Gapandi hissa

  Ég veit ekkert um boltaleiki.  Fylgist ekki með neinum slíkum.  Engu að síður fer ekki framhjá mér hvað boltafólk gapir mikið.  Það er eins og stöðug undrun mæti því.  Það gapir af undrun.  Að mér læðist grunsemd um að einhverskonar súrefnisþörf spili inn í.  Fólkið berjist við - í örvæntingu - að gleypa súrefni.  Þetta er eins og bráðasturlun.

bolti 1boltamóibolti 2bolti 3boltagaparibolti 4boltakappibolti 5boltagaurbolkti 6bolti dboltabullur 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Á þessum myndum má sjá sannan keppnisanda í fótbolta. Menn fagna eigin árangri eða hvetja félagana áfram með hrópum og köllum. Að fylgjast með góðum fótboltaliðum er dásamleg skemmtun og fólk eignast sín lið til að styðja í blíðu og stríðu, svona rétt eins og við íslendingar eignumst okkar forsetaframbjóðanda til að styðja í dag. Svo eigum við flest okkar uppáhalds tónlistarfólk. Sumir segjast hlusta á alla tónlist, en mér finnst það ekki vera tónlistarsmekkur. Ég hlusta helst á þá tónlist sem fellur best að mínum tónlistarsmekk sem kann alveg að vera þröngur. Eins fylgist ég helst með ,, mínum ,, fótboltaliðum.  

Stefán (IP-tala skráð) 30.4.2024 kl. 08:17

2 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  takk fyrir þína hlið á málinu.

Jens Guð, 30.4.2024 kl. 08:37

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Maður bara gapir yfir þessu..laughing

Sigurður Kristján Hjaltested, 30.4.2024 kl. 10:36

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Myndirnar eru mjög skemmtilegar og tek ég algjörlega undir með Stefáni.  Hins vegar get ég ekki orða bundist eftir að hafa lesið viðtal við Hjálmar Jónsson, fyrrum framkvæmdastjóra Blaðamannafélags Íslands, en í þessu viðtali kom hann með orðatiltæki sem ég kannast ekki við að hafa heyrt áður en það er "sögnin" að verða "ROTHISSA".......wink

Jóhann Elíasson, 30.4.2024 kl. 12:02

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Eru þetta ekki viðbrögð þeirra við bloggunum þínum???

Sigurður I B Guðmundsson, 30.4.2024 kl. 13:08

6 Smámynd: Jens Guð

Sigurður Kristján,  vel mælt!

Jens Guð, 30.4.2024 kl. 16:46

7 Smámynd: Jens Guð

Jóhann,  þetta er áreiðanlega nýyrði.

Jens Guð, 30.4.2024 kl. 16:48

8 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  þegar þú nefnir það!

Jens Guð, 30.4.2024 kl. 16:48

9 Smámynd: Ómar Geirsson

Rothissa er eitt af nýyrðum ársins.

Reyndar eitt best lýsandi orð sem ég hef lesið lengi, og margar myndir af gapandi hissa fótboltamönnum hef ég séð, enda fan.

Að ég skuli ekki hafa fattað að þeir væru rothissa, það var bara vegna þess að ég hafði ekki orðið.

Takk fyrir skemmtilegan pistil og nærandi umræðu.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 30.4.2024 kl. 18:09

10 Smámynd: Jens Guð

Ómar,  takk fyrir hólið.  Í upphafi var orðið...

Jens Guð, 30.4.2024 kl. 19:09

11 Smámynd: Wilhelm Emilsson

"Og orðið var hjá Jens Guði . . ." smile Deilur við dómarann virðast oft valda bráðasturlun--sem er gott orð--hjá íþróttamönnum.

Wilhelm Emilsson, 30.4.2024 kl. 19:45

12 Smámynd: Ómar Geirsson

Og get ekki verið meira sammála.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 30.4.2024 kl. 21:07

13 Smámynd: Jens Guð

Wilhelm,  hehehe!

Jens Guð, 30.4.2024 kl. 21:13

14 Smámynd: Jens Guð

Ómar,  né heldur ég!

Jens Guð, 30.4.2024 kl. 21:15

15 identicon

Nú er ég alveg steinrothissa. Orðið rothissa hefur lengi verið til í mínum orðaforðabanka þannig að varla er það nýyrði nema kannski í fyrirsögnum. Hvaðan það kom og hver bjó það til hef ég ekki hugmynd um. Bráðasturlun er skemmtilegt orð ef það er notað á viðeigandi hátt á kappvellinum. En gæti valdið misskilningi.

Sigurður Bjarklind (IP-tala skráð) 1.5.2024 kl. 06:57

16 Smámynd: Jens Guð

Sigurður Bjarklind,  takk fyrir upplýsingarnar.

Jens Guð, 1.5.2024 kl. 09:23

17 identicon

Á öllum myndunum er verið að öskra en ekki að gapa.  Það er m.a það sem gefur lífinu lit, ástríðan og innlifunin.  Það væri lítið gaman að íþróttalekjum ef báðum aðilum væri sama um úrslitin. Þegar báðir aðilar vilja sigur þá kemur til skjalanna sigurviljin með tilheyrandi ástríðu og innlifun.

Afsakið að ég skuli vera að eyðileggja alla aumu brandarana um 'gapandi hissa'.

Bjarni (IP-tala skráð) 1.5.2024 kl. 10:37

18 Smámynd: Jens Guð

Bjarni,  takk fyrir ábendinguna.

Jens Guð, 1.5.2024 kl. 11:48

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og þrettán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband