Ódýrasti skemmtikraftur landsins

  Ég reyni eftir fremsta megni að missa ekki af útvarpsþætti Sverris Stormskers og Halldórs Einarssonar á Útvarpi Sögu.  Hann er á dagskrá á milli klukkan 16:00 til 18:00 á miðvikudögum.  Þeir félagarnir eru bráðfyndnir og eiga létt með að koma viðmælendum sínum í góðan gír.  Í dag ræddu þeir við Gurrí Har og Árna Johnsen.  Þau eru reyndar jafnan í góða gírnum og voru það einnig í spjallinu í dag.

  Í spjallinu við Árna kom fram að hann hefur í áranna rás komið um 3000 sinnum fram sem skemmtikraftur.  Það kom mér ekki á óvart því að ég hef sennilega séð hann syngja og spila á Þjóðhátíð í Eyjum,  Færeyskum dögum í Ólafsvík og víðar að minnsta kosti 5 - 10 sinnum.  En það sem kom mér á óvart er að Árni tekur aldrei krónu fyrir að skemmta með leik og söng.  Ef um mikinn útlagðan kostnað er að ræða þá lætur Árni skemmtanahaldarann afgreiða hann.  En sjálfur rukkar Árni ekki neitt fyrir sitt framlag.

  Þetta eru góðar fréttir fyrir blanka skemmtanahaldara.  Fólk er að nurla saman 200 þúsund kalli fyrir hinn og þennan söngvarann til að syngja við brúðkaup,  jarðarfarir eða í fermingarveislum.  En svo er hægt að fá Árna Johnsen syngja alveg ókeypis um Þykkvabæjarkartöflur og Gölla Valdason.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þó það nú væri að Árni Johnsen færi ekki að rukka fólk fyrir að þurfa að hlusta á hann! Frekar ætti það að vera á hinn veginn, að hann borgaði fyrir að fá að koma fram og kvelja fólk með ósköpunum! 

Geturðu ekki notað sambönd þín á Útvarpi Sögu og hvatt þau til að setja dagskrána á netið fyrir okkur sem höfum ekki tök á að hlusta á daginn?

Lára Hanna Einarsdóttir, 13.2.2008 kl. 20:14

2 Smámynd: Jens Guð

  Þau fylgjast með blogginu mínu á ÚS þannig að þau sjá þessa athugasemd þína.  Ég tek undir það að gaman væri að geta hlustað á eldri þætti stöðvarinnar á netinu.  Þættir vikunnar eru spilaðir um helgar.  Ég veit aldrei hvenær hvaða þáttur er endurspilaður en næ flestum þeirra áhugaverðustu um helgar.

Jens Guð, 13.2.2008 kl. 20:22

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

pant fá Jónseninn til að syngja yfir mér þegar ég verð jarðaður, eins og Þykkvabæjarkartafla

Brjánn Guðjónsson, 13.2.2008 kl. 20:24

4 identicon

Hann Jens Guð,er alveg ágætur skemmtikraftur,nú óskast örsaga frá þér góurinn.

Númi (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 20:40

5 identicon

Það væri nær að borga kallinum fyrir að koma ekki fram! Kanski að Þjóðleikhúsið gæti þar reddað einhverju klinki.

viðar (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 20:42

6 Smámynd: Mummi Guð

Eina sem ég vil heyra Árna syngja, er hans síðasta!

Úpps. þetta var dáliítið ljótt.

Mummi Guð, 13.2.2008 kl. 20:48

7 Smámynd: Jens Guð

  Brjánn,  bókaðu kallinn sem fyrst.  Hann er vísast eftirsóttur eftir þessar upplýsingar.

  Númi,  ég hendi inn sögu þegar kvöldverkum mínum er lokið.

  Viðar,  hugmyndin er góð.  Í fyrra bloggaði ég um "böskara" (götuspilara) sem kann bara eitt lag.  Það lag spilaði hann alltaf á sama stað á verslunargötu.  Starfsfólki verslana þar í grennd fékk ofnæmi fyrir laginu og borgar gaurnum daglega pening fyrir að spila ekki.

  Mummi,  já,  dálítið ljótt.

Jens Guð, 13.2.2008 kl. 21:04

8 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

fyrir alla aðdáendur harmonikkupönks, er ÁJ eðal og aðal

Brjánn Guðjónsson, 13.2.2008 kl. 21:14

9 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Haha, mikið glens að ég segi nú ekki gráglettni hér á bæ sem oft áður!

En aag Jens, 200000 fyrir söngvarann einan og sér er nú heldur mikið í lagt hjá þér, veit það nú því ég og mínir bræður bárum föðurgrey okkar til grafar fyrir litlum fjórum mánuðum. Eðalmennið og þinn gamli sveitungi, Óskar Pétursson, söng fyrir okkur ásamt kórnum og ekki var þetta nú svo dýrt.

Tek svo undir með hinni frómu kvinnu Láru Hönnu, SAga hætti líka að heyrast hér norðan heiða um áramótin.

Magnús Geir Guðmundsson, 13.2.2008 kl. 21:14

10 identicon

Þá er nú lögfræðin í Háskóla Íslands betri:

"Þann 13. febrúar 2007 skaut færeyskur hryðjuverkahópur, Frelsum Færeyjar, á loft flugskeyti sem gjöreyðilagði Alþingishús Íslendinga við Austurvöll. Hryðjuverkahópurinn hafði ætlað sér að beina flugskeytinu að frændum vorum Dönum en mistök urðu í útreikningum hnitgreiningarmanns hópsins, Jógvin Eysturstein, þannig að flugskeytið lenti á Alþingishúsinu. Allnokkrir Alþingismenn voru fluttir slasaðir á slysadeild og eru þrír þeirra enn í lífshættu. Mörður Hrappsson dómsmálaráðherra ..."

Steini Briem (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 21:28

11 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Þar með er þingmaðurinn enn og aftur að brjóta lög.........þrátt fyrir falska tóna

Einar Bragi Bragason., 13.2.2008 kl. 22:19

12 Smámynd: Heidi Strand

Hvis Árni tok betaling for tralleriet sitt, ville han aldri komme til å opptre. Han har jo også fått eget tv program, jeg lurer på om det var gratis også.

Heidi Strand, 14.2.2008 kl. 12:08

13 identicon

Gott að vita þetta. Það er einmitt verið að fara að jarða gamla frænku mína á mánudaginn. Fínt að hressa upp á liðið með þykkvabæjarsöngnum hans Árna Jonsen bæði í útförinni, og svo aftur sama lagið í erfðardrykkjunni.....2svar!

Siggi Lee lewis (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband