Nýtt, snoturt og grípandi lag með færeyskri söngkonu

  Þetta lag heitir "Hey Candy" og er sungið af færeysku söngkonunni Dortheu Höjgaard Dam.  Höfundur þess er eiginmaður hennar,  William Silverthorn.  Þau eru búsett á Íslandi - þrátt fyrir að eiga tvö hús í Færeyjum.  Dorthea Höjgaard hefur komið fram á nokkrum hljómleikum hérlendis, meðal annars með Peter Pólson (Clickhaze).  Dorthea Höjgaard Dam er virkilega góð söngkona með fallega söngrödd.

  "Hey Candy" er spilað í færeysku útvarpi og líklegt til að verða sumarsmellurinn þar í ár.  Ég er sannfærður um að ef spilun á laginu hefst í íslensku útvarpi þá verði það sama upp á teningnum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Þetta er alls ekki slæmt

Ómar Ingi, 25.6.2012 kl. 22:44

2 Smámynd: Jens Guð

  Ómar Ingi,  ég frétti áðan að lagið sé komið í spilun á rás 2.  Ég reikna með að það eigi eftir að fara á flug.

Jens Guð, 26.6.2012 kl. 00:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband