Fćrsluflokkur: Ljóđ

Jón Ţorleifs II

óli jó

  Fyrir nokkrum dögum skrifađi ég bloggfćrslu um Jón Ţorleifsson,  verkamann og rithöfund.  Ég sagđist ćtla ađ skrifa ţćr fleiri um ţann merka mann.  Ekki síst til ađ halda minningu hans á lofti.  Hann á ţađ skiliđ.  Og hefđi ekki veriđ ţví mótfallinn.  Svo mikiđ er víst.  Hann kvartađi undan ţví ađ vera beittur ţöggun.  Sniđgenginn af fjölmiđlum og bćkur hans faldar í bókaverslunum.  Engu ađ síđur náđi hann ađ selja alveg 500 - 600 eintök af hverri bók.  En vissulega fór ekki mikiđ fyrir ţeim bókum í fjölmiđlum eđa í bókabúđum.

  Nokkrum dögum eftir ađ ég kynntist Jóni í afmćlishófi Dagsbrúnar 1974 hitti ég Jón á gangi í Bankastrćti.  Viđ tókum tal saman.  Skyndilega stökk Jón fram á gangstéttarbrún,  rak út úr sér tunguna og setti upp "langt nef".  Ţađ er ađ segja spennti í sundur fingur beggja handa út frá nefinu á sér.

  Mér varđ litiđ út á götu ţangađ sem Jón beindi "langa nefinu".  Ţar ók hjá ráđherrabíll međ Ólaf Jóhannesson í aftursćti.  Ólafur var ţá forsćtisráđherra.  Hann var međ hliđarrúđu skrúfađa niđur, veifađi Jóni og kallađi til hans:  "Sćll vertu,  Jón!"

  Ţetta gerđist frekar hratt og bíllinn var horfinn međ ţađ sama.  Ég spurđi:  "Hvađ er í gangi?"

  Jón svarađi rólega,  eins og um hversdagslegan atburđ vćri ađ rćđa:  "Ég átti fund međ honum um daginn.  Ţađ er ekki hćgt ađ kasta á hann kveđju öđru vísi en svona.  Hann er fífl!" 

  Svo fór Jón ađ tala um eitthvađ allt annađ.  


Jón Ţorleifs

jakinn.jpggunnar thor 

  Á nćstunni ćtla ég ađ rifja upp sögur af Jóni nokkrum Ţorleifssyni.  Hann féll frá fyrir nokkrum árum.  Ţá kominn hátt á tírćđisaldur.  Hann var sérkennilegur um margt.  Góđur mađur sem varđ fjölskylduvinur.  Sögurnar eiga kannski mest erindi viđ okkur sem ţekktum Jón.  Okkur ţótti vćnt um hann.  Hann var nánast í afahlutverki sona minna og systurbarna minna.  Börnin elskuđu hann.  Mér er kunnugt um ađ ţannig hafi ţađ einnig veriđ um börn fleiri.  Til ađ mynda Birgis Svans Símonarsonar.

  Jón var einstćđingur.  Hann bjó alltaf einn og var barnlaus.

  Á gamals aldri tók Jón upp á ţví ađ senda frá sér bćkur.  Ţćr voru allt frá ţví ađ vera sjálfsćvisögulegar (Nútíma kviksetning),  til ţess ađ vera ljóđabćkur,  skáldsögur og hugleiđingar um heimsmál.

  Ég hitti Jón fyrst 1974.  Ţá lenti ég til borđs međ honum í afmćlishófi verkalýđsfélagsins Dagsbrúnar.  Ţáverandi iđnađarmálaráđherra,  Gunnar Thoroddsen,  mćtti í hófiđ.  Gunnar heilsađi gestum međ handabandi og óskađi til hamingju međ daginn.  Ţegar Gunnar kom ađ Jóni spratt Jón á fćtur og tróđ höndum í vasa.  Um leiđ sagđi hann:  "Ég ćtla ekki ađ óhreinka mig á ţví ađ taka í hönd ţína."  Gunnar lét sér í engu bregđa og sagđi:  "Ţá heilsumst viđ bara ađ gömlum bćndasiđ:  Međ kossi á kinn."  Gunnar gerđi sig líklegan til ađ fylgja ţví eftir.  Jón hörfađi snöggt og mćlti:  "Ég kýs ađ brúka kjaftinn öđru vísi á ţig."

  Viđ ţetta kom fát á Gunnar.  Hann leit í kringum sig,  tvísté og sagđi viđ konu sína:  "Viđ skulum finna okkur sćti."  Sem ţau og gerđu án ţess ađ heilsa fleirum međ handabandi.

  Síđar hćldi Jón sér af ţví ađ hafa kippt Gunnari ofan úr fílabeinsturni og komiđ honum í skilning um ađ hann vćri ekki merkilegri en verkafólkiđ í afmćlishófinu.  "Jafnvel ómerkilegri," sagđi Jón.  

  Nćst flutti Gvendur Jaki ávarp.  Ávarpinu lauk međ ţví ađ Gvendur bauđ gestum ađ njóta veitinga sem í bođi voru.  Ţá spratt Jón á fćtur.  Hann lyfti yfir höfđi sér tómum kaffibolla og tómum kökudiski og kallađi:  "Ţú ţarft ekki ađ hafa áhyggjur af ţví,  Guđmundur J., ađ ég taki meira en ţú ćtlar mér!".

  Kurr kom á sessunauta Jóns.  Ţeir sussuđu á hann og sögđu ţetta ekki vera rétta tilefni til leiđinda.  Jón svarađi ţví til ađ hann léti ekki "stráklinga" segja sér fyrir verkum.  Beindi hann einkum orđum ađ Benedikt Kristjánssyni (Benediktssonar,  ţáverandi borgarfulltrúa Framsóknarflokksins),  bróđir Baldurs,  prests í Ţorlákshöfn.

  Í afmćlishófinu stóđ Jón viđ yfirlýsingu sína til Gvendar Jaka.  Fékk sér hvorki vott né ţurrt en lék á alls oddi.  Enda búinn ađ koma skýrum skilabođum áleiđis.  

 

   


Spennandi plata

  Núna í lok septembermánađar kemur út í Bandaríkjum Norđur-Ameríku platan  Note of Hope.  Ţar flytja margir af ţekktustu popptónlistarmönnum Bandaríkjanna söngva Woodys Guthtries.  Ţeirra á međal eru Lou Reed,  Jackson Browne,  Tom Morello (Rage Against the Machine),  Michael Franti (Beatnigs,  Spearheads) og Ani Di Franco.   

  Ţađ er bassasnillingurinn og Grammy-verđlaunahafinn Rob Wasserman sem heldur utan um dćmiđ.  Hann hefur m.a. spilađ međ Neil Young,  Brian Wilson,  Elvis Costello,  Stephane Grappelli,  Jerry Carcia (Grateful Dead) og Ricky Lee Jones. 

  Woody Guthrie er eitt af stćrstu nöfnum bandarískarar vísnatónlistar (folk).  Hann er stundum kallađur fađir bandarískrar ţjóđlagatónlistar.  Hann fćddist snemma á síđustu öld og dó 1967 eftir ađ hafa legiđ rúmfastur og lamađur í meira en áratug.  Hann var og er mikill áhrifavaldur og fyrirmynd Bobs Dylans,  U2,  Bruce Springsteens, Joes Strummers (The Clash),  Billys Braggs,  Bubba Morthens,  Megasar og margra fleiri.

  Söngvar hans hafa veriđ krákađir af allt frá Johnny Cash til ţungarokkara á borđ viđ Nazareth.

  Ţekktasta lag Woodys er sennilega  This Land Is Your Land  sem var flutt af Bruce Springsteen og fleirum viđ innsetningu Husseins Obama í embćtti forseta Bandaríkjanna.  Frjálshyggjugrallarinn Mojo Nixon flytur ţađ hér í myndbandinu efst. 

  Woody Guthrie var Jesú-kall,  verkalýđssinni,  anti-rasisti,  anti-fasisti og alvöru farandssöngvari.  Flakkađi stöđugt um Bandaríkin,  rótlaus og í stöđugri uppreisn.  Honum buđust ótal tćkifćri:  Ađ stjórna útvarpsţáttum,  syngja inn á plötur hjá plöturisum og annađ í ţeim dúr.  En hann lét hvergi ađ stjórn.  Stakk óvćnt af og fór á flakk.

  Hann stakk líka ítrekađ af frá konum sínum 3 og eignađist 8 börn.  Sonur hans,  Arlo Guthrie,  varđ eitt af stóru nöfnum Woodstock kynslóđarinnar.

  Skemmtilegt ađ rifja upp:  Fyrir nokkrum árum bankađi Arlo óvćnt upp hjá Rúnari Júlíussyni í Keflavík.  Ţeir höfđu hist í hljóđveri í Bandaríkjunum mörgum árum áđur og varđ vel til vina.  Rćtur ţeirra lágu í tónlist Woodys, Bobs Dylans og fleiri.  Ţađ varđ ţó ekki framhald á samskiptum ţeirra.  Ţangađ til Arlo flaug hingađ í einkaţotu til ţess eins ađ heilsa upp á Rúnar.  Andlitiđ datt af Rúnari.  Honum ţótti međ ólíkindum ađ Arlo kynni nafn hans og myndi eftir ađ hann byggi í Kerflavík.  Ţeir snćddu saman á veitingastađ og Arlo stakk upp á ţví ađ ţeir myndu gera saman plötu.  Svo féll Rúnar frá áđur en lengra var haldiđ.

  Ţó ađ fjöldi söngva Woodys séu vel ţekktir ţá var ađeins eitt sem náđi toppsćti bandaríska vinsćldalistans.  Ţađ var  Oklahoma Hills  í flutningi frćnda hans,  Jackie Guthrie.  Sá skráđi sig fyrir laginu.  Woody ţurfti ađ ná höfundarréttinum fyrir atbeina dómsstóla.  Annars var Woody ekki upptekinn af höfundarrétti.  En í ţessu tilfelli var honum misbođiđ.  Woody vann máliđ og var ósáttur viđ frćnda sinn.  Í dag er ţetta lag sennilega ţekktast í flutningi Jimi Reeves:

  Flottasta bandaíska hljómsveit Bandaríjanna,  Wilco,  sendi fyrir nokkrum árum frá sér 2 plötur međ söngvum Woodys og var tilnefnd til Grammy-verđlauna fyrir ţćr báđar.  Međ í dćminu var breski vísnapönkarinn Billy Bragg.  Ţetta er dáldiđ Utangarđsmannalegur blús. 

  Ađrir sem kráka söngva Woodys Guthries á plötunni sem um rćđir og hafa ekki veriđ nefndir eru:  Van Dyke Parks (međhöfundur margra Beach Boys laga,  vann međ The Byrds,  U2 og ótal öđrum stórum nöfnum);   Madeleine Peyroux (ţekkt fyrir flutning á söngvum eftir Leonard Cohen,  Bob Dylan og Hank Williams.  Hún hefur veriđ kölluđ Billie Holyday 21. aldarinnar);  djassboltinn Kurt Elling (nífaldur Grammy-verđlaunahafi.  Kannski ţekktastur fyrir ađ spila međ blúsaranum Buddy Guy og Smashing Pumpkins forsprakkanum Billy Corgan);  Studs Terkel (hann er dáinn en er kannski ţekktastur fyrir bókina Giants of Jazz);  Nellie McKay (sló í gegn í uppfćrslu á  Túskildingsóperu  Kurts Weills og Bertholds Brechts í Bandaríkjunum 2006);  Chris Whitley (blúsgítarleikari sem féll frá 2005);  Pete Seeger (150 ára gamall vísnasöngvari);  og banjóleikarinn Tony Trischla (hefur m.a. spilađ međ Paul McCartney og Steve Martin). 

  Vegna ţess ađ Studs og Chris eru fallnir frá má ćtla ađ um gamlar hljóđritanir međ ţeim á söngvum Woodys Guthries sé ađ rćđa.  Annađ kćmi á óvart.


Hljómsveit sendir kirkju hommahatara tóninn

 

  Í frétt mbl.is af íslenskum tökustjóra bandarísku gruggsveitarinnar Nirvana er hann sagđur heita Ágúst Bjarnason.  Ég hef sterkan grun um ađ ţessi sonur Húnvetningsins Kobba sé Jakobsson.  Ég veit ekki hvađa Bjarna er ţarna blandađ inn í dćmiđ.   Ég ţarf ađ spyrja Kobba vin minn út í ţađ.  Ég er ekki viss um ađ hann viti af ţessu međ Bjarna.  Ágúst hefur unniđ međ mörgum fleiri súperstjörnum en Nirvana og Guns ´N´ Roses.  Hann gerđi til ađ mynda myndbandiđ frćga og flotta viđ ballöđuna  Hollywood međ Hebba Guđmunds.

  Seattle-hljómsveitin Nirvana var međal annars ţekkt fyrir hćđni í garđ hommafćlinna.  Framvörđur hljómsveitarinnar,  Kurt Cobain,  var eitt sinn handtekinn fyrir ađ mála međ úđabrúsa "God is gay" á vegg.  Í annađ skipti fóru hann og bassaleikarinn í sleik í sjónvarpsútsendingu.  

  Trommari Nirvana,  Íslandsvinurinn Dave Grohl,  heldur uppteknum hćtti.  Núna fer hann fyrir hljómsveitinni Foo Fighters.  Á dögunum brugđu liđsmenn Foo Fighters sér í gervi rauđhálsa Suđurríkjanna (rednecks) og sprelluđu í hommahöturum Westboro Baptist Church.  Sá söfnuđur hatar einnig Barack Hussein Obama,  forseta Bandaríkjanna, og telur hann vera Anti-Krist (eins og 40 milljónir landa sinna).  Ţá er ađeins fátt upp taliđ af ţví sem kirkja ţessi hatar.  Mannréttindaráđ  Reykjavíkur myndi ekki leggja blessun sína yfir fjáraustur úr borgarsjóđi í ţessa kirkju.

  Í međfylgjandi myndbandi kastar Dave Grohl kveđju á haturssöfnuđinn.  Í millikafla leggur Dave út af bandaríska ţjóđsöngnum og segist síđan ekki fara í manngreinaálit eftir húđlit fólks,  eđa hvort ţađ sé Pennsylvaníar (les:  Frá Pennsylvaniu) eđa Transylvaníar (les:  Fengiđ kynleiđréttingu),  Lady Gaga eđa Lady Antebellum;  konur elski konur eđa kallar elski kalla.

  Vegna ofurvinsćlda Foo Fighters hafa fjörleg samskipti hljómsveitarinnar viđ haturskirkjuna vakiđ mikla athygli.

     

 


mbl.is Íslendingur tökustjóri hjá Nirvana
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ókeypis plata! Gjörđu svo vel! Assgoti áhugaverđ og merkileg!

newermind_cd.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Annađ tveggja söluhćsta bandaríska poppmúsíktímaritiđ er Spin.  Ţađ söluhćsta er Rolling Stone,  sem jafnframt er söluhćsta poppmúsíktímarit heims.  Spin spriklar stöđugt.  Núna í tilfefni af 20 ára afmćli plötunnar  Nevermind  međ Nirvana.  Plötunni sem kippti grugginu (grunge) upp á yfirborđiđ og negldi ţađ í toppsćti vinsćldalista út um allan heim. 

  Spin-liđar hafa smalađ saman í einn pakka krákum af öllum lögunum á  Nevermind.  Međal flytjenda eru hljómsveitirnar The Meat Puppets og The Vaselines.  Nirvana krákađi lög frá ţeim á plötu sinni  MTV Unplugged in New York. Skemmtileg tilviljun.  Önnur skemmtileg tilviljun er ađ flutningur The Vaselines ber sterkan Bítlakeim.  Kurt Cobain var frá 2ja ára aldri forfallinn Bítlaađdáandi.

  Ţú getur eignast ţessa Spin-plötu,  Newermind.  Hún er ókeypis.  Ţađ eina sem ţú ţarft ađ gera er ađ smella á ţennan hlekk:  http://www.spin.com/articles/free-album-spin-tribute-nirvanas-nevermind  og síđan á "Enter E-mail and Download.  Ţá fćrđu í netfangiđ ţitt sendan hlekk.  Ţú smellir á hann og platan er ţín.  Ţú ţarft ekkert ađ hafa keypt eintak af tölublađinu sem platan fylgir eđa vera áskrifandi ađ tímaritinu.  Ţetta er ókeypis fyrir alla.  

  Ţetta er dúndur áhugavert dćmi. 


Skúbb! Íslensk hljómsveit međ spennandi útgáfusamning í Bandaríkjunum

  Ţađ er skammt stórra högga á milli hjá hljómsveitinni Q4U.  Stigvaxandi vinsćldir hljómsveitarinnar hérlendis og enn fremur erlendis eru heldur betur ađ hlađa utan á sig ţessa dagana.  Ef svo heldur áfram sem horfir verđur ţess ekki langt ađ bíđa ađ Q4U verđi ein allra söluhćsta íslenska hljómsveit sögunnar. 

  Í síđasta mánuđi gaf eitt stćrsta brasilíska plötufyrirtćkiđ,  Wave Records,  út safnplötu ţar í landi međ Q4U,  Q4U: Best Of  (sjá www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1183818/ ).  Plötunni hefur veriđ gífurlega vel tekiđ og útgefandinn ţrýstir mjög hart á hljómsveitina ađ koma í hljómleikaferđ til Brasilíu. 

  Svo skemmtilega vill til ađ á sama tíma eru hljómleikahaldarar í Ţýskalandi og Bandaríkjunum ađ suđa í Q4U um hljómleikahald á ţeirra slóđum.  Q4U á harđsnúinn ađdáendahóp í Ţýskalandi og hefur selt margfalt fleiri eintök af íslensku safnplötunni sinni ţar en hérlendis. 

  Spurn eftir hljómleikum međ Q4U í New York má sennilega ađ einhverju leyti rekja til útgáfu plötunnar í Brasilíu.

  Nú var Q4U ađ berast girnilegt tilbođ frá bandarísku plötufyrirtćki,  Dark Entries, um útgáfu í Bandaríkjunum.  Ţađ er hugur í fyrirtćkinu og margt spennandi í pokanum.  Međal annars vill ţađ byrja á ţví ađ gefa út vinylplötu međ hljómsveitinni. 

  Bandaríski plötusamningurinn kom jafn óvćnt og brasilíski plötusamningurinn.  Útgefandinn er á engan hátt tengdur ţeim sem vilja fá Q4U til hljómleikahalds í Bandaríkjunum.  Útgefandinn rakst á eitthvađ međ Q4U á netinu og hefur um nokkurt skeiđ reynt ađ ná sambandi viđ liđsmenn hljómsveitarinnar.  Ţađ gekk ekki fyrr en núna í vikunni.

  Skýringuna á vinsćldum Q4U erlendis má ađ einhverju leyti rekja til fyrirbćris sem kallast naum-bylgjan (minimal wave).  Hún nćr yfir nákvćmlega músíkstíl Q4U,  söngrćnt (melódískt) synth-goth-pönk af gamla skólanum (ađ hćtti nýbylgjuhljómsveita pönkbyltingarinnar á seinni hluta áttunda áratugarins og upphafi níunda áratugarins).  Ţessi músíkstíll var ađeins skilgreindur sem nýbylgja ţangađ til 2005.  Ţá hóf göngu plötufyrirtćkiđ Minimal Wave sem sérhćfir sig í útgáfu platna í naum-bylgjustíl.

  Ađdáendur naum-bylgjunnar eru ekki mjög fjölmennir í samanburđi viđ ađdáendahóp ţungarokks eđa blúss.  En halda ţeim mun betur hópinn á netsíđum og víđar,  skiptast á upplýsingum og benda hver öđrum á spennandi hljómsveitir.

  Til gamans má geta ţess ađ ţađ er fyrir löngu síđan uppselt á hljómleika Q4U á Airwaves.  Ţangađ hafa fjölmargir erlendir blađamenn bođađ komu sína.  Ţá er brasilíska platan komin í sölu í 12 tónum. 

q4u-best-of

 


Jack White, Depeche Mode og Patti Smith kráka U2

  Írska hljómsveitin U2 er sennilega stćrsta rokkdćmiđ í heiminum nú til fjölda ára.  Ég kunni vel viđ músík U2 framan af ferli hljómsveitarinnar.  Ţađ var gaman ađ vera í Bandaríkjunum voriđ 1997 ţegar hljómsveitin sló ţar í gegn svo um munađi.  Lögin  With Or Without You  og  I Still Havn´t Found What I´m Looking For  náđu 1. sćti bandaríska vinsćldalistans.  Og einnig platan  The Joshua Tree.  Áđur höfđu hvorki lög né plötur U2 náđ inn á Topp 10 í Bandaríkjunum.  Í Evrópu var hljómsveitin ţaulvön toppsćtinu á vinsćldalistum.

  Ofurvinsćldir Íranna í Bandaríkjunum vöktu mikla athygli.  Ţarlendir fjölmiđlar voru undirlagđir umfjöllun um hljómsveitina.  Ţar fór músíksjónvarpađ MTV fremst í flokki og ţađ var varla hćgt ađ stilla á ţá stöđ án ţess ađ veriđ vćri ađ spila U2. 

  Svo skemmtilega vildi til ađ ţegar ég flaug til Bandaríkjanna var í flugvélinni bandaríska fréttablađiđ Time.  Ţar var góđ og mikil grein um U2.  Ég keypti eintak af blađinu ţegar lent var í Bandaríkjunum.  Ţá uppgötvađi ég ađ bandarísk útgáfa af Time er frábrugđin ţeirri sem seld er í Evrópu.  Greinin í bandaríska Time var allt öđru vísi en greinin sem ég las í flugvélinni.

  Ég var í hálfan annan mánuđ ađ ţessu sinni í Bandaríkjunum og allan tímann tröllreiđ U2 ţarlendum útvarpsstöđvum,  sjónvarpsstöđvum og prentmiđlum.  Ţađ ţótti saga til nćsta bćjar ađ írsk hljómsveit vćri ţađ heitasta á markađnum. 

  Einhversstađar á ţessum tímapunkti - eđa skömmu síđar - fjarlćgđust U2 minn pönkađa anti-popp músíksmekk.  Viđ höfum ekki átt nána samleiđ síđan. 

  Núna hafa nokkrar frćgar poppstjörnur tekiđ sig til og eru ađ senda frá sér plötu ţar sem ţeir kráka lögin af plötu U2  Acthung Baby.  Ţeirra á međal eru bandaríski gítarleikarinn og söngvarinn Jack White (The White Stripes),  bandaríska "pönk" drottningin Patti Smith,  enska tölvupoppssveitin Depeche Mode og írski popparinn Damien Rice. 

  Bono lýsti Patti Smith eitt sinn í rćđu viđ afhendingu tónlistarverđlauna sem móđir sinni,  elskhuga og ég man ekki hvađ.  Patti brást hin versta viđ og frábađ sér ţátttöku í hans "dirty works".  Ţau eru engu ađ síđir góđir vinir.  U2 skorađi í 6. sćti breska vinsćldalistans međ lagi Pattíar,  Dancing Barefood.  Bono sagđi viđbrögđ Pattíar viđ ummćlum sínum vera "ekta Patti Smith".  Hann hefđi orđiđ fyrir vonbrigđum međ hana ef hún hefđi brugđist öđru vísi viđ.

 


Skálmöld og Týr í Metal Hammer

  Jómfrúarplata Skálmaldar,  Baldur,  er til umfjöllunar í nýjasta hefti breska ţungarokksblađsins Metal Hammer.  Metal Hammer er annađ tveggja af helstu tímaritum ţungarokksins á heimsmarkađi ásamt Kerrang!.  Blađamađur Metal Hammer sótti G!Festival í Götu í Fćreyjum í síđasta mánuđi.  Ég vonađist til ađ hann myndi gera G!Festivali skil í blađinu.  Ţađ hefđi veriđ gaman.  Sérstaklega af ţví ađ mér tókst ađ ljúga ađ honum ađ liđsmenn fćreysku tilraunarhljómsveitarinnar Orku spili ekki á hefđbundin hljóđfćri vegna fátćktar.  Eftir á ađ hyggja var ţađ óraunhćf von ţví ađ Metal Hammer afgreiđir ađeins ţungarokkshátíđir.  Ţess í stađ pikkađi blađamađurinn út plöturnar  Baldur  međ Skálmöld og  The Lay of Thrym  međ Tý.  Ţessar tvćr hljómsveitir voru ađ hans mati ţćr áhugaverđustu á G!Festivali.  Enda voru ţćr ţađ. 

  Umsagnir blađamannsins um  Baldur  og  The Lay of Thrym  eru afskaplega lofsamlegar.  Hann gefur ţeim báđum einkunnina 7 af 10.  Ţađ jafngildir 3 og hálfri stjörnu af 5.  Sem er aldeilis glćsilegt ţví ađ Metal Hammer er ekki ţekkt fyrir ađ bruđla í einkunnargjöf.

  Ţađ ađ ţessar plötur séu teknar til umfjöllunar í Metal Hammer og fái ţetta jákvćđa umsögn er öflug kynning fyrir Skálmöld og Tý og stađsetur ţćr bćrilega inn á kortiđ hjá ţungarokksunnendum um allan heim.  Ţegar má merkja ţađ í aukinni spilun á myndbandinu hér fyrir ofan á ţútúpunni.  Ţegar ţetta er skrifađ hafa um 25 ţúsund manns skođađ ţetta myndband. 

 


Ţessu máttu ekki missa af

  Dagskrá Menningarnćtur á morgun er svakaleg.  Frambođ á spennandi uppákomum er svo mikiđ ađ erfitt er ađ velja.  Virkilega erfitt.  Til ađ mynda eru Q4U ađ spila á Dillon Bar á sama tíma og Frćbbblarnir spila Viđ Tjörnina.  Hljómleikar beggja hljómsveitanna hefjast klukkan 22.00. 

  Heildarlista yfir ţađ sem í bođi er má finna á www.menningarnott.is.  Fyrir utan ţau atriđi sem mest hafa veriđ kynnt í fjölmiđlum tel ég brýnt ađ vekja athygli á eftirfarandi:

  -  Sendistofa Fćreyja í Austurstrćti er međ opiđ hús á milli klukkan 14.00 til 18.00.  Ţar er bođiđ upp á smakk á fćreyskum mat og drykk; fćreyskir rithöfundar lesa upp úr verkum sínum og Guđríđ Hansdóttir tekur lagiđ.  Nafn hennar er framboriđ Gúrí.  Guđríđ syngur frumsamin lög viđ eigin gítarundirleik.  Textar hennar eru ýmist á fćreysku eđa ensku og jafnvel á báđum tungumálum í einu og sama lagi.  Músíkstíl hennar má kalla framsćkna vísnatónlist (alt-folk).  Flott músík.

  -  Guđríđ skemmtir ásamt hljómsveit sinni á Óđinstorgi klukkan 17.30.

  -  Guđríđ skemmtir ásamt hljómsveit sinni á Dillon Rock Bar klukkan 20.00.  Ţađ verđur fjör.

  -  Teitur Lassen skemmtir í Hörpu klukkan 18.00.  Teitur er heimsfrćgastur fćreyskra tónlistarmanna.  Lög hans hafa veriđ notuđ í frćgum amerískum kvikmyndum og sjónsvarpsţáttum.  Myndbönd hans hafa veriđ í heitri spilun í músíksjónvarpsstöđvum út um allt.  Einstök lög hans hafa náđ vinsćldum hérlendis.  Ţeirra frćgast er Louis, Louis.

    - Listfrćđingurinn Oggi Lamhauge leiđir gesti um myndlistasýningu Elinborgar Lutzen í salnum Flóanum í Hörpu klukkan 15.00, 17.00 og 21.00.  Elinborg féll frá fyrir 16 árum.  Hún var teiknari og grafíkeri.


Gömul kona stelur lagi frá Bubba

  Á myndbandinu hér fyrir ofan má glöggt heyra hvernig fingralöng gömul kona tekur ófrjálsri hendi,  stelur,  frá Bubba hans besta lagi,  Ţađ er gott ađ elska.  Hún sneyđir lipurlega hjá viđlaginu.  Myndbandiđ mátti nefnilega ekki fara upp í 5 mín. ađ lengd.  Meira máli skiptir ađ hún er ađ segja ljóđrćna sögu og flytur ţetta ţví sem ljóđsöng fremur en poppklisju. 

  Sú gamla er búsett í útlandinu.  Hún safnar töngum.  Myndbandiđ er tekiđ í eldhúsinu hjá henni fyrir framan horniđ ţar sem hún rađar uppáhalds töngunum sínum.  Ađrar tengur, sem hún heldur ekki eins mikiđ upp á, geymir hún inni á bađherberginu.  Hún safnar líka tannstönglum.

  Sumir segja konuna vera 105 ára.  Ađrir segja ađ hún sé ekki til.  Hún sé bara ţjóđsaga.  Eins og Mike Tyson. 
.

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband