Stórtíðindi af breskri plötusölu

  Þær eru óvæntar sviptingarnar í plötusölu í Bretlsndi þessa dagana.  Og þó.  Einhverjir voru búnir að spá því að mögulega gæti þessi staða komið upp.  Formlegt heiti breska plötusölulistans er Official Album Chart Top 100.  Hann mælir plötusölu í öllu formi,  hvort heldur sem er vinyl,  geisladiskar, niðurhal eða streymi.

  Þetta eru söluhæstu plöturnar í dag:

1.   Abbey Road með Bítlunum

2.   Wy Me Why Not með Liam Gallagher

3.   Divinlely Uninspired To A Hellish Extent með Levis Capaldi

  Aldrei áður hefur hálfrar aldar gömul plata snúið aftur á vinsældalistann og endurheimt 1. sætið.  Þetta er met.  Á sínum tíma var platan í 13 vikur á listanum.

  Í 28. sæti er Bítlaplatan 1.  Hún hefur verið á listanum í 230 vikur.   Þar af hæst í 1. sæti.

  Í 69. sæti er Bítlaplatan Sgt Peppers Lonely Hearts Club Band.  Hún hefur verið á listanum í 274 vikur.  Þar af hæst í 1. sæti.

  Í 72. sæti er Bítlasafnplatan 1967-1970.  Hún hefur verið í 41 viku á listanum.  Þar af hæst í 4. sæti.

  Í 94. sæti er Bítlaplatan Hvíta albúmið.  Hún hefur verið í 37 vikur á listanum.  Þar af hæst í 1. sæti.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Bítlarnir verða alltaf númer 1 alveg sama hvaða ár er.

Sigurður I B Guðmundsson, 4.10.2019 kl. 23:51

2 identicon

Ég er ekki mikill ELO aðdáandi, en því meiri Beatles aðdáandi eins og Jeff Lynne sem samdi lagið Beatles Forever. Brot úr textanum: ,, There s something about a beatles song, that lives about forever more. The beauty of the harmonies, the sound of the fab four. All their music will live on and on, John and Paul, George and Ringo. They really taught the world to sing ,,.

Stefán Guðmundsson (IP-tala skráð) 5.10.2019 kl. 15:23

3 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  Jeff hittir ekki alltaf naglann í höfuðið - en þarna tekst honum vel upp.

Jens Guð, 5.10.2019 kl. 17:28

4 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  Bítlarnir eru að minnsta kosti töluvert vanir að vera í 1. sæti!

Jens Guð, 6.10.2019 kl. 14:37

5 identicon

Smá athugasemd. Þú skrifar "Aldrei áður hefur hálfrar aldar gömul plata snúið aftur á vinsældalistann og endurheimt 1. sætið." Samt segir þú líka að bæði Stg. Peppers og The Beatles (Hvíta albúmið) endurútgáfurnar hafi náð 1. sæti. Bara smá röfl í gömlum bítlaaðdáanda.

Jónas Yngvi Ásgrímsson (IP-tala skráð) 7.10.2019 kl. 09:14

6 Smámynd: Jens Guð

Jónas Ingvi,  munurinn er sá að þær plötur náðu 1. sæti þegar þær komu út en endurheimtuðu það aldrei síðan  - þó þær hafi aftur náð inn á Topp 100 listann. 

Jens Guð, 7.10.2019 kl. 09:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.