Skúbb! Færeyingar gefa út bók eftir íslensku forsætisráðherrafrúna

  Það er aldeilis skemmtileg tilviljun.  Núna hafa íslensku forsætisráðherrahjónin verið í opinberri heimsókn í Færeyjum.  Á sama tíma er verið að raða í hillur færeyskra bókaverslana splunkunýrri bók glóðvolgri úr prentsmiðjunni.  Bókin heitir  Elskar - elskar ikki.  Hún inniheldur sextán smásögur eftir 8 rithöfunda frá jafn mörgum löndum.  Fulltrúi Íslands er Jónína Leosdóttir,  eiginkona íslenska forsætisráðherrans,  Jóhönnu Sigurðardóttur.

  Bókin er gefin út af Færeyska kennarasambandinu og verður meðal annars notuð við kennslu.  Rauði þráðurinn í sögum bókarinnar er kærleikurinn.  Nafn bókarinnar er sótt í sögu Jónínu,  Elskar meg,  elskar meg ikki.

  Þingmaðurinn Jenis av Rana var spurður út í viðhorf hans til bókar sem inniheldur sögur eftir samkynhneigða konu,  giftri annarri konu.  Jenis er þekktur fyrir homo-fælni á háu stig og áhuga fyrir því að samkynhneigð sé lamin úr hommum.  Þeim til bjargar frá því að kveljast í vítislogum um eilífð.  Jafnframt hefur Jenis orðið uppvís af því að beita þöggun í barnaníði innan trúarsafnaðar sem hann veitir forstöðu.

  Svar Jenis av Rana var að í Færeyjum ríki tjáningarfrelsi öllum til handa öðrum en Jenis av Rana.

elskar-elskar ikki


mbl.is Dýrasta bók í heimi boðin upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Penis með Krana verður víst að fara að kynda upp fyrir næstu bókabrennu. En ég vil hins vegar óska Jónínu til hamingju með það að vera komin út á einu víðlesnasta tungutaki heims, eða svo til.

Ég skrifaði um frænda Peniss í gær, og gætir þú vinsamlegast sagt mér, hvort færeyskan mín ber vott um mellufærni, eða hvort Penis sé líklegur að bannfæra mig líka?

http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/1093067/

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 10.9.2010 kl. 06:50

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 10.9.2010 kl. 12:51

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

illbidemd.. villi er bara fyndin i dag

Óskar Þorkelsson, 10.9.2010 kl. 15:06

4 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 10.9.2010 kl. 18:49

5 Smámynd: Óskar Sigurðsson

Jensi er með Jenis á heilanum. Elskar hann, elskar ikke:) 

Þvílíkt orða skrum. Í fyrsta lagi getur Jóhanna ekki verið herra. Í öðru lagi geta tvær konur ekki verið hjón samkvæmt íslenskri tungu, "sjá orðabók" það hefur ekkert með trú að gera..... Er svart orðið hvítt er ljós orðið myrkur er hægri vinstri eða er Steingrímur Joð Sjálfstæðismaður...hvaða rugl er í gangi hér á landi. Það þyrfti að senda suma íslendinga til Færeyja í nám.  

Óskar Sigurðsson, 10.9.2010 kl. 18:50

6 Smámynd: Jens Guð

  Vilhjálmur,  Jenis av Rana gæti ekki skrifað mellufærari færeysku en þetta.  Þó STENDUR honum það nær.

Jens Guð, 10.9.2010 kl. 22:23

7 Smámynd: Jens Guð

  Ásdís,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 10.9.2010 kl. 22:23

8 Smámynd: Jens Guð

  Óskar,  það er galsi í stráknum.

Jens Guð, 10.9.2010 kl. 22:24

9 Smámynd: Jens Guð

  Ómar Ingi,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 10.9.2010 kl. 22:24

10 Smámynd: Jens Guð

  Óskar,  Jóhanna er forsætisráðherra.  Það er hennar titill.  Alveg eins og Vigdís var forseti.  Hanna Birna var borgarstjóri.  Og svo framvegis.  Nútíminn er að kallast á við fortíðina sem hefur ekki verið uppfærð í orðabók Menningarsjóðs.

Jens Guð, 10.9.2010 kl. 22:29

11 identicon

Jóhanna er forljótráðherfa

Gsss (IP-tala skráð) 11.9.2010 kl. 00:12

12 Smámynd: Hannes

En áhugavert. Það er vonandi að Janis av Rana komi ekki nálagt neinum lögum sem hafa áhrif á líf samkynhneigðra.

Hannes, 11.9.2010 kl. 01:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband