Dularfulla kexið

  Eitt sinn heyrði ég sögu af nafngreindum eldri bræðrum.  Þeir bjuggu tveir saman á sveitabæ í nágrenni Bolungarvíkur.  Þeir stunduðu fjárbúskap.  Fátt var um gestakomur til þeirra.  Þó brá svo við einn daginn að farandsali heilsaði upp á þá.  Annar bróðirinn bauð honum upp á kaffi og mjólkurkex.  Hann bleytti upp í kexinu með því að dýfa því ofan í kaffið.  Það mýkti kexið.  Er hann hafði sporðrennt nokkrum kexbitum spurði bróðirinn:

  - Þykir þér vera skrýtið bragð af kexinu?

  Gesturinn velt bragðinu og spurningunni fyrir sér og kvað hálf hikandi nei við.  Bróðirinn mælti: 

  - Bróðir minn heldur því fram að kötturinn hafi migið í kexkassann.  Ég held ekki. 

 

  kex


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Kettir míga og skíta út um allt og eru sérstaklega hrifnir af því að míga í sandkassa í leikskólum þar sem krakkarnir eru svo duglegir við að moka sandinum upp í sig. 

Stefán (IP-tala skráð) 7.8.2025 kl. 10:28

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er spurning hvort dallurinn sem kexið er geymt í sé með loki eða ekki??????

Jóhann Elíasson, 7.8.2025 kl. 11:11

3 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  kettir eru yfirleitt til vandræða.

Jens Guð, 7.8.2025 kl. 12:40

4 Smámynd: Jens Guð

Jóhann,  góð spurning!

Jens Guð, 7.8.2025 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og fimmtán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband