Færsluflokkur: Spaugilegt

Stundum er betra að láta fagmann um verkið

  Það er ekki öllum gefið að baka kökur,  laga tertur og matreiða kvöldmáltíð.  Stundum er betra að fá fagmann í verkið.  Eða kynna sér verkefnið til hlítar.  Að vísu er til í dæminu að áhugasamir geti lært af mistökum.  Sá sem reynir einu sinni að sjóða egg í örbylgjuofni er ólíklegur til að endurtaka þann hildarleik.

egg í örbylgjuofni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Líka sá sem hitar súkkulaðihnetusmjör í örbylgjuofni.  Jafnvel þó ætlunin sé sú ein að mýkja gumsið í krukkunni.

hnetusmjör

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Með lagni er hægt að sjóða spaghettí í örbylgjuofni.  En aðeins með lagni.

spaghettí

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Kúnstin við að sjóða spaghettí vill þvælast fyrir fleirum en notendum örbylgjuofna.  Ófáir hafa gripið til þess ráðs að sjóða spaghettí í kaffivélinni.  Útkoman er sjaldan góð.  Og sjaldnast í efrihluta spaghettísins.

spaghettí í kaffivél

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Þegar efrihluti spaghettís soðnar ekki með neðrihlutanum bregða ýmsir fyrir sig því gamalgróna ráði að bera eld að hráa hlutanum.  Það hefur aldrei skilað viðundandi útkomu.

spaghettí eldað

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Þó að takist að sjóða allt spaghettíið þá er að mörgu að hyggja.  Lykilatriði er að hafa nægilegt vatn í pottinum.  Annars festist gumsið við botninn.

spaghettí í potti

.  


mbl.is Nýtt kökuhús með vísan í Laxness
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snöfurleg redding í Skagafirði

  Fjölskylda í Reykjavík átti leið til Akureyrar.   Það var áð í Varmahlíð.  Þar var snæddur ágætur heimilismatur.  Þegar halda átti ferð áfram uppgötvaðist að í ógáti höfðu bíllyklar verið læstir inni í bílnum.  Neyðarráð var að kalla út íbúa í Varmahlíð,  Rúnar frá Sölvanesi.  Hann er þekktur fyrir að geta opnað allar læsingar.  Honum brást ekki bogalistin fremur en áður og síðar.  Hægt og bítandi þvingaði hann dyrarúður niður og tróð vírsnöru að hurðalæsingatakka. Þar herti hann á snörunni og dró takkann upp.  Þetta er snúnara en það hljómar þar sem takkar eru uppmjóir.    

  Ég fylgdist ekki náið með.  Sá út undan mér að hann hljóp á milli hurða og kannaði hvar rúður voru eftirgefanlegastar.  Ég spanderaði ís á fjölskylduna á meðan Rúnar kannaði möguleika.  Þetta er þolinmæðisvinna.  Skagfirðingar eru aldrei að flýta sér.  Eftir drykklanga stund gekk ég út að bílnum.  Rúnar hafði þá hamast töluvert á hurðunum farþegamegin.  Nú var hann byrjaður að hamast á hurðunum bílstjóramegin.

  Ég gekk að framhurð farþegamegin og tók fyrir rælni í hurðarhúninn.  Dyrnar opnuðust þegar í stað.  Ég kallaði á Rúnar:  "Hey,  dyrnar eru opnar!"  Hann kallaði til baka þar sem hann baksaði við bílstjórahurðina:  "Ég veit það.  Ég er búinn að ná báðum hurðunum þarna megin opnum.  Ég er alveg við það að ná hurðunum hérna megin líka opnum!


Manna- og hundanafnanefnd ríkisins kaghýdd einu sinni einu sinni enn

  Engin íslensk ríkisnefnd hefur verið rassskellt jafn oft og Manna- og hundanafnanefnd ríkisins.  Enda eru fáar nefndir hins opinbera til jafn mikillar óþurftar.  Samt eru margar um hituna.  Sennilega fjögur til fimm þúsund.  Ýmsar faldar á bak við nöfn eins og "aðgerðahópur",  "greiningardeild",  "starfshópur" og eitthvað svoleiðis.

