Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
17.11.2008 | 19:22
Stjórnmálafræði fyrir byrjendur
Þetta fékk ég sent og brosti. Ég hef séð mun styttri útgáfu af þessu áður. Nú hafa stjórnmálafræðingar bætt um betur. Vonandi tekst þessari samantekt að lyfta á ykkur munnvikunum. Það veitir ekki af í hræringum síðustu vikna.
KOMMÚNISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.
SÓSÍALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.
KAPITALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú, hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein.
FASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.
NASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.
SKRIFRÆÐI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra samkvæmt reglugerð, mjólkar hina samkvæmt reglugerð og hellir svo allri mjólkinni niður samkvæmt reglugerð.
SÚRREALISMI
Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið sendir þig í harmonikkunám.
ÍSLENSKA LEIÐIN
Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði. Þá þjóðnýtir ríkið allt heila klabbið. Engar eignir finnast fyrir skuldum.
BANDARÍSKA LEIÐIN
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.
FRANSKA LEIÐIN
Þú átt 2 kýr.
Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár kýr.
JAPANSKA LEIÐIN
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, Kúmann, sem nær miklum vinsældum um allan heim.
ÞÝSKA LEIÐIN
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar.
ÍTALSKA LEIÐIN
Þú átt 2 kýr.
Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að borða spagettí.
RÚSSNESKA LEIÐIN
Þú átt 2 kýr.
Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr.
Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr.
Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr.
Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.
SVISSNESKA LEIÐIN
Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun.
Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.
KÍNVERSKA LEIÐIN
Þú átt 2 kýr.
Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá því að þetta sé ekki rétt.
INDVERSKA LEIÐIN
Þú átt tvær kýr.
Þú tilbiður þær.
BRESKA LEIÐIN
Þú átt tvær kýr.
Báðar eru með gin-og klaufaveiki
ÁSTRALSKA LEIÐIN
Þú átt 2 kýr.
Bissnessinn gengur vel.
Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.
NÝ-SJÁLENSKA LEIÐIN
Þú átt tvær kýr.
Sú til vinstri er asskoti löguleg.
ÍRASKA LEIÐIN
Allir virðast eiga fjölda kúa.
Þú segir öllum að þú eigir enga.
Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið.
Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó a.m.k. í lýðræðisríki núna...
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
16.11.2008 | 23:19
Áhugaverð bók á sértilboði fyrir lesendur þessa bloggs
Vilhjálmur frændi minn Hjálmarsson frá Brekku í Mjóafirði var að senda frá sér bókina Gullstokkur gamlingjans. Það er hans 19. bók og kappinn kominn á 95. aldursár. En ern eins og unglingur. Á árum áður, á meðan ég var í auglýsingabransanum, hannaði ég bókakápur fyrir bækur hans og sá um markaðssetningu á þeim. Að sjálfsögðu urðu þær bækur vinsælar. Enda Villi lipur penni sem segir skemmtilega frá í léttum dúr og fróður með afbrigðum. Í einni bókinni, Mjófirðingasögur, gerði Villi honum Jens Kristjáni Ísfeld, afa mínum, og hans fólki, mömmu, Fjólu Ísfeld og fleirum góð skil.
Margir kannast við Villa frá því að hann var menntamálaráðherra. Vinsæll og vel liðinn af öllum hvar í flokk sem menn stóðu.
Bókin kostar 4780 krónur en Bókaútgáfan Hólar býður ættingjum mínum og lesendum þessa bloggs hana á 3600 krónur.
Í bókinni rifjar Vilhjálmur á sinn einstæða hátt upp bernsku- og uppvaxtarár í Mjóafirði og bregður upp skemmtilegri mynd af samferðafólki. Slyngum sláttumönnum og hressum kaupakonum. Fólki sem talaði tæpitungulaust.
Pantanir berist með tölvupósti á netfang mitt annaeiriks@simnet.is
Upplýsingar sem þurfa að fylgja eru eftirfarandi.
NAFN
HEIMILISFANG
KENNITALA
KORTANÚMER OG GILDISTÍMI
Þeir sem ekki nota kreditkort geta greitt fyrir bókina með gíróseðli. Einnig er hægt að hringja í Önnu eftir klukkan 18.00 í síma 695-4983.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.11.2008 | 20:29
Stórmerkileg frétt sem á erindi til allra
Eftirfarandi frétt fékk ég senda áðan. Hún birtist í nýjasta tölublaði héraðsfréttablaðsins Austurgluggans. Þó fréttin fjalli fyrst og fremst um kaup rússnesks olíufyrirtækis á jörðum í Reyðarfirði þá á hún brýnt erindi til allra landsmanna því þetta virðist aðeins vera upphaf á þróun sem mun hafa mikil áhrif á íslenskt samfélag í heild.
-------
Vilja kaupa Reyðarfjörð |
Skrifað af Einar Ben Þorsteinsson | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
13.11.2008 | 23:12
Ég spyr og Rannveig svarar
Rannveig Höskuldsdóttir, flokkssystir mín í Frjálslynda flokknum og á sæti í kjördæmafélagi Reykjavíkur suður (en ég í norður), bryddaði í gær upp á nýjum fleti á blogginu: Hún lagði fyrir mig spurningu í bloggfærslu hjá sér og ég svaraði í sömu bloggfærslu. Þetta kom af stað fjörlegri umræðu (www.rannveigh.blog.is) sem rataði inni í "Heitar umræður" á blogginu. Núna lagði ég fyrir Rannveigu spurningar sem hún svarar hér. Mínar spurningar eru:
Hvaða tilgangi þjónar rándýrt loftrýmiseftirlit í nokkra daga á margra mánaða fresti? Hver er óvinurinn? Hver er hættan? Eftir að bresk yfirvöld hafa skilgreint okkur sem óvin og sett á bekk með hryðjuverkasamtökum hversu nálægt landráði jaðrar við að leggja landvarnir okkar í hendur breskum hersveitum?
Svar Rannveigar:
Ég held að enginn sjái tilgang í nokkurra daga loftrýmiseftirliti á margra mánaðar fresti nema til að uppfylla einhverjar Nato skyldur. Við þessar aðstæður er það bæði siðlaust og til að vekja enn meiri reiði almennings.
Auðvita eru alltaf til snaróðir menn úti í heimi sem gera óskunda í sögulegu samhengi. Ég nefni t.d. son Margretar Thatcher sem reyndi valdarán í Cinea- Bissa sem er smáríki í Afríku. Eftir að Bretar settu okkur á bekk með hryðjuverkasamtökum sé ég enga skynsemi í því að þeir séu að verja okkur - nema fyrir okkur sjálfum. Þetta snýst upp í einhverskonar andhverfu. Erum við ekki hryðjuverkapakkið, samkvæmt skilgreiningu Breta? Þjóðin er reið og finnst þetta lítilsvirðing sem utanríkisráðherra býður upp á núna. Við verðum að muna að þarf ekki nema heimskan yfirmann í breska hernum til að breyta loftvarnareftirliti í innrás.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.11.2008 kl. 00:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
10.11.2008 | 14:39
Ný spjallsíða - og burt með spillingarliðið!
Vegna hruns íslensku krónunnar og fjármálakreppunnar hafa margir fundið þörf fyrir að tjá sig um atburði síðustu vikna og spá í framvindu komandi daga. Bloggaranum Guðna Karli Harðarsyni þykir bloggsíður bera þess merki að vera einkasíður fyrir einstaklinga sem eru fyrst og fremst að ræða málin við vini sína og vandamenn. Guðni er hrifinn af blogginu en langar til að opna umræðuna út á opnari spjallvettvang þar sem allir koma að umræðunni á jafnréttisgrundvelli.
Guðni hefur sett upp spjallborð (Forum) - http://okkarisland.myfreeforum.org - sem er ekki jafn persónubundið og bloggið. Þar getur hver sem er skrifað beint inn og einnig tekið þátt í virku spjalli á rauntíma (chat). Öllum er velkomið að koma með óskir um aðra umræðuflokka. Netfang Guðna er gudni@simnet.is. Bloggsíða Guðna er www.hreinn23.blog.is.
![]() |
Enn vantar 5 milljarða Bandaríkjadala |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
4.11.2008 | 16:15
Hagfræði fyrir byrjendur
Í þorpi einu birtist maður og kvaðst vilja kaupa apa af þorpsbúum á 1000 krónur stykkið. Þar sem mikið var um apa í nágrenni þorpsins fóru þorpsbúar að veiða apana og selja manninum þá. Maðurinn keypti þúsundir apa af þorpsbúum á 1000 krónur. Þegar framboðið fór að minnka bauðst maðurinn til að borga 2000 krónur fyrir apann. Aftur jókst framboðið um tíma, en síðan minnkaði það enn frekar og hætti loks alveg þar sem erfiðara var fyrir þorpsbúa að finna fleiri apa til að selja.
Maðurinn tilkynnti þá að hann mundi borga 5000 krónur fyrir hvern apa sem hann fengi, en hann þyrfti að skreppa frá í smá tíma og aðstoðarmaður hans mundi sjá um kaupin á meðan. Eftir að maðurinn var farinn hóaði aðstoðarmaðurinn þorpsbúum saman og bauðst til að selja þeim apana, sem voru geymdir í búrum, á 3500 krónur stykkið. Fólkið gæti svo - þegar maðurinn kæmi aftur - selt honum apana á 5000 krónur. Þorpsbúar söfnuðu saman öllu sínu sparifé og keyptu apana af aðstoðarmanninum. Síðan hefur ekkert spurst til mannsins eða aðstoðarmannsins.
Ofangreinda sögu fékk ég senda áðan. Eftir að hafa lesið hana skildi ég allt í einu betur íslenska bankakerfið og hlutabréfamarkaðinn.
![]() |
Þurfa ekki að greiða fyrir hluti í Kaupþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.10.2008 | 18:10
Skúbb! Nýr stjórnmálaflokkur
Síðar í vikunni verður send út fréttatilkynning frá aðstandendum nýs íslensks stjórnmálaflokks, Framfaraflokksins. Helsta baráttumál Framfaraflokksins verður að koma á persónubundnum kosningum til alþingis. Sá sem fer fyrir hópnum er stendur að Framfaraflokknum heitir Haukur Haraldsson.
Haukur varð fyrst þjóðþekktur er hann gerði út Pan-hópinn á níunda áratugnum. Pan-hópurinn fór eins og stormsveipur um landið, sýndi hjálpartæki ástarlífsins ásamt efnislitlum undirfatnaði og bauð upp á leðjuslag. Pan-hópurinn var sá fyrsti sinnar tegundar hérlendis. Hann vakti gífurlega athygli og umtal. Fyrir Hauki lá einungis að benda pörum á ýmsa möguleika til að krydda ástarlífið aðra en leita í framhjáhald. Þetta var aðferð Hauks til að sporna gegn útbreiðslu HIV veirunnar.
Haukur leitaði jafnframt aðstoðar guðs við þetta baráttumál sitt. Til að ná betra sambandi við drottinn fór Haukur í biblíuskóla í Noregi. Síðan hefur samband Hauks og drottins verið mun skilvirkara. Útskrifaður úr biblíuskólanum settist Haukur að á Tælandi um nokkurra ára skeið til að kynna sér málefni þriðja heimsins.
Næst komst Haukur í fréttir er hann undirbjó forsetaframboð sitt á tíunda áratugnum. Framboð hans til forseta var komið vel á skrið þegar Ástþór Magnússon kom til sögunnar. Fylgismenn Hauks mátu stöðuna þá þannig að með framboði Ástþórs væri skrípaleik hleypt í kosningabaráttuna. Vegna þess hætti Haukur við forsetaframboð sitt. Það dæmi hefur samt ekki verið slegið endanlega út af borðinu. Haukur er rétt um fimmtugt og stutt í að Ólafur Ragnar láti af embætti.
Fyrir tveimur árum bauð Haukur sig fram gegn sitjandi formanni Framsóknarflokksins, Jóni Sigurðssyni. Baráttumál Hauks var að uppræta spillinguna í Framsóknarflokknum. Framsóknarmenn vildu viðhalda spillingunni og Jón hélt velli. - Í stuttan tíma vel að merkja.
Framfaraflokkurinn er að setja upp heimasíðuna www.fff.is. Hún er langt í frá fullkláruð. Þar verður hægt að fylgjast með gangi mála.
Til að fyrirbyggja misskilning skal tekið fram að ég er á engan hátt tengdur Framfaraflokknum og er ekkert á leið úr Frjálslynda flokknum. Ég er bara að "skúbba".
![]() |
Alþingi niðurlægt af ráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.10.2008 kl. 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
26.10.2008 | 17:02
Auðmaður staðinn að verki
Íslenskir auðmenn eru óðum að taka upp nýjan lífsstíl, hver á fætur öðrum. Þeir eru hættir að fljúga í þyrlu í Bauluna eftir pylsu með öllu nema hráum lauk. Einkaþoturnar hafa þagnað á Reykjavíkurflugvelli. Elton John og 50 Cent sjást ekki lengur í íslenskum afmælisveislum. Kókaín sést varla á borðum lengur. Þess í stað pukrast menn með amfetamín bak við luktar dyr og tíma ekki að bjóða með sér. Gamla íslenska gestrisnin hefur horfið eins og dögg fyrir sólu.
Íslenski auðmaðurinn á myndinni hér að ofan átti sérhannaðan silfraðan BMW sportbíl með aukavasa. Í síðustu viku seldi hann bílinn og þurfti að borga 800 þúsund kall með honum. Erlenda myntkörfulánið sem hvílir á bílnum var að sliga kappann. Kauði leynir nágrönnum sínum hvernig komið er með því að líma ljósmynd af bílnum framan á bílskúrshurðina hjá sér.
Konan á myndinni hér fyrir neðan var einn umsvifamesti svínabóndi landsins fyrir nokkrum dögum. Núna hafa nokkrir bankar - aðallega Nýi Landsbankinn, Nýi Glitnir og Nýja Kaupþing - hirt af henni öll svínin upp í skuldir. Konan leynir nágranna sína þessu. Ef vel er að gáð má sjá að svínin á túninu hjá henni í dag eru plat. Þetta eru máluð spýtusvín. Dáldið svínslegt. En nágrannarnir fatta ekki neitt. Það skiptir máli.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
24.10.2008 | 22:10
Sparnaðarráð fyrir eldri borgara í kreppunni
Ógift par um sjötugt fór til læknis. Læknirinn spurði hvað hann gæti gert fyrir parið. Maðurinn svaraði: "Ég þarf að biðja þig um að fylgjast með okkur hafa kynmök og segja hvað þarf að lagfæra." Lækninum brá í brún en samykkti. Þegar parið hafði lokið sér af sagði læknirinn: "Það er ekkert að kynlífinu hjá ykkur, en ég verð að rukka ykkur um 4000 krónur fyrir skoðunina." Þetta endurtók sig margar vikur í röð. Parið pantaði tíma, stundaði kynlíf , borgaði lækninum og fór. Lækninum var nokkuð sama um þetta sérkennilega athæfi því parið borgaði honum skilvíslega 4000 krónur í hvert skipti. Að lokum náði forvitnin þó yfirhöndinni og læknirinn spurð: "Hverju eruð þið eiginlega að reyna að komast að?": Gamli maðurinn svaraði: "Konan er gift og við getum ekki farið heim til hennar. Ég er kvæntur og við getum ekki farið heim til mín. Það kostar 8000 kall að taka hótelherbergi á leigu. Hér þurfum við á hinn bóginn aðeins að borga 4000 krónur og fáum 3500 króna endurgreiðslu frá Tryggingastofnun." |
![]() |
Áfram rætt við Rússa um lán |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.3.2010 kl. 04:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
23.10.2008 | 23:27
Íslenski Nostradamus fór nærri um sannleikann - eða þannig
Það er gagn og gaman að rifja upp spámannsleg ummæli þeirra sem hafa höndlað hinn óskeikula sannleika. Eftirfarandi sagði hinn íslenski Nostradamus 2004:
"Frjálshyggjubyltingin á Íslandi er sú best heppnaða í veröldinni!"
... og gáfumennið útskýrði í fyrirlestri um mikilvægi auðkýfinga að betra sé "fyrir almenning að ríkið gefi auðmönnum sameignir þjóðarinnar endurgjaldslaust en að ríkið sýsli með þær .
Hinn mikli spekingur sem þessu hélt fram situr í bankaráði Seðlabanka Íslands og er helsti ráðgjafi Davíðs Oddssonar. Hann hefur sömuleiðis verið ötull við að telja alþjóð trú um að íslenska kvótakerfið hafi tryggt dreifðum byggðum landsins lífsafkomu. Besta fiskveiðistjórnunarkerfi heims (eða það sem sumir aðrir telja vera stærsta rán Íslandssögunnar). Sínum augum lítur hver á silfrið - eftir því hvaða gleraugu menn nota og hvað rímar við trúarbrögðin.
Davíð Oddsson varpaði hinsvegar á dögunum sprengju er skilgreindi Íslendinga umsvifalaust sem hryðjuverkamenn í Bretlandi þegar hann sagði: "Við munum ekki borga erlendar skuldir óreiðumanna. Við munum ekki borga skuldir bankanna."
![]() |
Stjórn IMF ræðir um Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.10.2008 kl. 01:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)