Hljómsveit sendir kirkju hommahatara tóninn

 

  Í frétt mbl.is af íslenskum tökustjóra bandarísku gruggsveitarinnar Nirvana er hann sagður heita Ágúst Bjarnason.  Ég hef sterkan grun um að þessi sonur Húnvetningsins Kobba sé Jakobsson.  Ég veit ekki hvaða Bjarna er þarna blandað inn í dæmið.   Ég þarf að spyrja Kobba vin minn út í það.  Ég er ekki viss um að hann viti af þessu með Bjarna.  Ágúst hefur unnið með mörgum fleiri súperstjörnum en Nirvana og Guns ´N´ Roses.  Hann gerði til að mynda myndbandið fræga og flotta við ballöðuna  Hollywood með Hebba Guðmunds.

  Seattle-hljómsveitin Nirvana var meðal annars þekkt fyrir hæðni í garð hommafælinna.  Framvörður hljómsveitarinnar,  Kurt Cobain,  var eitt sinn handtekinn fyrir að mála með úðabrúsa "God is gay" á vegg.  Í annað skipti fóru hann og bassaleikarinn í sleik í sjónvarpsútsendingu.  

  Trommari Nirvana,  Íslandsvinurinn Dave Grohl,  heldur uppteknum hætti.  Núna fer hann fyrir hljómsveitinni Foo Fighters.  Á dögunum brugðu liðsmenn Foo Fighters sér í gervi rauðhálsa Suðurríkjanna (rednecks) og sprelluðu í hommahöturum Westboro Baptist Church.  Sá söfnuður hatar einnig Barack Hussein Obama,  forseta Bandaríkjanna, og telur hann vera Anti-Krist (eins og 40 milljónir landa sinna).  Þá er aðeins fátt upp talið af því sem kirkja þessi hatar.  Mannréttindaráð  Reykjavíkur myndi ekki leggja blessun sína yfir fjáraustur úr borgarsjóði í þessa kirkju.

  Í meðfylgjandi myndbandi kastar Dave Grohl kveðju á haturssöfnuðinn.  Í millikafla leggur Dave út af bandaríska þjóðsöngnum og segist síðan ekki fara í manngreinaálit eftir húðlit fólks,  eða hvort það sé Pennsylvaníar (les:  Frá Pennsylvaniu) eða Transylvaníar (les:  Fengið kynleiðréttingu),  Lady Gaga eða Lady Antebellum;  konur elski konur eða kallar elski kalla.

  Vegna ofurvinsælda Foo Fighters hafa fjörleg samskipti hljómsveitarinnar við haturskirkjuna vakið mikla athygli.

     

 


mbl.is Íslendingur tökustjóri hjá Nirvana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Frábært

Axel Jóhann Hallgrímsson, 20.9.2011 kl. 21:41

2 Smámynd: Jens Guð

  Axel,  veist þú hver þessi Bjarni er sem Mogginn kennir Ágúst við?  Varla er það Bjarni Jónsson,  pípulagningameistari Húnvetninga úr Vatnsdal?

Jens Guð, 20.9.2011 kl. 22:03

3 Smámynd: Jens Guð

  Lagið fyrir ofan færsluna er úr smiðju morðingjans Leadbellys.  Frábært lag.  Til gamans má geta að Kurt Cobain hafði áform um að verða nútíma Leadbelly.  Hann ætlaði að túra um Bandaríkin,  spila á gítar sem Leadbelly átti og spila lög eftir hann í bland við eigin lög í Leadbelly stíl.  Áður en af því varð tók Kurt líf sitt. 

Jens Guð, 20.9.2011 kl. 22:27

4 Smámynd: Jens Guð

  Leadbelly var blökkumaður og frábær söngvahöfundur.  Hann dó 1949.  Söngvar hans lifa.  Til eru ýmsar íslenskar krákur af söngvum hans.  Sú frægasta er "Í kartöflugörðunum heima" með Árna Johnsen.  Hér er það í flutningi CCR:  www.youtube.com/watch?v=C4zPEmRufMU

Jens Guð, 20.9.2011 kl. 22:32

5 Smámynd: Ómar Ingi

Þetta er rétt Jens , Meistari Ágúst er Jakobsson en ekki Bjarnasson.

Þessi snillingur hefur unnið með ekki bara Guns & Roses og Nirvana heldur Red Hot Chillipeppers og svo ofboðslega mörgum öðrum heimsfrægum og minna frægum og alls ekki frægum böndum fyrir utan allt chelsky fótboltaliðið sem hann á alltaf ársmiða á, enda býr hann í London og hann hefur myndað fleiri frægar stjörnur sem ég gæti nefnt, en Gústi er ekkert mikið að flagga þessu en er einn af okkar bestu tökumönnum fyrr og síðar og góður drengur.

Ómar Ingi, 21.9.2011 kl. 00:34

6 Smámynd: Jens Guð

  Ómar Ingi,  það var nákvæmlega það sem ég hélt.  Ég er alltaf að hitta fólk sem sem þekkir Ágúst og setur hann í samhengi við allskonar nöfn sem eru fræg en ég þekki ekki.  Bara eitt lítið dæmi:  Maður mér tengdur var að vinna á Keflavíkurflugvelli.  Þá kom Áfgúst þangað með liðsmönnum GNR en flugvélin náði ekki lendingu vegna veðurs og varð að snúa við án lendingar.  Mér skilst að erindið hafi aðeins verið það að fá sér íslenska hamborgara. 

Jens Guð, 21.9.2011 kl. 00:49

7 Smámynd: Jens Guð

  En hvaðan kemur þessi Bjarnasonar feðrun?

Jens Guð, 21.9.2011 kl. 00:50

8 Smámynd: Jens Guð

  Ágúst átti það að vera (en ekki Áfgúst).  Ég biðst velvirðingar á innsláttarvillunni.

Jens Guð, 21.9.2011 kl. 00:53

9 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Er Kobbi Húnvetningur ekki leigubílstjórinn Jakob Þorsteinsson??

Helga Kristjánsdóttir, 21.9.2011 kl. 04:23

10 identicon

Westboro eru nú bara að taka biblíu eins og hún er; Það er klárt :) Bókin er ekki eins sjarmerandi og kúltúr-krissar telja; Þvert á móti fá allir heiðvirðir menn sjokk við aflestur bókarinnar og boðskaps hennar.

:)

DoctorE (IP-tala skráð) 21.9.2011 kl. 11:01

11 Smámynd: Jens Guð

  Helga,  síðast þegar ég vissi vann hann hjá Sjónvarpsmiðstöðinni til fjölda ára.  Ég held að hann sé hættur að vinna.  Sem ungur maður bjó hann á Akureyri.  Ég veit ekki hvort hann var einhvern tíma leigubílstjóri. 

Jens Guð, 21.9.2011 kl. 12:52

12 Smámynd: Jens Guð

  DoctorE,  þeir taka bókina eins og Friðrik Schram.

Jens Guð, 21.9.2011 kl. 12:54

13 identicon

Hvar er rökvillan?......"Samtök samkynhneigðra töldu fyrir nokkrum áratugum að þeir úr þeirra hópi sem vildu lifa eftir hneigð sinni væru beittir misrétti af gagnkynhneigðum. Nú virðist dæmið hafa snúist við: Gagnkynhneigt fólk sem lætur í ljós andúð á kynlífi fólks af sama kyni er beitt misrétti."

 

  DÆMI:Samtök A (berjast gegn einelti) töldu að þeir sem voru í þeirra hópi (A) væru beittir misrétti af B (gerendum). Nú hefur dæmið snúist við og ...B (gerendur í að beita einelti) lætur í ljós andúð á A (fólkinu sem það hefur beitt einelti) ...er beitt misrétti.

A er beitt misrétti af B. B er beitt misrétti af A, vegna þess að B má ekki beita A misrétti?

Anna Benkovic (IP-tala skráð) 21.9.2011 kl. 17:40

14 Smámynd: Jens Guð

  Anna,  hver er að beita hommahatara misrétti?

Jens Guð, 21.9.2011 kl. 22:37

15 identicon

Trúaðir eru beittir misrétti, það er látið afskiptalaust að þeir séu heilaþvegnir af trúarbrögðum allt frá blautu barnsbeini.

Trúarbrögð eru toppurinn á einelti, þau eru löglegt einelti.

DoctorE (IP-tala skráð) 22.9.2011 kl. 10:13

16 identicon

Ágúst var yfirtökumaður Guns N´Roses þegar bandið ferðaðist um allan heiminn í kringum Use Your Illusion plöturnar sínar.  Hann er jafnframt titlaður leikstjóri myndbands við lagið Dead Horse af UYI 1 http://www.youtube.com/watch?v=u8X76NRiQLQ&ob=av2e 

Kannski smásmunarsemi en rétt skal vera rétt þegar kemur að uppáhaldsbandinu.  Guns n´Roses en ekki Guns ´n´ Roses eða GNR heldur GN´R :)

p.s. besta bloggsíðan á netinu.

Arnar (IP-tala skráð) 25.9.2011 kl. 09:42

17 Smámynd: Jens Guð

  DoctorE,  það er sannleikur í þessu hjá þér.

Jens Guð, 25.9.2011 kl. 12:41

18 Smámynd: Jens Guð

  Arnar,  bestu þakkir fyrir leiðréttinguna.

Jens Guð, 25.9.2011 kl. 12:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband