Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
5.11.2010 | 00:30
Klúður - má ekki endurtaka sig
Í Fréttablaðinu í dag er birtur útdráttur úr grein eftir Guðmund Gunnarsson, formann Rafiðnaðarsambandsins, á Eyjunni. Fyrirsögn greinarinnar er "Glundroðinn við völd". Tilvitnunin hefst á þessum orðum: "Afstaða stjórnarandstöðunnar með órólegu deildinni er orðin mjög stór þrándur í götu gagnvart upprisu íslensks atvinnulífs."
Þarna er rangt eftir Guðmundi haft. Hann stafsetur nafn Þrándar réttilega með stóru Þ. Hinsvegar stafsetur hann ranglega nafn þorpsins Götu með litlu g.
Þrándur í Götu var höfðingi á Austurey í Færeyjum fyrir þúsund árum. Hann átti hálfa Austurey og var merkilegur maður um margt. Þessi forfaðir færeysku álfadísarinnar Eivarar var fyrsti menntamálaráðherra Færeyja. Barðist fyrir menntun Færeyinga. Hann barðist gegn skattgreiðslum Færeyinga til norska kóngsins. Hann var ásatrúarmaður og barðist gegn kristnitöku í Færeyjum.
Hérna erum við vinirnir, ég og Þrándur í Götu. Þrándur var svo þver og fastur fyrir að það er túlkað á snilldar hátt með styttunni af honum í Götu.
Það er flott að vísa til Þrándar í Götu í því samhengi sem Guðmundur gerir. En gætum að því að nota stórt Þ og stórt G þegar vísað er til Þrándar í Götu.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 00:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
29.10.2010 | 21:36
Vitlaust spurt í Útsvari
Spurningaþátturinn Útsvar var jafn skemmtilegur og fróðlegur í sjónvarpinu í kvöld og oftast áður. Afskaplega vel heppnaður þáttur í flesta staði. Þáttur sem ómögulegt er að missa viljandi af. Mér var þó afskaplega illa brugðið þegar spurt var: "Höfuðborg hvaða fylkis í Bandaríkjunum heitir Helena?"
Gefið var rétt fyrir svarið: Montana.
Montana er ekki fylki í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Montana er ríki í Bandaríkjunum. Höfuðborg Montana-ríkis er Helena.
Ég er miður mín yfir þessu.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (38)
16.10.2010 | 17:55
Þiggur íslenski forsætisráðherrann boð á hljómleika færeysku pönksveitarinnar 200?
Í gær sagði ég frá því að færeyska pönksveitin 200 hafi boðið íslenska forsætisráðherranum og eiginkonu á hljómleika hljómsveitarinnar á Iceland Airwaves. Sjá: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1106522/ . Svo virðist sem færeyski sendiherrann hafi ekki komið - eða ekki tekist að koma - erindinu til forsætisráðherrans. Að minnsta kosti kannaðist fólk ekki við málið þegar málið var kannað á skrifstofu forsætisráðuneytisins í gær. Mér er kunnugt um að milliliðum hafi verið fækkað og erindið sent í morgun beint til Hrannars B. Arnarsson, blaðafulltrúa forsætisráðherra.
Hljómleikar 200 verða á Amsterdam kl. 01.20 í nótt.
Hér er erindið eins og Hrannari var sent það:
200 biður Jóhönnu Sigurðardóttir fyrirgefningar
Um helgina spilar 200 á hinni virtu og alþjóðlega viðurkenndu Iceland Airwaves tónlistarhátíð í Reykjavík. Þetta er í annað skipti sem 200 spila á þessari hátíð. Í fyrra skiptið var það árið 2005, þar sem gagnrýnendur viðhöfðu m.a. þá lýsingu að 200 hafi gert laugardagskvöld hátíðarinnar ógleymanlegt... "The sweaty punk rock, sublime sound and great musicianship of this trio made this concert the greatest surprise of Iceland Airwaves 2005 in its whole."
Í kjölfarið á umdeildri móttöku sem íslenski forsætisráðherrann og kona hennar fengu í Færeyjum fyrr á árinu vill 200 bera í bætifláka fyrir það. Þó ekki hafi borið á neinu á fréttamannafundi Jóhönnu Sigurðardóttur í Færeyjum kom fram að hún mætti kuldalegra viðmóti af hálfu einstakra stjórnmálamanna okkar en hún vildi láta í veðri vaka. Þetta kom ennþá betur fram í samtölum hennar við íslenska fjölmiðla.
Vegna þessa hefur 200 tekið að sér að biðjast fyrirgefningar. Vegna fólksins, landsins og þjóðarinnar. Skýrt og skorinort.
200 heitir á sendiherra Færeyja í Reykjavík að koma þeim boðum á framfæri við íslenska forsætisráðherrann að hún og kona hennar séu hjartanlega velkomnar á hljómleika 200 í höfuðborg Íslands á laugardagskvöldinu - og ef tími og aðstæður leyfa að setjast að snæðingi með hljómsveitinni á meðan hún dvelur á Íslandi.
Jafnframt býður 200 Jóhönnu um að veita viðtöku Riddarakrossi hljómsveitarinnar. Fyrri Riddarakrosshafar eru Magni Laksáfoss, Hergeir Staksberg, Annar Kristín Thomsen, Felix van der Berg og Jóhannes Patursson.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.10.2010 | 13:21
Færeysk pönkhljómsveit heiðrar íslenska forsætisráðherrann og biðst fyrirgefningar
Flottasta pönkhljómsveit heims er færeyska tríóið 200. Það nýtur mikilla vinsælda á Íslandi og er vinsælasta rokkhljómsveitin í Færeyjum. 200 er nú að spila á Iceland Airwaves í annað sinn. Að þessu sinni í Sjoppunni klukkan 17.00 á morgun og á Amsterdam kl. 01.20 aðfaranótt sunnudags. Áður spilaði 200 á Iceland Airwaves 2005. Einnig var 200 með nokkra hljómleika í Reykjavík árið 2002. Siggi Pönk (Forgarður helvítis, DYS) sagði í tímaritinu Undirtónum á sínum tíma að menn hefðu ekki heyrt almennilegt pönkrökk fyrr en þeir hefðu heyrt í 200.
Í tilefni af hljómleikum 200 á Iceland Airwaves nú hefur pönksveitin 200 sent frá sér yfirlýsingu. Í yfirlýsingunni er harmað að íslenski forsætisráðherrann, Jóhanna Sigurðardóttir, og eiginkona hennar hafi mætt kuldalegu viðmóti færeysks stjórnmálamanns í opinberri heimsókn til Færeyja á dögunum. Pönksveitin 200 biður íslenska forsætisráðherrann fyrirgefningar (umbering) á þessu fyrir hönd fólks, lands og þjóðar.
Pönksveitin 200 hefur beðið færeyska sendiherrann á Íslandi um að koma boðum á framfæri við íslenska forsætisráðherrann þess efnis að þau hjónin séu boðin hjartanlega velkomin á hljómleika 200 á laugardag. Jafnframt er þeim velkomið að snæða matarbita með liðsmönnum 200 hvenær sem henta þykir á meðan á helgardvöl hljómsveitarinnar stendur á Íslandi.
Til viðbótar býður pönksveitin 200 íslenska forsætisráðherranum að þiggja Riddarakross hljómsveitarinnar. Áður hafa Magni Laksáfoss, Hergeir Staksberg (í hljómsveitinni Makrel), Anna Kirstin Thomsen, Felix van den Berg (svissneskur útvarpsmaður) og Jóannes Patursson verið sæmd Riddarakrossi 200. Afskaplega sparlega er farið með úthlutun Riddarakross 200, eins og sést á því að einungis 5 manneskjur hafa verið heiðraðar á þennan hátt á 14 ára ferli pönksveitarinnar.
Hér má lesa yfirlýsingu 200 í heild: http://www.facebook.com/?tid=1469337855228&sk=messages#!/note.php?note_id=132942526758360&id=66148235829
![]() |
Ráðherrar funda um skuldavanda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 16.10.2010 kl. 18:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.10.2010 | 23:11
Tvífari afa síns
Norður-kóreaska þjóðin er heilaþvegin. Þar trúa allir á guð. Hann heitir Kim Il-Sung. Hann er eilífðarforseti Norður-Kóreu. Þó hann hafi látist fyrir einhverjum mörgum árum þá breytir það engu um styrka stöðu hans í þessu veigamikla embætti. Eftir látið gerðist það eitt að sonur hans, Kim Jong-Il, hefur farið með umboð hans; komið fram fyrir hans hönd á opinberum vettvangi, skrifað í umboði hans undir pappíra og eitthvað svoleiðis. En það er sá gamli sem ræður öllu.
Kim Jong-Il hefur verið fundið það til foráttu að vera ekki nógu líkur pabba sínum og vera ekki eins hirðusamur um klæðnað eða jafn vel greiddur.
Nú er verið að kippa þessum vandamálum í lag. Yngsti sonur Kims Jong-Ils hefur verið kallaður upp á dekk. Sá heitir Kim Jong-Un. Hann þykir glettilega líkur afa sínum í útliti. Grunur leikur á að hann hafi farið í andlitslyftingu til að skerpa á því. Þrátt fyrir að guttinn hafi stundað nám í Sviss er ekki til nein ljósmynd af honum frá þeim tíma eða þangað til núna að hann er farinn að sjást opinberlega.
Myndin til vinstri er af eilífðarforsetanum. Myndin til hægri er af stráknum.
Eldri bræður Kims Jong-Uns hafa verið í tómu rugli. Þeim er ekki treyst fyrir einu né neinu. Einn var handtekinn blindfullur með vændiskonum og fölsuð skilríki í útlöndum. Ég man ekki hvort hann þóttist vera Japani eða geimvera eða eitthvað svoleiðis. Fréttir af handtökunni lögðust illa í norður-kóreaska ráðamenn.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 23:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.9.2010 | 02:26
Skúbb! Færeyingar gefa út bók eftir íslensku forsætisráðherrafrúna
Það er aldeilis skemmtileg tilviljun. Núna hafa íslensku forsætisráðherrahjónin verið í opinberri heimsókn í Færeyjum. Á sama tíma er verið að raða í hillur færeyskra bókaverslana splunkunýrri bók glóðvolgri úr prentsmiðjunni. Bókin heitir Elskar - elskar ikki. Hún inniheldur sextán smásögur eftir 8 rithöfunda frá jafn mörgum löndum. Fulltrúi Íslands er Jónína Leosdóttir, eiginkona íslenska forsætisráðherrans, Jóhönnu Sigurðardóttur.
Bókin er gefin út af Færeyska kennarasambandinu og verður meðal annars notuð við kennslu. Rauði þráðurinn í sögum bókarinnar er kærleikurinn. Nafn bókarinnar er sótt í sögu Jónínu, Elskar meg, elskar meg ikki.
Þingmaðurinn Jenis av Rana var spurður út í viðhorf hans til bókar sem inniheldur sögur eftir samkynhneigða konu, giftri annarri konu. Jenis er þekktur fyrir homo-fælni á háu stig og áhuga fyrir því að samkynhneigð sé lamin úr hommum. Þeim til bjargar frá því að kveljast í vítislogum um eilífð. Jafnframt hefur Jenis orðið uppvís af því að beita þöggun í barnaníði innan trúarsafnaðar sem hann veitir forstöðu.
Svar Jenis av Rana var að í Færeyjum ríki tjáningarfrelsi öllum til handa öðrum en Jenis av Rana.
![]() |
Dýrasta bók í heimi boðin upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 15.9.2010 kl. 12:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
8.9.2010 | 19:03
Færeysk skoðanakönnun um samkynhneigð
Í umræðunni vegna ummæla Jenis av Rana um íslenska forsætisráðherrann hefur borið á því að samasemmerki sé sett á milli færeysku þjóðarinnar og Jenis av Rana. Meðal annars hefur verið vísað til þess að tveir aðrir formenn færeyskra lögþingsflokka hafi sýnt Jenis av Rana samstöðu með því að mæta ekki heldur í kvöldverðarboð sem íslenska forsætisráðherranum var haldið í Kirkjubæ. Þar með hafi einungis 3 af formönnum 6 lögþingsflokkanna snætt kvöldverð með Jóhönnu og maka hennar.
Hér með skal það leiðrétt að fjarvera umræddra 2ja formanna hafði ekkert að gera með afstöðu Jenis av Rana. Formaður Fólkaflokksins var gestgjafi í öðru kvöldverðarboði á sama tíma. Það kvöldverðarboð var haldið fyrir Norrænu ráðherrasamstarfsnefndina. Það var sett á dagskrá löngu áður en tilkynnt var um heimsókn Jóhönnu til Færeyja.
Formaður Sjálfstýrisflokksins hefur upplýst að hann hafi ekki átt heimangengt af persónulegum ástæðum og tekur fram að það hafi ekki neitt að gera með íslenska forsætisráðherrann. Alls ekki.
Nú hefur í nokkra daga staðið yfir skoðanakönnun á netsíðu færeyska dagblaðsins Dimmalætting. Þar er spurt: Eigum við að leyfa samkynhneigðum að ganga í hjónaband?
Þegar þetta er skrifað hafa 16 hundruð atkvæði skilað sér í hús (jafngilda 10 þúsund atkvæðum á Íslandi, miðað við höfðatölu). Þannig eru tölurnar núna:
Já 68%
Nei 27%
Veit ekki 5%
Ef þú vilt fylgjast með hvort staðan breytist er slóðin www.dimma.fo .
![]() |
Ótrúlegir fordómar í Færeyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 11.9.2010 kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (80)
7.9.2010 | 19:04
Jenis av Rana skýtur sig í fótinn
Á síðustu 4 árum hefur orðið gríðarleg viðhorfsbreyting í Færeyjum gagnvart samkynhneigðum. Vendipunkturinn var þegar gítarleikari rokksveitarinnar Makrel, Rasmus Rasmussen, varð fyrir fólskulegum barsmíðum nokkurra manna á skemmtistað. Ástæða barsmíðanna var sú ein að Rasmus er samkynhneigður og hafði ekki flúið land, öfugt við aðra samkynhneigða Færeyinga. Daginn eftir sætti Rasmus hótunum um frekari barsmíðar. Þegar fjölskylda Rasmusar óskaði eftir lögregluvernd kom í ljós að færeysk lög heimiluðu ofsóknir gegn samkynhneigðum.
Þetta vakti undrun og hneykslan víða um heim. Ekki síst á Íslandi og hinum Norðurlöndunum. Rannveig Guðmundsdóttir, þáverandi þingkona, tók málið upp á vettvangi Norðurlandaráðs. Geir Haarde, þá forsætisráðherra, Guðrún Ögmundsdóttir, þá þingkona, ég og ýmsir fleiri létu frá sér heyra í færeyskum fjölmiðlum.
Þetta var hörmulegur atburður. En nokkru skipti að Rasmus var vinsæll og virtur rokkari. Hafði spilað með flestum helstu rokksveitum Færeyja. Jafnframt stýrði hann eina alvöru rokkþættinum í færeysku útvarpi, Rokkstovunni. Færeyski tónlistarheimurinn snérist - eins og hann lagði sig - á sveif með Rasmusi. Ég endurtek: Eins og hann lagði sig. Einnig yngri kynslóðin að uppistöðu til. Ef einhver "no name" hommi hefði verið laminn er næsta víst að almenningsálitið í Færeyjum hefði ekki sýnt fórnarlambinu og málstaðnum sama stuðning.
Leikar fóru þannig að lögum í Færeyjum var breytt. Nú er óheimilt að ofsækja samkynhneigða. Jenis av Rana var fremstur í flokki þeirra sem börðust gegn nýju lögunum. Hann taldi áríðandi að hommar væru lamdir þangað til þeir myndu afhommast. Annars brenni þeir í vítislogum til eilífðar. Það er víst alveg hrikalegt helvíti. Jenis flaggaði í hálfa stöng ásamt trúfélögum sínum þegar nýju lögin voru samþykkt. Nú í haust hefur Jenis reynt að vinna fylgi frumvarpi þess efnis að nýju lögin verði afnumin. Nýjustu útspil hans hafa algjörlega komið í veg fyrir að þetta frumvarp hans eigi upp á pallborðið. Hann er búinn að girða rækilega í veg fyrir það. Hann er búinn að skjóta sig í fótinn.
Annað: Síðast þegar ég vissi var Rasmus kominn með kærasta í Færeyjum og sestur að á fámennri norð-austur eyju.
Enn annað: Í sumar hélt Elton John hljómleika í Færeyjum. Jenis brást við hart. Sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis að Elton John væri samkynhneigður útsendari Satans. Ummælin vöktu meiri athygli í Danmörku en Færeyjum. Elton John nýtur hlutfallslega hvergi meiri vinsælda en í Færeyjum. Næstum 6 þúsund manns mættu á hljómleika Eltons í Færeyjum. Það jafngildir því að 40 þúsund manns myndu borga sig inn á hljómleika á Íslandi. Það hefur aldrei gerst. Metið hérlendis er þegar 18 þúsund mættu á hljómleika hjá Metallica. Númer 2 eru 12 þúsund sem borguðu sig inn á hljómleika Rammstein.
Hræðsla Jenis av Rana við Elton John og kenningin um að hann sé útsendari Satans varð aðhlátursefni í Færeyjum. Ef Jenis hefði fordæmt á sama hátt einhverja minna vinsæla poppstjörnu hefðu kannski fleiri samsinnt bullinu í honum.
Framkoma Jenis av Rana í garð forsætisráðherra Íslands hefur vakið hörð viðbrögð í Færeyjum. Hver þungavigtarmanneskjan á fætur annarri hefur stigið fram og fordæmt Jenis av Rana. Þar á meðal æðstu ráðamenn Færeyja. Færeyingar bera mikinn og einlægan hlýhug til Íslendinga og finnst Jenis av Rana sýna íslensku þjóðinni skammarlegan dónaskap. Ef Jenis hefði sýnt fulltrúa annarrar þjóðar sömu viðbrögð er alveg klárt að samlandar hans hefðu ekki brugðist eins harkalega við.
Jenis av Rana er í frekar lokuðum trúarsöfnuði. Ekki alls fyrir löngu komst upp að Jenis hafði beitt sér í þöggun á barnaníði innan safnaðarins. Einhverjir í söfnuðinum standa þétt við bakið á Jenis. Almenningur er hinsvegar hættur að taka mark á honum. Og jafnvel farinn að fyrirlíta hann og skoðanir hans. Og skammast sín fyrir kallinn. Sem þeir þurfa ekki að gera. Alls ekki. Færeyingar eru frábærir. Eitt og eitt skemmt epli breytir engu um það. Við Íslendingar getum alveg greint Jenis av Rana frá færeysku þjóðinni. En auðvitað erum við þakklát færeysku þjóðinni fyrir að láta okkur vita að Jenis sé ekki talsmaður hennar.
Myndin hér fyrir neðan er af Rasmusi og borgarstjóra Reykjavíkur, Jóni Gnarr.
![]() |
Gegn vilja Guðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
28.8.2010 | 23:35
Aumingja Siggi, sem þorði ekki heim, grætur
Sigurður Einarsson, fyrrverandi hæstráðandi hjá Kaupþingi, grætur sáran undan því í viðtali hjá Ólafi Stephensen í Fréttablaðinu að hafa verið settur á bekk með hættulegum glæpamönnum í kjölfar þess að þráast við að mæta til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara. Sigurður telur sig ekki eiga heima í hópi hættulegra glæpamanna. Hann er nefnilega hættulaus glæpamaður. Að mestu. Ef hann sleppur ekki í tölvur og banka. Fyrsti hættulausi glæpamaðurinn - sá eini sinnar tegundar- hér á landi á.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 29.8.2010 kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
18.7.2010 | 02:08
Svona býr íslenski sendiherrann í Færeyjum
Færeyingar eru áhugasamir um fallegan arkitektúr og fögur húsakynni. Öfugt við Íslendinga sem sækja mest í ljótan arkitektúr og kunna engan veginn það sem einkennir færeyska byggingarlist: Að byggingar falli vel að umhverfinu.
Íslenski sendiherrann í Færeyjum, Albert Jónsson, býr í afar fallegu húsi í Þórshöfn. Svo skemmtilega vill til að konan hans, Ása Baldvinsdóttir, býr í sama húsi. Ennþá skemmtilegri tilviljun er að sonur þeirra, Baldvin, er hljómborðsleikari Lokbrár.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (53)