Færsluflokkur: Tölvur og tækni
26.1.2012 | 20:47
Í þá gömlu góðu daga - III
Þetta er síðasta lotan í upprifjun á gömlu góðu dögunum. Þessari ótrúlegu tilveru fyrir daga heimilistölvunnar, internetsins, Fésbókar, bloggsins, tölvuleikja, "google", þútúpunnar og þess alls sem er svo stór liður í því sem við erum að fást við dag hvern. Táningar og börn geta ekki ímyndað sér hvernig hægt var að komast af án tölvunnar og internetsins. Á þeim dögum var pabbinn alfræðiorðabók:
Þá spurði barnið: "Hver skapaði heiminn, pabbi?" Faðirinn svaraði: "Guð skapaði heiminn, sonur sæll."
Nú spyr barnið: "Hver skapaði heiminn, pabbi?" Og faðirinn svarar: "Gúgglaðu það, sonur sæll."
Áður stóðu foreldrarnir valdmannslegir yfir taugaveikluðum, óöruggum og niðurlútum nemendum og hrópuðu: "Hvað eiga þessar einkunnir að þýða?"
Nú standa nemendurnir sjálfsöruggir fyrir framan taugaveiklaða, óörugga og niðurlúta kennara þegar foreldrarnir yfirheyra kennarana: "Hvað eiga þessar einkunnir að þýða?"
Tölvur og tækni | Breytt 27.1.2012 kl. 21:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.1.2012 | 21:49
Í þá gömlu góðu daga - II
Áður: "Mamma, ég er að fara út að spila fótbolta."
Nú: "Mamma, en ég er að spila fótbolta."
Áður: "Farðu inn í herbergið þitt!"
Nú: "Farðu inn í herbergið þitt!"
Afmæli áður: "Vá, sjáið alla pakkana!"
Afmæli nú: "Vá, sjáið hvað margir muna eftir mér á Fésbók!"
25.1.2012 | 00:28
Í þá gömlu góðu daga
Horft á bíómyndir.
Spjallað við vini.
Dagblöðin lesin.
Spiluð músík.
Til að fá stærri og skýrari mynd þarf að smella á hana.
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 17:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
27.5.2011 | 02:46
Byltingarkennd nýjung í kvikmyndatækni
Sú tækni að áhorfandinn sjái kvikmynd í þrívídd er gömul og úrelt. Það er áreiðanlega hálf öld eða eitthvað síðan menn áttuðu sig á því hvernig hægt væri að gera þrívíddarmyndir og koma þeim til skila með þar til hönnuðum gleraugum, eða réttara sagt plastaugum. Einhverra hluta vegna hafa frekar fáir kvikmyndaframleiðendur notfært sér þrívíddartæknina fyrr en á allra síðustu árum.
Nú hafa japanskir uppfinningamenn fundið upp nýjung sem slær þrívíddartæknina út af borðinu. Það er fjórvíddartækni. Eina vandamálið sem á eftir að leysa er að einfalda gleraugnadæmið. Eins og er þarf áhorfandinn að sitja með 4 gleraugu á nefinu til að sjá myndina í fjórvídd. Ein gleraugu fyrir hverja vídd.
.
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 02:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.5.2011 | 03:02
Þannig var það fyrir daga tölvunnar
Fyrir daga tölvunnar:
- Minni var eitthvað sem maður tapaði með aldrinum
- Umsókn tengdist atvinnuleit
- Prógramm var sjónvarpsefni
- Lyklaborð var píanó
- Vefur tilheyrði köngulóm
- Vírus var flensa
- Músamotta tilheyrði músahreiðri
Það eru örfáar fleiri setningar þarna sem virka einungis á ensku. Nema þið finnið flöt á að þýða þær þannig að þær virki á íslensku líka.
9.5.2011 | 23:39
Ekki er allt sem sýnist
Allar þessar leiðslur virðast vera eins og einhverskonar frumskógur. Þær eru á sama svæði: Á Indlandi. Þær gegna veigamiklu hlutverki í þjónustu alnetsins (internetsins). Ekki síst í Bandaríkjum Norður-Ameríku. En einnig út um alla Evrópu og víðar. Mörg af helstu þjónustufyrirtækjum heims á sviði internetsins eiga allt undir þessum vírahrúgum. Þegar bandarískur almenningur og evrópskur hringir í internet-þjónustu númer fer símtalið til Indlands. Þar sitja við enda þessa vírafrumskógar ljúfir og þjónustuliprir Indverjar sem leysa úr öllum vandamálum varðandi internetið. Þeir kunna þetta. Og sá sem hringir heldur að hann sé að tala við bandaríska eða evrópska tölvusérfræðinga þar sem allar tölvutengingar eru snyrtilega jarðlagðar.
2.5.2011 | 20:27
Ljósmyndin af hræi Osama bin Laden er fölsuð!
Fjölmiðlar, allt frá breska dagblaðinu Gardian til þýska Spiegel, hafa nú afhjúpað að ljósmyndin sem fjölmiðlum hafa birt og átti að sýna hræið af Osama bin Laden er fölsuð. Hér má sjá myndina sem fjölmiðlar birtu í morgun:
Þannig leit myndin út í Daily Mail. Hér fyrir neðan er sýnt hvernig myndin var fölsuð:
Nokkrum andlitsdráttum af Osama var blandað saman við ljósmynd af líki annars manns.
Hvers vegna "bandamenn" eða einhverjir aðrir standa svona að því að sýna fram á að Osama bin Laden sé dauður vekur upp einhverjar spurningar. Ég er ekkert að draga í efa að kallinn sé dauður. Enda hafa bæði bandaríska leyniþjónustan og ýmsir háttsettir annarsstaðar fullyrt ítrekað árum saman, alveg frá 2001, að Osama bin Laden sé dauður. Ég hef alltaf trúað þeim. Enda aldrei haft ástæðu til að gruna þá um ósannsögli eða annarskonar ónákvæmni.
.
|
Sýndu bin Laden látinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 22:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (58)
23.12.2010 | 02:37
Furðulegt viðtal
Vegna hátíðar ljóss og friðar, mestu hátíðar okkar ásatrúarmanna í árþúsundir, kemur ekki til greina að ég svo mikið sem gjói auga að tölvu fyrr en hátíðarsvipurinn rennur af mér undir jólalok. Í millitíðinni heiðra ég upprisu ljóssins með því að skreyta jólatré með allskonar gull- og silfurlituðu glingri og ljósum. Og það þrátt fyrir að svoleiðis uppátæki sé fordæmt í þjóðsögum gyðinga í Arabíu, eða eins og segir svo skýrt í Biblíunni:
"1Heyrið orðið, sem Drottinn talar til yðar, Ísraels hús! 2Svo segir Drottinn:
"Venjið yður ekki á sið heiðingjanna og hræðist ekki himintáknin, þótt heiðingjarnir hræðist þau. "
3Siðir þjóðanna eru hégómi. Menn höggva tré í skógi, og trésmiðurinn lagar það til með öxinni, 4hann prýðir það silfri og gulli, hann festir það með nöglum og hömrum, svo að það riði ekki. "
Á meðan ég sniðgeng tölvu frá öllum hliðum leyfi ég meðfylgjandi viðtali að standa hér. Ef ég vissi ekki betur hefði ég haldið að ég væri á lyfjum í þessu viðtali. Hið rétta er að ég var aðeins nývaknaður og eðlilega nokkuð ringlaður. Þetta var nefnilega fyrir hádegi.
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 02:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
18.11.2010 | 00:02
Vinsælustu lög Bítlanna
Á þriðjudaginn voru öll lög bresku Bítlanna, The Beatles, sett á iTunes. Ég veit ekki hvað þetta iTunes er. En svo virðist vera sem fólk með aðgang að tölvu og nettengingu geti sótt sér lög í gegnum þetta iTunes. Sennilega þarf að borga eitthvað fyrir lögin. Hvernig svo sem það allt saman er þá er gaman að skoða lista yfir hvaða lög Bítlanna njóta mestra vinsælda á iTunes. Sá listi er dálítið gallaður. Sum lög eru á fleiri en einum stað á listanum. Ástæðan fyrir því er sú að þau lög er að finna á fleiri en einni plötu. Hvert og eitt sæti fyrir sig gefur upp viðkomandi lag af aðeins einni plötu.
Þannig er listinn:
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 03:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
14.10.2010 | 01:35
Áríðandi skilaboð - þetta varðar ykkur öll!
Eftirfarandi pistill er skrifaður af Finnboga Marinóssyni, ljósmyndara, og birtur hér með hans leyfi. Þessi pistill á brýnt erindi til almennings og rík ástæða er til að vekja athygli á málinu og ná að kæfa bullið í Gunnari Guðmundssyni áður en þetta fer í algjört rugl.
Fréttablaðinu þann 5. október birtist „frétt“ á blaðsíðu 2 undir fyrirsögninni „Sala á tónlist dregst saman um helming“. Sem áhugamaður og neytandi tónlistar vakti þessi fyrirsögn áhuga minn. Lestur greinarinnar setti mig hljóðan og í henni er alvarlegt mál einfaldað á svo ótrúlegan hátt að það má ekki hjá leggjast að svara.
Greinin byrjar á því að bera saman sölutölur á milli ára sem sýna glögglega að sala á tónlist hefur dregist saman. Þetta er staðreynd sem er ekki bundin víð Ísland. Svo er talað um að á því ágæta ári 2002 hafi 26% landsmanna verið ADSL tengdir en 2008 sé hlutfalliðkomið í 94%. Þá er vitnað í Gunnar Guðmundsson framkvæmdasjóra flytjanda og hjómplötuframleiðanda að ólöglegt niðurhal sé „gríðarlegt vandamál“. Hann segir: „við sjáum það bara í sölutölum að það er erlend tónlist sem verður fyrir barðinu á ólögleglu niðurhali“. Svo talar hann um að tónlistarfólk verði að fá greitt fyrir vinnu sína og það þurfi að fá umræðu í gang um þessi mál (er það kannski markmið „fréttarinnar“ ?). Gunnar bætir ennfremur við að: „Þetta háir öllum ungum tónlistarmönnum og allri þróun á tónlist“ og hann talar um að það þurfi að fá stjórnvöld að borðinu.
Þá er vitnað í Björn Sigurðsson framkvæmdastjóra Senu. Íslensk tónlist sækir í sig veðrið en „... erlend sala að falla gríðarlega mikið og ástæðan fyrir því er þjófnaður“. Niðurlag „fréttarinnar“ er svo „Það er því miður þannig að nú eru heilu kynslóðirnar sem kunna ekki að nálgast tónlist nema hún sé ólögleg“.
Vissulega er niðurhal vandamál. En að gera niðurhal eitt ábyrgt fyrir samdrætti á sölu á erlendi tónlist er fráleitt og að draga fram tölur um hlutfall þeirra sem voru og eru ADSL-tengdir er spaugilegt.
Samdráttur í sölu á erlendri tónlist er margþættur. Fyrst má nefna að „Gæði“ tónlistinnar eru ekki þau sömu og þau voru og má það rekja til „græðgi“ útgefenda sem eltast við skyndagróða frekar en að gefa tónlisarmönnum tíma til að þróast og finna sinn „tón“ líkt og finna má dæmi um í poppsögunni. Þar má nefna Bruce Springsteen til sögunnar. Fyrstu 2 plöturnar voru ekki upp á marga fiska og það var ekki fyrr en á þriðju plötu sem hann springur út og blómstrar. Plötur hans hafa síðan haldið áfram að seljast löngu eftir að þær koma fyrst út. Þetta kallast á fagmáli að búa til „back catalog“ en fæstir af þeim tónlistarmönnum sem hljómplötuútgefendur hafa verið að fóstra undanfarna tvo áratugi geta státað af því að hafa byggt upp “back catalog“sem er einhvers virði.
Í öðru lagi má nefna verð. Útgefendur hafa skotið sig í fótinn við háls að verðleggja tónlist úr öllum takti við þann kostnað sem hlýst af framleiðslu og þetta er búið að leggja þung lóð á þá vogarskál sem hefur fælt fólk frá því að kaupa tónlist. Þá hafa þeir sem flytja inn tónlist sýnt ótrúlega „takta“ í verðlagingu. Ég man eftir því að hafa spurst fyrir um það hjáSenu hvers vegna plata sem var seld í útgáfulandinu sem „mid price“ væri seld á verði tvöfaldrar plötu á Íslandi og svarið sem ég fékk var á þá veru að það væri verið að „hífa upp álagninguna“.
Það hefur ekki hjálpað sölu á erlendri tónlist að vöruúrval hennar hefur verið mjög takmarkað. Þegar neytandinn gengur inn í plötubúð og finnur ekki það sem hann leitar að gerist eitt af tvennu: Hann finnur vöruna annarstaðar, í netverslun, eða þá hleður henni niður ólöglega.
Í þriðja lagi skal nefna netverslun. Er hún með í þessum innfluttingstölum? Líklega ekki fyrst það er ekki minnst á hana í „fréttinni“. En ég þori að hengja mig upp á að hún hefur aukist a.m.k. til samræmis við fall í sölutölum hjá Senu. Það má líka í framhaldi af þessu spyrja hver sé hin raunverulegi innflytjandi á tónlist á Íslandi? Ég ætla að fullyrða að það sé ekki hljómplötuinnflytjendur eins og þeir kalla sig heldur almenningur. Fólk sem ekki reynir lengur að finna það sem það hefur áhuga á í Íslenskri plötubúð vegna þess að þar er því er ekki sinnt.
Ásamt lélegu vöruúrvali þá hefur það ekki hjálpað hljómplötusölu að boðið hefur verið upp á lélega þjónustu í Íslenskum plötubúðum og þeir sem hafa heimsótt plötubúiðir reglulega geta allir sagt sögur af illa upplýstu starfsfólki sem hefur átt það eitt sem haldreipi að finnist það ekki í tölvunni finnist það alls ekki. Svo ekki sé talað um flokkun, en í mörg ár fylgdist ég með ,,Stranglers”(rokk)plötunni The ,,Gospel According to the Men in Black” í Gospel rekkanum. Engin furða að sá sem leitaði að henni finndi hana ekki og ekki seldist hún þarna. Þrátt fyrir nokkar ábendingar fékk platan að sitja þarna óáreitt fyrir áhugasömu og vel upplýstu starfsfólki.
Það er búið að vera ákaflega niðurdrepandi að vera neytandi á erlenda tónlist á Íslandi undanfarna tvo áratugi. Þrátt fyrir að vera búinn að vera ADSL tengdur frá 2001 þá hefur undirritaður aldrei hlaðið niður tónlist. Hann hefur spilað tónlist sem var hlaðið niður ólöglega en í öllum tilfellum hefur óþvolinmæði ráðið för – tónlistin var ekki komin til landsins á löglegu formi en spennan fyrir því að heyra var öllu öðru sterkara.
Þá veltir „fréttin“ því upp að Íslensk tónlist seljist vel. Ég held reyndar að hún hafi aldrei selst eins vel enda er rekinn mikill áróður fyrir henni í fjölmiðlum með slagorðum á borð við „fyrst og fremst í Íslenskri tónlist“. Er hér ekki verið að stilla þeirri íslensku upp á móti þeirri erlendu, í stað þess að sjá þetta sem einn pott?
Það er rétt að tónlistarmenn þurfi að fá greitt fyrir sína vinnu rétt eins og allir aðrir. En mig langar til að benda á að á undaförnum árum hafa ungir tónlistarmenn í síauknum mæli komið fram á sjónarsviðið og sagt að núna sé ekkert mál að taka upp tónlist heima hjá sér og dreifa henni svo á netinu. Er þetta sami hópurinn og vill svo fá greitt fyrir sína vinnu eða eru til tveir eða fleiri hópar?
Í fjórða lagi má nefna umbúðir. Þær selja. Því eigulegri sem hljómdiskurinn er því líklegri er hann til þess að selja. Þetta hafa erlendu plötuútgáfunar áttið sig á og við erum hægt og rólega að sjá þá finna þolmörkin hjá kaupendum, en nýjasta endurútgáfan á David Bowie plötunni ,,Station to Station” slær öll fyrri met. Þar er platan endurútgefin sem 3 LP plötur –4 geisladiskar og 2 DVD diskar ásamt ýmsu öðru dóti. Mér er ekki ljóst hvaða stefna ræður ríkjum hjá þeim sem flytja inn erlenda tónlist til Íslands en ég veit fyrir víst að þeir hafa ekkert gert til að benda á og kynna allar þær fjömörgu og flottu útgáfur sem hafa verið að koma út undanfarin ár og ég veit að ættu erindi til fólks sem hreinlega veit ekki af þeim.
Gunnar kallaði eftir aðkomu ríkisins í „fréttinni“ . Í því sambandi langar mig til aðrifja upp herferð sem var í gangi um miðjan áttunda áratuginn - „Home Taping Is Killing Music“. Þessi herferð kallaði eftir því að fólk hætti að taka upp tónlist á kassettur (man einhver eftir þeim?) enda væri slíkt að kæfa smásölu. Þetta hafði þau áhrif hér að ríkið kom að borðinu með því að leggja skatt á kassettur, og í dag óskrifaða geisladiska, sem rennur hvert? Jú, til hljómplötuframleiðenda. Þegar við kaupum óskrifaðan geisladisk í dag sem við síðan notum til að setja ljósmyndirnar okkar á, borgum við skatt til hljómplötuframleiðenda! Hvers vegna? Er Gunnar að kalla eftir einhverju slíku?
Að lokum. Hvers vegna ætti niðurhal að koma frekar niður á tónlist en t.d. bíómyndum. Þegar myndbandið ruddi sér braut þá var því spáð að kvikmyndahús ættu skammt eftir ólifað. Hvað hefur gerst? Í dag er okkur seld sama bíómyndin 4 sinnum. Fyrst kemur hún í bíó – svo á leiguna og svo til sölu á mynddisk og að lokum getum við keypt tölvuleikinn. Hljómplötuiðnaðurinn skaut sig líklega til ólífs þegar hann fór í vörn gegn sinni eigin sköpun; geisladisknum og stafrænum upplýsingum. Í stað þess að leyfa sölu á einstaka lagi og eða heilu plötunum í verslunum hefur markaðurinn gert það sem honum finnst auðveldara –valið aðra leið.
P.s.
Gunnar og Birgir ættu kannski að kynna sér þetta umhverfi allt betur og til að hjálpa vil ég benda þeim á ágætan lestur á bókinni Last Shop Standing eftir Graham Jones.
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 01:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (33)



sigurjonth
siggith
hallarut
rannveigh
skulablogg
fiski
gudruntora
asgerdurjona
zeriaph
jevbmaack
lehamzdr
ffreykjavik
fuf
xfakureyri
jonmagnusson
palmig
jonaa
jakobsmagg
ktomm
th
jenfo
anno
gurrihar
kiddirokk
hlynurh
skessa
prakkarinn
raudka
maggadora
skinkuorgel
agustolafur
einherji
heidathord
atlifannar
konukind
gudnim
730
blekpenni
heida
vglilja
sleggjan007
markusth
sigrunb
aevark
rannthor
katrinsnaeholm
birgitta
fararstjorinn
agny
ippa
hugrunj
aring
majasolla
gujo
drhook
runarsv
sjos
doriborg
haukurn
gammon
millarnir
joninasolborg
korntop
killjoker
vantru
evathor
partners
meistarinn
heidistrand
iaprag
semaspeaks
svei
jonthorolafsson
sverrir
bonham
bjarnihardar
sigurgeirorri
birnamjoll
veraknuts
plotubudin
ringarinn
nonninn
larahanna
juliusvalsson
skari60
ingvarvalgeirs
kolgrimur
olinathorv
hreinsi
baddinn
jenni-1001
handsprengja
ahi
gudrunmagnea
ommi
hemba
bryndisr
bergthora
grafarholt
mummigud
athena
sigaxel
bjolli
gummiarnar
kerchner
rustikus
thegirl
birna-dis
siggivalur
krizziuz
fridaeyland
evabenz
quackmore
andres08
bleikaeldingin
snorris
ver-mordingjar
nexa
thorasig
lindalinnet
gudni-is
mordingjautvarpid
arh
sinfonian
raggipalli
lovelikeblood
holi
jakobk
rannveigbj
stebbifr
credo
herdis
halo
gullilitli
810
motta
leifurl
janus
lemon
ljonid
kerla
solir
nilli
skagstrendingur
hemmi
gunnar
hannamar
flosi
mosi
geislinn
hlekkur
luther
zumann
jara
hector
malacai
polly82
hughrif
einarlee
loopman
sign
destiny
gilsneggerz
thuridurbjorg
liljabolla
svatli
siggiholmar
folkerfifl
sigurjonsigurdsson
eythora
obama
kiddijoi
kjartanis
rosagreta
kristjon
gthg
gebbo
laugatun
tru
siggileelewis
helgamagg
doddilitli
oliha
kjarrip
steinibriem
huldumenn
jobbisig
id
mp3
blomid
ketilas08
lilly
hjolaferd
skordalsbrynja
birtabeib
karitryggva
marzibil
zunzilla
fjola
rannug
glamor
venus
eurovision
skjolid
minna
austurlandaegill
coke
eyja-vala
harpao
rassgat
ljosmyndarinn
doriegils
lordbastard
neddi
holmarinn
vga
bus
dolli-dropi
vefritid
eirikurgudmundsson
hallibjarna
blues
huxa
judas
asdisran
skattborgari
himmalingur
neytendatalsmadur
kje
laufabraud
vestskafttenor
gunnarggg
esb
hreinn23
saltogpipar
hergeirsson
jea
arniarna
metal
hreinsamviska
godinn
krissa1
robertb
perlaoghvolparnir
regin
brandurj
madddy
tibet
minkurinn
hallidori
liso
graceperla
mrsblues
gummiogragga
sisvet
vild
helgadora
xjonsig
helgananna
meyjan
tungirtankar
visindavaka
mal214
vilberg
brandarar
einarhardarson
adhdblogg
gotusmidjan
saemi7
sterlends
jgfreemaninternational
aloevera
lucas
olibjossi
bestfyrir
helgigunnars
gleymmerei
leifur
ace
diesel
methusalem
astroblog
lynx013
eask
kikka
doddyjones
sigurjon
disdis
valdinn
ragnar73
cigar
parker
manisvans
kerubi
mis
gisgis
finni
tbs
topplistinn
rognvaldurthor
pjeturstefans
gullfoss
pallblondal
thjodarsalin
freyrholm
olii
gattin
olafiaherborg
rallysport
sur
sigrunzanz
rafng
hrannsa
draumur
asdisomar
launafolk
bjarnimax
urval3bjorn
westurfari
braskarinn
emilhannes
gudjul
gp
vgblogg
morgunblogg
rattati
stjornmalaflokkur
fun
johannesthor
x-d
krissiblo
larusg
lifsyn
loftslag
ludvikludviksson
margretsverris
riddaralidid
skari
roslin
runarf
sigridursig
siggifannar
stjornlagathing
steinki
svanurg
spurs
valdimarjohannesson
totibald