilling. Viđ vorum samtíđa á Laugarvatni. Ég í gaggó en hann í menntó. Ţar spilađi hann í hljómsveitinn Lótusi en ég í hljómsveitinni Frostmarki.
Síđar lágu leiđir aftur saman ţegar ég var ađ stússa í Gramminu og Gulli ađ spila međ Ţeysurum og síđar Kukli.
Ég hef mikiđ dálćti á Killing Joke. Á flestar plöturnar međ ţeim. Ţó ađ hljómsveitin sé ţriggja áratuga gömul og hafi sprottiđ upp úr pönksenunni ţá hefur hún ţróast mjög vel. Plata međ ţeim sem kom út 2003 og heitir ekki neitt er ein ţeirra allra besta. Dave Grohl (Nirvana, Foo Fighters) sér um trommuleikinn.
Maggi, ég tek undir međ Kidda og vona ađ ţeir selji miklu meira út á ţessa grein.
Jens Guđ, 4.9.2007 kl. 20:30
Búinn ađ renna plötunni 2 í gegn og er mjög hrifinn, eitthvađ ţađ' hressilegasta sem ég hef heyrt í Íslensku rokki í nokkurn tíma.
Anna, takk fyrir ađ benda á ţáttinn hjá Erlu Ragnars međ Guđlaugi, Killing Joke hefur veriđ mín uppáhalds hljómsveit síđan 1985 og ég er farinn beint ađ leita ađ ţessu viđtali, Love Like Blood er frá 1985 af plötunn Night Time og er einmitt lagiđ sem kynnti mig fyrir Killing Joke, fór á tónleika međ ţeim í fyrra og gömlu mennirnir voru í feiknaformi.
Hér er videóiđ viđ lagiđ http://uk.youtube.com/watch?v=cVgMEsMZdcQ
Georg P Sveinbjörnsson, 6.9.2007 kl. 17:06
Ég er mikill ţungarokkari sjálfur. Ég hef hins vegar almennt veriđ frekar lítiđ fyrir hardcore tónlist en I Adapt eru einu orđi sagt rosalegir! Ađ fara á tónleika međ ţeim er mind blowing, mind changing experience og ţađ ađ upplifa stemninguna, hina ómenguđu skemmtun sem tugir manna í I Adapt "vímu" (en I Adapt spila oftast nćr á all-ages áfengislausum tónleikum), syngjandi hástöfum međ Birki söngvara, í einni kös, menn jafnvel klifrandi hver ofan á öđrum, sveittir í gegn, í einum risastórum pitti (og mjög fáir, ef einhverjir undir áhrifum áfengis eđa annarra vímuefna).
Ég á eftir ađ heyra ţessa nýju plötu en fyrri plötur meistaranna hafa gert lítiđ fyrir mig, en live er máliđ allt allt öđruvísi. Ţar fíla ég drengina alveg í tćtlur.
Ég mćli međ ţví ađ fólk skelli sér á tónleika međ ţeim áđur en langt um líđur... tónleikar međ ţeim eru hvort eđ er aldrei dýrir, ţeir spila sjaldnast á tónleikum ţar sem kostar meira en 500 kall inn, eđa bara frítt, eđa eru ađ spila međ erlendum sveitum ţar sem miđaverđiđ fer sjaldan yfir 1000 kallinn. Útgáfutónleikar ţeirra eru t.d. á nćstu grösum, án ţess ađ ég viti hvenćr ţeir verđa, en ţađ er alveg ljóst ađ ţessi ţungarokkari mun ekki láta sig vanta. Ţeir eru einnig ađ spila međ dönsku sveitinni The Psyke Project 3. nóvember og ţađ má búast viđ húsfylli á ţeim tónleikum.
Annars getur fólk heyrt tóndćmi af ţessari nýju plötu hérna: http://www.mammathin.net/ Mćli međ Sinkin Ship og Future In You.
Ţorsteinn Kolbeinsson (IP-tala skráđ) 25.9.2007 kl. 00:56
Ég er einmitt ađ reyna ađ benda á ađ ţrátt fyrir ađ plötur I Adapt séu frábćrar ţá er hljómsveitin ennţá flottari á sviđi. Hljómleikar I Adapt eru ţvílík snilld ađ ţeir eru bara gćsahúđ og alvöru hljómleikaupplifun.
Jens Guđ, 25.9.2007 kl. 01:58
Ţorsteinn, endilega hentu inn á bloggiđ mitt fréttatilkynningum um hljómleika međ Amon Amarth eđa öđrum spennandi dćmum sem ađ ţú ert međ. Innlit á bloggiđ mitt eru um 14.000 á viku og ég vil nýta ţennan vettvang til ađ koma á framfćri ţví sem ađ er áhugavert í rokksenunni.
Jens Guđ, 25.9.2007 kl. 02:08
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.