  Rökin fyrir tilvist ríkisrekinnar manna- og hundanafnanefnd eru þau helst að foreldrum sé ekki treyst til að velja boðlegt nafn á barn sitt og hund.  Ríkisreknir starfsmenn séu nauðsynlegir til að standa vakt gegn vondum nöfnum.  Ríkisrekna nefndin vill ekki að stúlka heiti því fallega nafni Blær.  Þess í stað skal hún heita Himinbjört Snót.  Eða Hugljúf Þrá. 

  Nú hefur innanríkisráðuneytið flengt Manna- og hundanafnanefnd ríkisins vegna harðvítugrar andstöðu við nafnið Harriet.  Fram til þessa tókst manna- og hundanafnanefnd ríkisins til margra ára að hindra að Harriet-systkinin væru skráð hjá Þjóðskrá undir öðrum nöfnum en Stúlka og Drengur.  Samkvæmt úrskurði innanríkisráðuneytisins í dag er bull Manna- og hundanafnanefnd ógilt.  Harriet-systkinin mega héðan í frá vera skráð Harriet í stað Blíða Þúfa og Kaktus Þyrnir.

  Í vörn fyrir Manna- og hundanafnanefnd ríkisins hefur verið bent á að nefndin starfi eftir lögum.  Hún sé ekki sek um neitt.  Hún sé bara að vinna sína þægilegu og vel launuðu innivinnu.  

  Þetta er rétt.  Hinsvegar hefur enginn neytt neinn til að taka sæti í þessari óþurftarnefnd fáránleikans.  Þar fyrir utan berst nefndin á hæl og hnakka gegn því að vera lögð niður.  Vitaskuld.  Það segir sitt.  

  Ég skora á innanríkisráðherra,  frú Nordal,  að leggja Manna- og hundanafnanefnd ríkisins niður snarlega í haust er þing kemur saman.  - Þrátt fyrir harða andstöðu Bernhards Lambrechts,  Michaels Holtsmans,  Frances Welding,  Ethans Prezynas og fleiri við að slakað verði á ströngustu kröfum um rammíslensk mannanöfn. 

íslensk tunga

       


Pottþétt ráð sem tryggir að bílnum sé ekki stolið

  2007 dönsuðu Íslendingar umhverfis gullkálfinn sem aldrei fyrr.  Það þarf ekki að rifja upp fyrir neinum þá geggjun sem einkenndi dansinn.  Miðbærinn þagnaði ekki vegna flugs einkaþotna;  menn skruppu á einkaþyrlum í sjoppu til að fá sér pylsu.  Í stað þess að bjóða neftóbak í nefið að hætti bænda fyrri tíma buðu stórtækir dansarar hver öðrum hreint kók í nefið.

  Hámarki náði dansgleðin daginn fyrir bankahrunið 2008.  Þá flugu einkaþoturnar úr landi drekkhlaðnar töskum fullum af gjaldeyri.  Síðan heyrðist ekki í þeim meir.  Dansinn lagðist af og bank á búsáhöld tók við.

  Núna er verið að endurreisa byggingakranana og rykið dustað af dansskónum.  Togast er á um hvern einasta flotta 15 - 20 milljón króna jeppann.  Vandamálið er að vondir menn sækja líka í fína jeppa.  Þeim er stolið.  

  Til er ráð.  Einföld aðferð til að forða fína dýra bílnum frá því að vera hnuplað af vondu fólki.  Það eina sem þarf að gera er að fá næstu skiltagerð til að þrykkja mynd af ryðguðum bíl á dúk.  Svo er fíni bíllinn klæddur í dúkinn.  Eini gallinn er sá að þá vita nágrannarnir ekki að þú eigir nýjan og fínan bíl.  Því er kippt í lið með því að taka ljósmynd af bílnum fyrir dúklagningu og sýna nágrönnunum myndina.  

bíll dulbúinnbíll dulbúinn 2bíll dulbúinn 3

   


mbl.is Ísland á leið í hóp þeirra ríku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilaþvegin þjóð - hnípin í vanda

kim_jong_il_1

  Fyrir nokkrum árum dvaldi ég í góðu yfirlæti í Ósló,  höfuðborg Noregs.  Á sama hóteli þar í borg var meðal gesta ungur maður frá Suður-Kóreu.  Okkur varð vel til vina.  Forvitnir um þjóðir hvors annars spjölluðum við saman yfir bjór úti á gangstétt allt að því á hverju kvöldi.

  Hann spurði margs um Ísland.  Ýmislegt sem ég upplýsti hann um vakti undrun.  Mér þótti áhugaverðara sitthvað sem hann sagði mér af sínu lífi.

  Dvölin í Noregi var hans fyrsta alvöru frí til nokkurra ára.  Og fyrsta utanlandsferð.  Hann var svo óheppinn að verkstjóri hans var vinnualki.  Naut þess að vinna alla daga og oftar fram á kvöld en ekki.  Í S-Kóreu vinna undirmenn jafn lengi og yfirmenn.  Það er svo algjör regla að hún er ekki rædd.  

  Drengurinn hafði gegnt herþjónustu.  Að mig minnir til tveggja ára.  Hún fólst í gæslu við landamæri Suður- og Norður-Kóreu.  Á milli þessara ríkja er svæði sem er skilgreint hlutlaust.  Það er um 4 km breitt.  Sitthvoru megin sitja hermenn ríkjanna gráir fyrir járnum.  Iðulega má lítið út af bregða til að skipt sé á skotum.   

  Kunninginn var svo heppinn að hermenn beggja ríkjanna á þessu varðsvæði höfðu vingast.  Þeir léku sér saman í fótbolta,  tefldu og tóku í spil.  Fóru meira að segja saman í gönguferð upp á hátt fjall.  Horfðu saman á sjónvarp og voru ágætir vinir.  Skiptust á gjöfum og eitthvað svoleiðis.  Forðuðust samt eins og heitan eld að ræða pólitík.  

  Meðal annars horfðu þeir saman á beina útsendingu frá einhverri heimsmeistarakeppni í fótbolta.  Þar kepptu S- og N-Kórea.  Leikar fóru þannig að N-Kórea tapaði illilega.  Þá brá svo við að n-kóresku hermennirnir fóru að gráta.  Þeir hágrétu eins og kornabörn.  Þeir ætluðu ekki að trúa sínum eigin augum.  

  S-kóresku hermennirnir reyndu að hugga þá.  Sögðu að þetta væri bara saklaus leikur.  Það væri eðli svona leiks að stundum vinnur annað liðið.  En n-kóresku hermennirnir voru óhuggandi.  

  Þá áttaði kunninginn sig á því hvað n-kóresku vinirnir voru og eru svakalega heilaþvegnir.  Í þeirra huga var óhugsandi að n-kóreskt landslið gæti tapað leik.  

Kim Jong un

  Hárgreiðsla Kim Jong Un leiðtoga N-Kóreu kallast kústur.  Hann fann upp á henni sjálfur.  Nú nýtur hún gríðarmikilla vinsælda aðdáenda N-Kóreu um allan heim.  

  Forveri hans og faðir,  Kim Jong Il, var þekktari fyrir að þamba allsnakinn koníak á hverju kvöldi.  Uns hann dó á miðjum aldri vegna vinnuálags.  Hann lagði sig hart fram um að finna upp nýja og spennandi rétti.  Til að mynda hamborgara.  Heimshorna á milli drúpa jarðarbúar höfði í lotningu og snæða hamborgara - Kim Jong Il til heiðurs.  hamborgari


mbl.is Kveikja á hátölurum við landamærin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðufólk í útlöndum - Varúð! Rasismi!

  Sinn er siður í landi hverju.  Því lengra sem fólk er búsett frá Íslandi þeim mun furðulegar hegðar það sér.  Það er þumalputtaregla.  Tökum Japani sem dæmi.  Þegar heitt er í veðri þá klæða þeir ung börn sín í vatnsmelónur.

japönsk börn í vatnsmelónu

 

 

 

 

 

 

 

 

  Í tengslum við brúðkaup klæðist brúðguminn brúðarkjólnum og keppir í spretthlaupi fyrir hönd brúðurinnar.

japanskir brúðgumar keppa fyrir brúðir sínar

 

 

 

 

 

 

 

 

  Japanskar konur eru nýlega teknar upp á því að ganga í sundbol á baðströndinni.  Þær eru spéhræddar.  Til að slá á spéhræðsluna hylja þær andlitið með lambhúshettu.  Hugmyndina fengu þær frá rússnesku kvenpönksveitinni Pussy Riot.  Giska ég á.

japanskar konur í sundfötum

 

 

 

 

 

 

 

 

   Vestrænar þjóðir eru vanar svokölluðum fingramat;  skyndibita sem einfaldast er að slafra í sig án hnífapara.  Japanir snerta ekki mat með berum höfnum.  Þeim þykir það vera sóðalegt og villimannslegt.  Japanir stinga upp í sig ruslfæðinu með prjónum.

japani snæðir pizzu með prjónum

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Japanir eru gríðarlega spenntir fyrir öllu sem tengist hugsanlegum geimverum.  Þeim finnst fátt skemmtilegra en klæða sig í furðubúning með ævintæýralegu geimveru-þema.

japanir í furðufötum

 

 

 

 

 

 

 

 

  Japönsk flugfélög hafa góðar tekjur af því að rúnta um með fólk á flugvöllum.  Japanirnir sitja þá ofan á flugvélinni.  Flugmönnum er stranglega bannað að taka á loft með þessa farþega.

japanar fjölmenna á flugvél

 

 

 

 

 

 

 

 

  Þegar japanskir töffarar taka upp vestrænar tískubylgjur í hárgreiðslu þá fara þeir alla leið.  Trompa vestrænu fyrirmyndina  Sama hvort Elvis er stældur eða Smutty Smitt.  

japanskur rokkabilly

japanskir rokkabilly

 

 

.


Svívirðileg framkoma

  Hjálparsveitir,  björgunarsveitir og eiginlega allar sveitir - líka lúðrasveitir - vinna gott starf hérlendis (og víðar).  En ekki alltaf óaðfinnanlegt starf,  þrátt fyrir eflaust góðan hug.  Mörgum er illilega brugðið við fréttaflutning af frönskum ferðamanni sem björgunarsveitir Landsbjargar fundu á Hornströndum.  Að honum var veist og tilraun gerð til að troða upp í hann ógeðstuggu af útlendu ullabjakki sem kallast Snickers.

  Vitaskuld varðist nýfundni Frakkinn fimlega.  Það hefði næstum því verið meiri mannsbragur af því að bjóðast til að æla upp í hann máltíðum síðustu tveggja daga.  

  Það er forkastanlegt að íslensk björgunarsveit þrammi um óbyggðir og ógni  rammvilltum útlendum strandaglópum með útlendum viðbjóði.  Hvað segir Guðni Ágústsson við þessu?  Hvar er harðfiskurinn með rammíslensku smjöri (nýhækkað í verði um tæp 12%)?  Hvar er metnaðurinn?  Hvar er Nóa konfektið með fallegum myndum af íslenskri náttúru?  Besta konfekt í heimi?      

nóa konfekt 

 

 

 

 

viking pizza


mbl.is Afþakkaði Snickers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húðflúr heimska fólksins

  Fyrir tveimur árum eða svo var hugur í mörgum stjórnmálamanninum í Bandaríkjum Norður-Ameríku.  Þeir vildu taka húðflúr föstum tökum.  Banna öll húðflúr önnur en þjóðleg og þjóðholl.  Banna í leiðinni "piercings" (ég veit ekki hvert íslenska orðið er yfir það þegar húð er götuð og hringar eða annað glingur þrætt í).  Lengst var gengið í Arkansans.  Þar var lagt fram frumvarp til laga.  Það fékk góðar móttökur til að byrja með en tók einhverjum breytingum.  Ég veit ekki hvernig það endaði.

  Húðflúralögga er jafn geggjað fyrirbæri og mannanafna- og hundanafnanefnd ríkisins.  Húðflúr heimska fólksins eru ekkert nema góð skemmtun.  Ekki aðeins vegna þess að þau eru iðulega illa teiknuð.  Líka vegna þess að stafsetning er sjaldan rétt.  Þessi ætlaði að flagga ágætri fullyrðingu,  "Þekking er vald".  Í stað orðsins "knowledge"  er orðskrípi sem bendir til þess að þekkingu höfundarins á réttritun sé ábótavant.  

húðflúr heimska fólksins - þekking

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Elvis Presley er í uppáhaldi hjá heimska fólkinu eins og öðrum.  Munurinn er sá að í fyrrnefnda hópnum teikna menn sjálfir andlit rokkstjörnunnar.  Taka verður viljann fyrir verkið.  Málið er að gera fremur en geta.  Húðflúr heimska fólksins - presley

 

 

 

 

 

 

 

 

  Mér vitanlega hefur engum dottið í hug að láta húðflúra andlit Presleys á sitt andlit.  En heimska fólkið lætur húðflúra önnur andlit á andlitið á sér.  Þaðan er komið orðið tvíhöfði.  húðflúr heimska fólksins - andlit á andliti

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Ein af þeim gryfjum sem heimska fólkið fellur í - aftur og aftur - er að merkja sig dægurflugu.  Tískufyrirbæri sem eru öllum gleymd daginn eftir.  Hver man í dag eftir Gangnam Style eða Harlem Shake?  Twitter-krossinn verður jafn gleymdur og tröllum gefinn á morgun og Ircið. húðflúr heimska fólksins - dægurflugur 

 

 

 

 

 

 

     Flísalagningamann langar í húðflúr.  Hann er allan daginn að leggja svartar og hvítar flísar á baðgólf,  eldhúsgólf og önnur gólf.  Hvernig húðflúr sér hann fyrir sér?  húðflúr heimska fólksins - flísalagningamaður

 

 

 

 

 

 

 

 

  Auglýsing fyrir Helga í Góu. húðflúr heimska fólksins - taco bells


mbl.is „Þetta er ekki nógu mikið rannsakað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryðjuverkamenn hóta stjórnmálamönnum lífláti

 ss sam simon

 

 

 

 

 

 

 

  Barátta bandarísku hryðjuverkasamtakanna Sea Shepherd í sumar gegn hvalveiðum Færeyinga tekur á sig ýmsar myndir. Að sumu leyti ber baráttan merki örvæntingar - vegna árangursleysis. Hvorki gengur né rekur í "rétta" átt.  Þvert á móti.  Allt gengur á afturfótunum.  Spaugilegasta dæmið (af mörgum) var þegar skip SS,  Birgitta Bardot,  rak fyrir klaufaskap 200 hvali upp í fjöru.  Þar slátruðu Færeyingar fengnum og kunnu SS bestu þökk fyrir.    

  SS-liðum gengur illa að átta sig á danska sambandsríkinu.  Færeyjar eru ásamt Grænlendingum hluti af því.  En hafa sjálfstæða utanríkisstefnu og sjálfstæða sjávarútvegsstefnu.  Danmörk er í Evrópusambandinu.  Ekki Færeyingar og Grænlendingar.  Færeyingar hafa aldrei verið í Evrópusambandinu.  Grænlendingar voru það en sögðu sig úr því. Fyrsta og eina þjóð sem stigið hefur það gæfuríka skref.

  Sem aðildarríki Evrópusambandsins eru Danir á móti hvalveiðum.  Þeir geta samt ekki gengið gegn sjálfstæðri sjávarútvegsmálastefnu Færeyinga og hvalveiðum þeirra.  

  Fyrir nokkrum dögum skipulögðu SS-liðar mótmælastöðu í Englandi fyrir utan danska sendiráðið.  Mótmælastaðan snérist öll um slagorð gegn meintum hvalveiðum Dana (sem engar eru).  Kveikt var í danska fánanum við fagnaðarlæti og Dönum formælt sem aldrei fyrr.

  Á dögunum skrifaði bandaríska leikkonan,  módelið og Strandvarðarpían (Bay Watch) Pamela Anderson danska forsætisráðherranum bréf.  Þar fordæmdi hún hvalveiðar Dana.  Jafnframt áréttaði hún fyrri fullyrðingar um að hvalir séu fallegir,  gáfaðir og fjölskylduhollir.  

pamela_anderson_berrassapamela

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Í fyrra hélt hún því fram að fjölskyldutengsl hvala séu hornsteinn hvalasamfélagsins.  Þegar einn hvalur sé drepinn þá syrgi öll fjölskyldan:  Systkini,  foreldrar,  afkvæmi og meira að segja fjarskyldir.

  Þetta er della hjá kellu.  Hvalir eru heimskir,  ljótir og hafa enga rænu á neinum fjölskyldutengslum nema rétt á meðan kálfar eru nýfæddir.

  Hvalveiðar Færeyinga koma danska forsætisráðherranum ekkert við.

  Ýmsir danskir ráðherrar hafa einnig fengið póst frá SS-liðum með líku erindi.  Sumir allt upp í 200 bréf.  Þar á meðal hafa slæðst með ruddalegar morðhótanir (líflátshótanir eru kannski alltaf dálítið ruddalegar).  ssjnypx  

 


Neyðarlegur happdrættisvinningur

 Á sjöunda áratugnum - og eflaust fyrr og síðar - urðu flokksbundnir í Sjálfstæðisflokknum sjálfkrafa áskrifendur að árlegum happdrættismiða flokksins.  Þar á meðal foreldrar mínir.  Svo bar til að einn miðaeigandi,  Grétar á Goðdölum í Skagafirði, fékk langlínusímtal frá Reykjavík.  Erindið var að tilkynna honum að hann hefði unnið glæsibifreið í happdrættinu.

 Á þessum tíma,  á fyrri hluta sjöunda áratugarins,  var heilmikið mál að ferðast landshluta á milli. Helsta ráð var að leita uppi vörubíl á leið suður.  Björninn var ekki unninn þegar komið var til höfuðborgarinnar.  Þá var eftir að finna hótel og gistingu næstu daga.  Það skaust enginn eina dagstund suður og til baka samdægurs. Í bestu færð við góð skilyrði fór dagurinn í ferð aðra leið.

  Farið til Reykjavíkur fékk Grétar á föstudegi.  Sanngjarnt þótti að hann tæki þátt í bensínkostnaði við ferðina.  Þar við bættist að það sprakk á tveimur dekkjum á leiðinni með tilheyrandi kostnaði.  Þetta var í tíð gúmmíslöngunnar og dekk voru fljót að étast upp á grófum malarvegum.  Farþeginn deildi kostnaði af hrakförunum með vörubílstjóranum.  Útgjöldin voru ekki óvænt.  Svona var þetta fyrir hálfri öld.

  Kominn til Reykjavíkur naut Grétar aðstoðar leigubílstjóra við að finna rándýra gistingu næstu örfáa daga. Hann gisti á Hótel Sögu.  Það var gaman.  Um helgina voru dansleikir á hótelinu.  Matartímar á Grillinu á Hótel Sögu voru glæsilegar veislur en dýrar.  

  Á mánudeginum mætti Grétar glaður og hamingjusamur á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins til að veita glæsibifreið móttöku.  Þá kom babb í bátinn.  Happdrættismiðinn sem hann framvísaði passaði ekki við vinningsnúmerið.  Þar skeikaði síðasta tölustaf. Við nánari athugun kom í ljós að bróðir Grétars,  Borgar,  átti vinningsmiðann.  Borgar bjó einnig í Goðdölum.

  Aldrei var fyllilega upplýst hvað fór úrskeiðis.  Kannski víxluðustu happdrættismiðar bræðranna þegar þeir voru póstlagðir.  Líklegra þótti þó að lélegt og frumstætt símasamband ætti sök að máli.  Hringja þurfti frá einni símstöð til annarrar til að koma á símtali.  Ein símadama þurfti að biðja aðra um að ná sambandi við þann sem kallaður var til.  Nafnið Borgar á Goðdölum varð við þessi skilyrði Grétar á Goðdölum.  Hugsanlega spilaði inn í að Grétar fékk oft langlínusímtöl en ekki Borgar.  

  Spenningurinn og tilhlökkun Grétars við að eignast nýjan bíl breyttist í spennufall.  Bílar voru ekki á öllum heimilum,  eins og í dag.  Hlutfallslega voru bílar miklu dýrari og meiri lúxus.  Grétar var gráti nær.  Að auki var hann að eyða mörgum dögum í ferðalagið,  mikilli fyrirhöfn og heilmiklum útgjöldum í platferð suður.

  Næsta skref var að á skrifstofu flokksins var hringt í Borgar.  Hann var upplýstur um stöðu mála.  Hann þurfti ekki að framvísa happdrættismiðanum.  Númer miðans var skráð á hann.  Er leið á símtalið var Grétari rétt tólið.  Hann sagði síðar þannig frá:  "Það var eins og nudda salti í sárið þegar Borgar bað mig um að grípa bílinn með norður fyrst að ég væri á norðurleið hvort sem er."

  Næstu ár bjó Grétar við það að horfa upp á glæsikerru Borgars í heimreiðinni á Goðdölum.  Á þeim tíma voru aðeins gamlir jeppar á öðrum sveitabæjum.  Ef þar var bíll á annað borð.

chervolett

    


mbl.is Framhaldsskólakennari vann Mercedes-Benz
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband