Færsluflokkur: Heilbrigðismál
3.11.2010 | 23:50
Jólakakan
Eftirfarandi uppskrift að jólakökunni góðu fékk ég senda. Mér segir svo hugur að fleiri kunni vel að meta þessa einföldu, fljótlegu og skemmtilegu uppskrift.
Jólakakan góða
Hráefni:
1 bolli vatn
1 bolli sykur
4 stór egg
2 bollar þurrkaðir ávextir
1 teskeið bökunarsódi
1 teskeið salt
1 bolli púðursykur
1 bolli sítrónusafi
1 bolli hnetur
1 flaska af eftirlætis viskíinu
Meðhöndlun:
1. Smakkaðu viskíið til að ganga úr skugga um að það sé ekki skemmt.
2. Takið stóra skál. Athugið viskíið aftur til að vera alveg viss um að það sé ekki skemmt.
3. Hellið viskíinu í bolla og drekkið.
4. Endurtakið.
5. Kveikið á hrærivélinni, hrærið 1 bolla af smjöri í stóra mjúka skál.
6. Bætið 1 teskeið út í og hrærið aftur.
7. Athugið hvort viskíið sé nokkuð farið að skemmast.
8. Fáið ykkur annan bolla.
9. Slökkvið á hrærivélinni.
10. Brjótið tvær fætur og bætið í skálina og hendið útí bollanum af þurrkuðu ávöxtunum.
11. Hrærið í kveikivélinni.
12. Ef þurrkuðu ávextirnir festast við hrærarana losið þá þá af með rúfskjárni.
13. Bragðið á viskíinu til að athuga brestgatið.
14. Næst, sigtið 2 bolla af salti. Eða einhverju.
15. Athugið viskíið.
16. Sigtið sítrónusafann og teygið hneturnar.
17. Bætið einu borði, skeið, af sykri eða eitthvað. Hvað sem þú finnur nálægt.
18. Smyrjið ofninn.
19. Stillið kökuformið á 250 gráður.
20. Gleymið ekki að hræra í stillaranum.
21. Hendið skálinni út um gluggann og rokið lúðunni.
22. Athugið vískíið aftur. Og aftur. Farið að sofa. Það langar engan í jólaköku lengur. Ekki núna.
1.11.2010 | 19:51
Styrktartónleikar Aflsins
Árlegir styrktartónleikar Aflsins verða haldnir í Akureyrarkirkju fimmtudaginn 4. nóvember klukkan 20.00. Áætlað er að þeir standi til klukkan 23.00 eða svo. Eftirtaldir koma fram á tónleikunum:
- Karlakór Akureyrar - Geysir
- Heimir Ingimarsson
- Rúnar Eff
- Óskar Pétursson
- Kór Glerárkirkju
- Kynnir verður Jokka
Aflið er systursamtök Stígamóta á Norðurlandi. Þetta eru fjárvana samtök sem byggja á starfi sjálfboðaliða. Allir sem koma fram á tónleikunum gefa sína vinnu.
Það er mikilvægt að hver sem möguleika hefur á að sækja þessa tónleika geri það - og taki með sér gesti. Miðaverð er aðeins 1500 kall. Enginn posi er á staðnum. Það er upplagt fyrir vinnufélaga á Húsavík, Ólafsfirði og víðar að taka sig saman og fjölmenna.
http://www.facebook.com/event.php?eid=105129009553250
http://www.facebook.com/event.php?eid=105129009553250#!/pages/wwwaflidakis/108443469173520?v=wall
http://www.facebook.com/event.php?eid=105129009553250#!/profile.php?id=100000927585079
Heilbrigðismál | Breytt 2.11.2010 kl. 10:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.9.2010 | 14:53
Sparnaðarráð - 50% sparnaður!
Í því árferði sem ríkir um þessar mundir er brýnt að Íslendingar standi saman og deili með hver öðrum sparnaðarráðum. Guðirnir blessi Ísland. Ekki stendur á mér. Ég hef komið á framfæri í Sunnudagshugvekjunni á Nálinni fm 101,5 mörgu notadrjúgu sparnaðarráðinu. Þó flestir hlusti samviskusamlega á Nálina eru alltaf einhverjir í þeirri ömurlegu aðstöðu að koma því ekki við að hlusta á útvarp einmitt þegar Sunnudagshugvekjan er í loftinu. Þetta á til að mynda við um fólk sem er statt í flugvél eða er í yfirheyrslu hjá lögreglunni.
Mér er ljúft að koma til móts við þá vesalinga sem lenda í þessum ósköpum og birta hér nýlegt sparnaðarráð úr Sunnudagshugvekjunni.
Þannig er að flestar fjölskyldur og einstaklingar þurfa að fara til læknis eða á slysavarðstofu af og til. Sumir oft á ári. Það kostar pening. Margar ferðir kosta marga peninga. Þennan kostnaðarlið má lækka um 50%. Það munar um minna. Það eina sem þarf að gera er að fara aðeins í annað hvert skipti.
Hér eru fleiri hagræðis- og sparnaðarráð:
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.9.2010 | 19:55
Áfengar kexkökur
Í Bandaríkjum Norður-Ameríku - einkum Suðurríkjunum - vilja menn og konur helst djúpsteikja allan mat. Liðið djúpsteikir hrútspunga, súkkulaði og annað sælgæti, kartöflur, kjúklinga, engisprettur, kalkúna, smáfugla og allskonar. Í Texas fær liðið sér ekki lengur bjór öðru vísi en djúpsteiktan. Það er gert með því að hnoða bjór innan í hveitikökur sem síðan eru djúpsteiktar. Þessi aðferð fer eins og eldur um sinu hjá kúrekahöttunum og gallabuxunum í Texas. Á pöbbnum biður fólk ekki um einn kaldan á kantinn heldur tylft. Tylft er slangur yfir 12 rjúkandi heitar nýsteiktar bjórkökur. Það er líka hægt að biðja um hálfa tylft.
Hveitideigið er haft dálítið salt. Það er heppilegt þegar fólk dettur í það. Að auki er hörku stemmning í þessu. Kökurnar bragðast í humátt að saltstöngum sem iðulega eru í boði á pöbbum.
Sömu lög gilda um djúpsteiktar bjórinn og annan bjór: Hann má einungis selja þeim sem eru 22ja ára og eldri. Enda er alkahólstyrkur djúpsteiktu bjórkökunnar 5% og varasamt að hleypa 21 árs fólki í hana. Það færi allt í rugl.
Heilbrigðismál | Breytt 15.9.2010 kl. 00:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
4.9.2010 | 19:06
Myndbönd Gunnars Rúnars
Heilbrigðismál | Breytt 5.9.2010 kl. 08:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
31.8.2010 | 19:11
Vondandi verður Álfheiður Ingadóttir sett út
Á sama tíma og heilbrigðisyfirvöld í útlöndum eru að hvetja fólk til að stunda regluleg sólböð þótti Álfheiði Ingadóttur brýnasta verkefni snemmsumars að banna 18 ára Íslendingum og yngri að fara í sólbað. Vonandi verður hún sett úr ráðherrastóli við þær breytingar sem nú er verið að ræða á stjórnarfundi. Það eru kannski ekki miklar líkur á að snöfurlegur og frjálslyndur ráðherra taki við af henni. En þangað til annað kemur í ljós má vona að sá eða sú taki af skarið og aflétti ólögunum áður en beinþynning, þunglyndi, húðsjúkdómar, tannleysi, krabbamein, bakverkir og aðrir slíkir fylgifiskar sólarleysis verða verulegt vandamál.
Svo skemmtilega vill til að um leið og Álfheiður bannaði sólböð þá gáfu stjórnvöld í Íran út tilkynningu um að sólböð væru bönnuð. Konur í Íran sem eru staðnar að því að hafa laumast í sólbað eru kærðar og þeim refsað, samkvæmt lögum um sómasamlegt útlit. Írönsk kona með sólbrúna húð telst vera fleðuleg. Í lögum Álfheiðar Ingadóttur sem banna sólbað er tekið fram að bannið varði sólbað í fegrunarskini.
Ég held að það sé vont að Ragna sé sett út. Gylfi varð að fara. Sennilega hefur verið einhver pæling um að það kæmi illa út að setja hann einan af. Það kæmi öðru vísi út ef Rögnu væri líka fórnað.
Þessi íranska kona braut lög um sómasamlegt útlit. Hún hafði laumst í sólbað. Þvert á lög Álfheiðar Ingadóttur og íranskra stjórnvalda. Löggan lamdi konuna til blóðs.
![]() |
Gylfi og Ragna hætta í stjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
Þegar Sigrún Pálína Ingvarsdóttir sakaði Ólaf Skúlason um nauðgunartilraun kom það ekki öllum á óvart. Stúlkur sem stunduðu nám í Réttarholtsskóla er Ólafur var þar kennari vissu að þær mættu aldrei vera einar hjá honum. Stelpurnar brýndu þetta hver fyrir annarri og pössuðu upp á hver aðra gagnvart Ólafi. Það var á allra vitorði í skólanum að hann væri perri sem sætti lagi við að áreita stelpur kynferðislega.
Sigrún Pálína mætti hinsvegar lokuðum dyrum hjá kirkjunnar mönnum og var hvött til að hafa hljótt um atburðinn. Skref Sigrúnar varð öðrum fórnarlömbum Ólafs hvatning til að stíga einnig fram. Eitt þeirra uppskar þau viðbrögð að fjölskylda hennar skrifaði Ólafi bréf. Þar lýsti fjölskyldan yfir stuðningi við Ólaf og sagði fórnarlamb hans vera ímyndunarveikt.
Eftir því sem þeim fjölgaði, fórnarlömbum Ólafs, er komu fram með ásakanir á hendur honum fjölgaði stuðningsmönnum Ólafs einnig. Fólk sendi honum blómvendi og stuðningsyfirlýsingar út og suður. Enn í dag má sjá stuðning við Ólaf á fésbók og bloggi.
Tímarnir eru þó breyttir. Í dag eru fleiri tilbúnir að hlusta á fórnarlömb kynferðisofbeldis. Viljinn til að sópa þeirra málum undir teppi er minni en var. Samt tók það biskup og kirkjuráð HÁLFT ANNAÐ ÁR að verða við beiðni Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur um að fá áheyrn. Á sama tíma stakk biskupinn undir stól bréfi frá organista Ólafs Skúlasonar. Þar vottaði organistinn að Ólafur hafi verið haldinn kynferðislegu óeðli.
Biskupinn beit síðan - glottandi - höfuðið af skömminni með því að væna Guðrúnu Ebbu um ósannindi. Þetta eru skilaboðin frá æðsta og hæst launaðasta embættismanni ríkiskirkjunnar til fórnarlamba barnaníðs og annars kynferðisofbeldis af hálfu ríkispresta.
Framganga Guðrúnar Ebbu er klárlega mikill styrkur fyrir fórnarlömb Ólafs og önnur fórnarlömb barnaníðs og kynferðisofbeldis. Vottum Guðrúnu Ebbu virðingu fyrir hugrekki sitt og framgöngu. Það er hægt að gera með skráningu á fésbókarsíðu til stuðnings henni: http://www.facebook.com/#!/group.php?gid=110308905690499&ref=ts
Á síðunni er einnig vísað á áhugaverðar greinar um sitthvað þessu tengt.
![]() |
Lýsti alvarlegum brotum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt 22.8.2010 kl. 10:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
17.8.2010 | 00:18
Pilla sem kemur í veg fyrir að stúlkur verði samkynheigðar
Þeim dettur margt í hug í útlöndum. Stundum er eins og þeir hafi ekki annað að gera en láta sér detta eitthvað í hug. Nú hafa einhverjir í útlöndum fundið út að ef þungaðar konur ganga með kvenfóstur þá geta þær, með því að taka inn pillu, komið í veg fyrir að það verði samkynhneigt.
Pillan er upphaflega á markaði til að takast á við erfðasjúkdóm sem ég veit ekki hvað heitir á íslensku. Enska heitið er "Congenital Adrenal Hyperplasia".
Talið er að vitneskjan um þessa pillu muni í framtíðinni draga verulega úr fæðingu samkynhneigðra stúlkna í Bandaríkjunum og kannski víðar. Þá má spyrja: Til hvers?
Hvað segja Madonna og Britney Spears um þetta?
![]() |
Lyfjasala dregst saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 02:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (40)
28.7.2010 | 00:14
Raunir mínar og sendibílstjóra
Ég á töluverð samskipti við sendibílstjóra. Þannig háttar til að ég fæ með óreglulegu millibili nokkur vörubretti af góðum vörum frá útlöndum. Ég þarf aðstoð sendibíls með lyftu og tjakktrillu til að sækja vörubrettin á Vöruhótelið og koma þeim á lagerinn til mín. Lagerhúsnæðið er þannig staðsett að hann er í kjallara. Niður að dyrunum er 15 - 20 metra langur hallandi rampur. Ég er ekki klár í að átta mig á halla. Ég giska á að hallinn sé um það bil 20%. Mér finnst hann ekki vera brattur. Ég er vanur að bakka niður rampinn á litla sendibílnum mínum til að sækja vörur. Rampurinn er hinsvegar of mjór fyrir stóru sendibílana sem koma með brettin. Þeim bílum er lagt á jafnsléttu og bílstjórinn röltir með brettin á trillu niður rampinn.
Í dag var þetta dálítið öðru vísi. Þegar ég leiðbeindi bílstjóranum að ég þurfi að fá vörubrettin niður rampinn áttum við samtal á þessa leið:
- Ég fer ekki niður rampinn með brettin, mótmælti bílstjórinn.
- Nú?
- Já, ef ég fer niður rampinn með bretti þá dett ég.
- Það hefur aldrei verið neitt vandamál að fara með bretti niður rampinn. Ekki einu sinni í hálku á vetrum.
- Ungir strákar geta farið niður rampinn án þess að detta. Ég get hringt fyrir þig í einhvern bílstjóra sem treystir sér til þess. En ég dett í rampinum. Það er alveg pottþétt.
- Það dettur enginn í rampinum. Hann er ekki það brattur.
- Jú, ég þekki mig og ég hef farið niður ramp. Ég datt. Ég ætla ekki að detta aftur. Ég set brettin hér á planið og þú getur þá hringt í annan bílstjóra sem treystir sér niður rampinn. Það gæti orðið dýrt fyrir þig ef ég fer niður rampinn og dett.
Mikið lengra varð samtalið ekki. Við þetta sat. Bílstjórinn setti brettin út á plan. Næstu klukkutíma dundaði ég mér við að selflytja vörurnar (á þriðja tonn) af brettunum niður rampinn og inn á lager með því að hlaða þeim á litla einskonar innkaupakerru sem ég á. Það var hressandi líkamsrækt. Ég sparaði mér að borga slysabætur fyrir bílstjóra sem hefði dottið í rampinum.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 00:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
16.7.2010 | 11:21
Sólböð gegn sykursýki, krabbameini, þunglyndi, beinþynningu...
Sífellt hlaðast upp sannanir fyrir því að sólböð eru holl og góð í flesta staði. Hreint og klárt lífsnauðsynleg góðri heilsu. Engu að síður stóðst Álfheiður Ingadóttir ekki mátið á dögunum og festi í lög að Íslendingum undir 19 ára aldri sé stranglega bannað að fara í sólbað að viðlögðum háum fjársektum, fangelsun og eignarupptöku á sólkremum sem notuð eru við lögbrotið.
Nú var sænsk rannsókn að staðfesta það sem margar eldri kannanir hafa bent til: Að sólböð eru mikil og góð vörn gegn sykursýki. Þau draga úr líkum á sykursýki um 30%.
http://naturalnews.tv/v.asp?v=234
http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1067220/
![]() |
Útlit fyrir gott helgarveður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 17:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)