Færsluflokkur: Tónlist

Tvíburar saman í hljómsveitum

  Sem hlutfall af jarðarbúum eru tvíburar ekki margir.  Tvíburar eru heldur ekki áberandi í rokkinu.  Þó leynast þar fleiri tvíburar en halda má í fljótu bragði.  Hér eru dæmi um nokkra tvíbura sem syngja og spila saman í hljómsveit:

Múm

-  Gyða og Kristín Anna Valtýsdætur í Múm

-  Kristinn og Guðlaugur Júníussynir í Vinyl og síðar The Musik Zoo

-  Gísli og Arnþór Helgasynir.  Þeir spiluðu mikið saman á árum áður og sendu frá sér eina plötu, Í bróðerni.

-  Gunnar og Matthew Nelson í Nelson.  Þeir eru synir Rickys Nelsons (frægastur fyrir Hello Mary Lou).  Þessir ljóshærðu bláeygu Kanar eru klárlega af norrænum ættum.  En hvort þeir eiga ættir að rekja til Dalvíkur eða Bergen veit ég ekki.

the proclaimers

-  Charlie og Craig Reid í skoska dúettnum The Proclaimers

-  Kelley og Kim Deal í The Breeders

-  Simone og Amedeo Pace í Blonde Redhead 

-  Matt og Luke Goss í hinni hræðilegu bræðrahljómsveit Bros

-  Marge og Mary Ann Ganser í The Shangri-Las

-  Benji og Joel Madden í Good Charlotte

- Tegan Rain og Sara Kiersten Quin í Tegan & Sara

-  Lee and Tyler Sargent í Clap Your Hands Say Yeah

-  Glenn og Mark Robertson í Fotostat

-  James og Ben Johnston í Biffy Clyro

Gary og Ryan Jarman í The Cribs

-  Michael og Jay Aston í Gene Loves Jezebel

-  Monica og Gabriela Irimia í The Cheeky Girls

-  Chandra og Leigh Watson í The Watson Twins

  Það eru engir tvíburar í skosku hjómsveitinni The Cocteau Twins eða ensku hljómsveitinni The Thompson Twins. 


Sprenghlægilegt myndband frá sprenghlægilegri söngkonu

leoncie

  Indverska prinsessan gullfallega (ja,  gull er reyndar ekkert fallegt),  Leoncie,  eða Icy Spicy eins og hún kallar sig einnig,  var að senda frá sér myndband við lagið "Enginn þríkantur".  Að hennar sögn er myndbandið mjög hlægilegt og skartar meðal annars uppblásinni plastdúkku.

  Þó að ég hafi ekki séð myndbandið þá er ég sannfærður um að fegurðardrottningin frá Sandgerði lýgur engu um að myndbandið sé mjög hlægilegt.  Það er allt mjög hlægilegt sem að Leoncie snýr.  Maður þarf ekki annað en sjá ljósmynd af henni til að veltast um af hlátri.  Hvað þá þegar í boði er heilt myndband við eina af hennar meistaralegu tónsmíð spilaðri á vel með farinn skemmtara árgerð 1976 og sungin með hennar nefi.  Eða eins og Nóbelsskáldið sagði aðspurt um plötu Árna Johnsen:  "Það syngur hver með sínu nefi,  hrafninn og spóinn."

  Það er alltaf tilhlökkun þegar nýtt lag,  plata eða myndband kemur frá þokkadísinni snotru,  drottningu eurotrashins,  eins og Bretar kalla hana.  Hláturinn lengir lífið og kryddar tilveruna.  Í tilfelli Leoncie er kryddið sterkt og rífur í. 

  Ljósmyndin hér að ofan er af umslagi plötunnar Radio Rapist, sem Leoncie tileinkaði þáverandi útvarpsmanni,  Sigurjóni Kjartanssyni.  Leoncie hafði boðið honum í mat heim til sín í Sandgerði.  Að hennar sögn mætti hann með frygðarsverð á lofti og hefði nauðgað henni ef fleiri hefðu ekki verið með í för.    Skömmu áður hafði Geir Ólafs sýnt sömu tilburði, samkvæmt frásögn Leoncie.  Og meira að segja Jón Góði reyndi að nauðga henni fyrir allra augum í samkvæmi nokkru áður.  Að vísu höfðu allir viðstaddir einmitt blikkað augum í sömu andrá eða horft í ógáti í aðra átt þannig að enginn varð til vitnis. 


Sögufölsun

  Joan Baez og Bob Dylan

  Ég átti leið um bensínsjoppu sem heitir því bjánalega nafni Neinn (skrifað N1).  Þar lá frammi fríblað sem heitir álíka bjánalegu nafni,  eða Hann Hún.  Nei,  það fjallar ekki um "she-male" en margt annað misáhugavert.  Mér varð starsýnt á þetta blað um stund þangað til ég skyndilega greip það eldsnöggt og fór að glugga í það. 

  Þar sá ég mér til ánægju ljósmynd (tekna af Getty með skráðum höfundarrétti Nordicphotos) og grein um Bob Dylan.  Það er eitthvað sem veldur því að ég les allar greinar um Dylan,  Bítlana og Stóns. 

  Í greininni um Dylan segir:  "Það er því undarlegt til þess að hugsa að fyrsta lag hans sem náði efsta sæti á vinsældarlista í Bandaríkjunum var Knocking on Heaven´s Door sem kom út árið 1973."

  Þarna er farið rangt með á grófan hátt.   Lag Dylans Mr.  Tambourine Man raðaði sér alveg þvers og kruss í efsta sæti bandaríska vinsældalistans 1965 í flutningi The Byrds.  Hinsvegar man ég ekki betur en að þetta flotta lag,  Knocking on Heaven´s Door, hafi hæst náð í 12. sæti bandaríska vinsældalistans 1973.  Þá var ég 17 ára og fylgdist glöggt með ferli Bobs Dylans.  Mér vitanlega hefur hann aldrei sjálfur komið lagi í efsta sæti bandaríska vinsældalistans þó að breiðskífur hans hafi náð toppsætinu.

  Nú gæti einhver hártogað dæmið vegna orðalagsins "efsta sæti á vinsældalista í Bandaríkjunum" og vísað til einhverra annarra vinsældalista í Bandaríkjunum en hins eina sanna opinbera almenna vinsældalista.  En það stenst ekki heldur.  Like a Rolling Stone með Dylan náði 2.  sæti bandaríska vinsældalistans 1965 og toppsæti ýmissa annarra sértækari vinsældalista í Bandaríkjunum. 

  Að öðru leyti er greinin í Hann Hún um Bob Dylan ljómandi góð,  sem og plötudómar á sömu síðu og kannski eitthvað á öðrum síðum (ég nennti ekki að lesa þær).


Bestu hljómsveitir Bubba

  Á dögunum stóð ég fyrir skoðanakönnun um viðhorf til hljómsveita Bubba Morthens.  Valið stóð á milli helstu afgerandi hljómsveita hans.  Þeim minna þekktu sleppti ég (svo sem Gúanóbandinu og Mögulegu óverdósi).  Spurt var:  Hver var/er besta hljómsveit Bubba?  Niðurstaðan varð þessi:

utangarðsmenn

1.  Utangarðsmenn 42,8%

  Það kemur ekki á óvart að Utangarðsmenn hreppi toppsætið.  Þetta var hljómsveitin sem kom Bubba-æðinu af stað 1980 og breytti landslagi íslenskrar rokkmúsíkur til frambúðar.  Sprengdi poppmarkaðinn upp með látum og kom af stað rokkvakningu sem náði hámarki í kvikmyndinni Rokk í Reykjavík

egó

2.  Egó 29,1%

  Ég reiknaði með að mjórra yrði á munum á Egói og Utangarðsmönnum.  Egó náði ennþá meiri almennum vinsældum en Utangarðsmenn.  Að sumu leyti var Egó þó brokkgengari hljómsveit:  Byrjaði ferilinn sem þungarokkshljómsveit en sveigði fljótlega yfir í aðgengilegra og fjölbreyttara nýrokk,  svokallaða nýbylgju.  Bubbi dældi á færibandi út stórsmellum með Egói sem margir hafa orðið sívinsælir,  svo sem Stórir strákar fá raflostMóðirFjöllin hafa vakað og Meskalín.  Ferill Egós endaði ekki eins glæsilega og hann hófst.  Hljómsveitin liðaðist í sundur eftir ítrekaðar mannabreytingar og var komin í illindi við útgefanda sinn.  Síðasta plata Egós var gefin út af öllum í ólund:  Hljómsveitinni sem og útgefandanum.  Platan stóð fyrri plötum Egós að baki,  hún var lítið sem ekkert auglýst og seldist dræmt.  Áður en Egó hætti endanlega var Bubbi hættur í hljómsveitinni en Sævar Sverrisson tekinn við hljóðnemanum.  Síðustu ár hefur Egó verið endurvakin með reglulegu millibili.

das kapital  

3.  Das Kapital 13,5%

  Ekki hefði ég veðjað á að Das Kapital yrði ofar GCD á þessum lista.  En Das Kapital var svo sem frábær hljómsveit,  vel pönkuð,  hrjúf og ljúf.  Þekktustu lög Das Kapital eru Blindsker,  Lili Marlene og Leyndarmál frægðarinnar.

gcd

4.  GCD 7,1%

  Mig grunar að GCD hafi starfað aðeins of lengi.  Það var ævintýraljómi yfir hljómsveitinni framan af:  Rokkkóngurinn Bubbi og Hr. Rokk,  Rúnar Júlíusson,  saman með súpergrúppu.  Hljómsveitin hlaut gífurlega góðar viðtökur og þeir félagar dældu út stórsmellum á borð við MýrdalssandHótel Borg,  Kaupmanninn á horninu og fleiri.  Mér segir svo hugur að GCD hefði varðveitt stærri ímynd ef hún hefði aðeins starfað í 2 ár eða svo,  eða jafn lengi og þetta hljómaði virkilega frísklegt og spennandi dæmi.

MX-21

5.  MX-21 4,3%

  Margir líta kannski á MX-21 sem einskonar undirleikarahljómsveit hjá Bubba.  Þetta var hljómsveitin sem spilaði með honum á Frelsi til sölu og Skapar fegurðin hamingjuna? Snilldar plötuumslag.

stríðogfriður

6.  Stríð og friður 3,2%

  Það sama á við um Stríð og frið eins og MX-21:  Margir hugsa eflaust um þessar hljómsveitir sem undirleikarahljómsveitir hjá Bubba.  Stríð og friður er sú hljómsveit Bubba sem hefur starfað lengst og spilar á væntanlegri plötu hans.


Verstu plötuumslögin

  Þau eru sprenghlægilega hallærisleg mörg plötuumslögin hér fyrir neðan.  Enska poppblaðið New Musical Express hefur að undanförnu staðið fyrir skoðanakönnun um verstu plötuumslög sögunnar.  Þó að ekki sé búið að kveða upp úr með endanlega niðurstöðu þá virðist mér sem hún sé þegar ráðin.  Enda mörg umslögin kunn úr öðrum samskonar könnunum.  Þetta eru 20 verstu umslögin:

verstaumslagið1

1.   The Handless Organist:  "Truly a Miracle of God"

  Þetta umslag er gömul klassík á lista yfir verstu plötuumslögin og þaulsetin í vinningssætinu.  Færri sögum fer af músíkinni.

verstaumslagið2

2.   Fabio:  "Fabio After Dark"

  Þó að Fabio sé heimsfræg fyrirsæta þá náði hann sér ekki á strik sem poppstjarna og einhverra hluta vegna hugnast lesendum New Musical Express ekki þetta plötuumslag.  Ég man ekki eftir að hafa séð þetta umslag svona ofarlega áður.

verstuumslögin3

3. Millie Jackson:  "Back to the Shit!"

  Það er ekki augljóst hvað Millie var að pæla með þessu umslagi.  Þessi ágæta bandaríska soul-söngkona sló fyrst í gegn með gospel-laginu A Child of God (It's Hard to Believe) snemma á áttunda áratugnum og átti á næstu árum mörg önnur vinsæl lög og plötur. 

  Kannski ætlaði Millie að stimpla sig inn hjá kjaftforu rappkynslóðinni með þessu umslagi en Millie brúkaði tal-söng löngu fyrir daga rappsins.  En hver sem pælingin var þá "floppaði" þessi plata svo rækilega að hún er minnst selda platan á ferli dömunnar.  Samt nutu stök lög af plötunni vinsælda (meðal annars lagið hennar Jóhönnu Seljan,  Ætlarðu að hringja á morgun?).  En það er eins og fólk vilji ekki eiga þetta plötuumslag - þó það gleymi því ekki þegar kosið er um verstu plötuumslögin.

verstaumslagið

4.  ManowarAnthology

  Monowar gera út á víkingarokk.  Þeir syngja um Óðinn og taka sig hátíðlega.  Aðrir gera það hinsvegar ekki.  Manowar eru einungis kjánalegir.  Ef menn vilja víkingarokk með einlægum alvöru víkingarokkurum þá er færeyska hljómsveitin Týr málið. 

 tino-kallinn

5.  TinoPor Primera Vez

  Ég veit ekkert um þennan stuttbuxnanáunga.

verstuumslögin6

6.  The Handsome BeastsBeastiality

  Um þessa hljómsveit veit ég fátt annað en að hún er bresk og tilheyrir því sem kallaðist nýbylgja breska þungarokksins um 1980.

verstaumslagið...

7.  Herbie MannPush Push

 Herbie Mann hefur sent frá sér marga góða djass-heimspopps plötuna.  Push Push er ein af þeim.  En umslögin hafa ekki alltaf verið eins góð hjá honum.

verstaumslagið8

8.  Gary Dee BradfordSings For You and You and You

  Þessi náungi varð aldrei stórstjarna.  Plötuumslagið hefur þó séð til þess að hann gleymist ekki. 

verstuumslögin9

9.  OrleansWalking and Dreaming

  Orleans er kannski þekktust sem fyrrverandi hljómsveit Johns Halls (Hall & Oats).  Hallærisleg popp-rokk hljómsveit,  varla nógu rokkuð til að falla undir flokkinn bandarískt iðnaðarrokk. 

verstuumslögin10

10. Jim PostI Love My Life

  Ef ég er ekki að rugla einhverjum saman þá er Jim Post bandarískur vísnasöngvari.

verstaumslagið11

11.  Ken:  By Request Only

verstaumsslagið12

12. Country Church

verstuumslög.......

13.  CherTake Me Home

  Munurinn á umslagi á borð við það með Country Church (#12) hér fyrir ofan og þessu hérna með Cher er að umslag Country Church er óhannað.  Einhver kunninginn sem átti góða ljósmyndavél hefur bara smellt mynd af liðinu fyrir framan heyhlöðuna og prentarinn í sveitinni rúllað upp nafni hópsins með "sniðugu" letri.  Einfalt, unnið án fagmennsku og útkoman er hallærisleg.

  Umslagið með Cher fer yfir strikið í hina áttina.  Það er svo hryllilega ofunnið að það er jafn hallærislegt og hitt. 

verstaumslagið15

14.  The Frivolous FiveSour Cream & Other Delights

verstuumslögin16

15.  Millie JacksonE.S.P. (Extra Sexual Persuasion)

  Það er nokkuð afrek hjá Millie að eiga 2 af 15 verstu plötuumslögum sögunnar.  Þessi plata þykir næstum því jafn slöpp og umslagið.

verstaumslagið17

16.  Al DavisChristian Crusaders

verstaumslagið18

17.  William HungHung for the Holydays

 Það er allt í stíl hjá William Hung:  Laglaus söngur,  vond músík og vond umslög.  "Nævismi" í bak og fyrir.

verstaumslagið19

18.  Mike AdkinsThank You for the Dove

verstaumslagið20

19. Michael Bolton 

  Bandaríski vælukjóinn Michael Bolton er holdgerfingur hins hallærislegasta í poppmúsík og nær einnig að koma því til skila á plötuumslagi.

verstaumslagið21

20.  Pooh-ManFunky as I wanna Be


Plötuumsögn

JF 

Titill:  Revival

Flytjandi:  John Fogerty

Músíkstíll:  Kántrý,  popp og hart rokk

Einkunn **** (af 5)

  Bandaríska hljómsveitin Creedence Clearwater Revival skar sig nokkuð frá því sem var að gerast í rokki hippaáranna á seinni hluta sjöunda áratugarins og í byrjun þess áttunda.  Hrá og blúsuð rokkhljómsveit sem gerði út á einfaldleika.  Er á leið ferilinn fjölgaði sterkum laglínum verulega og kántrý slæddist með.  Sérkenni CCR fólust meðal annars í þróttmiklum öskursöngstíl Johns Fogertys og heillandi útsetningum hans.  Lög hans voru krákuð af Elvis Presly,  Ike & Tínu Turner, auk ótal annarra og íslenskar danshljómsveitir gerðu heilu og hálfu dansleikina út á þau.  Gildrumezz úr Mosfellsbæ gaf út heila plötu með lögum Johns Fogertys. 

  Ég taldi mig vera þungarokkara á þessum árum (hlustaði á Deep Purple,  Led Zeppelin,  Cream,  Black Sabbath  og þær allar) en keypti jafnframt allar plötur CCR um leið og þær komu út.  Fyrstu hljómsveitir mínar,  Trico í Skagafirði og Frostmark á Laugarvatni,  gerðu að hluta út á CCR lög.  Rétt eins og margar aðrar hljómsveitir á fyrri hluta áttunda áratugarins.  Einnig söng ég lög eins og Hey Tonight og Molina með Hljómsveit Geirmundar Valtýs í Varmahlíð.    
  Það yrði löng upptalning að þylja upp alla smelli CCR.  Til viðbótar lögum eftir John Fogerty gerðu hann og CCR lög eftir Leadbelly og fleiri að sínum,  svo sem Cotton Fields (Kartöflugörðunum heima) og Midnight Specials
  Mér telst til að Revival sé sjötta alvöru sólóplata Johns Fogertys á 35 árum. 
  Ég er ósáttur við uppröðun laga á Revival.  Fyrri hlutu plötunnar eru róleg og poppuð lög,  sum kántrýskotin.  Ljómandi fín lög út af fyrir sig en "venjuleg" um of.  Það er að segja án þess að flagga sterkum einkennum Johns Fogertys sem einstaklega flottum öskursöngvara.   
  John Fogerty hefur alltaf verið lagahöfundur með sterkan persónulegan stíl.  Annað lag pltöunnar, Gunslinger,  hefst þó á sama "intrói" og She´s Got A New Spell eftir breska vísnapönkarann Billy Bragg.  John hefur ekki farið leynt með aðdáun sína á honum sem lagahöfundi.  En samlíkingin nær ekki út fyrir "intróið".  Til gamans má geta að She´s Got a New Spell með Billy Bragg er undir greinilegum áhrifum frá Love Will Tear Us Apart með Joy Division.
  Það er ekki fyrr en í 7.  laginu,  Summer of Love,  sem hrjúfa blúsrokkið brýst fram.  Lag sem bergmálar blúsrokk CCR og upphafsára þungarokksins.  Það er heillandi tilvísun í Sunshine of Your Love með Cream í þessu lagi.  Lag sem var ein af skrautfjöðrum okkar í Frostmarki.
  Platan rís hæst í allt að því pönkuðu rokklagi, I Can´t Take It No More.  Það er kraftmikið,  þrungið reiði og andúð á stríðsglæpaforsetanum Brúski. 
  Ég hef aldrei hugsað um CCR eða John Fogerty sem pólitískt fyrirbæri.  Að vísu voru CCR oft með óljósa ádeilu á hernað Bandaríkjanna í Vietnam.  En hún var víðtæk og afgreidd með líkingarmáli sem John Fogerty þurfti að útskýra í viðtölum. 
  Á Revival er John Fogerty í fyrsta skipti beinskeittur í gagnrýni. Hann nafngreinir Brúsk og glæpafélaga hans,  Rummy og Dick Cheney.  Hver söngtextinn á fætur öðrum er harðorð gagnrýni á það glæpahyski.  Í söngtextanum I Can´t Take It No More öskrar John Fogerty að hann sé búinn að fá upp í háls af lygum Brúsks. 
  Fyrir minn smekk hefði þetta átt að vera opnunarlag plötunnar og mýkri lögunum verið dreift inn um rokklögin.  En kannski virkar það vel á aðra að fá mjúka pakkann fyrst áður en reiðiöskrin brjótast út. 
  John Fogerty er ekkert að förlast.  Hann er rokkaðri ef eitthvað er þegar sá gállinn er á honum,  samanber I Can´t Take It No More.  Laglínurnar eru flottar og ég kann vel að meta harðorðari gagnrýni hans á vonda pólitík. Það er ánægjulegt þegar rokkstjörnur láta sig samfélagsmál varða í stað þess að einblína á naflann á sér og væla um misheppnaðar ástir.  Kallinn öskrar jafn glæsilega og áður þó hann sé mjúkraddaðri í fleiri lögum en á rokkuðustu plötum CCR. 
 
  Dúndurgóð plata sem auðvelt er að mæla með.  Það er gaman að heyra að kallinn sé enn í fantagóðu formi og hrífandi "sjarmi" CCR svífur notalega yfir vötnum. 
   

Gælunöfn íslenskra poppara

  Það er gaman að velta fyrir sér gælunöfnum íslenskra poppara.  Þá á ég við gælunöfnum sem þeir hafa ekki tekið upp sjálfir sem listamannsnafn (sbr.  Dr. Gunni eða Lay Low) heldur titlar eða gælunöfn sem aðrir hafa gefið þeim og þau nöfn fests við viðkomandi.  Hér eru nokkur dæmi og gaman væri að fá fleiri dæmi frá ykkur:

Bubbi kóngur

  Þegar Bubbi Morthens kom inn á markaðinn með hávaða og látum var fljótlega farið að tala um hann sem rokkkóng.  Það hafði sömuleiðis fylgt Davíð Oddssyni seðlabankastjóra að hann fór með hlutverk Bubba kóngs í leikriti á menntaskólaárum.  Ég hef grun um að þetta kunnuglega heiti,  Bubbi kóngur,  frá leikaraferli Davíðs hafi átt þátt í því að fólki þótti eðlilegt að kalla Bubba Morthens Bubba kóng.    

Hr.  Rokk

  Ég geri mér ekki grein fyrir því hvort Dr.  Gunni var fyrstur til að kalla Rúnar Júlíusson Hr.  Rokk eða hvort aðrir voru farnir að tala um Rúnar sem Hr.  Rokk áður en Dr. Gunni fór að kalla hann þetta og fékk hann til að syngja hlutverk Hr.  Rokks á plötunni Abbababb.  En Hr. Rokk hefur fests við Rúna Júl og er vel við hæfi.  Maðurinn er holdgerfingur rokksins.

Meistari Megas

  Þegar ég var blaðamaður hjá tímaritinu Konfekti um miðjan áttunda áratuginn varð okkur Smára Valgeirs ritstjóra tamt að tala um Meistara Megas.  Í mínum vinahópi var talað um Megas sem Meistara Megas.  Ég veit ekki hvort að fleiri gerðu það á þessum árum.  Ég stend í þeirri trú - þangað til annað kemur í ljós - að ég hafi fyrstur manna talað um Megas á prenti sem Meistara Megas.

Papa Djass

  Ekki veit ég hvernig Guðmundur Steingrímsson trommusnillingur fékk þetta gælunafn.  Mér dettur í hug að það hafi komið til þegar þessi djassgeggjari fór að spila með yngri rokkurum.

Jón Góði

  Einhvernvegin varð að greina hljómborðsleikarinn Jón Ólafsson frá nafna hans kenndum við Skífuna.  Hljómborðsleikarinn er ljúfmenni og þetta nafn hefur komið til af sjálfu sér.

Kúreki norðursins

  Friðrik Þór Friðriksson kom þessari nafngift á Hallbirni Hjartarsyni þegar hann gerði samnefnda frábæra kvikmynd um Hallbjörn.

Sveiflukóngurinn

  Hrynjandinn sem einkennir músíkstíl Geirmundar Valtýssonar hefur verið kölluð skagfirska sveiflan.  Í framhaldi af því var farið að tala um Geirmund sem Sveiflukónginn.

Siggi kjötsúpa

  Rokksöngvarinn raddmikli Sigurður Sigurðsson er fyrst og fremst þekktur fyrir að hafa sungið lag um íslenska kjötsúpu.  Fyrir þann tíma var hann kallaður Siggi píka vegna þess að ungar stelpur drógust að honum er hann söng með hljómsveitinni Eik.

Bassafanturinn

  Ekki veit ég hvernig Þröstur,  fyrrum bassaleikari Mínusar,  fékk þetta gælunafn.  Eitthvað fór þó af slagsmálasögum af honum í slúðurblöðum á borð við Séð og heyrt.

Fúsi fallbyssa

  Sigfús Óttarsson þótti höggþungur og þaðan er gælunafn hans dregið.  Hann kom fyrst fram með Bara-flokknum og síðar spilaði hann með Bubba,  Rickshow og fleirum.

Óli taktur

  Annar trommari,  Ólafur Helgason,  kenndur við trommustíl sinn.  Óli taktur varð fyrst þekktur með Kvintett Ólafs Helga og síðar hljómsveitinni Tívolí.

Siggi snípur

  Enn einn trommarinn en viðurnefnið er mér hulin ráðgáta.  Sigurður Hannesson varð fyrst þekktur með hljómsveitinni Árbliki.  Síðar trommaði hann m.a. með Rikshaw.

Siggi pönk eða Siggi Pönkari

  Fyrst varð gítarleikari og söngvari Sjálfsfróunar þekktur undir þessum nöfnum.  Síðar eignaðist hann gælunafna,  Sigurð Harðarson,  söngvara Forgarðs helvítis og DYS.  Pétur heitinn bassaleikari Sjálfsfróunar var jafnframt kallaður Pési pönk. 

Bjarni móhíkani

  Bjarni heitinn,  söngvari og síðar bassaleikari Sjálfsfróunar,  fékk þetta nafn vegna klippingar sem einkenndi útlit hans á tímabili.

Pétur kafteinn

  Hljómborðsleikari Paradísar,  Pétur Kristjánsson,  hlaut þetta gælunafn til aðgreiningar frá söngvara hljómsveitarinnar,  Pétri Kristjáns.  Ekki kæmi mér á óvart ef söngvarinn gaf hljómborðsleikaranum þetta nafn.

Billy Start

  Söngvarinn og gítarleikarinn Billy Start - núverandi trúbador - var í slagtogi með hljómsveitinni Start á sínum tíma.  Rétt nafn hans er Brynjar Klemensson en Billy Start hefur fests rækilega við hann. 

Siggi Lee Lewis

  Píanóleikarinn og söngvarinn Siggi Lee Lewis var á yngri árum kallaður Siggi Presley.  En vegna þess að píanóleikur hans,  söngur,  lagaval og útlit svipar meira til Jerry Lee Lewis færðist nafnið yfir í Sigga Lee Lewis. 


Hvaða poppara er erfiðast að þola? Óvænt niðurstaða

  Breska netritið musicmagpie efndi á dögunum til skoðanakönnunar meðal lesenda sinna um það hvaða breskan poppara þeir ættu erfiðast með að þola.  Niðurstaðan kemur á óvart - að minnsta kosti frá mínum bæjardyrum séð.  Ég hefði þorað að veðja um að James Blunt ætti engan skeinuhættan keppinaut í þessari deild.  Því síður hefði ég giskað á að Paul McCartney myndi slá James Blunt við.  Hvað er í gangi? 

  Á musicmagpie geta menn sér þess til að fólk sé orðið þreytt og pirrað á langdregnu skilanaðarferli Pauls,  tvíbentri friðarafstöðu hans og þokka sem samanstendur af spariklæðnaði og gúmmískóm. 

  Breskir fjölmiðlar hafa að sönnu verið undirlagðir frásögnum af skilnaði Pauls mánuðum saman.  Hér á Íslandi höfum við aðeins orðið vör við 0,1% af þeirri umfjöllun.  Varðandi tvíbenta friðarafstöðu veit ég ekki hvort átt er við eitthvað sem snýr að skilnaðinum eða að Paul sló í og úr með stuðning við innrásina í Afganistan og Írak.  En þannig er listinn yfir þá bresku poppara sem fara mest í taugarnar á samlöndum þeirra:

paul mccartney

1.  Paul McCartney

jamesblunt
2.  James Blunt

Lily
3.  Lily Allen
4.  Robbie Williams
5.  Amy Winehouse
6.  Bono
7.  Cliff Richard
8.  Pete Doherty
9.  Joss Stone
10. Craig David


Takið þátt! Ný skoðanakönnun

  Fyrir nokkru bað ég ykkur um að tilnefna verstu íslensku hljómsveitarnöfnin.  Viðbrögð voru góð.  Hátt í 100 nöfn voru nefnd til sögunnar.  Næsta skref var að stilla upp þeim nöfnum er voru gjaldgeng og óska eftir stuðningi við þau þeirra sem ættu að enda í formlegri skoðanakönnun. 

  Það sem ég á við með því að tala um gjaldgeng nöfn er að þetta er leit að versta íslenska hljómsveitarnafninu.  Útlend nöfn komu ekki til greina. 

  Nú hef ég stillt hér upp þeim nöfnum sem fengu 3 eða fleiri atkvæði.  Nokkur þeirra fengu töluverðan fjölda atkvæða en sjáum til hvernig fer.  Ég hvet ykkur til að láta það ekki hafa áhrif á atkvæðagreiðsluna hvernig ykkur líkar við músík viðkomandi hljómsveitar.  Einblínum á nafnið sem slíkt - þó eðlilegt sé að taka mið af því hvernig nafnið passar við það sem hljómsveitin stendur fyrir.

  Þessi skoðanakönnun er ekki illa meint.  Henni er ekki beint gegn einum eða neinum.  Þetta er bara saklaus og léttur samkvæmisleikur.   

  Þegar þið hafið greitt atkvæði væri gaman að heyra rökin fyrir valinu. 


Úrslit skoðanakönnunar: Bestu hljómsveitir Bubba

bubbi  bubbimorthens

  Að undanförnu hefur verið í gangi skoðanakönnun hérna á blogginu mínu þar sem spurt er um það hver hafi verið/sé besta hljómsveit Bubba.  Röðin tók fljótt á sig fasta mynd sem hefur ekkert breyst þó atkvæðum fjölgaði um hundruð.  Núna þegar 468 atkvæði hafa skilað sér í hús er engin ástæða til að halda áfram með könnuna.  Niðurstaðan er löngu ráðin.  Hún er þessi:

1.  Utangarðsmenn 42,8%

2.  Egó 29,1%

3.  Das Kapital 13,5%

4.  GCD 7,1%

5.  MX-21 4,3%

6.  Stríð og friður 3,2%


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband