Færsluflokkur: Heilbrigðismál

Af hverju vilja Íslendingar ekki Burger King, McDonalds og Metró?

  hamborgarj2

  Sú var tíðin að Íslendingum þótti fátt flottara en láta sjá sig með þýska kjöthakksbollu í höndum matreidda í hnausþykku samlokubrauði að hætti bandarískra.  Heilu fjölskyldurnar hrúguðust í McDonalds og Burger King vopnaðar ljósmyndavélum og myndbandsupptökutækjum.  Doddsson mætti einn á McDonalds.  Ekkert vantaði samt upp á að hann væri ljósmyndaður í bak og fyrir á meðan hann slafraði í sig fátækrafæði.

  Nú er öldin önnur.  Glansinn fór af Doddssyni og bandarísku hamborgarakeðjunum.  Öllum útibúum Burger King á Íslandi hefur verið lokað.  McDonalds var lokað í Austurstræti.  Síðan var merki McDonalds fjarlægt af veitingastöðunum í Kringlunni og Skeifunni.  Í staðinn voru staðirnir merktir nafninu Metró.  Þar með urðu Íslendingar fyrstir allra þjóða heims til að henda McDonalds á haugana án þess að um pólitíska aðgerð væri að ræða.

  Nú hefur rekstur Metrós verið seldur.  Starfsfólk fær ekki borgað.  Það er gjaldþrot í pakkanum.  Ekki nóg með það.  Í vikunni skokkaði ég léttfættur um ganga Kringlunnar.  Þar á meðal tók ég nettan rúnt um Stjörnutorgið.  Mikil varð undrun mín er við mér blasti að Metró er horfinn á braut úr Kringlunni.  Ég var svo hissa að ég stökk yfir stól.  Og hélt síðan skokkinu áfram eins og ekkert hefði í skorist. 

  Þó McDonalds og Burger King fáist ekki lengur á Íslandi og Metró hafi lokað í Kringlunni er það ekki merki um að Íslendingar fúlsi við hamborgurum.  Það er hinsvegar eins og Íslendingar vilji heldur "íslenskari" útfærslu á þessum samlokum.  Búllan og Hamborgarafabrikkan blómstra.

hamborgari4


mbl.is Skyndibitastaðurinn Metró seldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilt þú 100 þúsund kall beint í vasann?

  Kuklarar eða skottulæknar (þeir sem stunda "óhefðbundnar" lækningar) og (mis heiðarlegir eða mis óheiðarlegir) lyfjaframleiðendur togast á um veika fólkið.  Þessi markaður er stór.  Það getur verið góður peningur í honum.  Umræða um allt sem snýr að veika fólkinu er oftast af hinu góða.  Nema þegar hún er af hinu vonda.

  Flest lyf sem boðin eru til sölu á netinu - í svokölluðum "spam" pósti - eru plat.  Eins og svo margt annað.  Til að mynda fyrirbæri sem kallast heilun,  höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun,  smáskammtalækningar og fugladansinn.

  Félagsskapurinn Vantrú býður nú 100 þúsund kr.  hverjum þeim sem getur sýnt fram á að lithimnulestur sé annað en bull.  Þetta er auðunninn peningur fyrir allan þann fjölda sem hefur árum saman stundað nám við lithimnulestur og vinnur sem lithimnufræðingar.  Forvitnilegt verður að fylgjast með biðröðinni.  Eða hvað?  

  James Randi hefur í mörg ár boðið eina milljón dollara þeim sem getur sýnt fram á "yfirnáttúrulega" hæfileika.  Ótrúlega fáir miðlar,  hugsanalesarar eða aðrir slíkir hafa spreytt sig.  Ekki einu sinni Þórhallur miðill hefur lagt í að reyna við milljón dollarana.  Eins og þetta ætti að vera létt og fyrirhafnarlítið að ná í þennan aur.  

 


mbl.is Græddi milljónir á sviknum lyfjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gátan með hvarf býflugna leyst

  Eins og kunnugt er af fréttum hafa býflugur horfið að mestu í Bandaríkjum Norður-Ameríku.  Líka víða í Evrópu.  Þetta hefur verið hið dularfyllsta mál.  Margar tilgátur hafa verið á lofti.  Nú hafa vísindamenn leyst þessa gátu.  Frá því var greint í frétt á CNN.  Ég undrast að sú frétt hafi ekki ratað í íslenska fjölmiðla.  Farsíminn er orsök vandamálsins.  Rafbylgjur farsímans gera býflugurnar ófrjóar.  Þá stendur eftir spurning hvaða skaða þessar sömu bylgjur valda manninum. 

Hverjir valda umferðaróhöppum?

  Að undanförnu hefur verið - og er um þessar mundir - í gangi herferð gegn ölvunarakstri.  Það er hið besta mál.  Aldeilis ágætt að koma af stað umræðu og vangaveltum um hvaðeina sem má verða til þess að draga úr umferðaróhöppum.  Það er óhrekjanleg staðreynd að ölvaðir ökumenn hafa valdið umferðaróhöppum.  

  Hinu má ekki gleyma:  Að langflestir sem valda umferðaróhöppum eru edrú.  Það þarf að taka á því vandamáli af festu.  Koma því liði úr umferðinni.  


mbl.is Kona kennir vampýru um bílslys
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gríðarlega sniðugt hagræðisráð - sparar tíma og allskonar

  Eins og allir vita er bráðnauðsynlegt að hafa smávegis af hráum fínt söxuðum lauki með þegar túnfiskssalat er lagað.  Annað þarf ekki.  Nema,  jú,  túnfisk,  egg og majónes.  Til spari má bæta við örlitlu karrý.  Svo litlu að enginn taki eftir því.

  Þessa uppskrift má með útsjónarsemi einfalda svo um munar.  Það er gert þannig að hænunum er ekki gefið neitt að éta nema lauk í nokkra daga.  Þá kemur milt og gott laukbragð af eggjunum.  Þar með losnar fólk gjörsamlega við alla fyrirhöfn af að saxa niður lauk í túnfiskssalatið.  Tímann sem sparast má nota til að þurrka af húsgögnum og vökva blóm með lituðu sykurvatni.
.
    . 

Mannakjötsát fyrir misskilning

  Í bílalúgu við hliðina á Skeljungi í Ártúnsbrekkunni kaupa menn "Akureyring" til að snæða.  Þar er um að ræða hamborgara matreiddan að hætti Akureyringa.  Hann er þannig að frönskum kartöflum er raðað beint ofan á kjötið.  Við það sjúga þær í sig safa og krydd úr kjötinu.  Þetta þykir Akureyringum vera eina rétta matreiðslan á hamborgara.  Hinsvegar eru íbúar Akureyrar mis ánægðir með að utan Akureyrar sé svona hamborgari kallaður "Akureyringur".  Þeim þykir það bera keim af mannáti.  Á móti vegur gleði yfir því að þegar ferðast er til Reykjavíkur sé hægt að fá rétt matreiddan hamborgara.

skrýtið nafn á veitingahúsi.- Skoti

  Ekki veit ég hvar veitingahúsið á myndinni er staðsett.  Af merkingu þess má ráða að þar sé boðið upp á djúpsteikta Skota.  Reyndar má einnig (með einbeittum vilja) lesa út úr nafninu að þarna standi Skoti við djúpsteikingargræjurnar og afgreiði fisk og franskar.

skrýtið nafn á veitingahúsi

  Kínverjinn Soon Fatt hefur sett upp lítinn skyndibitastað þar sem viðskiptavinurinn tekur matinn með sér.  Nafnið á Soon Fatt er kannski ekki það heppilegasta fyrir veitingastað.  Nafnið hljómar eins og yfirlýsing um að viðskiptavinurinn hlaupi í spik innan tíðar.  


Sólbaðslöggan orðin að veruleika

  Í vetur þegar Álfheiði Ingadóttur fór að klæja í lófana að banna eitthvað var gantast með að hún myndi sennilega banna fullorðnu fólki undir 19 ára aldri að fara í sólbað.  Ávinningurinn yrði tvíþættur:  Annarsvegar fengi Álfheiður útrás fyrir bannáráttuna;  hinsvegar myndi bannið skapa fjölda nýrra starfa.  Þetta kallaði á stofnun fjölmenns hóps harðsnúinna lögreglumanna sem myndu vera á þönum alla daga á milli sólbaðsstofa,  ylstrandarinnar í Nauthólsvík og annarra þeirra svæða sem fólk sækir á sólríkum dögum.  Það yrði að fjárfesta í einni eða fleiri þyrlum til að leita uppi ungt fólk í sólbaði.

  Til viðbótar þyrfti að útbúa heilmikið pappírsbákn til að afgreiða sektarmiða og innheimta sektir.  Þetta kallar einnig á nýtt unglingafangelsi fyrir sólbaðsunnendur sem láta sér ekki segjast.  Að auki yrði til nýr iðnaður við að falsa nafnskírteini með ófyrirsjáanlegum afleiðingum þegar öll ungmenni landsins eru skyndilega orðin 19 ára eða eldri.

  Nú er brandarinn orðinn að veruleika.  Álfheiður hefur fengið samþykkt á alþingi lagafrumvarp sem bannar fullorðnu fólki undir 19 ára aldri að fara í sólbað.  Í greinargerð með frumvarpinu er tekið fram að banninu sé ætlað að hindra að ungt fólk fari í sólbað í fegrunarskyni.  Rannsóknir hafa sýnt að sólbrún húð hefur margfalt aðdráttarafl gagnvart hinu kyninu í samanburði við föla og veiklulega húð.  Með banninu er verulega dregið úr líkum á ótímabærri þungun fullorðins fólks undir 19 ára aldri.  

  Verið er að skipa nefnd til að finna út með hvernig hægt er að koma í veg fyrir að íslensk ungmenni laumist í sólbað í sólarlandaferðum.  

  Fullorðið fólk undir 19 ára aldri getur sparað sér pening með því að sólbaða aðeins annan helming líkamans.  Þá fær það bara hálfa sekt en nær samt öllum ávinningi af ljósinu.  Meðal annars D-vítamíni og upptöku á kalki til styrktar tönnum,  hári,  húð og nöglum;  og serótíni til að vinna gegn þunglyndi.  Með þessari aðferð verður að láta sér nægja að slá á ýmis húðvandamál aðeins á annarri hlið líkamans (exem,  sóriasis,  bólur o.s.frv.).  

solba.jpg

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Ljósabekkjabann orðið að lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einföld aðferð til að afhomma

  Það þarf ekki meira til.  Þetta kennslumyndband tekur innan við 3 mínútur.  Að vísu þarf að horfa á það tvisvar eða þrisvar til að læra aðferðina utan að.  En hún er einföld og auðlærð.  Og pottþétt.  Þetta er ekki leikið grínatriði.   


Eivör ofsótt af Íslendingi

  Það hefur hent fleiri en einn og fleiri en tvo karlkyns aðdáendur færeysku söngkonunnar Eivöru að gera sér ranghugmyndir um samskiptin við Eivöru.  Sumir hafa haldið að þau tvö væru svo gott sem gengin í hjónaband.  Íslendingur nokkur hefur gengið lengra en aðrir.  Hann fór að elta Eivöru fyrir þremur árum;  sækja alla hljómleika með henni hérlendis og í nágrannalöndum.  Fyrir tveimur árum flutti maðurinn út til Færeyja.  Síðan hefur hann meðal annars haldið til í tjaldi í heimaþorpi Eivarar,  Götu í Færeyjum.  Þar á meðal hefur hann tjaldað í garðinum við hús Eivarar. 

  Maðurinn hefur sent Eivöru allt upp í tugi pósta á dag og tjáð sig grimmt um hana á færeyskri fésbókarsíðu.

  Eivör hefur kært manninn til lögreglu og óskað eftir nálgunarbanni.  Lögreglan getur þó ekkert gert á meðan maðurinn brýtur engin lög.  Að vísu hefur maðurinn hótað umboðskonu Eivarar öllu illu.  Meðal annars að brenna heimili hennar til kaldra kola.  Hann stendur í þeirri trú að hún standi í vegi fyrir því að þau Eivör séu hjón.  Hótanirnar hafa aðeins verið munnlegar þannig að þær nægja ekki til að lögreglan grípi til aðgerða.


Að baki frábærra barna eru frábærir foreldrar

  Eða ungur nemur,  gamall temur.  Eða þannig.  Myndirnar segja meira en mörg orð.

börn1börn2börn3börn4börn5börn6börn7börn8börn10börn11börn13börn15börn16börn17börn18börn20


mbl.is Gott að vera móðir á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband