Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
30.12.2008 | 14:15
Maður ársins á Útvarpi Sögu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
30.12.2008 | 04:34
Ólafur F. Magnússon - maður ársins á rás 2
Á rás 2 stendur nú yfir leit að manni ársins 2008. Hlustendur hringja inn og greiða atkvæði. Gríðarlega öflug stemmning er fyrir því að Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri, verði kosinn maður ársins. Stuðningurinn við að Ólafur F. verði maður ársins er algjörlega þverpólitískur. Fólk - meira að segja hátt sett - úr öllum flokkum vill á þennan hátt þakka Ólafi F. fyrir staðfestu og seiglu við að standa vörð um flugvöllinn í Vatnsmýri. Sömuleiðis fyrir skelegga vörn hans gegn því að hin ágæta sorphirða Reykjavíkur færi í rugl.
Þeir sem kjósa Ólaf F. Magnússon mann ársins 2008 þurfa að hringja í síma 5687123. Aðrir geta hringt eitthvað annað. Til dæmis í 0001234. Eða bara eitthvað.
25.12.2008 | 14:27
Af hverju er jólakveðja Friðar 2000 skreytt merki Mercedes Benz?
Jólakveðja samtaka sem kenna sig við friðinn er ríkti árið 2000 (Peace 2000) vekur undrun. Eins og sjá má hér fyrir ofan er jólakveðjan skreytt ljósmynd af logandi kertum sem mynda merki þýsku bíltegundarinnar Mercedes Benz. Mercedes Benz bílar eru ekki friðsamir. Einn vinur minn átti Mercedes Benz. Sá bíll var stöðugt að efna til ófriðar. Hann ýtti við öðrum bílum, nuddaði sér utan í þá og var mjög ögrandi í alla staði. Að lokum brunaði hann fram af bryggju í Nauthólsvík og mölbrotnaði þar í stórgrýti. Flestum þótti það mátulegt á kvikindið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
21.12.2008 | 18:45
Krúttlegar ljósmyndir
Þessar sætu og hugljúfu ljósmyndir rifja upp þegar íslenska þjóðin tók bónusgrísinn í fóstur. Hann var munaðarlaus. Var hvorki úr ranni Kolkrabbans né SÍS. Íslenska þjóðin fóstraði bónusgrísinn frá fyrsta degi og nærði hann við brjóst sér. Hann var alltaf hreinn og strokinn. Fóstran sá um að sleikja hann daglega hátt og lágt.
Nú er bónusgrísinn orðinn fullveðja og sér um sig sjálfur. Eða þannig. Það eru engar myndir af því.
![]() |
Kalla á heildarendurskoðun á samkeppnisumhverfinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.12.2008 | 21:16
Skemmtilegar hugleiðingar
Þetta fékk ég sent og kann engin frekari deili á upprunanum. Höfundur er sagður vera Kalli. Þess vegna læðist að mér grunur um að hann heiti Karl. Þar með eru vísbendingar upptaldar. Ég dreg í efa að höfundurinn sé Karl Sigurbjörnsson biskup. Þó má það vera. En fyrsta kvæðið hljómar best sé það raulað við lagið úr Kardimommubænum, Við læðumst létt...
Við býsna mikið berumst á,
til Bretlands erum farnir.
Í Danmörku flest keyptum, já
við útrásarvíkingarnir.
Við kaupum og seljum út um allt
og græðum meira en hundraðfalt.
Svo græðum við barasta meir og meir
já við Björgólfur, Hannes og Jón Ásgeir.
Við kaupum það sem finnum falt
í flestum skúmaskotum.
Og fljúgum síðan út um allt
á nýjum einkaþotum.
Og enginn spyr okkur ekkert um,
með alla pressuna í vasanum.
Svo græðum við barasta meir og meir
já við Björgólfur, Hannes og Jón Ásgeir.
BANKAMENNIRNIR
Við digrum samning erum á,
svo endalaust við græðum.
Í sjóði landsins nú skal ná
með nýjum hagnaðarfræðum.
Og til að halda okkur gangandi
við ruplum suður á Bretlandi.
Já, það er nú meira, hvað karlinn er klár,
já við Sigurjón, Welding og Heiðar Már.
Við veiðum stundum lax með lús
og leigjum þyrlur allir.
Við byggjum okkur lúxushús
og ljúfar sumarhallir.
Og ökum um á Roverum
og partý með útlendum söngvurum.
Já við erum alls engin meðalgrein flón,
já við Heiðar Már, Welding og Sigurjón.
ÞJÓÐIN (lag: dvel ég í draumahöll úr Dýrunum í Hálsaskógi)
Dvel ég í draumaheim
og dýrka víkingana.
Sólarferðir, borga-geim...
og skíðaferðir plana.
Flatskjár, raðhús, freyðivín,
fellihýsi og sleði.
Svona líður ævi mín
í kaupæði og gleði.
DABBI (lag: Rebbavísur úr Dýrunum í Hálsaskógi)
Hér mætir Dabbi, sjá
með alvæpni ó-já.
Með stýrivexti og verðbólgu
og vaxtahækkun, vá.
Í Svörtuloftum er
og stjórna öllu hér.
Hið litla, montna Glitnis-grey
nú mætti gá að sér.
Ég kalla: "Gagg með kló í Baugsins-skinni,
þá kveð ég, þér ég næ að þessu sinni.
Þó að það kosti kannski hér
að við steytum upp á sker,
þá tek ég bara allt heila klabbið
í hafdjúpið með mér HA HA HA HA"
JÓHANNA (Kardimommubærinn, lagið hennar Soffíu frænku)
Ja fussum svei, ja fussum svei.
Mig furðar þetta rót.
Í hverju skoti skúm og ryk
og skran og rusl og dót.
Og skuldasúpa út um allt,
en eignir engar finn.
Víkingarnir flugu út
og hirtu afganginn.
Já ástandið er ansi svart,
já allt sem moldarflag.
Og kraftaverk nú þyrfti til
að koma öllu í lag.
Ég hækka bætur, hirði upp drasl
og hreinsa skítinn hér.
Já, núna loksins kom að því.
Minn tími kominn er.
ÚTRÁSARVÍKINGAR OG BANKAMENN (Hvar er húfan mín úr Kardimommubænum)
Hvar er bankinn minn?
Hvar er kaupaukinn?
Hvar er stóri feiti kaupréttarsamningurinn?
Hvar er flugrisinn?
Og hvar er Baugurinn?
Sérðu markað fyrir hlutabréfaviðskiptin?
Ég er viss um að það var hér allt í gær.
Sérðu gjaldeyri?
Sérðu markaði?
Eða síbrosandi stóráhættufjárfesti?
Sérðu þotuna?
Eða jeppana?
Sérðu fylgispöku faguryrtu þjóðina?
Ég er viss um að það var hér allt í gær.
Sérðu Illuga?
stuttbuxnastrákana?
Hvar er Bjarni Ben og menntamálaráðherra?
Hvar er Guðni minn?
og öll Samfylkingin?
Hvar er Björgvin, hvar er Solla, hver er forsetinn?
Ég er viss um að þau voru með í gær.
Já, ég er viss um að þau voru með í gær.
Höfundur: Kalli.
![]() |
Fyrrum bankastjórar koma ekki að rekstri Nýja Landsbankans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.12.2008 | 22:32
Að ritskoða sjálfa/n sig
Tjáningarfrelsi er gott fyrirbæri. Íslendingar - eins og aðrir norðurlandabúar - búa við mesta tjáningarfrelsi í heimi, samkvæmt mælingu stofnunar sem kallast Free Press. Það er gott. Verra er að stofnunin mælir ekki þá tegund ritskoðunar sem kallast sjálfsritskoðun.
Vinkona mín hefur verið að blogga hér á moggablogginu. Hún hefur tjáð sig um ýmis hitamál í þjóðfélaginu. Á vinnustað hennar hafa skoðanirnar sem hún viðrar á blogginu fallið í grýttan jarðveg. Jafnvel svo að í kjölfar sumra bloggfærslnanna hefur andað köldu til hennar.
Nú er sú staða uppi í þjóðfélaginu að allt umhverfis konuna er verið að skera niður og segja upp fólki. Hún er lent í þeirri stöðu að þurfa að ritskoða sjálfa sig til að veikja ekki stöðu sína á vinnumarkaði. Reyndar hefur hún stigið það stórt skref í ritskoðuninni að hún er hætt að blogga, komin í bloggfrí, þangað til um hægist.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
6.12.2008 | 20:22
Einn léttur
Þennan fékk ég sendan fyrir nokkru. Ég var búinn að gleyma honum þangað til ég rakst á fréttina um að hrossalæknir, Árni M. Mathiesen, væri að slá öll met í skoðanakönnun bandaríska vefblaðsins Huffington Post um versta bankamann heims. Næst verstu bankamenn heims komast hvergi með tærnar þar sem Árni hefur hælana. Það er eins gott að útlendingar komist ekki að því að Árna tókst á tveimur dögum að verða versti dómsmálaráðherra heims á sínum tíma.
Dag einn var frægasti bankamaðurinn í bílferð í stóru flottu limmósínunni sinni þegar að hann sá 2 menn við veginn bítandi gras. Hann bað bílstjórann að stoppa og steig áhyggjufullur út úr stóru flottu limmósínunni, gekk til annars mannsins og spurði af hverju þeir væru að bíta gras?
Maðurinn svaraði að það væri vegna þess að þeir ættu ekki pening til ad kaupa mat og því þyrftu þeir að gera sér gras að góðu.
Bankamaðurinn varð hissa og bauð manninum að koma með sér heim í stóra glæsihúsið. Hann skuli gefa fátæka manninum nóg að borða.
Fátæki maðurinn svaraði að hann gæti ekki komið því hann ætti konu og 2 börn og benti í átt til trés skammt frá þar sem konan og börnin voru á beit.
Bankamaðurinn sagði að auðvitað kæmu konan og börnin með. Bankamaðurinn snéri sér svo að hinum manninum og bauð honum einnig med því nóg pláss var í stóru flottu limmósínunni.
Maðurinn þakkaði fyrir sig en sagðist því miður ekki geta komið því hann ætti konu og 6 börn Bankamaðurinn bauð þeim að koma með líka.
Þegar allur hópurinn var kominn upp í stóru flottu limmósínuna og þau lögð af stað í glæsihúsið gat annar mannanna ekki á sér setið og grátklökkur þakkaði hann bankamanninum fyrir góðmennskuna: "Kæri bankamaður, þú ert mjög góður maður. Í kvöldbænum mínum skal ég biðja guð um að blessa þig á hverjum degi."
Bankamaðurinn svaraði: "Þetta er alveg sjálfsagt og allir myndu gera það sama í mínum sporum. Ykkur á eftir að líka vel heima hjá mér því garðurinn minn er stór og grasið alveg 20 cm hátt, fallega grænt og safaríkt."
----------------------------------------------------------------------------------------
"Sjáið þið ekki veisluna, drengir?" spurði Árni M. Mathiesen hæðnislega í ræðupúlti á alþingi þegar þingmenn vöktu athygli á að viðvörunarbjöllur um yfirvofandi kreppu væru farnar að hringja óþægilega hátt.
![]() |
Árni versti bankamaðurinn? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.11.2008 | 20:16
Afmælisveisla Fræbbblanna í kvöld - öllum boðið!
Hljómsveitin síspræka Fræbbblarnir fagnar þrítugsafmæli sínu með stæl á Grand Rokk í kvöld, fimmtudaginn 27. nóvember. Fræbbblarnir eru lífseigasta pönkhljómsveit landsins og var ein allra fyrsta íslenska pönkhljómsveitin. Á þrjátíu ára ferli hefur hljómsveitin sent frá sér 87 lög á plötu og efni á næstu plötu er að mestu tilbúið. Hún hefur vinnutitilinn "Puttinn".
Lög af "Puttanum" verða á dagskrá Fræbbblanna í kvöld í bland við gömlu góðu "standardana" af fyrstu plötum Fræbbblanna. Hljómleikarnir hefjast klukkan 22:00. Það er frítt inn og bjórinn verður á eldgamla genginu. Sem er vel við hæfi því Fræbbblarnir lögðu sitt af mörkum í baráttunni fyrir því að bjór væri leyfður á Íslandi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.11.2008 | 20:10
Til hamingju Ísland!
Til hamingju Ísland. Til hamingju Ísland.
Til hamingju Ísland. Til hamingju Ísland.
Til hamingju Ísland. Til hamingju Ísland.
Til hamingju Ísland.
![]() |
Efast um að Davíð eigi við sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.11.2008 | 13:19
Einn léttur
Svissneski ráðherrann svaraði: "Ja, hvað eru Íslendingar að gera með fjármálaráðherra?"
![]() |
Stofnstærð hörpudisks í lágmarki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |