Áfall!

  Ég verð seint sakaður um að horfa of mikið og of lengi á sjónvarp.  Síst af öllu að horfa á línulaga dagskrá.  Þess í stað fletti ég upp á dagskrá Rúv á heimasíðu þess og hlera hvort þar hafi verið sýnt eitthvað áhugavert.  Ég er ekki með neina keypta áskrift.  

    Í gær fletti ég upp á endursýndri spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur.  Það er fróðlegt og skemmtilegt sjónvarp.  Í kjölfarið birtist óvænt Hemmi Gunn á skjánum.  Mér var illa brugðið.  Gleðipinninn féll frá fyrir 11 árum.  Þetta var áfall.  Mér skilst að Sjónvarpið hafi hvorki varað ættingja hans né vini við.  Þetta var svakalegt.

  Við nánari könnun kom í ljós að um var að ræða endursýningu á gömlum skemmtiþætti,  Á tali hjá Hemma Gunn. Sem betur fer var tali sjónvarpsstjörnunnar ekki breytt með gervigreind.  Það var lán í óláni.

  Ég vara viðkvæma við að "skrolla" lengra niður þessa bloggsíðu.  Fyrir neðan eru nefnilega myndir af Hemma.

Hemmi_Gunnhemmi_gunn..


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ég kynntist Hemma og það fór vel á með okkur. 

Sigurður I B Guðmundsson, 12.1.2024 kl. 11:44

2 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  hann var hvers manns hugljúfi og vinamargur. 

Jens Guð, 12.1.2024 kl. 13:24

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Perla af manni hann Hemmi.

Sigurður Kristján Hjaltested, 12.1.2024 kl. 18:08

4 Smámynd: Jens Guð

Sigurður Kristján,  hann var gleðigjafi hvar sem hann fór - að öllu jöfnu.  

Jens Guð, 12.1.2024 kl. 18:30

5 identicon

Mér brá vissulega að sjá okkar ástkæra Hemma Gunn birtast svona ,, ljóslifandi ,, í frábæru Áramótaskaupi, en svo kom það fram að höfundar voru búnir að aðvara nánustu ættingja, enda fagmenn þar á ferð. Mér brá líka áðan þegar ég var að hlusta á fráttir á RÚV kl 10 þann 13 Jan. Þar kom fram frétt sem þú ættir að kafa ofan í Jens. Það að agaleysi nemenda í Færeyjum sé orðið það alvarlegt að þeir séu að beita kennara ofbeldi, ráðast á þá, sparki í þá og að kennarar séu hræddir við að hafa samband við foreldra viðkomandi. Þetta ástand mun hafa varað árum saman og fer versnandi. Öðruvísi mér áður brá.  

Stefán (IP-tala skráð) 13.1.2024 kl. 10:33

6 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  þetta er víst þróunin í öðrum Norðurlöndum.  Þar meðtalið Íslandi.  Sem betur fer er ég hættur að kenna,  bæði á Íslandi og í Færeyjum! 

Jens Guð, 13.1.2024 kl. 11:16

7 identicon

Nemendur eru að kasta ýmsu í kennara í Færeyjum. Mér dettur í hug aukinn handboltaáhugi þar, enda landsliðið að keppa á EM.

Stefán (IP-tala skráð) 13.1.2024 kl. 12:37

8 Smámynd: Jens Guð

Stefán (# 7),  frést hefur af barni í Færeyjum sem henti blýanti að kennara.   

Jens Guð, 13.1.2024 kl. 16:41

9 identicon

Ég er auðvitað kominn langt út fyrir upphaflegt umræðuefni hér og þá ekki í fyrsta skipti, en datt þetta bara í hug af því að mér brá við þessar skelfilegu ofbeldisfréttir í færeyskum skólum, sem nú dynja hér yfir í íslenskum fjölmiðlum. Kannski er gert of mikið úr þessu ástandi hjá frændum vorum til að leiða athyglina frá ástamdinu í íslenskum skólum. 

Stefán (IP-tala skráð) 13.1.2024 kl. 18:15

10 Smámynd: Jens Guð

Stefán (# 9), ég verð ekki var við umræðu um þetta í færeyskum fjölmiðlum - ef frá er talið viðtal í Kringvarpinu við formann kennarasambandsins.  Reyndar kemst fátt annað að í færeyskum miðlum þessa dagana en handbolti.

Jens Guð, 14.1.2024 kl. 11:47

11 identicon

Að sjálfsögðu stökkva Færeyingar nú til og hefja söfnun fyrir Grindvíkinga í gegn um Rauða Krossinn þar -  Bestu vinir okkar !

Stefán (IP-tala skráð) 17.1.2024 kl. 11:57

12 Smámynd: Jens Guð

Stefán (# 11),  verst að Íslendingar kunna ekki að meta ausnaskap Færeyinga í okkar garð.  Dæmi:  Í kjölfar snjóflóðsins á Flateyri safnaði færeyskur almenningur fyrir fullbúnum leikskóla sem þeir reistu á Flateyri.  Nokkrum misserum síðar sá ég að leikskólabyggingin var auglýst til sölu.  Ég klagaði í Færeyinga.  Þeir urðu miður sín og þótti sér misboðið.  Salan var dregin til baka.   

Jens Guð, 17.1.2024 kl. 17:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.