Bruce Springsteen segir frá íslenskri konu

 

  Vinna viđ heimildarkvikmynd um Brúsa frćnda (Bruce Springsteen) er komin á fljúgandi skriđ.  Nafn myndarinnar verđur "Springsteen & I".  Myndin er samvinnuverkefni ţriggja kvikmyndafyrirtćkja.  Ţau eru:  Ridley Scott Associates,  Black Dog Films og Scott Free London.  Uppskriftin ađ myndinni er sótt í margverđlaunađa mynd Scott Free London,  "Life In A Day". 

  Á heimasíđu Brúsa er upplýst ađ framleiđandi (producer) myndarinnar sé Svana Gísla.  Svana er međeigandi í Black Dog Films.  Ég veit fátt um Svönu annađ en ađ hún hefur eitthvađ komiđ ađ myndböndum fyrir Sigur Rós. 

  Á heimasíđu Brúsa eru ađdáendur hvattir til ađ senda Svönu frásagnir af ţví á hvern hátt Brúsi og tónlist hans hafa haft á líf viđkomandi.  Svana segir ađ ţađ skipti ekki máli hvort frásögn sé frá ađdáendum sem eru nýbúnir ađ uppgötva Brúsa eđa hvort ţeir séu búnir ađ vera harđlínuađdáendur í fjóra áratugi.  Svana biđur líka um sögur af foreldrum, ćttingjum, nágrönnum eđa öđrum sem séu ákafir safnarar á Brúsa-plötum.    

  Frestur til ađ senda inn frásagnir eru til 29. nóv.  Netfang Svönu er gefiđ upp:  info@springsteenandi.com .  Fólki er einnig bođiđ ađ hringja í Svönu.  Símanúmeriđ er hinsvegar ekki gefiđ upp.  Ţađ er skrítiđ.

  Brúsi er eitt stćrsta nafniđ í rokkinu.  Nafn Svönu Gísla ćtti ţví ađ verđa ţekkt á heimsvísu eftir ađ hafa veriđ kynnt á heimasíđu kappans.  Brúsi er ţekktur fyrir ţátttöku í ýmsum mannúđarmálum.  Til ađ mynda var hann á dögunum duglegur viđ ađ safna hjálparfé til stuđnings ţeim sem eiga um sárt ađ binda eftir fellibylinn Sandy.  Hann hefur einnig lagt Amnesty International liđ og túrađ undir merkjum ţessa helsta málsvara samviskufanga heims.  Svo fátt eitt sé nefnt.  Fyrir fjórum árum tók Brúsi í fyrsta skipti ţátt í beinni stjórnmálabaráttu međ ţví ađ styđja forsetaframbjóđandann Hussein Obama.  Ţeir eru góđir vinir.  Svana Gísla á vćntanlega eftir ađ verđa tíđur gestur í Hvíta húsinu. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Flott hjá Svönu Gísla.  Heyrđi ađ hún vćri vinkona Emilínu Torini og ţćr hafi flutt til Bretlanda á svipuđum tíma, eftir ţessu hlýtur hún ađ vera búin ađ hasla sér völl í BNA. 

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 14.11.2012 kl. 17:07

2 Smámynd: Jens Guđ

  Ásthildur Cesil,  takk fyrir ţennan fróđleik.

Jens Guđ, 15.11.2012 kl. 21:44

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.