Fćrsluflokkur: Tónlist

Leoncie deilir á íslensku lögguna

  leoncie

  Íslenska Madonna,  eins og indverska prinsessan Leoncie kallar sig,  er ein af ţessum gleđigjöfum sem kemur manni í gott skap viđ ţađ eitt ađ sjá mynd af henni.  Viđtöl viđ hana eru dásamlega safarík,  skemmtileg og upplýsandi.  Í viđtali viđ visir.is leiđréttir hún misskilning sem ég er viss um ađ fleiri en ég stóđu í trú um.  Ég var sannfćrđur um ađ Leoncie vćri á föstum fjárlögum frá íslenska ríkinu,  jafnvel hjá fleiri en einu ráđuneyti.  Ţessu vísar Leoncie á bug í visir.is og segir: 

Íslenska lögreglan, dómsmálarusliđ og allt ţetta ömurlega kerfi á ţađ skiliđ ađ ţví sé sturtađ niđur í klósettiđ. Lögreglan og fólkiđ í Englandi er frábćrt.  Íslenska ríkisstjórnin styđur mig ekki eins og allt ţetta fólk sem er öfundsjúkt út í mig. Sigur rós, Björk og ađrar hćfileikalausar blöđrur sem geta ekki gert neitt án stuđnings frá ríkinu."

  Ţetta verđur ađ rannsaka.  Ţarna er spilling.  Hugsanlega rasismi líka.  Ţađ er eitthvađ meira en lítiđ bogiđ viđ ţađ ađ íslenska Madonna,  indversk prinsessa,  sé sniđgengin og fjársvelt af íslensku ríkisstjórninni,  löggunni og dómsmálaráđuneytinu á međan glórulaus fjáraustur til öfundsjúkra og hćfileikalausra blađra er látinn viđgangast.  Og ţađ ţrátt fyrir ađ hćfileikalausu blöđrurnar selji plötur í milljóna upplögum og eigi nógan pening. 

  Í nýlegu hefti tímaritsins New York Entertainment er stutt en áhugaverđ grein um Leoncie er byggir ađ hluta á upplýsingum frá henni sjálfri og á ţví ađ vera nokkuđ áreiđanleg.  Ţannig er greinin:

Leoncie, Iceland’s Madonna, Makes Own Dirty Videos

Icelandic artist Leoncie has drawn comparisons to Madonna for her overt sexuality, fast-changing hairstyles, and prolific music-video output. She writes and performs all her own music and directs the rather cheesy videos, too—courting controversy with some of them (they were pulled from YouTube) because she showed her boobs. We particularly recommend the surreal “Invisible Girl,” in which she flies on a magic carpet, and “Sex Crazy Cop,” with the catchy refrain: “Ooooh, cheap sex.”


Stćrsta fréttin í Fjáreyjum í dag

 Á dögunum vakti mikla athygli í Fjáreyjum ţegar sjálfur borgarstjórinn í Reykjavík,  Ólafur F.  Magnússon, bauđ í eigin persónu lítt ţekktri fjáreyskri karókí-söngkonu,  Sölvu Ford - eđa Sólvá Ford (fjáreyskir fjölmiđlar skrifa nafniđ sitt á hvađ) - í heimsókn til Íslands. Ekki til ađ syngja í sturtu,  ţó ekki sé lagst gegn ţví,  heldur til ađ syngja á fjölsóttustu árlegri fjöldasamkomu landsins,  Menningarnótt í Reykjavík.  Gestir á Menningarnótt eru iđulega um og yfir 100.000. 

  Eđlilega ţykir Fjáreyingum ţetta vera gífurleg upphefđ og stórt tćkifćri fyrir óţekkta söngkonu úr 48 ţúsund manna samfélagi. Um fátt hefur veriđ meira talađ í eyjunum síđustu daga.

  Fréttin barst til Íslands og vakti gífurlega athygli hérlendis.  Núna er ţađ stćrsta fréttin í Fjáreyjum ađ ţetta skuli ţykja frétt á Íslandi og ađ Íslendingar nafn söngkonunnar sé á allra vörum án ţess ađ ađrir en borgarstjórinn í Reykjavík hafi heyrt hana syngja. 

  Ţađ fylgir sögunni ađ fjáreyska söngkonan ćtli ađ ţakka borgarstjóranum fyrir heiđurinn međ ţví ađ syngja fyrir hann Ylfu Lindar-slagarann "As Tears Go By".  Sú fjáreyska leggur nú dag viđ nótt ađ lćra lagiđ og  textann og ćfa sönginn. Lítill fugl hvíslađi ađ mér ađ hún hafi hug á ađ kalla borgarstjórann upp á sviđ til ađ syngja lagiđ međ sér.  Ţeir sem vilja taka undir geta lćrt lagiđ međ ţví ađ hlusta á ţađ í tónspilaranum mínum hérna viđ hliđina.
--------------------------------

Sólvá Ford vekir ans í Íslandi
30. jun 2008, 13:27
 


Sólvá Ford vekir ans í Íslandi
Mynd: Sólvá Ford og Ólafur F. Magnússen, borgarstjóri Reykjavíkar

Tađ hevur vakt ans í Íslandi, at borgarstjórin í Reykjavík hevur bođiđ Sólvu Ford at taka lut á mentanarnátt í Reykjavík. Eisini Rasmus Rasmussen ger vart viđ seg í Íslandi
Tađ er nógv frammi í íslendskum miđluym, at borgarstjórin í Reykjavík herfyri beyđ fřroysku tónlistakvinnuni at framfřra á mentanarnátt í Reykjavík í august. Borgarstjórin, Ólafur F. Magnússon, hoyrdi hana syngja, tá hann herfyri vitjađi í Tórshavn.
Heimmildarmađurin hjá Portalinum í Íslandi, Jens Guđ, sigur, at mentaranarnáttin, The Culture Night, er sera stór hending í Íslandi, og ljós verđur varpađ á tađ, iđ fer fram. Fleiri enn 110.000 fara vanliga í býin at njóta konsertir og onnur tilbođ, tá mentanarnáttin er í Reykjavík. Og knappliga er Sólvá Ford eitt navn, iđ íslendingar eru um at kennast viđ.
Guitarleikarin Rasmus Rasmussen, sum júst hevur giviđ enn eina flřgu út viđ guitartónleiki, ger eisini vart viđ seg í Íslandi. Hann spćldi um vikuskiftiđ í Hafnarhúsiđ í Reykjavík, tá felagsskapurin fyri samkynd í Íslandi, Samtřkin 78, helt sín 30 ára stovningardag. Hetta var eisini hending, sum miđlar í Íslandi gjřrdu heilt fitt burturúr, frćttist frá Jens Guđ.


Plötuumsögn

ministry 

Titill:  Cover Up

Flytjandi:  Ministry

Einkunn: **** (af 5)

  Bandaríska hljómsveitin Ministry hefur í áratugi veriđ í fararbroddi svokallađra "industrial"  ţungarokkssveita.  Ég veit ekki hvađa íslenskt orđ er best ađ nota yfir "industrial".  Ţađ er óheppilegt ađ kalla ţetta iđnađarrokk vegna ţess ađ hérlendis höfum viđ í áratugi notađ orđiđ iđnađarrokk yfir músík hljómsveita á borđ viđ Journey,  Styx, REO Speedwagon,  Boston,  Toto,  Foreigner og slíkra.  Enskumćlandi kalla músík ţeirra "arena rock",  melódískt hard rock eđa "US Faceless rock". 

  "Industrial" ţungarokkiđ er allt annađ.  Ţađ einkennist af hljóđvegg sem svipar til hávađa á iđnađarsvćđi ţar sem menn eru ađ saga,  negla,  frćsa og öđrum drunum og sargi. 
 
  Á ţessari nýjustu plötu Ministry kráka (covera) Al Jourgensen og félagar uppáhaldslögin sín.
  Stćrsta vandamáliđ viđ svona krákuplötur er ađ ţar eru tekin fyrir lög sem notiđ hafa vinsćlda vegna vel heppnađs flutnings höfundanna.  Ţegar reynt er ađ fylgja frumútgáfunni verđur útkoman sjaldnast betri en ţokkaleg karókí-útfćrsla.  Ef farin er önnur og ólíkari leiđ er hćtta á ţví ađ "sjarmi" frumútgáfunnar skili sér ekki ţví hann liggur jafnan í útsetningunni.
 
  Ministry fara bil beggja.  Al og félagar halda í flestum tilfellum tryggđ viđ frumútgáfuna en bćta viđ "industrial" sérkenni sínu. Í fyrstu lögum plötunnar ţykir mér Ministry halda sig um of viđ frumútgáfurnar:  "Under My Thumb" (Rolling Stones),  "Bang a Gang" (T. Rex.  Enskt glam-rokk dúó sem mér ţótti/ţykir afskaplega leiđinlegt.  Leiđinlegt lag og lítiđ skemmtilegra međ Ministry),  "Radar Love" (hollenska Golden Erring) og "Space Truckin´" (Deep Purple).
  Platan fer á gott skriđ međ "Black Betty" (Leadbelly).  Ţar er auđheyranlega tekiđ miđ af flottum flutningi Ram Jam á laginu (sem heyra má međal annars á plötunni "Rokkland 2007").  Nćstu lög eru líka flott:  "Mississippi Queen"  (Mountain),  "Just Got Paid" (ZZ Top),  "Roadhouse Blues"  (Doors) og "Supernaut" (Black Sabbath).
  Toppurinn eru tvö síđustu lögin:  "Lay Lady Lay" (Bob Dylan) og "What a Wonderful World" (ţekktast í flutningi Louis Armstrongs og Páls Óskars).  "Lay Lady Lay" er tekiđ af gamalli plötu međ Ministry.  Hljómurinn í ţví lagi er allur "hreinni" og "grynnri" en á öđrum lögum plötunnar.  En aldeilis frábćr flutningur. 
  "What a Wonderful World" hefst á rólegum nótum en skiptir síđan yfir í góđan og harđan rokksprett. Svipar á ţann hátt til "My Way" í flutningi Sids Vicious og Nínu Hagen og "Lily Marlene" međ Das Kapital.
 
  Verra er ađ "falin" aukalög á plötunni eru tvćr útgáfur af ţessu lagi.  Sú fyrri er rólega útgáfan.  Sú seinni er harđa rokkútgáfan.  Ţessum tveimur aukalögum er illa ofaukiđ.  Lagiđ er flott eins og ţađ er sem lokalag plötunnar. 
  Ţađ er til önnur útgáfa af plötunni sem ég á ekki.  Hún inniheldur Bítlalagiđ "She´s So Heavy",  óđ Johns Lennons til Yokoar Ono.  Ég hefđi gjarnan viljađ eiga plötuna međ ţví magnađa lagi,  einu ţví besta frá Bítlunum og ég get alveg heyrt fyrir mér ađ Ministry afgreiđi ţađ međ stćl. 
  Ministry er fyrst og fremst Al Jourgensen,  flóttamađur frá Kúbu.  Framan af var Ministry fullskipuđ hljómsveit en í áranna rás hefur flísast úr henni.  Al hefur lengi veriđ djúpt sokkinn í eiturlyfjaneyslu.  Dópiđ hefur ţó ekki svo merkt verđi komiđ niđur á músíksköpun hans.  Andúđ hans á Brúski forseta hefur sömuleiđis veitt honum mikinn innblástur á fyrr plötum Ministry. 
  Á ţessari plötu er Ministry fyrst og fremst Al í slagtogi viđ liđsmenn frćgra hljómsveita á borđ viđ Fear Factory,  Revolting Cocks,  Prong o.fl.
  Ég gef fyrri hluta plötunnar 3 stjörnur og seinni hlutanum 5 stjörnur. 

Hver er söngkonan dularfulla sem borgarstjórinn bauđ til ţátttöku á Menningarnótt?

 sólvá

  Fyrir nokkrum dögum sló fćreyska dagblađiđ Dimmalćtting (= dimmu léttir = árblik) ţví upp ađ borgarstjóri Reykjavíkur,  Ólafur F.  Magnússon,  hafi bođiđ söngkonunni Sölvu Ford ađ skemmta á Menningarnótt í Reykjavík ásamt undirleikara hennar.  Í kjölfariđ höfđu íslenskir blađamenn og útvarpsdagskrármenn samband viđ mig.  Ţeir spurđu hver fćreyska söngkonan Sölva Ford sé.

  Mér vafđist tunga um fót.  Ég kannađist ekki viđ ţetta nafni.  Samt sem áđur fylgist ég ţokkalega vel međ fćreysku músíksenunni.  Ég á allar helstu fćreyskar plötur og hef veriđ duglegur ađ sćkja fćreyskar músíkhátíđir,  allt frá Ólavsvöku og G!Festivali til Asfalt.

  Ég vatt mér í ţađ ađ rannsaka máliđ.  Heimildum mínum ber ekki saman um ţađ hvort stúlkan heitir Sölva (sem ţýđir föl eđa guggin og grá) eđa Sólvá (sem er hliđstćđa viđ íslenska nafniđ Sólveig).  Ţegar leitađ er í skriflegum heimildum skilar nafniđ Sólvá Ford fleiri niđurstöđum en Sölva Ford. 

  Sölva Ford mun hafa fyrst getiđ sér gott orđ er hún sigrađi í keppni sem kallast "Ársins söngrödd 2000".  Eins og nafniđ gefur til kynna er ţađ söngvarakeppni og ađ ég held unglingasöngvarakeppni.

  Sölva keppti í fćreysku músíktilraununum Prix Föroyar međ hljómsveitinni Tám og einnig í karókíkeppni í Ţórshöfn 2006.  Í karókíkeppninni komst hún í endanleg úrslit.  Í kjölfariđ var hún fengin til ađ sitja í 21.  manna dómnefnd sem valdi besta fćreyska lagiđ í keppni sem AME (Atlantic Music Event) stóđ fyrir.  Ţar bar lag eftir Eivöru sigur úr bítum. 

  Sölva hefur sungiđ međ ýmsum dansiballahljómsveitum.  Ein ţeirra er krákubandiđ (= "cover" lög) Ford Siesta. 

  Sölva er ekki stórt né ţekkt nafn í Fćreyjum,  eins og sést á ţví ađ nafn hennar er á reiki.  Hinsvegar er hún sögđ vera góđ söngkona međ mikla útgeislun á sviđi. 

  Borgarstjóri Reykjavíkur,  Ólafur F.  Magnússon,  er mjög áhugasamur um ađ höfuđborgin okkar sé lifandi borg međ iđandi mannlífi.  Hann hefur gengiđ framfyrir skjöldu međ ađ bjóđa borgarbúum upp á lifandi músík,  samanber hljómleika Mezzoforte í Hljómskálagarđinum á dögunum og "hljómleikum aldarinnar" međ Björk,  Sigur Rós,  Ghostdigitals og Ólöfu Arnalds í Laugardalnum núna á laugardaginn.  Ţađ er fagnađarefni ađ borgarstjórinn sé áhugasamur og vakandi fyrir ţví hvernig megi gćđa Menningarnótt Reykjavíkur sem litríkastri dagskrá.  Ţađ er ekkert kappsmál ađ dagskráin samanstandi af frćgum og ţekktum tónlistarmönnum heldur miklu fremur áhugaverđum og áheyrilegum,  eins og tekist hefur svo vel til hjá Airwaves.  Ég fagna ţví ađ borgarstjórinn skuli hafa uppgötvađ góđa fćreyska söngkonu sem hann telur eiga erindi á Menningarnótt Reykjavíkur í ágúst.  Ţađ er aldrei nóg af fćreyskum söngvurum á Íslandi.


Takiđ ţátt í spennandi skođanakönnun

  Fyrir nokkrum dögum leitađi ég álits hjá ykkur um ţađ hvađa íslenskar söngkonur séu flottastar.  Nú hef ég stillt nöfnum ţeirra helstu upp í formlega könnun hér til hliđar.  Ég hvet ykkur til ađ kjósa og gaman vćri ađ fá "komment" frá ykkur um ástćđu ţess hvernig atkvćđinu var variđ. 

  Ţegar ég tala um flottustu söngkonuna ţá er ekki átt viđ útlit heldur söngstíl og týpuna.  Ég er ekki ađ leita eftir bestu karókí söngkonunni eđa ţeirri sem hefur fagurfrćđilega bestu raddbeitingu.  Valiđ er bundiđ viđ popp- og rokksöngkonur.  Ţess vegna eru flottar vísnasöngkonur eđa óperusöngkonur ekki međ. 

  Könnunin stendur ţangađ til 500 atkvćđi hafa skilađ sér í hús - nema ef mjög mjótt verđur á efstu sćtum. 


Rasmus Rasmussen - fćreyskur Hörđur Torfa

  rasmus

  Rasmus Rasmussen er ungur fćreyskur rokkari.  Hann er einn besti gítarleikari Fćreyja.  Hann hefur sjálfstćđan og einstaklega flottan gítarstíl og hefur sem slíkur sett mark sitt á fćreyska rokktónlist.  Hann hefur spilađ međ flestum helstu ţungarokkshljómsveitum Fćreyja,  svo sem Diatribes,  Hatespeech og Makrel.

  2002 kom hann međ Makrel til Íslands og tók ţátt í Músíktilraunum.  Makrel hreppti bronsverđlaun og Rasmus var óumdeilanlega kosinn besti gítarleikarinn.

  Síđan hefur Makrel tvívegis komiđ til Íslands og spilađ á hljómleikum á Nasa og Grand Rock.  Lög međ Makrel hafa komist inn á spilunarlista rásar 2 og plöturnar ţrjár međ Makrel hafa selst ágćtlega á Íslandi.  Rasmus hefur jafnframt sent frá sér 3 sólóplötur.  Tékkiđ á ţeim á www.myspace.com/rasmusrasmussen.

  Rasmus er samkynhneigđur.  Samkynhneigđir Fćreyingar hafa jafnan flutt frá Fćreyjum og/eđa fariđ hljótt međ sína kynhneigđ.  Fordómar gagnvart samkynhneigđum eru miklir í Fćreyjum.  Stađa samkynhneigđra ţar eru svipuđ og var á Íslandi fyrir meira en 30 árum.  Viđ ţekkjum öll söguna af ţví ţegar Hörđur Torfason varđ ađ flýja land eftir ađ hafa opinberađ í tímaritsviđtali á áttunda áratugnum ađ hann vćri samkynhneigđur.

  Rasmus hefur ekki fariđ í felur međ kynhneigđ sína og ţađ hefur aldrei truflađ vinahóp hans.  Ţađ leiddi ţó til ţess ađ haustiđ 2006 var hann laminn í klessu á skemmtistađ fyrir ţađ eitt ađ vera samkynhneigđur.  Ţegar á reyndi kom í ljós ađ samkvćmt fćreyskum lögum var ekki hćgt ađ vernda hann gegn ofsóknum vegna ţess ađ ţćr voru á grundvelli kynhneigđar.

  Rasmus fékk taugaáfall og lenti inn á geđdeild.  Eflaust hjálpađi honum ađ hann var ein helsta rokkstjarna Fćreyja.  Unga fólki í Fćreyjum og rokksenan stóđ međ honum.  Íslenska alţingiskonan Rannveig Guđmundsdóttir tók mál hans upp á vettvangi Norđurlandaráđs.  Fleiri íslenskir stjórnmálamenn létu sig mál hans varđa.  Međal annars alţingiskonan Guđrún Ögmundsdóttir og Geir Haarde.

  Mál Rasmusar hlaut heimsathygli.  Dönsk sjónvarpsstöđ gerđi sérstakan ţátt um máliđ sem vakti mikla athygli og umrćđu.  Einnig var málinu gerđ skil í ţýsku og bresku sjónvarpi ásamt íslenskum sjónvarpsstöđvum.

  Ţrýstingur á fćreysk stjórnvöld var mikill.  Á fćreyska lögţinginu var boriđ fram frumvarp um ađ ekki megi ofsćkja samkynhneigđa.  Ţađ mćtti gífurlega mikilli andstöđu í Fćreyjum.  Einkum frá kristilegum prestum og talsmönnum sem töldu bráđnauđsynlegt ađ lemja homma međ Biblíunni.  Vikulegar bćnavökur voru haldnar í fćreyskum kirkjum ţar sem guđ var beđinn um ađ styđja ofsóknir gegn hommum. 

  Leikar fóru ţannig ađ fćreyska lögţingiđ samţykkti frumvarpiđ um ađ ekki megi ofsćkja homma.  Ţann dag flögguđu kirkjur Fćreyja í hálfa stöng og töluđu um svartasta dag í sögu Fćreyja. 

  Nćsta föstudag er ţrjátíu ára afmćlisfagnađur Samtakanna 78 á Íslandi í Hafnarhúsinu.  Ţar heldur Rasmus hljómleika.  Sýnum mannréttindabaráttu Fćreyinga samstöđu međ ţví ađ mćta og hlusta á flotta músík Rasmusar ţar.  Ásamt ţví ađ samfagna ađ Íslendingar eru í fararbroddi ţjóđa heims ađ láta sig engu varđa kynhneigđ fólks.  Fólk ţarf ekki ađ vera svart á hörund til ađ "digga" Bob Marley.  Fólk ţarf ekki ađ vera konur til ađ "digga" Patti Smith.  Fólk ţarf ekki ađ vera samkynhneigt til ađ "digga" Rasmus Rasmussen.    


Bestu lög Davíđs

Bowie

  Enski tónlistarmađurinn Davíđ Bowie hefur veriđ ađ í röska fjóra áratugi.  Hann hefur veriđ kallađur kamelljóniđ vegna ţess hve oft hann hefur tekiđ óvćntar stefnur í músíksköpun sinni ásamt útlitsbreytingum.  Enska músík og kvikmyndablađiđ Uncut fékk marga af helstu lagahöfundum poppsins til ađ finna út hvađa lög Davíđs eru best.  Af mörgu er ađ taka ţví eftir Davíđ liggja um ţrír tugir platna. 

  Međal ţátttakanda í ţessu vali á bestu lögum Davíđs Bowies eru liđsmenn REM,  Rolling Stones,  Massive Attack,  Foo Fighters,  Led Zeppelin,  New Order og Depeche Mode ásamt Morrisey,  Miami Steve Van Sandt,  Rufus Wainwright,  Marc Almond,  Slash,  Robert Wyatt og fleiri.

  Niđurstađan er ţessi og gaman vćri ađ heyra skođun ykkar á henni:

1   Heroes (1977)

  Sigur ţessa lags kemur ekki á óvart.  Í ţví fléttast saman á áhrifaríkan hátt endurkastandi (feedback) gítarleikur Roberts Fripps,  syndandi tölvuhljómborđsleikur Brians Enos og krátrokk (Davíđ bjó í Ţýskalandi á ţessum árum).  Ţetta magnađa lag er eftir Davíđ Bowie og Brian Eno.  Ađstćđur voru Davíđ óhagstćđar 1977.  Breska pönkbyltingin sem hófst ´76 hafđi tekiđ yfir.  Hún einkenndist m.a. af andúđ á poppstjörnum,  hetjum og leiđtogum.  Hugmyndafrćđin var Do-It-Yourself.  No More Heroes međ The Stranglers kom út á sama tíma (sept. ´77) og Heroes međ Bowie.  Ţađ var tímanna tákn ađ pönkslagarinn flaug inn á Topp 10 (8.  sćti) en Hetju-slagarinn náđi ekki einu sinni inn á Topp 20 (24. sćti).  Heroes hefur samt stađist tímans tönn međ glćsibrag og veriđ krákađur af King Crimson,  Nico,  Wallflowers og fjölda annarra.   

2   Ziggy Stardust (1972)

  Af plötunni The Rise and Fall of Ziggy Stardust and the Spiders from the Mars.  Skrítiđ nafn á plötu og framandi stemmning.  Peter Buck í bandarísku rokksveitinni REM minnist ţess hve hann hreifst ađ gítarleik Micks Ronsons í ţessu lagi og öđrum á plötunni.  Hann stakk rćkilega í stúf viđ klisjur gítarhetja ţessa tíma.   

3   Fame (1975)

  Fönkađ lokalag plötunnar Young Americans,  samiđ međ hjálp frá John Lennon.   Fyrsta lagiđ međ Bowie til ađ komast á topp bandaríska vinsćldalistans.

4   Starman (1972)

  Síđasta lagiđ sem Bowie samdi fyrir Siggy Stardust-plötuna.  Ţegar á reyndi vantađi smáskífulag til ađ kynna plötuna,  Bowie settist ţá niđur og samdi Starman.  Lagiđ náđi 10.  sćti breska vinsćldalistans.

5   Space Oddity (1969)

  Fyrsta lagiđ međ Bowie sem náđi árangri á breska vinsćldalistanum.  Náđi 5.  sćtinu.  Sex árum síđar var ţađ endurútgefiđ og fór ţá á toppinn. 

6   Ashes to Ashes (1980)

  Annađ lag Davíđs í röđinni sem náđi toppsćti breska vinsćldalistans.  Af plötunni Scary Monsters og smellpassađi inn í nýrómantísku tölvupoppbylgjuna.

7   Rebel Rebel (1974)

  Af plötunni Diamond Dogs.  Fór í 5.  sćti breska vinsćldalistans.

8   Changes (1971)

  Af plötunni Hunky Dory.  Bćđi lagiđ og platan kolféllu í sölu.  Keith Richards telur Changes vera besta lag Bowies.  Keith tekur ţó fram ađ hann sé enginn Bowie ađdáandi - ţrátt fyrir ađ ţeir hafi gengiđ í sama myndlistaskóla.  Keith segir Bowie vera lítiđ annađ en ljósmyndafyrirsćtu. 

9   Life on Mars (1971)

  Einnig af Hunky Dury og náđi betri árangri en Changes.  Fór í 3ja sćti breska vinsćldalistans.

10  Let´s Dance (1983)

  Af samnefndri plötu.  Fór á toppinn bćđi í Bandaríkjunum og Bretlandi.

11  The Jean Genie (1973)

  Af plötunni Aladdin Sane.  Náđi 2.  sćti breska vinsćldalistans,  sem var besti árangur Bowies til ţessa.  Johnny Marr,  gítarleikari The Smiths,  segir lagiđ prýđa alla kosti ţess sem í upphafi fékk hann til ađ heillast af rokki. 

12  All the Young Dudes (1974)

  Ţetta lag er einungis til í hljómleikaútgáfu međ Bowie,  á plötunni  David Live.  Hljómsveitin Mott the Hoople kom ţví hinsvegar í 3ja sćti breska vinsćldalistans.  Robert Wyatt hrífst ađ ţví hvernig Bowie hleđur spennu í viđlagiđ međ ţví ađ láta hina eiginlegu sönglínu ekki fara í gang fyrr en á 3ja hljómi.   Robert kallar viđlagiđ jafnframt einn af bestu "fótbolta-fjöldasöngs" slögurum sögunnar. 

13  Dimond Dogs (1974)

  Af samnefndri plötu.

14  John,  I´m only Dancing (1972)

  Kom út á smáskífu og vakti upp umrćđu um tvíkynhneigđ Bowies.

15  Sound & Vision (1977)

  Af plötunni Low.  2ja mín.  spilađur krátrokk-inngangur međ grípandi gítarleik og Mary Hopkin syngur bakrödd. 

16  The Man Who Sold The World (1971)

  Titillag 3ja plötu Bowies.  Nirvana krákuđu lagiđ á plötunni frábćru  MTV Unplugged in N.Y.  og héldu sig viđ útsetningu Bowies og félaga. 

17  Young Americans (1975)

  Af samnefndri plötu.

18  Rock ´N´ Roll Suicide (1972)

  Af plötunni um Ziggy Stardust.

19  Oh!  You Pretty Things (1971)

  Af plötunni Hunky Dory.

20  Letter to Hermione (1969)

  Kom fyrst út á plötunni  Man of Words/Man of Music  sem var sérútgefin í Bandaríkjunum.  Tilgangurinn var ađ koma Bowie á kort ţar.  Ţađ tókst ekki í ţeirri atrennu.  Ţremur árum síđar var lagiđ endurútgefiđ á plötunni Space Oddity.


Snilld! Eđa eitthvađ annađ?

  Bono Vox,  söngvari írsku rokksveitarinnar U2,  blandar iđulega inn í hljómleikadagskrá hljómsveitarinnar hugleiđingum um trúmál,  stríđ og friđ,  fátćkt,  hungur,  mengun og svo framvegis.  Nýveriđ voru U2 međ hljómleika í Glasgow á Skotlandi.  Á miđjum hljómleikunum stöđvađi Bono músíkina og bađ áheyrendur um algjöra ţögn.

  Bono byrjađi ađ klappa saman höndum.  Ekki hratt heldur einu sinni á nokkurra sekúnda fresti.  Í salnum ríkti algjör ţögn í langan tíma á međan Bono klappađi saman höndunum.  Loks tók Bono til máls og tilkynnti međ ţunga í röddinni:  "Í hvert sinn sem ég klappa saman höndum ţá deyr barn í Afríku."

   Mjóróma rödd framarlega í salnum kallađi reiđilega á móti međ sterkum skoskum hreim:  "Hćttu ţá ađ klappa,  óţokkinn ţinn!" 

bonopope2

Bono er lengst til vinstri á myndinni.  Ţarna er hann ađ hjálpa öldruđum rokkgeggjara og einlćgum U2-ađdáanda ađ standa á fćtur - án ţess ađ sá gamli missi súpuskálina af höfđinu.  Gamla konan í miđiđ er ekki eins ánćgđ međ Bono.  Henni ţykir Bono og U2 vera orđnir alltof poppađir og "sell out".  "Ţađ vantar alveg gredduna í ţetta hjá ykkur í dag, strákar."  fullyrti sú gamla og sá enga ástćđu til ađ snobba fyrir rokkgođinu.


Ný skođanakönnun - takiđ ţátt!

  Ég var ađ ýta úr vör nýrri skođanakönnun.  Ţar er spurt hver sé mesta,  besta og flottasta söngkona heims.  Ţegar óvefengjanleg niđurstađa liggur fyrir vind ég mér í nćstu könnun.  Ţar verđur spurt:  Hver er flottasta íslenska poppsöngkonan í dag?  Í fljótu bragđi dettur mér í hug ađ stilla ţar upp Björk,  Andreu Gylfa,  Heiđu "í Unun",  Ellen Kristjáns,  Lay Low,  Ragnheiđi Gröndal,  Röggu Gísla,  Dísu,  Ólöfu Arnalds...  Mér er áreiđanlega ađ yfirsjást einhver nöfn sem koma til greina.  Kannski á Diddú heima í ţessum flokki?   

Skemmdarverk á skođanakönnun um versta íslenska hljómsveitarnafniđ

  Ađ undanförnu hef ég haldiđ úti á bloggi mínu skođanakönnun um versta íslenska hljómsveitarnafniđ.  Ég stóđ frekar vel og heiđarlega ađ ţví.  Ég bauđ lesendum ađ tilnefna vond íslensk hljómsveitanöfn.  Um 100 nöfn voru tilnefnd.  Nćsta skref var ađ bjóđa lesendum ađ styđja tilnefningar.  Ţau nöfn sem voru studd af ţremur eđa fleirum stillti ég upp í formlega skođanakönnun.  Ţađ reyndust vera ađeins 8 nöfn.  Sjálfur stóđ ég ađ mestu til hliđar ţó ađ ég viđrađi skođun um tvö nöfn.  Annađ ţeirra hlaut ekki stuđning.

  Ég margítrekađi ađ ţetta vćri fyrst og fremst léttur samkvćmisleikur sem alls ekki ćtti ađ taka of hátíđlega.  Leik sem vćri ekki beint gegn neinum tilteknum músíkstílum eđa hljómsveitum.  Ţannig lagađ.  Bara saklaus skemmtun til ađ gera sér dagamun. 

  Gamli góđi ritstjórinn Jónas Kristjánsson,  einn af mínum uppáhaldspennum,  fór í ţann gírinn ađ taka samkvćmisleikinn full alvarlega.  Hann skrifađi á www.jonas.is:

  "Jens Guđ birtir atkvćđagreiđslur á vefsvćđi sínu. Ţar velja ţátttakendur sjálfa sig í úrtakiđ. Kosningar ţessar brjóta öll frćđileg lögmál kannana. Samt kallar Jens ţćr skođanakannanir. Hann telur sér jafnframt kleift ađ gagnrýna frćđilegar skođanakannanir. Segir nýja könnun á fylgi flokka í Reykjavík vera ómarktćka. Telur veruleikann undir niđri vera flóknari en ţann, sem mćlingin sýnir. Ţađ má ađ nokkru satt vera. En Jens mćtti ţá taka mark á ţví í sínum eigin atkvćđagreiđslum..."

  Gagnrýni Jónasar er réttmćt.  Skođanakannanaformiđ sem Moggabloggiđ býđur upp á getur aldrei falliđ undir hávísindaleg frćđi.  Tölvuhakkarar geta svindlađ í ţessum könnunum.  Ađrir geta smalađ atkvćđum međal vinnufélaga,  kunningja eđa annarra.  Ţannig mćtti áfram telja.  Ađ mögulegum skekkjumörkum frátöldum eru svona skođanakannanir einungis til gamans gerđar.  Rétt eins og ţegar hlustendur rásar 2 velja mann ársins eđa hlustendur rásar 2 og Útvarps Sögu taka daglega ţátt í skođanakönnunum á heimasíđum ţessara útvarpsstöđva.

  Listinn yfir verstu íslensku hljómsveitanöfninn tók fljótt á sig fastar skorđur í skođanakönnun minni.  Röđin breyttist ekkert frá ţví ađ atkvćđum fjölgađi úr 50 í 600. Ţađ gefur vísbendingu um ađ niđurstađan sé ekki fjarri raunveruleikanum.  Í gćr birti Fréttablađiđ niđurstöđuna:

  Versta íslenska hljómsveitarnafniđ er Eurobandiđ (um 25%),  númer 2 er Pláhnetan (um 21%) og númer 3 Hölt hóra (um 19%).

  Í kjölfar fréttar Fréttablađsins snarbreyttist stađan.  Á nokkrum mínútum bćttust viđ 800 atkvćđi.  Öll greidd Pláhnetunni.  Ţađ er ljóst ađ "hakkari" á vegum Eurobandsins breytti stöđunni.  Skyndilega var nafn Eurobandsins ekki efst á lista yfir versta íslenska hljómsveitarnafniđ heldur Pláhnetan.

  Ég verđ ađ ógilda ţessi 800 atkvćđi og birta niđurstöđuna eins og hún var áđur en svindliđ hófst..    Versta íslenska hljómsveitarnafniđ er Eurobandiđ.

  Númer 2:  Pláhnetan.

  Númer 3:  Hölt hóra

  Númer 4:  8-villt

  Númer 5:  Morđingjarnir

  Númer 6:  Lummurnar

  Númer 7:  Á móti sól

  Númer 8:  Síđan skein sól


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.